Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Álverð hefur lækkað um fjórðung frá því í maí

Álverð hefur fallið talsvert síðustu daga og er nú lægra en
verið hefur frá septemberlokum í fyrra. Við lokun markaða í gær var
framvirkt verð til 3ja mánaða á áli á LME-markaðinum 2.085
USD/tonnið. Hafði álverð þá lækkað um fjórðung frá maíbyrjun, þegar
áltonnið var selt á tæplega 2.800 USD á markaði. Þróun álverðs
skiptir íslenska hagkerfið verulegu máli, enda eru framleidd hér
u.þ.b. 830 þús. tonn á ári, sem svarar til nálega 2% af
heimsframleiðslu áls. Þetta kemur fram í Morgunkorni
Íslandsbanka.
Meðal þeirra ástæðna sem tína má til fyrir lækkuninni síðustu
daga er að nýlega birtar tölur frá Alþjóðaálstofnuninni (IAI) sýna
að framleiðsla áls hefur nú náð sama magni og fyrir hrun, en talið
er að á heimsvísu, að Kína frátöldu, hafi álframleiðsla í september
numið 70.600 tonnum á dag að jafnaði. Bentu stjórnendur Alcoa á það
við kynningu á síðasta uppgjöri sínu að líklega væri framboð áls á
þessu ári, ef Kína væri undanskilið, u.þ.b. 1 milljón tonna umfram
eftirspurn þetta árið. Hins vegar er talið að Kínverjar þurfi á
umtalsvert meira áli að halda en framleitt er í landinu, þótt
innflutningstölur þar á bæ hafi ekki endurspeglað það nema að
hluta upp á síðkastið.
Veruleg áhrif hérlendis
Á fyrstu átta mánuðum ársins nam útflutningsverðmæti áls
frá Íslandi tæplega 155 mö.kr., og jókst verðmæti útflutningsins um
tæp 6% á milli ára þrátt fyrir ríflega 4% samdrátt í útfluttu magni
og 2% sterkari krónu að jafnaði þetta árið en í fyrra. Verðmæti
álútflutningsins er nánast hið sama og útflutningsverðmæti
sjávarafurða þessa dagana, og er vægi hvorrar greinar fyrir sig
u.þ.b. 25% af heildarútflutningstekjum Íslands. Eftir lækkunina
undanfarið er álverð nú nálægt meðalverði áranna 2001-2010 á
heimsmarkaði og er því vart hægt að fullyrða að verðið sé lágt í
sögulegum skilningi í dollurum talið þrátt fyrir óhagfelldar
aðstæður á markaði þessa dagana. Hins vegar er á það að líta að
verðlag hefur almennt hækkað á þessum tíma. Til að mynda hefur
neysluverð í Bandaríkjunum hækkað um u.þ.b. 27% frá síðustu
aldamótum, og í ljósi þess er álverð ekki ýkja hátt, segir í
greiningu Íslandsbanka.
Tíminn | 22.10.2011 |
Ritstjórn
Alls bárust Framkvæmdasýslu ríkisins níu tilboð í byggingu nýs hjúkrunarheimilis fyrir aldraða að Dalbraut 1 á Eskifirði. Framkvæmdasýsla mun fara á næstu dögum og gera tillögu að verktaka í framhaldi af því. Kostnaðaráætlun vegna verksins er upp á 551 milljón. Lægsta tilboð í verkið barst frá Viðhaldsmeistaranum ehf. upp á rúmar 528 milljónir króna, sem er 96% af kostnaðaráætlun....
Tíminn | 22.10.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja mótmælir harðlega hækkun fargjalda Herjólfs og krefst að stjórnvöld dragi hana tilbaka. "Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja leggst alfarið gegn áframhaldandi niðurskurði á opinberri þjónustu í Vestmannaeyjum. Nú þegar er niðurskurðurinn kominn vel yfir sársaukamörk hjá Heilbrigðisstofnun Vestmanneyja, lögreglunni og Framhaldsskóla Vestmannaeyja.
Áframhaldandi skerðing á þjónustu út á landi er einfaldlega aðför að lífsskilyrðum Eyjamanna."...
Tíminn | 22.10.2011 |
Ritstjórn
Þann 16. október síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um auglýsta stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í Dalvíkurbyggð en það er Capacent sem hefur yfirumsjón með ráðningunni. Mikill áhugi er á starfinu enda bárust 24 umsóknir og eru nöfn umsækjenda birt hér fyrir neðan í stafrófsröð:...
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Undanfarnar vikur hefur formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, starfað í þriggja manna nefnd á vegum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem ætlað er að vera ráðherranum til ráðgjafar um ákveðna málaflokka í fiskveiðistjórnunni. Um er að ræða strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, rækju- og skelbætur. Reiknað er með að nefndin skili af sér á næstu vikum....
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff tóku í morgun, föstudaginn 21. október, þátt í minningarathöfn á Ground Zero í New York um þá sem létust í árásunum á Tvíburaturnana 11. september 2001. Auk forsetahjóna tóku Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning, Karl Gústav Svíakonungur og Silvía drottning, Tarja Halonen, forseti Finnlands og Friðrik krónprins Danmerkur og Mary krónprinsessa þátt í athöfninni ásamt sendiherrum landanna og embættismönnum. ...
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Varðskipið Þór, nýtt eftirlits- og björgunarskip Íslendinga, er nú á siglingu frá Halifax til Íslands. Vestmannaeyjar er fyrsti viðkomustaður varðskipsins en það leggur að bryggju í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 26. október nk. Verður varðskipið opið til sýnis milli kl. 14:00 og 20:00 og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir um borð....
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Álverð hefur fallið talsvert síðustu daga og er nú lægra en verið hefur frá septemberlokum í fyrra. Við lokun markaða í gær var framvirkt verð til 3ja mánaða á áli á LME-markaðinum 2.085 USD/tonnið. Hafði álverð þá lækkað um fjórðung frá maíbyrjun, þegar áltonnið var selt á tæplega 2.800 USD á markaði. Þróun álverðs skiptir íslenska hagkerfið verulegu máli, enda eru framleidd hér u.þ.b. 830 þús. tonn á ári, sem svarar til nálega 2% af heimsframleiðslu áls....
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Nýverið tók Snorri Guðmundsson, dýraeftirlitsmaður, til starfa hjá Akraneskaupstað. Hann annast eftirlit með gæludýra- og búfjárhaldi á Akranesi eða nánar tiltekið daglegt eftirlit með hundum, köttum og búfénaði í samræmi við samþykktir um hunda- og kattahald svo og reglur um búfjárhald. Eitt af fyrstu verkefnum dýraeftirlitsmanns er að annast átak í föngun ómerktra katta og hófst átakið þann 1. október sl....
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Ein mynda Einars Ingimundarsonar málara hefur nú verið hengd upp í anddyri Safnahúss þar sem einnig er gerð grein fyrir höfundi hennar í nokkrum orðum. Þetta er liður í að miðla merkum safnkosti Listasafns Borgarness með tímabundnum örsýningum. Mynd Einars er máluð ofarlega í Húsafellslandi og sýnir landslagið í nágrenni Kaldadals, tignarlega jökla og fjöll. ...
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt yfirliti frá Bændasamtökum Íslands um framleiðslu, sölu og birgðir búvara hefur kjötsala á síðustu 12 mánuðum dregist saman um 3,4% miðað við næstu 12 mánuði þar á undan. Mestur er samdrátturinn í sölu alifuglakjöts, ef hrossakjöt er undanskilið, eða 4,9%. Alifuglakjöt hefur þó mestu markaðshlutdeildina eða 29,9%. Samdráttur í sölu kindakjöts hefur orðið 3,5% á umræddu tímabili og er markaðshlutdeild þess 25,8% eða nær sú sama og svínakjöts sem hefur 25,7% markaðshlutdeild....
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Íslandsbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna dóms Hæstaréttar um fjármögnunarleigusamninga, sem kveðinn var upp í gær. Þar segir m.a. að Íslandsbanki hafi áður lýst því yfir að þeir viðskiptavinir sem þegar hafa nýtt sér úrræði bankans vegna gengistryggðra fjármögnunarleigusamninga hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti sínum leiði niðurstaða Hæstaréttar til hagfelldari niðurstöðu....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur að fenginni ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar heimilað 1.000 tonna veiði á rækju í Ísafjarðardjúpi. Níu ára hlé hefur verið á rækjuveiði á svæðinu og áfram gildir bann við rækjuveiði á öðrum innfjarðasvæðum. Í árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar sem lauk 5. október sl. kom fram veruleg hækkun stofnvísitölu rækju á Skjálfanda og í Djúpi....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Fyrir tíu árum komu lögreglukonur saman í Ríga í Lettlandi og stofnuðu samtökin NBNP (Nordic-Baltic Network of Policewomen). Tilgangurinn var og er að efla stöðu kvenna innan lögreglu, bæði á faglegum og jafnréttislegum grunni. Fulltrúar Íslands í stjórn samtakanna eru þær Berglind Eyjólfsdóttir og Jóhanna Heiður Gestsdóttir en aðrar aðildarþjóðir eru Danmörk, Noregur, Finnland, Eistland, Lettland og Litháen....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Íslandsbanki, FKA, Félag kvenna í atvinnurekstri, og Opni háskólinn í Reykjavík standa fyrir frumkvöðlanámskeiði og frumkvöðlasamkeppni fyrir konur. Námskeið í gerð viðskiptaáætlana hefst þann 1. nóvember næstkomandi og mun Íslandsbanki niðurgreiða námskeiðagjaldið um 50%. Námskeiðið er alls 27 klukkustundir....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Byggingarkostnaður hækkaði lítillega nú í október, eða sem nemur um 0,1% frá fyrri mánuði. Þar af hækkaði verð á innlendu efni um 0,1% og verð fyrir vélar, flutning og orkunotkun um 2,8%. Á hinn bóginn lækkaði verð á innfluttu efni um 0,4% milli mánaða og vinnuhluti vísitölunnar stóð í stað. Þrátt fyrir að hækkunin sé lítil nú hefur vísitalan hækkað um heil 10,4% á síðastliðnum 12 mánuðum...
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort kæmi til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar Steingrímssonar. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 33,5% að það kæmi til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar. Meirihlutinn eða 66,5% sagðist þó ekki myndu kjósa nýtt framboð. Minnstur stuðningur við nýtt framboð Guðmundar er meðal Sjálfstæðismanna en mestur meðal Samfylkingarfólks. Könnunin var framkvæmd dagana 6.- 10. október og var heildarfjöldi svarenda 921 einstaklingur....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga hefur ráðið Sif Jóhannesdóttur þjóðfræðing sem nýjan forstöðumann Menningarmiðstöðvar Þingeyinga frá 15. nóvember n.k. Sif er með MA próf í hagnýtri menningarmiðlun, BA próf í þjóðfræði með guðfræði sem aukafag og með próf í kennslufræði til kennsluréttinda á grunn- og framhaldskólastigi....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Landsbankinn tekur þátt í að fjármagna nýjan og glæsilegan skemmtigarð sem verður opnaður í verslunarmiðstöðinni Smáralind í næsta mánuði. Skemmtigarðurinn verður þar sem Vetrargarðurinn var áður, í austurenda Smáralindar. Skrifað var undir fjármögnunarsamning milli Landsbankans og rekstrarfélags skemmtigarðsins á dögunum. Eyþór Guðjónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir munu sjá um rekstur Skemmtigarðsins en að fyrirtækinu standa fjórar fjölskyldur....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Veiðihúsaflóra landsins verðu að minnsta kosti einu húsi ríkari næstkomandi sumar, en veiðihús er nú að rísa á bökkum Selár í Vopnafirði. Þar er nú verið að byggja veiðihús sem að með sanni má kalla stórhýsi, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Mun húsið verða tilbúið við opnun Selár sumarið 2012....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Undanfarið hefur Snæfellsbær í samstarfi við Ferðamálastofu, Vegagerðina og VSÓ Ráðgjöf unnið að verkefni tengdu hugmyndum um skilgreiningu og útfærslu ferðamannavegar. Auk þess sem leitað var til Guðbjargar Gunnarsdóttur Þjóðgarðsvarðar. Markmið verkefnisins var að prófa vinnuferil fyrir skipulagningu ferðamannavega. Þetta er tilraunaverkefni á Snæfellsnesi og áherslan var að móta aðferð sem má beita víðar á landinu við leiðarval og skipulag á ferðamannavegum....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Boðað er til 100. fundar bæjarstjórnar Álftaness á morgun, föstudaginn 21. október, og hefst fundurinn kl. 16:30 í sal Álftanesskóla. Fundurinn verður sendur út beint á netinu og mun netslóð útsendingar birtast á heimasíðunni skömmu fyrir fund. Dagskrá fundarins er eftirfarandi....
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Þingflokkur Framsóknarflokksins fundaði í gær með Hagsmunasamtökum heimilanna. Tilgangur fundarins var að ræða skuldastöðu heimilanna og hvaða aðgerðir þarf að ráðast í til lausnar vandans. Framsókn lagði nýlega fram tillögur undir yfirskriftinni planB (www.planb.is) en þar er meðal annars lögð áhersla á almenna leiðréttingu á skuldum heimilanna og afnám verðtryggingar. Þingflokkur Framsóknarflokksins óskaði á fundinum eftir auknu samstarfi við Hagsmunasamtök heimilanna enda ljóst að tillögur flokksins rýma á margan hátt vel við málflutning samtakana,...
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík opnaði nýjan samráðsvettvang fyrir Reykvíkinga á netinu í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í gær. Vefurinn heitir Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is. Gunnlaugur Sigurðsson, sem var valinn Reykvíkingur ársins 2011, setti inn fyrstu hugmyndina á vefinn. Snýst hugmynd hans um að stofna sérstaka aðstöðu fyrir veggjakrotara þar sem þeir geta fengið útrás fyrir iðju sína undir leiðsögn....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Menningar- og listahátíðin Vökudagar verður haldin á Akranesi dagana 27. október til 6. nóvember næstkomandi og er hátíðin fjölbreytt að vanda. Þrátt fyrir að enn sé tími til að leggja hátíðinni til nýja listviðburði skartar hátíðin nú þegar mörgum spennandi viðburðum. Nefna má ljósmyndasýningu í Bókasafni Akraness, „Fuglarnir okkar“ þar sem til sýnis eru ljósmyndir sem hjónin Helga Guðmundsdóttir og Ingi Steinar Gunnlaugsson hafa tekið af fuglum á undangengnum árum...
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Milli klukkan 00:30 eftir miðnætti og 08:00 í morgun var brotist inn á bílaverkstæði Bíliðjunar við Unubakka 48 í Þorlákshöfn og þaðan stolið lykli að rauðri Mazda bifreið sem stóð fyrir utan verkstæðið. Skráninganúmer voru tekin af annari bifreið, sem var þar hjá, og þeim komið yfir á Mazda bifreiðina. Að því loknu ók þjófurinn af stað og í burtu frá verkstæðinu. Sömu nótt var brotist inn í veitingastaðinn Happy hour sem er í sömu götu nánar tiltekið Unubakka 4. Þaðan var stolið 50 tommu flatskjá og nokkur magni af áfengi....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu fyrir nokkrar tegundir bíla hjá 37 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið sl. mánudag. KvikkFix í Kópavogi var með lægsta verðið í könnuninni á þjónustu fyrir smábíla og meðalstóra fólksbíla, en allt að 3.300 kr. verðmunur var á þeirri þjónustu á milli verkstæða eða 72%....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Unnið er að því að setja upp nýjar og meira áberandi merkingar við allar innkomuleiðir á hálendi Íslands sem taka mið af ástandinu hverju sinni. Merkin er stór og áberandi, búin miklu endurskini. Á vef Vegagerðarinnar má sjá myndir af þeim öllum....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Austfirska hljómsveitin Súellen, sem var á hátindi ferils síns á árunum 1987-1994, hefur nú sett upp kabarett í Egilsbúð í Neskaupstað, heimabæ þeirra félaga. Dagskráin samanstendum af bestu lögum hljómsveitarinnar, s.s. Símon (87) Elísa (88) Kona (91) Ferð án enda (92) og þessi nótt (93) sem öll komust hátt á vinsældarlista á sinum tíma....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Á þriðja ársfjórðungi 2011 voru að meðaltali 10.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 5,9% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,6% hjá körlum og 6,2% hjá konum. Frá þriðja ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2011 fækkaði atvinnulausum um 1.000 manns. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysi mest meðal fólks á aldrinum 16–24 ára eða 9,5%. Hjá hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi 5,1% og 5% hjá 55–74 ára. Á þriðja ársfjórðungi 2011 var atvinnuleysi 7% á höfuðborgarsvæðinu en 3,7% utan þess....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort taka ætti svonefnt Guðmundar- og Geirfinnsmál aftur upp af dómstólum. Af þeim sem tóku afstöðu var mikill meirihluti eða 82,0% frekar eða mjög sammála því að Guðmundar- og Geirfinnsmálið yrði tekið upp aftur. Þar af voru 54,7% mjög sammála því og 27,3% frekar sammála því. Aftur á móti voru 18,0% frekar eða mjög ósammála því að málið væri tekið aftur upp af dómstólum og þar af voru 9,7% mjög ósammála og 8,3% frekar ósammála. ...
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Félagsfundur í Framsóknarfélagi Þingeyinga var haldinn í gær og var samþykkt ályktun þar sem segir m.a. að Þingeyingar munu áfram berjast fyrir nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum enda hafa þeir lagt mikið undir. "Það er skýr krafa Framsóknarfélags Þingeyinga að orkan verði nýtt í Þingeyjarsýslum til að endurheimta störf og efla blómlega byggð."...
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Á Skagaströnd er nú lokið endurbyggingu á grjótvörn í höfninni. Framkvæmdin gekk vel og lauk innan tímamarka. Fólst hún í endurgerð á grjótvörn Útgarðs á um 28 metra kafla og hækkun á 45 metra langri grjótvörn til móts við Miðgarð. Til viðbótar voru garðar sameinaðir vestan á Spákonufellseyju til að hamla sjógangi yfir bryggjusvæðið....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Neytendastofa kynnir nýjar kröfur um sígarettur. Vöruöryggisnefnd ESB sem Ísland er aðili að samkvæmt ákvæðum í EES-samningnum, hefur samþykkt að framvegis skuli gera þá kröfu að allir vindlingar skuli uppfylla lágmarkskröfur sem koma fram í staðlinum ÍST EN 16156:2010. Frá og með 17. nóvember verður óheimilt að selja og markaðssetja sígarettur á EES-svæðinu sem ekki eru sjálfslökkvandi....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík stendur nú yfir sýning á tillögum sem bárust í hugmyndaleit Þingvallanefndar sem efnt var til í sumar um þjóðgarðinn á Þingvöllum. Alls bárust 102 tillögur í hugmyndaleitinni frá 88 þátttakendum, en frestur til að skila inn tillögum rann út 22. ágúst. Óskað var eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla, án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Verðbólga á Íslandi var sú mesta innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) í september, sé miðað við samræmda vísitölu neysluverðs, en verðbólga var þó töluverð víða innan landa á svæðinu. Þetta má lesa úr tölum sem Hagstofan birti nýverið, en þar kemur fram að verðbólga hér á landi var 5,6% í síðasta mánuði. Var verðbólgan á þennan kvarða nánast hin sama og hún mældist með hinni séríslensku vísitölu (5,7%), en munurinn á vísitölunum tveimur liggur að mestu í því að í fyrrnefndu vísitölunni er eigin húsnæði sleppt....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Michelsen úrsmiðir hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem heitið er einni milljón fyrir upplýsingar sem gætu orðið til þess að þýfið sem stolið var úr versluninni við Laugarveg í gær komi fram.
Tilkynningin fer hér á eftir:
"Eins og kunnugt er var framið vopnað rán af þremur óþekktum mönnum í gær í verslun okkar, Michelsen úrsmiðum, að Laugavegi 15. Ræningjarnir komust undan með umtalsvert magn af þýfi; Rolex, Tudor og Michelsen úr....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Punkhátíð verður haldin í Kópavogi, laugardaginn 22. október. Tilgangurinn er að minnast þess þegar fyrstu tónar punksins hljómuðu í Kópavoginum í kringum 1980. Tónleikar fara fram í Molanum og á Spot og munu stíga á svið meðlimir hljómsveita á borð við Fræbbblanna, Q4U, Snillinganna, Vonbrigða, Tappa Tíkarrass, Taugadeildar og fleiri....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manna sem frömdu vopnað rán í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík á ellefta tímanum í gærmorgun. Vegna málsins er óskað sérstaklega eftir vitnum að grunsamlegum mannaferðum á Vegamótastíg frá kl. 10 - 10:30 í gær. Þá eru þeir sem þekkja manninn á meðfylgjandi myndum, eða vita hvar hann er að finna,...
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hélt í gær til Sichuan héraðs í Kína. Þar verður Steingrímur viðstaddur Western China International Fair sem er næststærsta viðskipta- og kaupstefna sem haldin er þar í landi. Kínversk stjórnvöld standa að kaupstefnunni ásamt yfirvöldum í 12 héruðum í Vestur Kína....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Flugmenn hjá Landhelgisgæslu og samninganefnd ríkisins undirrituðu í gærkvöld nýjan kjarasamning. Samningurinn gildir til janúarloka 2014. Samninganefndir FÍA hafa haft nóg fyrir stafni þetta árið og er búið að ganga frá samningum við öll aðildarfélög nema við Þyrluþjónustuna....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Árni Johnsen er fyrsti fluttningsmaður að þingsályktunartillögu þar sem skorað er á innanríkisráðherra að hefja undirbúning og kostnaðaráætlun að dýpkun og breikkun innsiglingarinnar í Grindavíkurhöfn og aðstöðu fyrir stórskipabryggju við Stórubót eða innan hafnar. Þess er vænst að Siglingastofnun geti á skömmum tíma skilað hugmyndum að möguleikum bóta og uppbyggingar í Grindavík varðandi fiskiskipahöfn og aðstöðu flutningaskipa en mikilvægt er að hafa sem raunhæfasta kostnaðaráætlun til þess að vinna með að framgangi málsins....
Tíminn | 18.10.2011 |
Ritstjórn
Sigurjón Pálsson er nýr framkvæmdastjóri hjá Arion banka. Hann tekur við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs af Helga Bjarnasyni sem færir sig um set og tekur nú við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs. Helgi tekur við þeirri stöðu af Hermanni Björnssyni, sem nýverið var ráðinn forstjóri Sjóvár. Undir viðskiptabankasvið falla útibú bankans sem eru 24 talsins og stoðeiningar. Á sviðinu starfa um 420 starfsmenn....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Kvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun gamla Miðbæjarskólann sem ríkið keypti af borginni á liðnu ári. Húsið var tekið til gagngerrar breytingar í samstarfi við húsafriðunarnefnd og tekið mið af kröfum til brunavarna, loftræstingar og annarra öryggisviðmiða. Framkvæmdir voru voru fjármagnaðar af verkkaupum, sem eru mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg. Heildarkostnaður nam 212 milljónum króna....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Landsvirkjun hefur um árabil unnið að rannsóknum á lífríki Þjórsár en ítarlegar rannsóknir hafa átt sér stað á fiskistofnum í ánni allt frá árinu 1973. Í upphafi stóð Veiðimálastofnun fyrir rannsóknunum en í seinni tíð hafa rannsóknirnar að mestu verið unnar á vegum Landsvirkjunar með Veiðmálastofnun sem helsta ráðgjafa. ...
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna fyrirhugaðs samruna Íslandsbanka og Byrs hf. Áður hefur Fjármálaeftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að Íslandsbanki er hæfur til að fara með virkan eignarhlut sem nemur svo stórum hluta að BYR hf. verði talið dótturfyrirtæki bankans. Hin fyrirhugaða sameining er enn til meðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu og ESA, Eftirlitsstofnun EFTA....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Aðfararnótt 15. október s.l. voru tvær bifreiðar teknar traustataki á Siglufirði. Báðar bifreiðarnar voru ólæstar með lyklunum í. Annarri var ekið út af rétt norðan Siglufjarðar en hinni út af veginum skammt frá bænum Reykjarhóli í Fljótunum. Báðar bifreiðarnar eru mikið skemmdar ef ekki ónýtar. Í ljós kom að þarna höfðu tveir menn verið að verki á þrítugs- og fertugsaldri og voru þeir handteknir í Fljótunum eftir að vegfarendur höfðu komið að þeim...
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Alls voru fryst um 20.400 tonn af síldar- og makrílafurðum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði á vertíðinni en vinnslu lauk nú um helgina. Þetta er tæplega 27% aukning frá vertíðinni í fyrra og verður það að teljast góður árangur, ekki síst í ljósi þess að síldar- og makrílafli skipa félagsins dróst saman um tæplega 15% milli ára. Öllum aflanum var að þessu sinni landað til vinnslu....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar á Húsavík, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, tók fyrir erindi Sjómannasambands Íslands í síðustu viku. Sambandið óskar eftir samningsumboði frá aðildarfélögum sambandsins til gerðar kjarasamnings fyrir smábátasjómenn....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. í síðustu viku var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 ásamt áætlun um rekstur og fjárfestingar fyrir tímabilið 2013 - 2017. Áætlunin fer í framhaldi fyrir borgarstjórn Reykjavíkur til umfjöllunar í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins. Tekjur Faxaflóahafna sf. fyrir árið 2012 eru áætlaðar verða alls tæpir 2,5 milljarðar króna, en rekstrargjöld tæpir 2,2 milljarðar kr...
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn fimmtudag var Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla. Olweusardagur þýðir að eingöngu var verið að fjalla um einelti í skólanum þann dag. Settar voru upp mismunandi smiðjur sem nemendur skráðu sig í og unnu með ýmis verkefni. Í boði voru: listasmiðja, viðtals-og bæklingasmiðja, tónlistarsmiðja, myndbandssmiðja og skiltasmiðja....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Framsóknarflokkurinn opnar í dag nýja heimasíðu www.planb.is og er henni ætlað að kynna heildarstefnu flokksins í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Þetta er einnig tilraun til að bæta samband stjórnmálanna og almennings og stuðla að málefnalegri umræðu. Á síðunni má finna heildarpakka flokksins, tillögur í sjávarútvegsmálum og öðru. Þar er hægt að sjá hvað Framsókn telur að þurfi að gera til að snúa þróuninni við í samfélaginu....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Laugardaginn 3. desember verða stofnuð samtök áhugafólks um "Hreindýr á Vestfirði". Tilgangur samtakanna er að beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á heilbrigði hreindýranna, það er að segja hvort hætta sé á að þau geti smitað sauðfé af búfjársjúkdómum. Einnig að gerð verði rannsókn á gróðurfari á Vestfjörðum í þeim tilgangi að athuga hvort nægjanlegt æti sé fyrir dýrin....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra um afbrotatíðni árið 2010, greint eftir embættum, sýnir að meirihluti lögbrota er framinn á höfuðborgarsvæðinu eða 55%. Hegningarlagabrot voru flest skráð á höfuðborgarsvæðinu, 10.868, 936 á Suðurnesjum, 799 á Selfossi og 685 á Akureyri. Meirihluti umferðarlagabrota var áhöfuðborgarsvæðinu eða 50%. Tæp 20% þeirra voru á Selfossi og 11% í umdæmi Borgarnes, að því er fram kemur í skýrslunni....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
"Stjórn sambands ungra framsóknarmanna lýsir yfir áhyggjum af neikvæðri einstefnu í ríkisfjármálum. Það er grafalvarlegt að tekjur ríkissjóðs hafi dregist saman um 13% á raunverðlagi í fyrra. Um 40% af fyrirtækjum landsins eru í vanskilum með skuldir sínar," segir í ályktun frá stjórn SUF....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Helga Guðrún Guðjónsdóttir var á þingi UMFÍ, sem haldið var í menningarhúsinu Hofi á Akureyri um helgina, einróma endurkjörin formaður Ungmennafélags Íslands til næstu tveggja ára. Helga hefur gegnt formennsku í UMFÍ síðan 2007, en hún var þá fyrsta konan sem kjörin var formaður samtakanna. Hún sagðist hlakka til næstu tveggja ára en það eru margar tillögur sem eru samþykktar á þinginu sem marka starfið næstu tvö árin....
Tíminn | 16.10.2011 |
Ritstjórn
Sýningin Eyjafjarðarfossar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginn 22. október. Á sýningunni eru ljósmyndir af 42 fossum í eyfirskum vatnsföllum eftir séra Svavar Alfreð Jónsson prest við Akureyrarkirkju. Sýningin stendur yfir til 1. desember. Ljósmyndirnar á sýningunni tók Svavar á árunum 2009 til 2011. Aðkoma að sumum fossunum var erfið og mátti Svavar þakka fyrir að sleppa heilu og höldnu....
Tíminn | 16.10.2011 |
Ritstjórn
Í gær luku skíðakrakkar í Ólafsfirði sólarhrings maraþoni, en þetta gerðu þeir til að safna fyrir æfingaferð til Noregs. Þau hjóluðu, hlupu og renndu sér á hjólaskíðum, alls 715,8 kílómetra á 24 klukkustundum. Þau söfnuðu samtals 263 þúsund krónum. Krakkarnir vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem studdu þau í verkefninu og síðast en alls ekki síst bæjarbúum sem tóku frábærlega á móti þeim í áheitasöfnuninni....
Tíminn | 16.10.2011 |
Ritstjórn
Heildarumferðin um Múlagöng hefur aukist um 24 prósent í ár frá því fyrir ári síðan miðað við teljara skammt sunnan ganganna. Meðalumferðin það sem af er ári er um 564 bílar á sólarhring. Meðalumferð ársins stefnir í 520 - 560 bíla á sólarhring en umferðin var 453 bílar á sólarhring árið 2010, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar....
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Ragnar Frank Kristjánsson, formaður umhverfis- og skipulagsnefndar Borgarbyggðar, afhenti í dag umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar. Athöfnin fór fram á sviðinu í Skallagrímsgarði í Borgarnesi á Sauðamessu. Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar eru veittar árlega. Að þessu sinni bárust í allt 13 tilnefningar....
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Sparisjóður Vestmannaeyja gaf Hveragerðisbæ hurðir á dögunum, skornar út í líki Adams og Evu. Þetta eru hurðirnar sem voru við innganginn í Eden í Hveragerði, sem brann sl. sumar. Framhlið umræddra hurða voru það eina sem ekki fuðraði upp með byggingunni. Erlendur F. Magnússon smiðurinn og listamaðurinn á bakvið hurðirnar hefur sóst eftir að fá þær til viðgerðar án árangurs....
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Snarpur jarðskjálfti fannst greinilega á höfuðborgarsvæðinu klukkan 9:47 í morgun og var hann upp á tæplega 4,0 stig. Töluvert hefur verið um skjálfta í morgun og eiga þeir upptök sín á Hellisheiði, um 3 km norður af Hellisheiðarvirkjun. Allt lék á reiðiskjálfi í Hveragerði og fundust skjálftarnnir einnig á Selfossi....
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Sverrir Kristjánsson, löggiltur fasteignasali, hefur sett upp Fasteignasölu Stykkishólms og er hún til húsa að Ægisgötu 11 í Stykkishólmi.
Sverrir hefur starfað við fasteignasölu frá 1971 en þá flutti hann frá Stykkishólmi til Reykjavíkur. Fyrstu árin starfaði hann hjá Fasteignamiðstöðinni undir stjórn Sigurðar Sigfússonar. 1980 stofnaði hann Fasteignamiðlun og bætti við annari starfstöð Fasteignamiðlun Grafarvogs 2003. ...
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum skrifuðu hjónin Jón Kristinn Ásmundsson og Katrín Hjartardóttir undir 12 mánaða samning um rekstur Hótels Hellissands. Stefna þau að því að setjast þar að til frambúðar en Katrín er fædd og uppalin á Hellisandi. Þau hafa síðustu þrjú ár rekið veiðihúsið Grímsá í Borgarfirði og segjast taka þá reynslu með sér á Hellisand....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Fjórir togarar lönduðu afla sínum í Hafnarfjarðarhöfn í þessari viku. Þetta eru togararnir Þór HF 4, Baldvin Njálsson GK 400 og erlendu togararnir Eldborg og Kiel. Afli togaranna er blandaður, enda koma þeir hver af sínum miðum. Samtals lönduðu togararnir um 1.400 tonnum af fiski. Á þessum árstíma er óvenjulegt að svo mikill afli berist til Hafnarfjarðar á einni viku....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Endurnýjun byggðar og bygginga á horni Austurstrætis og Lækjargötu er vel heppnuð og hefur nú vakið athygli dómnefndar Philippe Rotthier stofnunarinnar árið 2011 fyrir bestu endurnýjun í borgum, bæjum eða byggingum í Evrópu sl. fimm ár. Arkitektastofurnar ARGOS, Gullinsnið og Studio Granda fá sérstaka viðurkenningu dómnefndarinnar fyrir verk sitt við hönnun endurbyggingar í kjölfar bruna. ...
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Næsta sunnudag, 16. október, kl. 14:00 verður haldið upp á aldarafmæli Reyðarfjarðarkirkju. Biskup Íslands prédikar og sóknarprestur ásamt prestum úr prófastsdæmum á Austurlandi annast þjónustu. Kór Reyðarfjarðarkirkju syngur og dagskrá verður að messu lokinni og boðið upp á kaffiveitingar. Reyðarfjarðarkirkja er elsta steinkirkja á Austurlandi og tekur 100 manns í sæti. Rögnvaldur Ólafsson var arkitekt hennar. ...
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Út er komin bókin Hinn launhelgi glæpur. Henni er ætlað að auka umræðu um kynferðisbrot gegn börnum og skilning á orsökum þeirra og afleiðingum. Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá samtökunum rituðu kafla í bókinn um Netið og vernd barna gegn kynferðisofbeldi....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Á morgun, laugardaginn 15. október, verður hin árlega fræðsluganga "Urriðadans" á vegum Þjóðgarðsins á Þingvöllum og Laxfiska. Gangan verður að vanda í umsjón Jóhannesar Sturlaugs sonar hjá Laxfiskum og hefst klukkan14:00 á bílastæðinu þar sem Valhöll stóð. Gangan spannar stutta og þægilega gönguleið upp með hrygningarsvæði urriðans....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Mikill eðjuframburður var í ám undir Eyjafjöllum síðasta vetur, en dró verulega úr honum í sumar. Nú fer eðjan af stað í haustrigningunum og Vegagerðin hefur verið að moka af krafti upp úr Svaðbælisá til að verja brúna á hringveginum. Holtsá hefur brotist úr farvegi sínum og hefur Landgræðslan aftur hafið uppmokstur úr henni neðan hringvegar....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Í gær var undirritaður samningur við Hafrannsóknastofnun, Veðurstofu Íslands og Veiðimálastofnun vegna vinnu við innleiðingu vatnatilskipunar ESB. Samningarnir snúast um nokkur fyrstu verkefnin á innleiðingatímabili stjórnar vatnamála hér á landi. Á næstu vikum verða síðan útbúnir samningar við þessar og fleiri stofnanir um verkefni sem vinna þarf á næsta ári....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Rúmur helmingur (55%) aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins áætla að ekki verði breytingar á starfsmannafjölda fyrirtækja þeirra á þessu ári. Tæpur fjórðungur (24%) áætla að starfsmönnum fyrirtækjanna fækki og rúmur fimmtungur (21%) að þeim fjölgi. Þegar þessar niðurstöður eru vegnar saman eftir stærð fyrirtækja fæst að heildarfjöldi starfa á almennum vinnumarkaði verði óbreyttur milli áranna 2010 og 2011. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á stöðu og horfum í atvinnumálum meðal aðildarfyrirtækja SA....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Föstudagskvöldið 18. nóvember leikur Todmobile í fyrsta sinn í Hörpu, nánar tiltekið í hinni glæsilegu Eldborg en á þessum hljómleikum kemur Todmobile fram í öllu sínu veldi og meira til því með í för verða bakraddasöngvarar og tveir trommuleikarar auk strengjasveitar og kórs. Hljómsveitin mun spila öll sín þekktustu lög ásamt nokkrum nýjum en ný plata sveitarinnar, sú sjöunda á 21 árs ferli lítur dagsins ljós í nóvember....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna, SUF, samþykkti eftirfarandi ályktun á nýliðnum fundi sínum. "Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna, SUF, áréttar fyrri ályktanir um mikilvægi þess að lækka skatt á smokkum úr 25,5% í 7%. Það er ein þeirra leiða sem eru færar til að gera smokka ódýrari, eins og sóttvarnaráð hefur kallað eftir. Á síðasta ári greindust 24 einstaklingar hér á landi með HIV, fleiri en nokkru sinni áður....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Skráð atvinnuleysi í september 2011 var 6,6% að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar. Að meðaltali voru 10.759 atvinnulausir í september og fækkaði atvinnulausum um 535 að meðaltali frá ágúst eða um 0,1 prósentustig. Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 249 að meðaltali og konum um 286. Atvinnulausum fækkaði um 379 á höfuðborgarsvæðinu og um 156 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 7,6% á höfuðborgarsvæðinu en 4,9% á landsbyggðinni. Mest var það á Suðurnesjum 10,7%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,1%. Atvinnuleysið var 6,4% meðal karla og 6,8% meðal kvenna....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2011 liggur nú fyrir. Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 54,4 milljarðar króna, en var neikvætt um 65,2 ma.kr. á sama tímabili 2010. Tekjur drógust saman um 10,2 ma.kr. en á sama tíma drógust gjöldin saman um 4,2 ma.kr. milli ára. Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 59,4 ma.kr....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Tónleikar sem nefnast "Fjölskylduferð á skódanum" til heiðurs Ingimari Eydal, sem hefði orðið 75 ára þann 20. október næstkomandi. Tónleikarnir verða haldnir í Hofi á Akureyri, laugardaginn 22. október kl. 20 (uppselt) og kl. 23 og síðan sunnudaginn 23. október kl. 16. Þessi ferð í Skódanum hans Ingimars verður full af elskulegheitum og óvæntum uppákomum! ...
