logo
miðvikudagur, 22. febrúar 2012
Mynd

Níu tilboð bárust í nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

Alls bárust Framkvæmdasýslu ríkisins níu tilboð í byggingu nýs hjúkrunarheimilis fyrir aldraða að Dalbraut 1 á Eskifirði. Framkvæmdasýsla mun fara á næstu dögum og gera tillögu að verktaka í framhaldi af því. Kostnaðaráætlun vegna verksins er upp á 551 milljón. Lægsta tilboð í verkið barst frá Viðhaldsmeistaranum ehf. upp á rúmar 528 milljónir króna, sem er 96% af kostnaðaráætlun.... Mynd

Myndarlegt veiðihús rís á bökkkum Selár í Vopnafirði

MyndVeiðihúsaflóra landsins verðu að minnsta kosti einu húsi ríkari næstkomandi sumar, en veiðihús er nú að rísa á bökkum Selár í Vopnafirði. Þar rís nú veiðihús sem að með sanni má kalla stórhýsi, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Mun húsið verða tilbúið við opnun Selár sumarið 2012. ...

Lesa meira

Súellen setur upp kabarett í Egilsbúð

MyndAustfirska hljómsveitin Súellen, sem var á hátindi ferils síns á árunum 1987-1994, hefur nú sett upp kabarett í Egilsbúð í Neskaupstað, heimabæ þeirra félaga. Dagskráin samanstendum af bestu lögum hljómsveitarinnar, s.s. Símon (87) Elísa (88) Kona (91) Ferð án enda (92) og þessi nótt (93) sem öll komust hátt á vinsældarlista á sinum tíma....

Lesa meira

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Pennar

Mynd
27.1.2012 12:30:00
Hrund Guðmundsdóttir
Fýluferð
Mynd
9.12.2011 14:36:00
Ari Kr. Sæmundsen
Bullur og bull
Mynd
4.12.2011 20:12:00
Skafti Harðarson
Fyrir upplýsta umræðu um ESB
Mynd
21.11.2011 21:11:00
Frosti Sigurjónsson
Auglýsingarýni: Vissir þú?
Mynd
19.10.2011 00:41:00
Hilmar Gunnars
Tækniframfarir í arkitektúr.
Mynd
17.9.2011 18:25:00
Gunnar Jónsson
Flipp-femínismi
Mynd
1.9.2011 01:08:00
Ásmundur Einar Daðason
Brottflutningarnir kosta milljarða!
Mynd
11.8.2011 15:26:00
Reynir Þór Eggertsson
Að vera stikkfrí
Mynd
9.8.2011 10:25:00
Gissur Þórður Jóhannesson
Blautalón.
Mynd
11.7.2011 15:22:00
Les Mandarins
Hin drungalegi akstur æskunnar minnar
Mynd
23.6.2011 10:05:00
Ragnheiður Ingimundardóttir
Sjónvarpið og fl
Mynd
14.5.2011 00:43:00
BÍÓTíminn
Route Irish (2011) Gagnrýni

Fleiri Pennar

Vinnslumet hjá HB Granda á Vopnafirði

MyndAlls voru fryst um 20.400 tonn af síldar- og makrílafurðum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði á vertíðinni en vinnslu lauk nú um helgina. Þetta er tæplega 27% aukning frá vertíðinni í fyrra og verður það að teljast góður árangur, ekki síst í ljósi þess að síldar- og makrílafli skipa félagsins dróst saman um tæplega 15% milli ára. Öllum aflanum var að þessu sinni landað til vinnslu....

Lesa meira

Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla "Tortímum einelti"

MyndSíðastliðinn fimmtudag var Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla. Olweusardagur þýðir að eingöngu var verið að fjalla um einelti í skólanum þann dag. Settar voru upp mismunandi smiðjur sem nemendur skráðu sig í og unnu með ýmis verkefni. Í boði voru: listasmiðja, viðtals-og bæklingasmiðja, tónlistarsmiðja, myndbandssmiðja og skiltasmiðja....

