logo
föstudagur, 18. maí 2012

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Ímynd Íslands sem fiskveiðiþjóð er stórbrotin

niels adolf arsaelssonÍmynd Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar er því miður ekki til nema í hugum gráðugra klíku LÍÚ sem hefur svo sannarlega steypt Íslandi á hausinn! Engin þjóð í heiminum stundar eins óábyrgar og ruddafengnar fiskveiðar líkt og Íslendingar gera.

Tökum nokkur dæmi: 
Íslendingar kasta í sjóinn árlega 35-50 þúsund tonnum af fiski sem ekki er æskilegt að koma með að landi vegna tegundar sinnar eða stærðar. 

Íslendingar leyfa frystitogurum sínum að sólunda 70% af öllum afurðum sínum í hafið þar sem það ekki hentar þeim að koma með þær að landi vegna ímyndaðs plássleysis um borð í skipunum (opinber skýring) en reyndin er sú að þetta er gert að stórum hluta til að falsa nýtingarstuðla (aukinn kvóti) líkleg fölsun færir þeim 35% betri nýtingu á aflaheimildum. 

Íslendingar leyfa sérstökum að stela að jafnaði 20-30% undan hafnarvog og falsa vigtanótur og afurðaskýrslur því samfara.

Íslendingar leyfa grútarprömmum að veiða 70 þúsund tonn af makríl til bræðslu í skepnufóður. 

Íslendingar leyfa veiðar með flottrolli langt upp á landgrunnið með skelfilegum afleiðingum fyrir marga fiskistofna. 

Smug fiska í gegnum trollin drepur allt að 10 til 15 falt það magn sem skipin koma með að landi.Meðafli flottrolls skipa er gríðarlegur og fer hann allur til bræðslu. Fyrir þessum meðafla þurfa flottrolls skipin ekki að setja neinn kvóta í bolfiski. 

Árlegur meðafli flottrollskipana lætur nærri að vera eins og allur bolfiskafli vestfirskra skipa á hverju ári. 

Gríðarlegt magn af þorskseiðum, ufsaseiðum og ýsuseiðum auk skötusels og grásleppu er drepið með flottrollinu og brætt í mjöl og lýsi.

Íslendingar heimila þrælahald á sjómönnum kvótalausra skipa og neyða þá til að greiða 80-90% af öllum sínum tekjum til þeirra útgerða sem fá kvótann gefins frá ríkinu 1. september ár hvert. 

 

 

Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?

Þann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?...

Úr öskunni í eldinn – um kosningakerfi Stjórnlagaráðs

Stjórnlagaráð hefur gert tillögur að nýju kosningakerfi. Hér verður minnst á ólíka stöðu kjósenda gagnvart kerfinu eftir búsetu.Margir hafa á umliðnum árum hvatt til jafns vægis atkvæða íbúa höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar. Sérstaklega eftir kosningarnar 2007 þegar ríkisstjórnin fékk minnihluta atkvæða en hélt meirihluta þingmanna vegna misvægisins. Þau sjónarmið hafa oftast heyrst að í litlu ríki sé eðlilegt að hafa jöfnuð og að með breytingum í samskiptum og samgöngum sé aðstöðumunur eftir búsetu minni en var....

Auglýst er eftir millistigi stjórnsýslu

Flest ríki hafa millistjórnsýslustig, það er stjórnvald sem er skipulagslega á milli sveitarfélagastigs, lægsta stigsins og ríkisins, hæsta stigsins. Þau eru hluti af stjórnsýslulegri tilhögun hvers ríkis og þau eru jafnvel höfð mörg og þau stuðla að jafnræði og sjálfræði héraða og dreifingu valds og fjármuna í ríkinu. En á Íslandi eru bara tvö grunn stjórnsýslustig, sveitarfélög og ríki. Þau gegna ekki alveg sama hlutverki og hafa ekki sömu áhrif. Þvert á móti, ef engin millistjórnsýsla er, þá er það sennilega örugg leið til þess að efla miðlæga höfuðborg stjórnsýslu og veikja aðra hluta ríkisins og gera þá alla jafn fátæka....

Ímynd Íslands sem fiskveiðiþjóð er stórbrotin

Ímynd Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar er því miður ekki til nema í hugum gráðugra klíku LÍÚ sem hefur svo sannarlega steypt Íslandi á hausinn! Engin þjóð í heiminum stundar eins óábyrgar og ruddafengnar fiskveiðar líkt og Íslendingar gera....

Evrópuvæðing Samfylkingarinnar

Andrúmsloftið er alheimsauðlind. Allt frá árinu 1972 hefur orðið þróun í þessum málaflokki sem lauk með Kyoto – bókunni um verndun loftslags. Bókunin er afgerandi og kveður á um að aðildarríki skuli draga úr útstreymi tiltekinna gróðurhúsalofttegunda miðað við útstreymi eins og það var árið 1990, á skilgreindum tímabilum. Fyrsta skuldbindingartímabil bókunarinnar var til fimm ára, frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2012. Nú rennur þetta skeið brátt á enda og ekkert samkomulag er milli ríkja hvað taki við að því loknu...