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Þing Starfsgreinasambands Íslands hófst á Hótel Loftleiðum í dag og lýkur á morgun. Á þinginu sitja 137 fulltrúar frá 18 aðildarfélögum. Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ, hélt í dag erindi um stöðu kjara- og atvinnumála. Í máli hans kom m.a. fram að verstu afleiðingar hrunsins séu afstaðnar og hægur bati framundan. Að öllu óbreyttu séum við Íslendingar hins vegar að festast í doða stöðnunar. Hann sagði ennfremur forsendur kjarasamninga hanga á bláþræði....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Árlega valda álftir og gæsir gríðarlegu tjóni á ræktarlöndum bænda. Tjónið er mjög greinanlegt þegar þessir fuglar leggjast á kornakra en er ekki síður tilfinnanlegt að vori þegar fuglarnir bíta nýgræðing í túnum. Erfiðlega hefur þó gengið að afla gagna um hversu mikið tjónið er, að því er fram kemur í Bændablaðinu sem kom út í dag....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2011 var sett á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Í opnunarávarpi sínu varð Halldóri Halldórssyni, formanni sambandsins, tíðrætt um samskipti ríkis og sveitarfélaga. Hann gagnrýndi þau orð fjármálaráðherra að ríkið eitt hafi þurft að taka á sig þungar byrðar vegna efnahagshrunsins og benti á að það hefðu sveitarfélögin einnig gert....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Verðbólgan hefur verið vaxandi á þessu ári og mælist hún nú 5,7%. Ástæður vaxandi verðbólgu hafa bæði verið af innlendum og erlendum toga. Greiningardeild Íslandsbanka reiknar með því að verðbólgukúfurinn hafi nú náð hámarki. Með lækkun erlends hrávöruverðs, hægari hagvexti á heimsvísu, hægari launahækkunum og áframhaldandi slaka í hagkerfinu muni verðbólgan hjaðna nokkuð hratt á næsta ári. Samhliða er reiknað með að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum sínum óbreyttum um sinn....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Jökull, fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar á Akureyri, spilaði stórt hlutverk við fíkniefnaleit lögreglunnar í bænum í gær og á mánudaginn og fann m.a. efni sem höfðu verið vandlega falin. Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð manns á fertugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli. Hald var lagt á um 30 grömm af amfetamíni og nokkur grömm af kannabisefnum. Einnig voru haldlögð um 40 grömm af muldum e-töflum og nokkurt magn lyfseðilsskyldra lyfja sem ekki voru stíluð á húsráðanda...
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Um síðustu helgi var haldin flugslysaæfing á flugvellinum á Gjögri þar sem æfð voru viðbrögð við flugslysi við flugvöllinn. Þegar slíkar æfingar eru haldnar er verið að láta reyna á samvinnu allra viðbragðseininga á svæðinu. Æfingin heppnaðist vel í alla staði. Aðstæður á Gjögri eru þannig að þar eru ekki til staðar nema hluti hinna hefðbundnu viðbragðsaðila eins og lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir, Rauði krossinn og heilbrigðisstarfsmenn. Verði stóráfall á Gjögri er gert ráð fyrir að aðstoð berist frá nærliggjandi svæðum, en þangað til sú aðstoð berst reynir á heimamenn....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkir að heimila Skeljungi hf. að annast gerð deiliskipulags á lóð sem félagið hefur gert leigusamning um við eiganda jarðarinnar Melstaðar í Miðfirði. Skeljungur áformar að reisa þar 330 fermetra þjónustumiðstöð með eldsneytisafgreiðslu, veitingasölu og lítilli verslun. Áætlað er að um 10-15 starfsmenn muni starfa í þjónustumiðstöðinni allt árið um kring en að á sumrin muni starfsfólk verða allt að 20 talsins...
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Undanfarið hefur hópur áhugafólks um náttúruvernd undirbúið stofnun náttúruverndarsamtaka á Reykjanesskaga. Stofnfundur samtakanna verður haldinn þann 18. október næstkomandi og er markmiðið að sameina náttúruverndarfólk á Suðvesturlandi í eina öfluga breiðfylkingu sem muni láta til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum í landnámi Ingólfs....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Bændur á Lambavatni á Rauðasandi, utarlega við norðanverðan Breiðafjörð, vinna þessa dagana að kornslætti og þreskingu og flutningi í geymslur fyrir veturinn. Um er að ræða bæði sex raða og tveggja raða bygg sem notað verður sem kúafóður. Eyjólfur Tryggvason frá Lambavatni segir að sýru verði að blanda saman við kornið áður en það er sekkjað....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Steingrímur J . Sigfússon, fjármálaráðherra, var gestur í fréttaþættinum Hardtalk í breska ríkisútvarpinu BBC í dag. Hardtalk er eitt af helstu flaggskipum breska ríkisútvarpsins með gríðarlega gott orðspor fyrir vandaða dagskrárgerð og viðtöl við helstu leiðtoga og áhrifafólk heims. Á meðal gesta sem komið hafa nýlega fram í þættinum eru Christine Lagarde yfirmaður AGS, Felipe Calderon forseti Mexikó, Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft og George Papandreou forsætisráðherra Grikklands....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Laust fyrir klukkan þrjú í dag varð alvarlegt vinnuslys á höfninni á Djúpavogi þegar verið var að losa salt úr flutningaskipi. Krani úr landi, sem notaður var við verkið, brotnaði og féll niður á mann sem þarna var við vinnu sína. Maðurinn, sem var rúmlega fertugur, lést við slysið. ...
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Söfnun undirskrifta stendur nú yfir á netinu á vefsíðunni www.skynsemi.is þar sem skorað er á Alþingi að leggja til hliðar aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Meginástæðurnar eru óvissa um þróun Evrópusambandsins, myntbandalagsins og afgerandi andstaða landsmanna við aðild. Nú hafa rúmlega sjö þúsund manns (7.100) skrifað undir áskorunina....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir harðlega ákvörðun um lokun St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og krefst þess að hún verði endurskoðuð og sameining við LSH gangi til baka. Ákvörðunin gengur þvert á þá sátt sem lofað var og þau fyrirheit sem gefin voru, um að St. Jósefsspítali gegndi áfram mikilvægu hlutverki í nærþjónustu við íbúa í Hafnarfirði, að því er fram kemur á vef bæjarins....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Á morgun, fimmtudaginn 13. október, er Olweusardagur í Seyðisfjarðarskóla. Olweusardagur þýðir að eingöngu er verið að fjalla um einelti í skólanum þann dag, í alls konar hópum og smiðjum. Foreldrar, forráðamenn og aðrir bæjarbúar eru velkomnir í heimsókn í skólann frá klukkan 8:00-11:50 til að fylgjast með nemendum. Litur dagsins er grænn, því græni kallinn er í góða liðinu og er fólk því hvatt til þess að klæðast grænu á morgun....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Dagana 13. – 15. október verður opið hús í Höfða í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronald Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjevs, leiðtoga Sovétríkjanna, í húsinu árið 1986. Leiðtogafundurinn beindi á sínum tíma athygli umheimsins að Íslandi. Að mati margra sérfræðinga var á fundinum rudd braut fyrir nýja sýn í alþjóðamálum og tekið fyrsta skrefið að endalokum kalda stríðsins....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Í Borgarnesi eru lausar til umsóknar 18 iðnaðar- og athafnalóðir við Sólbakka og Vallarás, sem er norðan við bæjarkjaranann. Stærðir lóðanna eru á bilinu frá 3.500 til 11.800 m2. Nánari upplýsingar um lóðirnar má fá hjá Umhverfis- og skipulagssviði Borgarbyggðar, að því er fram kemur á vef Borgarbyggðar....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Sunnudaginn 16. október kl. 16 heldur Tríólógía tónleika í Selinu á Stokkalæk. Tríóið skipa þær Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sólveig Samúelsdóttir mezzósópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Tríólógía mun flytja úrval dúetta eftir tónskáldin, þar á meðal Mädchenlieder eftir Schumann sem ekki er oft flutt hér á landi. Tónleikarnir eru svonefndir landsbyggðartónleikar sem Félag íslenskra tónlistarmanna gengst fyrir með tilstyrk mennta- og menningarmálaráðueytisins. Veitingar verða á tónleikunum og eru miðapantanir í síma 4875512 og 8645870....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hélt erindi á Fjármálaþingi Íslandsbanka í dag þar yfir þar sem hún fór yfir rekstur bankans, lykilverkefni hans, fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja og fjármögnun atvinnulífsins. Í máli Birnu kom fram að fjárhagsleg endurskipulagning sé langt komin og gert sé ráð fyrir að flestum málum verði lokið fyrir árslok. Nú þegar hafi um 1500 fyrirtæki fengið úrlausn sinna mála hjá Íslandsbanka. ...
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Í Kirkjuhvammi á Rauðasandi er verið að byggja íbúðarhús, ætlað fyrir starfsfólk Franska kaffihússins á staðnum. Þetta mun vera eina nýja íbúðarhúsið sem byggt er á suðursvæði Vestfjarða á þessu ári en verið er að gera upp nokkur gömul og merkileg hús. Að sögn Einars Jónssonar, staðarhaldara í Kirkjuhvammi, er húsið í eigu Skipholts ehf. ...
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Nýverið sótti pólskur minkasérfræðingur Náttúrustofu Vesturlands heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar viðTækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt. Þekkinguna sem Jakub aflaði mun hann nýta til að stuðla að bættum aðgerðum gegn minkum í Póllandi....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Leiksýning Leikfélags Hörgdæla, Með fullri reisn, sem sló öll aðsóknarmet í vor, verður tekin til sýninga á ný nú í haust. Áætlaðar eru tíu sýningar og er nú þegar orðið uppselt á nokkrar þeirra. Sýningar fara fram frá 20. október til 5. nóvember og er hægt að panta miða í s. 821 9659.
Af þessu tilefni orti Arnsteinn Stefánsson:...
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Gengi krónunnar hefur styrkst nær stöðugt frá því um miðjan júlí síðastliðinn. Þannig stendur gengisvísitala krónunnar nú í rúmum 212 stigum en um miðjan júlí síðastliðinn var hún komin yfir 220 stig. Nemur styrkingin hátt í 4% á þriggja mánaða tímabili og hefur krónan, þá m.v. gengisvísitöluna, ekki verið sterkari síðan í byrjun febrúar síðastliðins....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Banaslys varð áttunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell. Vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðri átt skullu saman. Ökumaður fólksbifreiðarinnar, stúlka á nítjánda ári lést. Farþegi í fólksbifreiðinni einnig ung stúlka á nítjánda ári, slasaðist og var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður. Að svo stöddu er ekki hægt að upplýsa um nafn hinnar látnu. ...
Tíminn | 28.09.2011 |
Ritstjórn
Stjórn UMFÍ hefur tekið ákvörðun um næsta mótsstað fyrir Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri og mun það fara fram í Mosfellsbæ sumarið 2012. Framkvæmd mótsins verður í höndum UMFÍ og UMSK. UÍA, í samstarfi við Fjarðabyggð, sótti um mótið og blandaði sér þar í baráttu fjögurra annarra héraðssambanda en USAH, UMSB og UMSE sóttust einnig eftir að fá að halda mótið á næsta ári....
Tíminn | 28.09.2011 |
Ritstjórn
Í tilefni 30 ára afmælisviku IKEA á Íslandi dagana 15. - 21. september sl., lét verslunin 30 krónur af hverri greiðslufærslu í verslun og á veitingastað renna til innlendra verkefna Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Einnig seldu þrjú pör, sem kepptu í leiknum Helgarferð til IKEA, vinabönd í eina klukkustund og rann allur ágóði af sölunni til samtakanna. Alls söfnuðust 758.801 krónur....
Tíminn | 28.09.2011 |
Ritstjórn
Allir bæjarstjórar á Suðurnesjum hafa skrifað sameiginlega grein til að vekja athygli á nýju verkefni sem er hluti af uppbyggingarstarfsemi á svæðinu. Neikvæðar fréttir frá svæðinu hafa undanfarið verið áberandi í fjölmiðlum og er þetta hluti af því starfi að byggja upp jákvæðara viðhorf gagnavart atvinnustarfsemi á svæðinu....
Tíminn | 28.09.2011 |
Ritstjórn
Félagsfundur í Framsóknarfélagi Reykjanesbæjar sem haldinn var á dögunum ályktar að það sé samfélaginu, íbúum og fyrirtækjum á Suðurnesjum til hagsbóta að bæjarfélögin fimm á Suðurnesjum sameinist í eitt sveitarfélag. Með því náist fram sparnaður, hagræðing og meiri skilvirkni í rekstri. ...
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Í dag var undirritaður nýr kjarasamningur við Bændasamtök Íslands fyrir starfsfólk sem vinnur almenn landbúnaðarstörf. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar sem hafa verið gerðir við Samtök Atvinnulífsins. Samningurinn er afturvirkur og gildir frá 1. júní 2011. Samningurinn hefur verið samþykktur í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins....
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði hvort fólk hefði kynnt sér frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár. Í könnuninni kom fram að rúmlega helmingur þeirra sem tók afstöðu hafði ekkert kynnt sér frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár eða 53,1%. Einungis 2,2% þeirra sem tóku afstöðu sögðust hafa kynnt sér frumvarp Stjórnlagarlagaráðs mjög vel og 11,3% sögðust hafa kynnt sér það nokkuð vel. ...
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Skráð atvinnuleysi í ágúst 2011 var 6,7% en að meðaltali voru 11.294 manns atvinnulausir í ágúst og fækkaði atvinnulausum um 129 að meðaltali frá júlí.
Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 138 að meðaltali en konum fjölgaði hins vegar um 9. Atvinnulausum fækkaði um 37 á höfuðborgarsvæðinu og um 92 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var7,7% á höfuðborgarsvæðinu en 5% á landsbyggðinni. ...
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Dagana 16. til 22 september nk. er haldin hin árlega samgönguvika þar sem mikilvægi vistbærra samgangna er í brennidepli. Samgönguvikan hefur verið skipulögð af sveitarfélögum fyrir íbúa sveitarfélaga. Einn af fyrstu viðburðum samgönguvikunnar er ráðstefnan „Hjólum til framtíðar“ sem haldin verður í Iðnó nk. föstudag....
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Stefán Guðmundsson, stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki og fyrrverandi alþingismaður, varð bráðkvaddur í fyrradag, 79 ára gamall. Stefán fæddist á Sauðárkróki 24. maí 1932. Foreldrar hans voru Guðmundur Sveinsson skrifstofustjóri og Dýrleif Árnadóttir húsmóðir. Hann var alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í Norðurlandskjördæmi vestra 1979 til 1999....
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera árið 2010. Af helstu niðurstöðum má nefna að tekjuhalli hins opinbera var 155 milljarðar króna á síðasta ári eða rúmlega 10% af landsframleiðslu, sem er svipaður halli og árið 2009. Þessi óhagstæða niðurstaða skýrist fyrst og fremst af miklum samdrætti í tekjum hins opinbera vegna 11% samdráttar í landsframleiðslu árin 2009-2010 á sama tíma og útgjöldin jukust verulega vegna mikillar skuldsetningar og aukins atvinnuleysis....
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Starfsmenn í skólum á háskólastigi voru 3.042 í 2.255 stöðugildum skólaárið 2010-2011. Í þessum tölum eru allir starfsmenn taldir, jafnt þeir sem sinna kennslu sem og öðrum störfum. Starfsmenn sem sinntu kennslu voru 2.128 í 1.355 stöðugildum. Starfsmönnum háskóla fjölgar um 119 milli ára (2,9%) en þrátt fyrir það fækkar stöðugildum starfsmanna um 30 (1,3%). Fleiri starfsmenn koma að kennslu nú en fyrir ári, eða 178 (8,9% fjölgun), á meðan stöðugildum starfsmanna við kennslu fjölgar einungis um 14 (1,1%)....
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, skrifar grein inn á heimasíðu sambandsins þar sem hann veltir fyrir sér hvað frumvarp til stjórnskipunarlaga geti þýtt fyrir sambandið. Hann segir m.a. að ef frumvarpið verði að lögum muni sveitarfélögin fá umtalsvert meira vægi og sterkari stöðu gagnvart ríkisstjórn og Alþingi. ...
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Íbúar Hafnar í Hornafirði ráku upp stór augu á fimmtudagsmorgunn í síðustu viku, þegar uppgötvaðist að dyramottur höfðu um nóttina verið lagðar við útidyr hvers íbúðarhúss í bænum. Motturnar voru með áletruninni "Velkomin" en voru ómerktar að öðru leyti. Hverri mottu fylgdi hins vegar bréf frá símafyrirtækinu Vodafone, sem vildi með framtakinu vekja athygli á aukinni þjónustu við bæjarbúa....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, hættir með liðið eftir keppnistímabilið í knattspyrnu í haust. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV-íþróttafélagi. Eyjamenn hafa þegar fundið eftirmann Heimis, en það er fyrrum þjálfari ÍBV og núverandi þjálfari 1. deildarliðs Hauka, Magnús Gylfason. Magnús hefur ávallt haldið sterkum tengslum við ÍBV eftir að hann þjálfaði Eyjaliðið á árunum 2003-2004 en síðara árið endaði ÍBV í 2. sæti deildarinnar....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Í gær var réttað í Húsavíkurrétt í fallegu haustveðri og töldu fjáreigendur ástæðu til að flagga í heila enda mikil hátíðarstund á hverju hausti þegar húsvískir frístundabændur ganga á fjöll og smala fé sínu til byggða. Að sögn fjáreigenda gengu göngurnar nokkuð vel en töluverður snjór var upp við Höskuldsvatn og niður að Krubb sem gerði þeim erfitt fyrir. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri á Húsavík og frístundabóndi, var að sjálfsögðu einn þeirra sem var í réttunum....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Innanríkisráðherra og vegamálastjóri opnuðu á föstudag hinn nýja Bræðratunguveg með brú yfir Hvítá. Með veginum tengjast Bláskógabyggð og Hrunamannahreppur á nýjan hátt og leiðin milli Reykholts og Flúða styttist um 20 km. Vegurinn er 8 m breiður. Brúin Hvítá er 270 m að lengd með tveimur akbrautum auk þess sem 2 m breið göngu/reiðleið er á brúnni. Áætlaður heildarkostnaður vegna verksins er 1.140 m.kr....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Fuglavernd stendur nú fyrir annarri ljósmyndasýningu sinni. Að þessu sinni er sýningin tileinkuð velunnara félagsins, Hjálmari R. Bárðarsyni, sem lést í mars 2009. Hjálmar var brautryðjandi í fuglaljósmyndun og gaf út fyrstu stóru ljósmyndabókina um íslenska fugla árið 1986. Sýningin opnaði sl. föstudag og stendur til 29. september í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin er opin virka daga frá 8-19 en um helgar frá 12-18. ...
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Á næstunni verður lokið við að setja bundið slitlag á hina nýju þjóðleið frá hringveginum norður til Vopnafjarðar. Nýi vegurinn liggur um Vesturárdal og er hann mikil samgöngubót fyrir Vopnfirðinga og nærsveitamenn. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda, fagnar þessum áfanga og segir nýja veginn vera sannkallaða byltingu í samgöngumálum sveitarfélagsins....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Ræðarinn og ljósmyndarinn, Fiann Paul, er með sýningu utan á Bátahúsinu. Sýningin samanstendur af þrjátíu og tveimur ljósmyndum sem allar eru teknar á Grænlandi. Það óvenjulega við sýninguna er að hún er hönnuð til að vera utandyra og þola öll veður. Siglfirðingar eru hvattir til að leggja leið sína á staðinn og fá sér göngutúr kringum Bátahúsið og skoða þessar frábæru myndir af framandi slóðum....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Frá stofnun hefur Ergo boðið upp á græn bílalán og styður þannig við fjölgun umhverfishæfari bíla á Íslandi. Græn bílalán standa til boða við kaup á öllum bifreiðum, nýjum sem gömlum, í útblástursflokkum A, B og C. Engin lántökugjöld eru rukkuð vegna grænna bílalána út árið 2011. Grænu lánin hafa fengið frábærar viðtökur og eru nú um 50% af öllum nýjum bílalánum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Borgarísjaki sást 25 sjómílur norðvestur af Kögri í vikunni. Landhelgisgæslunni barst tilkynning um borgarískjakann frá fiskiskipi sem var statt um 16.3 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Var ískjakinn um 2-3 sjómílur norðan við skipið og virtist hann vera mjög stór. Þar sem skipið var ekki með radar var ekki hægt að mæla lengdina á honum....
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Bieber-skrúðganga fór fram í dag og var gengið frá Hlemmi í Reykjavík og niður á Ingólfstorg. Gangan varð fjölmenn, aðallega unglingsstúlkur, en fór fram án teljandi vandræða og án aðstoðar frá lögreglu. Mikil gleði og mikið gaman. Þetta var eins konar kröfuganga þar sem baráttumál hópsins er að fá kanadíska popptónlistarmanninn Justin Bieber til landsins....
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Málverkið Ísland var afhjúpað í sundlaug Garðabæjar í vikunni. Verkið var unnið í sumar á bökkum sundlaugarinnar af listamanninum Birgi Rafni Friðrikssyni. Gunnar Einarsson bæjarstjóri og Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður menningar- og safnanefndar fengu þann heiður að afhjúpa verkið formlega og greina frá heitinu. Við þetta tækifæri var sundlaugargestum boðið ókeypis í sund og gestir gátu notið góðra og heilsusamlegra veitinga. ...
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Nauðsynlegar lagabreytingar varðandi skattlagningu kolvetnisvinnslu og leyfisveitingar hafa verið samþykktar á Alþingi. Útboð á sérleyfum á Drekasvæðinu mun því hefjast 3. október eins og ráð var fyrir gert. Lögin tóku gildi í gær og var fyrsta rannsóknaleyfið veitt og féll það í skaut norska fyrirtækinu TGS-NOPEG. Leyfið felur í sér heimild til að safna yfirborðssýnum af hafsbotni á Drekasvæðinu og jafnframt er gefin heimild til að kanna fyrirhugaða sýnatökustaði með botnsjá....
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Hagsmunasamtök heimilanna hafa verið að safna undirskriftum þar sem hvatt er til almennra leiðréttinga á lánamálum heimilanna. Einnig er krafist niðurfellingar á verðtryggingu lána. Þessar undirskriftir eru nú komnar í 27 þúsund og eru enn að safnast hratt saman. Hægt er að taka þátt í undirskirftasöfnuninni hér: http://sign.heimilin.is/...
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, ritar athyglisverða grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann m.a. að hópur harðra fylgismanna aðildar að Evrópusambandiu, sem hefur nú skilið við Framsóknarflokkinn, hafi unnið slík skemmdarverk í flokknum að erfitt sé að sætta sig við slíkt. Hann sakar lítinn minnihluta flokksmanna, sem er hlynntur aðild, um rætnar árásir á þá sem eru andvígir aðild....
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna er í dag, laugardaginn 10. september. „Á hverju ári falla 33 til 37 einstaklingar fyrir eigin hendi á Íslandi. Sorg aðstandenda og fjölskyldna er yfirþyrmandi – þannig bætist sektarkenndin og skömmin við erfiðar tilfinningar missis sem syrgjendur eftir sjálfsvíg ástvins þurfa að takast á við,“ segir Halldór Reynisson verkefnisstjóri á biskupsstofu. Opnaður verður nýr vefur á www.sjalfsvig.is....
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Upphafkvóti í loðnu á komandi vertíð verður 181.269 tonn. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að um sé að ræða upphafsheimild sem sé nokkru fyrr á ferðinni nú en síðasta vetur, þar sem ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir komandi vertíð hafi legið fyrir síðan í júní....
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Heiðursverðlaun RIFF 2011 “ævistarf í þágu kvikmyndalistarinnar” hlýtur ungverski leikstjórinn Béla Tarr. Þrjár af myndum Tarr verða sýndar á hátiðinni, þar á meðal hans síðasta mynd, Hesturinn í Tórínó (2011), en Tarr lýsti því nýlega yfir að hann væri hér með hættur kvikmyndagerð....
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Togarinn ODRA landar í Hafnarfirði rúmlega 500 tonnum af grálúðu, sem skipið fékk á Grænlandsmiðum. Odra var 53 daga í veiðiferðinni, en Odra fór frá Hafnarfirði 16. júlí síðasliðinn. Togarinn er frá vinabæ Hafnarfjarðar Cuxhaven í Þýskalandi og er frá fyrirtækinu Deutche FishFang Union, en DFFU, eins og nafn fyrirtækisins er gjarnan skrifað, er í eigu Samherja ehf....
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Göngum í Skólann var sett formlega sl. miðvikudag í Síðuskóla á Akureyri. Við setninguna töluðu Ólafur B. Thoroddsen skólastjóri Síðuskóla, Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar sem setti átakið formlega og Sindri Snær Konráðsson nemandi í 10 bekk sem talaði fyrir hönd nemenda. Að setningarathöfninni lokinni gengu allir nemendur skólans um nágrennið með hvatningarspjöld um ágæti þess að ganga í skólann. ...
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Í sumar hafa verið gerðar miklar endurbætur á Kjartanshúsi við Hafnarstræti á Flateyri. Húsið hefur verið fært í sitt upprunalega horf við endurnýjun glugga og klæðningar. Kjartanshús er götuprýði þar sem það stendur í röð hinna veglegu skipstjórahúsa neðst við Hafnarstræti sem byggð voru af önfirskum skipstjórum og útgerðarmönnum á sinni tíð....
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Erilsamt hefur verið hjá lögreglunni á Seyðisfirði það sem af er vikunni. Á mánudag var unnið að undirbúningi flugverndaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll, sem var undanfari stærri æfingar og innleiðingar Neyðaráætlunar fyrir Egilsstaðaflugvöll. Æfingin sjálf fór síðan fram þriðjudaginn 6. september. Allir lykilaðilar í áætluninni tóku þátt í æfingunni, sem þótti takast með ágætum. Töluðu flestir þátttakendur um það á rýnifundi í lok æfingar að þeir hefðu dregið góðan lærdóm af æfingunni. ...
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.803 milljörðum króna í lok 2. ársfjórðungs 2011 eða sem svarar 111,3% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Að teknu tilliti til peningalegra eigna var hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, neikvæð um 686 milljarða króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem svarar 42,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 35,5% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi 2010 og 27,5% á sama ársfjórðungi 2009. ...
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness mun flytja í nýtt húsnæði í dag, föstudaginn 9. september. Haustið 1997 opnaði Miðgarður dyr sínar í Langarima 21 og var hann þá fyrsta þjónustumiðstöð sinnar gerðar í Reykjavík. Í Langarima var húsnæðið bæði of lítið og óhentugt til þess að hýsa starfsemi Miðgarðs og því löngu orðið tímabært að flytja í betra húsnæði. Miðgarður mun því flytja í nýtt húsnæði að Gylfaflöt 5 í Grafarvogi,...
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Nú eru laxveiði árnar að loka hver á fætur annarri. Veiði lauk í Elliðaánum síðastliðin mánaðarmót. Virðist sem að aðeins sjónarmunur sé á veiðinni nú í sumar miðað við árið í fyrra. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá veiðivörðum er tala veiddra laxa þetta sumarið tæplega 1.150 laxar. Ekki eru öll kurl komin til grafar en til samanburðar þá veiddust í Elliðaánum 1.164 laxar í fyrrasumar....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Haraldi Líndal Haraldssyni, hagfræðingi, var falið að gera úttekt á stöðu bæjarsjóðs Seyðisfjarðar og kynnti hann niðurstöðurnar á íbúafundi í Félagsheimilinu Herðubreið í gær. Þar kom m.a. fram að sveitarfélagið sé á meðal skuldsettustu sveitarfélaga landsins. Samtals hafa skuldir sveitarfélagsins aukist úr 714 millj. kr. árið 2002 í 1.365 millj. kr. árið 2010, eða um 191%, á verðlagi hvors árs. Hann segir ljóst að taka þurfi til í fjármálum sveitarfélagsins til þess að ná því marki að koma skuldum þess niður fyrir hlutfallið 150% af tekjum....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar fjallaði á fundi sínum í gær, 7. september, um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, þingmál nr. 827, og fyrirliggjandi umsögn ferða- og atvinnumálanefndar um þingmál nr 827. Í umsögninni kemur ma. fram: Sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík skapa um 1.000 bein störf við veiðar og vinnslu á Íslandi, sem eru álíka mörg störf og eru í áliðnaði á Íslandi. ...
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, skrifar leiðara í dag inn á heimasíðu sambandsins. Tilefni skrifa hans er útgáfa rýniskýrslu ESB um landbúnað hér á landi, bréf Jan Tobinski fastafulltrúa Póllands gagnvart ESB og yfirferð á framvinduskýrslu Króatíu í aðlögun landsins að ESB en Króatía sótti um aðild árið 2003. Baldur segir m.a. "að allt tal um að aðlögunin geti farið fram eftir að íslenska þjóðin hefur gefið jáyrði sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu, er staðlausir stafir."...
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Íslenska auglýsingastofan og Íslandsstofa eru komnar í lokaúrslit Euro Effie auglýsingaverðlaunanna fyrir Inspired by Iceland herferðina. Effie eru virtustu og eftirsóttustu verðlaun sem veitt eru í auglýsingageiranum, sambærileg við Óskarsverðlaun í kvikmyndum. Þau eru aðallega veitt fyrir framúrskarandi árangur auglýsingaherferða en að hluta fyrir hinn skapandi þátt þeirra. ...
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
"Vertu netsnjall" er bæklingur SAFT og Nýherja um árvekni á netinu. Bæklingurinn, sem ætlaður er börnum og unglingum og forráðamönnum þeirra, hefur að geyma ýmis heilræði um hvernig hægt sé að vera „netsnjall“ og hvetur um leið til gagnrýninnar hugsunar um það sem finnst á netinu. Í bæklingnum eru meðal annars ráðleggingar um hvernig netnotendur geta stýrt „prófílnum“ á netinu og hvernig passa megi upp á persónuupplýsingar og lykilorð....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Þrjú skemmtiferðaskip komu til Reykjavikur í gær, 7. september, öll þýsk og heita: Aidaluna, Amadea og Bremen. Vertíð skemmtiferðaskipanna lýkur í Reykjavik með komu Boudicca þann 23. september, en samtals eiga 5 skip eftir að heimsækja höfuðborgina áður en vertíðinni lýkur þetta árið....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Leikskólakennarar samþykktu nýgerðan kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga með 92,2% atkvæða en 78,8% félagsmanna greiddu atkvæði. Nei sögðu 5,6% og auðir seðlar voru 2,2%. Atkvæðagreiðslu lauk á þriðjudag, en hún hófst 1. september sl. og voru atkvæði greidd rafrænt en trúnaðarmenn sáu um framkvæmd hennar í leikskólum....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Í hádeginu í dag ætlar Stúdentaráð Háskóla Íslands að slá upp tjaldbúðum í Skeifunni. Ætlunin er að vekja athygli á húsnæðisvanda stúdenta, en eins og flestum er kunnugt eru biðlistar eftir stúdentaíbúðum langir og leigurverð á almennum markaði mun hærra en hinn almenni stúdent ræður við. "Við munum skella nokkrum pylsum á grillið á slaginu 12 svo að þetta ætti að fara vel við hádegispásu frá lestri og skólastundum," segir í tilkynningu frá Stúdentaráði HÍ....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Að venju hefður lögreglan á Akureyri haldið uppi eftirliti m.a. með ökuhraða við skóla bæjarins í upphafi þessa skólaárs. Til þess hefur hún notað merkta sem ómerkta bíla og þá einnig verið með færanlega hraðamyndavél sem hefur sýnt það glögglega að ökuhraði er ekki alltaf í samræmi við lög og reglur. Til að mynda þá hafa um 50 ökumenn verið myndaðir nú sl. daga á götum við grunnskólana þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. og hefur ökuhraði þeirra verið allt að 80 km/klst. ...
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Rangárþing eystra leggur ákveðið fjármagn á hverju ári til uppbyggingu áfangastaða ferðamanna í sveitarfélaginu. Í sumar var m.a. unnið að uppsetningu á tröppum við Seljalandsfoss og var það stærsta verkefnið sem ráðist var til í ár á þessu sviði. Undanfarin ár hefur verið unnið að því að laga aðgengi í kringum fossinn og eru tröppurnar hluti af því. Verkefnið er einnig styrkt af umhverfissjóði Ferðamálastofu sem leggur 2 milljónir króna í þennan hluta verksins. Uppsetning tappanna tók um 6-7 vikur. ...
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2011 var útflutningur 55,5 milljarðar króna og innflutningur 47,3 milljarðar króna. Vöruskiptin í ágúst voru því hagstæð um 8,2 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 4% samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu 2010. Þetta er verulega minni samdráttur en árið 2009 þegar hann nam 6,7%....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Það var frekar kuldalegt um að litast á Siglufirði seinni partinn í gær (miðvikudag). Kalt var í veðri og ýmist rigning eða slydda. Í gærmorgunn gaf að líta grá fjöll niður í miðjar hlíðar og undir kvöld bætti í, svo að búast má við því að láglendi verði að einhverju leyti hvítt þegar birtir með morgninum. Þessi snjór er þó líklega ekki kominn til að vera því spáð er hlýnandi veðri næstu daga. Samkvæmt gamla íslenska tímatalinu byrjar haustið í ár ekki fyrr en 22. september....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðuneytisins sem veitt verða í fyrsta sinn 16. september næstkomandi á Degi íslenskrar náttúru. Verðlaununum er ætlað er að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins eða benda á þær ógnir sem steðja að íslenskri náttúru og mikilvægi þess að varðveita hana og vernda í þágu komandi kynslóða....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stendur nú í þriðja sinn fyrir prjónasamkeppni í tengslum við haustfagnað félagsins sem jafnan er fyrsta vetrardag. Keppt verður í tveimur flokkum, flokki fullorðinna og flokki barna 16 ára og yngri. Í ár snýst keppnin um að að prjóna fylgihluti úr íslenskri ull. Nú er bara að láta hugmyndaflugið njóta sín, taka fram prjónanna og hefjast handa....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Í dag var haldinn fundur í Vísindamannaráði almannavarna þar sem rætt var um atburði liðinna vikna undir Mýrdalsjökli. Frá því í júlí hefur verið nokkuð aukin jarðskjálftavirkni í Kötluöskjunni. Þessi jarðskjálftavirkni er þó ekki meiri en stundum hefur verið á undanförnum árum. Þá hefur orðið veruleg aukning á jarðhitavirkni í suðaustanverðri öskjunni. GPS mælingar sýna jafnframt að ekki hefur orðið umtalsvert landris innan öskjunnar á síðustu misserum....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Við reglubundið eftirlit lögreglu með fanga í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum um kl. 23:20 síðastliðið mánudagskvöld var komið að fanga sem svaraði ekki áreiti og kom ekki til meðvitundar þrátt fyrir endurlífgunartilraunir lögreglu og sjúkraflutningsmanna. Læknir sem kvaddur var á vettvang úrskurðaði manninn látinn. Hinn látni var 33 ára gamall pólskur karlmaður sem lögreglan hafði handtekið fyrr um daginn vegna mikillar ölvunar,...
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Stjórn UÍA hefur í samráði við bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð ákveðið að sækjast eftir að halda Landsmót UMFÍ 50+ (50 ára og eldri) í Neskaupstað á næsta ári. Landsmót fyrir þennan aldurshóp var haldið í fyrsta skipti nú í sumar á Hvammstanga og þótti takast mjög vel. Keppnisgreinar á mótinu voru blak, bridds, boccia, badminton, frjálsar íþróttir, fjallaskokk, hestaíþróttir, golf, pútt, línudans, skák, sund og þríþraut....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Fyrr á þessu ári komu út fyrstu vitarnir úr seríu 10 vita sem gefnir verða út á frímerkjum næstu ár. Sá fyrsti var Langanesviti. Frímerkið er hannað af Erni Smára Gíslasyni, með ljósmynd Friðriks Arnar og gildir fyrir bréf allt að 50 grömmum. Einnig var gefið út póstkort í lögun eins og Langanesvitinn....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Gunnar Friðriksson, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Ísafirði, er nú á leið í Æðey að sækja mann sem slasaður er á fæti. Maðurinn var að vinna með kantskera og skar sig í fótinn. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl hans eru. Björgunarskipið lét úr höfn á Ísafirði klukkan 13:00 með sjúkraflutningamenn en siglingin út í Æðey tekur um 45 mínútur,...
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði ánægju fólks með lífið og tilveruna. Íslendingar virðast enn sem fyrr almennt ánægðir með sumarfríið sitt, vinnuna sína og nágranna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 91,0% ánægð með nágranna sína, 90,2% sögðust ánægð með sumarfríið sitt og 89,9% sögðust ánægð með vinnuna sína. Breytingarnar, frá fyrri könnun MMR í ágúst 2010, eru því ekki miklar....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG verður ekki meðal keppenda á Kazakhstan Open mótinu sem hefst á morgun eins og hann ætlaði sér. Hann og eiginkona hans Elísabet Halldórsdóttir voru komin til Frankfurt í Þýskalandi á leið sinni til Kazakhastan, en komust ekki lengra vegna vandræða með vegabréfsáritun til Kazakhastan....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins f.h. Alcan á Íslandi var felldur í atkvæðagreiðslu, en kosningu lauk í gær. Samningurinn var undirritaður 23. ágúst síðastliðinn og tók til félagsmanna VR sem starfa hjá Alcan á Ísland auk félagsmanna Verkalýðsfélagsins Hlífar, VM Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambandsins Íslands vegna Félag íslenskra rafvirkja og Félags rafeindavirkja, FIT Félags iðn- og tæknigreina og Matvís....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Á síðasta fiskveiðiári voru bátar skráðir með heimahöfn í Reykjavík með mestar aflaheimildir íslenskra skipa og báta, eða 44.053 þorskígildistonn sem eru 14,4% úthlutaðra aflaheimilda. Næst komu bátar skráðir í Vestmannaeyjum með 30.645 þorskígildistonn eða 10% allra aflaheimilda og bátar skráðir í Grindavík með 27.227 þorskígildistonn (8,9% aflaheimilda). Sjá töflu yfir 10 hafnir með mest aflamark hér....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Bæjarráð Garðabæjar tók tilboði Skólamatar í mat fyrir grunnskóla bæjarins eftir útboð sem auglýst var í sumar. Gildir samningurinn til þriggja ára. Börnin hafa tekið matnum vel þessa fyrstu viku og virðist almenn ánægja vera með gæði hans, að sögn Margrétar Bjarkar Svavarsdóttur, forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Evrópski menningarminjadagurinn verður haldinn hér á landi á morgun, fimmtudaginn 8. september. Þema dagsins að þessu sinni er menningarlandslag. Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Bændasamtökin hafa sent frá sér fréttatilkynningu vegna rýniskýrslu Evrópusambandsins um landbúnaðarmál og dreifbýlisþróun. Í bréfi sem ESB sendi til íslenskra stjórnvalda kemur fram að Ísland er ekki nægilega undirbúið til þess að opna samningakafla um landbúnaðarmál í aðildarviðræðunum við sambandið. Bændasamtökin halda því fram að þetta sýni glögglega að ESB krefjist þess að Ísland aðlagi lagasetningu, ...
