logo
sunnudagur, 29. janúar 2012
Mynd

Níu tilboð bárust í nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

Alls bárust Framkvæmdasýslu ríkisins níu tilboð í byggingu nýs hjúkrunarheimilis fyrir aldraða að Dalbraut 1 á Eskifirði. Framkvæmdasýsla mun fara á næstu dögum og gera tillögu að verktaka í framhaldi af því. Kostnaðaráætlun vegna verksins er upp á 551 milljón. Lægsta tilboð í verkið barst frá Viðhaldsmeistaranum ehf. upp á rúmar 528 milljónir króna, sem er 96% af kostnaðaráætlun....

Krefjast þess að hækkun Herjólfsfargjalda verði dregin til baka

MyndAðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja mótmælir harðlega hækkun fargjalda Herjólfs og krefst að stjórnvöld dragi hana tilbaka. "Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja leggst alfarið gegn áframhaldandi niðurskurði á opinberri þjónustu í Vestmannaeyjum. Nú þegar er niðurskurðurinn kominn vel yfir sársaukamörk hjá Heilbrigðisstofnun Vestmanneyja, lögreglunni og Framhaldsskóla Vestmannaeyja. Áframhaldandi skerðing á þjónustu út á landi er einfaldlega aðför að lífsskilyrðum Eyjamanna."...

Lesa meira

24 sóttu um stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Dalvíkurbyggðar

MyndÞann 16. október síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um auglýsta stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í Dalvíkurbyggð en það er Capacent sem hefur yfirumsjón með ráðningunni. Mikill áhugi er á starfinu enda bárust 24 umsóknir og eru nöfn umsækjenda birt hér fyrir neðan í stafrófsröð:...

Lesa meira

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Pennar

Mynd
27.1.2012 12:30:00
Hrund Guðmundsdóttir
Fýluferð
Mynd
9.12.2011 14:36:00
Ari Kr. Sæmundsen
Bullur og bull
Mynd
4.12.2011 20:12:00
Skafti Harðarson
Fyrir upplýsta umræðu um ESB
Mynd
21.11.2011 21:11:00
Frosti Sigurjónsson
Auglýsingarýni: Vissir þú?
Mynd
19.10.2011 00:41:00
Hilmar Gunnars
Tækniframfarir í arkitektúr.
Mynd
17.9.2011 18:25:00
Gunnar Jónsson
Flipp-femínismi
Mynd
1.9.2011 01:08:00
Ásmundur Einar Daðason
Brottflutningarnir kosta milljarða!
Mynd
11.8.2011 15:26:00
Reynir Þór Eggertsson
Að vera stikkfrí
Mynd
9.8.2011 10:25:00
Gissur Þórður Jóhannesson
Blautalón.
Mynd
11.7.2011 15:22:00
Les Mandarins
Hin drungalegi akstur æskunnar minnar
Mynd
23.6.2011 10:05:00
Ragnheiður Ingimundardóttir
Sjónvarpið og fl
Mynd
14.5.2011 00:43:00
BÍÓTíminn
Route Irish (2011) Gagnrýni

Fleiri Pennar

Formaður Framsýnar í verkefnum fyrir sjávarútvegsráðuneytið

MyndUndanfarnar vikur hefur formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, starfað í þriggja manna nefnd á vegum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem ætlað er að vera ráðherranum til ráðgjafar um ákveðna málaflokka í fiskveiðistjórnunni. Um er að ræða strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, rækju- og skelbætur. Reiknað er með að nefndin skili af sér á næstu vikum....

Lesa meira

Forsetahjónin við minningarathöfn á Ground Zero

MyndForseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff tóku í morgun, föstudaginn 21. október, þátt í minningarathöfn á Ground Zero í New York um þá sem létust í árásunum á Tvíburaturnana 11. september 2001. Auk forsetahjóna tóku Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning, Karl Gústav Svíakonungur og Silvía drottning, Tarja Halonen, forseti Finnlands og Friðrik krónprins Danmerkur og Mary krónprinsessa þátt í athöfninni ásamt sendiherrum landanna og embættismönnum. ...