Sendi ákall til annarra þjóða með hjálp erlendra fjölmiðla

Það var skrítin tilfinning að upplifa þá staðreynd að þurfa að senda ákall til annarra þjóða vegna ástandsins hér á landi. Slíkt neyðarkall er yfirleitt aldrei sent öðrum þjóðum nema þegar gríðarlegar náttúruhamfarir hafa átt sér stað í viðkomandi landi....

Húmor og hin hugtökin

Alveg er það stórmerkilegt að húmor Íslendinga þurfi ætíð að vera á annara kostnað. Íslendingar virðast ekki geta verið fyndnir nema þeir geri grín að öðru fólki, nei það er ekki rétt að kalla það að gera grín, Íslendingar hæðast að öðrum og margir helst á meinlegan og ljótan hátt. Stríðni er annað fyrirbæri sem Íslendingar kunna varla að fara með, ... nei djók ... er orðasamband sem á að réttlæta allt!...

Íslenskur ríkisdalur (IRD)

Árið 1875 var komið á samnorrænu myntbandalagi milli konungsríkja Danmörku, Noregs og Svíþjóðar. Tóku þessi ríki upp sameiginlega krónu og var þetta myntbandalag í gangi fram að fyrri heimstyrjöld. Fyrir myntbreytinguna 1875 nefndist myntin í löndunum ríkisdalur. Á 18. öld voru í Danaveldi tvær gerðir ríkisdala. Annars vegar var um að ræða kúrantdalinn sem var pappírsmynt og hins vegar var það spesíudalurinn sem var silfurmynt. Spesíur voru mikið notaðar á Íslandi....

Plöntu- og dýrlíf landsins í hættu?

Tilefni þessara skrifa er frumvarp sem lagt hefur verið fram á alþingi af þremur þingmönnum Samfylkingarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að opnað verði fyrir inn- og útflutning á gæludýrum hafi dýrin fengið sk. gæludýravegabréf. Vegabréf sem þessi notar Evrópusambandið til að votta að dýrin hafi verið bólusett fyrir ákveðnum sjúkdómum. Sama kerfi notar Evrópusambandið varðandi flutning á lifandi dýrum, plöntum, útsæði, fræjum o.þ.h. Frumvarp þremenningana er því fyrsta skrefið í að opna landið fyrir slíkum innflutningi. ...

Þrælaskuldabönd næstu áratugina

Við, íslendingar erum dugleg þjóð, erum tilbúin að vinna myrkrana á milli til að koma ár okkar og fjölskyldu vel fyrir borð. Við höfum unnið og unnið og greitt skatta, skatta sem notaðir eru í samfélagsþjónustu. Í dag eru þúsundir fjölskyldna sem standa frammi fyrir því að ævisparnaðurinn er horfinn, gufaði upp á einni nóttu. Við sitjum eftir undrandi yfir ástandinu....

Opið bréf til stjórnlagaráðsfulltrúa

Munu stjórnlagaráðsfulltrúar upplýsa með formlegum hætti um hagsmunatengsl sín? Ég er ein þeirra sem bauð fram til stjórnlagaþings. Í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings óskaði ég ítrekað eftir því að frambjóðendum yrði gert skylt að upplýsa um hagsmunatengsl sín með formlegri hagsmunaskráningu, samanber þeirri sem alþingismenn fylla út og birt er á vefsíðu Alþingis...

Nýju fötin keisarans

Eiga yfirmenn hjá ríkinu rétt á því að ráða til starfa þann sem þeir vilja? Það þarf ekki að leita lengi í hinu opinbera regluverki til að átta sig á að svo er ekki. Þeim ber að velja hæfasta starfsmanninn á grundvelli þess að þannig er almannafé best varið. Þá eiga þeir að velja konu ef hún er jafn hæf karli. Auk þess eiga stjórnendur hjá ríkinu að leggja málefnaleg sjónarmið til grundvallar ráðningu, í eðlilegri áhersluröð. Þessar reglur eru nokkuð afdráttarlausar....

Lánaleiðrétting er nauðsynleg kjarabót sem ekki má gleymast

Samkvæmt skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna, eru um 15.000 heimili með skuldir umfram 110% af fasteignamati og fer ört vaxandi. Hjá stórum hluta þessa hóps duga ráðstöfunartekjur ekki fyrir áætluðum framfærslukostnaði og því síður upp í greiðslur af lánum....

Leikhúsið í þjónustu mannúðar

Samkoman í dag, á alþjóðlegum degi leiklistarinnar, er sönn mynd af ótrúlegri getu leikhússins að virkja fólk og byggja brýr. ...

Ávarp á Alþjóðlega leikhúsdeginum 27. mars 2011

Það er merkilegt að í hinni efnahagslegu kreppu sem ríkt hefur á Íslandi síðustu misseri, hefur listin blómstrað sem aldrei fyrr. Aðsóknarmet eru sett í leikhúsunum, gestafjöldi á tónleika og myndlistarsýningar eykst og fleiri bækur seljast en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig að fólk forgangsraðar öðruvísi en áður og leitar í vaxandi mæli á vit lista og menningar. ...

Er Búðarhálsvirkjun að fara að rísa?

Þegar að rýnt er í ársuppgjör Landsvirkjunar fyrir árið 2010 kemur í ljós að afborganir af lánum LV eru um 100 milljarðar á árunum 2010-2012. Reikna má með að handbært fé frá rekstri á sama tíma geti orðið um 70-80 milljarðar. ...