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
YAIC heldur ráðstefna um skapandi greinar og tækifæri í netheimum í Hörpunni 10.-12. október. YAIC er framsækin ráðstefna og vinnusmiðjur þar sem leitast er við að varpa ljósi á ný viðskiptamódel í skapandi greinum á tímum stafrænnar byltingar. Tilgangurinn með ráðstefnunni er að koma á alþjóðlegu tengslaneti og skapa þekkingarbanka á Íslandi um stafræn viðskipti og markaðssetningu í skapandi greinum....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út rétt um miðnætti til leitar að tveimur 19 ára piltum sem voru villtir norður af Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Höfðu þeir verið á ferð a fjórhjólum þegar þeir villtust í myrkrinu. Gátu þeir látið vita af vandræðum sínum í gegnum síma og var þá hafin leit. Björgunarsveitir náðu sambandi við drengina rétt fyrir klukkan þrjú í nótt og voru þeir þá orðnir kaldir....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Skemmtiferðaskipið Silver Explorer kom við á Bíldudal á för sinni um Atlantshafið þann 1. september síðastliðinn. Skipið markaði ákveðin tímamót þar sem þetta er fyrsta og eina skip þessarar tegundar sem stoppar á sunnanverðum Vestfjörðum á þessu ári. Heimamenn binda vonir við að fleiri skemmtiferðaskip fylgi í kjölfarið enda er þetta landsvæði kjörin vettvangur slíkrar ferðaþjónustu....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Hvolsvelli hafa undanfarna daga fylgst náið með jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli í samvinnu við vísindamenn Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Ákveðið hefur verið að vísíndamenn fljúgi yfir jökulinn núna síðdegis til þess að skoða aðstæður. Ekki hefur verið talin ástæða til að lýsa yfir háskastigi almannavarna. Vísindamannaráð almannavarna mun hittast á morgun miðvikudaginn 7. september og fara yfir stöðu og þróun mála....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Íslandsbanki og Borgarleikhúsið hafa frá upphafi bankans átt farsælt og gott samstarf. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri, undirrituðu áframhaldandi samstarfssamning í Borgarleikhúsinu í gær. Íslandsbanki er einn af megin bakhjörlum leikfélagsins og njóta viðskiptavinir Íslandsbanka samstarfsins í formi betri kjara á leiksýningum. Í ár mun Íslandsbanki styrkja tvær sýningar leikhússins; Galdrakarlinn í Oz og Svar við bréfi Helgu....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2011 var jákvæð um 10,2 milljarða króna eftir skatta samanborið við 7,9 milljarða á fyrri helmingi ársins 2010. Er afkoman umfram áætlanir sem skýrist einkum af endurmati á útlánasafni bankans á fyrirtækjasviði. Arðsemi eigin fjár var 20,3% á ársgrundvelli. Á öðrum ársfjórðungi fór fram lokauppgjör Arion banka við þrotabú Kaupþings banka. Er hálfsársuppgjörið nú fyrsta uppgjör Arion banka þar sem þessir aðilar eiga engar kröfur hvor á annan....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Samningur um framkvæmd átaksins „Nám er vinnandi vegur“ milli stjórnvalda, framhaldsskóla og háskóla var undirritaður í dag. Viðstaddir undirritun samningsins voru mennta- og menningarmálaráðherra, velferðarráðherra, forsvarsmenn skóla og aðila vinnumarkaðarins. Fyrsta hluta átaksins, sem fól í sér eftirfarandi bráðaaðgerðir, er nú lokið samkvæm áætlun:...
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn á eftirliti í Héðinsfjarðargöngum mældu í gærkvöldi bifreið á yfir 160 km/klst hraða, en bifreiðin var að aka frá Ólafsfirði til Siglufjarðar. Hámarkshraði í Héðinsfjarðargöngunum er 70 km/klst. Lögreglumenn misstu sjónar af bifreiðinni en haft var upp á ökumanninum seinna um kvöldið. Ökumaðurinn sem er 18 ára viðurkenndi brotið við yfirheyrslur hjá lögreglu og bar því við að hafa verið í kappakstri við aðra bifreið skömmu áður en mælingin fór fram....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Í gær tók Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri við málverki af Bjarna Snæbjörnssyni lækni. Málverkið tilheyrði St. Jósefsspítala og voru það afkomendur Bjarna sem höfðu frumkvæði af því að koma verkinu til varðveislu hjá Hafnarfjarðarbæ. Saga Bjarna er samofin sögu spítalans og sögu Hafnarfjarðar og því þótti þeim tilvalið að málverkið yrði eign bæjarins nú þegar sögu St. Jósefsspítala er að ljúka. ...
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Umhverfisráðherra kynnti í morgun í ríkisstjórn hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hefur unnið en í henni felst heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi. Hvítbókin verður til umfjöllunar á Umhverfisþingi sem umhverfisráðuneytið efnir til 14. október. Í framhaldinu hefst opið umsagnarferli um bókina sem lýkur 1. desember....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Dagana 5. – 9. september standa frjáls félagasamtök ásamt Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) fyrir kynningarátaki á markmiðum og árangri þróunarsamvinnu. Miðvikudaginn 7. september verður gjörningur undir yfirskriftinni „Þróunarsamvinna ber ávöxt“ á fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri auk þess sem málþing um þróunarsamvinnu verður í sal 102 á Háskólatorgi í Háskóla Íslands fimmtudaginn 8. september. ...
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fór 101.841 erlendur ferðamaður frá landinu í ágúst síðastliðnum eða um 12 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Aukningin nemur 13,7% milli ára. Erlendir ferðamenn hafa aldrei áður farið yfir 100 þúsund í einum mánuði og eru þeir nú helmingi fleiri en þeir voru í ágústmánuði 2002, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ferðamálastofu....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Það er altaf nokkuð stór frétt þegar einhver af stóru laxveiðiánum á Íslandi er sett í útboð. Veiðifélag Þverár í Borgarfirði hefur nú ákveðið að óska eftir tilboðum í veiðirétt á vatnasvæði sínu, en þar eru Þverá og Kjarará, ásamt Litlu Þverá. Núverandi leigutaki er Sporður ehf, en samningur þeirra rennur út í lok veiðitíma sumarið 2012. ...
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Jón Lárusson, formaður Umbótahreyfingarinnar, afhenti í gær Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, 80 eintök af bók C.H. Douglas, The Monopoly of Credit. Var bókinni síðan dreift á alla starfandi þingmenn, en þær bækur sem útaf stóðu fóru á safn Alþingis. Voru bækurnar gefnar í samvinnu við breska einstaklinga sem einnig vinna að breyttu fjármálakerfi. Höfðu tveir þeirra komið til Íslands til að biðjast afsökunnar á ofbeldi bresku rikisstjórnarinnar til handa Íslendingum í tengslum við Icesave málið,...
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,9 milljarða króna og inn fyrir 42,1 milljarð króna. Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,8 milljarða króna. Í júlí 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 4,2 milljarða króna á sama gengi. Fyrstu sjö mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 339,9 milljarða króna en inn fyrir 285,9 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 54,0 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 67,9 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 13,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður. ...
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Gleðileikurinn Húsmóðirin eftir Vesturport sló heldur betur í gegn í Hofi á Akureyri um helgina. Uppselt var á báðar sýningar helgarinnar og hefur því verið bætt við aukasýningu laugardagskvöldið 10. september kl. 19. Í sýningunni tekst Vesturport á við gamanleikjaformið þar sem hurðir opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Undanfarin tvö ár hefur Lýðheilsustöð, nú Landlæknisembættið, fyrir hönd Íslands unnið að rannsókn á áhrifum reykinga og áfengisneyslu í kvikmyndum á evrópsk börn og unglinga. Ásamt Íslandi taka fimm önnur Evrópulönd þátt í rannsókninni, Ítalía, Holland, Þýskaland, Skotland og Pólland. Þetta er stærsta rannsóknin sem gerð hefur verið um þetta efni og tóku yfir 16 þúsund börn og unglingar í ofangreindum löndum þátt í henni, þar af rúmlega 2500 frá Íslandi. ...
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Samningur um þjónustu við fimm fullorðna fatlaða einstaklinga sem búa að Kastalagerði 7 í Kópavogi var undirritaður af hálfu Kópavogsbæjar og Áss styrktarfélags í gær. Markmiðið er að íbúar Kastalagerðis fái þá þjónustu sem mætir hvað best óskum þeirra, aðstæðum og þörfum. Kópavogsbær tók yfir málefni fatlaðs fólks um áramótin og er samningurinn við Ás styrktarfélag liður í því ferli....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ á föstudaginn. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 30 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Á sama stað var einnig að finna þrjá snáka og voru þeir líka fjarlægðir. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands 2011 var haldinn í Grundarfirði um helgina. Skógræktarfélag Eyrarsveitar var gestgjafi fundarins að þessu sinni og sóttu fundinn á annað hundrað fulltrúar skógræktarfélaga alls staðar af landinu. Í þeim ályktunum sem samþykktar voru á fundinum er áhersla lögð á mikilvægi skógræktar fyrir umhverfi og samfélag....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
1. september tók ný gjaldskrá gildi fyrir Siglingastofnun Íslands. Með nýju gjaldskránni hækka gjöld almennt um 15%. Er það í samræmi við verðlagsforsendur fjárlaga fyrir árið 2008-2010, en þar er miðað við að sértekjur Siglingastofnunar hækki um 15% frá 2008 til 2010....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Björgólfur Thor Björgólfsson segir á heimasíðu sinni í dag að grein sem breska blaðið Observer birti um sig um síðustu helgi hafi verið uppfull af ósannindum og hálfsannleika. Hann segist hafa leitað til lögmannsstofu og lagt fram athugasemdir vegna vinnubragða fjölmiðilsins. Íslenska blaðakonan Sigrún Davíðsdóttir er annar höfunda greinarinnar í Observer....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Hjá Tollstjóra verða ný einkennisföt tollvarða tekin í notkun á morgun, 6. september. Einkennisskjöldur með starfsnúmeri tollvarðar er helsta nýjungin auk þess sem svört skyrta, pólobolur eða rúllukragabolur leysa hvítu skyrtuna af hólmi. Oft hafa tollarar verið nefndir "svarta gengið" og nú bera þeir væntanlega nafn með rentu....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Hlutabréfaverð í Evrópu hefur verið að lækka í morgun og evran veiktist gagnvart Bandaríkjadal. Þá hefur gull verið að hækka í verði, olían að lækka og skuldatryggingarálag ríkja í Evrópu að hækka af sömu ástæðum. Nemur lækkun S&P Europe 350 vísitölunnar 2,5% í morgun og er hlutabréfaverð að lækka á öllum helstu hlutabréfamörkuðum innan svæðisins, að því er fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum undirrituðu Páll Brynjarsson sveitarstjóri og Bryndís Hlöðversdóttir rektor Háskólans Bifröst samkomulag milli Borgarbyggðar og háskólans um afslátt á þjónustukaupum sveitarfélagsins hjá skólanum. Fyrr í sumar var einnig undirritað samkomulag milli sömu aðila um kaup Borgarbyggðar á 30 milljóna stofnfé í Háskólanum á Bifröst. Kaupin koma til framkvæmda á árunum 2012 – 2014....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku var unglingspiltur staðinn að verki við veggjakrot á Ísafirði. Drengurinn mun, með aðstoð föður síns, bæta fyrir gjörðir sínar. Tilkynning um afskipti lögreglunnar af drengnum var jafnframt send til barnaverndaryfirvalda. Í vikunni gaf lögreglan ökumönnum sem töluðu í farsíma sérstakan gaum og var einn kærður fyrir að nota ekki handfrjálsan búnað....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Forseti króatíska þingsins, hr. Luka Bebić, verður í opinberri heimsókn á Íslandi, ásamt sendinefnd frá króatíska þinginu, dagana 5.-7. september 2011 í boði forseta Alþingis. Mun hann eiga fundi með forseta Alþingis, forsætisráðherra og utanríkisráðherra meðan á dvöl hans stendur....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Í byrjun ágúst bjargaði Björgunarsveitin Lífsbjörg, Snæfellsbæ manni úr sjálfheldu við Rauðfeldargjá. Allt gekk það vel fyrir sig. Eins og ávallt var sveitinni þakkað vel fyrir og fékk hún heillaóskir frá þeim sem í sjálfheldunni var og ferðafélögum hans. En sá sem var bjargað, Richard A. Jones, gerði þó gott betur og sendi bréf frá Bandaríkjunum ásamt ávísun uppá 100 dollara í þakklætisskyni. ...
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Klukkan 10:00 í dag, mánudaginn 5. september, mun Jón Lárusson formaður Umbótahreyfingarinnar afhenda Ástu R. Jóhannesdóttur forseta Alþingis 80 eintök af bókinni The Monopoly of Credit eftir C.H. Douglas. Er bókin gjöf til allra sitjandi þingmanna. Er tilgangurinn með gjöfinni að allir þingmenn geti kynnt sér þá ágalla sem eru á fjármálakerfinu og þær hugmyndir sem geta leyst okkur undan oki núverandi fjármálakerfis, segir í tilkynningu frá Umbótahreyfingunni....
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Garðabær auglýsir nú mörg störf laus til umsóknar. Störfin sem í boði eru m.a. kennarastaða í Sjálandsskóla, nokkrar stöður í leik- og grunnskólum bæjarins, starf íþróttafulltrúa og starf þjónustufulltrúa í Ráðhúsinu svo eitthvað sé nefnt. Sótt er um störf á vegum Garðabæjar rafrænt á Mínum Garðabæ. Garðabær vinnur samkvæmt stjórnsýslu- og upplýsingalögum. Umsóknir eru vistaðar í skjalakerfi bæjarins og ekki er hægt að óska eftir nafnleynd. Öllum umsækjendum er svarað og þeim tilkynnt um ráðningu. ...
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
15. landsþingi Landssambands framsóknarkvenna var haldið í Grindavík um helgina og var slitið í dag. Kristbjörg Þórisdóttir er nýr formaður framsóknarkvenna. Þingið var með sérstaklega hátíðlegu sniði vegna 30 ára afmælis landssambandsins. Á þinginu komu saman brautryðjendur landssambands framsóknarkvenna og núverandi framlínukonur. Þingað var bæði laugardag og sunnudag. Sérstök hátíðardagskrá var haldin á laugardagskvöldinu þar sem framsóknarkonum var boðið í heimsókn í Bláa Lónið. ...
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Íslandsbanki setti á markað snjallsímaforrit (app) fyrir Android og iPhone síma fyrir rúmum tveimur vikum. Bankinn var þá fyrsti bankinn á Íslandi til að setja slík forrit á markað og hafa snjallsímaforritin fengið afar góðar viðtökur, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka. Nú þegar hafa á þriðja þúsund notendur hlaðið snjallsímaforritum bankans. Þess má geta að forritið hefur undanfarið verið meðal þeirra vinsælustu í iTunes App Store á Íslandi og hefur m.a. notið meiri vinsælda en Facebook....
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Bílaumferð um þjóðgarðinn á Þingvöllum hefur aukist gífurlega á þessu ári. Ræður þar miklu tilkoma nýja Lyngdalsheiðarvegarins en nú liggja fyrir umferðarmælingar Vegagerðarinnar það sem af er þessu ári. Þær staðfesta að nýi Lyngdalsheiðarvegurinn er mikil samgöngubót en eykur um leið umferðarálag í þjóðgarðinum. Ætla má að um ein milljón manns fari um veginn vestan við þjóðgarðinn árið 2011 en Vegagerðin gerir ráð fyrir að um 2,6 einstaklingar séu í hverjum bíl að jafnaði....
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundar Skógræktarfélags Íslands fór fram á Grundarfirði um helgina. Þetta var 76. aðalfundar Skógræktarfélagsins og lauk honum í dag. Þegar litið er yfir starfsskýrslu Skógræktarfélags Íslands á milli aðalfunda má glöggt sjá að unnið hefur verið að fjölmörgum verkefnum. Rekstur félagsins á liðnu ári gekk að mörgu leyti vel og rekstrartekjur voru í takt við áætlanir. Peningalegar eignir hækkuðu á milli ára sem og eignir í bundnum sjóðum....
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Fyrirmyndarleikmaðurinn er átaksverkefni gegn munntóbaksnotkun knattspyrnumanna og ungs fólks, á vegum Embættis Landlæknis, UMFÍ, KSÍ, ÍSÍ og ÁTVR. Einnig er herferðinni beint gegn notkun tóbaks á íþróttasvæðum. Átakið fer fram með þeim hætti að valinn hefur verið einn leikmaður frá hverju liði í efstu deild og ber hann titilinn fyrirmyndarleikmaður. Og notar ekki tóbak. ...
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Engin alvarleg mál komu til kasta lögreglu á Ljósanótt í Reykjanesbæ í gær fyrir utan slys í leiktæki á hátíðarsvæðinu, þar sem 9 ára gömul stúlka slasaðist alvarlega á handlegg eftir að hafa fest hana í tækinu. Mikið annríki var hjá lögreglunni í gærkvöldi en miðað við mannfjölda gekk allt vel fyrir sig. Umferðin gekk hægt en greiðlega fyrir sig og lítið um umferðaróhöpp um helgina....
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Sr. Kristján Valur Ingólfsson hlaut flest atkvæði í kjöri til vígslubiskups í Skálholti. Kjörfundi lauk þann 26. ágúst síðastliðinn og atkvæði voru talin í gær. Á kjörskrá voru 149 manns og greidd voru 142 atkvæði. Sr. Kristján Valur fékk 80 atkvæði og Sr. Sigrún Óskarsdóttir fékk 61 atkvæði. Einn seðill var auður....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Rétt fyrir kl. 17:00 í dag komu kæjakræðararnir Riaan Manser og Dan Skinstad frá Suður Afríku til Húsavíkur og náðu þar með markmiði sínu að verða fyrstir til að róa umhverfis landið á tveggja manna kæjak. Ferð þeirra hófst frá Húsavík í 23. mars 2011. Félagarnir hafa lent í alls konar veðrum, glímt við misjafnar lendingar við strendur landsins og þurft að yfirstíga ýmsa aðra erfiðleika....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Fjölmargir lögðu leið sína á viðburðinn ,,Brosandi börn" sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík í dag. Þar fengu gestir að njóta japanskrar menningar og styðja börn á hamfarasvæðunum í Japan. Dagskráin var fjölbreytt og gæddu gestir sér m.a. á sushi, kökum og tei, brutu pappír, teiknuðu, dönsuðu og kepptu í japönskum leikjum. Sýndar voru allar japanskar bardagaíþróttir og er það í fyrsta sinn sem það er gert á Íslandi....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Vegna óhagstæðs tíðarfars í vor var göngum og réttum frestað víðast hvar í Þingeyjarsýslu og landinu öllu um eina viku. Mývetningar og Austur-Bárðdælir lögðu af stað í göngur í gærmorgunn. Vestur-Bárðdælir smöluðu svokallaða forsmölun á fimmtudag. Að sögn Vagns Sigtryggssonar í Hrfilu leit féð þokkalega út. Réttað verður í Baldursheimsrétt, Hlíðarrétt og í Víðikersrétt á morgun, sunnudag. Fyrsta stóðrétt haustsins verður einnig í dag, í Miðfjarðarrétt í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Hvolsvelli hafði samband og vildi benda veiðimönnum hreindýra að mikilvægt er, að ef verið er að flytja bráðina milli landshluta þarf að ganga miklu betur frá bráðinni heldur en sést á þeim myndum sem hér fylgja með og voru teknar í umdæmi þeirra. Er þessir veiðimenn stönsuðu við sjoppu á leiðinni lak blóð/blóðvatn úr kerrunni. Slíkt vekur óhug þeirra sem sjá og er einnig óþrifalegt. ...
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Tilboð í smíði nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Staðará í Steingrímsfirði á Strandavegi 643 voru opnuð í vikunni. Fjögur tilboð bárust og voru þau öll lítið eitt hærri en áætlaður verktakakostnaður hjá Vegagerðinni sem var rúmar 85,2 milljónir. Lægsta tilboðið var frá Eykt ehf í Reykjavík og hljóðaði upp á rúmar 85,9 milljónir....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Félags Ungra Framsóknarmanna í Skagafirði hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna afsagnar Sigurjóns Nordberg Kjærnested, formanns SUF. Þar segir m.a. að ekki hafi verið haldinn stjórnarfundur í Sambandi ungra framsóknarmanna síðan í apríl og "forystumenn SUF hafa ekki nýtt rétt sinn til setu á þingflokksfundum frá sama tíma, sem þó er einn mikilvægasti samráðsvettvangur ungliðahreyfingarinnar við forystu flokksins....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Dr. Lonnie Thompson, einn helsti jöklafræðingur heims sem veitt hefur forystu rannsóknarverkefnum víða um veröld, heldur fyrirlestur í boði forseta Íslands og Háskóla Íslands mánudaginn 5. september 2011. Fyrirlesturinn, sem er opinn almenningi og hefst klukkan 12:00 í Hátíðasal aðalbyggingar skólans, ber heitið ”Climate Change: The Evidence and Our Options”....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Perlan á Öskjuhlíð er auglýst til sölu í dagblöðunum í dag. Í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur, sem á Perluna, kemur fram að salan sé hluti af aðgerðaráætlun Orkuveitunnar og eigenda hennar, sem var samþykkt í vor. Fasteignasalan Miklaborg sér um söluna en hún varð fyrir valinu þegar leitað var tilboða í umsjón með sölu stærri eigan fyrirtækisins. Orkuveitan hefur þegar selt skemmu og starfsmannahús við Andakílsárvirkjun, jarðirnar Berkseyri og Berkseyri ytri og almannavarnarskýli í Mosfellsdal....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Á síðustu árum hefur orðið gríðarleg uppbygging í fjölþættri ferðaþjónustu á Norðurlandi. Grundvöllur þessarar uppbyggingar er stóraukið framboð á afþreyingu, auk þess að hótelum, gistihúsum og veitingahúsum á Norðurlandi hefur fjölgað mikið á tiltölulega stuttum tíma. Fjárfestirinn Huang Nubo búinn að senda inn umsókn um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Meðal þess sem verður byggt upp er hótel, golfvellir og útivistarmöguleikar. Hefur Huang látið hafa eftir sér að bæði fyrirtæki hans og íbúar á Íslandi geti hagnast á verkefninu....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Alþingi samþykkti í dag breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar sem heimilar greiðslu atvinnuleysisbóta á móti skertu starfshlutfalli. Greiðslur hlutabóta eru þar með tryggðar þeim sem eiga rétt til þeirra samkvæmt lögum til áramóta. Gildistími bráðabirgðaákvæða, um atvinnuleysistryggingar, sem heimila greiðslu atvinnuleysisbóta, hafi starfshlutfall fólks verið skert sem nemur að minnsta kosti 30%, rann út 30. júní síðastliðinn....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Verð á mánaðar-, þriggja mánaða og níu mánaða strætókortum hækkar um 9-10% hinn 1. október næstkomandi. Stök fargjöld haldast hins vegar óbreytt, eða 350 krónur, sem og öll form afsláttarfarmiða. Hækkun á verði tímabilskorta er liður í að auka hlut fargjaldatekna í rekstrarkostnaði Strætó með hliðsjón af þróun verðlags....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Mannlífið í höfuðborginni er fjölbreytt, rétt eins og verkefni lögreglunnar. Í gærmorgun var hún kölluð til þegar drukkinn karl á fertugsaldri hugðist taka sér far með strætó. Slíkt er ekki alltaf lögreglumál en í þessu tilviki framvísaði maðurinn farmiða sem var ætlaður börnum. Hann neitaði þráfaldlega að greiða gjald í samræmi við aldur og hélt áfram að láta "barnalega". Svo fór að honum var vísað út úr strætisvagninum....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður jafnan til kvikmyndatónleika meðan á hátíð stendur, og hafa ýmsir af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar leikið lifandi tónlist meðan á sýningu kvikmyndar stendur. Meðal þeirra sem þegar hafa spilað á kvikmyndatónleikum RIFF eru Hjaltalín, Benni Hemm Hemm og nú síðast Kría Brekkan árið 2010....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Í vikunni var skrifað undir verksamning milli sveitarfélagsins Strandabyggðar og fyrirtækisins Ísar ehf. um endurbyggingu stálþils við Hólmavíkurhöfn og fyrsti verkfundur haldinn vegna framkvæmdarinnar. Verklok eru áætluð 1. mars 2012 og mun flutningur á tækjum til Hólmavíkur og undirbúningur undir framkvæmdir hefjast í næstu viku....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Leikskólabörn á leikskólanum Álfaheiði gróðursettu tvö eplatré á leikskólalóðinni í gær. Tilefnið var að í sumar fóru fram endurbætur á lóðinni sem heppnuðust mjög vel. Börnin munu án efa hlúa vel að trjánum og fylgjast spennt með því hvort lítil epli líti dagsins ljós einn góðan veðurdag....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Miðvikudaginn 31. ágúst var síðasti opnunardagur Hafíssetursins á Blönduósi sumarið 2011. Um það bil 1250 gestir heimsóttu Hafíssetrið í sumar og er það nokkur fækkun frá undanförnum árum. Í ár er fyrsta árið þar sem útlendingar voru fleiri en Íslendingar og voru Þjóðverjar í meirihluta erlendra gesta. Hafíssetrið opna að nýju næsta vor, en opið verður um safnahelgi á Norðurlandi vestra þann 8. – 9. október...
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Alþingi kom saman klukkan 10:30 í morgun að loknu sumarleyfi og mun starfa næstu tvær vikurnar. Þegar alþingismenn komu til þings blöstu við þeim 200 svartir krossar sem búið var að koma fyrir á Austurvelli, fyrir framan Alþingishúsið. Halldór Gunnarsson, einn þeirra sem stóð fyrir þessu, sagði að þetta væru táknræn þögul mótmæli. Hver og einn gæti túlkað fyrir hvað þetta stæði....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Í gær, 1. september, tók gildi nýr rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um talmeinaþjónustu. Af þeim 20 talmeinafræðingum sem starfa sjálfstætt á stofu á Íslandi hafa 17 þeirra nú samið við SÍ. Áður höfðu 9 talmeinafræðingar verið á samningi við SÍ og því bætast 8 við á nýjan samning. ...
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Ævintýramaðurinn Riaan Manser frá Suður-Afríku og félagi hans Dan Skinstad sem er með væga heilalömun, hófu kæjakferð sína frá Húsavík í mars sl. áleiðis umhverfis landið. Síðan þá hafa þeir lent í alls kyns veðrum, glímt við misjafnar lendingar við strendur landsins og þurft að yfirstíga ýmsa aðra erfiðleika. Þeir nálgast nú óðum það takmark sitt að róa umhverfis landið og stefna að því að koma til Húsavíkur upp úr hádegi (12:00) á morgun, laugardaginn 3. september....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Úthlutunarnefnd sem forsætisnefnd Alþingis skipaði til að úthluta styrkjum til að stuðla að opinberri og upplýstri umræðu og fræðslu um Evrópusambandið hefur lokið störfum. Úthlutunarfé til ráðstöfunar nam 27 milljónum króna. Alls bárust nefndinni 18 umsóknir og uppfylltu 8 þeirra skilyrði sem kveðið er á um í úthlutunarreglum, að því er fram kemur á vef Alþingis....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Fylgi stjórnmálaflokkana hefur lítið breyst undanfarna mánuði samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem greint var frá í fréttum Útvarpsins. Þriðjungur kjósenda styður ríkisstjórnina. Fjórtán prósent þeirra sem svöruðu þjóðarpúlsi Gallup í ágúst myndu ekki kjósa eða skila auðu á kjördag. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust nærri 17% styðja Framsóknarflokkinn, tæp 36% styðja Sjálfstæðisflokkinn, um 3% styðja Hreyfinguna og 22% styðja Samfylkinguna.
Fylgi Vinstri grænna mælist nú 14% og hefur ekki mælst minna síðan í júlí árið 2007....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Vinnumálastofnun hafa skrifað undir samstarfssamning, sem miðar að því að skapa aukin tækifæri fyrir fólk í atvinnuleit með fræðslu, handleiðslu og virkri eftirfylgni við þróun eigin viðskiptatækifæra. Þetta nýja úrræði tekur gildi frá og með 1. september 2011 og er, að mati samningsaðila, nauðsynleg viðbót við þau úrræði, sem þegar eru í boði á markaðnum....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Heildarviðskipti í Kauphöllinni með hlutabréf námu 2061 milljónum í ágúst eða 94 milljónum á dag. Þessu til samanburðar nam veltan með hlutabréf í júlí 1300 milljónum eða 62 milljónum á dag. Mest voru viðskipti með bréf Marels 1306 milljónir, bréf Icelandair 625 milljónir, og bréf Össurar 48 milljónir. Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 5,8% milli mánaða og stendur nú í 929 stigum. ...
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Arion banki mun frá 15. september bjóða viðskiptavinum sínum óverðtryggð íbúðalán til 25 eða 40 ára. Lánin eru með föstum vöxtum til fimm ára. Á fimm ára fresti eru vextirnir endurskoðaðir og taka mið af markaðsvöxtum sem í gildi eru á hverjum tíma. Viðskiptavinir geta einnig valið aðra kosti ef þau óverðtryggðu kjör sem þá bjóðast eru óhagstæð....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Lán heimila höfðu í lok júlí 2011 verið færð niður um 143,9 milljarða króna frá bankahruni. Þetta kemur fram í upplýsingum sem Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa aflað meðal aðildarfélaga sinna, hjá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. Þar kemur einnig fram að rúmlega 87 þúsund lántakar hafa fengið eða leitað eftir niðurfærslu hjá fjármálafyrirtækjum...
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Busavígsla fór fram í Menntaskólanum í Reykjavík í dag, en þar eru nýnemar tolleraðir af eldri nemum samkvæmt gamalli hefð í skólanum. Menntaskólinn í Reykjavík er elsti skóli landsins og á sér merka sögu. Hann kappkostar að skila nemendum sínum vel undirbúnum út í lífið....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðið vor skrifuðu fulltrúar Hörgársveitar og Norðurorku hf. undir samstarfsyfirlýsingu um jarðhitarannsóknir í Hörgárdal og Öxnadal til að meta hvort jarðhitavinnsla á svæðinu sé vænleg. Kostnaðaráætlun vegna verksins hljóðar upp á tíu milljónir króna. Borun á hitastigulsholunum var boðin út um miðjan ágúst og bárust sjö tilboð frá sex aðilum, en einn skilaði inn frávikstilboði....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Hin árlega Kjötsúpuhátíð Rangárþings eystra fer fram núna um helgina 2. - 4. september á Hvolsvelli. Hátíðin er aðeins fyrr á ferðinni í ár en áður hefur verið og góð leið til að byrja haustannir. Hátíðin sem áður hefur verið eingöngu með dagskrá á laugardegi er óðum að færa sig yfir á föstudag, með súpukvöldi, brennu og brekkusöng og harmonikku-fjölskyldudansleik í Hvolnum....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Heiðursgestur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2011 er danska kvikmyndagerðarkonan Lone Scherfig. Hún hlýtur Heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listræna sýn. Verðlaun þessi verða veitt í nafni Frú Vigdísar Finnbogadóttur og mun afhending þeirra verða árlegur viðburður á RIFF héðan í frá....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Jafnréttisstofa býður upp á opin námskeið um kynjasamþættingu í Reykjavík og á Akureyri í september. Á námskeiðunum verður fjallað um stöðu jafnréttismála á Íslandi, í hverju kynjasamþætting felst, hvers vegna við þurfum á skipulögðu jafnréttisstarfi að halda og hvernig mögulegt er að aðlaga aðferðina að starfi þátttakenda....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði afstöðu meðlima þjóðkirkjunnar til þess hvort þeir hefðu hugsað um að segja sig úr þjóðkirkjunni á síðastliðnum mánuðum. Af þeim sem tóku afstöðu hafði rúmlega þriðjungur eða 34,4% hugleitt að segja sig úr henni á síðastliðnum mánuðum en 65,6% sögðust ekki hafa hugsað um það. ...
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Hollenska skemmtiferðaskipið Eurodam lagðist að Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Rúmlega 2.000 farþegar eru um borð í þessu glæsilega skipi, auk áhafnar sem telur 930 manns. Skipið er 86.273 brúttótonn og ganghraði 24 sjómílur. Nú þegar september gengur í garð fer heimsóknum þessara tignarlegu fararskjóta hingað til lands að ljúka þetta árið.
...
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Á Ljósanótt þann 2. september nk. ætlar ungt par úr Reykjanesbæ, fótboltakappinn Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, að ganga í það heilaga. Undirbúningur brúðkaupsins er liður í dagskrá Ljósanætur en gestum er boðið að fylgjast með förðun og hárgreiðslu á veitingastaðnum í Duus húsi frá kl. 10.00 til 14.00. ...
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Tryggvi Björn Davíðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Markaða hjá Íslandsbanka og hefur hann störf í dag. á Tryggvi hefur mikla starfsreynslu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Undanfarin sjö ár hefur hann unnið hjá Barclays Capital í Lundúnum og meðal annars unnið að frumgreiningu fjárfestingatækifæra....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Úthlutað er 281.248 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 261.100 þorskígildistonn á sama tíma í fyrra, reiknað á þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð. Alls fá 612 skip úthlutað aflamarki í ár, fiskveiðiárið 2011/2012, samanborið við 637 skip fiskveiðiárið 2010/2011. Mest fer til Kaldbaks EA 1 sem gerður er út frá Akureyri, um 8.200 þorskígildistonn eða 2,9% af úthlutuðum þorskígildum. HB Grandi er það útgerðarfyrirtæki sem fær mesta úthlutun, líkt og í fyrra, eða 10,4% af heildinni, næst kemur Samherji með 6,22% og þá Þorbjörn hf. með 5,58%....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Frumtak hefur fest kaup á hlut í DataMarket ehf.. Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins og þriggja banka. Frumtak fjárfestir í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir....
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Samtök mjólkur- og kjötvinnslufyrirtækja sem starfa innan Samtaka Iðnaðarins, SMK, sendi í gær frá sér ályktun þess efnis að leggja beri aðildarumsókn að Evrópusambandinu til hliðar við þá miklu óvissu um sem nú ríkir, bæði um myntsamstarfið, uppbyggingu og innra skipulag ESB. Þar segir að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins horft til framtíðar. Formaður samtakanna er Guðni Ágústsson, fyrrum landbúnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
MP banki og Saga Fjárfestingarbanki hafa gengið frá samkomulagi um kaup MP banka á fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka. Í því felst þjónusta og ráðgjöf varðandi kaup, sölu og samruna fyrirtækja sem og fjármögnun fyrirtækja og stofnana, umsjón með útboðum og skráningu verðbréfa og skylda starfsemi. ...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Gríðarleg aðsókn hefur verið í Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi. Skólinn hefur átt erfitt með að taka inn nýja nemendur og einstaka börn hafa verið lengi á biðlista. Innan Tónlistarskólans er um 540 nemendum kennt, sem dreifast nokkuð jafnt yfir alla Árnessýslu. Skólinn hefur ekki fengið hækkun að ráði á kennslukvóta sinn síðan kreppan skall á, en ekki orðið fyrir niðurskurði heldur....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Flugfélagsins Ernir hefur í hyggju að hætta flugi til og frá Sauðárkróki frá og með 1. janúar næst komandi. Í dag er flogið fimm sinnum í viku til og frá Sauðárkróki. Á sunnudögum, þriðjudögum (tvær ferðir), fimmtudögum og föstudögum. Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu og markaðsstjóri flugfélagsins Ernis á Sauðárkróki, staðfesti þetta í samtali við fréttavefinn Feyki í dag....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Svokallaðar rafmagnsvespur hafa sést á höfuðborgarsvæðinu í auknum mæli í sumar. Því miður virðast sumir ekki gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að stjórna slíku farartæki, líkt og sést á meðfylgjandi mynd. Á henni eru þrír unglingar á einni rafmagnsvespu, sem ekið er á akbraut og á móti umferð. Hér hefði getað farið mjög illa! Lögreglan hvetur foreldra og forráðamenn til að ræða við börn sín um þær hættur sem leynast í umferðinni og hvað sé leyfilegt og hvað ekki....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Sunnudaginn 4. september kl. 16 halda þær Ásta María Kjartansdóttir sellóleikari, Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanóleikari og Lilja Guðmundsdóttir sópransöngkona tónleika í Selinu á Stokkalæk. Þær eru allar í tónlistarnámi erlendis. Lilja og Ásta eru einu íslensku nemendurnir í Konservatorium Wien í Austurríki og Ingileif stundar píanónám í Freiburg í Þýskalandi....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar er haldin um helgina og lýkur með lýsingu Bergsins og glæsilegri flugeldasýningu. Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða hefur aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi. Áhersla er lögð á viðamiklar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Það er ekkert verið að tvínóna við hlutina þegar Hamingjudagar eru annars vegar, en fyrsti dagskrárliður fyrir árið 2012 hefur þegar verið negldur niður. Það er Hamingjuhlaupið margfræga sem hefur vaxið og dafnað með hverju ári, enda geta allir tekið þátt og hlaupið í takt við eigin getu. Að sögn Stefáns Gíslasonar, skipuleggjanda og upphafsmanns hlaupsins, mun hlaupið 2012 hefjast við Minja- og handverkshúsið Kört við Árnes í Trékyllisvík,...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Þessa dagana eru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar að taka inn nýja meðlimi og eru margar sveitir með kynningarfundi fyrir væntanlega félaga í þessari viku. Undanfarin ár hefur fjöldi þeirra sem hefja þjálfun hjá björgunarsveitum aukist mikið, sérstaklega hjá sveitum á höfuðborgarsvæðinu og í stærri bæjum. Fólk á ýmsum aldri með afar víðtæka menntun og reynslu sækist nú eftir að gerast sjálfboðaliðar og taka þátt í starfinu. ...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Í júlí 2011 voru 97 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 49 fyrirtæki í júlí 2010, sem jafngildir tæplega 98% fjölgun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Fasteignaviðskiptum. Fyrstu 7 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 938 sem er um 55% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 604 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Í Efstaleiti 7 er að finna göngudeild SÁÁ í glæsilegu 1.500 fm húsi sem hýsir auk göngudeildarinnar, skrifstofur samtakanna, rannsóknarstarf og forvarnadeild. Þar er og að finna forláta sal sem verður nýttur í haust undir bullandi sveitta rokktónleika. Helstu og merkustu sveitir íslenskrar tónlistar leika hvern þriðjudag í haust, en dagskrárstjóri er Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður og poppfræðingur. Benni Hemm Hemm og Prinspóló ríða á vaðið...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Bird Fair er árleg hátíð fuglaskoðara þar sem yfir 20.000 manns koma víðsvegar að úr heiminum til að kynnast því nýjasta í greininni sem sýnendur hafa upp á að bjóða, sem að þessu sinni voru 300 talsins. Íslandsstofa skipulagði á dögunum þátttöku í sýningunni Bird Fair á Englandi sem er stærsta fuglaskoðunarsýning í Evrópu....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Lynx - björgunarþyrla danska flotans varð fyrir óhappi í lendingu að eftirlitsskipinu Hvidbjørnen þar sem skipið var statt við bryggju í flotastöð danska sjóhersins í Grønnedal á Grænlandi mánudaginn 22. ágúst sl. Áhöfn og farþega þyrlunnar sakaði ekki en björgunarþyrlan er hinsvegar óflughæf og hefur verið flutt til Danmerkur til rannsóknar....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Á annan veg, kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, verður frumsýnd í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri eftir þrjá daga. Myndin var forsýnd í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði um helgina við frábærar viðtökur. Kvikmyndahátíðin í San Sebastian hefur boðið Á annan veg til þátttöku á hátíðinni í ár en hún fer fram 16. - 24. september á Spáni....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Þessa dagana ber vel í veiði í hinum ýmsu ám landsins. Fyrsta maðkahollið byrjaði í Ytri Rangá eftir hádegi í gær, en sú vakt gaf 108 laxa og endaði dagurinn í alls 155 löxum. Í morgun voru 80 laxar komnir á land svo það gera 188 laxar fyrsta daginn í maðkahollinu. Fluguveiðihollin á undan voru að gefa að meðaltali 70 laxa á dag. Á þessu sést að laxinn er sólginn í maðkinn....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Þann 29. ágúst stóð sjósundfélag lögreglunnar fyrir minningarsundi Eyjólfs Jónssonar frá Ægissíðunni að Bessastöðum. Lagt var upp með að synda stystu leið eða 2,5 km, en við athugun á korti að sundi loknu virðist sem vegalengdin hafi verið um 2,85 km þar sem komið var að landi. Að þessu sinni þreyttu þeir Jón Kristinn Þórsson og Arnþór Davíðsson sundið. Hitastig var tæpar 12 gráður....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Bændasamtök Íslands hafa birt lista yfir fjár- og stóðréttir haustið 2011 á vef sínum. Það er Ólafur Dýrmundsson ráðunautur sem hefur tekið listann saman. Samkvæmt upplýsingum Bændasamtakanna verða fyrstu fjárréttir haustsins laugardaginn 3. september nk. en þá verður réttað á sex stöðum norðanlands, í Eyjafirði, Skagafirði og Húnavatnssýslum. Fyrsta stóðrétt haustsins verður einnig sama dag, Miðfjarðarrétt í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. ...
