logo
föstudagur, 18. maí 2012

Erilsamt hefur verið hjá lögreglunni á Seyðisfirði

Lögreglubíll -Tímamynd -AH

Erilsamt hefur verið hjá lögreglunni á Seyðisfirði það sem af er vikunni. Á mánudag var unnið að undirbúningi flugverndaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll, sem var undanfari stærri æfingar og innleiðingar Neyðaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll. Æfingin sjálf fór síðan fram þriðjudaginn 6. september. Allir lykilaðilar í áætluninni tóku þátt í æfingunni, sem þótti takast með ágætum. Töluðu flestir þátttakendur um það á rýnifundi í lok æfingar að þeir hefðu dregið góðan lærdóm af æfingunni. Áætlunin mun verða uppfærð þegar skýrslur um æfinguna liggja fyrir frá hverjum viðbragðsaðila fyrir sig, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Seyðisfirði.

Ferjan Norræna kom til Seyðisfjarðar þriðjudaginn 6. sept og er farin að fylgja vetraráætlun. Ekkert markvert gerðist við afgreiðslu hennar á þriðjudeginum. Við brottför þurfti lögreglan hins vegar að birta sektargerðir á hendur fjórum útlendingum sem höfðu gerst sekir um utanvegaakstur í umdæmi lögreglunnar á Húsavík. Þá þurfti að hafa afskipti af manni að beiðni lögreglunnar í Færeyjum. Ferjan sigldi svo skv. áætlun um kl. 20.00 á miðvikudaginn. Lögreglan á Seyðisfirði annast landamæraeftirlit á Seyðisfirði eftir því sem við á og aðstoðar tollgæsluna við tolleftirlit.

Að öðru leiti hefur vikan verið með hefðbundnu sniði. Þá eru helstu verkefnin að venju einkum fólgin í umferðareftirliti þar sem fylgst er með ökuhraða, bílbelta - og ljósanotkun og að almennt sé fylgt lögum og reglum sem um umferðina gilda.

 

 

Níu tilboð bárust í nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

Alls bárust Framkvæmdasýslu ríkisins níu tilboð í byggingu nýs hjúkrunarheimilis fyrir aldraða að Dalbraut 1 á Eskifirði. Framkvæmdasýsla mun fara á næstu dögum og gera tillögu að verktaka í framhaldi af því. Kostnaðaráætlun vegna verksins er upp á 551 milljón. Lægsta tilboð í verkið barst frá Viðhaldsmeistaranum ehf. upp á rúmar 528 milljónir króna, sem er 96% af kostnaðaráætlun....

Myndarlegt veiðihús rís á bökkkum Selár í Vopnafirði

Veiðihúsaflóra landsins verðu að minnsta kosti einu húsi ríkari næstkomandi sumar, en veiðihús er nú að rísa á bökkum Selár í Vopnafirði. Þar rís nú veiðihús sem að með sanni má kalla stórhýsi, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Mun húsið verða tilbúið við opnun Selár sumarið 2012. ...

Súellen setur upp kabarett í Egilsbúð

Austfirska hljómsveitin Súellen, sem var á hátindi ferils síns á árunum 1987-1994, hefur nú sett upp kabarett í Egilsbúð í Neskaupstað, heimabæ þeirra félaga. Dagskráin samanstendum af bestu lögum hljómsveitarinnar, s.s. Símon (87) Elísa (88) Kona (91) Ferð án enda (92) og þessi nótt (93) sem öll komust hátt á vinsældarlista á sinum tíma....

Vinnslumet hjá HB Granda á Vopnafirði

Alls voru fryst um 20.400 tonn af síldar- og makrílafurðum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði á vertíðinni en vinnslu lauk nú um helgina. Þetta er tæplega 27% aukning frá vertíðinni í fyrra og verður það að teljast góður árangur, ekki síst í ljósi þess að síldar- og makrílafli skipa félagsins dróst saman um tæplega 15% milli ára. Öllum aflanum var að þessu sinni landað til vinnslu....

Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla "Tortímum einelti"

Síðastliðinn fimmtudag var Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla. Olweusardagur þýðir að eingöngu var verið að fjalla um einelti í skólanum þann dag. Settar voru upp mismunandi smiðjur sem nemendur skráðu sig í og unnu með ýmis verkefni. Í boði voru: listasmiðja, viðtals-og bæklingasmiðja, tónlistarsmiðja, myndbandssmiðja og skiltasmiðja....

Aldarafmæli Reyðarfjarðarkirkju

Næsta sunnudag, 16. október, kl. 14:00 verður haldið upp á aldarafmæli Reyðarfjarðarkirkju. Biskup Íslands prédikar og sóknarprestur ásamt prestum úr prófastsdæmum á Austurlandi annast þjónustu. Kór Reyðarfjarðarkirkju syngur og dagskrá verður að messu lokinni og boðið upp á kaffiveitingar. Reyðarfjarðarkirkja er elsta steinkirkja á Austurlandi og tekur 100 manns í sæti. Rögnvaldur Ólafsson var arkitekt hennar. ...

Banaslys á Djúpavogi

Laust fyrir klukkan þrjú í dag varð alvarlegt vinnuslys á höfninni á Djúpavogi þegar verið var að losa salt úr flutningaskipi. Krani úr landi, sem notaður var við verkið, brotnaði og féll niður á mann sem þarna var við vinnu sína. Maðurinn, sem var rúmlega fertugur, lést við slysið. ...

Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla

Á morgun, fimmtudaginn 13. október, er Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla. Olweusardagur þýðir að eingöngu er verið að fjalla um einelti í skólanum þann dag, í alls konar hópum og smiðjum. Foreldrar, forráðamenn og aðrir bæjarbúar eru velkomnir í heimsókn í skólann frá klukkan 8:00-11:50 til að fylgjast með nemendum. Litur dagsins er grænn, því græni kallinn er í góða liðinu og er fólk því hvatt til þess að klæðast grænu á morgun....

19 ára stúlka lést í umferðarslysi á Fagradal

Banaslys varð áttunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell. Vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðri átt skullu saman. Ökumaður fólksbifreiðarinnar, stúlka á nítjánda ári lést. Farþegi í fólksbifreiðinni einnig ung stúlka á nítjánda ári, slasaðist og var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður. Að svo stöddu er ekki hægt að upplýsa um nafn hinnar látnu. ...

HB Grandi fagnar bættum samgöngum til Vopnafjarðar

Á næstunni verður lokið við að setja bundið slitlag á hina nýju þjóðleið frá hringveginum norður til Vopnafjarðar. Nýi vegurinn liggur um Vesturárdal og er hann mikil samgöngubót fyrir Vopnfirðinga og nærsveitamenn. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda, fagnar þessum áfanga og segir nýja veginn vera sannkallaða byltingu í samgöngumálum sveitarfélagsins....

Erilsamt hefur verið hjá lögreglunni á Seyðisfirði

Erilsamt hefur verið hjá lögreglunni á Seyðisfirði það sem af er vikunni. Á mánudag var unnið að undirbúningi flugverndaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll, sem var undanfari stærri æfingar og innleiðingar Neyðaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll. Æfingin sjálf fór síðan fram þriðjudaginn 6. september. Allir lykilaðilar í áætluninni tóku þátt í æfingunni, sem þótti takast með ágætum. Töluðu flestir þátttakendur um það á rýnifundi í lok æfingar að þeir hefðu dregið góðan lærdóm af æfingunni. ...

Seyðisfjörður meðal skuldsettustu sveitarfélaga landsins - svört skýrsla um stöðuna

Haraldi Líndal Haraldssyni, hagfræðingi, var falið að gera úttekt á stöðu bæjarsjóðs Seyðisfjarðar og kynnti hann niðurstöðurnar á íbúafundi í Félagsheimilinu Herðubreið í gær. Þar kom m.a. fram að sveitarfélagið sé á meðal skuldsettustu sveitarfélaga landsins. Samtals hafa skuldir sveitarfélagsins aukist úr 714 millj. kr. árið 2002 í 1.365 millj. kr. árið 2010, eða um 191%, á verðlagi hvors árs. Hann segir ljóst að taka þurfi til í fjármálum sveitarfélagsins til þess að ná því marki að koma skuldum þess niður fyrir hlutfallið 150% af tekjum....

Fjarðabyggð sækir um landsmót UMFÍ 50+ 2012

Stjórn UÍA hefur í samráði við bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð ákveðið að sækjast eftir að halda Landsmót UMFÍ 50+ (50 ára og eldri) í Neskaupstað á næsta ári. Landsmót fyrir þennan aldurshóp var haldið í fyrsta skipti nú í sumar á Hvammstanga og þótti takast mjög vel. Keppnisgreinar á mótinu voru blak, bridds, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, fjallaskokk, hestaíþróttir, golf, pútt, línudans, skák, sund og þríþraut....