Lesa meira

Aldarafmæli Reyðarfjarðarkirkju

MyndNæsta sunnudag, 16. október, kl. 14:00 verður haldið upp á aldarafmæli Reyðarfjarðarkirkju. Biskup Íslands prédikar og sóknarprestur ásamt prestum úr prófastsdæmum á Austurlandi annast þjónustu. Kór Reyðarfjarðarkirkju syngur og dagskrá verður að messu lokinni og boðið upp á kaffiveitingar. Reyðarfjarðarkirkja er elsta steinkirkja á Austurlandi og tekur 100 manns í sæti. Rögnvaldur Ólafsson var arkitekt hennar. ...

Lesa meira

Banaslys á Djúpavogi

MyndLaust fyrir klukkan þrjú í dag varð alvarlegt vinnuslys á höfninni á Djúpavogi þegar verið var að losa salt úr flutningaskipi. Krani úr landi, sem notaður var við verkið, brotnaði og féll niður á mann sem þarna var við vinnu sína. Maðurinn, sem var rúmlega fertugur, lést við slysið. ...

Lesa meira

Mynd

Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla

Mynd
Á morgun, fimmtudaginn 13. október, er Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla. Olweusardagur þýðir að eingöngu er verið að fjalla um einelti í skólanum þann dag, í alls konar hópum og smiðjum. Foreldrar, forráðamenn og aðrir bæjarbúar eru velkomnir í heimsókn í skólann frá klukkan 8:00-11:50 til að fylgjast með nemendum. Litur dagsins er grænn, því græni kallinn er í góða liðinu og er fólk því hvatt til þess að klæðast grænu á morgun....

19 ára stúlka lést í umferðarslysi á Fagradal

Mynd
Banaslys varð áttunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell. Vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðri átt skullu saman. Ökumaður fólksbifreiðarinnar, stúlka á nítjánda ári lést. Farþegi í fólksbifreiðinni einnig ung stúlka á nítjánda ári, slasaðist og var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður. Að svo stöddu er ekki hægt að upplýsa um nafn hinnar látnu. ...

HB Grandi fagnar bættum samgöngum til Vopnafjarðar

Mynd
Á næstunni verður lokið við að setja bundið slitlag á hina nýju þjóðleið frá hringveginum norður til Vopnafjarðar. Nýi vegurinn liggur um Vesturárdal og er hann mikil samgöngubót fyrir Vopnfirðinga og nærsveitamenn. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda, fagnar þessum áfanga og segir nýja veginn vera sannkallaða byltingu í samgöngumálum sveitarfélagsins....

Erilsamt hefur verið hjá lögreglunni á Seyðisfirði

Mynd
Erilsamt hefur verið hjá lögreglunni á Seyðisfirði það sem af er vikunni. Á mánudag var unnið að undirbúningi flugverndaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll, sem var undanfari stærri æfingar og innleiðingar Neyðaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll. Æfingin sjálf fór síðan fram þriðjudaginn 6. september. Allir lykilaðilar í áætluninni tóku þátt í æfingunni, sem þótti takast með ágætum. Töluðu flestir þátttakendur um það á rýnifundi í lok æfingar að þeir hefðu dregið góðan lærdóm af æfingunni. ...

Seyðisfjörður meðal skuldsettustu sveitarfélaga landsins - svört skýrsla um stöðuna

Mynd
Haraldi Líndal Haraldssyni, hagfræðingi, var falið að gera úttekt á stöðu bæjarsjóðs Seyðisfjarðar og kynnti hann niðurstöðurnar á íbúafundi í Félagsheimilinu Herðubreið í gær. Þar kom m.a. fram að sveitarfélagið sé á meðal skuldsettustu sveitarfélaga landsins. Samtals hafa skuldir sveitarfélagsins aukist úr 714 millj. kr. árið 2002 í 1.365 millj. kr. árið 2010, eða um 191%, á verðlagi hvors árs. Hann segir ljóst að taka þurfi til í fjármálum sveitarfélagsins til þess að ná því marki að koma skuldum þess niður fyrir hlutfallið 150% af tekjum....