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Forkynning á drögum að deiliskipulagi nýs Landspítala fer fram næstu daga og standa vonir til þess að deiliskipulagið öðlist gildi með vorinu. Deiliskipulagsdrögin taka til framtíðarskipulags bygginga fyrir Landspítala, Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum á Landspítalalóðinni við Hringbraut og eru þau grundvölluð á tillögu SPITAL hönnunarhópsins sem bar sigur úr bítum í skipulags- og forhönnunarsamkeppni árið 2010....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Kona á þrítugsaldri var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Hún var í annarlegu ástandi en í fórum hennar fundust fíkniefni. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð, en hún hafði þegar verið svipt ökuleyfi....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Íslandssjóða hf., dótturfélagi Íslandsbanka, sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2011. Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2011. Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2011 er 98 m.kr. samanborið við 124 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Landssamband kúabænda hefur aflað upplýsinga um framleiðendaverð á nautakjöti í nálægum löndum, eins og Danmörku, Noregi og Norður-Írlandi. Ef dæmi er tekið um skrokk af ungnauti sem fellur í R 3 flokk (góða holdfyllingu með meðalfitu) sem vegur um 250 kg er verðið til bóndans eins og sjá má á myndinni hér að neðan. Í Noregi er það lang hæst, 850 kr/kg (40,05 NOK) en svipað á Norður-Írlandi og Danmörku, 564 og 574 kr/kg (3,02 GBP og 25,95 DKK). ...
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað færslu fjárveitinga á milli ára í málaflokkum félagsþjónustu og fræðslu– og uppeldismála. Góður rekstur á árinu 2010 gefur svigrúm til að færa rekstrarafgang þessara málaflokka yfir á núverandi fjárhagsár og nema upphæðirnar 12 milljónum króna til fjölskyldu– og búsetudeildar og 10 milljónum króna til skóladeildar....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vill af gefnu tilefni vekja athygli á að opið er fyrir innflutning nautakjöts á lækkuðum tollum. Hefur heimildin sem rennur út 30. september næstkomandi verið í gildi frá því 10. júní á þessu sumri. Upphaflega átti opinn tollkvóti í nautakjöti að vera í gildi til 30. júlí en vegna aðstæðna á markaði var heimild til innflutnings framlengd til 30. september. Um er að ræða almenna heimild sem jafnt heildsalar sem veitingahús í landinu nýta sér um þessar mundir....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Þann 7. nóvember næstkomandi kemur platan SÓLARIS út á vegum Bedroom Community. Um er að ræða tónverk eftir Ben Frost og Daníel Bjarnason en íslenskur frumflutningur á verkinu var á Listahátíð í Reykjavík í júní síðastliðnum. Það var Unsound hátíðin í Kraká sem pantaði verkið í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá útgáfu skáldsögunnar Solaris eftir pólska rithöfundinn Stanislaw Lem, en verkið er unnið fyrir Krakársinfóníettuna....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Anna Ólöf Kristófersdóttir siglingakona fékk styrk frá Alþjóða Ólympíuhreyfingunni til að sækja 8 vikna námskeið hjá "Rockley Academy" í Bretlandi frá 5. september til 28. október næstkomandi. Þetta er mikill hvalreki fyrir þessa ágætu íþróttagrein og mun Anna Ólöf nýta sér þessa þekkingu þegar hún kemur heim til Íslands aftur eftir námskeiðið. ...
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Leikskólasvið Reykjavíkurborgar hefur gefið út nýja bæklinga á átta tungumálum um leikskóla og aðra dagvistun. Þá er kominn út bæklingur sem miðar að því að efla foreldrasamstarf og heitir "Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið". Bæklingarnir eru aðgengilegir í rafrænni flettiútgáfu og prentútgáfu. Þróunarsjóður innflytjendaráðs styrkti útgáfuna. Verkefnisstjóri fjölmenningar á Leikskólasviði er Fríða Bjarney Jónsdóttir....
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Á aukafundi í bæjarráði Hafnarfjarðar í gær var kynnt uppgjör bæjarsjóðs fyrir fyrri hluta ársins. Þar kemur m.a. fram að
rekstrarniðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði er jákvæð um tæpar 576 millj.kr. og rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um 886 millj.kr. Fjármagnsliðir hafa aftur á móti neikvæð áhrif á heildarniðurstöðu reikninganna vegna óhagstæðrar gengis- og verðlagsþróunar á tímabilinu. Rekstrarafkoma A hluta eftir fjármagnsliði var neikvæð um 580 millj.kr. og rekstrarafkoma A og B neikvæð um 751 millj.kr. ...
Tíminn | 30.08.2011 |
Ritstjórn
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudag, að tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, að hafin yrði vinna við hættumat fyrir eldgos á Íslandi. Um viðamikla vinnu er að ræða sem gróflega er áætlað að taki 15 – 20 ár í heildina en fyrsti áfanginn er verkefni til þriggja ára....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Íslandsmeistaramót EFSA (Evrópusamband sjóstangveiðimanna) fór fram utan við Grindavík um helgina. Þar veiddust á sjóstöng risa ufsi, langa og þorskur - þrjú Íslandsmet féllu. Ufsinn sem veiddist var 15,5 kg og 113 sm og er sá stærsti sem veiðst hefur á sjóstöng hérlendis. Langan var hvorki meira né minna en 30 kg og var 165,5 sm á lengd sem er met og þorskurinn vigtaði 21,5 kg og var 138 sm og er sá stærsti sem veiðst hefur á félagsmóti EFSA og á sjóstangveiðimótum hér á landi....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Á morgun, þriðjudaginn 30. ágúst, kl. 09:00, verður sett í Öskju, húsi náttúruvísinda við Háskóla Íslands, alþjóðleg ráðstefna um jökla og loftslagsbreytingar á Himalajasvæðinu. Ráðstefnuna sækja vísindamenn og sérfræðingar frá Kína, Indlandi, Nepal, Pakistan og Tadsjikistan sem og frá háskólum og rannsóknarstofnunum á Íslandi, í Bandaríkjunum, Kanada og nokkrum Evrópulöndum. Hún stendur dagana 30. ágúst til 1. september og henni lýkur með vettvangsferð um jökla og gosstöðvar á Suðurlandi....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-39 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Sandgerðisdagar voru haldnir hátíðlegir í Sandgerði í síðustu viku og lauk formlega í gær og þótti hátíðin takast vel. Fjölmargir gestir lögðu leið sína í Sandgerði um helgina. Götur og hús bæjarins voru skreytt með gulum, rauðum, bláum og grænum litum. Það var greinilegt að hugmyndaflugið var mikið hjá bæjarbúum ef marka má myndir frá skreytingum á vef hátíðarinnar sem má sjá HÉR....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Heimildarmyndin The David Suzuki Movie verður sýnd á RIFF 2011. Myndin er samantekt á ævi og hugmyndum kanadíska vísindamannsins og umhverfissinnans David Suzuki og er henni leikstýrt af Vestur-Íslendingnum Sturlu Gunnarssyni. Báðir sækja þeir RIFF heim í tilefni af sýningu myndarinnar....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn á Selfossi höfðu afskipti af ökumanni bifreiðar vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Ástæða þótti til að gera leit að fíkniefnum í bifreiðinni. Til þess var fenginn fíkniefnahundur og gaf hann vísbendingu um að undir ökumannssæti væru fíkniefni. Í ljós kom að þar fannst dós með smurbætiefni....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Endurreisnaráætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og íslenskra stjórnvalda er nú formlega lokið eftir samþykkt lokaendurskoðunar áætlunarinnar í síðustu viku. Heildarlánveiting sjóðsins í tengslum við áætlunina nemur jafnvirði 255 milljörðum króna. Greining Íslandsbanka ber stöðu og horfur í efnahagslífinu saman við þá spá sem fram var sett í upphafi hennar fyrir tæpum þremur árum síðar....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, tilkynnti alþjóð fyrir viku síðan að hann væri nú kominn í alvöru megrunarkúr, nánar tiltekið íslenska kúrinn. Hann var þá 108 kg, en í morgun segir hann á Facebock síðu sinni að baðvogin hafi sýnt 106,0 kg og hefur hann því misst tvö kíló á einni viku. "Hefði líklega farið undir 106 ef ég hefði verið búinn að raka mig."...
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Eins og fram hefur komið stóðu Landssamband kúabænda, Norðlenska og Bautinn fyrir heilgrillun á nauti á Akureyrarvöku sl. laugardag. Uppátækið heppnaðist framúrskarandi vel og fengu tæplega 1.000 gestir að smakka á úrvals nautakjöti. Byrjað var að skera af gripnum um kl. 13 á laugardaginn og var óslitin röð að borðinu til kl. 16.30 er allt var upp urið....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Um helgina fór hópur vélhjólamanna inn á friðað svæði við Skógafoss. Þegar lögrelgan á Hvolsvelli kom á staðinn voru vélhjólamennirnir á bak og burt. Vitni voru hins vegar að akstrinum, einnig náðust niður skráningarnúmer þessara hjóla og er málið í rannsókn. Óheimilt er með öllu að aka inn að Skógafossi, heldur ber að leggja ökutækjum við bifreiðastæði við tjaldsvæðið á Skógum og ganga að fossinum....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Fræðsluskilti sem sýna áhugaverðar gönguleiðir og helstu staði í Gálgahrauni í Garðabæ voru afhjúpuð á dögunum. Á skiltunum eru kort sem sína fornar leiðir sem lágu um hraunið í lituðum línum og örnefni, ásamt texta um sögu svæðisins. Texti skiltanna er eftir Jónatan Garðason. ...
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Þjóðfræðistofa býður í vetur upp á lista- og fræðimannadvöl í Skelinni, sem er huggulegt lítið hús á Hólmavík. Gestir fá að dvelja húsinu í eina viku á tímabilinu 15. september 2011 - 15. desember 2011. Dvölin er að jafnaði gjaldfrjáls en öllum gestum er skylt að skila af sér framlagi undir lok dvalar í formi sýninga, tónleika, fyrirlestra, námskeiða eða öðru sem um semst við Þjóðfræðistofu....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Ævintýralandið á Borgarfirði eystri í samtarfi við Austfirska karnivalhópinn og Þorpið hafa hannað og saumað nýja álfabúninga sem varðveittir verða og nýttir í Ævintýralandinu fyrir börn sem vilja hverfa á vit ævintýranna í höfuðborg álfadrottningar Íslands. Verið er að skoða möguleika á framleiðslu og sölu á hluta af búningunum þannig að fólk geti tekið með sér minjagrip heim úr Álfalandi....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Kajak ræðararnir, Riaan Manser og Dan Skinstad, lentu báti sínum við Ávíkurána í Árneshreppi á Ströndum á laugardaginn. Þeir hófu róðurinn í kringum landið á Húsavík 27. mars og eru nú langt komnir með að loka hringnum. Þeir komu að landi í Ávíkinni sem er vík á milli Litlu og Stóru-Ávíkur og lentu við Ávíkurána um nónleytið. Það bilaði hjá þeim stýri á Hornströndum á dögunum og hefur það tafið ferðalag þeirra talsvert....
Tíminn | 28.08.2011 |
Ritstjórn
Örfáar snæuglur sjást á Íslandi á hverju ári en afskaplega sjaldgæft er að þær reyni varp hér. Aðal ástæða þess er að öllum líkindum skortur á heppilegri fæðu. Snæuglan er náttúrulega alfriðuð og þeir sem rekast á þennan sjaldgæfa fugl eru beðnir um að láta starfsmenn Náttúrustofunnar vita. Í sumar hefur frést af tveimur snæuglum á Austurlandi og fylgir hér mynd af annarri þeirra. ...
Tíminn | 28.08.2011 |
Ritstjórn
Þann 3. september næstkomandi verður opinn dagur á Laugarvatni í tilefni af aldarafmæli skólans en septembermánuði hefur verið helgaður Menntavísindasviði á afmælisárinu. Farið verður í gönguferð um staðinn þar sem gerðar verða Mullersæfingar á leiðinni og einnig verður boðið upp á námskeið í stafgöngu í samstarfi við ÍSÍ. Einnig verður boðið upp á sundleikfimi í Heilsulindinni Fontana (gömlu gufunni á Laugarvatni) og sá staður býður tveir-fyrir-einn í heilsulindina. Lindin – Bistro verður svo með tilboð á heilsuréttum og –drykkjum...
Tíminn | 28.08.2011 |
Ritstjórn
Oscar Pistorius frá Suður-Afríku varð í morgun fyrsti aflimaði einstaklingurinn til að keppa á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum ófatlaðra en mótið fer fram í Daegu í Suður-Kóreu. Hann keppti í undanrásum í 400 metra hlaupi og komst áfram í undanúrslit, hljóp á 45,39 sekúndum og var á 14. besta tímanum. Hann keppir í milliriðlum í kvöld. Oscar notar vörur frá Össuri hf....
Tíminn | 28.08.2011 |
Ritstjórn
Þeir sem ekki hafa farið í gegnum Héðinsfjarðargöngin geta upplifað það í myndbandi sem hér fylgir. Þar er ekið á 160-180 km hraða í gegnum göngin, eða þannig. Keyrt er í gegnum Héðinsfjarðargöng, frá Siglufirði til Ólafsfjarðar, með upptökuvél og er myndbandið sýnt á 2.5x hraða....
Tíminn | 28.08.2011 |
Ritstjórn
211 dagforeldrar (dagmömmur) eru nú að störfum í Reykjavík og hafa ekki verið fleiri síðan árið 2002. Á árinu 2010 voru að jafnaði 180 dagforeldrar að störfum í borginni, en hefur nú fjölgað um þrjátíu. Engu að síður skortir dagforeldra í einu borgarhverfi, Vesturbæ, þar sem minnst nýliðun hefur verið. Þá eru biðlistar hjá dagforeldrum í Laugardal og Háaleiti, enda þótt dagforeldrum þar hafi fjölgað um átta. Í öllum öðrum hverfum eru laus pláss hjá dagforeldrum, ...
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Vegna nýs kjarasamnings við félagsmenn í Félagi leikskólakennara þarf Sveitarfélagið Árborg líklega að hækka leikskólagjöldin sín. Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs Árborgar, segist ekki geta útilokað hækkun. "Einhverjar hækkanir eru ekki útilokaðar en stefnt er að því að fullnýta leikskólarýmin og forðast fækkun leikskólarýma í leikskólunum í Árborg“, sagði Eyþór í samtali við DFS (Dagskráin, fréttablað Suðurlands)....
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Soul söngvarinn og "eighties" stjarnan með fallegu sálarröddina Paul Young mun, ásamt hljómsveit, halda sannkallaða stórtónleika í Eldborg Hörpu þann 4. október næstkomandi. Hann átti m.a. fjórtan smelli sem komust ofarlega á vinsældarlista Bretlands og víðar og þar má meðal annars nefna Everytime You Go Away, Senza Una Donna og Don't Dream it's over. ...
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, verður sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í september næstkomandi. Eldfjall er fyrsta íslenska myndin sem valin er til keppni á RIFF. Hún keppir við ellefu aðrar kvikmyndir í flokknum Vitranir (e. New Visions).Með sýningu myndarinnar er brotið blað í sögu RIFF því aldrei áður hefur íslensk mynd verið valin í aðalkeppnisflokk hátíðarinnar, Vitranir, en í þann flokk koma aðeins til greina myndir sem eru fyrsta eða annað verk höfundar....
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Upplýsingamiðstöðin og Pósturinn í Hveragerði hefur nú opnað á nýjum stað í Verslunarmiðstöðinni við Sunnumörk. Margir viðskiptavinir hafa undanfarið gripið í tómt þegar komið er á gamla staðinn og fólk jafnvel óttast að þjónustan væri horfin af vettvangi. Slíkt er þó alls ekki raunin heldur hefur Upplýsingamiðstöðin fengið allt annað og betra yfirbragð....
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Varp margra fugla gekk óvenju illa sumarið 2011 vegna fæðuskorts og slæms tíðarfars. Haförninn átti sömuleiðis í nokkrum vandræðum en þó gekk arnarvarp vonum framar því 29 ungar komust á legg úr 19 hreiðrum. Varpárangur þar sem varpið heppnaðist var mjög góður og komust nú þrír ungar á legg úr einu hreiðri, sem er afar sjaldgæft....
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Heildar raforkukostnaður hjá heimilum landsins hefur hækkað umtalsvert frá því í júní 2010. Mest er hækkunin hjá viðskiptavinum Orkuveitu Reykjavíkur, en heildar raforkukostnaður þeirrra hefur hækkað um 26% miðað við 4.000 kWst. notkun á ári. Kostnaður hjá heimilum á svæði HS orku hefur hækkað minnst eða um 4% m.v. sambærilega notkun. Eru þessar hækkanir til komnar bæði vegna hækkunar á rafmagni og dreifingu hennar....
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð samkvæmt flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll kl. 04.51 í morgun, eftir að tilkynnt hafði verið um reyk í flugstjórnarklefa. Um var að ræða Boing 767 frá United Airlines sem var á leið frá Washington til London. Um borð voru 181 manns. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli heilu og höldnu kl. 05.19 og var hættustigi þá aflétt...
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Rúmar 23 milljónir söfnuðust í söfnunarþætti átaksins "Á allra vörum" sem sýndur var í beinni útsendingu á Skjá einum í gærkvöld. Safnað var fyrir hjartaómskoðunartæki fyrir Barnaspítala Hringsins, en tækið hefur fengið nafnið Hjörtur. Einnig höfðu áður safnast 15-20 milljónir króna með sölu á varaglossi á undanförnum vikum. Áhorfendur sendu inn tillögur af nafni fyrir hjartaómskoðunartækið og var stungið upp á fleiri hundruð nöfnum...
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Forseti Litháens, dr. Dalia Grybauskaitë, sem er í opinberri heimsókn hér á land i, heimsótti Höfða í morgun. Tilefnið var að í dag eru liðnir nákvæmlega tveir áratugir frá því að utanríkisráðherrar Íslands og Litháen staðfestu með undirritun að Íslendingar viðurkenndu fullt og óskorað sjálfstæði Litháa og annarra Eystrasaltsþjóða. Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, buðu til athafnarinnar....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Byr hf. hefur birt ársreikning sinn fyrir árið 2010. Hagnaður varð af rekstri Byrs hf. á rekstrartímabili bankans árið 2010 að fjárhæð 1.109 millj. kr. eftir skatta samkvæmt rekstrarreikningi. Uppgjör Byrs hf. fyrir árið 2010 er byggt á rúmlega átta mánaða tímabili, sem hófst 23. apríl 2010 og lauk 31. desember 2010....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Snákur var haldlagður í húsi í Hafnarfirði í gær en dýrið var síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir. Í húsnæðinu var jafnframt að finna kannabisræktun en lagt var hald á nokkra tugi kannabisplantna, auk græðlinga. Lögregla tók einnig í sína vörslu kannabisefni sem fundust á fleiri stöðum í húsinu, sem og ýmsan búnað sem tengdist kannabisræktuninni....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Í tilefni af 25 ára afmælis Landssamband kúabænda býður sambandið, í samvinnu við Norðlenska og Bautann, gestum Akureyrarvöku að gæða sér á heilgrilluðu nauti á morgun, laugardaginn 27. ágúst milli kl. 13 og 15. Grillið verður staðsett á bílastæðinu við Skipagötu í miðbæ Akureyrar....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Hreppsnefnd Árneshrepps hefur orðið við ósk bænda í hreppnum um að seinka leitum um eina viku frá því sem venjulegt er. Bændur telja að á viku geti beit lagast fyrir féð sem kemur af fjalli. Heyskapur tafðist vegna kulda sem herjaði á landið í vor og í byrjun sumars. Tún eru lítið farin að spretta aftur eftir heyskap og sumir bændur eiga ennþá eftir að slá seinni slátt. Fé er gjarnan haft á beit í um hálfan mánuð áður en slátrun hefst. ...
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 24. ágúst að gefa út tómstundaávísanir fyrir börn í sveitarfélaginu. Ákveðið var að gefa út tvær 15.000,- kr. ávísanir fyrir hvert barn með lögheimili í sveitarfélaginu. Önnur gildir fram til áramóta, hin frá áramótum til ágústloka 2012. Hugmyndin er að ungmenni velji það starf sem þau kjósa að taka þátt í....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Vefurinn www.aba.is var upphaflega upplýsingavefur um eyfirska báta og bátasmiði, en fljótlega var leitað fanga beggja vegna Eyjafjarðar og nær vefurinn nú yfir svæðið frá Horni að Fonti á Langanesi. Heimasíðunni var hrundið úr vör með það að leiðarljósi að safna saman öllu því, sem vitað er um bátasmíðar á svæðinu. Vefurinn hefur það fram yfir bók að hann er gagnvirkur á þann hátt að lesandinn getur lagt sitt af mörkum til að koma á framfæri þekkingu sinni á þeim málum, sem vefurinn fjallar um. ...
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Næsta sunnudag, 28. ágúst, verður afmælishátíð í Reykjaskóla í tilefni af 80 ára afmæli skólans. Reykjaskóli eða Héraðsskólinn að Reykjum í Hrútafirði er skóli sem stendur á Reykjatanga við austanverðan Hrútafjörð í Vestur-Húnavatnssýslu. Allar byggingar skólans verða opnar gestum og gangandi. Hátíðardagskrá hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 15:00. Þar á eftir sjá kvenfélagskonurnar í Hrútafirði um kaffihlaðborð til kl. 17:00. ...
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Magnús Andrésson og Hallgrímur Kristinsson úr Flugbjörgunarsveitinni klifu Mount Kazbek í Georgíu á dögunum og með þeim voru fimm starfsmenn Vodafone á Íslandi. Að auki voru með hópnum tveir innlendir leiðsögumenn. Alls tók ferðin um viku en nokkrir dagar fóru í hæðaraðlögun eins og eðlilegt er. Af þeim sem reyna við fjallið ná um 40% á tindinn sem segir nokkuð um erfiðleikastigið....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Einar Clausen söngvari hlaut í gær umhverfisviðurkenningu umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogsbæjar fyrir að nota hjólreiðar sem aðalsamgöngumáta sinn síðastliðin fimmtán ár. Einar hjólar um fimm þúsund kílómetra á ári eða um 13 kílómetra á dag að jafnaði. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í anddyri Salarins og gerði Einar sér lítið fyrir og söng tvö lög við athöfnina við undirleik vinar síns Jónasar Þóris píanóleikara....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Hásumri yfir Norðurslóðum er lokið að sinni, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur á bloggi sínu í dag. "En undanfarna daga hefur mikil hitabylgja plagað suma evrópubúa, hiti hefur jafnvel nálgast met á Norður-Ítalíu. Snarpt lægðardrag sem á laugardaginn verður yfir Norðursjó á að skafa hlýja hrygginn (sem valdið hefur hitabylgjunni) til austurs....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum bárust starfsfólki Náttúrufræðistofunnar Kópavogs fregnir af drekaflugu á sveimi í húsagarði við Kambsveg í Reykjavík, skammt frá Sundahöfn. Drekaflugan náðist ekki en heimilisfólkið náði ágætum ljósmyndum af henni. Ekki var hægt að greina hana til tegundar af ljósmyndunum en af þeim má ráða að um 10 cm langt dýr var að ræða....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið, í ljósi hagfelldra aðstæðna á útflutningsmörkuðum, að hækka verð á mjólk umfram greiðslumark sem fer til útflutnings. Fyrir fyrstu 2% umfram greiðslumarkið verða greiddar 50 kr/ltr og 40 kr/ltr fyrir allt umfram þau 2%. Síðustu 12 mánuði (júlí 2010-júní 2011) nam framleiðslan innanlands 122,2 milljónum lítra, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag beiðni Regínu Ásvaldsdóttur, skrifstofustjóra og staðgengils borgarstjóra, um lausn úr starfi. Hún hefur gegnt starfi skrifstofustjóra borgarstjóra frá byrjun árs 2008. Hún hefur ennfremur starfað sem sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs borgarinnar og gegnt framkvæmdastjórastöðu í Miðgarði, fjölskylduþjónustu í Grafarvogi....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Aðfararnótt 24. ágúst s.l. var farið inn í all nokkrar bifreiðar í Glerárhverfi á Akureyri og stolið þaðan ýmsum smáhlutum svo sem verkfærum, mótorhjólahjálmi og smápeningum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Allar voru bifreiðar þessar ólæstar. Í einni bifreiðinni komst þjófurinn yfir húslykla sem hann notaði til að fara inn í hús þar sem hann stal tösku og veskjum með gjaldeyri að andvirði rúmlega 100.000 krónur....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Matthías Grindvík Guðmundsson umsjónarmaður Grunnskóla Grindavíkur til 30 ára hefur látið af störfum. Við skólasetningu í vikunni þakkaði Páll Leó Jónsson skólastjóri honum fyrir frábært starf í þágu skólans. Páll Leó afhenti honum kveðjugjöf frá skólanum og sagði m.a....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Vel heppnað kósý kvöld kvenna var haldið í sundlauginni í Sandgerði í vikunni í tilefni Sandgerðisdögum og var fjölmennt. Boðið var upp á glæsilegar veitingar og þjónuðu strákarnir í meistaraflokki Reynis konunum og fórst það vel úr hendi....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Þrjú olíufélög hafa lækkað verð á eldsneyti nú í morgun um allt að 13 krónur á hvern lítra. N1 reið á vaðið og lækkaði verð á lítra í 219,70 krónur. Atlantsolía fylgdi í kjölfarið og er með lítrann á 219,50 og síðan kom Orkan með verð upp á 219,40 á lítrann. Sama verð er á díselolíu hjá þessum olíufélögum. Þessu til viðbótar fá almennir lykilhafar aukaafslátt af eldsneytiskaupum....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra naut þess í vikunni að fá vetnisrafbíl til afnota. Bifreiðin sem er að gerðinni Hyundai Tucson ix35 er splunknýr og í fullri stærð. Vetnisrafbílinn er hér á vegum skandinavísku vetnisvegasamtakanna (SHHP) og Íslenskrar Nýorku og er koma bílsins hluti af bílaprófunum Hyundai á vetnisrafbílum á Norðurlöndunum. ...
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Á laugardaginn fer fram opnun skógarins að Fossá í Hvalfirði, þar sem hann verður formlega tekinn inn í verkefnið Opinn skóg. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun opna skóginn formlega klukkan 14:00. Auk þess mun Vigdís Finnbogadóttir vera viðstödd vígslu Vigdísarlundar í skóginum....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst er 380,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,26% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 361,2 stig og hækkaði um 0,36% frá júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,0% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,5% verðbólgu á ári...
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Á stjórnarfundi félags sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu sem haldinn var þann 22. ágúst síðastliðinn var samþykkt ályktun þess efnis að bændur fari fram á að fá stærri sneið í sinn hlut vegna hærri útflutningstekna á lambakjöti og hækkandi verðs á gærum undanfarin tvö ár. Segir stjórnin það jafnframt sanngjarna og málefnalega kröfu sauðfjárbænda að fá hærra meðalverð fyrir afurð sína....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Í túninu heima, bæjarhátíð Mosfellsbæjar, hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin. Meðal nýjunga á hátíðinni í ár eru litboltavöllur og lazer-tag auk þess sem stefnt er á að setja íslandsmet í planki á setningarhátíðinni á Miðbæjartorgi föstudagskvöld.
Þá er í fyrsta sinn í ár boðið upp á aðstöðu fyrir tjöld, hjólhýsi og húsbíla því nýtt tjaldstæði hefur verið tekið í notkun við Varmárskóla. Ókeypis aðgangur verður að tjaldstæðinu á bæjarhátíðinni....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs samþykkti eftirfarandi ályktun samhljóða á fundi sínum í gær.
"Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs gagnrýnir harðlega þá ákvörðun iðnaðarráðherra að setja stjórn Byggðastofnunar af og skipa nýja í hennar stað þvert á óskir VG. Jafnframt lýsir þingflokkurinn stuðningi við fráfarandi fulltrúa VG í stjórninni og þakkar þeim fyrir vel unnin störf....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar 2011 voru afhent síðdegis í gær í Kvikunni, menningar- og auðlindahúsi. Fern verðlaun voru afhent, en Staðarhraun 29 og Suðurvör 3 fengu verðlaun fyrir fallegustu garðana, Ásabraut 1 fyrir vel heppnað viðhald á gömlu húsi og Bláa lónið fékk verðlaun sem snyrtilegasta fyrirtækið....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
"Verði frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða að lögum munu þau stangast á við ákvæði stjórnarkrár og baka ríkinu skaðabótaskyldu. Þetta er niðurstaða lögfræðiálits sem Lögmannsstofan LEX hefur unnið að beiðni Landssambands íslenskra útvegsmanna. Þá er frumvarpið ávísun á gjaldþrot fjölda íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja þar sem afskrifa og gjaldfæra þarf keyptar aflaheimildir upp á rúmlega 180 milljarða króna. Þetta er niðurstaða áfangaskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte um áhrif frumvarpsins á starfandi sjávarútvegsfyrirtæki, " segir í fréttatilkynningu frá LÍÚ....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Í morgun lækkaði lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s lánshæfismat sitt á Japan og fóru einkunnir þess á langtímaskuldbindingum úr Aa2 í Aa3. Ríkissjóður Japans er skuldugri en gerist í nokkru öðru OECD-ríki og nema skuldir hans u.þ.b. tvöfaldri landsframleiðslu landsins. Þrátt fyrir þetta styrktist japanska jenið sem er öfugt við það sem búast mætti við ef um annað land og aðra mynt væri að ræða....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Skólabækur hafa lækkað í verði á milli ára, að því er fram kemur í verðkönnun sem ASÍ stóð fyrir. Gerð var verðkönnun á skólabókum fyrir framhaldsskóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu og hafa bækurnar lækkað í verði um allt að 33% frá sambærilegri könnun sem gerð var í ágúst 2010. Verð var kannað á 23 algengum kennslubókum sem framhaldskólanemar þurfa að kaupa. Verð bókanna hækkaði mest hjá Pennanum Eymundsson milli ára en lækkaði á sama tíma hjá Griffli, Office 1 og Iðnú. Verðmunur milli verslana hefur aukist á milli ára....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Héraðshátíð Framsóknarmanna verður haldin laugardaginn 27. ágúst á Mælifelli á Sauðárkróki. Dagskráin hefst klukkan 19:00 með grillveislu og lýkur með dansleik þar sem hljómsveit Geirmundar Valtýssonar heldur uppi fjörinu. Skráning í grill hjá Ásgrími s. 893-1738 eða Gunnari s. 848-0285 fyrir föstudagskvöld....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Forseti Litháens dr. Dalia Grybauskaitė kemur í opinbera heimsókn til Íslands á morgun, fimmtudaginn 25. ágúst. Á öðrum degi heimsóknarinnar verða liðin nákvæmlega 20 ár frá því að Íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna fullt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja. Í heimsókn forseta Litháens verður þeirra tímamóta minnst með ýmsum hætti, m.a. með sérstakri athöfn í Höfða að morgni föstudagsins 26. ágúst en þar undirrituðu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna og Íslands samkomulag þessa efnis 26. ágúst 1991....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Í gær undirrituðu samningamenn Alcan og átta stéttarfélaga nýjan kjarasamning vegna starfsmanna í álverinu í Straumsvík. Nýi samningurinn gildir til ársloka árið 2014. Samningurinn verður nú borinn undir atkvæði starfsmanna og á niðurstaða að liggja fyrir eigi síðar en 8. september n.k. Starfsmenn Norðuráls eru hins vegar sárir og reiðir vegna þeirra tíðinda sem bárust af samningafundi á mánudag, ...
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Eins metra langur urriði veiddist nýverið í Minnivallalæk er holl erlendra veiðimanna var þar á ferð. Sannaðist þarna að lengd og þyngd haldast ekki alltaf í hendur, því fiskurinn vóg þrátt fyrir allt „aðeins“ 7 kg, eða 14 pund! Frá þessu var greint í fréttatilkynningu frá Strengjum, leigutaka Minnivallalækjar. ...
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Nýlega kom út grein um uppruna og eðli sandefna á Dyngjusandi norðan Vatnajökuls og Lambahrauni sunnan Langjökuls. Greinin birtist tímaritinu Earth Surface Processes and Landforms. Rannsóknirnar var unnið á vegum franskra aðila í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands. Rannsóknirnar fóru m.a. fram til þess að skýra aðstæður og ferli sem eiga sér stað á Mars, þar sem líkindi á milli aðstæðna á sandauðnum á Íslandi og á Mars eru að töluverðar....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Viðey í Þjórsá verður friðlýst í dag, miðvikudaginn 24. ágúst, að ósk landeigenda. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, mun undirrita friðlýsinguna í umhverfisráðuneytinu klukkan 15. Eyjan er 3,37 ha að stærð og verður friðlýst sem friðland. Með friðlýsingu Viðeyjar í Þjórsá er verið að styrkja líffræðilega fjölbreytni vistgerða og vistkerfa svæðisins með því að vernda tegundir plantna og annarra lífvera ásamt erfðaauðlindum sem tegundirnar búa yfir og búsvæði þeirra....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Frá því í ágúst í fyrra hafa 189 einstaklingar eignast lögheimili í Sandgerðisbæ og í gær var öllum nýjum Sandgerðingum boðið til kynningar og móttöku í Vörðunni. Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri bauð gesti velkomna og fræddi þau um bæjarfélagið. Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar sagði frá sögu Sandgerðis og frá bæjarhátíðinni, Sandgerðisdagar, sem hefur þann megintilgang að íbúar eigi saman skemmtilega daga og styrki böndin sín á milli....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi samþykkti í dag ályktun í tilefni af úrsögn Guðmundar Steingrímssonar þingmanns úr Framsóknarflokknum. Þar er Guðmundi m.a. þakkað fyrir samstarfið og óskað velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Hér á eftir fer ályktun KFNV:...
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður, segir á bloggsíðu sinni að hann hafi nú formlega sagt sig úr Framsóknarflokknum og um leið þingflokki flokksins. Hann segir að "Grænn, alþjóðlega sinnaður, víðsýnn, frjálslyndur flokkur þarf að verða til á Íslandi." Þá segist hann vilja berjast fyrir lýðræðisumbótum, líkt og þeim sem boðaðar eru í nýju frumvarpi til stjórnarskrár, sem fela í sér aukin völd til fólks og aukið traust á fólki....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sólheima í Grímsnesi gegn íslenska ríkinu til Hæstaréttar. Ráðherra kynnti ákvörðunina á fundi ríkisstjórnar í dag. Sólheimar höfðuðu málið vegna 4% skerðingar fjárframlags til stofnunarinnar árið 2009. Krafist var viðurkenningar á því að skerðingin væri ólögmæt og til vara að um væri að ræða vanefnd þjónustusamnings ríkisins við Sólheima....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Mörgum hefur verið tíðrætt um ljósin í glerhjúp Hörpunnar og sitt sýnist hverjum. Húsið var formlega vígt á menningarnótt sl. laugardag og ljósin þá tendruð í fyrsta skipti. Glerhjúpurinn er sköpunarverk Ólafs Elíassonar listamanns og hans fólks, sem kunnugt er. Tónlistin sem fylgir myndskeiðinu er Meditation, fiðlutónarnir sem spilaðir eru milli atriða í öðrum þætti óperunnar Thaïs eftir Jules Massenet. ...
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Töluvert meira var að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið, en vikuna þar á undan. Lögreglan þurfti að sinna ýmsum útköllum vegna ölvunarástands. Um var að ræða ágrening milli aðila, bæði í heimahúsum og á skemmtistöðum bæjarins....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Boltafélag Norðfjarðar (BN) vann í gærkvöldi Knattspyrnuakademíu Hornafjarðar (KAH) í úrslitaleik bikarkeppni Launafls og UÍA í knattspyrnu. Vítakeppni þurfti til annað árið í röð. Norðfirðingar fögnuðu ákaft í lokin enda hefur lið þeirra orðið í öðru sæti keppninnar undanfarin fimm ár....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um vegagerð á Vestfjarðavegi milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, Reykhólahreppi og Vesturbyggð. Vegagerðin mun standa fyrir opnum húsum þar sem framkvæmdin og mat á umhverfisáhrifum hennar verða kynnt og tekið verður við ábendingum og athugasemdum...