Langanesviti á frímerki

Fyrr á þessu ári komu út fyrstu vitarnir úr seríu 10 vita sem gefnir verða út á frímerkjum næstu ár. Sá fyrsti var Langanesviti. Frímerkið er hannað af Erni Smára Gíslasyni, með ljósmynd Friðriks Arnar og gildir fyrir bréf allt að 50 grömmum. Einnig var gefið út póstkort í lögun eins og Langanesvitinn....

Sauma álfabúninga fyrir börn

Ævintýralandið á Borgarfirði eystri í samtarfi við Austfirska karnivalhópinn og Þorpið hafa hannað og saumað nýja álfabúninga sem varðveittir verða og nýttir í Ævintýralandinu fyrir börn sem vilja hverfa á vit ævintýranna í höfuðborg álfadrottningar Íslands. Verið er að skoða möguleika á framleiðslu og sölu á hluta af búningunum þannig að fólk geti tekið með sér minjagrip heim úr Álfalandi....

Snæuglur hafa sést á Austurlandi

Örfáar snæuglur sjást á Íslandi á hverju ári en afskaplega sjaldgæft er að þær reyni varp hér. Aðal ástæða þess er að öllum líkindum skortur á heppilegri fæðu. Snæuglan er náttúrulega alfriðuð og þeir sem rekast á þennan sjaldgæfa fugl eru beðnir um að láta starfsmenn Náttúrustofunnar vita. Í sumar hefur frést af tveimur snæuglum á Austurlandi og fylgir hér mynd af annarri þeirra. ...

Upplýsingavefur um báta og bátasmiði

Vefurinn www.aba.is var upphaflega upplýsingavefur um eyfirska báta og bátasmiði, en fljótlega var leitað fanga beggja vegna Eyjafjarðar og nær vefurinn nú yfir svæðið frá Horni að Fonti á Langanesi. Heimasíðunni var hrundið úr vör með það að leiðarljósi að safna saman öllu því, sem vitað er um bátasmíðar á svæðinu. Vefurinn hefur það fram yfir bók að hann er gagnvirkur á þann hátt að lesandinn getur lagt sitt af mörkum til að koma á framfæri þekkingu sinni á þeim málum, sem vefurinn fjallar um. ...

Loksins vann BN Launaflsbikarinn - vítakeppni annað árið í röð

Boltafélag Norðfjarðar (BN) vann í gærkvöldi Knattspyrnuakademíu Hornafjarðar (KAH) í úrslitaleik bikarkeppni Launafls og UÍA í knattspyrnu. Vítakeppni þurfti til annað árið í röð. Norðfirðingar fögnuðu ákaft í lokin enda hefur lið þeirra orðið í öðru sæti keppninnar undanfarin fimm ár....

Minnisvarði um Kristján frá Djúpalæk afhjúpaður

Á Kátum dögum í Langanesbyggð var afhjúpaður minnisvarði um skáldið Kristján frá Djúpalæk. Minnisvarðinn stendur við bæinn Djúpalæk á Langanesströnd við Bakkaflóa, þar sem Kristján var fæddur og uppalinn, en hann fæddist þann 16. júlí 1916. Það voru ættingjar Kristjáns með Hilmu Steinarsdóttur í fararbroddi sem beitti sér fyrir gerð og uppsetningu minnisvarðans....

Nýtt hjúkrunarheimili að rísa á Eskifirði

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýju hjúkrunarheimili við Dalbraut 1 á Eskifirði á dögunum. Það voru Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs og Árni Helgason framkvæmdastjóri Hulduhlíðar sem tóku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili að viðstöddum íbúum Fjarðabyggðar....

Skemmtiferðaskipin koma líka við á Djúpavogi

Áætlað er að um tvö þúsund farþegar af tveimur skemmtiferðaskipum, Ms. Prinsendam og Ms. Maasendam, hafi komið til Djúpavogs í síðustu viku. Bæjaryfirvöld á Hornafirði og á Djúpavogi hafa síðustu ár unnið sameiginlega að því að kynna svæðið sem vænlegan áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Samstarfið felur m.a. í sér að notast er við hafnaraðstæður á Djúpavogi, en boðið upp á ferðir í nágrenni Hornafjarðar en mjög vinsælt hefur verið meðal farþega skipanna að fara í ferð á Jökulsárlón, enda engin furða þar sem staðurinn er einstakur á heimsvísu. ...

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar segir þolinmæðina á þrotum

Rúmlega 200 manns mættu á samstöðufund sem haldin var við Oddsskarðsgöng í gærkvöld, en göngin hafa verið í umræðunni síðustu daga vegna umferðaröngþveitis sem varð um síðustu helgi og grjóthruns í vor. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur sent þingmönnum Norðausturkjördæmis bréf þar sem segir að sé einhver hætta á grjóthruni í Oddsskarðsgöngum skapi það slysahættu sem sé óþolandi....

120 manns vinna við makrílvinnslu á Vopnafirði – blásturfrystir breytir miklu

Makrílvinnsla hélt áfram í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði um verslunarmannahelgina og ekkert var dregið úr vinnslu þessa miklu ferðahelgi. Magnús Róbertsson vinnslustjóri segir á vef HB Granda að það verði "ekkert slegið af fyrr en í haust þegar lokið verður við að veiða úthlutaðar veiðiheimildir í síld og makríl" en nú eru mörg skip HB Granda eins og annara sjávarútvegsfyrirtækja upptekin við "ólympískar makrílveiðar" eins og einn áhafnarmeðlimur Arnars-HU 1, frystitogara Fisk Seafood, komst að orði. Það vinna um ...

Törfum landað úr báti í Hróarstungu!

Hreindýraveiðiferðir eru ólíkar og geta boðið uppá óvæntar uppákomur. Þetta fengu þeir að reyna veiðimennirnir sem felldu tarfa sína í Eiðaþinghá nærri Gröf á dögunum. Felldir voru þrír tarfar það nærri Lagarfljóti að einfaldasta leiðin var að flytja þá á báti norður yfir Fljótið undan bænum Straumi. Veiðimenn í þessari ferð voru Páll Ólafsson, Þórir Guðmundsson og Steinar Helgason....

Bautasteinn afhjúpaður á Unglingalandsmótinu

Á unglingalandsmótinu á Egilsstöðum var afhjúpaður bautasteinn til minningar um unglingalandsmót sem nú fer fram um verslunarmannahelgina. Þetta kemur fram á umfi.is. Þetta er í fyrsta sinn sem unglingalandsmót fer fram á Egilsstöðum en það hefur hins vegar tvö Landsmót UMFÍ farið þar fram áður. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sagði af þessu tilefni það heiður fyrir hönd hreyfingarinnar að fá að afhenda sveitarfélaginu þennan minnisvarða til minningar um það dugmikla og kröftuga starf sem ...

Hlýrri sjór eykur makrílveiðar

Undanfarna daga hefur sjávarhiti hækkað um 2,5 gráður á skömmum tíma og hefur það aukið makrílveiðar að því er fram kemur á vefsíðu HB Granda. Lundey NS kom til Vopnafjarðar síðdegis í dag með um 500 tonna makrílafla. Skipið var að veiðum í Hvalbakshallinu og Rósagarðinum og fékkst þessi afli í þremur hollum á tæpum sólarhring. "Það er búin að vera léleg makrílveiði fyrir austan upp á síðkastið enda hefur sjórinn verið mjög kaldur. Síðustu dagana hefur hitastigið hins vegar hækkað úr um 5,5°C í 7-8°C og það munar öllu ...

Íslandsbanki fjármagnar framkvæmdir Hitaveitu Egilsstaða og Fella við Vallarveitu

Eftir útboð á fjármögnun fyrir framkvæmdir við Vallarveitu í Fljótsdalshéraði hafa Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf. og Íslandsbanki gert með sér samning um fjármögnun á verkefninu. Kostnaður við Vallaveitu verður um tvö hundruð milljónir króna. Verkefnið tryggir sumarhúsabyggð á Völlunum heitt vatn og gerir mönnum kleift að koma upp heilsárshúsum og meiri nýtingu á húsunum. Þá mun þetta stækka þjónustusvæði Hitaveitunnar og bæta enn frekar rekstrargrunn hennar. ...

Kuldi dregur úr viðarvexti – getur haf mikil langtímaáhrif

Sumarið var seint á ferðinni á Íslandi í ár og á Austurlandi var júnímánuður sá kaldasti í mörg ár. Kuldinn hafði margskonar áhrif á gróður. Bændur þurftu að seinka slætti óvenju mikið og þegar kemur að trjátegundum hefur kuldinn haft sérstaklega mikil áhrif á lerkið. Um þetta er skrifað á vef Skógræktar ríkisins. Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóganna, segir sveiflurnar hafa verið miklar í vor. "Apríl var sérstaklega hlýr og þess vegna voru trén öll komin vel af stað þegar hretið skall á í maí. Við tók svo afar kaldur júnímánuður...

