logo
föstudagur, 18. maí 2012

Húmor og hin hugtökin

Anna Kolbrún ÁrnadóttirAlveg er það stórmerkilegt að húmor Íslendinga þurfi ætíð að vera á annara kostnað. Íslendingar virðast ekki geta verið fyndnir nema þeir geri grín að öðru fólki, nei það er ekki rétt að kalla það að gera grín, Íslendingar hæðast að öðrum og margir helst á meinlegan og ljótan hátt. Stríðni er annað fyrirbæri sem Íslendingar kunna varla að fara með, ... nei djók ... er orðasamband sem á að réttlæta allt!

Ég vinn í grunnskóla þar sem við þurfum oft að bregðast við gríni eða stríðni sem á sér stað á milli nemenda. Oftast nær er hægt að ná fram sáttum og halda áfram með daginn, en stundum kemur það fyrir að það gengur ekki. Þá setjumst við gjarna niður með nemendum og reynum að fá fram það sem fór úrskeiðis til þess að laga það. Við sem vinnum í skólum leggjum okkur mikið fram við að kenna nemendum umburðarlyndi, virðingu, tillitsemi og fyrirgefningu svo dæmi séu tekin. Sagt er að hlutverk skólans, í samvinnu við heimilin sé sð búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi og þá verð ég hugsi.

Hvernig er hægt að ætlast til þess af nemendum að þeir séu til fyrirmyndar þegar að þjóðfélagið allt er (mig langar að segja í steik) í ójafnvægi. Engin virðist velta því fyrir sér að orð og gjörðir hafa áhrif ... mikil áhrif á alla í þjóðfélaginu. Margir tala um að nú verði að "byrja nýtt Ísland" - en hvar á að byrja nýtt Ísland? Varla er hægt að ætla skólum landsins að standa einir að þeirri uppbyggingu, eða einstaka foreldri?

Nú gæti ég velt upp væmna svarinu og sagt að allir verði nú að leggjast á eitt við að byrja nýtt Ísland - týpískur frasi sem svo auðvelt er að segja en alls ekki auðvelt að framkvæma. Við þurfum öll að líta í eigin barm sem manneskjur, við verðum að ræða við börnin okkar, útskýra fyrir þeim að margt sem heyrist og sést sé kannski ekki í lagi. Ekki aðeins að fordæma heldur að útskýra af hverju - með skiljanlegum orðum. Hættum að vera meðvirk og tökum ábyrgð á því í hvernig þjóðfélagi við búum í - það eiga nemendur og börnin inni hjá okkur.

Anna Kolbrún Árnadóttir, situr í landsstjórn Landssambands Framsóknarkvenna.