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Á ársfundi Byggðastofnunar á Sauðárkróki í gær var í fyrsta sinn afhent samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, Landstólpinn. Það var Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfulltrúi Vestfjarða, sem hlaut viðurkenninguna. Í rökstuðningi kom fram að um nokkurs konar bjartsýnisverðlaun væri að ræða og að Jón hafi með störfum sínum vakið jákvæða athygli á sinni heimabyggð og verið ötull talsmaður ferðaþjónustu og menningar á Vestfjörðum....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, mætti á skrifstofu Framsóknarflokksins við Hverfisgötu klukkan 11 í morgun í fylgd fréttamanna. Erindi hans var að tilkynna Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, formlega úrsögn sína úr flokknum. Guðmundur og fréttamennirnir fóru hins vegar fýluferð því Sigmundur Davíð var staddur á þingflokksskrifstofu flokksins í Austurstræti....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sendi frá sér yfirlýsingu í morgun í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis um úthlutun tollkvóta í landbúnaði. Jón hefur töluvert verið gagnrýndur af forsvarsmönnum verslunarinnar fyrir það að breyta svokölluðum magntolli í verðtoll....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Berjaspretta virðist með minna móti þetta árið. Kemur þar aðallega til að hitastigið síðastliðið vor og fyrripart sumars var afar óhagstætt. Einnig hefur lítil rigning haft áhrif á sprettuna. Ekki eru þó allar fréttir slæmar. Svo virðist sem berjasprettan sé afar staðbundin. Vestfirðir og Dalir virðist vera það svæði á landinu sem berin hafi átt auðveldast uppdráttar....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
"Guðmundur (Steingrímsson) mun verja stjórnina falli á næsta þingi og losa þannig stjórnarmeirihlutann undan mislyndi Þráins. M.ö.o. engar fyrirsjáanlegar breytingar á samfélagi, þar sem hagsmunir fjármagnseigenda eru ráðandi. Við sogumst bara lengra niður hringiðju kreppunnar," segir Lilja Mósesdóttir alþingismaður á Facebook síðu sinni í dag....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Selfossi reyndi að stöva bíl á Biskupstungnabraut við Laugarvatnsveg vegna gruns um aðild að innbroti í sumarbústað við Úthlíð í liðinni viku. Bílstjórinn virti ekki stöðvunarmerki lögreglu heldur ók áfram áleiðis vestur Biskupstungnabraut, þaðan norður Þingvallaveg, síðan eftir Efri Grafningsvegi og loks um Nesjavallaleið en lenti út af vegi við lokun lögreglu skammt frá Suðurlandsvegi....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Á Kátum dögum í Langanesbyggð var afhjúpaður minnisvarði um skáldið Kristján frá Djúpalæk. Minnisvarðinn stendur við bæinn Djúpalæk á Langanesströnd við Bakkaflóa, þar sem Kristján var fæddur og uppalinn, en hann fæddist þann 16. júlí 1916. Það voru ættingjar Kristjáns með Hilmu Steinarsdóttur í fararbroddi sem beitti sér fyrir gerð og uppsetningu minnisvarðans....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Kjöthöllin hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað af markaði hamborgara sem framleiddir voru af fyrirtækinu og innihéldu sojaprótein án þess að upplýst væri um það í merkingum vörunnar. Soja og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður, sagði frá því í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í kvöld að hann hafi ákveðið að segja sig úr Framsóknarflokknum og ætli að sitja sem óháður þingmaður fyrst um sinn. Hann sagðist enn fremur hafa í hyggju að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Hann sagðist mjög óánægður með stefnu flokksins í Evrópumálum og væri það helsta ástæða þess að hann yfirgefi flokkinn nú....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Í lok ágúst á hverju ári klæða Sandgerðingar bæinn sinn í sparifötin og halda Sandgerðisdaga hátíðlega. Í ár verður hápunktur hátíðarhaldanna laugardaginn 27. ágúst en þó dreifist skemmtileg dagskráin á mun fleiri daga. Hátíðin hófst formlega í dag og stendur fram á sunnudag og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í þeim fjölbreyttu viðburðum sem boðið er upp á....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra var í dag viðstaddur vígslu Íslandstorgsins í Riga, höfuðborg Lettlands, ásamt Girts Valdis Kristovskis utanríkisráðherra. Á torginu var jafnframt afhjúpað minnismerki helgað því að Ísland var fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Lettlands fyrir 20 árum....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Dagbjört Brynja Harðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og tók við starfinu af Mögnu Guðmundsdóttur þann 1. ágúst 2011. Dagbjört Brynja er lýðheilsufræðingur, kennari og myndlistarkona og hefur m.a. starfað sem markaðs- og kynningarstjóri fyrir Háskólann á Akureyri....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn er í dag á Kaffi Króka á Sauðárkróki tók við ný stjórn stofnunarinnar. Þóroddur Bjarnason prófessor á hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri var kjörinn formaður stjórnarinnar. Fráfarandi formaður er Anna Kristín Gunnarsdóttir....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Félagar úr Golfklúbbi Reykjavíkur hafa heldur betur verið að gera það gott í golfinu í sumar. Þeir hafa unnið alla stóru titlana sem í boði hafa verið, fyrir utan einn. Um helgina bættust við tveir Íslandsmeistaratitlar í safn GR-inga þegar Arnór Ingi Finnbjörnsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir urðu Íslandsmeistarar í holukeppni á Hellu....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Alþjóðleg ráðstefna um mat á ógn vegna slysa í kjarnorkukafbátum verður haldin hér á landi 25.-26. ágúst. Geislavarnir ríkisins sjá um framkvæmd ráðstefnunnar í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands og meðal þátttakenda eru ýmsir sérfræðingar frá Norðurlöndum og Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni, IAEA....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins, boðar á heimasíðu sinni að hann ætli sér í megrun. Segist ætla að notast við "íslenska kúrinn". Til að veita sér aðhald og í þágu vísinda ætla hann að birta þyngdarmælingu á heimasíðu sinni á mánudögum næsta mánuðinn. Hann er í dag 108 kg....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Á föstudaginn var undirritaður samningur milli Faxaflóahafna sf. og Þórshafnar í Færeyjum um að kútterinn Westward Ho sigli til hafna Faxaflóahafna sf. árið 2012 og síðan á þriggja ára fresti eftir það. Kútter Westward Ho var byggður árið 1884. Hann er í eigu Þórshafnar en rekinn af félagasamtökunum Sluppvinir....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Hálf-íslenska umboðsskrifstofan Projekta, sem sérhæfir sig í ráðgjöf og útflutningi tónlistar, hefur fengið til sín nýjan listamann - hina bresku Gazelle Twin. Hún bætist þar í hóp með hljómsveitunum FILM, Napoleon IIIrd, Apparat Organ Quartet og Rökkurró sem einnig eru á mála hjá fyrirtækinu. ...
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Á síðsta fundi bæjarráðs Hornafjarðar kynntu starfsmenn KPMG, þeir Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnason, niðurstöður sínur um afleiðingar af minna frumvarpi um fiskveiðistjórnun 70/2011. Helstu niðurstöður KPMG um áhrif minna frumvarpsins á Hornafjörð eru að veiðheimildir dragast saman sem nemur 581 þorskígildistonni sem er um 2,3% af heildaraflamarki á staðnum. ...
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Hin árlega flugeldasýning á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 27. ágúst klukkan ellefu. Upplýstir jakar og stórkostleg flugeldasýning í magnaðri umgjörð náttúrunnar skapa einstaka upplifun og mæta hundruð manna á hverju ári til að njóta sýningarinnar. Aðgangseyrir er 1000 krónur og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Allur ágóði rennur til Björgunarsveitar Hornafjarðar sem heldur utan um sýninguna.
...
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Kómedíuleikhúsið er nú að undirbúa haustleikferð um Vestfirði og Vesturland með tvo af sínum vinsælum leikjum. Ferðaplanið er fjölbreytt en alls verða sýndar 16 sýningar á 16 stöðum á 16 dögum. Fyrsta sýning verður föstudaginn 9. september og eftir það verður sýnd ein sýning á dag allt til laugardagsins 24. september....
Tíminn | 21.08.2011 |
Ritstjórn
Íslandsmeistaramótinu í hrútadómum 2011 lauk í Sævangi á Ströndum í dag. Alls tóku fimmtíu manns þátt, þrjátíu í flokki óvanra og tuttugu í flokki vanra hrútadómara. Það var Strandamaðurinn Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum sem fór með sigur af hólmi í flokki vanra þuklara, en Guðbrandur náði öðru sæti árið 2003 og því þriðja árið 2005. Guðbrandur hlaut til varðveislu í eitt ár verðlaunagripinn Horft til himins sem er tileinkaður minningu Brynjólfs Sæmundssonar ráðunautar, auk fjölda annarra verðlauna....
Tíminn | 21.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan hafði mikinn viðbúnað í Reykjavík á menningarnótt og að venju hafði hún í nógu að snúast. Útköllum fjölgaði eftir því sem á leið á nóttina og voru þau ekki bara bundin við miðborgina. T.d. var talsvert kvartað undan hávaða frá gleðskap í heimahúsum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt en þær eru flestar, ef ekki allar, minniháttar. Einhverjir fengu að gista í fangageymslunni við Hverfisgötu en þar hefur oft verið fjölmennara....
Tíminn | 21.08.2011 |
Ritstjórn
Fyrsta skóflustungan var tekin að nýju hjúkrunarheimili við Dalbraut 1 á Eskifirði á dögunum. Það voru Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs og Árni Helgason framkvæmdastjóri Hulduhlíðar sem tóku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili að viðstöddum íbúum Fjarðabyggðar....
Tíminn | 21.08.2011 |
Ritstjórn
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ræddi evrópu- og norðurslóðamál á fundi sínum með Erkki Tuomijia, utanríkisráðherra Finnlands í Tallinn í Eistlandi í gær. Ráðherrarnir hétu því að auka samstarf þjóðanna um norðurslóðamál þar sem sérstaklega var rætt um uppbyggingu í menntun, rannsóknum og fjarkennslu. Samstarfið verði þróað áfram í vetur....
Tíminn | 21.08.2011 |
Ritstjórn
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sækir í dag, sunnudaginn 21. ágúst, minningarathöfn norsku þjóðarinnar um þá sem létu lífið í Útey og í sprengingunni við stjórnarráðsbyggingarnar. Athöfnin verður í Oslo Spektrum miðstöðinni í Osló og hefst klukkan 15:00 að norskum tíma....
Tíminn | 21.08.2011 |
Ritstjórn
Reikna má með að um og yfir hundrað þúsund manns hafi lagt leið sína í miðborgina í gærkvöld til að fylgjast með viðburðum á menningarnótt. Lögregla segir að vel hafi tekist til þrátt fyrir ölvun og líkamsárásir, en engin þeirra alvarleg. Veðrið í gær var fullkomið, hiti um 15 gráður, logn og léttskýjað. Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningarnótt í fyrra og má búast við að þeir hafi verið fleiri í ár....
Tíminn | 20.08.2011 |
Ritstjórn
Sjósunds og sjóbaðsfélag Reykjavíkur, SJÓR, var með hina árlegu sundferð fram og til baka til Viðeyjar í gær, föstudag. Veður var mjög gott og sjór tiltölulega hlýr og sléttur. Alls voru um 140 sundkappar sem þreyttu sundið aðra eða báðar leiðir. Myndir eru komnar í Myndaalbúmið hjá SJÓR og hægt að sjá myndirnar HÉR....
Tíminn | 20.08.2011 |
Ritstjórn
Félag íslenskra leikskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu á sjötta tímanum í dag nýjan kjarasamning í húsi Ríkissáttasemjara. Verkfalli leikskólakennara sem boðað var mánudaginn 22. ágúst hefur verið aflýst. Magnús Pétursson, rikissàttasemjari, segir að samningurinn marki tímamót og vonast sé til hann stuðli að bættri samvinnu Félags leikskólakennara og sveitarfélaganna....
Tíminn | 20.08.2011 |
Ritstjórn
Mikill fjöldi barna og foreldrar tóku þátt í Latabæjarhlaupinu í rjómablíðu miðborg Reykjavíkur í dag. Hlaupið var ætlað börnum 8 ára og yngri. Í gær höfðu rúmlega 3.200 börn skráð sig til þátttöku en einnig var hægt að skrá börnin í Hljómskálagarðinum í dag og var nokkur fjöldi sem nýtti sér það. Í fyrra hlupu rúmlega 3.000 börn þannig að enn eitt metið er fallið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þetta árið. ...
Tíminn | 20.08.2011 |
Ritstjórn
Veiðitímabil á grágæs og heiðagæs hófst í dag, laugardaginn 20. ágúst. Veiðar á grágæs og heiðagæs hafa verið að aukast hin síðari ár. Veiðimenn eru minntir á að endurnýja veiðikort sín enda er einungis heimilt að stunda skotveiðar á fuglum sé veiðikort meðferðis, að því er fram kemur á vef Umhverfisstofnunar....
Tíminn | 20.08.2011 |
Ritstjórn
Tæplega þrjú þúsund hlauparar voru ræstir út við útibú Íslandsbanka við Lækjargötu klukkan 8:40 í morgun þegar maraþonið, hálfmaraþonið og boðhlaupið hófst. Blíðskaparveður er í miðborginni og myndaðist mikil stemming meðal þátttakenda og áhorfenda þegar hlaupið hófst. Metþátttaka er í hlaupinu í ár en 12.213 hlauparar eru skráðir til leiks. Tæplega 1.400 erlendir hlauparar taka þátt í hlaupinu í ár og hafa þeir aldrei verið fleiri....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á Wyndham Championship PGA-mótinu sem fram fer í Greensboro, Norður-Karólínu. Ólafur lék fyrsta hringinn í gær á 68 höggum, eða 2 höggum undir pari vallar. Annan hringinn í kvöld lék hann á 70 höggum, eða pari vallar - fékk einn fugl og einn skolla og hinar holurnar lék hann á pari....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum hafa verið kallaðar út vegna karls og konu sem eru í sjálfheldu í Búðagili fyrir ofan Bíldudal. Einnig er búið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar og mun hún fara með undanfara björgunarsveita í Reykjavík vestur. Fólkið var á göngu og ætlaði niður gilið en situr nú alveg pikkfast þar enda aðstæður erfiðar, urð og klettar og afar bratt niður....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Einstakur listviðburður verður í Norræna húsinu á morgun, laugardaginn 20. ágúst ( Menningarnótt) milli kl.17-19 þar sem íslenskir listamenn sýna verk sem ekki hafa komið almenningi fyrir sjónir áður. Ný myndabandaverk, tónlist, myndlist, ljósmyndir og sérstakur tónlistargjörningur verða frumsýnd. Aðgangur er ókeypis....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Urmas Paet, utanríkisráðherra Eistlands, í Tallinn, en utanríkisráðherra er í borginni til að taka þátt í Íslandsdegi, hátíð sem Eistar efna til í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því að Eistland fékk aftur sjálfstæði og að Íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna sjálfstæði þeirra. Á fundinum ræddu utanríkisráðherrarnir stöðu aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu og ítrekaði Paet stuðning Eista við Íslendinga í ferlinu....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gaf í gær út reglugerð sem heimilar bátum sem stunda makrílveiðar á handfæri og línu að halda þeim veiðum áfram eftir 1. september 2011. Áður var makrílveiði þessara aðila, sem hafa sameiginlegt aflahámark, takmarkað við veiðar fram til 1. september 2011. Heimild til makrílveiða er bundin leyfi frá Fiskistofu....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Vígsla Hörpu verður á morgun, laugardag. Fjölbreytt dagskrá verður í húsinu frá kl. 13 - 23. Glerhjúpurinn verður tendraður. Vígslutónleikar við vegginn. Kínverskir loftfimleikamenn. Ýmsir viðburðir menningarnætur. Opnun jazzhátíðar og margt fleira. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður á tvenna tónleika á vígsludegi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði afstöðu landsmanna til boðaðra verkfallsaðgerða leikskólakennara. Í könnuninni kom fram að 93,1% þeirra sem tóku afstöðu sögðust frekar eða mjög fylgjandi því að hækka ætti laun leikskólakennara svo ekki komi til verkfalls þann 22. ágúst næstkomandi. Greint eftir einstaka svarmöguleikum þá voru 67,4% sem sögðust mjög fylgjandi hækkun launa leikskólakennara svo afstýra mætti verkfalli, 25,7% sögðust frekar fylgjandi, 4,0% sögðust frekar andvíg og 2,9% kváðust mjög andvíg. ...
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Friðarsúlan Imagine Peace Tower í Viðey verður tendruð næstkomandi sunnudagskvöld. Tilefnið er að stjórnvöld í Noregi hafa ákveðið að sunnudagurinn 21. ágúst skuli tileinkaður minningu þeirra er létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og á Úteyju þann 22. júlí síðastliðinn. Reykjavíkurborg vill með þessu móti senda innilegar samúðarkveðjur til Norðmanna og minnast þeirra sem létust í árásunum....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Aðalmarkmið miðnæturdagskrár RIFF er að varpa ljósi á dekkri hliðar kvikmyndaheimsins og skjóta áhorfendum skelk í bringu sé þess nokkur kostur. Ein myndanna sem sýndar verða í miðnæturdagskránni í ár er nýjasta mynd bandaríska leikstjórans Kevin Smith. Nefnist hún Red State og er um Norðurlandafrumsýningu að ræða. Myndin verður sýnd föstudaginn 30. september....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Aðsóknarmet í Síldarminjasafniðá Siglufirði var slegið í ár, en metið var frá árinu 2004, um 14.000 gestir. Þetta var sumarið sem Hákon Noregsprins vígði Bátahúsið. Nú hefur metið verið bætt. Samkvæmt upplýsingum frá Anitu Elefsen, rekstrarstjóra safnsins, voru gestirnir orðnir 16.570 við lok dags í gær. Og enn má eiga von á fjölda fólks, sumarið er alls ekki liðið og haustmánuðirnir eftir....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum fór fram afhending styrkja úr Húnasjóði fyrir árið 2011. Athöfnin fór fram á Hlöðunni þar sem Húnaþing vestra bauð upp á kaffi og meðlæti. Sigurbjörg Jóhannesdóttir afhenti styrkina fyrir hönd Húnasjóðs og sagði m.a. frá því að óvenju margir hefðu fengið úthlutað styrk í ár en Húnasjóður veitti öllum umsækjendum styrk að þessu sinni....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Undirbúningur að stofnun nýs sparisjóðs á Akureyri er í fullum gangi en á vordögum samþykkti stjórn Sparisjóðs Höfðhverfinga að auka stofnfé sjóðsins um allt að 500 milljónir króna til að undirbyggja útvíkkun á starfseminni með opnun sparisjóðs á Akureyri. Sparisjóðurinn verður til húsa að Glerárgötu 36....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Vatnsafls- og jarðhitasvæði á Íslandi hafa nú verið flokkuð í þrjá flokka; nýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Tillaga að þingsályktunartillögu um vernd og nýtingu náttúrusvæða á Íslandi var kynnt í morgun. Tillagan fer nú í tólf vikna opið umsagnarferli, áður en endanleg þingsályktunartillaga verður lögð fyrir Alþingi. Búlandsvirkjun í Skaftártungu er flokkuð í biðflokk en gefið er hins vegar grænt ljós á virkjanir í Þjórsá....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun setja Íslandsdag sem haldinn verður í Tallinn, höfuðborg Eistlands, næsta sunnudag, í tilefni þess að Íslendingar urðu fyrir 20 árum fyrstir allra þjóða til að viðurkenna fullt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Forsetinn mun flytja ávarp sitt á hinni árlegu sönghátíð „Söngvar frelsisins“ en slíkar hátíðir voru á Sovéttímanum mikilvægur vettvangur í andófi og frelsisbaráttu Eistlendinga. Ávarpið verður flutt á miðnætti þegar Íslandsdagurinn gengur í garð....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Arion banki, Apear Collective og Urban Utd. munu standa fyrir óvenjulegri uppákomu á Menningarnótt í Reykjavík fyrir utan útibú Arion banka við Hlemm. Þar mun listahópurinn Apear Collective umturna svæðinu með hjálp límbands. Um 20 listamenn munu taka þátt í verkefninu en Apear Collective er hópur fjöllistamanna sem koma víða að. Meðan á gjörningnum stendur munu plötusnúðar spila og börn fá blöðrur frá bankanum....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Starfsgreinasamband Íslands hefur sent út bréf til allra aðildarfélaga sambandsins vegna yfirvofandi verkfalls leikskólakennara, sem boðað er frá og með næsta mánudegi. Þetta er gert til að upplýsa leiðbeinendur á leikskólum um mikilvægi þess að ganga ekki í störf þeirra starfsmanna sem eru í verkfalli. Um 230 leikskólar munu loka komi til verkfalls....
Tíminn | 13.08.2011 |
Ritstjórn
Fyrsti heilsustígurinn á landinu var formlega vígður við upphaf Blómstrandi daga í Hveragerði. Er hann hugsaður til að bæta lýðheilsu almennings og aðgengi ferðamanna að spennandi útivistarmöguleikum....
Tíminn | 13.08.2011 |
Ritstjórn
Samtök ungra bænda hafa sent erindi á 20 fyrirtæki að handahófi sem eiga aðild að Samtökum verslunar og þjónustu vegna ummæla um að samtökin ætluðu að hefja innflutning á kjöti. Bréf þeirra er til að hvetja þessa aðla til þess að mótmæla ákvörðun samtakanna.
...
Tíminn | 12.08.2011 |
Ritstjórn
Árið 2010 var heildarfjöldi verkefna hjá sérsveit Ríkislögreglustjóra alls 4.207. Af þessum verkefnum voru almenn lögregluverkefni 3.079 og umferðarverkefni 607. Þetta kemur fram í ársskýrslu ríkislögreglustjóra sem nýlega kom út. Sérsveitin á að takast á við vopnuð lögreglustörf og öryggismál þegar þörf krefur hvar sem er á landinum og innan efnahagslögsögu Íslands. Starfsemi sveitarinnar skiptist í almenn lögreglustörf, sérverkefni og þjálfun en um 75% af vinnutíma sveitarinnar fer í lögregluverkefni og um 25% eða minna í ...
Tíminn | 11.08.2011 |
Ritstjórn
Endur-skoðendur borgarinnar er hópur sem vinnur að því að lífga upp á Óðinstorg í Reykjavík í sumar. Bílastæðum er lokað á laugardögum og eru þá eru haldnir alls kyns markaðir. Grunnhugmyndin að verkefninu var að endurvekja Óðinstorg sem markaðstorg. "Með þráðum er spunnið net sem rammar inn svæðið með mismunandi útfærslum og vísar þannig til fyrri tíma. Þræðirnir mynda skemmtilegt sjónarspil á torginu. Sem dæmi má strengja fantað, texta eða myndir allt eftir þema markaðsins hverju sinni. Þræðirnir eru sýnilegur frá ...
Tíminn | 11.08.2011 |
Ritstjórn
"Nokkuð er byggt af íbúðarhúsnæði og iðnaðarhúsum í Grindavíkurbæ þrátt fyrir kreppuna" segir á vefsíðu Grindavíkurbæjar. Alls eru fimm einbýlishús í byggingu þessa dagana, þar af tvö sem hafa verið í byggingu á annað ár. Búið er að sækja um byggingaleyfi fyrir þremur íbúðaraðhúsum til viðbótar og einni einbýlishúsalóð. Þá eru tvö iðnaðarhús í byggingu og unnið að stórri viðhaldsframkvæmd á blokkinni í Staðarhrauni. Þess má geta að fjöldi þinglýstra leigusamninga á suðurnesjum í júlí voru 84 sem er 3.7% aukning milli ...
Tíminn | 11.08.2011 |
Ritstjórn
Frystitogarinn Mánaberg ÓF-42 landaði 256.701 kg af makríl og 14.000 kg. af síld á Siglufirði fimmtudaginn fjórða ágúst síðastliðinn. Á heimasíðu Ramma, sem gerir Mánaberg út, segir að þetta sé í fyrsta skipti sem makríl er landað á Siglufirði. Flest skip útgerðarinnar eru á makrílveiðum um þessar mundir og hafa þau oftast landað í Þorlákshöfn. Mánaberg ÓF-42 er 1.378 brúttótonna frystitogari í eigi Ramma og er með heimahöfn á Ólafsfirði. Samkvæmt upplýsingum Sax.is þá var togarinn var smíðaður í Astillaros Luzuriaga ...
Tíminn | 11.08.2011 |
Ritstjórn
Grasagarður Reykjavíkur fagnar í ár 50 ára starfsafmæli en garðurinn var stofnaður 18. ágúst 1961. Garðurinn hefur þróast mikið á þeirri hálfu öld sem liðin er frá stofnun hans. Á vefsíðu Reykjavíkurborgar kemur fram að í tilefni afmælisins verður boðið upp á fræðslugöngu um Grasagarðinn fimmtudaginn 11. ágúst kl. 20. Þáttaka er ókeypis og eftir gönguna verður boðið upp á piparmyntute.Í göngunni verður farið yfir skipulag garðsins og fyrirhuguð stækkun hans verður kynnt. Hönnuður nýja trjásafnsins, Margrét Sigurðardóttir, landslagsarkitekt ...
Tíminn | 11.08.2011 |
Ritstjórn
Íslandsbanki hefur sett í loftið snjallsímaforrit (app) fyrir Android síma og er þetta í fyrsta skipti sem íslenskur banki gefur út slíkt forrit að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá bankanum. Innan skamms mega iPhone símtækjanotendur vænta sambærilegs forrits. Þetta er gert í framhaldi af opnun á nýjum farsímavef bankans í júní, m.isb.is, sem bankinn segir að hafi fengið afar fínar viðtökur viðskiptavina.
Snjallsímaforritið gefur notendum nýja notendaupplifun í viðskiptum við bankann sinn. Gríðarlegur vöxtur er í sölu á Android...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Jón Gnarr borgarstjóri hefur lagt fram frumvarp að þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2012-2014. Í áætluninni er ekki gert ráð fyrir hækkun útsvars og fasteignagjalda. Frumvarpið byggir á endurskoðaðri fjárhagsáætlun A-hluta fyrir árið 2011 og endurskoðaðri áætlun Orkuveitu Reykjavíkur. Við gerð þess er í öllum aðalatriðum fylgt sömu aðferðafræði og viðhöfð hefur verið við tvær síðustu þriggja ára áætlanir að því er fram kemur í áætluninni.
Meirihlutinn í Ráðhúsi Reykjavíkur hefur verið mikið gagnrýndur fyrir...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Mánudag og þriðjudag fór fram alþjóðleg skíðaráðstefna á vegum NASAA (North Atlantic Ski Area Association) á Sauðárkróki. Er þetta í annað sinn sem slík ráðstefna er haldin á Íslandi og kom að þessu sinni í hlut skíðadeildar Tindastóls að sjá um framkvæmd hennar. Sagt er frá þessu á vef sveitarfélagsins Skagafjarðar. Formleg dagkrá stóð yfir dagana 8. og 9. ágúst en meðal atriða á fjölbreyttri dagskrá voru kynningar og umræður um skíðalyftur, uppbyggingu barnagarða, vindmyllur, aðgangsstýrikerfi, snjóframleiðslutæki...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Selið á Stokkalæk er tónlistarsetur sem staðið hefur fyrir fjölmörgum tónleikum í allt sumar og í þessari viku eru tvennir tónleikar á dagskrá. Fimmtudaginn 11. ágúst munu þær Agnes Þorsteins sópran og Agnes Löve píanóleikari flytja tónlist eftir íslenska og erlenda höfunda af ýmsu tagi, ljóðatónlist og aríur meðal annars eftir Brahms, Schubert, Mozart og Puccini. Laugardaginn 13. ágúst klukkan 16 munu þær Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari flyta verk fyrir píanó og fiðlu, einleiksfiðlu eftir Tchaikovsky og Ysaye...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Metumferð var um Héðinsfjarðargöng síðustu helgi en meðalumferð var 1779 bílar á sólarhring og á laugardaginum fóru yfir 2000 bílar um göngin. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni. Laugardaginn 6. ágúst sl. fóru 2107 bílar um Héðinsfjarðargöngin Siglufjarðarmegin en 2091 bíll um göngin Ólafsfjarðarmegin sem jafngildir því að 2099 bílar hafi farið um bæði göngin. Til samanburðar þá fóru um verslunarmannahelgina 1.729 bílar á sólarhring um Héðinsfjarðargöng sem var þá mesta umferð sem mælst ...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Áhugasamir Vestfirðingar eða aðrir sem kunna að eiga leið þar um geta næstu daga notið tónlistar hljómsveitarinnar Prins Póló sem er að leggja af stað í tónleikaferðalag um með það að markmiði að leika tónlist og borða góðan mat. Sveitin heldur tónleika á veitingastöðum sem hún kallar “nokkrir af bestu veitingastöðum á norðurhjara veraldar og þótt víðar væri leitað.” Miðaverð er 1000 krónur en þeir sem ákveða að fylgja sveitinni á alla tónleika greiða þá 1000 krónur fyrir allt saman sem eru 333 á staka tónleika. Matur, gisting eða ...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Landhelgisgæslan kallaði Björgunarsveit Hafnarfjarðar út rétt fyrir hádegi í gær, eftir að báturinn Teista óskaði eftir aðstoð eftir að hafa misst skrúfuna, en hann var þá staddur 17,2 sjómílur NV af Garðskaga. Einn maður var um borð í bátnum og amaði ekkert að honum. Fór björgunarskipið Einar Sigurjónsson úr Hafnarfirði til aðstoðar og um þremur klst. eftir útkallið, var ES kominn að Teistu og tók hana í tog. Báturinn var dreginn til hafnar ...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Bæjarráð Árborgar vill að nýtt fangelsi verði byggt á Litla Hrauni að því er fram kemur í ályktun sem samþykkt var á fundi bæjarráðs þann 4. ágúst síðastliðinn. Í ályktun sinni telur bæjarráð upp kosti þess að byggja nýtt fangelsi á Litla Hrauni. Starfsemi þar sé gróin og í góðri sátt við umhverfi sitt. Að efla starfsemina þar sé bæði fljótlegasta og hagkvæmasta leiðin til að leysa með skjótum hætti brýta þörf fyrir aukið fangelsisrými í landinu en yfirvöld í Árborg hafa boðist til þess að fella niður öll gjöld vegna byggingarinnar. Flestir ...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Skrif Þórólfs Mattíassonar um sauðfjárrækt hafa vakið sterk viðbrögð. Sumir eru sammála honum en aðrir honum algjörlega ósammála og í þeim hópi eru Samtök ungra bænda. Samtökin segja Þórólf hafa yfirborðskennda þekkingu á sauðfjárrækt og að í skrifum sínum hafi hann farið rangt með staðreyndir. "Lýsa Samtök ungra bænda jafnframt undrun sinni á því að hagfræðiprófessorinn skuli ekki hafa aflað sér betri upplýsing um fyrirkomulag sauðfjárframleiðslu á Íslandi áður en hann tók að fjalla um atvinnugreinina á vettvangi ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Nú þegar nákvæmlega einn mánuður er síðan Ljóðasetur Íslands var formlega opnað á Siglufirði er fjöldi gesta kominn yfir eitt þúsund. „Sú aðsókn er fram úr björtustu vonum og viðbrögð gesta hafa líka verið mjög ánægjuleg og á einn veg; allir mjög ánægðir með framtakið, andrúmsloftið á setrinu notalegt, gaman að skoða sig um og skoða áhugaverða hluti og fólk þakklátt fyrir upplestra og aðra viðburði sem boðið hefur verið upp á í setrinu,...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Tékkneski langferðabíllinn sem sökk ofan í Blautulón með fjölda tékkneskra ferðamanna í gær er kominn á þurrt. Myndirnar eru teknar af Sóldísi Helgu Sigurgeirsdóttur úr Flugbjörgunarsveitinni Hellu sem er á hálendisvakt björgunarsveita að Fjallabaki. Belgir voru bundnir við bílinn og blásnir upp þannig að bíllinn lyftist upp á yfirborðið og síðan var hann dreginn upp á land....
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Meðal gesta á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð, sem stendur yfir dagana 22. september til 2. október í Reykjavík í lok september, verður breski leikstjórinn James Marsh. Verður af því tilefni sérstakur flokkur helgaður honum og myndum hans á hátíðinni í ár. Meðal myndanna sem sýndar verða er hin margfræga heimildamynd Man On Wire frá 2008....
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Tæplega áttatíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í grófustu brotunum var ekið á 50-60 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Í tveimur tilvikum var reyndar um enn svívirðilegri brot að ræða en á föstudagskvöld mældust tvö bifhjól á 180 km hraða á Vesturlandsvegi á móts við Höfðabakka. Meirihluti hinna brotlegu voru karlar en þeir eru flestir á þrítugs- og fertugsaldri. Tuttugu konur voru stöðvaðar í þessu hraðaeftirliti en þær eru á aldrinum 18-58 ára....
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
"Í undurfagurri umgjörð náttúru Kirkjubæjarklausturs og nágrennis, þar sem grænkan sigrast nú á öskunni, mun hin árlega tónlistarhátíð Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri bjóða upp á sannkallaða tónlistarveislu helgina 13. og 14. ágúst 2011" segir í frétt á vefsíðu Kirkjubæjarklausturs. Á kammertónleikunum koma meðal fram Garðar Thór Cortes tenór, Þóra Einarsdóttir sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran Krystyna Cortes píanóleikari, spænski gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui og lettneski píanóvirtúósinn ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Hrafnista mun reisa þjónustukjarna og 100 þjónustu- og öryggisíbúðir fyrir aldraða við Sléttuveg þar sem boðið verður upp á alhliða þjónustu við aldraða. Reykjavíkurborg mun leigja þjónustukjarnann undir þjónustu borgarinnar við aldraða auk þess sem Reykjavíkurborg mun hafa til ráðstöfunar 20 þjónustuíbúðir sem leigðar verða út á vegum Velferðarsviðs borgarinnar. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, fyrir hönd Hrafnistu undirrituðu þjónustusamning ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Í kvöld klukkan 22:30 mun fólk safnast saman við tjörnina í Reykjavík og fleyta kertum í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nakasaki. Á Akureyri verður kertafleyting fimmtudagskvöldið 11. ágúst. kl. 22:30 við Minjasafnstjörnina. Kertum hefur verið fleytt á Akureyri frá 1998. Ávarpið að þessu sinni flytur Áki Sebastian Frostason. Þetta er í tuttugasta og sjöunda skipti sem kertum er fleytt á Tjörninni í Reykjavík til að undirstrika kröfuna um frið. Um er að ræða hefð sem er uppruninn í Japan, en ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Ákveðið hefur verið að Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis verði göngugata til mánudagsins 15. ágúst. Borgaryfirvöld koma með þessu til móts við beiðni rekstraraðila við götuna sem óskuðu sérstaklega eftir því að áfram yrði lokað fyrir bílaumferð til þess að greiða fyrir aðgengi gangandi og hjólandi og til að efla mannlíf. Leyfi var veitt fyrir götuhátíð við Skólavörðustíg 2.- 7. ágúst og fól það í sér lokun neðsta hluta götunnar. Í bréfi frá þar sem óskað er eftir framlengingu kemur fram að almenn ánægja sé meðal rekstraraðila...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn sunnudag, þann 7. ágúst stakk Díana Nyad, 62 ára, sér til sunds í sjóinn við Hemingway höfn á Kúbu og hófst þá til tilraun til að synda rúmlega 166 km sund til Flórída. Díana sagðist þegar hún lagði af stað vera í blóma lífsins hefur verið að þjálfa fyrir ferðina síðustu tvö ár. Á bát sem fylgdi henni var sérstök hákarlafæla og um borð voru kafarar sem átti að aðstoða hana við að verjast hákörlum. Ein af ástæðunum fyrir því að synda þessa leið á þessum aldri er til að sýna fólki að það er enginn dauðadómur að vera kominn fyrir 60 ára aldur...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
ópur manna er nú á leið á norðurskautið í sérhönnuðum árabát og áætlað er að ferðin muni alls taka um fjórar til fimm vikur. Þetta er í fyrsta skipti sem farið er í árabát á norðurskautið. Hópurinn samanstendur af 6 mönnum, vegalengdin sem þeir róa er um 732 km og þeir róa milli 12 til 18 klukkustundir á dag. Það er þröngt á þingi í bátnum og til að fá meira svefnpláss hafa sumir tjaldað á ísnum. Því fylgja þó ýmis vandamál og eitt kvöldið kom hópur af ísbjörnum sem þurfti að fæla burt. Fyrir leiðangrinum fer Jock Wishart sem er ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Næstum því 6.800 manns segjast ætla að hætta að versla við N1 í mánuð á Facebook viðburði sem ber heitið Lækkum eldsneytisverð og þeim fjölgar hratt sem segjast ætla að taka þátt. "Það þarf að standa í hárinu á olíufélögunum," segir Ívar Áki Hauksson sem stendur fyrir þessu og hvetur hann fólk til að hætta sem fyrst að versla við N1.
Þó svo að verð á eldsneyti hafi lækkað hjá nokkrum olíufélögum í morgun hefur eldsneytisverð hækkað gríðarlega undanfarin ár. Í janúar 2004 var verð á 95 oktana bensíni með fullri þjónustu 100,90 ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Hinn árlegi Fjölskyldudagur Sveitarfélagsins Voga verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 13. ágúst. Dagurinn verður stútfullur af skemmtilegri dagskrá sem teygir sig reyndar frá föstudegi yfir á sunnudag. Fjölskyldudagurinn er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur og vini til að eiga góða samverustund og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi....
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Kennarasamband Íslands hefur fyrir hönd Félags leikskólakennara boðað til verkfalls þeirra félagsmanna sem vinna hjá sveitarfélögum og taka laun samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna þeirra sveitarfélaga og/eða samtaka á þeirra vegum sem Kennarasamband Íslands hefur samningsumboð. Verkfallið kemur til framkvæmda frá og með mánudeginum 22. ágúst hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Íslensku olíufélögin hafa öll lækkað verð á eldsneyti í morgun í kjölfar mikillar lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu í gær. Verð á lítra af bensíni lækkar um 2 krónur og lítrinn af dísilolíu lækkaði um þrjár krónur. Kostar nú eldsneytislítrinn víðast hvar um 235,60 krónur, en lægst er verðið hjá Orkunni, 235,50 kr. Nákvæmlega sama verð er á bensíni og díselolíu....
