logo
miðvikudagur, 22. febrúar 2012
Mynd

Landsbankinn fjármagnar nýjan skemmtigarð í Smáralind

Landsbankinn tekur þátt í að fjármagna nýjan og glæsilegan skemmtigarð sem verður opnaður í verslunarmiðstöðinni Smáralind í næsta mánuði. Skemmtigarðurinn verður þar sem Vetrargarðurinn var áður, í austurenda Smáralindar. Skrifað var undir fjármögnunarsamning milli Landsbankans og rekstrarfélags skemmtigarðsins á dögunum. Eyþór Guðjónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir munu sjá um rekstur Skemmtigarðsins en að fyrirtækinu standa fjórar fjölskyldur....

100. fundur bæjarstjórnar Álftaness

MyndBoðað er til 100. fundar bæjarstjórnar Álftaness á morgun, föstudaginn 21. október, og hefst fundurinn kl. 16:30 í sal Álftanesskóla. Fundurinn verður sendur út beint á netinu og mun netslóð útsendingar birtast á heimasíðunni skömmu fyrir fund. Dagskrá fundarins er eftirfarandi....

Lesa meira

Betri Reykjavík opnuð

MyndJón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík opnaði nýjan samráðsvettvang fyrir Reykvíkinga á netinu í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í gær. Vefurinn heitir Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is. Gunnlaugur Sigurðsson, sem var valinn Reykvíkingur ársins 2011, setti inn fyrstu hugmyndina á vefinn. Snýst hugmynd hans um að stofna sérstaka aðstöðu fyrir veggjakrotara þar sem þeir geta fengið útrás fyrir iðju sína undir leiðsögn....

Lesa meira

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Pennar

Mynd
27.1.2012 12:30:00
Hrund Guðmundsdóttir
Fýluferð
Mynd
9.12.2011 14:36:00
Ari Kr. Sæmundsen
Bullur og bull
Mynd
4.12.2011 20:12:00
Skafti Harðarson
Fyrir upplýsta umræðu um ESB
Mynd
21.11.2011 21:11:00
Frosti Sigurjónsson
Auglýsingarýni: Vissir þú?
Mynd
19.10.2011 00:41:00
Hilmar Gunnars
Tækniframfarir í arkitektúr.
Mynd
17.9.2011 18:25:00
Gunnar Jónsson
Flipp-femínismi
Mynd
1.9.2011 01:08:00
Ásmundur Einar Daðason
Brottflutningarnir kosta milljarða!
Mynd
11.8.2011 15:26:00
Reynir Þór Eggertsson
Að vera stikkfrí
Mynd
9.8.2011 10:25:00
Gissur Þórður Jóhannesson
Blautalón.
Mynd
11.7.2011 15:22:00
Les Mandarins
Hin drungalegi akstur æskunnar minnar
Mynd
23.6.2011 10:05:00
Ragnheiður Ingimundardóttir
Sjónvarpið og fl
Mynd
14.5.2011 00:43:00
BÍÓTíminn
Route Irish (2011) Gagnrýni

Fleiri Pennar

Sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur á tillögum í hugmyndaleit um þjóðgarðinn á Þingvöllum

MyndÍ Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík stendur nú yfir sýning á tillögum sem bárust í hugmyndaleit Þingvallanefndar sem efnt var til í sumar um þjóðgarðinn á Þingvöllum. Alls bárust 102 tillögur í hugmyndaleitinni frá 88 þátttakendum, en frestur til að skila inn tillögum rann út 22. ágúst. Óskað var eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla, án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins....

Lesa meira

Michelsen úrsmiðir bjóða eina milljón í verðlaunafé

MyndMichelsen úrsmiðir hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem heitið er einni milljón fyrir upplýsingar sem gætu orðið til þess að þýfið sem stolið var úr versluninni við Laugarveg í gær komi fram. Tilkynningin fer hér á eftir: "Eins og kunnugt er var framið vopnað rán af þremur óþekktum mönnum í gær í verslun okkar, Michelsen úrsmiðum, að Laugavegi 15. Ræningjarnir komust undan með umtalsvert magn af þýfi; Rolex, Tudor og Michelsen úr....

Lesa meira

Punkhátíð í Kópavogi á laugardaginn

MyndPunkhátíð verður haldin í Kópavogi, laugardaginn 22. október. Tilgangurinn er að minnast þess þegar fyrstu tónar punksins hljómuðu í Kópavoginum í kringum 1980. Tónleikar fara fram í Molanum og á Spot og munu stíga á svið meðlimir hljómsveita á borð við Fræbbblanna, Q4U, Snillinganna, Vonbrigða, Tappa Tíkarrass, Taugadeildar og fleiri....