Fjarðabyggð sækir um landsmót UMFÍ 50+ 2012

Mynd
Stjórn UÍA hefur í samráði við bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð ákveðið að sækjast eftir að halda Landsmót UMFÍ 50+ (50 ára og eldri) í Neskaupstað á næsta ári. Landsmót fyrir þennan aldurshóp var haldið í fyrsta skipti nú í sumar á Hvammstanga og þótti takast mjög vel. Keppnisgreinar á mótinu voru blak, bridds, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, fjallaskokk, hestaíþróttir, golf, pútt, línudans, skák, sund og þríþraut....

Fleiri fréttir

Egilsstaðaflugvöllur

N 6 m/s
-0,6°
Alskýjað

fimmtudagur

A 6 m/s
/-1°
Slydda

föstudagur

N 3 m/s
/
Lítils háttar slydda

laugardagur

SV 3 m/s
/-2°
Alskýjað

sunnudagur

SSV 7 m/s
/
Lítils háttar rigning

mánudagur

V 8 m/s
/
Snjóél

þriðjudagur

SV 7 m/s
/
Skýjað
Síðast sótt: 22.2.2012- vedur.is
 
Lesa meira

Uppljóstrarinn

Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður

bjornvalurUppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan. Hefur sú foringjahollusta gengið svo langt að heimildarmenn uppljóstrarans eru orðnir sannfærðir um að blogg Björns Vals sé skipulega notað til að koma á framfæri óþægilegum árásum á andstæðinga fjármálaráðherra sem hann vill ekki sjálfur gangast við, en þar fara nú hæst árásir á "íhaldið" sem Björn Valur skilgreinir sem Forseta Íslands og Biskups Íslands og að því er virðist alla aðra sem ekki eru flokksbundnir í ríkisstjórnarflokkunum.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þótt Björn Valur hafi komið inn á Alþingi í kosningum 2009 sem fulltrúi nýrra tíma á Íslandi þá nái samstarf hans við Steingrím J. Sigfússon mun lengra aftur í tímann. Á vef Alþingis má t.d. sjá að Björn Valur sat á Alþingi sem varaþingmaður Alþýðubandalagsins árið 1990.  Það sem ekki er tekið fram þar er að Björn Valur var þá (sem og árin 2007 og 2008) varamaður Steingríms J. Sigfússonar.

 

Björn Valur, eða "varðhundur fjármálaráðherra" eins og heimildarmenn skopast með að hann sé nefndur í gríni og alvöru, hefur því verið vinstri kantmaður í íslenskum stjórnmálum í rúm tuttugu ár og allan þann tíma verið í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon.  Uppljóstraranum getur ekki annað en glaðst yfir því að Birni Val hafi loksins verið launuð húsbóndahollustan með embætti þingflokksformanns.   Heimildarmenn telja að Þuríður Backman (sem tók eftirminnilega við embættinu í fréttaviðtali á flugvelli úti í löndum með orðunum "HA?") hafi aldrei verið fyrsti kostur forystu VG. Þuríður hafi aðeins lent í starfinu óvart þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að láta hafa sig að fífli eftir að forysta VG setti hana af eftir fæðingarorlof eins og frægt er orðið.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans telja að með kosningu Björns Vals í embætti þingflokksformanns hafi Steingrímur J. Sigfússon slegið tvær flugur í einu höggi, treyst til muna tak sitt á ódælum þingmönnum innan flokks og gefið árásum varðhundarins á "íhaldið" stóraukið vægi út á við. Hvort tveggja komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er um líf ríkisstjórnarinnar á komandi vetri.

Lesa meira

Kvestor

Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?

Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út 1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur fram í þessari bók.

Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."

Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?
Lesa meira

Aðsendar greinar

Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?

vigdis framsoknÞann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?

