Tíminn | 21.04.2011 |
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands
Sendi ákall til annarra þjóða með hjálp erlendra fjölmiðla
Það var skrítin tilfinning að upplifa
þá staðreynd að þurfa að senda ákall til annarra þjóða vegna
ástandsins hér á landi. Slíkt neyðarkall er yfirleitt aldrei sent
öðrum þjóðum nema þegar gríðarlegar náttúruhamfarir hafa átt sér
stað í viðkomandi landi.
Hamfarir hafa átt sér stað hér á landi. Ákallið var til þeirra
sem eru aflögufærir í Svíþjóð í gegnum sænska fjölmiðla sem
heimsóttu Fjölskylduhjálp Íslands 28. mars og 6. apríl sl. þar sem
ég upplýsti blaðamenn um aðstæður fátæks fólks hér á landi. Við
höfum tekið á móti yfir sex tugum fjölmiðla alls staðar að úr
heiminum sem hafa óskað eftir að fá að kynnast starfsemi
Fjölskylduhjálpar Íslands.
Aldrei hef ég sent ákall til annarra þjóðlanda fyrr en nú og
ekki að ástæðulausu. Ríkisvaldið mun líklega styrkja starfið um
fjórar milljónir árið 2011 og Reykjavíkurborg styður starfið með
2,5 milljónum króna en af þeirri upphæð verður dregin húsaleiga í
Eskihlíð 2-4 sem er í eigu borgarinnar. Þegar upp er staðið verður
styrkur borgarinnar um 1,2 milljónir króna árið 2011. Við kaupum
mánaðarlega matvæli fyrir fjórar til fimm milljónir með dyggri
aðstoð einstaklinga og fyrirtækja í landinu.
Tilræði við heilsu og líf hluta
þjóðarinnar
Ástandið er orðið skelfilegt fyrir þúsundir fjölskyldna sem búa
við ömurlegan aðbúnað. Getum við horft upp á afskiptaleysi
stjórnvalda á Íslandi og þeirra sem meira mega sín í þjóðfélaginu?
Aðstæður í dag eru yfirþyrmandi. Yfir eitt þúsund fjölskyldur leita
til Fjölskylduhjálpar Íslands vikulega eftir mataraðstoð. Fólk
hefur ekki ráð á að leysa út nauðsynleg lyf sín, hvað þá að leita
eftir tannlæknaþjónustu. Fólk dregur það að leita til
heilsugæslunnar sökum peningaleysis. Eftir því sem lengra líður frá
hruninu snertir ástand lítilmagnans í þjóðfélaginu æ færra fólk.
Það er nefnilega svo auðvelt að fara í gegnum lífið á Íslandi án
þess að kynnast fátæktinni. Það furðulega er að margir sem ólust
upp við fátækt í eina tíð en eru í góðum efnum í dag láta sig engu
skipta þær fjölmörgu fjölskyldur sem búa við lítið sem ekkert í
okkar nútímaþjóðfélagi. Þeir hinir sömu hafa gleymt æsku sinni og
uppruna. Hugsum til allra þeirra barna sem alast upp á Íslandi í
dag við verulega kröpp kjör með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Við
tökum á móti fjárstuðningi inn á reikning 101-26-66090.
Páskahátíðin er framundan og því er mikilvægt að þeir sem eru
aflögufærir með hátíðarmat styðji okkur til að hjálpa
skjólstæðingum Fjölskylduhjálpar Íslands, því þá langar líka að
gera vel við sínar fjölskyldur eins og við öll viljum gera. Við
þiggjum matvæli, notaðan og nýjan fatnað alla miðvikudaga.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður
Fjölskylduhjálpar Íslands í Reykjavík, Akureyri og Reykjanesi og er
í hópi hagsýnna húsmæðra.
Tíminn | 08.08.2011 |
Vigdís Hauksdóttir er þingmaður Framsóknarflokksins
Þann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?...