Neistaflug hefst í Neskaupstað í kvöld

Undirbúningur fyrir Neistaflug í Neskaupstað gengur í alla staði vel. Verið er að skreyta hverfin hvert í sínum lit og bærinn er að komast í hátíðarbúning. Í kvöld byrjar hátíðin með tónleikum Eiríks Haukssonar í Egilsbúð kl 22:00. Gunni og Felix verða svo á sínum stað að venju og þeir eru búnir að semja lag Neistaflugs 2011 sem hægt er að finna á heimsíðu Neistaflugs ásamt dagskrá hátíðarinnar. ...

1200 skráðir á Unglingalandsmótið á Egilsstöðum

Unglingalandsmót UMFÍ hefst á morgun, fimmudag, á Egilsstöðum. Um 1.200 krakkar á aldrinum frá 11 til 18 hafa skráð sig til leiks en skráningu lauk sunnudaginn 24. júlí. Veðurstofan spáir sólskini og 16-20 stiga hita alla mótsdagana. Undirbúningur fyrir landsmótið er á fullu, allir sem vettlingi geta valdið snyrta bæinn og fréttst hefur að íbúar við Koltröð ætli að búa til Hattargötu....

Fjögur norsk skip landa loðnu á Eskifirði

Mikið líf hefur verið í höfninni á Eskifirði í síðustu daga. Fjögur norsk skip lönduðu loðnu í fiskimjölverksmiðju Eskju hf. á Eskifirði. Norska loðnuskipið Storeknut kom með um 300 tonn af góðri loðnu í byrjun síðustu viku og í lok vikunnar lönduðu norsku skipin Teigenes, Vestviking og Harvest rúmlega 2.000 tonnum af sumarloðnu í verksmiðjuna....

Skótíska fyrri alda grafin upp á Skriðuklaustri

Uppgröftur sumarsins á klausturrústum á Skriðuklaustri er nú hálfnaður þetta sumarið. Búið er að opna nokkur ný svæði og útlit fyrir að markmiðinu um að ljúka vettvangsrannsókn í sumar verði náð. Meðal þess sem fundist hefur á síðustu dögum er hluti af leðurskósóla frá miðöldum að því er fram kemur á vefsíðu Skriðuklausturs. Grafið verður til 20. ágúst og leiðsögn er um fornleifasvæðið alla daga eftir hádegi. Hægt að ganga um þann hluta klausturminjanna sem búið er að rannsaka og ganga frá. Þann 18. júní...

Samfelld makríl- og síldarvinnsla í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar

Samfelld makríl- og síldarvinnsla hefur verið í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Fjarðarbyggð síðan í byrjun júní. Unnið er á 12 tíma vöktum allan sólarhringinn. Makríllinn er hausskorinn eða heilfrystur og sendur til Afríku og Austur-Evrópu. Krakkarnir sem eru í sumarvinnu eru hæstánægðir með þetta uppgrip....

Sænautarsel fær áframhaldandi stuðning Fljótsdalshéraðs – lopapeysur, lummur og Laxness

Á Sænautaselsdaginn, laugardaginn 16. júlí, heimsóttu Björn Ingimarsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs, Sænautarsel og undirrituðu, ásamt staðarhaldara Lilju Ólafsdóttur, nýjan þriggja ára samning um rekstur heiðabýlisins Sænautarsels á milli Fljótsdalshéraðs og Sænautasels ehf. Sænautarsel er á Jökuldalsheiði um fimm kílómetra frá gamla þjóðveginum, sem liggur um Möðrudalsöræfi og Jökuldalsheiði. Þar er rekin ferðaþjónusta og geta gestir skoðað gamla bæinn, skoðað ...

Grillaðu í Jórvík

Nú fara ferðalög innanlands að ná hámarki. Í útilegum vill fólk oft grilla og er þátt gott að vita af góðri grillaðstöðu sem nú má finna í Jórvík í Breiðdal á austurlandi sem er einn þjóðskóganna. Grillaðstaðan er staðsett við veginn upp að gamla Jórvíkurbænum og er fyrir alla gesti sem vilja njóta dagstundar í skóginum. Skógrækt ríkisins eignaðist hluta úr Jórvíkurlandi árið 1958, eða megnið af skóglendinu. Birkiskógurinn var girtur af 1961 og fljótlega hófust tilraunir með trjátegundir...

Þátttakendur flykkjast á Unglingalandsmót á Egilsstöðum

Skráning á Unglingalandsmót UMFÍ, sem haldið verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina, gengur vel að sögn forsvarsmanna þess. Dagskrá mótsins hefur sjaldan verið glæsilegri en markmiðið er að öll fjölskyldan geti notið sín þar. Skráningu keppenda lýkur á sunnudag....

Fyrsti tarfur veiðitímabilsins felldur

Nýtt hreindýraveiðitímabil er nú hafið og féll fyrsti tarfurinn ársins í gær. Hann var felldur í Búlandsdal klukkan 16:05. Aðeins er þó heimilt að veiða tarfa þar sem veiðar trufla ekki kýr með kálfa fram til 1. ágúst. Veiðimaðurinn var Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalams á Kópaskeri. Leiðsögumaður hans var Guðmundur Kristinsson á Þvottá. Með þeim var Sigurður Alexander Ásmundsson, fórstursonur Björns Víkings....

Hagnaður Alcoa jókst um 138 prósent – tekjur á þessu ári 326 milljónir dollara

Hagnaður Alcoa jókst um 138 prósent og sala um 27 prósent á öðrum ársfjórðungi. Tekjur af reglulegri starfsemi Alcoa á öðrum ársfjórðungi þessa árs námu 326 milljónum dollara og jukust um 138 prósent miðað við sama tímabil 2010. Vörusala nam 6,6 milljörðum dala og jókst um 27 prósent á sama tímabili. Vörusalan á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var 11 prósentum meiri en á sama tímabili 2010. "Við erum mjög ánægð með afkomuna á þessum tveimur ársfjórðungum, sem skila góðum tekjum og vaxandi sölu," sagði ...

Lokið verður við uppgröft á Skriðuklaustri í sumar

Allt bendir til þess að lokið verði við að grafa upp rústir Skriðuklausturs í sumar. Í ljós hefur komið að garðurinn var stækkaður á klausturtímanum. Það gæti passað við dóm biskups sem dæmdi þjófa, sem rændu úr landi klaustursins, til samfélagsþjónustu. Að verkinu í sumar vinnur 16 manna hópur: Íslendingar, Bretar og Svíar. Auk þeirra eru sérfræðingar í Reykjavík sem vinna úr þeim gögnum sem berast frá Klaustri....

2 fíkniefnamál hjá lögreglunni á Seyðisfirði

Tvö fíkniefnamál komu upp í umdæmi lögreglunnar á Seyðisfirði í gær föstudaginn 15. júlí 2011. Í öðru málinu fundust 4.6 gr. af hassi en 1.1 gr. í hinu. Bæði málin komu upp í tengslum við aukið eftirlit vegna skemmtana á LungA hátíðinni en það listahátíð fyrir ungt fólk sem fram fer á Seyðisfirði, um miðjan júlí ár hvert. Lögreglan naut aðstoðar sérhæfðs tollvarðar með fíkniefnaleitarhund frá Tollstjóranum sem staðsettur er á Seyðisfirði og fann hundurinn fíkiefnin...

HB Grandi fær starfsleyfi fyrir fiskeldi í Berufirði

Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir kvíaeldisstöð HB Granda hf. í Berufirði þar sem rekstraraðila er heimilað að framleiða allt að 4000 tonn af laxi og allt að 4000 tonn af þorski á ári í sjókvíum í Berufirði. HB Grandi hf. óskaði eftir breytingu á heimildum í starfsleyfi stöðvarinnar vegna aukinnar áherslu á þorskeldi. Nýja starfsleyfið gildir til 1. júlí 2027. Með gildistöku þessa starfsleyfis fellur úr gildi fyrra starfsleyfi HB Granda hf. frá 29. nóvember 2007, upphaflega gefið út til handa Salar Islandica ehf. fyrir fiskeldi í Berufirði....

Sprettur Sporlangi gerir griðasamning við Umhverfisstofnun

Hreindýrið Sprettur Sporlangi, lukkudýr UÍA, undirritaði í morgun samning við Umhverfisstofnun sem gefur honum grið frá hreindýraveiðum. Hreindýraveiðitímabilið hófst á miðnætti og stendur fram í miðjan september. Sprettur hlakkar mikið til að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ, sem haldið verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina og telur samninginn mikilvægan til að tryggja öryggi sitt....

Gamlar íslenskar söngperlur á Kátum dögum fyrir austan

Í dag hefst fjölskylduhátíðin Kátir dagar í Langanesbyggð og stendur hún yfir frá 12. til 17. júlí. Dagskráin er fjölbreytt og boðið er upp á sögu, dorgveiði, myndasýningu og tónleika. Meðal þeirra sem halda munu tónleika eru söngfuglarnir og leikararnir Jana María Guðmundsdóttir og Ívar Helgason en þau hafa undanfarið komið fram í uppsetningu Silfurtunglsins á Hárinu. Þau ætla að flytja gömul íslensk dægurlög og segja aðeins frá tilurð þeirra og ferli söngvara eins og Soffíu Karlsdóttur, Helenu Eyjólfs, Hauks Morthens, Ellý ...