Lesa meira

Vestmannaeyjar fyrsti viðkomustaður Þórs

MyndVarðskipið Þór, nýtt eftirlits- og björgunarskip Íslendinga, er nú á siglingu frá Halifax til Íslands. Vestmannaeyjar er fyrsti viðkomustaður varðskipsins en það leggur að bryggju í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 26. október nk. Verður varðskipið opið til sýnis milli kl. 14:00 og 20:00 og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir um borð....

Lesa meira

Álverð hefur lækkað um fjórðung frá því í maí

MyndÁlverð hefur fallið talsvert síðustu daga og er nú lægra en verið hefur frá septemberlokum í fyrra. Við lokun markaða í gær var framvirkt verð til 3ja mánaða á áli á LME-markaðinum 2.085 USD/tonnið. Hafði álverð þá lækkað um fjórðung frá maíbyrjun, þegar áltonnið var selt á tæplega 2.800 USD á markaði. Þróun álverðs skiptir íslenska hagkerfið verulegu máli, enda eru framleidd hér u.þ.b. 830 þús. tonn á ári, sem svarar til nálega 2% af heimsframleiðslu áls....

Lesa meira

Mynd

Átak í föngun ómerktra katta á Akranesi

Mynd
Nýverið tók Snorri Guðmundsson, dýraeftirlitsmaður, til starfa hjá Akraneskaupstað. Hann annast eftirlit með gæludýra- og búfjárhaldi á Akranesi eða nánar tiltekið daglegt eftirlit með hundum, köttum og búfénaði í samræmi við samþykktir um hunda- og kattahald svo og reglur um búfjárhald. Eitt af fyrstu verkefnum dýraeftirlitsmanns er að annast átak í föngun ómerktra katta og hófst átakið þann 1. október sl....

Málverk Einars Ingimundarsonar í Safnahúsi Borarness

Mynd
Ein mynda Einars Ingimundarsonar málara hefur nú verið hengd upp í anddyri Safnahúss þar sem einnig er gerð grein fyrir höfundi hennar í nokkrum orðum. Þetta er liður í að miðla merkum safnkosti Listasafns Borgarness með tímabundnum örsýningum. Mynd Einars er máluð ofarlega í Húsafellslandi og sýnir landslagið í nágrenni Kaldadals, tignarlega jökla og fjöll. ...

Kjötsala dregst saman um 3,4%

Mynd
Samkvæmt yfirliti frá Bændasamtökum Íslands um framleiðslu, sölu og birgðir búvara hefur kjötsala á síðustu 12 mánuðum dregist saman um 3,4% miðað við næstu 12 mánuði þar á undan. Mestur er samdrátturinn í sölu alifuglakjöts, ef hrossakjöt er undanskilið, eða 4,9%. Alifuglakjöt hefur þó mestu markaðshlutdeildina eða 29,9%. Samdráttur í sölu kindakjöts hefur orðið 3,5% á umræddu tímabili og er markaðshlutdeild þess 25,8% eða nær sú sama og svínakjöts sem hefur 25,7% markaðshlutdeild....

Íslandsbanki segir viðskiptavini ekki hafa fyrirgert mögulegum betri rétti sínum

Mynd
Íslandsbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna dóms Hæstaréttar um fjármögnunarleigusamninga, sem kveðinn var upp í gær. Þar segir m.a. að Íslandsbanki hafi áður lýst því yfir að þeir viðskiptavinir sem þegar hafa nýtt sér úrræði bankans vegna gengistryggðra fjármögnunarleigusamninga hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti sínum leiði niðurstaða Hæstaréttar til hagfelldari niðurstöðu....

Rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi hefjast á ný

Mynd
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur að fenginni ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar heimilað 1.000 tonna veiði á rækju í Ísafjarðardjúpi. Níu ára hlé hefur verið á rækjuveiði á svæðinu og áfram gildir bann við rækjuveiði á öðrum innfjarðasvæðum. Í árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar sem lauk 5. október sl. kom fram veruleg hækkun stofnvísitölu rækju á Skjálfanda og í Djúpi....

Lögreglukonur fagna 10 ára afmæli NBNP

Mynd
Fyrir tíu árum komu lögreglukonur saman í Ríga í Lettlandi og stofnuðu samtökin NBNP (Nordic-Baltic Network of Policewomen). Tilgangurinn var og er að efla stöðu kvenna innan lögreglu, bæði á faglegum og jafnréttislegum grunni. Fulltrúar Íslands í stjórn samtakanna eru þær Berglind Eyjólfsdóttir og Jóhanna Heiður Gestsdóttir en aðrar aðildarþjóðir eru Danmörk, Noregur, Finnland, Eistland, Lettland og Litháen....

Fleiri fréttir

 
Lesa meira

Uppljóstrarinn

Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður

bjornvalurUppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan. Hefur sú foringjahollusta gengið svo langt að heimildarmenn uppljóstrarans eru orðnir sannfærðir um að blogg Björns Vals sé skipulega notað til að koma á framfæri óþægilegum árásum á andstæðinga fjármálaráðherra sem hann vill ekki sjálfur gangast við, en þar fara nú hæst árásir á "íhaldið" sem Björn Valur skilgreinir sem Forseta Íslands og Biskups Íslands og að því er virðist alla aðra sem ekki eru flokksbundnir í ríkisstjórnarflokkunum.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þótt Björn Valur hafi komið inn á Alþingi í kosningum 2009 sem fulltrúi nýrra tíma á Íslandi þá nái samstarf hans við Steingrím J. Sigfússon mun lengra aftur í tímann. Á vef Alþingis má t.d. sjá að Björn Valur sat á Alþingi sem varaþingmaður Alþýðubandalagsins árið 1990.  Það sem ekki er tekið fram þar er að Björn Valur var þá (sem og árin 2007 og 2008) varamaður Steingríms J. Sigfússonar.

 

Björn Valur, eða "varðhundur fjármálaráðherra" eins og heimildarmenn skopast með að hann sé nefndur í gríni og alvöru, hefur því verið vinstri kantmaður í íslenskum stjórnmálum í rúm tuttugu ár og allan þann tíma verið í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon.  Uppljóstraranum getur ekki annað en glaðst yfir því að Birni Val hafi loksins verið launuð húsbóndahollustan með embætti þingflokksformanns.   Heimildarmenn telja að Þuríður Backman (sem tók eftirminnilega við embættinu í fréttaviðtali á flugvelli úti í löndum með orðunum "HA?") hafi aldrei verið fyrsti kostur forystu VG. Þuríður hafi aðeins lent í starfinu óvart þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að láta hafa sig að fífli eftir að forysta VG setti hana af eftir fæðingarorlof eins og frægt er orðið.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans telja að með kosningu Björns Vals í embætti þingflokksformanns hafi Steingrímur J. Sigfússon slegið tvær flugur í einu höggi, treyst til muna tak sitt á ódælum þingmönnum innan flokks og gefið árásum varðhundarins á "íhaldið" stóraukið vægi út á við. Hvort tveggja komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er um líf ríkisstjórnarinnar á komandi vetri.

Lesa meira

Kvestor

Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?

Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út 1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur fram í þessari bók.

Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."

Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?
Lesa meira

Aðsendar greinar

Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?

vigdis framsoknÞann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?

