logo
föstudagur, 18. maí 2012

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Evrópuvæðing Samfylkingarinnar

vigdis framsoknAndrúmsloftið er alheimsauðlind. Allt frá árinu 1972 hefur orðið þróun í þessum málaflokki sem lauk með Kyoto - bókunni um verndun loftslags. Bókunin er afgerandi og kveður á um að aðildarríki skuli draga úr útstreymi tiltekinna gróðurhúsalofttegunda miðað við útstreymi eins og það var árið 1990, á skilgreindum tímabilum. Fyrsta skuldbindingartímabil bókunarinnar var til fimm ára, frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2012. Nú rennur þetta skeið brátt á enda og ekkert samkomulag er milli ríkja hvað taki við að því loknu. Kaupmannahafnarráðstefnan sem haldin var í árslok 2009 rann út í sandinn og engar ákvarðanir voru teknar. Kyoto - bókunin er því í fullkomnu uppnámi. Evrópusambandið lætur það ekki á sig fá og hefur tekið upp viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS) óháð almennum alþjóðasamþykktum.

Fjöldi tilskipana, reglugerða og ákvarðana er varða viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir hafa nú þegar verið settur á vettvangi Evrópusambandsins og fleiri eru væntanlegar. Nú stendur til að lögleiða ETS viðskiptakerfið hér á Íslandi með breytingu á lögum nr. 65/2007, um losun gróðurhúsalofttegunda, en þau taka á ráðstöfun þeirra heimilda sem íslenska ríkið hefur til ráðstöfunar undir Kýótó-bókuninni. Er þessi ákvörðun afar undarleg því að lögin, fjalla að mestu um hvernig fara eigi með losunarheimildir sem Íslendingar eiga á alþjóðavettvangi auk íslenska ákvæðisins, (14/CP.7) en með ETS frumvarpi ríkisstjórnarinnar eru þessar dýrmætu losunarheimildir gerðar verðlausar.

Hlutur íslenska ríkissins í þeirri alheimsauðlind sem áunnir losunarkvótar eru falla niður samtímis - árið 2007 voru losunarheimildir íslendinga metnar á 15 milljarða.

Stefna ríkisstjórnarinnar að ganga þessu kerfi á hönd án þess að berjast fyrir íslenska ákvæðinu og mengunarreynslukvóta Íslands er afar ámælisverð og gengur þvert gegn þjóðarhagsmunum. Svo virðist sem undirgefni stjórnvalda gagnvart ESB hafi enn á ný opinberað sig vegna aðlögunarferlisins. Því hefur beinlínis verið haldið fram að umsókarferlið væri í hættu undirgengust Íslendingar ekki þetta viðskiptakerfi.

En hvað þýðir þetta í raun fyrir íslendinga? Jú - allar flugsamgöngur eiga að falla undir nýja kerfið 2012. Talið er að í upphafi leggist 6 - 30 evrur á hvert flugsæti vegna nýrra reglna. Við búum á eyju og höfum enga möguleika á að ferðast á annan hátt. Spár gera ráð fyrir að heimildirnar hækki mjög í framtíðinni. Það verður því almenningur sem kemur til með að sitja uppi með þessar hækkanir því Evrópuelítan er undanþegin regluverkinu. Samkvæmt frumvarpinu eru flugferðir sem eingöngu eru til flutninga í opinberri sendiför ríkjandi þjóðhöfðingja konungsríkis og nánustu vandamanna hans, þjóðhöfðingja, ríkisstjórnarleiðtoga og ráðherra landa, annarra en aðildarríkja, herflug herloftfara og toll- og lögregluflug undanþegið.

Já - við könnumst við kratavæðingu Evrópusambandsins. Á hitt ber þó að benda að bandarískir flugrekendur hafa þegar höfðað mál fyrir Evrópudómstólnum sem snýr að þeirri málsástæðu að ETS viðskiptakerfið sé brot á Chicago-samningnum, sem er samþykkt um alþjóðaflugmál. Vilja flugrekendurnir fá viðurkennt að um ólöglega skattlagningu sé að ræða samkv. samningnum. Ríkisstjórn Íslands gefur sér ekki tíma að bíða eftir dómi dómstólsins - svo mikið liggur á að þjónka ESB. Já og ekki skal gleyma því að ríkisstjórnin er hrædd við dómstóla og "her lögmanna" og vil leysa málin sjálf.Stóriðjan á að falla undir kerfið 2013. Vara ég við "stóriðjuleka" út úr Evrópu. Þegar verð á losunarheimildum hækkar í komandi framtíð, sér iðnaðurinn sér engan hag í því að staðsetja fyrirtæki sín á þessum svæðum - auðvitað staðsetur stóriðjan sig í þeim löndum sem ódýrast er og þá verða þau lönd sem inn í kerfinu eru - ekki fyrir valinu.