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Unnur Stefánsdóttir framkvæmdastjóri lést á líknardeild Landspítalans í gær eftir stutta legu. Unnur fæddist hinn 18. janúar 1951 í Vorsabæ í Gaulverjahreppi. Foreldrar hennar voru Guðfinna Guðmundsdóttir húsmóðir og Stefán Jasonarson bóndi. Unnur starfaði um árabil innan Framsóknarflokksins og var meðal annars formaður Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, og varaformaður og síðar formaður Landssambands framsóknarkvenna...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Borgarráð hefur samþykkt að ráða Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóra nýs Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Starfið var auglýst laust til umsóknar þann 24. júní sl. og bárust 15 umsóknir. Gert er ráð fyrir að Ragnar taki til starfa 1. september nk....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Þingflokkar Vinstri Grænna og Samfylkingarinnar hafa í dag setið á sameiginlegum þingflokksfundi, þar sem gerð fjárlaga næsta árs er rædd. Heimildir herma að hækkun virðisaukaskatts á matvæli hafi verið rædd við undirbúning fjárlaganna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist á bloggsíðu sinni hafa það staðfest eftir áræðanlegum heimildum að hækkun virðisaukaskatts á matvæli sé til umræðu innan ríkisstjórnarinnar. "Það eru skelfilegar fréttir," segir Sigmundur Davíð....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Íbúum á Íslandi hefur fjölgað alls staðar á landinu nema á Vestfjörðum og á Norðurlandi vestra. Þetta kemur fram í riti Hagstofunnar, Ísland í tölum 2011, sem nýlega kom út. Samkvæmt ritinu búa aðeins um 2% þjóðarinnar á Vestfjörðum í dag. Árið 1950 bjuggu 8% þjóðarinnar á Vestfjörðum og árið 1910 voru Vestfirðingar 16% af íbúum landsins....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Slökkviliðið á Hólmavík og á Drangsnesi var kallað út laust eftir hádegi á fimmtudag þar sem tilkynnt var um að kviknað hefði í bifreið sunnan við Veiðileysu í Árneshreppi á Ströndum. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík var ökumaður jeppans einn og slapp hann ómeiddur. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en eldsupptök eru ókunn....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Áætlað er að um tvö þúsund farþegar af tveimur skemmtiferðaskipum, Ms. Prinsendam og Ms. Maasendam, hafi komið til Djúpavogs í síðustu viku. Bæjaryfirvöld á Hornafirði og á Djúpavogi hafa síðustu ár unnið sameiginlega að því að kynna svæðið sem vænlegan áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Samstarfið felur m.a. í sér að notast er við hafnaraðstæður á Djúpavogi, en boðið upp á ferðir í nágrenni Hornafjarðar en mjög vinsælt hefur verið meðal farþega skipanna að fara í ferð á Jökulsárlón, enda engin furða þar sem staðurinn er einstakur á heimsvísu. ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Í tilefni af umfjöllun um heimildir fjármálaráðherra til að stofna Spkef sparisjóð í því skyni að taka við rekstri Sparisjóðsins í Keflavík, telur fjármálaráðuneytið tilefni til að benda á að samkvæmt 1. gr. laga nr. 125/2008, oft nefnd neyðarlög, hefur fjármálaráðherra heimild til þess að stofna nýtt fjármálafyrirtæki til þess að taka yfir reksturs annars fjármálafyrirtækis sem komið er í þá stöðu að það getur ekki lengur starfað....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Rétt fyrir klukkan 09:00 í morgun kom erlend kona, búsett á Íslandi, að máli við hálendisvakt björgunarsveita í Landmannalaugum og sagði fjögurra ára dóttur sína vera týnda á svæðinu. Fjölskyldan var búin að leita barnsins í u.þ.b. hálfa klukkustund þegar björgunarsveitin var kölluð til. ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Sniglar í samstarfi við Vegagerðina og Umferðasrstofu hafa reist sex skilti við þjóðveginn með áletruninni „Endum rúntinn heima“. Ætlunin er að ná til bifhjólafólks á ferðinni og hvetja til nærgætni og heilbrigðrar skynsemi við akstur bifhjóla um þjóðvegi landsins. Allir vilja jú enda skemmtilegan rúnt slysalausan heima....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Í liðinni viku voru 23 kærðir fyrir of hraðann akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Tveir þeirra óku það hratt að þeir verða sviptir ökurétti, annar á 149 km/klst hraða og sætir eins mánaðar sviptingu en hinn á 154 km/klst hraða og sætir á tveggja mánaða sviptingu. Álagðar sektir vegna hraðakstursbrota í liðinni viku nema um 1.100 þúsundum króna. ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku lagði starfsmaður Fiskistofu hald á fimm net sem voru ólögleg í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Netin voru í sjó á svokölluðum hvíldartíma, en ákveðnar reglur gilda þar um, en óheimilt er að stunda netaveiðar á silungi í netlögum sjávarjarða frá kl. 22.00 á föstudagskvöldi til kl. 10.00 á þriðjudagsmorgni....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Stjórnmálahreyfingin Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis (UA) og beðið embættið að úrskurða um hvort fjármálaráðherra hafi farið að lögum um Bankasýslu ríkisins (BR) nr. 88/2009 um meðferð og fyrirsvar gagnvart fjármálafyrirtækjum sem ríkið á hlut að við stofnun, rekstur og niðurlagningu Spkef sparisjóðs og stofnun, rekstur og sölu Byrs banka....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Aðsókn í búfræði- og búvísindanám við Landbúnaðarháskóla Íslands að Hvanneyri hefur stóraukist undanfarin ár. Í vor sóttu 65 um búfræðinámið en Landbúnaðarháskólinn hefur ekki treyst sér til að taka inn fleiri en 34 nemendur á ári í búfræði. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem sækjast eftir náminu er fólk úr sveit eða með mikla tengingu við sveit....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar leitar nú að fallegasta garði bæjarins að því er fram kemur á vefsíðu bæjarins. Óskað er eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals og aðlaðandi götumyndar. Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði og veitt viðurkenningar samkvæmt þeim. Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokkum: Flokkur nýrri garða...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Norska olíufélagið Statoil og samstarfsaðilar hafa tilkynnt um nýjar olíulindir á svæði sem nefnist Aldous Major Sør í Norðursjó. Um verulegt magn af olíu er að ræða, líklega stærsta olíufund á norsku landgrunni í 20 ár. Talið er að hægt sé að vinna 200-400 milljónir olíutunna á svæðinu....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Umræðan um skort, eða ekki skort, á lambakjöti er orðin ansi undarleg og ekki eru allir sammála um hvort lambakjöt skorti eða ekki. Er skortur á lambakjöti? Svo virðist ekki vera samkvæmt Bændablaðinu, Landssamtökum sauðfjárbænda og samtökum sláturleyfishafa og ekki hefur blaðamaður Tímans fundið fyrir skorti því alltaf getur hann gengið að lambakjöti sem vísu í þeirri búð sem hann verslar hvað mest við. Það er lítil matvörubúð á norðurlandi vestra sem ekki er alltaf með nýjasta grænmetið eða ferskustu ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Hinn 1. september næstkomandi sameinast efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og embætti sérstaks saksóknara. Við þá sameiningu flyst rannsókn mála sem heyra undir efnahagsbrotadeild og ákæruvald til sérstaks saksóknara og einnig þau mál sem efnahagsbrotadeildin er að rannsaka í dag. Til viðbótar þeim starfsmönnum sem á undanförnum árum hafa flust frá ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara flytjast 14 stöðugildi til sérstaks saksóknara við þessa breytingu. Fjárveitingar til ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðnar vikur hafa erlendir sjálfboðaliðar á vegum Veraldarvina hjálpað starfsmönnum Skógræktar Íslands við að bæta gönguleiðir í göngustígakerfinu á Stálpastöðum í Skorrdal. Skógrækt ríkisins segir frá þessu á vefsíðu sinni. Á meðal verkefna þeirra voru að slá lúpinu og gras frá slóðum, að bera kurl á göngustíga, að afkvista tré meðfram stígum og búa til þrep í skóginum. Sjálfboðaliðarnir koma frá mörgum löndum og þeir sem koma lengst að koma frá Kína og Kóreu. Ástæðan fyrir komu þeirra er sú að þeir vilja kynnast landi og þjóð og...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Þrír ungir drengir úr Grafarvogi hafa verið að gera það gott í sölu á golfboltum að undanförnu. Þeir selja bolta sem þeir hafa fundið í kringum golfvöllinn að Korpúlfsstöðum. Þeir hreinsa boltana og gera þá fína og bjóða þá síðan til sölu á góðu verði við 7. teig á Korpunni. Þeir segja söluna hafa gengið vel og þegar blaðamaður Tímans átti leið um völlinn í gær höfðu þeir selt bolta fyrir um 10 þúsund krónur þann daginn....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
"Þekkir þú hæfileikaríkan stúdent? Vilt þú sjálf/ur taka þátt í listahátíð stúdenta?" Svona hljóðar auglýsing frá Stúdentaráði Háskóla Íslands sem mun standa fyrir listhátíð í septembermánuði, sem haldin verður í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands. Þetta kemur fram á vefsíðu skólans. "Takmörkin eru engin og við vonumst til að fá sem fjölbreyttastar og frumlegastar hugmyndir sem við getum hjálpað til við að koma á framfæri hér í háskólanum,“ segir Lilja Dögg formaður stúdentaráðs. Mismunandi listviðburðir eiga að geta raðast ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Innanríkisráðherra hefur skipað nefnd til að meta hvaða áhrif niðurskurður fjárveitinga hafi haft á starfsemi þjóðkirkjunnar og hverjar yrðu afleiðingarnar ef haldið yrði áfram á þeirri braut. Nefndin kom saman til síns fyrsta fundar 3. ágúst og mun skila áliti til ráðherra fyrir 1. maí 2012. Árið 2011 átti Þjóðkirkjan að skera niður fjárframlög um 9%. Kirkjan var ekki sátt við þetta og á aukakirkjuþingi sem fjallaði sérstaklega um fjármál og niðurskurð var samþykkt ályktun þess efnis að kirkjan mætti ekki við 9% niðurskurði og vildi ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Veðrið hefur lekið við landsmenn síðustu tvo daga og gert er ráð fyrir góðu veðri fram eftir vikunni. Í gær voru þúsundir manna sem lögðu leið sína á Ylströndina í Nauthólsvík, enda fór hitinn um og yfir 20 stig víða á sunnanverðu landinu. Heitast var á Þingvöllum þar sem hiti fór í 22 stig. "Það er eins og maður sé komin til útlanda þegar maður er á Ylströndinni í góðu veðri," sagði einn viðmælenda Tímans....
Tíminn | 07.08.2011 |
Ritstjórn
Í greiningu sjávarútvegsteymis Íslandsbanka kemur fram að útflutningsverðmæti sjávarafurða muni hækka um 16 milljarða króna á þessu ári frá því síðasta og um fjóra milljarða króna til viðbótar á árinu 2012. Aukningin nemur því um 9% og mun hafa jákvæð áhrif á þjóðarbúið. Aukningin er tilkomin vegna aukinna aflaheimilda, og þá aðallega í þorski, alþjóðlegum verðhækkunum á fiski og stöðugri krónu....
Tíminn | 07.08.2011 |
Ritstjórn
Þeir sem hafa lagt leið sína niður á Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn síðustu daga hafa væntanlega tekið eftir snekkju sem þar hefur legið við bryggju. Þetta er snekkjan Dardanella og er hún smíðuð í Hollandi, er 36 metra löng og smíðuð úr áli. Snekkjan heldur til Grænlands í dag, sunnudag. Þetta er þriðja "auðmannssnekkjan" sem heimsækir Reykjavík á þessu sumri....
Tíminn | 07.08.2011 |
Ritstjórn
GHJ-útgáfa, sem á og rekur www.votnogveidi.is hefur sent frá sér þriðja tölublaðið af fría veftímaritinu Veiðislóð. Blaðið er 110 blaðsíður og efnið gríðarlega fjölbreytt eins og í fyrri tölublöðum. Þeir félagar segja að þó að efnið sé allra handa sportveiði og tengd málefni þá sé ákveðin þungamiðja í ljósmyndun í þessu tölublaði þar sem þeir taki undir með greinarhöfundi í blaðinu, Einari Fal Ingólfssyni, að myndavélin sé nú orðin, eða eigi a.m.k. að vera, hluti af grunnbúnaði veiðimanna....
Tíminn | 07.08.2011 |
Ritstjórn
Það fór varla fram hjá mörgum að í gær fór fram í ellefta sinn Gleðigangan í Reykjavík. Á síðasta ári voru 70 til 80 þúsund manns í miðbænum á meðan gangan stóð yfir og ekki voru færri í gær. Göturnar voru fullar af fólki sem dillaði sér við tónlist, horfði á vagnanna og skemmti sér með fjölskyldu og vinum. Vagnar göngunnar voru jafn fjölbreyttir og þeir voru margir, allt frá súludansi til Egyptalands til forna. Síðastur fór vörubíll þakinn gylltum pallíettum og var það vagn Páls Óskars sem fékk gesti til að klappa, dansa og syngja ...
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Á fimmta tímanum í dag kom tilkynning til 112 um erlenda ferðamenn sem höfðu lent í vandræðum í á. Þeir væru komnir upp á land, blautir og kaldir.
Talsverðan tíma tók að fá viðeigandi upplýsingar, nákvæma staðsetningu og atburð. Hálendisgæsla Landsbjargar var send áleiðis en vísbendingar voru um að þetta væri á svæðinu við Fjallabaksleið. Loks kom í ljós að þetta var á leiðinni inn að Langasjó, við Blautulón en þar hafði rúta með 22 um borð farið út í lónið og á kaf....
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Á hverju ári er unnið mikið verk við að endurgera og viðhalda stígum inn í Þórsmörk. Þar hafa ferðaþjónustuaðilar og ferðafélögin unnið mikið verk í samstarfi við sveitarfélagið, Skógrækt ríkisins, Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun ofl. Um helgian er von á þyrlu Landhelgisgæslunnar inn í Goðaland til að flytja upp hrís, kurl og timbur til að laga stíga í Foldum, því ótækt er að koma efni til stígaviðgerðar með öðru móti....
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Pierce Brosnan, sem er líklegast best þekktur fyrir að hafa leikið njósnara hennar hátignar James Bond , vill að Obama refsi Íslendingum harðlega fyrir hvalveiðar sem hann segir brjóta öll alþjóðleg lög. Í pistli á Huffington Post segir hann Ísland vera útlaga meðal annara ríkja heimsins. Viðræður við landið og yfirlýsingar alþjóðasamfélagsins hafa enginn sýnt neinn árangur. Þess vegna þurfi Obama að beita öðrum aðgerðum. Eins og fram kom um miðjan júlí íhugar Obama nú að beita refsiaðgerðum vegna hvalveiða og gætu ...
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Á hverju ári streyma inn til Reykjavíkurborgar skemmtilegar hugmyndir frá hugmyndasmiðum sem vilja setja svip sinn á fjölmennustu hátíð landsins - Menningarnótt 20. ágúst. Reykjavíkurborg reynir að greiða götur sem flestra og styrkir fjölda viðburða bæði með fjárframlögum sem og annarri aðstoð svo að hugmyndir þeirra líti dagsins ljós á hátíðinni....
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Fyrsti útgáfudagur búnaðarblaðsins Freyju er runninn upp. Fyrir rúmum 100 árum kom forveri Freyju, Freyr, fram á sjónarsviðið. Á þeim tíma voru ungmennafélög að verða til í hverri sveit og með þeim fóru um vindar samvinnu, bjartsýni og framtakssemi. Í þessu fyrsta tölublaði Freyju kennir ýmissa grasa. Loðdýr, nautgripir og sauðfé eru þær skepnur sem fá hvað mest plássið í þetta skipti, auk þess sem gefin eru góð ráð við garðrækt og farið yfir mikilvægi þess að varðveita þekkingu. ...
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í morgun mann sem setið hefur í gæsluvarðhaldi grunaður um nauðgun í Vestmanneyjum 31. júlí s.l. í áframhaldandi gæsluvarðhald til kl. 14:00 2. september 2011. Úrskurðurinn byggir á 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Áfram er unnið að rannsókn málsins og verða frekari upplýsingar um gang hennar ekki veittar að sinni, að sögn lögreglu....
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Í tilefni af fimmtíu ára afmæli Listasafns ASÍ verður í dag, á laugardag, opnuð sýningin „Fimmtíu góðæri“ þar sem verður að finna úrval verka úr safneigninni eftir 65 listamenn. Sýningin stendur frá 6. ágúst til 11. september. Sýningastjórar eru Kristín Guðnadóttir forstöðumaður safnsins og Steinunn Helgadóttir. Aðgangur er ókeypis....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Það hefur verið mikið í tísku hér á landi „að planka” nánast hvar sem er. Tíska þessi hefur greinilega borist til Siglufjarðar ef marka má myndir inn á www.siglfirðingur.is. Þar má sjá mynd af Huldu Jakobínu Friðgeirsdóttur sjúkralið, ásamt hundinum Yrsu, þar sem hún "plankar" upp á vörðu á fjallinu Blekkli, við botn Siglufjarðar, sem er í 776 metra hæð yfir sjávarmáli. Meðal ummæla um myndina að Hulda bæri höfuð og herðar yfir aðra bæjarbúa Siglufjarðar....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er nú haldinn í ellefta sinn á Dalvík. Frá upphafi hefur markmið hátíðarinnar verið að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Ennfremur er allur matur og skemmtan á hátíðarsvæðinu ókeypis. Hátíðin hefst formlega í dag með Vináttukeðjunni og hún verður á sínum stað fyrir neðan Dalvíkurkirkju. Dagskráin er glæsileg að vanda. ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Í gær stöðvaði fíkniefnadeild lögreglunnar á Suðurnesjum umfangsmikla kannabisræktun í heimahúsi. Við húsleitina var lagt hald á um 200 kannabisplöntur á ýmsum ræktunarstigum. Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar. Húsráðandinn var handtekinn á staðnum og við yfirheyrslu viðurkenndi hann ræktunina og telst málið upplýst....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, skrifar athyglisverða grein á bloggsíðu sína þar sem hann veltir því fyrir sér hvað Ríkissjóður tapi miklu á sölunni á Sjóvá. Hann fullyrðir að tap ríkisins nemi alla vega um 7 milljörðum króna en ekki 4,3 milljörðum eins og Seðlabankinn heldur fram....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Handverkshátíðar 2011 hófst að Hrafnagili í dag og stendur fram á mánudag. Fjölbreytnin hefur aldrei verði meiri og sýnir hún glöggt þá miklu grósku sem er í íslensku handverki og hönnun í dag. Af þeim hundrað sýnendum sem taka þátt í ár eru um helmingur nýir aðilar alls staðar af landinu....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í þrettánda sinn. Það sem eitt sinn var lítil eins dags hátíð, sem fimmtán hundruð gestir sóttu, hefur vaxið og dafnað með hverju ári og er núna litrík fjögurra daga hátíð sem 80–90 þúsund manns sækja. Hátíðin hefur ekki eingöngu verið hinsegin fólki ávinningur í baráttu þess. Hinsegin dagar eru einn litríkasti þátturinn í menningarlífi Reykvíkinga og njóta meiri vinsælda en flestir aðrir viðburðir á Íslandi....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Þing Evrópusambandsins hefur loksins fallist á nýjar reglur um upprunarmerkingar kjötvara en nú verður brátt skylda að merkja allt kjöt upprunalandi sínu með skýrum og greinargóðum hætti. Þannig verður óheimilt að selja kjöt og/eða unnar kjötvörur sem ekki eru merktar skilmerkilega upprunalandi sínu. Hingað til hafa eingöngu verið í gildi reglur um þetta varðandi nautakjöt en nú ná s.s. nýju lögin einnig til annarra kjöttegunda. ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Um helgina fer fram 17. landskeppni Íslands og Færeyja í skák og tefld verður tvöföld umferð á 11 borðum á Húsavík og á Akureyri.
Færeyingar unnu naumlega þegar hún var haldin á þeirra heimavelli fyrir tveimur árum. Alls hafa Íslendingar sigrað 11 sinnum frá því að keppni hófst árið 1978. Íslensku keppendurnir koma úr röðum Skákfélags Akureyrar, Skákfélagsins Goðans, Skáksambands Austurlands og Taflfélagsins Máta. Einn af keppendum Íslands verður hinn...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Það hefur líklega farið fram hjá fáum að sumarið í ár hefur verið frekar þurrt og hefur það valdið skorti á neysluvatni í Flóahreppi á Suðurlandi. Þetta kemur fram í Áveitunni, fréttabréfi Flóahrepps, sem gefið er út af ungmennafélögum hreppsins: Baldri, Samhygð og Vöku. Íbúar hreppsins hafa þó ekki fundið fyrir skorti því vatni hefur verið dælt nánast stöðugt frá sveitarfélaginu Árborg í miðlunartank við Ruddakrók í allt sumar. Fyrirhugað er ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
"Að halda því fram Eyjamenn velji til að stjórna hátíðinni (Þjóðhátíðinni), menn sem stjórnist af gróðasjónarmiðum, styðji nauðgunarmenningu og eru skjól fyrir kynferðisbrotamenn, er óráðshjal." Þetta segir Páll Scheving, formaður Þjóðhátíðarnefndar, í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér. "Eyjamenn leiða dætur sínar í Herjólfsdal. Þeir eru ekki að leiða þær í gin ljónsins. Allt kapp er lagt á að tryggja öryggi gesta. Öryggisþátturinn er í stöðugri þróun og endurskoðun." Páll ítrekar að gerendur nauðguna beri einir ábyrgð á ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,9 milljarða króna og inn fyrir 43,1 milljarð króna. Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 1,8 milljarða króna. Í júní 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 11,7 milljarða króna á sama gengi. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofunni. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrir fyrri helming ársins 2011 var því 21,0 milljörðum króna minni en á sama tíma árið áður.
Fyrstu sex mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 285,0 milljarða króna en inn fyrir 242,8 milljarða króna fob. Afgangur var því á ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Gistinætur á hótelum á Íslandi í júní síðastliðnum voru 181.000 samanborið við 157.000 í júní 2010 að því er fram kemur í frétt frá Hagstofunni. Á Suðurlandi voru 25.340 gistinætur júní sem er 19% fjölgun samanborið við júní 2010. Það á svo eftir að koma í ljós hvaða áhrif hlaupið í Múlakvísl mun hafa. Gistinætur erlendra gesta voru um 85% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í júní og fjölgaði gistinóttum þeirra um 11% frá fyrra ári. Mikil aukning var á gistinóttum Íslendinga í júní, gistinætur voru ríflega 27 þúsund ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Sumrinu verður fagnað á Selfossi næstu helgi en þá fer þar fram bæjar- og fjölskylduhátíðin Sumar á Selfossi sem nú hefur verið haldin í mörg ár. Stóru hátíðartjaldi verður komið fyrir í miðbæjargarðinum en þar munu íbúar Selfoss fá sér morgunmat saman laugardagsmorgunin þann 6. ágúst milli 9:00 og 11:00. Dagskrá hátíðarinnar mun að mestu fara fram í miðbæjargarðinum en þar verður meðal annars boðið upp á kassaklifur, handverksmarkaði, sýningu á Parkour, Selfosströllið og sérstaka hátíðardagskrá á sviði ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Fólk sem á leið sína um Hlemm næstu daga mun upplifa óvenjulega stemningu þar því hópur listamanna ætlar að dvelja á svæðinu í ágúst og setja upp innsetningar. Verkefnið ber heitið Hittumst á Hlemmi og fyrir því stendur Urban Utd ásam Reykjavíkurborg. Hópurinn ætlar sér að lífga upp á Hlemmsvæðið með tilraunainnsetningum og viðburðum. Einnig gefst þjónustuaðilum tækifæri til að bjóða fram þjónustu sína. Segir í tilkynningu að efniviðurinn sé "allt það sem Hlemmsvæðið hefur upp á að ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Norrænir sveitarstjórnarráðherrar halda sinn árlega fund hér á landi þessa dagana. Aðal umræðuefni fundarins eru fjármál sveitarfélaga í kjölfar efnahagshrunsins og kynning á ýmsum verkefnum er snúa að auknu lýðræði og íbúaþátttöku. Þetta efni var tekið upp sérstaklega að frumkvæði Íslendinga. Þá er farið yfir nýjungar í norrænni löggjöf í málefnum sveitarfélaga og fjallað um ýmis önnur málefni sveitarstjórnarstigsins. Fundurinn er haldinn á Suðurlandi og ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Sauðfjárbændur hafa legið undir mikilli gagnrýni í fjölmiðlum í sumar og virðist hún ekki síst sprottin vegna neikvæðrar afstöðu bænda til aðildar að Evrópusambandinu. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, bregður spéspeglinum á þessar alvarlegu umræður á fésbókarsíðu sinni í dag með eftirfarandi pistli:...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Jón Gnarr, borgarstjóri, afhenti í dag Silje Arnekleiv, staðgengli Dag Wernø Holter sendiherra Noregs, minningabækur sem legið hafa frammi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Alls höfðu rúmlega 3.000 manns skráð nöfn sín í minningabækurnar til þess að votta Norðmönnum hluttekningu vegna voðaverkanna í Osló og Útey þann 22. júlí sl. ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Halldór Halldórsson, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélög fá umtalsvert meira vægi og sterkari stöðu gagnvart ríkisstjórn og Alþingi í stjórnarskránni nái tillögur stjórnlagaráðs ná fram að ganga. En hann bendir jafnframt á að íslensk sveitarfélög séu fyrir mjög sjálfstæð. Í tillögum að nýrri stjórnarskrá sem Stjórnlagaráð afhenti síðastliðinn föstudag er sérstaklega kveðið á um mörg atriði sem tengjast sveitarfélögum og sjálfstæði þeirra gagnvart ríkisstjórn og Alþingi en eitt af markmiðum ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Það sem af er ári hefur umferð á hringveginum minnkað um 5,6% og verði 4 6 % samdráttur í akstri á þjóðvegakerfinu árið 2011 er það mesti samdráttur milli ára síðan 1975. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Vegagerðin áætlar, meðal annars út frá upplýsingum frá orkuspánefnd, að ef akstur dregst saman um 5,5% gerir það u.þ.b. 18 milljón lítra minni notkun af bensíni og gasolíu yfir árið. Alls minnka þá tekjur af eldsneyti um 4.323 milljarða ef bara er miðað við lægsta verðið í dag hjá ÓB og Orkunni klukkan 16:00 ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur í á fjórða ár verið í viðræðum við Rarik með það að markmiði að fá hitaveitu í bæinn en hún yrði lögð frá Reykjum við Húnavelli. Ef af verður má áætla að um sé að ræða fjárfestingu upp á rúmlega 1 milljarð króna og er áætlaður framkvæmdatími um 2-3 ár. Adolf H. Berndsen oddviti telur að verði af þessari framkvæmd auki það möguleika í atvinnulífi og geri búsetu á Skagaströnd enn vænlegri. Framkvæmdirnar sjálfar muni auk þess skapa umsvif og atvinnu. En það sem mestu skipti sé að vænta megi ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Næstkomandi sunnudag verður sveitasælan í algleymingi á Árbæjarsafni að því er fram kemur á vefsíðu safnsins. Í hugum margra hafa gömlu sveitastörfin yfir sér rómantískan blæ en til að fæða og klæða fólk þurfti mörg handtök. Hér áður fyrr var það hverri konu mikilvægt að kunna að koma mjólk í mat og ull í fat. Í eldhúsinu mun húsfreyjan gera upp skyr og strokka smjör og á baðstofuloftinu mun vinnukonan þeyta rokkinn og teygja lopann. Í eldsmiðjunni verður eldsmiður að störfum. Safnir minnir svo á mjaltir kl. 16:30 og að ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Breska heilbrigðisráðuneytið hefur fengið íþróttaálfinn til að aðstoða sig við að kynna heilbrigðara líferni fyrir breskum skólakrökkum sem eru að meðaltali þrisvar sinnum þyngri en gott er talið. Change4Life eru bresk samtök sem berjast við offituvandamál breskra barna. Samtökin vinna með öðrum samtökum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum í september hefst samstarf milli Change4Life og Íþróttabæjar, eða Lazy Town eins og fyrirtækið kallast í dag. Í skólum munu börn læra um heilbrigðan lífstíl, hollt mataræði og ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Evrópuráðið hvetur sveitarfélög í aðildarríkjum sínum til skipuleggja lýðræðisviku (ELDW) í kringum 15. október En þann dag árið 1985 var Evrópusáttmáli um sjálfstjórn sveitarfélaga opnaður til undirritunar.
"Lýðræði og mannréttindi haldast í hendur. Það er ekkert lýðræði án mannréttinda. Lýðræðisvikunni 2011 er ætlað að auka skilning og meðvitund um að mannréttindi snerta ekki bara verkefni ríkisins heldur líka sveitarfélaga." Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðinu sem birt er á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélögum í ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Margrét Hannesdóttir lést í gær, 107 ára að aldri. Hún var elsti Sunnlendingurinn og næstelsti Íslendingurinn. Aðeins átta aðrir hafa lifað svo lengi, allt konur. Margrét var fædd 15. júlí 1904, flutti til Reykjavíkur 1928 og giftist Samúel Kristjánssyni sjómanni 1930, en hann lést sumarið 1965, fyrir 46 árum. Margrét bjó á Langholtsveginum þar til í febrúar á þessu ári....
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Rekstrarniðurstaða Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri fyrir árið 2010 er í samræmi við þær áætlanir sem gerðar voru. Í fyrra voru fjárheimildir skólans samtals 574 milljónir króna. Sértekjur skólans voru hlutfallslega mjög miklar en heildarvelta var 1.098 milljónir króna og halli á rekstrinum 11,1 milljónir króna eða 1% af veltu....
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Náttúrufræðistofnun og Urriðaholt ehf. hlutu á dögunum viðurkenningu bæjarstjórnar Garðabæjar fyrir smekklega og vel hirta lóð atvinnuhúsnæðis. Náttúrufræðistofnun Íslands fékk viðurkenningu í flokki fyrirtækja. Í umsögn umhverfisnefndar Garðabæjar segir m.a. að eigendur húss Náttúrufræðistofnunar eigi hrós skilið fyrir smekklegan frágang lóðar og umhverfis hússins á Urriðaholti....
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Um næstu helgi verður tónleikaþrenna í Selinu á Stokkalæk. Þar koma fram þrír ungir tónlistarmenn sem tvímælalaust eiga sér glæsta framtíð í klassískri tónlist og hafa raunar þegar sannað hæfni sína og náð glæsilegum námsárangri bæði hér á landi og erlendis. Með þeim er svo reyndara tónlistarfólk í fremstu röð....
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Reykhóladagar, sem er byggðarhátíð Reykhólahrepps, hefjast í kvöld og lýkur á sunnudag með Ólafsdalshátíð. Mikil dagskrá hefur verið sett saman og meðal dagskráratriða er bíó, kassabílakeppni, dráttarvélaakstur, pulsupartí og spurningakeppni, sýningar og siglingar, kvöldvaka og dansleikur....
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Í gær urðu menn sem voru við veiðar í Hörgá í Hörgársveit varir við sel sem hafði gengið upp í ána. Brugðist var við skjótt, enda getur selur valdið miklum usla í lífríki árinnar og truflað veiðar verulega. Hann er því enginn aufúsugestur. Selurinn var skotinn á færi og hræið fjarlægt, að því er fram kemur á vef Hörgársveitar....
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Rúmlega 200 manns mættu á samstöðufund sem haldin var við Oddsskarðsgöng í gærkvöld, en göngin hafa verið í umræðunni síðustu daga vegna umferðaröngþveitis sem varð um síðustu helgi og grjóthruns í vor. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur sent þingmönnum Norðausturkjördæmis bréf þar sem segir að sé einhver hætta á grjóthruni í Oddsskarðsgöngum skapi það slysahættu sem sé óþolandi....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Banaslys varð í dag á heimreið að sumarhúsi í Landsveit í Rangárþingi ytra þegar barn á sjötta aldursári varð undir afturhjóli bifreiðar. Tilkynning barst lögreglu kl. 17:41. Barnið var flutt með þyrlu LHG á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en var úrskurðað látið nokkru eftir komuna þangað....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Veiðimaðurinn Halldór Gunnarsson skellti sér í Kleifarvatnið sl. mánudag og fékk mjög fallegar bleikjur á Peacock púpu með kúluhaus. Bleikjurnar voru allt upp í 5 pund (2,4 kg). Í Þingvallavatni er mikil bleikja þessa dagana og einnig hafa menn verið að fá fína veiði í Úlfljótsvatni....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Um hádegisbil í dag varð Margrét, sem er 15 tonna trébátur, vélarvana við baujuna í innsiglingunni í Grindavík. Suðaustan vindur var á svæðinu svo bátinn rak í átt að landi. Oddur V. Gíslason, björgunarskip SL í Grindavík, var kallað út en þegar það kom á staðinn hafði nærstaddur bátur kippt aðeins í hinn vélarvana bát sem var svo dreginn til hafnar af Oddi....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt niðurstöðum launakönnunar VR 2011 vinna 41,8% félagsmanna hluta vinnutíma síns í fjarvinnu, að meðaltali 10,4 klst. á viku. Árið 2004 unnu 23,3% félagsmanna hluta vinnu sinnar í fjarvinnu, 38,5% árið 2008 og 40,4% í fyrra. Tæplega helmingur karla, eða 49%, vinna fjarvinnu samkvæmt launakönnuninni í ár og 36% kvenna. ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Í Krýsuvíkurhrauni leynast margar mannvistarleifar sem og náttúruminjar. Litla-Eldborg gaf t.d. af sér mikið hraunflæmi. Í þeirri afurð eru nokkrar hellarásir, s.s. Bálkahellir, um 450 m langur. Í honum eru áhugaverðar bergmyndanir, auk viðkvæmra dropsteina og hraunstráa. Í Arngrímshelli var fjárskjól um 1700. Þar hafðist og Krýsuvíkur-Gvendur við með fé sitt um 1830. Tóftir af húsi Arngríms eru framan við hellismunnann og mikið af hleðslum inni í honum....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Dagbjartur Willardsson hefur tekið við umboði VÍS í Grindavík, en umboðið var áður hjá SpKef. Í tilefni opnunarinnar verður kaffi og kruðerí fyrir unga sem aldna föstudaginn 5. ágúst frá kl. 14-17 að Víkurbraut 46, Verkalýðshúsinu, þar sem umboðið er nú til húsa....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Seinustu tveir áratugir hafa verið Vestmannaeyingum erfiðir. Íbúum fækkaði, atvinnulífið gekk í gegnum þrengingar, samgöngur voru erfiðar og svartnættið virtist á stundum algert. Þegar upp var staðið var niðurstaðan næstum 20% íbúafækkun. Á seinustu árum hefur samfélagið hinsvegar verið að ná vopnum sínum á ný. Blessunarlega virðist varanlegri viðspyrnu nú vera náð og hefur búsettum Eyjamönnum nú fjölgað 3 ár í röð. Það var því Eyjamönnum öllum mikið gleðiefni þegar íbúi 4.200 fæddist nú fyrir skömmu en lægst fór íbúatalan í rétt rúm 4.000 árið 2007....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hefur gengið frá ráðningu Sigrúnar Rögnu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs hjá Íslandsbanka, í starf forstjóra VÍS og Lífís. Sigrún Ragna er með víðtæka stjórnunar- og sérfræðireynslu og hefur unnið með fyrirtækjum úr flestum atvinnugreinum. Hún mun hefja störf hjá VÍS 1. september næstkomandi....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Adolf H. Berndsen, oddviti á Skagaströnd segir það vonbrigði hvernig þróun í sjávarútvegi hafi komið illa við staðinn en hann bendir á að ný tækifæri hafi skapast og ný störf orðið til á öðrum sviðum. Árið 2007 opnaði skrifstofa Atvinnuleysistryggingasjóðs á Skagaströnd, en skrifstofan sér um alla útreikninga og greiðslur atvinnuleysisbóta á landinu. Eftir hrun hefur starfsemin aukist samhliða auknu atvinnuleysi og þar vinna nú um 25 manns, en 7 starfsmenn störfuðu þar þegar skrifstofan opnaði. Adolf segir sveitarfélagið sífellt vera að ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Kylfingurinn Tiger Woods snýr aftur á golfvöllinn á morgun er hann tekur þá þátt í WGC-Bridgestone mótinu í Ohio. Hann hefur ekki keppt síðan í maí vegna meiðsla á hásin og hné. Hann mætir nú með nýjan kylfusvein sér við hlið, en hann heitir Bryon Bell og er æskuvinur hans. Tiger rak nýlega Ný-Sjálendinginn Steve Williams sem hafði verið á golfpokanum í 12 ár....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Nú er útlit fyrir að almennilegt hlaup geti verið að hefjast úr Eystri-Skaftárkatli en merki um það hafa komið fram á mælum Veðurstofunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Órói hefur mælst á jarðskjálftamælum í kringum Vestanverðan Vatnajökul frá því fljótlega eftir miðnætti í nótt og aur/grugg hefur frá sama tíma aukist mikið á mæli í Skaftá við Sveinstind. Vatn úr Eystri katlinum hefur enn ekki komið fram á mælinum við Sveinstind. Ef af verður, er ekki búist við að hlaupið nái hámarki í byggð fyrr en á föstudag segja ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Nú er starfsemi Útgerðarfélags Akureyringa formlega hafin á vegum nýrra eigenda en í byrjun maí var útgerðarfyrirtækið keypt af Samherja en forstjóri þess er Þorsteinn Már Baldvinsson. "Okkur stjórnendum Samherja er ljóst hve stóran sess ÚA skipar í hugum heimamanna. Við gerum okkur grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir því að taka yfir þennan rekstur og munum leggja okkur fram um að hann gangi sem best í framtíðinni" segir Þorsteinn á vefsíðu Samherja en hann tók á móti togaranum Baldvini NC 100 þegar hann kom til hafnar ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Makrílvinnsla hélt áfram í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði um verslunarmannahelgina og ekkert var dregið úr vinnslu þessa miklu ferðahelgi. Magnús Róbertsson vinnslustjóri segir á vef HB Granda að það verði "ekkert slegið af fyrr en í haust þegar lokið verður við að veiða úthlutaðar veiðiheimildir í síld og makríl" en nú eru mörg skip HB Granda eins og annara sjávarútvegsfyrirtækja upptekin við "ólympískar makrílveiðar" eins og einn áhafnarmeðlimur Arnars-HU 1, frystitogara Fisk Seafood, komst að orði. Það vinna um ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Það sem af er sumri er helgarumferð á hringveginum í kringum höfuðborgarsvæðið 6,7% minni en meðaltal undanfarinna ára og helgarumferðin um verslunarmannahelgina var langt undir meðaltalsumferð verslunarmannahelga áranna 2008 til 2010). Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni. Ástæðurnar fyrir þessum samdrætti í umferð gætu verið nokkrar. Hátt eldsneytisverð er möguleg ástæða en einnig var mikið um að vera á höfuðborgarsvæðinu og því þurfti fólk ekki að fara út á land til að ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Nú standa yfir tökur á síðustu mynd Christophers Nolan um Batman, The Dark Knight Rises, og sem fyrr er það Christian Bale sem leikur leðurblökumanninn. Myndin, sem kostar um 250 milljónir dollara, er síðasta myndin af þremur sem Nolan gerir um hetjuna í Gotham en myndin er að miklu leiti tekin upp í borginni Pithsburgh í Pennsilvaníu fylki. Íbúar hennar hafa því séð margt undarlegt gerast á götum hennar síðustu vikur. Um götur borgarinnar keyra, ekki einn heldur, þrír Batman bílar í lögreglufylgd, leðurblökumaðurinn slæst...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Norræna rappkeppnin, Rap it up, er í fullum gangi en hún hófst þann 11. maí síðastliðinn. Keppnin er fyrir alla unga rappara á norðurlöndunum á aldrinum 14 til 22 ára sem rappa á einu norrænu málanna. Í dómnefnd eru fulltrúar norðurlandanna og fyrir Íslands hönd eru Blaz Rocka, eða Erpur Eyvindarson og Stinnson. Rappkeppnin er gagnvirk og fer þannig fram að keppendur hlaða tónlistarmyndböndum inn á síðu keppninnar. Dómnefndin velur bestu framlögin sem keppa á stóru Norðurlandamóti í ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Innanríkisráðherra hefur skipað Helga Magnús Gunnarsson í embætti vararíkissaksóknara við embætti ríkissaksóknara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu. Helgi Magnús er fæddur 4. desember 1964. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1998 og stundaði framhaldsnám á háskólastigi í rannsókn og saksókn efnhagsbrota við Polithøgskolen 2004-2005. Hann fékk leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi 2001. Hann hefur veitt efnhagsbrotadeild ríkislögreglustjóra forstöðu frá árinu 2007, en hefur ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Mýrarboltamótinu á Ísafirði lauk á sunnudaginn og þótti takast vel og hafa þátttakendur aldrei verið fleiri. 52 lið voru skráð til leiks, 40 í karlaflokki og 12 í kvennaflokki. Veðrið var gott og aðstæður allar ákjósanlegar. Mýrarboltameistararnir þetta árið, og liðið sem hampaði mýrarboltabikarnum, stærsta bikar í íslenskri íþróttasögu, eru Aðskilnaðarsamtök Vestfjarða....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér tilkynningu vegna umræðu í fjölmiðlum í framhaldi af frágangi á sölu á hlut Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Þar segir m.a. að fullyrðingar um að hagstæðasta tilboði hafi ekki verið tekið séu rangar. "Þegar kaupsamingur við núverandi kaupendahóp var undirritaður lá ekki fyrir gilt tilboð frá öðrum sem hægt var að taka afstöðu til. Eins og kemur fram í yfirlýsingu Seðlabankans frá 4. febrúar síðastliðnum var það tilboð dregið til baka sem sett var fram sl. haust."...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í dag sent Annie Mist Þórisdóttur hamingjuóskir með sigur hennar í Heimsleikum í crossfit. Í kveðjunni áréttaði forseti að hún hefði sýnt ungu fólki hve langt væri hægt að ná með aga, þjálfun og einbeitingu. Mikilvægt væri að æska landsins ætti slíkar fyrirmyndir....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Það sem af er ári hefur umferð um Héðinsfjarðargöng aldrei verið meiri en hún var síðustu helgi, verslunarmannahelgina, þá miklu ferðamannahelgi. Um þetta er skrifað á siglfirðingi.is. Laugardaginn 30. júlí síðastliðinn fóru 1.974 bílar um göngin Siglufjarðarmegin en 1.913 Ólafsfjarðarmegin, sem gerir að meðaltali 1.944 bíla um bæði göng. Litlu minni umferð var um göngin á sunnudeginum 31. júlí eða 1.853 bílar að meðaltali. Umferð var heldur minni á mánudeginum og þá fóru um göngin 1.201 bílar. Verslunarmannahelgin er með hæsta ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Adolf H. Berndsen, oddviti Skagastrandar, segir miklar breytingar hafa átt sér stað á Skagaströnd undanfarin ár, miklar breytingar í litlu samfélagi. Árið 2004 voru gerðir út frá Skagaströnd tveir frystitogarar, starfrækt var fiskvinnsla og öflug rækjuverksmiðja og á skrifstofu Skagstrendings störfuðu 6 manns. Á þessum tíma var aðeins einn opinber starfsmaður á Skagaströnd sem var hjúkrunarfræðingurinn við heilsugæsluna. Sama ár var Skagstrendingur hf. keyptur af FISK á Sauðárkróki og þá breyttist margt. Í dag er frystitogarinnn Arnar HU 1...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Fimmtudaginn 4.ágúst er komið að sjöttu tónleikunum af níu í "Rafmagnslaust á Norðurpólnum" en nú koma fram hljómsveitirnar Lockerbie og Moses Hightower. Hljómsveitin Lockerbie er nýkomin úr hringferð um landið þar sem þeir spiluðu með Of Monsters and Men og Agent Fresco og eru á fullu við að kynna plötuna sína, Ólgusjór, sem kom út á dögunum undir merkjum Record Records. Lockerbie spilar melódískt síðrokk og eru allir textar á íslensku. Moses Hightower var stofnuð árið 2007 en í fyrra gaf hljómsveitin út sína ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Meðal sérviðburða sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður árlega upp á er sundbíóið, en þá er þekkt kvikmynd sýnd í innanhússlaug, fullri af bíógestum á baðfötunum. Í ár verður það ævintýramyndin Sagan endalausa (The Neverending Story) sem sýnd verður í Sundbíóinu. Myndin segir frá Bastían Balthasar Búx, sem á ekki sjö dagana sæla þar sem skólabullur hrella hann án afláts. Dag einn tekst honum að flýja kvalara sína inn í bókabúð og í framhaldinu kemst hann yfir bók eina veglega, sem inniheldur að sögn Söguna ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Verkefni lögreglunnar á Vestfjörðum voru fjölbreytt í síðustu viku en þá var ekið á kindur, yfir 20 ökumenn voru teknir fyrir of hraðann akstur og maður var fluttu með þyrlu til Reykjavíkur eftir að hafa slasast á dansleik. Fyrst er það umferðin. 29 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðann akstur og sá ók hraðast var á 130 km/klst. Í tilkynningu frá lögreglunni segir um þann ökumann að hann: “þakkaði lögreglumanni fyrir að stöðva akstur sinn, með þeim orðum að hann hafi verið sofandi og ekki vaknað fyrr en farþegar hans bentu honum ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Í Bandaríkjunum verður það sífellt algengara að ungar konur í háskólanámi selja sig eldri mönnum til að geta borgað skólagjöld og önnur lán og skuldir. Um þetta er fjallað í frétt á Huffington Post.