Tíminn | 06.08.2011 |
Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur:
Stjórnlagaráð hefur gert tillögur að nýju kosningakerfi. Hér verður minnst á ólíka stöðu kjósenda gagnvart kerfinu eftir búsetu.Margir hafa á umliðnum árum hvatt til jafns vægis atkvæða íbúa höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar. Sérstaklega eftir kosningarnar 2007 þegar ríkisstjórnin fékk minnihluta atkvæða en hélt meirihluta þingmanna vegna misvægisins. Þau sjónarmið hafa oftast heyrst að í litlu ríki sé eðlilegt að hafa jöfnuð og að með breytingum í samskiptum og samgöngum sé aðstöðumunur eftir búsetu minni en var....
Tíminn | 09.07.2011 |
Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur
Flest ríki hafa millistjórnsýslustig, það er stjórnvald sem er skipulagslega á milli sveitarfélagastigs, lægsta stigsins og ríkisins, hæsta stigsins. Þau eru hluti af stjórnsýslulegri tilhögun hvers ríkis og þau eru jafnvel höfð mörg og þau stuðla að jafnræði og sjálfræði héraða og dreifingu valds og fjármuna í ríkinu. En á Íslandi eru bara tvö grunn stjórnsýslustig, sveitarfélög og ríki. Þau gegna ekki alveg sama hlutverki og hafa ekki sömu áhrif. Þvert á móti, ef engin millistjórnsýsla er, þá er það sennilega örugg leið til þess að efla miðlæga höfuðborg stjórnsýslu og veikja aðra hluta ríkisins og gera þá alla jafn fátæka....
Tíminn | 11.06.2011 |
Níels Adolf Ársælsson, skipstjóri og útgerðarmaður.
Ímynd Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar er því miður ekki til nema í hugum gráðugra klíku LÍÚ sem hefur svo sannarlega steypt Íslandi á hausinn! Engin þjóð í heiminum stundar eins óábyrgar og ruddafengnar fiskveiðar líkt og Íslendingar gera....
Tíminn | 08.06.2011 |
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Andrúmsloftið er alheimsauðlind. Allt frá árinu 1972 hefur orðið þróun í þessum málaflokki sem lauk með Kyoto – bókunni um verndun loftslags. Bókunin er afgerandi og kveður á um að aðildarríki skuli draga úr útstreymi tiltekinna gróðurhúsalofttegunda miðað við útstreymi eins og það var árið 1990, á skilgreindum tímabilum. Fyrsta skuldbindingartímabil bókunarinnar var til fimm ára, frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2012. Nú rennur þetta skeið brátt á enda og ekkert samkomulag er milli ríkja hvað taki við að því loknu...
Tíminn | 21.04.2011 |
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands
Það var skrítin tilfinning að upplifa þá staðreynd að þurfa að senda ákall til annarra þjóða vegna ástandsins hér á landi. Slíkt neyðarkall er yfirleitt aldrei sent öðrum þjóðum nema þegar gríðarlegar náttúruhamfarir hafa átt sér stað í viðkomandi landi....
Tíminn | 18.04.2011 |
Anna Kolbrún Árnadóttir, situr í landsstjórn Landssambands Framsóknarkvenna
Alveg er það stórmerkilegt að húmor Íslendinga þurfi ætíð að vera á annara kostnað. Íslendingar virðast ekki geta verið fyndnir nema þeir geri grín að öðru fólki, nei það er ekki rétt að kalla það að gera grín, Íslendingar hæðast að öðrum og margir helst á meinlegan og ljótan hátt. Stríðni er annað fyrirbæri sem Íslendingar kunna varla að fara með, ... nei djók ... er orðasamband sem á að réttlæta allt!...
Tíminn | 16.04.2011 |
Guðmundur Franklín Jónsson, viðskiptafræðingur
Árið 1875 var komið á samnorrænu myntbandalagi milli konungsríkja Danmörku, Noregs og Svíþjóðar. Tóku þessi ríki upp sameiginlega krónu og var þetta myntbandalag í gangi fram að fyrri heimstyrjöld. Fyrir myntbreytinguna 1875 nefndist myntin í löndunum ríkisdalur. Á 18. öld voru í Danaveldi tvær gerðir ríkisdala. Annars vegar var um að ræða kúrantdalinn sem var pappírsmynt og hins vegar var það spesíudalurinn sem var silfurmynt. Spesíur voru mikið notaðar á Íslandi....
