Opið bréf til stjórnlagaráðsfulltrúa
Munu
stjórnlagaráðsfulltrúar upplýsa með formlegum hætti um
hagsmunatengsl sín?
Ég er ein þeirra sem bauð fram til stjórnlagaþings. Í aðdraganda
kosninga til stjórnlagaþings óskaði ég ítrekað eftir því að
frambjóðendum yrði gert skylt að upplýsa um hagsmunatengsl sín með
formlegri hagsmunaskráningu, samanber þeirri sem alþingismenn fylla
út og birt er á vefsíðu Alþingis. Ég bendi áhugasömum á þessa slóð: Í
því samhengi ritaði ég meðal annars opið bréf til
innanríkisráðuneytisins sem bar ábyrgð á kynningu á frambjóðendum.
Viðbrögðin létu því miður á sér standa. Skortur á hagsmunaskráningu
var þó aðeins einn galli á stjórnlagaþingskosningum eins og alþjóð
veit. Ég tel það lykilatriði að þeir einstaklingar sem taka að sér
að leggja drög að nýrri stjórnarskrá upplýsi um hagsmunatengsl
sín.
Nú ítreka ég ákall mitt og spyr það ágæta fólk sem mun á næstu
dögum setjast í stjórnlagaráð hvort það muni upplýsa um
hagsmunatengsl sín með formlegri hagsmunaskráningu? Þannig geta
þessir fulltrúar sýnt í verki þau vinnubrögð sem kallað hefur verið
eftir, m.a. um aukið gagnsæi.
Verkefni sem á sér enga hliðstæðu
Stjórnlagaráðsfulltrúar eru einstaklingar sem boðið hafa fram
krafta sína til þess að taka þátt í sögulegri endurskoðun nýrrar
stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Ekki aðeins endurskoðun heldur
er þetta í fyrsta skipti sem íslenska þjóðin sem lýðveldi setur
sína eigin stjórnarskrá. Verkefnið á sér því enga hliðstæðu. Ábyrgð
þeirra er gríðarlega mikil og snýst um að leggja drög að sáttmála
fyrir okkur öll um það hvernig samfélag við viljum byggja
hér.
Verkefni sem þarf að vanda til
Hluta þeirra orsaka sem ollu því að hérlendis hrundi
efnahagskerfið má rekja til kunningjasamfélagsins, ógagnsæis,
ófaglegra vinnubragða og skorts á formfestu. Þetta kemur meðal
annars fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Til þess að
stjórnlagaráð og fulltrúar þess njóti þess trausts sem nauðsynlegt
er til þess að árangur náist tel ég grundvallaratriði að slík
hagsmunaskráning fari fram og verði gerð aðgengileg
almenningi.
Drög að nýrri stjórnarskrá send í dóm þjóðarinnar áður en
þingið fær þau til meðferðar
Ég er ein þeirra sem hef efasemdir um trúverðugleika
stjórnlagaráðs í ljósi þess hvernig til þess var stofnað. Þetta er
engu að síður niðurstaðan og ég tel mikilvægt að spila sem best úr
þeirri stöðu sem raunin er. Góð og vönduð stjórnarskrá er takmarkið
þó ég hefði viljað sjá aðra leið farna að því markmiði.
Hagsmunaskráning er ein leið til þess að auka trúverðuleika þeirra
sem sitja í stjórnlagaráði. Einnig tel ég grundvallaratriði að þau
drög sem stjórnlagaráð leggur fram verði send í dóm þjóðarinnar þar
sem kosið verði um einstaka kafla og/eða greinar áður en Alþingi
fær þau til afgreiðslu. Stjórnlagaráð verður dæmt af verkum sínum
og ég vona að þrátt fyrir þessa brösugu byrjun komi góð og vönduð
stjórnarskrá sem leggur grunninn að betra samfélagi á Íslandi. Þá
ætti við stjórnlagaþing eins og oft er sagt að "fall sé
fararheill". Að lokum óska ég stjórnlagaráðsfulltrúum til hamingju
með tilnefninguna ásamt því að óska þeim farsældar í þeirri miklu
og mikilvægu vinnu sem framundan er fyrir íslenska þjóð.