Fjölmargar vefsíður hafa það að markmiði að koma á tengslum á milli ungra kvenkyns háskólastúdenta sem eru á milli 20 og 25 ára og eldri manna sem vanalega eru talsvert eldri heldur en þeir segjast vera.
Þessir menn eru kallaðir sugar daddies á enskri tungu og konurnar sugar babes...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á þrjár kannabisplöntun við húsleit í íbúð í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar. Húsráðandinn var færður til yfirheyrslu vegna málsins og viðurkenndi aðild að málinu. Talið er að fleiri tengist ræktuninni og er málið í rannsókn....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Nýtt útibú Íslandsbanka við Suðurlandsbraut hefur ákveðið að leggja landssamtökunum Þroskahjálp lið. Þroskahjálp eru regnhlífarsamtök fyrir 22 félög sem eru ýmist foreldra-, styrktar- og fagfélög fólks sem hefur sérhæft sig í þjálfun og þjónustu við fatlaða. Samtökin eru í hagsmunabaráttu fyrir fjölskyldur fatlaðra barna og er þeim þröngur stakkur sniðinn. Styrkurinn, sem nemur hálfri milljón króna, kemur því félaginu vonandi að góðum notum. ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Hreindýraveiðiferðir eru ólíkar og geta boðið uppá óvæntar uppákomur. Þetta fengu þeir að reyna veiðimennirnir sem felldu tarfa sína í Eiðaþinghá nærri Gröf á dögunum. Felldir voru þrír tarfar það nærri Lagarfljóti að einfaldasta leiðin var að flytja þá á báti norður yfir Fljótið undan bænum Straumi. Veiðimenn í þessari ferð voru Páll Ólafsson, Þórir Guðmundsson og Steinar Helgason....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Dagrún Ísabella Leifsdóttir, sópransöngkona, og Gisele Grima frægur píanisti frá Möltu halda tónleikana Music Women. Á tónleiknunum vekja þær athygli á tónlistarkonum sem hafa gleymst eins og Clöru Schumann og Ninu Greig með tónlist, en einnig með fróðleik um líf og störf þeirra. Þrennir tónleikar verða haldnir og fara þeir fram í Miðgarði Skagafirði 5. ágúst kl. 20, Gljúfrasteini 7. ágúst kl. 16 og Stykkishólmskirkju 8. ágúst kl. 20. ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
"Fáklæddar þær fóru á stjá frúrnar hér í Tungunum. Þá varð skrýtið upplit á ýmsum karlapungunum." Þannig orti Jóhannes Sigmundsson er hann sá dagatal Kvenfélag Biskupstungna 2012. Konurnar hafa nefnilega endurtekið leikinn frá 2010 og gefa út nýtt dagatal fyrir árið 2012. Dagatalið prýðir eins og áður gullfallegar kvenfélagskonur léttklæddar í leik og starfi....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Njálsbrennuhátíð var haldin á Hvolsvelli um helgina og á laugardagskvöld var bærinn á Bergþórshvoli árið 1011 brenndur að viðstöddu fjölmenni. Sviðsett var aðdragandi Njálsbrennu og að endingu var Bergþórshvoll brenndur til grunna en hann hafði verið reistur hjá Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Hátíðin hófst á föstudag og var boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, tónleika, fornmannaíþróttir, þrautir og ýmsan atgang....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Vefur Ljósmyndasafns Akraness hefur verið endurbættur. Breytingarnar eru hannaðar af Jóhanni Ísberg, í samvinnu við starfsfólk Ljósmyndasafnsins. Fleiri myndir birtasta á skjá og hægt er að velja hvað margar myndir birtast á síðu. Nú stendur yfir ljósmyndasýning á vegum Ljósmyndasafnins í Kirkjuhvoli....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Heimsmeistaramót íslenska hestsins hófst í St.Radegund í Austurríki í gær með hátiðlegri mótsetningu og byggingardómum kynbótahrossa. Það var líf og fjör á þjóðarkvöldi í gær þegar aðilar þátttökuþjóðanna buðu upp á dýrindis góðgæti veislutjaldi St. Radegund. Íslenska sveitin bauð upp á rúgbrauð, bæði með hangikjöti og laxi. Því var svo skolað niður með blöndu af malti og appelsíni og bita af prinspóló í eftirrétt....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Varðskipið Ægir bjargaði á laugardag 58 flóttamönnum sem skildir höfðu verið eftir í gilskorningi á Radopos skaga á eyjunni Krít. Í hópnum voru 30 karlmenn, 16 konur, þar af 2 ófrískar og 12 börn allt niður í ársgömul. Að sögn áhafnar varðskipsins var ástand fólksins gott miðað við aðstæður. Mjög erfitt hefði verið að bjarga fólkinu með öðrum hætti og voru aðstæður orðnar erfiðar í lok aðgerðarinnar vegna versnandi sjólags. Tókst björgunin mjög vel og var fólkið flutt í land á Souda á Krít. ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum lauk í gærkvöld, en hljómsveitir léku þó fyrir dansi fram undir morgun. Áætlað er að um 14 þúsund manns hafi lagt leið sína í Herjólfsdalinn um liðna helgi. Veðrið var ágætt lengst af, en töluvert rigndi á laugardaginn. Flestir gestir hátíðarinnar fara heim í dag og hafa ferðir Herjólfs verið samkvæmt áætlun. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd frá Þjóðhátíðinni. Þjóðhátíð 2012 verður sett föstudaginn 3. ágúst, fyrir þá sem ætla að mæta aftur að ári....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Rétt upp úr klukkan 2 síðastliðna nótt voru björgunarsveitir af svæði 7 (norðanverðir vestfirðir) kallaðar út til að leita af tveimur kajak ræðurum sem höfðu lagt af stað á föstudagskvöldið og ætluðu að vera komnir til baka um kvöldmat á laugardag. Þeir höfðu skilið eftir ferðaáætlun sem hljóðaði uppá að þeir færu frá Flateyri í Önundarfirði og ætluðu að sigla í Staðardal í Súgandafirði og gista þar yfir nóttina....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn á vakt í Vestmanneyjum s.l. nótt handtóku í nótt mann á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað stúlku nóttina áður. Atvikið mun hafa átt sér stað í og við salernisaðstöðu í Herjólfsdal milli kl. 04:00 og 05:00 aðfaranótt sunnudagsins. Stúlkan leitaði til lögreglu um miðjan dag í gær og hófst þá rannsókn lögreglu en stúlkan fór á Neyðarmóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss í gærkvöldi....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Það er eins og hundaæði hafi gripið um sig á Blönduósi ef marka má lista yfir skráða hunda, sem birtist reglulega á vef Blönduósbæjar. Í byrjun síðasta mánaðar voru 20 skráðir hundar í Blönduósbæ en núna eru þeir orðnir 38 samkvæmt nýbirtum lista. Aukningin er 18 hundar á tæplega tveimur mánuðum.
Sömu sögu má segja um skráða ketti. Í byrjun síðasta mánaðar voru sex skráðir kettir á Blönduósi, en þeim fjölgaði um sjö á einum mánuði og eru nú orðnir 13 talsins.
...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Mikið var að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu nótt Þjóðhátíðar 2011. Fíkniefni fundust, nauðgun er í rannsókn og sérsveitarmenn handóku einn mann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Gestir Þjóðhátíðar eru nú farnir að streyma heim til sín og mun Herjólfur sigla stanslaust næstu tvo sólarhringa. Einnig mun flugfélagið Ernir og Flugfélag Íslands fara fjöldi ferða með farþega frá Eyjum. Lögreglan áætlar að nálægt 14 þúsund manns hafi verið í dalnum í gærkveldi á brekkusöng Árna ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn mánudag og þriðjudag tók Landhelgisgæslan og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar þátt í æfingum með danska varðskipinu Knud Rasmussen. Æfingarnar voru einskonar próf fyrir sem lagt var fyrir Mariu Martensen en hún gæti orðið fyrsta konan til að stjórna varðskipi jafn stóru og Knud Rassmusen innan danska flotans. Síðdegis á mánudag fór fram fyrri hluti æfingarinnar en þá tók björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Ásgrímur S. Björnsson að sér að leika skip sem þarfnaðist aðstoðar vegna ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Mikið var um að vera á Siglufirði þessa helgina en þar voru síldardagar auk þess sem tvö skemmtiferðaskip komu til hafnar.
Föstudaginn 29. júlí voru um 5 til 6 þúsund manns komnir til bæjarins til að njóta þess sem Síldarævintýrið hafði upp á að bjóða. Í góðu veðri, en í gær var 17 stiga hiti, var meðal annars boðið upp á tónleika og síldarsöltun í síldarminjasafninu. Föstudag og laugardag komu tvö skemmtiferðaskip til bæjarins. Föstudagsmorgunin kom Minerva til hafnar og var farþegafjöldi um 350 manns. Skipið er 35 ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Áhöfn frystitogararans Málmey SK-1 var með söfnunarátak síðastliðna tvo túra fyrir Magnús Jóhannesson sem er bundinn við hjólastól eftir alvarlegt vinnuslys í júní. Frá þessu er greint á Feykir.is. Flestir í áhöfn Málmeyjar, 44 meðlimir, tóku þátt og alls söfnuðust 655 þúsund sem áhöfnin afhenti Magnúsi og fjölskyldu hans síðastliðinn fimmtudag, þann 28. júlí. Málmey er gerð út af Fisk seafood og á heimasíðu fyrirtæksins kemur fram að skipið er 2ja þilfara frystitogari með heimahöfn á Sauðárkróki. Hún var smíðuð í ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Vel hefur gengið að safna vatni í miðlanir Landsvirkjunar í júlímánuði að því er fram kemur á vef Landsvirkjunar. Miðlanir á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár eru nú þegar fullar og eru farnar á yfirfall en hlaup í Sveðju um miðjan mánuðinn flýtti fyllingu þeirra. Af þeim orsökum má búast við meira í rennsli í Þjórsá en verið hefur á sama tíma undanfarin ár. Á Norðurlandi er gert er ráð fyrir að Blöndulón fyllist í næstu viku og fari á yfirfall, en búast má við auknu rennsli í Blöndu í kjölfarið...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Menningarlífið á Hornafirði hefur blómstrað í sumar og þar hafa verið opnar margar sýningar í sumar en um það er skrifað á vefnum Ríki Vatnajökuls. Þann 24. júní opnaði sýning á verkum Svavars Guðnasonar og hefur hún verið opin á hverjum degi síðan og verður það út sumarið. Tolli opnaði sölusýningu í lok júní í Kartöfluhúsinu var síðasta sýningarhelgi er núna um verslunarmannahelgina.
Hlynur Pálmason var með sýningu í Graðaloftinu á Humarhátíð og var sýningin vinsæl. Á föstudaginn í næstu viku, 5. ágúst, verður hann ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Sveitarfélagið Árborg hefur ráðið M. Sigríði Jakobsdóttur til starfa sem leikskólastjóra við sameinaðan leikskóla Brimvers á Eyrarbakka og Æskukots á Stokkseyri. Sameinaður leikskóli mun taka til starfa þegar sumarfrí enda í ágúst og verður pláss fyrir um 80 börn. Ákvörðun um ráðninguna var tekin að undangengnu opnu ráðningarferli á vegum Capacent, sem mat M. Sigríði vera hæfasta umsækjandann og hefur hún þegar hafið störf. Heilsuleikskólinn Æskukot stóð við Blómsturvelli 5 á Stokkseyri. Hann hóf starfsemi sína 11. október ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Annie Mist Þórisdóttir náði þeim frábæra árangri að verða heimsmeistari kvenna í Crossfit 2011, en keppnin fór fram í Los Angeles í Bandaríkjunum. Hún sigraði með nokkrum yfirburðum, fékk 842 stig, en næst kom heimsmeistarinn frá í fyrra, Kristin Clever frá Bandaríkjunum, með 799 stig. Annie fékk 250.000 Bandaríkjadali í verðlaun, eða um 30 milljónir íslenskra króna....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Umferð hefur gengið vel um verslunarmannahelgina á hálendinu að sögn hálendisvaktar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Svo virðist sem minni umferð sé núna á hálendinu en hefur verið undanfarnar verslunarmannahelgar. Ekki er gott að segja hvað veldur en veðrið er búið að vera frekar blautt og kalt á hálendinu en það á örugglega sinn þátt í þessari fækkun....
Tíminn | 31.07.2011 |
Ritstjórn
Á æskuheimili Arnolds Schwarzeneggers, líkamsræktartrölls, leikara og ríkisstjóra hefur nú verið opnað safn þar sjá má ýmsa muni úr lífi kappans. Safnið er í þorpinu Thal í nágrenni borgarinnar Graz og þar er líf Schwarzeneggers til sýnis. Í safninu eru heimatilbúin lyftingatæki sem hann notaði sem drengur þegar hann byrjaði að stunda líkamsrækt. Gestir geta séð hvernig hann bjó sem barn og geta séð gamla járn eldavél og brauðbox. Schwarzenegger sagði aðstandendum safnins sjálfur hvar boxið hafði verið staðsett í eldhúsi...
Tíminn | 31.07.2011 |
Ritstjórn
Skemmtanahald á hátíðarsvæðinu í Herjólfsdal fór vel fram síðastliðna nótt. Mun rólegra var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en nóttina á undan og engin stærri mál komu upp. Reyndar gistu þrír fangageymslu, en það var að þeirra eigin ósk þar sem þeir munu ekki hafa fundið tjaldið sitt að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Átta fíkniefnamál komu upp síðdegis í gær og nótt og er málafjöldi fíkniefnamála á þessari hátíð nú orðin 29 mál sem er svipað og undanfarin ár. Flest málin eru minniháttar, en í einu málinu fann ...
Tíminn | 31.07.2011 |
Ritstjórn
Á unglingalandsmótinu á Egilsstöðum var afhjúpaður bautasteinn til minningar um unglingalandsmót sem nú fer fram um verslunarmannahelgina. Þetta kemur fram á umfi.is. Þetta er í fyrsta sinn sem unglingalandsmót fer fram á Egilsstöðum en það hefur hins vegar tvö Landsmót UMFÍ farið þar fram áður. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sagði af þessu tilefni það heiður fyrir hönd hreyfingarinnar að fá að afhenda sveitarfélaginu þennan minnisvarða til minningar um það dugmikla og kröftuga starf sem ...
Tíminn | 31.07.2011 |
Ritstjórn
"Það vilja allir eiga gott lambakjöt" segir Ágúst Andrésson, sláturhússtjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga í viðtali við Bændablaðið en hann segir sölu á lambakjöti hafa aukist mikið síðustu vikur. Mikið hefur verið rætt um lambakjöt síðustu vikur. Bændur vilja fá hærra verð fyrir lambakjöt og vakti það mikil viðbrögð. Gylfi Arnbjörnsson hvatti neytendur til að kaupa ekki lambakjöt en það virðist hafa haft lítil áhrif og segir Ágúst að lambakjötssala hafi aukist mikið síðustu vikur og undir það tekur forstjóri Sláturfélags Suðurlands...
Tíminn | 31.07.2011 |
Ritstjórn
MP banki og Samband íslenskra sparisjóða hafa undanfarið unnið sameiginlega að upplýsingatæknimálum með það að markmiði að ná stærðarhagkvæmni í rekstri og lækka þar með rekstrarkostnað hvers aðila fyrir sig. Ánægja hefur verið með samstarfi og á þeim grundvelli hefur verið ákveðið að auka samstarfið enn frekar. Samstarf aðila gæti meðal annars náð til fræðslu starfsmanna, reksturs sjóða, greiðslumiðlunar og annarra þátta sem samkeppnislög heimila af því er fram kemur í fréttatilkynningu. Markmið með samstarfinu er að ...
Tíminn | 31.07.2011 |
Ritstjórn
Talsvert var að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna skemmtanahalds á Akureyri en þar fer nú fram fjölskylduhátíðin Ein með öllu. Lögreglan tekur þó fram í tilkynningu um hátíðina að skemmtanahald hafi farið vel fram og þau mál sem komust til kasta lögreglu reyndust vera minniháttar. Mikill fjöldi fólks var í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi og nótt og þó nokkur ölvun. Lögreglan þurfti aðallega að hafa afskipti af fólki sem hafði sofnað ölvunarsvefni utandyra víðs vegar um bæinn. Einn gisti fangageymslu lögreglunnar ...
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Um 2.000 manns komu á Þjóðhátíð til Vestmannaeyja í dag og búist er við öðrum eins fjölda á morgun. Það er reiknað með að 14 þúsund gestir verði á Þjóðhátíð á morgun, sunnudag. Lögreglan í Vestmannaeyjum segir hátíðina hafa gengið vel fyrir sig þrátt fyrir 5 líkamsárásir eftir nóttina. Sólin hefur skinið á Þjóðhátíðargesti í Herjólfsdal í dag en áfram er spáð rigningu á sunnanverðu landinu....
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Kristín Dýrfjörð og Friðrik Þór Guðmundsson, foreldrar Sturlu Þórs Friðrikssonar sem lést eftir flugslys í Skerjafirði árið 2000, hafa fært gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi að gjöf sjónvarp, DVD tæki og nokkra mynddiska til minningar um hann. "Við lok verslunarmannahelgar fyrir 11 árum urðu nokkur alvarleg slys þar sem fjöldi ungs fólks á leið heim af útihátíðum slasaðist og sumt af því lét lífið. Eitt þessara ungmenna var sonur okkar, Sturla Þór Friðriksson, sem var á leið heim með vini sínum, Jóni Berki Jónssyni, í flugi frá Vestmannaeyjum. ...
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan áætlar að gestir á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum séu 10-11 þúsund. Eitthvað mun bætast við í dag með Herjólfi og flugi og einnig á morgun. Veðurspá fyrir daga þá sem eftir eru að hátíðinni er með þeim hætti að gert er ráð fyrir rigningaskúrum en annars mildu veðri. Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu nótt og þurfti lögregan að sinna hinum ýmsum verkefnum....
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
53 lið eru skráð til leiks í Mýrarboltanum á Ísafirði, en keppnin hefst í dag og er þetta stærsta mótið til þessa. „Allar aðstæður eru hinar bestu, vellirnir verða mjög blautir í ár enda voru þeir fyrst vökvaðir í byrjun júlí þegar við héldum kynningarleik," segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur Mýrarboltans. Mikill fjöldi fólksi er komið í bæinn til að taka þátt í mótinu og segist Jóhann Bæring rosalega stemmningu fyrir mótinu, enda er er alltaf gott veður í Tungudalnum. Það klikkar aldrei," segir Jóhann Bæring....
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Á mótssetningu Unglingalandsmótsins á Egilsstöðum í gærkvöldi tilkynnti Helga Guðrún Guðjónsdótir, formaður Ungmennafélags Íslands, hvar Unglingalandsmótin 2013 og 2014 yrðu haldin. Stjórn UMFÍ komast að þeirri ákvörðun að mótið 2013 færi fram á Hornafirði og 2014 yrði mótið á Sauðárkróki....
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Stærsta ferðahelgi ársins er nú að renna upp. Fólk hefur streymt á útihátíðir Verslunarmannahelgarinnar út um allt land, bæði í gær og í dag. Flestir virðast hafa lagt leið sína til Akureyrar, á Eina með öllu. Þar er búist við 13-15 þúsund manns. Reiknað er með allt að 10 þúsund gestum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og svipuðum fjölda á Landsmót UMFÍ á Egilsstöðum. Þá er Síldarævintýrið á Siglufirði, en þangað voru komnir um 4.000 gestir í gærkvöld....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Undanfarna daga hefur sjávarhiti hækkað um 2,5 gráður á skömmum tíma og hefur það aukið makrílveiðar að því er fram kemur á vefsíðu HB Granda. Lundey NS kom til Vopnafjarðar síðdegis í dag með um 500 tonna makrílafla. Skipið var að veiðum í Hvalbakshallinu og Rósagarðinum og fékkst þessi afli í þremur hollum á tæpum sólarhring. "Það er búin að vera léleg makrílveiði fyrir austan upp á síðkastið enda hefur sjórinn verið mjög kaldur. Síðustu dagana hefur hitastigið hins vegar hækkað úr um 5,5°C í 7-8°C og það munar öllu ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Stjórnlagaráð afhenti forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttir, frumvarp að nýrri stjórnarskrá í Iðnó við hátíðlega athöfn í dag.
Áður en frumvarpið var afhent lét hver ráðsfulltrúi í ljós viðhorf sitt til mikilvægis frumvarpsins með einni setningu. Salvör Nordal afhenti það svo með orðunum: "Valddreifing, gegnsæi og ábyrgð" en þessi hugtök hafði Stjórnlagaráð að leiðarljósi í vinnu sinni. Öll vinna ráðsins var aðgengileg á netinu og gat almenningu gert athugasemdir við drögin að nýrri stjórnarskrá á meðan þau voru í ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Matvælastofnun varar við þremur megrunarvörum, Slimforte Slimming Capsules, Slimforte Slimming Coffee og Meizitang Botanical Slimming Softgel vegna þess að þær innihalda Sibutramine.
Það er lyf sem getur valdið aukaverkunum tengdum hjarta- og æðakerfi. Árið 2010 var það afturkallað af mörkuðum í Evrópu, Bandaríkjunum og víðar. Matvælastofnun veit ekki til þess að þessar megrunarvörur séu seldar á Íslandi en hægt er að kaupa þær í póstsölu og í gegnum internetið. "Matvælastofnun hvetur fólk til að ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Íslandsstofa skipuleggur þáttöku á fjölmörgum kynningum erlendis allt árið og í ár er ein þeirra Birdfair sem fram fer í Rutland á Englandi19.-21. ágúst næstkomandi. Þetta er í 3. sinn sem Íslandsstofa, áður Útflutningsráð Íslands, skipuleggur þátttöku í þessari fjölsóttu og sýningu en markmiðið er að kynna Ísland sem áfangastað til fuglaskoðunar hjá erlendum fuglaskoðurum. Rúmlega 20 þúsund manns sækja sýninguna heim á ári hverju og sýnendur, um 300 talsins, koma víða að úr heiminum og segir Íslandsstofa sýninguna ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Umhverfisráðuneytið hefur staðfest stækkun Vatnajökulsþjóðgarð. Í því felst að búið er að friðlýsa Langasjó og nágrenni og hluta Eldgjár og nágrennis. Innan þeirra svæða sem reglugerðin tekur til eru náttúruminjar sem taldar eru hafa mikið gildi á heimsvísu, auk hins háa útivistar-, fræðslu- og vísindagildis þeirra. Stækkun þjóðgarðsins tekur til tveggja svæða á Náttúruverndaráætlun 2009-2013, samtals um 420 km2. Þegar samkomulag náðist við Skaftárhrepp um stækkun þjóðgarðsins sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra þetta ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Hvernig hefur grjótaþorpið í Reykjavík breyst í gegnum árin? Hvernig var að vera fluga á vegg á íslensku heimili árið 1920? Þessum spurningum reyna fjórir námsmenn að svara í sumar en þau eru að búa til stuttmyndina Hákot og var verkefnið styrkt af Evrópu unga fólksins. Bryndís Hreiðarsdóttir heitir ein þeirra sem vinnur að myndinni og hún segir þetta allt hafa byrjað þegar hún var að ræða við vinkonu sína um fortíð húsa og húshafa. Til varð hugmynd að verkefni þar sem áhorfandinn fær að vera eins og fluga á vegg í ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Verslunarmenn eru ánægðir með „vel heppnaða útfærslu á göngugötu á Laugavegi frá Vatnsstíg að Skólavörðustíg“ og hafa óskað eftir því við borgarráð að tíminn verði lengdur til 7. ágúst. Borgarráð ákvað á fundi sínum í gær, 28. júlí, að verða við þessari beiðni. Jafnfram veitti borgarráð leyfi fyrir götuhátíð á Skólavörðustíg 2. – 7. ágúst, en sú hátíð felur í sér lokun götunnar frá Bergstaðastræti að Bankastræti....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Eftir útboð á fjármögnun fyrir framkvæmdir við Vallarveitu í Fljótsdalshéraði hafa Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf. og Íslandsbanki gert með sér samning um fjármögnun á verkefninu. Kostnaður við Vallaveitu verður um tvö hundruð milljónir króna. Verkefnið tryggir sumarhúsabyggð á Völlunum heitt vatn og gerir mönnum kleift að koma upp heilsárshúsum og meiri nýtingu á húsunum. Þá mun þetta stækka þjónustusvæði Hitaveitunnar og bæta enn frekar rekstrargrunn hennar. ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Það virðist ekki mikil verðsamkeppni hjá íslensku olíufélögunum fyrir mestu ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgina, sem nú er að ganga í garð. Ekki munar nema 70 aurum (0,7krónum) á hæsta og lægsta verði. Orkan gefur sig út fyrir að vera alltaf með lægsta verðið og nú er bensínlítrinn þar á 242,40 krónur. Hæsta verðið er hins vegar hjá Olís, 242,70 krónur á lítrann....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Ríkislögreglustjóri í samvinnu við lögregluembætti landsins og tollgæsluna stendur fyrir hertu eftirliti gegn sölu, meðferð og neyslu ólöglegra fíkniefna um verslunarmannahelgina. Eftirlitið er til viðbótar við aðra löggæslu og er ætlað að efla og styrkja eftirlit og afskipti tengd fíkniefnum á þeim stöðum sem þörf er talin á....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Fangelsismál hafa verið mikið í umræðunni undanfarið og í yfirlýsingu frá 26. júlí síðastliðnum segist ríkisstjórnin ætla að taka ákvörðun um framtíðarhúsnæði nýs fangelsis fyrir lok ágústmánaðar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði við Tîmann að hann vilji að nýtt fangelsi verði reist á Hólmsheiði en margar hugmyndir hafa verið viðraðar um staðsetningu á nýju fangelsi. Bygging nýs fangelsis var komin á mikið skrið á síðasta ári og stóðu þá vonir til að bygging gæti hafist haustið 2010 en ekkert varð úr því. Í október á síðasta ári kom ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Rannsóknarhópur á vegum Náttúrustofu Suðurlands var í Skagafirði á dögunum við rannsóknir á lundastofninum. Erpur Snær Hansen, sem fór fyrir hópnum, var að kanna varpárangur lundans á svæðinu. Gerðar voru mælingar á holufjölda í lundavörpum og einnig voru notaðar holumyndavélar til að skoða varpárangur lundans. Frumniðurstöður benda til þess að lundinn sé í góðum málum í Skagafirði. Mikið um unga í holum og allt svart af lunda í Drangey. Lundinn var með fulla gogga af æti....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Þeir sem heimsótt hafa sundlaugina í Ásgarði í Garðabæ í þessari viku hafa mögulega brugðið í brún en á bökkum sundlaugarinnar er málverk í stöðugri vinnslu. Um er að ræða skemmtilegt samstarfsverkefni Garðabæjar og listamannsins Birgis Rafns Friðrikssonar. Vinna við verkin hófst mánudaginn 25. júlí sl. en þá stóð Birgir fyrir framan auðan flöt 150 x 300 cm og hófst handa. Sundlaugargestum gefst kostur á að fylgjast með verkinu í þróun á næstu vikum en áætluð verklok eru undir lok ágúst....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Byggðasafn Vestfjarða og Skútusiglingar bjóða uppá skemmtilega nýjung á Ísafirði um Verslunarmannahelgina! Boðið verður uppá siglingu og handfæraveiðar á Gunnari Sigurðssyni ÍS 13. Er þetta kjörið tækifæri til að upplifa stemninguna sem var um borð í bátum sem þessum hér á árum áður. Hver ferð tekur um 3 klst. og verður rennt fyrir fisk og notið þess að sigla um Ísafjarðardjúp....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Á morgunvaktinni á svæði 1 í Blöndu veiddist lax í Damminum með þennan ófögnuð (sjá mynd) kræktan í kviðinn. Ekki leikur vafi á því að veiðiþjófar hafa verið á ferðinni þarna í nótt sem leið og notað þetta agn. Veiðiverði hefur að sjálfsögðu verið gert viðvart og má búast við aukinni veiðivörslu í framhaldi af þessu....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Samlagshlutafélagið F1 hefur gengið frá kaupum 52,4% hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. af Eignasafni Seðlabanka Íslands. SF1 er félag í umsjón Stefnis hf. en Arion banki og tengd félög eru eigendur alls hlutafjár í Stefni. Á hluthafafundi sem haldinn var í dag tók ný stjórn við félaginu. Erna Gísladóttir er formaður nýkjörinnar stjórnar en nýir fulltrúar í stjórn eru Ingi Jóhann Guðmundsson og Tómas Kristjánsson. Aðrir stjórnarmenn eru Heimir V. Haraldsson og Haukur C. Benediktsson, sem er fulltrúi Eignasafns Seðlabankans. ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Hollendingurinn Maurice de Keijzer mun hjóla hringinn í kringum Ísland ásamt sjö öðrum félögum sínum frá 16. til 23. ágúst næstkomandi. Tilgangur ferðarinnar er að safna fé til styrktar KiKa, Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna í Hollandi, og gerir Maurice það til minningar um Þórdísi dóttur sína sem lést aðeins þriggja ára að aldri úr þessum illvíga sjúkdómi....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Danska Drottningarsnekkjan Dannebrog er nú í stuttri heimsókn á Íslandi og liggur nú í Reykjavíkurhöfn. Skipið hefur hér skamma viðdvöl á leið yfir hafið og heldur áfram ferð sinni á sunnudag. Dannebrog er snekkja Margrétar Þórhildar Danadrottningar og hýsir oft dönsku konungshjónin í heimsóknum þeirra. Enginn úr konungsfjölskyldunni er um borð í snekkjunni hér. ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Flugbjörgunarsveitin á Hellu hefur undanfarnar vikur verið við gæslustörf fyrir Íslenska fyrirtækið True North á Dómadalsleið, vegna kvikmyndatöku sem þar hefur verið í gangi. Það er breski leikstjórinn Ridley Scott sem þar var að taka upp myndina Prometheus en hann gerði einnig Alien myndirnar. Sveitin hefur verið þarna alla daga frá 11. júlí með 8 manns á dag sem hafa skilað yfir 1.400 klst í vinnu við að gæta þess að ferðamenn sem og aðrir villist ekki fyrir framan myndatökuvélarnar....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, verður heiðursgestur á Íslendingahátíðum í Kanada og Bandaríkjunum dagana 29. júlí - 2. ágúst næstkomandi. Íslendingahátíð er nú haldin í 112. sinn í Mountain, Norður Dakóta og í 122. sinn í Gimli í Manitoba. Fjármálaráðherra mun taka þátt í dagskrá og menningarviðburðum á hátíðunum og flytja ávarp á hvorum stað....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Þingmenn verða kosnir persónukjöri þar sem heimilt er að kjósa þvert á lista og þvert á kjördæmi nái tillögur Stjórnlagaráðs í frumvarpi að nýrri stjórnarskrá fram að ganga. Eru tillögurnar millivegur milli persónukjörs og flokkakjörs. "Kjósandi velur með persónukjöri frambjóðendur af listum í sínu kjördæmi eða af landslistanum, eða hvort tveggja" segir í frumvarpi Stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá. Landslisti er þá framboð fyrir allt landið og kjördæmalisti er framboð sem einungis er í einu kjördæmi...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Iðnaðarráherra hefur skipað fjóra fulltrúa í stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og sitja þeir í tvö ár í senn. Frá þessu er greint á vef Iðnaðarráðuneytisins. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða, leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins og fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði. Í nýrri stjórn eiga sæti Albína Hulda Thordarson, formaður, Anna G. Sverrisdóttir, tilnefnd af Samtökum ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Vistmaður á Sólheimum sem var nýkominn heim eftir aðgerð fékk óvænta heimsókn kvöld eitt fyrr í vikunni en skyndilega stóð hæna á miðju stofugólfinu sem hafði laumað sér inn í gegnum svalahurðina.
Leifur reyndi að elta hænuna og fanga hana en það gekk frekar, sérstaklega vegna þess að Leifur er með gifs á fæti. "Upp hófst stuttur og snarpur eltingaleikur sem Leifur tapaði örugglega enda með gifs á öðrum fæti, hefur sjálfsagt hlaupið í hringi" segir á vefsíðu Sólheima þar sem sagt er frá atvikinu." Leifur hringdi á vin sinn og ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Í dag halda skapandi sumarhópar Garðabæjar lokahátíð sína og fer hún fram á Garðatorgi frá klukkan 16 til 19. Fram kemur á vef Garðarbæjar aðvinna hópanna hafi verið ólík vinnu annarra vinnuhópa að því leyti að hluti vinnutímans, þrír tímar á dag, var frjáls, og máttu ungmennin skila þeim stundum þegar þeim hentaði og vinna þar sem þeir höfðu aðstöðu. Hver hópur þurfti síðan að skýrslu til flokkstjóra vikulega með nákvæmri útlistun á því hvernig, hvar og hvenær tímanum var eytt. Krakkarnir nýttu tímann vel og unnu ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Búið er að koma fyrir minningarbók í Ráðhúsinu á Akureyri um fórnarlömb voðaverkanna sem framin voru í Osló og Útey í Noregi síðastliðinn föstudag. Þar með gefst fólki kostur á að koma við í þjónustuanddyrinu og skrifa nöfn sín í bókina og votta aðstandendum samúð sína. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar. Minningarbókinni var komið fyrir í gær og skráði Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar, fyrstur nafn sitt í bókina. Bæjarstjórnin hafði áður sent bæjaryfirvöldum í Álásundi, vinabæ ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Karl um fertugt var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann unir niðurstöðunni að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Maðurinn var handtekinn á veitingahúsinu Monte Carlo við Laugarveg fyrir hálfum mánuði en þangað var lögreglan kölluð vegna líkamsárásar. Sá sem fyrir henni varð, karl á fimmtugsaldri, hlaut lífshættulega áverka og lést af þeirra völdum fyrr í vikunni. Margeir Margeirsson, eigandi ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Sumarið var seint á ferðinni á Íslandi í ár og á Austurlandi var júnímánuður sá kaldasti í mörg ár. Kuldinn hafði margskonar áhrif á gróður. Bændur þurftu að seinka slætti óvenju mikið og þegar kemur að trjátegundum hefur kuldinn haft sérstaklega mikil áhrif á lerkið. Um þetta er skrifað á vef Skógræktar ríkisins. Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóganna, segir sveiflurnar hafa verið miklar í vor. "Apríl var sérstaklega hlýr og þess vegna voru trén öll komin vel af stað þegar hretið skall á í maí. Við tók svo afar kaldur júnímánuður...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áhersla hefur verið á eftirlit með ferðavögnum/eftirvögnum og skráningu og skráningarmerkjum ökutækja. Slíkt eftirlit hefur verið mjög virkt hjá lögreglu í sumar. Það er ánægjulegt að sjaldnast hefur verið ástæða fyrir lögreglu til að kæra en í nokkrum tilvikum hefur ökumönnum verið bent á atriði sem þeir þurfa að laga, t.d. að hliðarspeglar ökutækja sem draga breiða eftirvagna séu samkvæmt reglum....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt upplýsingum frá vatnamælingamönnum Veðurstofu Íslands er hlaup að hefjast í Skaftá. Skaftá hljóp einnig síðasta sumar. Í Skaftárhlaupum getur vatn farið yfir Skaftártunguveg við Hvamm og vegurinn í Skaftárdal lokast, fyrir kemur að vatn fari yfir veginn við Hólaskjól á Fjallabaksleið nyrðri....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Undirbúningur fyrir Neistaflug í Neskaupstað gengur í alla staði vel. Verið er að skreyta hverfin hvert í sínum lit og bærinn er að komast í hátíðarbúning.