Í nefndaráliti með tillögunni kemur fram að með umsóknarferlinu yrði tryggt að Alþingi yrði hluti af því heildarferli stjórnsýslu sem mál ættu að fara í gegnum áður en þau yrðu endanlega afgreidd og þannig átti að tryggja að stjórnsýslan miðlaði upplýsingum til þingsins um málefni er tengdust viðræðunum svo að þingið geti gegnt eftirlitshlutverki sínu í ferlinu. Á þessu er mikill misbrestur því þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, utandagskrárumræður og beiðnir um fundi í utanríkisnefnd fá þingmenn afar takmarkaðar upplýsingar um aðlögunarferlið. Sér þess sér helst stað í frumvörpum ríkisstjórnarinnar við innleiðingar gerða og tilskipana ESB.

Sá háttur er samt hafður á að hvergi er tiltekið í frumvörpunum sjálfum að um skilyrði ESB sé að ræða vegna umsóknarinnar. Blekkingarleik er beitt í skjóli EES samningsins. Nefni ég hér örfá frumvörp sem orðið hafa að lögum á síðasta þingi sem skilyrt var að lögleiða og hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. Ákvæði um Þróunarsjóð EFTA lögleitt í EES samninginn - kostar ríkissjóð í nýjum útgjöldum 5,3 milljarða. Lög um losunarheimildir - stofnkostnaður 20 milljónir og ný útgjöld 45 milljónir á ári. Lög um grunngerð landupplýsinga - 30 milljónir á ári. Fjölmiðlalög - rekstur fjölmiðlanefndar 33 milljónir á ári. Lög um stjórn vatnamála - ný útgjöld 130 milljónir á ári.

Utanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að eins sé líklegt að kostnaður upp á 4 milljarða lendi á ríkinu vegna innleiðingar nýs tollakerfis í landbúnaði. Mörg sambærileg frumvörp liggja inn í þinginu sem bíða afgreiðslu. Hliðaráhrif umsóknarferlisins hafa því gríðarleg áhrif á ríkissjóð. Það skal og á það minnst að atvinnusköpunartækifæri ríkisstjórnarinnar liggur í lögleiðingu þessara frumvarpa því oftar en ekki þarf að bæta við starfsmönnum í undirstofnunum til "eftirlits" . Kratavæðingin er því algjör og opinberi geirinn þenst út.

Þá að beinum kostnaði við umsóknina. Í umræddri greinargerð er talið að kostnaður sem falli undir utanríkisráðuneytið á árabilinu 2010 - 2012 verði um 800 milljónir og lunginn af þeim kostnaði felst í þýðingum reglna ESB yfir á íslensku. Það er hreint galið að skattgreiðendur beri kostnað af þýðingum alls lagabálks ESB áður en vitað er hvort gengið verður inn eður ei. Ekki er gefin upp kostnaður annarra ráðuneyta - en ljóst er að stjórnsýslan liggur á hliðinni vegna umsóknarinnar - sem er e.t.v. skýringin á hví slík kyrrstaða ríki hér á landi.

Fljótt á litið má áætla að beinn kostnaður við umsóknarferlið verði á bilinu 1,5 - 2 milljarðar. Þær upplýsingar er ekki hægt að fá frá stjórnarráðinu og heykist hver ráðherrann á fætur öðrum að veita þinginu og almenningi upplýsingar um þennan kostnað. Samandregið er um að ræða gríðarlegan dulinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu á fylgiskjali IV í þingsályktunartillögunni kemur fram að kostnaður aðildarviðræðnanna sé háður óvissu sér í lagi í ljósi þess hversu hratt viðræðurnar ganga. Kostnaðarmatið er byggt á 18 mánaða ferli sem átti að ljúka um mitt ár 2011. Nú er sá tími liðinn og langt í land með að samningar takist. Rökrétt er því að tvöfalda beinan kostnað af ferlinu. Ef umsóknin verður ekki dregin til baka er ljóst að kostnaðurinn við umsóknina mun hlaupa á tugum milljarða.

Á meðan Össur Skarphéðinsson situr einn á brennandi tröppunum í Brussel með umsóknina er vegið að grunnþáttum íslensks samfélags með niðurskurði og skattpíningu.