Seyðisfjörður fær 3G stöð - gagna- og farsímasamband batnar

Síminn hefur sett upp nýja 3G stöð á Seyðisfirði sem bætir verulega gagnasamband í farsíma í bænum. Á Seyðisfirði er ferðaþjónusta stór þáttur í atvinnustarfssemi og í gegnum bæinn fara tugþúsundir ferðamanna árlega, meðal annars vegna Norrænu og skemmtiferðaskipa sem leggja við höfnina og því mikilvægt að gagna- og farsímasamband þar sé þétt. 3G stöð Símans á Bjólfi við Seyðisfjörð var sett upp árið 2008 með 3G langdrægum sendi sem einkum er ætlað að veita sjófarendum þjónustu. Við stöðina var...

Engin ofbeldisbrot kærð á Eistnaflugi í ár

Lögreglan á Austurlandi segir að 29 fíkniefnamál hafi komið upp í tengslum við hátíðina Eistnaflug sem haldin var á Neskaupstað um helgina en alls hafði lögregla afskipti af 59 málum á hátíðinni. Í öllum tilfellum var um að ræða óverulegt magn af efnum sem ætluð voru til einkaneyslu....

Daglegar áætlunarferðir á Hallormsstað

Ferðaþjónustuaðilar á Hallormsstað og í Fljótsdal hafa stofnað til klasasamstarfs til að efla ferðaþjónustu á Upphéraði með sameiginlegri kynningu og áætlunarferðum frá Egilsstöðum. Miðvikudaginn 29. júní hófust ferðir á vegum Tanna Travel og verða þrjár ferðir á dag milli Egilsstaða og Végarðs í Fljótsdal allt til 3. ágúst. Fyrsta ferð að morgni er frá Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum kl. 7:30 en síðasta ferð úr Fljótsdal er kl. 16:45. Stoppistöðvar eru á Skriðuklaustri, við Hengifoss og á...

Veitir syndaaflausn á Breiðdalsvík

Snjólfur Gíslason, þúsundþjalasmiður og fyrrum útgerðamaður á Breiðdalsvík, er að færa út kvíarnar. Eftir að vera hættur fastri vinnu, kominn á eftirlaun, ákvað Snjólfur að söðla um. Hann hóf útgerð, keypti trillu sem hann er að klára að gera upp og gera klára til strandveiða. Þar sem strandveiðarnar eru ekki fullt starf ákvað hann að fá sér aukavinnu og veitir nú þeim er þess óska syndaaflausn í smá horni aðstöðuhúss...

Sláttur hafinn í Fljótsdalshéraði – seinkaði vegna veðurs

Sláttur hófst á bænum Egilsstöðum á Völlum í Fljótsdalshéraði síðustu helgi en slætti í sumar hefur seinkað mjög vegna kulda. "Töluvert hefur borið á kali í túnum á Héraði og upp til Dala, nú á vordögum sem staðið hafa fram undir þetta. Góð spretta var þó á stykkinu sem Gunnar á Egilstöðum var að slá og fyrstu rúllur sumarsins litu þar dagsins ljós, áður en það rigndi ofan í flekkinn" segir á Austurglugganum...

Fyrsta íbúðarhúsið sem rís á Þórshöfn í 14 ár

Í síðustu viku risu tvö íbúðarhús í einni svipan á Þórshöfn. Það munu vera fjórtán ár síðan síðast var reist íbúðarhús á Þórshöfn og því töluverð tíðindi hér um að ræða. Um er að ræða sex 93 m2 íbúðir sem BM Vallá byggir fyrir leigufélagið V Laugavegur. Grafið var fyrir húsunum um páskana og hefur síðan hefur verið unnið að jarðvegsskiptum og öðrum frágangi í grunnunum....

The Night Cap sýnd í Skriðuklaustri

Föstudaginn 1. júlí var opnuð í gallerí Klaustri sýning á myndinni, The Night Cap, eftir Guðjón Braga Stefánsson og Eddu Rós Jónsdóttur. Myndin er byggð á þjóðsögunni Draugshúfan og var að hluta unnin sem sameiginlegt lokaverkefni listamannanna við Danmarks Designskole. Hún er gerð með blandaðri tækni þar sem notaðar eru teikningar, tölvugrafík, ljósmyndir og myndbandsklippur til að skapa heim verksins. "Sagan er sögð í myndum og það er áhorfandans að túlka hreyfingar og gjörðir persónanna. Sumu hefur verið breytt og ...

Læknislaust á Vopnafirði vegna sparnaðaraðgerða - 165 km. í næsta lækni

Dagana 16. júní til og með 19. júní síðastliðinn var læknislaust á Vopnafirði en Vopnafjarðarhreppur mótmælir því harðlega að grunnlæknisþjónusta sé tekin frá Vopnafirði til þess eins að spara pening. Fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Austurlands hafa greint frá því að hér sé um nauðsynlegar aðgerðir í sparnaðarskyni að ræða. Vopnafjarðarhreppur hefur verið rætt við forstöðumenn HSA og einnig við Velferðarráðherra. Í þeim samtölum hefur því harðlega verið mótmælt að grunnþjónusta af þessum toga sé tekin frá ...

Þekkingarnet Austurlands fékk hæsta styrkinn úr samfélagssjóði Landsvirkjunar

Landsvirkjun veitti nýlega styrki úr samfélagssjóði fyrirtækisins og hlutu 16 fjölbreytt verkefni styrk. Hæsta styrkinn fékk Þekkingarnet Austurlands, 800.000 kr. vegna skipulagningar og framkvæmdar námskeiðs um samskipti, samráð, skoðanamyndun og mikilvægi þessara þátta við stjórnun verndaðra svæða með sérstaka áherslu á þjóðgarða. Annan hæsta styrkinn, eða 700.000 kr. hlutu Sigrún Ólafsdóttir og Jón Gunnar Bernburg til gerðar könnunar um umhverfismál og sjálfbærni á Íslandi. Könnunin er unnin í...

Kom að landi með 22,3 tonn eftir daginn - nýtt aflamet

Smábáturinn Ragnar SF frá Breiðdalsvík hefur verið að mokveiða á línu að undanförnu. Á dögunum kom hann að landi með 22,3 tonn eftir daginn, sem er nýtt met hjá báti af þessari stærð. Uppistaða aflans var þorskur, eða 21 tonn, og fengu þeir aflann í Gerpisdýpi. Áætlað aflaverðmæti úr þessari einu veiðferð er um 6 milljónir króna....

Ný þjónustukort af byggðakjörnunum á Austurlandi

Nú er lokið vinnu við að uppfæra þjónustukort fyrir ferðamenn og íbúa af byggðakjörnunum í Fjarðabyggð á Austurlandi. Kortin eru m.a. hugsuð sem grunnur að upplýsingaskiltum fyrir byggðarkjarnana. Þar er m.a. hægt að sjá hvar markverðustu staðir eru í hverju byggðalagi fyrir sig....

ÚÍA fagnaði 70 ára afmæli

Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA) fagnaði í gær, 28. júní, 70 ára afmæli sínu en stofnfundur sambandsins var haldinn þann dag á Eiðum árið 1941. Félög innan ÚÍA eru Einherji, Þristur, UMFB, Hrafnkell Freysgoði, Þróttur, Valur, Austri, Höttur, Súlan, Leiknir og Neisti....

Styrkir Alcoa Fjarðaráls til Vina Vatnajökuls komnir yfir 200 milljónir króna

Þriðjudaginn 21. júní síðastliðinn veittu Vinir Vatnajökuls – hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs viðtöku 700 þúsund dollara styrk frá Alcoa Fjarðaáli eða rúmlega 80 milljónum íslenskra króna. Áður hafði Fjarðaál veitt samtökunum tvo styrki að upphæð um 145 milljónir króna, þannig að samtals eru styrkir fyrirtækisins til þeirra komnir yfir 200 milljónir króna á þremur árum. Fyrirtækið hyggst styrkja Vinasamtökin enn frekar á næstu árum. Fjármunirnir fara til margskonar verkefna sem tengjast kynningu, fræðslu og rannsóknum í ...

Um 200 konur komu í kaffi hjá Fjarðaráli á kvennréttindadeginum

Alcoa Fjarðarál bauð konum í kaffi á kvennréttindadeginum, þann 19. júní síðastliðinn, og var metaðsókn í ár að sögn Fjarðaráls en um 200 konur komu. Þetta er fjórða árið í röð sem álverið stendur býður konum í kaffi á kvennréttindadeginum og voru flutt tónlistaratriði og ávörp. Freyja Yeatman Ómarsdóttir sagði frá flóknum uppruna sínum en faðir hennar er íslenskur og móðir hennar frá Nýja Sjálandi. Hún og systir hennar bjuggu lengst af í Ástralíu með móður sinni. Einnig greindi hún frá ævintýraferð sem framundan er, en hún er á leið til ...

Vörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs afhjúpaðar

Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir afhjúpaði á dögunum vörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, norðan Snæfells. Vörðurnar voru gjöf Vina Vatnajökuls til þjóðgarðsins og tók formaður stjórnar Kristveig Sigurðardóttir á móti gjöfinni úr hendi varaformanns samtakanna Bjarna Daníelssonar. Styrkur frá Samfélagssjóði Alcoa í Bandaríkjunum gerði þetta mögulegt....

Suttmyndin Lífsviljinn - sjá myndbrot

Eins og flestir vita greindist Rafn Heiðdal með krabbamein sl. sumar. Rabbi er nú á batavegi eftir erfiða baráttu og horfir bjartsýnn fram á veginn. Skúli Andrésson fylgdi Rabba í gegnum þessa erfiðu lífsreynslu vopnaður myndavél og afraksturinn, suttmyndin Lífsviljinn, hefur nú litið dagsins ljós. Myndin var sýnd á hátíð íslenskra heimildamynda, Skjaldborg, helgina 10. - 12. júní sl....

Fólk frá Discovery Channel kvikmyndar lunda á Borgarfirði eystra

Síðastliðinn föstudag komu til Borgarfjarðar eystri tvær ungar konur á vegum Discovery Channel til þess að kvikmynda lunda. Íslandsstofa var milligönguaðili í verkefninu og hafði samband við heimafólk fyrir stjónvarpsstöðina. "Upphaflega stóð til að fara til Vestmannaeyja til þess að ná myndum að þessum fallega fugli. Ekki var talið tryggt að þær séu lunda við Vestmannaeyja og því komu þær hingað austur, en eins og oft hefur verið haldið fram, þá erum við með besta aðgengi að lunda á Íslandi!" segir á vef Borgarfjarðar eystri. "Stelpurnar voru ...

"Mesta viðurkenningin er gleðin sem maður upplifir frá þeim sem maður vinnur með"

Í gær var organistinn og tónlistarkennarinn Thorvald Gjerde verðlaunaður af Rótarýklúbbi Fljótsdalshérað fyrir framlag sig til menningar og samfélags á svæðinu en viðurkenningin er veitt úr þjóðhátíðarsjóði Rótarýklúbbsins. "Það er alltaf gaman að fá viðurkenningar en mesta viðurkenningin er gleðin. Gleðin sem maður upplifir frá þeim sem maður vinnur með. Það er samt alltaf gaman að fá smá auka bónus" sagði Thorvald þegar hann veitti viðurkenningarskjali og 75 þúsund króna ávísun viðtöku úr hendi ...

Minjasafnið á Bustarfelli opnar á ný

Minjasafnið á Bustarfelli í Vopnafirði hefur opnað á ný en það er aðeins opið á sumrin. Safnið miðlar búskapar- og lifnaðarháttum þeirra sem bjuggu á Bustarfelli frá 1770 til 1966. "Til að mynda eru þrjú eldhús í bænum sem öll segja sína sögu og tilheyra sínu tímabili. Eins er um muni safnsins, að þeir tilheyra mismunandi tímabilum. Gaman er að ganga um og sjá hvernig einn hlutur hefur tekið við af öðrum í áranna rás" segir á heimasíðu safnsins sem geymir yfir þúsund muni. Aðstandendur safnsins leggja mikla áherslu á að safnið sé...

Bláfáninn dreginn að húni í smábátahöfn í Borgarfirði

Smábátahöfnin Hafnarhólmahöfn í Borgarfirði eystra fékk nýlega umhverfisviðurkenninguna Bláfánann 8 árið í röð en fáninn er alþjóðleg umhverfisviðurkenning sem veitt er rekstraraðilum smábátahafna og baðstranda. Það voru leikskólakrakkar í Borgarfirði sem fengu það hlutverk að draga fánann að húni og nutu þau aðstoðar sveitastjórans Jóns Þórðarsonar við verkið en einnig var Ásta Þorleifsdóttir frá Landvernd viðstödd athöfnina en það er Landvernd sem hefur yfirumsjón með verkefninu. Bláfáninn er útbreiddasta ...

Makríll kominn á færiböndin í vinnslu HB Granda á Vopnafirði

Þrátt fyrir að leit eftir síld innan íslenskrar lögsögu, á hinu alþjóðlega hafsvæði í Síldarsmugunni og í lögsögu Jan Mayen, hafi lítinn árangur borið í liðinni viku þá hafa skip HB Granda nú þegar borið að landi um 1.100 tonn af síld og makríl á nýhafinni vertíð. Þessi afli fékkst í færeysku lögsögunni um helgina ...

Hrafna-Flóki í grafíklist á Skriðuklaustri

Í gallerí Klaustri á Skriðuklaustri stendur yfir sýning á grafíkverkum Sveinbjargar Hallgrímsdóttur sem hún vann fyrir norska skáldsögu um Hrafna-Flóka. Útgáfa bókarinnar var samstarfsverkefni milli sveitarfélagsins Sveio á vesturströnd Noregs, norska sendiráðsins á Íslandi og fleiri aðila. Skáldkonan Sylvien Vatle var fengin til að skrifa söguna og Sveinbjörg var valin til að myndskreyta verkið sem kom út í Noregi haustið 2010 og er nýkomin út á Íslandi hjá bókaútgáfunni Hólum. Á sýningunni í gallerí Klaustri eru 12 grafíkverk og...

Síldarvinnslan hlaut í ár Varðbergið

Útgerðarfyrirtækið Síldarvinnslan hf. hlaut í ár Varðbergið, forvarnaverðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar. Verðlaunin hafa verið veitt frá 1999. Þau hljóta árlega viðskiptavinir TM sem þykja skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum. TM veitti jafnframt fyrirtækinu Aðföng sérstaka viðurkenningu fyrir starf í þágu forvarna....

Hálfdán fékk Bláklukkuna

Hálfdán Björnsson á Kvískerjum fékk á dögunum Bláklukkuna 2011, heiðursviðurkenningu Náttúruverndarsamtaka Austurlands, NAUST, fyrir ómetanlegt framlag til náttúruverndar á Austurlandi. Í umsögn samtakanna segir, að rannsóknir Hálfdáns á lífríki, fuglum, skordýrum og plöntum, sérstaklega í Öræfum hafi verið mörgum hvati gegnum tíðina...

"Betri bær-list án landamæra" fær styrk úr Sprotasjóði

Leikskólinn Tjarnarland í Fjarðarbyggð fékk á dögunum 1,4 milljón króna styrk úr Sprotasjóði fyrir verkefnið “Betri bær-list án landamæra” en markmið þess er að meðal annars að skapa fjölbreytni í skólastarfi og auka tengsl milli ólíkra þjóðfélagshópa með áherslu á gagnkvæma virðingu og umburðarlyndi. Verkefnið vinnur Tjarnarland í samvinnu við Félag eldri borgara á Fljótsdalshéraði og Stólpa-hæfing og iðja fyrir fatlaða og hefst það í byrjun næsta skólaárs. Sprotasjóður er sjóður innan mennta- og...

Áhöfn Ásgríms Halldórssonar SF hlaut viðurkenningu Landsbjargar

Í gær hlaut áhöfn Ásgríms Halldórssonar SF 250 viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Skipstjórar eru Ásgrímur Ingólfsson og Sigurður Ægir Birgisson en Sævar Rafn Guðmundsson og Guðmundur Snorri Guðmundsson tóku á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar frá Herði Má Harðarsyni formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. ...

Fjarðarbyggð gæti tapað miklu á breytingum á fiskveiðistjórnun

Á blaðamannafundi sem útvegsmenn í Fjarðarbyggð og Vestmannaeyjum héldu í gær kom fram að tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu gætu reynst Fjarðarbyggð mjög skaðlegar. Gunnþór Ingvarsson, formaður Útvegsmannafélags Austurlands og framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, segir að aflaheimildir í fjarðarbyggð muni skerðast um alls 13.3200 þorsksígildistonn á ári miðað við 20 ára meðaltalsúthlutun. Hann sagði...

Seyðfirðingar safna stofnfé fyrir álkaplaverksmiðju

Hópur áhugamanna á Seyðisfirði hefur hrundið af stað söfnun fyrir stofnfé álkaplaverksmiðju á Seyðisfirði. Forsvarsmenn hópsins stefna á að safna um 200-300 milljónum króna til að vinna verkefninu brautargengi. Hópurinn kallar sig Framtaksfélag Seyðisfjarðar. Framlögin verða endurgreidd ef ekkert verður af verksmiðjunni á Seyðisfirði....