Ríkisstjórnin er skaðleg þjóðarhagsmunum og skortir alla framsýn fyrir stundargleði með embættismönnum í Brussel.

 

 

Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?

Þann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?...

Úr öskunni í eldinn – um kosningakerfi Stjórnlagaráðs

Stjórnlagaráð hefur gert tillögur að nýju kosningakerfi. Hér verður minnst á ólíka stöðu kjósenda gagnvart kerfinu eftir búsetu.Margir hafa á umliðnum árum hvatt til jafns vægis atkvæða íbúa höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar. Sérstaklega eftir kosningarnar 2007 þegar ríkisstjórnin fékk minnihluta atkvæða en hélt meirihluta þingmanna vegna misvægisins. Þau sjónarmið hafa oftast heyrst að í litlu ríki sé eðlilegt að hafa jöfnuð og að með breytingum í samskiptum og samgöngum sé aðstöðumunur eftir búsetu minni en var....

Auglýst er eftir millistigi stjórnsýslu

Flest ríki hafa millistjórnsýslustig, það er stjórnvald sem er skipulagslega á milli sveitarfélagastigs, lægsta stigsins og ríkisins, hæsta stigsins. Þau eru hluti af stjórnsýslulegri tilhögun hvers ríkis og þau eru jafnvel höfð mörg og þau stuðla að jafnræði og sjálfræði héraða og dreifingu valds og fjármuna í ríkinu. En á Íslandi eru bara tvö grunn stjórnsýslustig, sveitarfélög og ríki. Þau gegna ekki alveg sama hlutverki og hafa ekki sömu áhrif. Þvert á móti, ef engin millistjórnsýsla er, þá er það sennilega örugg leið til þess að efla miðlæga höfuðborg stjórnsýslu og veikja aðra hluta ríkisins og gera þá alla jafn fátæka....

Ímynd Íslands sem fiskveiðiþjóð er stórbrotin

Ímynd Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar er því miður ekki til nema í hugum gráðugra klíku LÍÚ sem hefur svo sannarlega steypt Íslandi á hausinn! Engin þjóð í heiminum stundar eins óábyrgar og ruddafengnar fiskveiðar líkt og Íslendingar gera....

Evrópuvæðing Samfylkingarinnar

Andrúmsloftið er alheimsauðlind. Allt frá árinu 1972 hefur orðið þróun í þessum málaflokki sem lauk með Kyoto – bókunni um verndun loftslags. Bókunin er afgerandi og kveður á um að aðildarríki skuli draga úr útstreymi tiltekinna gróðurhúsalofttegunda miðað við útstreymi eins og það var árið 1990, á skilgreindum tímabilum. Fyrsta skuldbindingartímabil bókunarinnar var til fimm ára, frá 1. janúar 2008 til 31. desember 2012. Nú rennur þetta skeið brátt á enda og ekkert samkomulag er milli ríkja hvað taki við að því loknu...

Sendi ákall til annarra þjóða með hjálp erlendra fjölmiðla

Það var skrítin tilfinning að upplifa þá staðreynd að þurfa að senda ákall til annarra þjóða vegna ástandsins hér á landi. Slíkt neyðarkall er yfirleitt aldrei sent öðrum þjóðum nema þegar gríðarlegar náttúruhamfarir hafa átt sér stað í viðkomandi landi....

Húmor og hin hugtökin

Alveg er það stórmerkilegt að húmor Íslendinga þurfi ætíð að vera á annara kostnað. Íslendingar virðast ekki geta verið fyndnir nema þeir geri grín að öðru fólki, nei það er ekki rétt að kalla það að gera grín, Íslendingar hæðast að öðrum og margir helst á meinlegan og ljótan hátt. Stríðni er annað fyrirbæri sem Íslendingar kunna varla að fara með, ... nei djók ... er orðasamband sem á að réttlæta allt!...