Tíminn | 08.04.2011 |
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Tilefni þessara skrifa er frumvarp sem lagt hefur verið fram á alþingi af þremur þingmönnum Samfylkingarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að opnað verði fyrir inn- og útflutning á gæludýrum hafi dýrin fengið sk. gæludýravegabréf. Vegabréf sem þessi notar Evrópusambandið til að votta að dýrin hafi verið bólusett fyrir ákveðnum sjúkdómum. Sama kerfi notar Evrópusambandið varðandi flutning á lifandi dýrum, plöntum, útsæði, fræjum o.þ.h. Frumvarp þremenningana er því fyrsta skrefið í að opna landið fyrir slíkum innflutningi. ...
Tíminn | 05.04.2011 |
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.
Við, íslendingar erum dugleg þjóð, erum tilbúin að vinna myrkrana á milli til að koma ár okkar og fjölskyldu vel fyrir borð. Við höfum unnið og unnið og greitt skatta, skatta sem notaðir eru í samfélagsþjónustu. Í dag eru þúsundir fjölskyldna sem standa frammi fyrir því að ævisparnaðurinn er horfinn, gufaði upp á einni nóttu. Við sitjum eftir undrandi yfir ástandinu....
Tíminn | 30.03.2011 |
Kristbjörg Þórisdóttir varaformaður Landssambands framsóknarkvenna
Munu stjórnlagaráðsfulltrúar upplýsa með formlegum hætti um hagsmunatengsl sín?
Ég er ein þeirra sem bauð fram til stjórnlagaþings. Í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings óskaði ég ítrekað eftir því að frambjóðendum yrði gert skylt að upplýsa um hagsmunatengsl sín með formlegri hagsmunaskráningu, samanber þeirri sem alþingismenn fylla út og birt er á vefsíðu Alþingis...
Tíminn | 28.03.2011 |
Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur
Eiga yfirmenn hjá ríkinu rétt á því að ráða til starfa þann sem þeir vilja? Það þarf ekki að leita lengi í hinu opinbera regluverki til að átta sig á að svo er ekki. Þeim ber að velja hæfasta starfsmanninn á grundvelli þess að þannig er almannafé best varið. Þá eiga þeir að velja konu ef hún er jafn hæf karli. Auk þess eiga stjórnendur hjá ríkinu að leggja málefnaleg sjónarmið til grundvallar ráðningu, í eðlilegri áhersluröð. Þessar reglur eru nokkuð afdráttarlausar....
Tíminn | 25.03.2011 |
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Samkvæmt skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna, eru um 15.000 heimili með skuldir umfram 110% af fasteignamati og fer ört vaxandi. Hjá stórum hluta þessa hóps duga ráðstöfunartekjur ekki fyrir áætluðum framfærslukostnaði og því síður upp í greiðslur af lánum....
Tíminn | 25.03.2011 |
Jessica A. Kaahwa, Uganda
Samkoman í dag, á alþjóðlegum degi leiklistarinnar, er sönn mynd af ótrúlegri getu leikhússins að virkja fólk og byggja brýr. ...
Tíminn | 25.03.2011 |
Stefán Baldursson, leikstjóri og óperustjóri
Það er merkilegt að í hinni efnahagslegu kreppu sem ríkt hefur á Íslandi síðustu misseri, hefur listin blómstrað sem aldrei fyrr. Aðsóknarmet eru sett í leikhúsunum, gestafjöldi á tónleika og myndlistarsýningar eykst og fleiri bækur seljast en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig að fólk forgangsraðar öðruvísi en áður og leitar í vaxandi mæli á vit lista og menningar. ...
Tíminn | 22.03.2011 |
Guðlaugur Sverrisson
Þegar að rýnt er í ársuppgjör Landsvirkjunar fyrir árið 2010 kemur í ljós að afborganir af lánum LV eru um 100 milljarðar á árunum 2010-2012. Reikna má með að handbært fé frá rekstri á sama tíma geti orðið um 70-80 milljarðar. ...