Í kvöld byrjar hátíðin með tónleikum Eiríks Haukssonar í Egilsbúð kl 22:00. Gunni og Felix verða svo á sínum stað að venju og þeir eru búnir að semja lag Neistaflugs 2011 sem hægt er að finna á heimsíðu Neistaflugs ásamt dagskrá hátíðarinnar. ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Á slaginu klukkan hálf sex í gær fengu Eyjamenn að setja niður merkingar fyrir þjóðhátíðartjöldin (hvítu) í Herjólfsdal og var spennan mikil áður en hlaupið var af stað. Settu menn sig í stellingar og sumir voru nánast með svipaða einbeitingu og spretthlauparar á Ólympíuleikunum. Um leið og klukkan sló 17:30 þá þustu menn og konur af stað með merkin sín og byrjuðu að merkja sér svæði. ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Mikill áhugi hefur verið hjá eldri borgurum á Seltjarnarnesi að sækja tölvunámskeið bæjarins í sumar. Unglingar í Vinnuskóla Seltjarnarness hafa leiðbeint og kennt á hin ýmsu kerfi s.s. word, excel, facebook, youtub og margt fleira. Þátttakendur hafa lýst yfir mikilli ánægju með þessi námskeið og krakkana sem hafa séð um að kenna þeim. Fleiri bæjarfélög mættu taka þetta framtak Seltjarnarness sér til fyrirmyndar....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Þrátt fyrir að veiðin sé nokkuð róleg enn sem komið er í Víðidalnum eru þar þó nokkrir stórir drekar á sveimi. Þessi sem hér sést á mynd er 100 cm langur og tók hann Green Brahan no. 14 í Harðeyrarstreng á dögunum. Veiðimaðurinn heitir Konstantin Kravchenko. ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Rekstrarhagnaður Nýherja hf. fyrir afskriftir nam 300 milljónum króna á fyrri árshelmingi 2011 og var heildarhagnaður 78 milljónir fyrstu 6 mánuði ársins. Skipulagsbreytingar á Íslandi í ársfjórðungnum fólu í sér fækkun rekstrarfélaga úr átta í þrjú. EBITDA var 300 mkr á fyrri árshelmingi, en var 158 mkr á sama tímabili árið á undan. ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Þrír félagar úr Fjallateyminu klifu drangann fyrir ofan Hraun í Öxnadal á dögunum. Þeir gerðu skemmtilegt myndband um ferðina. Það og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt má finna á vefnum climbing.is. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dranginn er klifinn. Hann var klifinn í fyrsta sinn 5. ágúst 1956 af tveimur Íslendingum og einum Bandaríkjamanni. Sagnir höfðu verið um að kista full af gulli væri geymd upp á tindinum, en sú saga reyndist ekki á rökum reist að sögn klifurmannanna....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Stjórnlagaráð samþykkti rétt í þessu með öllum atkvæðum frumvarp sem inniheldur drög að nýrri stjórnarskrá og lýkur þar með vinnu ráðsins. Drögin, eða frumvarp til stjórnskipunarlaga, verður afhent forseta Alþingis næstkomandi föstudag, þann 29. júlí í Iðnó. Í frumvarpinu eru margar nýjungar, flest er ólíkt núverandi stjórnarskrá og verð frumvarpið að veruleika mun það breyta ansi miklu. "Það er ljúka núna ævintýraför. Þetta hefur verið krefjandi og skemmtilegt. Það hafa gerst undur og kraftaverk hér í þessu húsi undanfarnar vikur" ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Mýrarboltamótið er haldið ár hvert á Ísafirði um Verslunarmannahelgina. Nú þegar hafa 40 lið skráð sig til leiks, 30 í karlaflokki og 10 í kvennaflokki. Sex eru inná í einu, en jafnan eru liðin þó skipuð 9-15 manns, því drullan þreytir menn fljótt. Vinahópar taka sig saman og mynda lið, einstaklingar taka þátt með skrapliðum svokölluðum....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Í tengslum við árlegt Kotmót Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi í Kirkjulækjarkoti, Fljótshlíð um Verslunarmannahelgina, þá verður hið vinsæla fjölskyldukarnival flutt frá mótsstað inn á Hvolsvöll og öllum bæjarbúum ásamt gestum og gangandi boðið að taka þátt dagskránni. Karnivalið verður haldið á túninu bak við Landsbankann laugardaginn 30. Júlí kl. 14:00 – 17:00....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Unglingalandsmót UMFÍ hefst á morgun, fimmudag, á Egilsstöðum. Um 1.200 krakkar á aldrinum frá 11 til 18 hafa skráð sig til leiks en skráningu lauk sunnudaginn 24. júlí. Veðurstofan spáir sólskini og 16-20 stiga hita alla mótsdagana. Undirbúningur fyrir landsmótið er á fullu, allir sem vettlingi geta valdið snyrta bæinn og fréttst hefur að íbúar við Koltröð ætli að búa til Hattargötu....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Tungljurt, járnsmiður og silfurrani eru meðal nýrra landnema í Surtsey og sjávarrof meitlar stöðugt af eynni þannig að talsverðar breytingar hafa orðið á norðurtanga eyjarinnar síðast liðið ár. Þetta er meðal niðurstaðna vísindamanna Náttúrufræðistofnunar sem fóru í sinn árlega rannsóknaleiðangur dagana 18.-21. júlí s.l. Gerðar voru rannsóknir á jarðfræði og lífríki eyjarinnar....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Þann 11. júlí kynntu Birgir Jónsson dósent við HÍ og Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við HA rannsóknarniðurstöður sínar um nýja leið til að nýta Jökulsá á Fjöllum til raforkuframleiðslu. Kynningin fór fram á Húsavík og mætti fjöldi manns, m.a. orkumálastjóri. Jafnframt var skýrslan um rannsóknina gerð opinber á vefslóðinni http://www.rha.is/is/page/utgefid_efni_2011. ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Í gær, þriðjudaginn, 26. júlí 2011, var gengið frá sölu á 66% hlut í útgerðarfélaginu Farsæli hf. til Fisk Seafood, sem eftir þessi viðskipti hefur eignast allt hlutafé í félaginu. Farsæll hf. hefur rekið útgerð í Grundarfriði frá því 1936 eða í 75 ár en vegna lítilla aflaheimilda hafa rekstrarskilyrði verið erfið síðustu ár og sýnilegt að þörf var á breytingum til þess að efla starfsemi félagsins. Þetta kemur fram á vef Grundarfjarðarbæjar. Fisk Seafood ráðgerir að færa varanlegar aflaheimildir á skipið Farsæl fyrir komandi fiskveiðiár og efla þannig ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Óperuunnendur sem vita ekki hvað þeir eiga að gera um verslunarmannahelgina geta lagt leið sína í Skagafjörðinn en þar verða haldnir óperutónleikar. Þar koma fram einsöngvararnir Helga Rós Indriðadóttir sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran, Gissur Páll Gissurarson tenór og Ágúst Ólafsson barítón. Einnig stígur á stokk skagfirski Karlakórinn Heimir en meðleik annast sjö ungir hljóðfæraleikarar sem öll hafa nýverið lokið námi erlendis og kalla sig Bergmálshópinn 2011. Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnar ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Stjórnlagaráð samþykkti í dag kafla um Alþingi í drögum að nýrri stjórnarskrá og telur kaflinn alls 39 ákvæði. Þar er kveðið á um aukna þátttöku almennings í gegnum þjóðaratkvæðagreiðslur og mun almenningur geta lagt fram þingmál á Alþingi. Samkvæmt drögunum geta tíu af hundraði kjósenda krafist þjóðaratkvæðis um lög sem Alþingi hefur samþykkt og tveir af hundraði kjósenda geta lagt fram þingmál á Alþingi. Þá geta tíu af hundraði kjósenda lagt frumvarp til laga fyrir Alþingi. Alþingi getur lagt fram gagntillögu í formi annars ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitir á Norðurlandi eystra stóðu vörð um Dettifoss daganna 21. og 22. júlí meðan Ridley Scott tók upp atriði fyrir kvikmyndina Prómóþeus. Á meðan tökum stóð var aðgengi að fossinum takmarkað austan megin. Það voru björgunarsveitirnar Stefán úr Mývatnssveit, Núpar Kópaskeri og Súlur björgunarsveitin á Akureyri sem stóðu vaktina til að takmark aðgengi almennings að fossinum. Einnig sáu sveitirnar um sjúkragæslu á staðnum. "Verkefnið gekk vel og var gerður góður rómur af starfi sveitanna" segir á ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Fimmtudaginn 22. júni var uppskeruhátíð hjá krökkunum á smíðavellinum við Valhúsaskóla á Seltjarnarnes en þar hefur risið nýtt þorp í sumar smíðað og hannað með þarfir yngri íbúa bæjarins í huga. Krakkarnir sýndu foreldrum sínum byggingar sínar sem þau eru búin að vera að smíða í sumar. Leiðbeinendur grilluðu pylsur fyrir hina ungu smiði og gesti þeirra en ásamt foreldum litu íbúðar í nágrenninu við og sýndu byggingum krakkanna mikinn áhuga að því er fram kemur á vefsíðu Seltjarnarnesbæjar. Meðlimir sumarlistahópsins...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
"Af stað á Reykjanesið", gönguhátíð í Grindavíkurlandi verður um verslunarmannahelgina 29. júlí til 1. ágúst. Boðið verður upp á fjórar gönguferðir með leiðsögn frá föstudegi til mánudags. Mælt er með að vera í góðum gönguskóm og taka með sér nesti. Gengið verður um stórbrotið umhverfi í nánd við höfuðborgarsvæðið. Föstudaginn 29. júlí verður gengið um Selskóg fyrir neðan fjallið Þorbjörn og fjallað verður um skógrækt í elskógi og fleira fróðlegt. Laugardaginn 30. júlí verður strandgönguferð en þá verður gengið ofan við Krýsuvíkurberg...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
15 manna hópur nemenda við Háskóla Íslands fengu verðlaun frá Airbus í Formula Student sem er alþjóðleg hönnunarkeppni sem fram fór á Silverstone kappakstursbraunni í Bretlandi. Á vefsíðu HÍ kemur fram að liðið hafi vakið mikla athygli í keppninni. Geta þess til að leysa hratt allskyns vandamál sem upp komu þótti athyglisverð og sérstaklega vegna þess að liðið var ekki með mikla peninga milli handanna. Alls tóku lið frá 110 skólum þátt í keppninni að þessu sinni en keppnin hefur verið haldin árlega frá árinu 1981. "Liðin koma alls ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
"Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu. Öllum ber að virða hana og vernda." Svona hljómar grein í frumvarpi Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá en þar fær náttúra Íslands sér ákvæði undir kafla sem heitir Mannréttindi og náttúra. Er hægt að skylda fólk til að virða náttúruna í stjórnarskrá? Hvernig er það skilgreint lagalega?
"Auðvitað má spyrja sig hvort hægt sé að skylda fólk til að sýna virðingu, en við skyldum líka fólk í lögum til að virða umferðarreglur, þótt við getum ekki tryggt að fólk geri það alltaf" segir Silja Bára ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Laugardaginn 30. júlí verður Hákoni Bjarnasyni píanóleikara veittur styrkur að fjárhæð kr. 1.500.000 úr Minningarsjóði um Birgi Einarson apótekara. Styrkveitingin fer fram að loknum tónleikum í Selinu á Stokkalæk, sem hefjast kl. 16, en þar kemur Hákon fram ásamt Hrafnhildi Árnadóttur sópran og flytja þau söng- og píanótónlist eftir Franz Liszt, Francis Poulenc og Hugo Wolf....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Íþróttasal íþróttahússins á Skagaströnd hefur verið breytt í listagallerí en þar opnaði síðasta laugardag yfirlitssýning á verkum Sveinbjörns H. Blöndal. Fjöldi gesta var við opnunina og þar á meðal Birna Blöndal, ekkja Sveinbjörns, og börn þeirra. Sýningin á að sýna gestum hvernig myndlist Sveinbjörns þróaðist í gegnum árin og er verkum stillt upp í tímaröð. Flest verkin eru landslagsmyndir, vatnslita, akrýl og olíumálverk en einnig eru þarna skopmyndir en Sveinbjörn hóf feril sinn sem skopmyndateiknari í dagblöðum. Þetta eru verk sem hver ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Landsvirkjun Power, dótturfyrirtæki Landsvirkjunar, og Verkís undirrituðu þann 15.júlí 2011 samning við Dariali Energy Ltd. í Georgíu. Samningurinn kveður á um verkhönnun, útboðshönnun, gerð útboðsgagna og deilihönnun við 109 MW vatnsaflsvirkjun þar í landi. Frá þessu er sagt á vef Landsvirkjunar. Vinna við undirbúning verkhönnunar hófst snemma í júlí. Vettvangsrannsóknir eru í fullum gangi en stefnt er að því að hefja gangagerð síðla hausts. Mat á umhverfisáhrifum er einnig í gangi og verður því lokið í...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Þeir Elvar Örn Jónsson, Hergeir Grímsson og Ómar Ingi Magnússon fóru á dögunum í handboltaskóla Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi og er sagt frá ævintýrum þeirra á umfs.is. Æft var nokkrum sinnum á dag í fimm daga auk þess sem fundir voru utan æfinga og annað í þeim dúr. Þá komu leikmenn frá Rhein-Neckar í heimsókn og voru spurðir spjörunum úr. Ferðin var vel heppnuð og gengu æfingarnar vel. Mikið var farið í varnarleik auk þess sem hreyfing án bolta og fleira í sóknarleik var tekið fyrir. Okkar menn þóttu standa sig vel og fengu ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Sunnudag og mánudag síðastliðinn brunnu tvö hús á Vestfjörðum, var annað á Ísafirði en hitt á Patreksfirði. Við rannsókn kom í ljós að annars vegar var um gáleysi að ræða en hinsvegar um íkveikju.
Að morgni sunnudagsins 24. júlí síðastliðinn kom upp eldur í íbúð í fjölbýlishúsi á Ísafirði. Eldurinn var minni háttar og skemmdir litlar. Við rannsókn þess máls kom í ljós að um gáleysislega meðferð elds var að ræða og telst málið að fullu upplýst. Klukkan 04:40 aðfaranótt...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Framtaldar eignir heimilanna námu 3.466 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær dregist saman um 9% frá fyrra ári.
Þá er ekki tekið tillit til endurmats eigna í tengslum við endurálagningu auðlegðarskatts. Fasteignir töldust 2.248 milljarðar að verðmæti eða 64,9% af eignum en verðmæti þeirra hafði dregist saman um tæp 10% milli ára. Eigendum fasteigna fækkaði enn milli ára og nú um 1,7%. Framtaldar skuldir heimilanna námu alls 1.878 milljörðum króna í árslok 2010 og höfðu dregist saman um 0,8% milli ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Mikil breyting var á álagningu fjármagnstekjuskatts frá fyrra ári. Skatthlutfall var hækkað og nam 18% en með 100.000 kr frítekjumarki vaxtatekna. Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 10,1 milljarði króna og lækkar um 35,5% milli ára. Mikil fækkun er á þeim sem greiða skattinn, einkum vegna frítekjumarksins og eru þeir nú tæplega 47 þúsund en voru 183 þúsund árið áður þegar greiddur var skattur af öllum vaxtatekjum. Vextir eru enn stærsti einstaki liður fjármagnstekna þótt vaxtatekjur hafi dregist saman um nær helming ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Norðurflug býður upp á þyrluflug á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og er flogið frá Bakka. Norðurflug verður með flug frá Bakka fimmtudaginn 28. júlí frá kl. 16.00 til 21.00 og á föstudeginum 29. júlí frá kl. 12.00 til 20.00. Síðan hefst flug frá Vestmannaeyjum á mánudeginum 1. ágúst kl. 08.00 og flogið er til kl. 21.00. Verðið á þessum ferðum er 16.000 kr aðra leið. ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Innanríkisráðuneytið efnir hinn 14. september næstkomandi til ráðstefnu í Reykjavík um eflingu beins lýðræðis. Með ráðstefnunni vill innanríkisráðuneytið hvetja til aukinnar umræðu um hvernig efla má lýðræði í íslenskri stjórnsýslu og fjalla um hvort og hvernig koma megi á beinu lýðræði með aukinni og reglulegri þátttöku íbúa í ákvörðunum ríkis og sveitarfélaga. Íslenskir og erlendis sérfræðingar flytja fyrirlestra um ýmsar hliðar málsins. Meðal fyrirlesara verður Svisslendingurinn Bruno Kaufmann sem fjallar meðal annars um ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2010 er nú lokið. Þar kemur m.a. frama að tekjujöfnuður ársins 2010 varð neikvæður um 123 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir að hann yrði neikvæður um 82 milljarða króna og var því raunútkoman 41 milljarði króna verri en gert var ráð fyrir í heildarfjárheimildum ársins. Þessi tekjuhalli er um 26% af heildartekjum ársins og 8% af landsframleiðslu....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum fóru knattspyrnumenn BÍ/Bolungarvíkur í hljóðver til að taka upp stuðningsmannalag fyrir félagið. Liðið leikur í 1. deildinni og hefur verið að standa sig vel þar. Þá er liðið komið í undanúrslit bikarkeppninnar og mætir þar efsta liði úrvalsdeildarinnar, KR, á sunnudaginn kemur. Leikurinn fer fram á Ísafirði og verður það einn stærsti knattspyrnuleikur sem Vestfirðingar hafa nokkru sinni spilað....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Tryggvagötu milli Lækjargötu og Pósthússtrætis í Reykjavík verður í fyrramálið breytt í tvístefnugötu til að liðka fyrir flæði umferðar í miðborginni frá austri til vesturs. Breytingin er gerð í tilraunaskyni til eins árs og standi síðar vilji til að festa breytinguna í sessi þarf að endurskoða deiliskipulag svæðisins með það í huga, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Í júlí er tíðni hvassviðri og storma einna lægst yfir árið. Þarf ekki að koma á óvart því um mitt sumar láta lægðir sem orð er á gerandi sjaldnast á sér kræla. Það á þó ekki við núna því allmyndarleg lægð er nú á sunnanverðu Grænlandshafi. Með henni skil og úrkoma norðaustur yfir landið í kvöld og nótt. Þá má gera ráð fyrir vindhviðum undir Hafnarfjalli síðar dag. Hviður allt að 25-30 m/s um miðjan daginn, en 30-35 m/s síðdegis og í kvöld. ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði afstöðu landsmanna til aukins landamæraeftirlits með ferðamönnum á leið til Íslands frá aðildarríkjum Schengen samstarfsins. Af þeim sem tóku afstöðu voru um helmingur, eða 49,0%, sem sögðust mjög fylgjandi auknu landamæraeftirliti og 34,5% sögðust frekar fylgjandi auknu landamæraeftirliti. ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manni, sem að því er virðist, kom í veg fyrir líkamsárás í Mosfellsbæ aðfaranótt laugardagsins 16. júlí sl. Málsatvik eru þau að umrædda nótt, á tímabilinu frá kl. 1-2, voru tveir menn staddir við bensínstöð N1 í Háholti. Annar þeirra var vopnaður barefli og hugðist berja hinn. Af því varð ekki en talið er að þriðji maðurinn, sem átt þar leið hjá, hafi komið í veg fyrir líkamsárás með því að skerast í leikinn....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan í Vestmannaeyjum verður með öflugt eftirlit fyrir og um Þjóðhátíðina sem m.a. felur í sér eftirlit með hugsanlegu fíkniefnamisferli, umferð og eftirliti er varðar velferð ungmenna. Í tilefni af því vill lögreglan minna foreldra og forráðamenn barna á að útivistareglurnar eru í gildi þessa helgi eins og aðra daga ársins. Þá er rétt að benda á að ungmenni yngri en 18 ára eiga ekkert erindi á útihátíð án þess að vera í fylgd með fullorðnum....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Mikið líf hefur verið í höfninni á Eskifirði í síðustu daga. Fjögur norsk skip lönduðu loðnu í fiskimjölverksmiðju Eskju hf. á Eskifirði. Norska loðnuskipið Storeknut kom með um 300 tonn af góðri loðnu í byrjun síðustu viku og í lok vikunnar lönduðu norsku skipin Teigenes, Vestviking og Harvest rúmlega 2.000 tonnum af sumarloðnu í verksmiðjuna....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Í dag birta norskir fjölmiðlar myndir og nöfn nokkurra þeirra sem myrtir voru í skotárásinni í Utøya á föstudaginn. Færri voru myrtir þar en í fyrstu var talið og nú eru 68 sagðir hafa látið lífið í Utøya. Tala látinna í sprengjuárásinni í Ósló og þeir sem voru myrtir í Utøya er 76, en ekki 93 eins og talið var í fyrstu. Þetta voru jákvæðar fréttir fyrir norsku þjóðina í gær. HÉR má sjá myndir á VG....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Miklar laxagöngur hafa verið síðustu daga í Hítará á Mýrum í Borgarfirði og veiðin frábær. Holl sem lauk veiðum í fyrradag hafði 50 laxa á land og að sögn þeirra sem stóðu vaktina er mikill lax genginn. Hollið sem tók við snaraði 17 löxum á land á síðdegisvaktinni....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Leyfi hefur fengist til að fjölga tímabundið farþegum um borð í Herjólfi á fimmtudegi fyrir Þjóðhátíð, föstudegi og á mánudegi og þriðjudegi eftir Þjóðhátíð. Fjölgun þessi þýðir um 130 farþega í ferð. Athygli er vakin á því að frá og með deginum í dag mun afgreiðsla Herjólfs hvorki breyta né endurgreiðir miða frá miðvikudeginum 27. júlí til miðvikudags 3. ágúst. ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Sigríður Kristín Hjálmarsdóttir frá Skógum II í Reykjahverfi varð nýlega langalangaamma, sem ekki er í frásögur færandi nema hvað ættliðirnir eru orðnir fimm í beinan kvenlegg. Þær langmæðgur komu saman nú á dögunum en þá var þessi mynd tekin. Litla stúlkan fæddist í vor og býr ásamt foreldrum sínum í Danmörku en þau hafa dvalið á Húsavík undanfarið og ætla að skíra 7. ágúst nk. áður en þau fara aftur út....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Laugardaginn 30. júlí kl. 16 halda þau Hrafnhildur Árnadóttir sópran og Hákon Bjarnason píanóleikari tónleika í Selinu á Stokkalæk. Á efnisskránni er söng- og píanótónlist eftir Franz Liszt, Francis Poulenc og Hugo Wolf. Fluttir verða tveir stuttir sönglagaflokkar eftir Poulenc, La courte paille við hnyttin ljóð Maurice Carѐme og Fiançailles pour rire sem Poulenc vann í samvinnu við skáldkonuna Louise de Vilmorin....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Útvegsmannafélags Reykjavíkur skorar á stjórnvöld að taka í útrétta sáttahönd þeirra sem starfa í íslenskum sjávarútvegi og hefja við þá raunverulegt samráð um vandaða vinnu við gerð nýs frumvarps til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Þannig sé unnt að stuðla að aukinni sátt og afstýra um leið úr því tjóni sem breytingarnar myndu að óbreyttu hafa á efnahag þjóðarinnar, segir í alyktun stjórnar Útvegsmannafélags Reykjavíkur....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Heildarfjöldi þeirra sem telja fram til skatts hefur fækkað tvö síðastliðinn ár og getur Ríkisskattsjóri ekki bent á neina afgerandi skýringu. Heildarfjöldi framteljenda við álagningu árið 2011 er 260.764. Þeim fækkar annað árið í röð, nú um 672 eða 0,3%. Fækkun framteljenda er minni í ár en var á fyrra ári en flestir voru framteljendur við álagningu 2009, 267.494 og hefur þeim því fækkað um rúmlega 6.700 síðan þá. "Það er engin ein skýring á fækkun framteljenda á milli ára," segir Helga Vilborg hjá Ríkisskattstjóra....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Um helgina voru átta ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, einn á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru sex karlar á aldrinum 18-30 ára og tvær konur um tvítugt. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en þeirra reyndi jafnframt að ljúga til nafns....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Nú er komin í loftið ný íslensk vefsíða, www.gjafatorg.is, sem býður til sölu yfir 30 fjölbreytt gjafakort frá mörgum af þekktustu fyrirtækjum og vörumerkjum landsins á sínu sviði. Sala gjafakorta hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu og er sömu sögu að segja hér á landi. Tilgangur vefsíðunnar er að auðvelda Íslendingum að gefa vinum og vandamönnum gjafir við sérstök tilefni og er þetta fyrsta fyrirtækið af slíkri tegund hér á landi....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Uppgröftur sumarsins á klausturrústum á Skriðuklaustri er nú hálfnaður þetta sumarið. Búið er að opna nokkur ný svæði og útlit fyrir að markmiðinu um að ljúka vettvangsrannsókn í sumar verði náð. Meðal þess sem fundist hefur á síðustu dögum er hluti af leðurskósóla frá miðöldum að því er fram kemur á vefsíðu Skriðuklausturs. Grafið verður til 20. ágúst og leiðsögn er um fornleifasvæðið alla daga eftir hádegi. Hægt að ganga um þann hluta klausturminjanna sem búið er að rannsaka og ganga frá. Þann 18. júní...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Til að losna við lífrænan úrgang frá bændum og búfjáreigendum ákvað sveitarfélagið Skagafjörður að setja á laggirnar söfnun á hræjum og frá júlí byrjun hefur það kostað sveitarfélagið 980.000 krónur. Ekki er lengur heimilt að dýrahræ fari í söfnungargáma og það er heldur ekki tekið á móti þeim á nýjum urðunarstað við Stekkjavík. Eftir nokkra nefndarfundi í landbúnaðarnefnd og umhverfisnefnd var ákveðið að sveitarfélagið stæði fyrir söfnun á hræjum. Allmargir bændur hafa nýtt sér þetta og hefur verið farið í vikulegar ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Þá er komið að miklum skattatíma á Íslandi og getur fólk nú séð álagningu opinberra gjalda og hve mikið fer í ríkissjóð í formi skatttekna. Almennur tekjuskattur nam 100,6 milljörðum króna var lagður á rúmlega 151 þúsund framteljendur. Af þeirri upphæð fóru 9,4 milljarðar til að greiða útsvar 98 þúsund framteljenda að hluta eða öllu leyti og 445 m.kr. til að greiða fjármagnstekjuskatt rúmlega 6 þúsund framteljenda að hluta eða öllu leyti. Nú greiða ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn ný hafnarvörður Dalvíkurbyggðar og mun hann taka til starfa 1. september næstkomandi. Á 27. fundi hafnastjórnar Dalvíkurbyggðar, þann 6. júní síðastliðinn kom fram að Eggert Bollason yfirhafnavörður hafði ákveðið að láta af störfum, en hann varð 67 ára í febrúar á þessu ári.
Hafnastjórn samþykkti að starf yfirhafnavarðar yrði auglýst laust til umsóknar og var hafnastjóra falið að eiga samstarf við Capacent á Akureyri um ráðningu í starfið. Á 28. fundi hafnastjórnar ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Eftir rólega byrjun hefur veiði í Veiðivötnum vera að aukast samanborið við undanfarin ár og nú er veiðin vel yfir meðaltali á þessum tíma sumars. Þetta kemur fram á veidivotn.is. Í 5. viku veiddust 2250 fiskar. Mest veiddist í Litlasjó, 504 fiskar, og er hann allur að koma til samhliða hækkandi vatnshita. Langavatn, Nýjavatn og Skyggnisvatn gáfu einnig góða veiði. Heildarveiðin í Veiðivötnum er komin upp í 12953 fiska sem verður að teljast mjög góð veiði. Hæst meðalþyngd er í Ónefndavatni og Grænavatni (3,0-3,5 pd). Einnig ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Stúdentaráð Háskóla Íslands opinberaði nýlega nýtt einkennismerki ráðsins. Einkennismerkið byggir á útliti aðalbygginar Háskólans og hlutverki stúdentaráðs sem málsvara stúdenta. Efnt var til samkeppni um einkennismerkið og sigurvegarar voru þeir Davíð Ingi Magnússon nemandi í Lagadeild HÍ og félagi hans Pétur Stefánsson en þeir hönnuðu lógóið og áttu grunnhugmyndina. Már Egilsson læknanemi sendi einnig inn tillögu að lógói sem var ákveðið að skeyta saman við hönnun Davíðs og Péturs. Tillaga Más er stúdentinn sem ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Mennta- og menningarmálaráðuneytið birti nýlega úttekt sem það lét gera á leikskólanum Leikbæ í Dalvík. Leikbær er ekki stór leikskólinn og í úttektinni koma fram nokkur atriði tengt smæð skólans. Unnið er að fjölmörgum þróunrverkefnum en smæð skólans kemur í veg fyrir að starfsfólk geti sinnt þeim með fullnægjandi hætti. Í úttektinni kemur einnig fram að starfsmenn eru fáir og þess vegna sé oft erfitt fyrir skólann að sinna þeim verkefnum sem metnaður starfsmanna og sveitarfélags stendur til og skapar það mikið álag. Innra mat er ekki ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Í gær barst lögreglunni á Ísafirði tilkynning um stóran hval á reki í Fljótavík. Sá er tilkynnti taldi hættu á að hvalinn ræki á land í Fljótavíkina. Gerðist það, yrði mikill skaði á háannatíma ferðamennskunnar. Lögregla tilkynnti málið til allra sem tilkynningu eiga að fá um slíkt. Enginn vill eiga hvalinn, hann er bara kostnaður í dag, „enginn hvalreki á fjörur manna“, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Ísafirði....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Álagningarseðlar einstaklinga eru birtir frá og með deginum í dag á þjónustusíðum gjaldenda á www.skattur.is. Seðlar verða einnig póstlagðir þann dag til þeirra sem ekki hafa afþakkað að fá þá á pappír. Inneignir, s.s. vegna barnabóta, vaxtabót og ofgreiddrar staðgreiðslu, verða greiddar út 29. júlí. Þær verða lagðar inn á bankareikninga gjaldenda, að því er fram kemur á vef Ríkisskattstjóra....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Aðalstræti á Patreksfirði á fimmta tímanum í nótt. Þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang var húsið alelda. Húsið var mannlaust og verið að gera það upp. Enginn var í bráðri hættu og kom slökkvilið Vesturbyggðar í veg fyrir að eldurinn bærist í nærliggjandi hús sem var rýmt....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Í júní 2011 voru 137 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 99 fyrirtæki í júní 2010, sem jafngildir rúmlega 38% fjölgun milli ára. Flest gjaldþrot voru í Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu 6 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 839 sem er um 51% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 555 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí er 379,9 stig og hækkaði um 0,11% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 359,9 stig og lækkaði um 0,22% frá júní. Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,4%. Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,2%. Þar af voru 0,17% áhrif vegna hækkunar markaðsverðs en -0,02% vegna lækkunar raunvaxta. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,7%....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Í dag, mánudaginn 25. júlí, verður einnar mínútu þögn í Noregi, til minningar um fórnarlömb harmleiksins í Noregi síðastliðinn föstudag. Ísland mun sýna norsku þjóðinni samstöðu með því að hafa einnar mínútu þögn á sama tíma sem er kl. 10:00 að íslenskum tíma. Forsætisráðherrra hvetur alla Íslendinga til að sýna samhug sinn með þeim hætti....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Íslandsmótið í golfi fór fram á Hólmsvelli í Leiru og lauk í gær. Bein útsending var á RÚV frá mótinu bæði laugardag og sunnudag, en útsendingu var skyndilega hætt vegna kvöldfrétta klukkan 19:00 þegar spennan var sem mest og lokahollið í karlaflokki átti aðeins tvær holur eftir. Spennan var mikil og golfáhugafólk var límt fyrir framan skjáinn og átti ekki til aukatekið orð þegar útsendingin var rofin....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Axel Bóasson úr Keili og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR eru Íslandsmeistarar í höggleik árið 2011, en mótið fór fram á Hólmsvelli í Leiru og lauk í dag. Veðrið lék við keppendur tvo fyrstu dagana, en mjög erfiðar aðstæður voru í gær og eins fyrri partinn í dag, enda var keppni frestað um tíma í morgun vegna hvassviðris. Bæði Axel og Ólafía voru að vinna titilinn í fyrsta sinn, enda ung að árum - Axel 21 árs og Ólafía 19 ára....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Færeysk stórhátíð verður haldin á Stokkseyri dagana 29. júlí til 1. ágúst næstkomandi. Þar verður boðið upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Margt verður uppi á teningnum frá fimmtudegi til mánudags, söfn, sýningar og afþreying verða opin alla helgina, ýmiss tilboð verða í gangi auk þess sem aðgangur er ókeypis á fjölda viðburða m.a. diskótek, kajakakeppni, dorgveiðikeppni, brennu ífjörunni, fjöldasöng með Labba og flugeldasýningu svo fátt eitt sé nefnt....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Unglistahátíðin Eldur hefur staðið yfir á Hvammstanga síðustu dag og lýkur henni í dag. Veður var gott og fjöldi manns sótti dagskrá hátíðarinnar í gær. Þetta var í 9. sinn sem hátíðin er haldin og alltaf mikið stuð og stemmning. Öll vinna við undirbúning hátíðarinnar er unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu. Á hverju ári er fengið nýtt fólk til þess að skipuleggja hátíðina og þess vegna fá nýjar hugmyndir að líta dagsins ljós....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik skaut á ungmennin í Útey óáreittur í um hálfa klukkustund. Á myndbandi sem kvikmyndatökumaður norska ríkissjónvarpsins, NRK, tók úr þyrlu má sjá hvar hann ráfar um í fjörunni og reynir að myrða eins marga og hann getur. Jafnframt sést fólk svamla um í sjónum til að reyna að bjarga sér. ...
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Samfelld makríl- og síldarvinnsla hefur verið í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar hf. síðan í byrjun júní. Unnið er á 12 tíma vöktum allan sólarhringinn. Makríllinn er hausskorinn eða heilfrystur og sendur til Afríku og Austur-Evrópu. Krakkarnir sem eru í sumarvinnu eru hæstánægðir með þetta uppgrip....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitin Kópur á Bíldudal fór í óvenjulega leiðangur um daginn þegar sveitinni barst hjálparbeiðni frá bóndanum á Laugabóli þegar kálfur hafði fallið fram af brún á Langanesi og niður á sillu og var það í sjálfheldu en hafði þó eitthvað gras að bíta. Kópsmenn mættu með bát sveitarinnar og gátu komist að kálfinum úr fjöru. Smá bras var að koma kálfinum í bátinn, en hann var bundinn á fótum til þess að forðast óþarfa hamagang....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Veiðífélagarnir Sigurður Guðmundsson verslunarmaður og bæjarfulltrúi á Akureyri og Sveinn Aðalgeirsson starfsmaður Eimskips lentu í hreint ótrúlegri uppákomu í vikunni, þar sem þeir voru við veiðar í Fosspolli í Skjálfandafljóti. Þeir settu í sama laxinn á nánast sömu sekúndu og náðu að landa honum með góðri samvinnu. Frá þessu er greint á vef Vikudags á Akureyri....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Mærudögunum á Húsavík lýkur formlega í dag. Mikil mannfjöldi var á hátíðinni í gær í veðurblíðu. Hátíðin hefur almennt farið vel fram og gestir hennar sem og íbúar Húsavíkur skemmti sér hið besta, en nokkuð var þó um ölvun í gærkvöld. Mærudagarnir og Norræna strandmenningarhátíðinni Sail Húsavík runnu saman í gærkveldi með stórtónleikum á hafnarstéttinni. Þar komu meðal annars fram Hjaltalín og Raggi Bjarna en hér á vef 640.is eru nokkrar myndir frá kvöldinu....
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
"Stöndum saman með vinum okkar og frændum. Stöndum saman með þeim sem lentu í þessari hryllilegu árás. Stöndum saman með öllum þeim sem eiga um sárt að binda í dag. Í dag erum við öll Norðmenn."
Svo mælti Guðrún Jóna Jónsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna fyrir utan Iðnó við tjörnina í Reykjavík í dag en þar safnaðist fólk saman til að sýna norsku þjóðinni samhug og minnast fórnarlamba hryðjuverkaárásanna í Osló sem tekið hafa líf fyrir 100 manns. Það ...
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Mikill fjöldi mætti við Reykjavíkurtjörn nú undir kvöld til að sýna Norðmönnum samstöðu. Ráðhús Reykjavíkur var opið og þar lá frammi minningarbók fyrir þá sem vildu votta Norðmönnum hluttekningu vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað í Osló. Minningarbókin mun liggja frammi í ráðhúsinu í viku, en verður þá færð norska sendiráðinu. ...
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Breska söngkonan Amy Whinehouse fannst látin á heimili sínu í London fyrr í dag. Hún var 27 ára að aldri. Ekki er enn ljóst um dánarorsök en heimildir blaðamanns Sunday Mirror segja hana tekið inn of stóran skammt af eiturlyfjum. Amy varð fyrst þekkt í Bretlandi um 2003 þegar hún gaf út sína fyrstu plötu, Frank. Hún hlaut heimsfrægð þegar Back to Black kom út og hefur síðan verið ein af þekktustu söngkonum heims. Söngkonan unga hefur lengi glímt við áfengis- og eyturlyfjafíkn sem varpaði miklum skugga á söngferil ...
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Dagana 23.- 30 júlí fer fram 11. Ólympíuhátíð Evrópuæskunar í borginni Trabzon í Tyrklandi. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sendir 22 keppendur til leiks í 6 íþróttagreinum, en alls telur íslenski hópurinn 38 aðila, með dómurum, þjálfurum og fararstjórn. Frá þessu er sagt á vef ÍSÍ. Ólympíuhátíðin er með stærri íþróttaviðburðum sem haldnir eru í Evrópu og fara þeir fram á tveggja ára fresti. Alls er keppt í 9 íþróttagreinum, og tekur Ísland þátt í sex þeirra: fimleikum, frjálsíþróttum, hjólreiðum, júdó, sundi og tennis. Aðrar greinar eru ...
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Forsætisráðherra hefur sent forsætisráðherra Noregs samúðarkveðjur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar, vegna þeirra sorglegu atburða sem gerst hafa Noregi í dag. Jafnframt hefur forsætisráðherra boðið fram aðstoð sem Ísland gæti hugsanlega veitt.
"Við finnum innilega t