Íslenskur ríkisdalur (IRD)

Árið 1875 var komið á samnorrænu myntbandalagi milli konungsríkja Danmörku, Noregs og Svíþjóðar. Tóku þessi ríki upp sameiginlega krónu og var þetta myntbandalag í gangi fram að fyrri heimstyrjöld. Fyrir myntbreytinguna 1875 nefndist myntin í löndunum ríkisdalur. Á 18. öld voru í Danaveldi tvær gerðir ríkisdala. Annars vegar var um að ræða kúrantdalinn sem var pappírsmynt og hins vegar var það spesíudalurinn sem var silfurmynt. Spesíur voru mikið notaðar á Íslandi....

Plöntu- og dýrlíf landsins í hættu?

Tilefni þessara skrifa er frumvarp sem lagt hefur verið fram á alþingi af þremur þingmönnum Samfylkingarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að opnað verði fyrir inn- og útflutning á gæludýrum hafi dýrin fengið sk. gæludýravegabréf. Vegabréf sem þessi notar Evrópusambandið til að votta að dýrin hafi verið bólusett fyrir ákveðnum sjúkdómum. Sama kerfi notar Evrópusambandið varðandi flutning á lifandi dýrum, plöntum, útsæði, fræjum o.þ.h. Frumvarp þremenningana er því fyrsta skrefið í að opna landið fyrir slíkum innflutningi. ...

Þrælaskuldabönd næstu áratugina

Við, íslendingar erum dugleg þjóð, erum tilbúin að vinna myrkrana á milli til að koma ár okkar og fjölskyldu vel fyrir borð. Við höfum unnið og unnið og greitt skatta, skatta sem notaðir eru í samfélagsþjónustu. Í dag eru þúsundir fjölskyldna sem standa frammi fyrir því að ævisparnaðurinn er horfinn, gufaði upp á einni nóttu. Við sitjum eftir undrandi yfir ástandinu....

Opið bréf til stjórnlagaráðsfulltrúa

Munu stjórnlagaráðsfulltrúar upplýsa með formlegum hætti um hagsmunatengsl sín? Ég er ein þeirra sem bauð fram til stjórnlagaþings. Í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings óskaði ég ítrekað eftir því að frambjóðendum yrði gert skylt að upplýsa um hagsmunatengsl sín með formlegri hagsmunaskráningu, samanber þeirri sem alþingismenn fylla út og birt er á vefsíðu Alþingis...

Nýju fötin keisarans

Eiga yfirmenn hjá ríkinu rétt á því að ráða til starfa þann sem þeir vilja? Það þarf ekki að leita lengi í hinu opinbera regluverki til að átta sig á að svo er ekki. Þeim ber að velja hæfasta starfsmanninn á grundvelli þess að þannig er almannafé best varið. Þá eiga þeir að velja konu ef hún er jafn hæf karli. Auk þess eiga stjórnendur hjá ríkinu að leggja málefnaleg sjónarmið til grundvallar ráðningu, í eðlilegri áhersluröð. Þessar reglur eru nokkuð afdráttarlausar....

Lánaleiðrétting er nauðsynleg kjarabót sem ekki má gleymast

Samkvæmt skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna, eru um 15.000 heimili með skuldir umfram 110% af fasteignamati og fer ört vaxandi. Hjá stórum hluta þessa hóps duga ráðstöfunartekjur ekki fyrir áætluðum framfærslukostnaði og því síður upp í greiðslur af lánum....

Leikhúsið í þjónustu mannúðar

Samkoman í dag, á alþjóðlegum degi leiklistarinnar, er sönn mynd af ótrúlegri getu leikhússins að virkja fólk og byggja brýr. ...

Ávarp á Alþjóðlega leikhúsdeginum 27. mars 2011

Það er merkilegt að í hinni efnahagslegu kreppu sem ríkt hefur á Íslandi síðustu misseri, hefur listin blómstrað sem aldrei fyrr. Aðsóknarmet eru sett í leikhúsunum, gestafjöldi á tónleika og myndlistarsýningar eykst og fleiri bækur seljast en nokkru sinni fyrr. Það hefur sýnt sig að fólk forgangsraðar öðruvísi en áður og leitar í vaxandi mæli á vit lista og menningar. ...

Er Búðarhálsvirkjun að fara að rísa?

Þegar að rýnt er í ársuppgjör Landsvirkjunar fyrir árið 2010 kemur í ljós að afborganir af lánum LV eru um 100 milljarðar á árunum 2010-2012. Reikna má með að handbært fé frá rekstri á sama tíma geti orðið um 70-80 milljarðar. ...