Sjómannadagsblað Austurlands er komið út

Sjómannadagsblað Austurlands er komið út og er það 17. árgangur blaðsins, sem líkt og undanfarin ár er um 90 blaðsíður að stærð. Hátt á annað hundrað nýrra og gamalla ljósmynda prýða blaðið. Á meðal efnis í blaðinu í ár er ítarleg grein eftir Smára Geirsson um mikla svaðilför áhafnarinnar á Gerpi NK í ársbyrjun 1959 en ferðinni var þá heitið á Nýfundnalandsmið...

43% heiðagæsahreiðra rænd eggjum á Jökuldalsheiði

Norðan áhlaup gekk yfir Norður- og Austurland 20. maí og stóð yfir í nokkra daga. Á einu svæði í Jökuldalsheiði lentu sjötta hvert heiðagæsahreiður undir snjó og misfórst þar af leiðandi, sem verður að teljast vel sloppið miðað við aðstæður, á meðan allflest hreiður misfórust á kafla á Jökuldal. Á einum stað í Jökuldalsheiði höfðu hins vegar 43% heiðagæsahreiðra verið alrænd eggjum sem eru ekki góð tíðindi....

Ham, Dr. Spock og Skálmöld meðal hljómsveita á Eistnaflugi í júlí

Það styttist óðum í Eistnaflug en hún verður haldin daganna 7. til 9. júlí á Neskaupstað og munu margar af þekktustu hljómsveitum landsins stíga á svið. Agent Fresco, Brain Police, Ham, Dr. Spock, Sign og Mammút eru meðal rokkhljómsveita sem munu trylla lýðinn en einnig munu Skálmöld, Sólstafir, Dimma og Alice in Chains Cover koma fram ásamt fleiri rokkhljómsveitum. Þeir sem vilja eitthvað aðeins léttara geta til dæmis hlustað á Benny Crespo's Gang og...

Reyðarfjörður talinn betri kostur fyrir álkaplaverksmiðju en Seyðisfjörður

Álkaplaverksmiðja, sem áformað hefur verið að reisa á Seyðisfirði, gæti risið við hlið álversins á Reyðarfirði. Fjárfestar telja Reyðarfjörð betri stað fyrir verksmiðjuna en Seyðisfjörð, að því er fram kom í fréttum RÚV. Seyðfirðingar bundu miklar vonir við að álkaplaverksmiðjan myndi skapa allt að 30 ný störf í bænum. Unnið hefur verið að verkefninu í 4 ár....

Glæpur og samviska - Ný íslensk kvikmynd

Á sunnudaginn klukkan 20:00 verður sýnd ný íslensk kvikmynd í Seyðisfjarðarbíói. Kvikmyndin heitir Glæpur og samviska og er um ógæfusamt fólk sem lendir á villigötum. Henni er leikstýrt af Ásgeiri Hvítaskáldi og eru allir leikarar af Austurlandi en þar var myndin einnig tekin upp, fyrir utan eitt atriði sem tekið var upp á Seyðisfirði. "Ásgeir Hvítaskáld flutti til Íslands eftir mörg ár erlendis. Hann kom þá fyrst á Seyðisfjörð ...

Vilhjálmur tekur við sem bæjarstjóri Seyðsfjarðar

Vilhjálmur Jónsson, fulltrúi Framsóknarflokks og formaður bæjarráðs Seyðisfjarðar, tekur við sem bæjarstjóri Seyðisfjarðar 1. júní. Hann mun gegna embættinu þar til nýr bæjarstjóri verður ráðinn. Hann tekur við bæjarstjórastöðunni af Ólafi H. Sigurðssyni, sem sagði upp störfum á dögunum með starfslok 31. maí næst komandi. Auglýst verður eftir bæjarstjóra samkvæmt samkomulagi listanna um meirihlutasamstarf....

Fíkniefnamisferli á Eskifirði

Í gærkvöldi handtók lögreglan á Eskifirði ungan mann í Fjarðabyggð grunaðan um fíkniefnamisferli. Í fórum hans fundust fíkniefni. Vegna rannsóknar málsins var maðurinn vistaður í fangageymslu í nótt og leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Austurlands í morgun þar sem gerð var karfa um húsleit á heimili mannsins, sem var samþykkt. ...

Ráðstefna um fiskeldi á Hótel Héraði á morgun

Á morgun, föstudaginn 20. maí, fer fram ráðstefna um fiskeldi og bleikju á Hótel Héraði. Það er Atvinnumálanefnd Fljótdalshéraðs og þróunarfélag Austurlands sem standa fyrir ráðstefnunni sem hefst klukkan 13 og stendur til 18:30. Gunnar Þór Sigurbjörnsson stýrir ráðstefnunni og Björn Ingimarsson mun stjórna pallborðsumræðum. Fyrirlesarar eru...

Ólafur hættir sem bæjarstjóri Seyðisfjarðar

Ólafur Hr. Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðsfirði, hefur sagt upp störfum. Hann hefur verið bæjarstjóri á Seyðisfirði í níu ár. Ástæðan er sögð að ársreikningur bæjarsjóðs sýni verri stöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hann hefur átt erfið samskipti við Arnbjörgu Sveinsdóttir, forseta bæjarstjórnar....

Laxeldi í sjókvíum á Reyðarfirði

Undanfarið hafa nefndir og bæjarstjórn Fjarðarbyggðar fjallað um erindi Laxa hf sem hyggst hefja laxeldi í Reyðarfirði. Laxa hf ráðgerir hefja eldi á 6.000 tonnum af laxi í sjókvíum sem verða staðsettar við Sigmundarhús, Bjarg og Gripaldi í Reyðarfirði....

Töluvert grjóthrun í Oddsskarðsgöngum

Töluvert grjóthrun var í Oddsskarðsgöngum í síðustu viku. Tveir steinar, annar 100 kíló og hinn um 80 kíló, hrundu úr gangaloftinu og ofan á öryggisnet. Þaðan ultu þeir niður með gangaveggnum og út á akbrautina. Starfsmenn Vegagerðarinnar fluttu steinana burt með krana....

Jötunuxar í Neskaupstað

Nokkuð hefur borið á jötunuxum (Creophilus maxillosus) í Neskaupstað og hefur Náttúrustofu Austurlands borist alls 4 eintök nú í maí og haft fregnir af fleirum. Jötunuxar eru örgustu rándýr bæði lirfur og fullorðnu dýrin. Þeir geta tekið upp á því að fljúga, helst þó á hlýjum sólbjörtum dögum....

HB-Grandi á Vopnafirði bætir við 60 starfsmönnum í sumar

Undirbúningur vegna komandi síldar- og makrílvertíðar er í fullum gangi hjá uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði og fyrirsjáanleg er mikil fjölgun starfsmanna í sumar og fram eftir hausti. Fastráðnir starfsmenn í frystihúsinu eru að jafnaði um 40 talsins en í sumar munu á annað hundrað manns taka þátt í fiskvinnslunni á staðnum....

Banaslys á þjóðveginum um Kambanes

Laust fyrir kl. 21:00 í gærkvöldi var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum um Kambanes á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Þarna hafði fólksbifreið verið ekið út af veginum, og farið nokkrar veltur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út úr bílnum og lést á vettvangi skömmu seinna. Hann var á fimmtugsaldri....

Vilja olíubirgðastöð við Eyri í Reyðarfirði

Mannvit hefur verið að undirbúa og skoða og koma á fót 450.000 rúmmetra olíubirgðastöð við Eyri í Reyðarfirði. Jafnframt óskar Mannvit hf. eftir að Fjarðarbyggð verði aðili að áformayfirlýsingu sem væri á milli Mannvits, Fjarðarbyggðar og landseigenda Eyrar. Málið hefur verið kynnt fyrir nefndum Fjarðarbyggðar og bæjarráði, að því er fram kemur í héraðsfréttablaðinu AusturGlugganum....

Haldlögð fíkniefni á Eskifirði

Lögreglan á Eskifirði í samvinnu við lögregluna í umdæmi lögreglustjórans á Seyðisfirði lagði hald á um 25 grömm af amfetamíni aðfararnótt sunnudagsins. Við venjubundið eftirlit lögreglu í Fjarðabyggð vaknaði grunur um að aðili sem áður hefur komið að borði lögreglu vegna fíkniefnamisferlis, hefði meðferðis fíkniefni. Í samvinnu við lögreglu á Egilsstöðum tókst að hafa hendur í hári mannsins og í framhaldinu að haldleggja um 25. grömm af amfetamíni. ...

Ársreikningur Fjarðabyggðar sýnir mikinn hagnað

Fjarðarbyggð sýnir mikinn hagnað eftir rekstrarárið 2010 eða 683 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningi sveitafélagsins sem lagður var til fyrri umræðu þann 5. maí síðastliðinn. Bæjarstjórnin segir ástæðurnar fyrir góðri afkomu sveitafélagins vera þær að bæði séu hagræðingaraaðgerðir síðustu ári að koma fram en einnig hafi tekjuleiðir hækkað verulega...