Í nefndaráliti með tillögunni kemur fram að með umsóknarferlinu yrði tryggt að Alþingi yrði hluti af því heildarferli stjórnsýslu sem mál ættu að fara í gegnum áður en þau yrðu endanlega afgreidd og þannig átti að tryggja að stjórnsýslan miðlaði upplýsingum til þingsins um málefni er tengdust viðræðunum svo að þingið geti gegnt eftirlitshlutverki sínu í ferlinu. Á þessu er mikill misbrestur því þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, utandagskrárumræður og beiðnir um fundi í utanríkisnefnd fá þingmenn afar takmarkaðar upplýsingar um aðlögunarferlið. Sér þess sér helst stað í frumvörpum ríkisstjórnarinnar við innleiðingar gerða og tilskipana ESB.

Sá háttur er samt hafður á að hvergi er tiltekið í frumvörpunum sjálfum að um skilyrði ESB sé að ræða vegna umsóknarinnar. Blekkingarleik er beitt í skjóli EES samningsins. Nefni ég hér örfá frumvörp sem orðið hafa að lögum á síðasta þingi sem skilyrt var að lögleiða og hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. Ákvæði um Þróunarsjóð EFTA lögleitt í EES samninginn - kostar ríkissjóð í nýjum útgjöldum 5,3 milljarða. Lög um losunarheimildir - stofnkostnaður 20 milljónir og ný útgjöld 45 milljónir á ári. Lög um grunngerð landupplýsinga - 30 milljónir á ári. Fjölmiðlalög - rekstur fjölmiðlanefndar 33 milljónir á ári. Lög um stjórn vatnamála - ný útgjöld 130 milljónir á ári.

Utanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að eins sé líklegt að kostnaður upp á 4 milljarða lendi á ríkinu vegna innleiðingar nýs tollakerfis í landbúnaði. Mörg sambærileg frumvörp liggja inn í þinginu sem bíða afgreiðslu. Hliðaráhrif umsóknarferlisins hafa því gríðarleg áhrif á ríkissjóð. Það skal og á það minnst að atvinnusköpunartækifæri ríkisstjórnarinnar liggur í lögleiðingu þessara frumvarpa því oftar en ekki þarf að bæta við starfsmönnum í undirstofnunum til "eftirlits" . Kratavæðingin er því algjör og opinberi geirinn þenst út.

Þá að beinum kostnaði við umsóknina. Í umræddri greinargerð er talið að kostnaður sem falli undir utanríkisráðuneytið á árabilinu 2010 - 2012 verði um 800 milljónir og lunginn af þeim kostnaði felst í þýðingum reglna ESB yfir á íslensku. Það er hreint galið að skattgreiðendur beri kostnað af þýðingum alls lagabálks ESB áður en vitað er hvort gengið verður inn eður ei. Ekki er gefin upp kostnaður annarra ráðuneyta - en ljóst er að stjórnsýslan liggur á hliðinni vegna umsóknarinnar - sem er e.t.v. skýringin á hví slík kyrrstaða ríki hér á landi.

Fljótt á litið má áætla að beinn kostnaður við umsóknarferlið verði á bilinu 1,5 - 2 milljarðar. Þær upplýsingar er ekki hægt að fá frá stjórnarráðinu og heykist hver ráðherrann á fætur öðrum að veita þinginu og almenningi upplýsingar um þennan kostnað. Samandregið er um að ræða gríðarlegan dulinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu á fylgiskjali IV í þingsályktunartillögunni kemur fram að kostnaður aðildarviðræðnanna sé háður óvissu sér í lagi í ljósi þess hversu hratt viðræðurnar ganga. Kostnaðarmatið er byggt á 18 mánaða ferli sem átti að ljúka um mitt ár 2011. Nú er sá tími liðinn og langt í land með að samningar takist. Rökrétt er því að tvöfalda beinan kostnað af ferlinu. Ef umsóknin verður ekki dregin til baka er ljóst að kostnaðurinn við umsóknina mun hlaupa á tugum milljarða.

Á meðan Össur Skarphéðinsson situr einn á brennandi tröppunum í Brussel með umsóknina er vegið að grunnþáttum íslensks samfélags með niðurskurði og skattpíningu.