Vinna við Sauðárveitu hefst í sumar

Stjórn Landsvirkjunar hefur tekið ákvörðun um að hefja framkvæmdir við Sauðárveitu og hefst vinna í sumar við vegagerð og aðstöðusköpun. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki haustið 2012. Um er að ræða veitingu Innri-Sauðár og Ytri-Sauðár í Grjótárlón, en þær eru tvær austustu árnar á virkjunarsvæði Hraunaveitu....

Kæru Vopnafjarðarhrepps í Giftar málinu vísað frá

Á fundi hreppsnefndar Vopnafjarðar í síðustu viku var tekinn fyrir úrskurður ríkissaksóknara viðvíkjandi kæru Vopnafjarðarhrepps á félagið Gift ehf. en áður hafði embætti ríkislögreglustjóra komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til rannsóknar á því hvað varð um umtalsverða fjármuni eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga er runnu inn í Gift. Tók það ferli samtals eitt ár....

Grjóthrun í Oddskarðsgöngum - Bæjarráð vill ný göng

Á mánudaginn tóku vegfarendur í Oddskarðsgöngum eftir grjóti sem hrunið hafði úr lofti gangnanna. Um var að ræða tvo stóra steina sem voru um 80-100 kíló að þyngd og nokkuð af minni steinum. Hafði grjótið hrunið úr lofti gangnanna við syðri gangnamunann Eskifjarðarmegin en þar eru göngin klædd neti sem á að koma í veg fyrir að grjót endi á akbrautinni...

12 milljóna kr. hagnaður af rekstri Fljótsdalshéraðs

Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2010 var tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs í gær. Rekstarafgangur var 11,7 milljónir króna á árinu 2010. Rekstarafgangur í samstæðureikningi Fljótsdalshéraðs fyrir A og B hluta á árinu 2010 nam tæpum 12 milljónum kr. sem er um 56 millj. kr. lakari niðurstaða en gert var ráð fyrir í samþykktri áætlun fyrir árið 2010....

Ævintýramennirnir komnir í Bjarnarey við Vopnafjörð

Um þessar mundir eru tveir menn á kajak við Íslandsstrendur. Það eru þeir Riaan Manser og Dan Skinstad og hófst róðurinn á Húsavík 16. mars. Þeir gefa sér 96 daga í ferðalagið, eða um fjóra mánuði, og ætla að róar um 21 kílómeter að meðaltali á dag. Þegar staðsetning þeirra var uppfærð síðast á heimasíðu leiðangursins, riaanmanser.com, voru þeir í Bjarnarey við Vopnafjörð....

Fornleifasjóður úthlutar styrkjum

Fornleifasjóður tilkynnti í gær um úthlutanir styrkja úr fornleifasjóði. Hæsti styrkurinn fór í áframhaldandi fornleifarannsóknir að Skriðuklaustri og nam sú upphæð 3.000.000 króna. Næst hæsti styrkurinn, 2.500.000 króna, var veittur í fornleifauppgröft í kirkjugarðinum á Hofsstöðum í Mývatnssveit. Í ár veitti sjóðurinn 16 verkefnum styrki og nam upphæðin 18.000.000 króna...

Endurnýjun gamalla húsa í Langanesbyggð

Birt hefur verið úthlutun úr húsafriðunarsjóði árið 2011. Þar kemur fram að þrjú hús í Langanesbyggð fengu styrki úr sjóðnum. Halldórshús og Sauðaneskirkja fengu 800 þúsund hvort og Skeggjastaðakirkja 350 þúsund. ...

Ríkisstjórnin sker niður á einum stað og lofar pening á öðrum

Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, skrifar grein á bloggsíðu sína sem hann nefnir "Ríkisstjórn á villigötum". Hann segir að á sama tíma og ríkisstjórnin heiti Vestfirðingum auknu fjármagni sé skorið niður á Austurlandi í svipaðri starfsemi. "Það er rétt að ítreka það að því fer fjarri að einhverrar kergju gæti út í Vestfirðinga og nauðsyn þess að vinna að byggðamálum þar er öllum ljós....

Slasaður vélsleðamaður á Tröllafjalli

Björgunarsveitir frá Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Héraði og Breiðdalsvík eru nú að sækja slasaðann snjósleðamann á Tröllafjall í Áreyjardal inn af Reyðarfirði. Á þessari stundu er ekki vitað um tildrög slyssins né hversu alvarleg meiðsli mannsins eru. Björgunarsveitamenn, ásamt lækni, eru komnir að manninum og búa hann til flutnings....

26 milljónir til menningarverkefna á Austurlandi

Menningarráð Austurlands úthlutaði 63 styrkjum til menningarverkefna á Austurlandi samkvæmt samningi sveitarfélaga við mennta- og menningarmálaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti. Hæstu styrkir námu 1,2 milljónum króna en þeir lægstu 100 þúsund krónum. Alls bárust menningarráðinu 105 styrkumsóknir að þessu sinni. ...

Þýða enska texta sem tengjast ESB löggjöf yfir á íslensku

Framkvæmdastjóri Sagnabrunns ehf. á Seyðisfirði, Rannveig Þórhallsdóttir, skrifaði nýlega undir samning við Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins til eins árs um þýðingar af ensku á íslensku á textum sem tengjast ESB löggjöf. Hægt er að framlengja samninginn þrisvar sinnum og góðar líkur á fjögurra ára samstarfi, að því er fram kemur á vef Seyðisfjarðar....

Alcoa Fjarðaál veitir 38 milljónum króna til samfélagsverkefna

Alcoa Fjarðaál veitti á dögunum 26 styrki til samfélagsverkefna á Austurlandi að upphæð samtals 38 milljónir króna. Afhendingin fór fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Stærsti einstaki styrkurinn, rúmlega 17 milljónir króna, er styrkur sem Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum veitir Háskólanum í Reykjavík til að vinna að því með ...

Arðgreiðslur HB Granda nema 340 milljónum

Stjórn HB Granda hf. gerir það að tillögu sinni fyrir aðalfund fyrirtækisins í lok mánaðarins að greiddur verði út 20% arður vegna ársins 2010, alls að fjárhæð 340 milljónir króna. HB Grandi, sem er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, rekur fiskiðjuver í Reykjavík, Akranesi og á Vopnafirði....

Öflugt leikhúslíf á Austurlandi

Um þessar mundir er verið að sýna tvær leiksýningar á Austurlandi. Önnur heitir Krimmi og er sett upp af nemendum í Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu. Hin heitir "Jöklar-6 leiksýningar í einni" og er netleikhúsverk. ...

Hagnaður Loðnuvinnslunnar 530 milljónir

Hagnaður af rekstri Loðnuvinnslunnar h/f á Fáskrúðsfirði í fyrra nam 531 milljón kr. eftir skatta, en árið 2009 var hagnaður félagsins kr. 223 milljónir. Þetta kom fram á aðalfundi Loðnuvinnslunnar 8. apríl s.l. og samþykkti fundurinn að greiða hluthöfum 10% arð að fjárhæð 70 milljónir króna. Rekstrartekjur LVF að frádregnum eigin afla voru kr. 4.204 millj. og hækkuðu um 45% miðað við fyrra ár....

Banaslys í Langadal

Laust fyrir klukkan 07:00 í morgun var lögreglunni á Egilsstöðum tilkynnt um alvarlegt umferðarslys í Langadal, skammt vestan við veginn til Vopnafjarðar. Um er að ræða fólksbifreið með tveim karlmönnum í. Um kl. 08:00 var annar mannanna úrskurðaður látinn en hinn var minna slasaður. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er búið að hafa samband við aðstandendur....

144 milljóna króna hagnaður af rekstri Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Sveitarfélagið Hornafjörður var rekið með 144 milljóna króna hagnaði á síðasta ár. Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2010 var lagður fram á bæjarstjórnar fundi í gær, 7. apríl. Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 144 milljónir króna, en áætlun gerði ráð fyrir 97 milljóna króna afgangi. ...

Tilboði Héraðsverks tekið í snjóflóðavarnir í Neskaupstað

Á bæjarráðsfundi Fjarðarbyggðar í gær, 5. apríl, var samþykkt að taka tilboði frá Héraðsverki ehf. á Egilsstöðum í verkið "Snjóflóðavarnir í Neskaupstað, varnargarðar og keilur". Sex gild tilboð bárust í verkið og var tilboð Héraðsverks það lægsta og hljóðaði upp á 858,8 milljónir, sem er 68.3% af kostnaðaráætlun. Kostnaðarskipting í verkinu er þannig að ríkið greiðir 90% en Fjarðabyggð 10%. ...

Íslandsmet hjá Steinunni SF - landaði 680 tonnum í mars

Mokveiði hefur verið hjá togbátum sem hafa verið við veiðar við sunnanvert landið að undanförnu. Steinunn SF 10 landaði samtals 680 tonnum úr 10 veiðiferðum í marsmánuði og er það Íslandsmet. Aldrei áður hefur trollbátur fiskað jafn mikið á einum mánuði. ...

Hornafjörður gerir samning við Sindra og GHH

Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar Hornafjarðar, skrifaði á dögunum undir samninga við Gísla Pál Björnsson, formann Golfklúbbs Hornafjarðar og Ásgrím Ingólfsson, formann Ungmennfélagsins Sindra. Samningarnir gilda til ársloka 2014 og veitir félögunum tækifæri á að skipuleggja starf sitt til lengri tíma litið,...

Anna Björk átti bestu myndina!

Ljósmyndasamkeppnin „Djúpivogur 2010“ hefur staðið yfir á Djúpavogi að undanförnu og nú hefur dómnefnd keppninnar komist að niðurstöðu um sigurmyndina. Það reyndist vera Anna Björk Guðjónsdóttir frá Egilsstöðum sem átti bestu myndina. ...

Fylltu bátinn af bolta þorski tvisvar sinnum sama daginn

Mokveiði hefur verið hjá dagróðrarbátum að undanförnu allt í kringum landið þegar gefið hefur. Svo mikill var aflinn hjá netabátnum Litla Tindi SU 508 að hann fyllti sig tvisvar sama daginn. Báturinn er fimm brúttótonna plastbátur og er eini netabáturinn sem gerður er út frá Fáskrúðsfirði....

Aflaverðmæti loðnuskipa HB Granda 1,9 milljarðar

Heildaraflaverðmæti loðnuskipanna hjá HB Granda á loðnuvertíðinni var um 1,9 milljarðar króna. HB Grandi gerir út fjögur skip; Faxi RE, Ingunn AK, Lundey NS og Víking AK. Fiskimjölsverksmiðjur og fiskiðjuver HB Granda á Akranesi og Vopnafirði tóku á móti 61.000 tonnum af loðnu til vinnslu á loðnuvertíðinni...

Um 250 manns á íbúafundi um Norðfjarðargöng

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar efndi í gær til íbúafundar í Neskaupstað um Norðfjarðargöng. Sveitarstjórnarmenn og fulltrúar atvinnulífsins ræddu nauðsyn þess að fá Norðfjarðargöng í stað Oddsskarðsganga. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri greindi frá framkvæmdinni og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði ekki spurningu um hvort ráðist yrði í gerð ganganna heldur hvenær....

Nemendur Seyðisfjarðarskóla héldu upp dag Downs-heilkennis

Alþjóðlegur dagur Downs-heilkennis var haldinn hátíðlegur 21. mars síðast liðinn. Nemendur Seyðisfjarðarskóla hafa haldið upp á daginn undanfarin ár og gerðu það einnig nú. ...

Hreindýr skapa hættu á vegum á Mýrum og í Lóni

Hreindýr hafa valdið hættu á vegum undanfarið og vill Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur sérstaklega við svæðunum á Mýrum og í Lóni þar sem hættuástand hefur verið viðvarandi. Mikilvægt er að vegfarendur geri sér grein fyrir að hreindýrin geta þvælst víðar um vegi Austurlands....

Vopnafjarðarhreppur mótmælir áformum ríkisvaldsins um að hætta endurgreiðslum vegna refaveiða

Fjallað var um veiðar á ref og mink á fundi sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps á dögunum. Í bréfi frá Umhverfisstofnun kemur fram að engar fjárveitingar eru til endurgreiðslu vegna refaveiða í sveitarfélögum eins og verið hefur á umliðnum árum....

Mikilvægt að þjónustusamningur milli Vegagerðarinnar og Norðlandair verði framlengdur

Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps ályktaði á fundi sínum í síðustu viku um flugsamgöngur sem skipta íbúa sveitarfélagsins miklu máli enda er flogið alla virka daga á þessari leið. Þjónustusamningurinn mun renna út um næstu áramót og var sveitarstjóra falið að fylgja ályktuninni eftir gagnvart þar til gerðum yfirvöldum....

Mál Giftar til ríkissaksóknara

Sveitarfélögin Vopnafjarðarhreppur og Djúpavogshreppur hafa ákveðið að vísa kærum sínum vegna fjárfestingafélagsins Giftar til ríkissaksóknara eftir að ríkislögreglustjóri taldi ekki ástæðu til að aðhafast neitt í málinu. Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Austurgluggans. ...

Glæpur og samviska

Ný austfirsk kvikmynd, Glæpur og samviska, í fullri lengd eftir Ásgeir Hvítaskáld verður frumsýnd á Egilsstöðum 25. mars nk. Um er að ræða magnþrungna mynd um ógæfusamt fólk sem lendir á villigötum, en samt skín sólin á alla. Myndin er tekin upp á Austurlandi og eru áhugaleikarar frá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs í öllum hlutverkum. Tónlistamenn myndarinnar eru Margrét Eir, Svavar Knútur og Björn Thoroddsson. Myndin er framleidd með styrk frá Menningarráði Austurlands og Sigurjóni Sighvatssyni....

Rauða kross búð opnuð á Hornafirði

Rauða kross búð var opnuð á Hornafirði sl. mánudag. Búðin er staðsett í húsnæði deildarinnar að Víkurbraut 2, við hliðina á veitingahúsinu Víkinni. Fyrstu dagana er opið frá klukkan 17-19. Síðan verður opnunartími auglýstur á staðnum þar sem þetta er tilraun og unnið eftir aðstæðum hverju sinni....

Mótorkrosskappinn Hjálmar útnefndur Íþróttamaður UÍA 2010

Á Sambandsþingi UÍA á Eskifirði á dögunum var Íþróttamaður UÍA fyrir árið 2010 útnefndur. Mótorkrosskappinn Hjálmar Jônsson úr Akstursíþróttafélaginu START varð þar fyrir valinu. Hjálmar hefur náð góðum árangri í íþrótt sinni og hafnaði m.a. í 3. sæti í Íslandsmeistaramótinu síðastliðið sumar. Hjálmar keppti fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum sem fram fór síðastliðið haust og varð þar í 26. sæti en það er bestu árangur Íslendings hingað til....

Skólarnir á Djúpavogi sameinaðir

Sveitarstjórn Djúpavogshrepps hefur samþykkt að sameina rekstur leik-, grunn- og tónskólans á Djúpavogi með einum skólastjóra. Breytingarnar eiga að skila bæði rekstrarlegum og faglegum ávinningi. ...

Útlit fyrir að ferjusiglingar milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar leggist af

Austurglugginn greinir frá því að allt útlit sé fyrir að ferjusiglingar milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar leggist af í sumar vegna niðurskurðar. Ríkið vill að sveitarfélagið taki við siglingaleiðinni. Vegagerðin hefur lagt til að siglingunum verði hætt frá 1. júní – 1. október. Þar hafa vanalega verið tvær ferðar í viku en í sparnaðarskyni var þeim fækkað í eina seinasta sumar. ...

Laugarfellsskáli til leigu fyrir ferðaþjónustu

Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps auglýsir Laugarfellsskála til leigu fyrir ferðaþjónustu. Leitað er eftir áhugasömum aðilum um rekstur nýs Laugarfelllskála sem staðsettur er við Laugarfell, á Fljótsdalsheiði. Um er að ræða fjallaskála á 2 hæðum með gistirými fyrir allt að 45 manns á efri hæð, 8 minni herbergi og 2 stærri, ásamt aðstöðu fyrir skálavörð og snyrtingar. ...

Segist finna fyrir krafti meðal mótshaldara

Helga Guðjónsdóttir, formaður Ungmennafélags Íslands, segist finna fyrir krafti meðal mótshaldara Unglingalandsmóts sem verður á Fljótsdalshéraði í sumar. Borgarafundur þar sem mótið var kynnt var haldinn á Egilsstöðum 3. mars. Á fundinum var meðal annars undirritaður samningur milli sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs, UMFÍ og UÍA um mótið. Fljótsdalshérað leggur til aðstöðu og ýmsa þjónustu en UÍA heldur mótið. Áætlað er að um 3-400 sjálfboðaliðar komi að mótinu um verslunarmannahelgina. ...

Efri hluti barnalyftu í Oddskarði á hættusvæði

Fram kemur í fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar Fjarðabyggðar að efri hluti barnalyftu í Sólskinsbrekku í Oddskarði standist ekki viðmið reglugerðar um skíðasvæðuhættumat. Snjóflóð hafa fallið yfir efsta hluta lyftunnar og tilheyrandi skíðaleiðir....

Öllu starfsfólki StarfA sagt upp

Allt starfsfólk Starfsendurhæfingar Austurlands, StarfA, fékk afhent uppsagnarbréf um síðustu mánaðarmót. Hjá StarfA vinna 3 fastráðnir starfsmenn í 2 og ½ stöðugildi, jafnframt starfa að jafnaði 7- 9 verktakar á verktakasamningum....

Lækkun fasteignaskatts til eldri borgara á Seyðisfirði

Samkvæmt samþykktum reglum bæjarstjórnar Seyðisfjarðar gefst eftirlauna- og örorkulífeyrisþegum kostur á að sækja um lækkun á fasteignaskatti 2011. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofu. Skattframtal 2011 vegna tekna 2010 þarf að fylgja með umsókn....