Lesa meira

Kvennaskólinn í Reykjavík í gamla Miðbæjarskólann

MyndKvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun gamla Miðbæjarskólann sem ríkið keypti af borginni á liðnu ári. Húsið var tekið til gagngerrar breytingar í samstarfi við húsafriðunarnefnd og tekið mið af kröfum til brunavarna, loftræstingar og annarra öryggisviðmiða. Framkvæmdir voru voru fjármagnaðar af verkkaupum, sem eru mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg. Heildarkostnaður nam 212 milljónum króna....

Lesa meira

Mynd

Tekjur Faxaflóahafna áætlaðar 2,5 milljarðar á næsta ári

Mynd
Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. í síðustu viku var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 ásamt áætlun um rekstur og fjárfestingar fyrir tímabilið 2013 - 2017. Áætlunin fer í framhaldi fyrir borgarstjórn Reykjavíkur til umfjöllunar í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins. Tekjur Faxaflóahafna sf. fyrir árið 2012 eru áætlaðar verða alls tæpir 2,5 milljarðar króna, en rekstrargjöld tæpir 2,2 milljarðar kr...

55% lögbrota er framin á höfuðborgarsvæðinu

Mynd
Samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra um afbrotatíðni árið 2010, greint eftir embættum, sýnir að meirihluti lögbrota er framinn á höfuðborgarsvæðinu eða 55%. Hegningarlagabrot voru flest skráð á höfuðborgarsvæðinu, 10.868, 936 á Suðurnesjum, 799 á Selfossi og 685 á Akureyri. Meirihluti umferðarlagabrota var áhöfuðborgarsvæðinu eða 50%. Tæp 20% þeirra voru á Selfossi og 11% í umdæmi Borgarnes, að því er fram kemur í skýrslunni....

Fossasýning í Náttúrufræðistofu Kópavogs

Mynd
Sýningin Eyjafjarðarfossar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginn 22. október. Á sýningunni eru ljósmyndir af 42 fossum í eyfirskum vatnsföllum eftir séra Svavar Alfreð Jónsson prest við Akureyrarkirkju. Sýningin stendur yfir til 1. desember. Ljósmyndirnar á sýningunni tók Svavar á árunum 2009 til 2011. Aðkoma að sumum fossunum var erfið og mátti Svavar þakka fyrir að sleppa heilu og höldnu....

Jarðskjálfti fannst í Reykjavík

Mynd
Snarpur jarðskjálfti fannst greinilega á höfuðborgarsvæðinu klukkan 9:47 í morgun og var hann upp á tæplega 4,0 stig. Töluvert hefur verið um skjálfta í morgun og eiga þeir upptök sín á Hellisheiði, um 3 km norður af Hellisheiðarvirkjun. Allt lék á reiðiskjálfi í Hveragerði og fundust skjálftarnnir einnig á Selfossi....

Fjórir togarar lönduðu 1.400 tonnum í Hafnarfirði

Mynd
Fjórir togarar lönduðu afla sínum í Hafnarfjarðarhöfn í þessari viku. Þetta eru togararnir Þór HF 4, Baldvin Njálsson GK 400 og erlendu togararnir Eldborg og Kiel. Afli togaranna er blandaður, enda koma þeir hver af sínum miðum. Samtals lönduðu togararnir um 1.400 tonnum af fiski. Á þessum árstíma er óvenjulegt að svo mikill afli berist til Hafnarfjarðar á einni viku....

Endurgerð í miðborginni fær viðurkenningu Philippe Rotthier

Mynd
Endurnýjun byggðar og bygginga á horni Austurstrætis og Lækjargötu er vel heppnuð og hefur nú vakið athygli dómnefndar Philippe Rotthier stofnunarinnar árið 2011 fyrir bestu endurnýjun í borgum, bæjum eða byggingum í Evrópu sl. fimm ár. Arkitektastofurnar ARGOS, Gullinsnið og Studio Granda fá sérstaka viðurkenningu dómnefndarinnar fyrir verk sitt við hönnun endurbyggingar í kjölfar bruna. ...

Fleiri fréttir

Reykjavík

SSV 4 m/s
4,3°
Léttskýjað

fimmtudagur

ASA 8 m/s
/
Rigning

föstudagur

V 9 m/s
/
Lítils háttar rigning

laugardagur

VSV 1 m/s
/
Lítils háttar rigning

sunnudagur

SSV 3 m/s
/
Rigning

mánudagur

SSV 3 m/s
/
Lítils háttar slydda

þriðjudagur

SSV 4 m/s
/
Skúrir
Síðast sótt: 22.2.2012- vedur.is
 
Lesa meira

Uppljóstrarinn

Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður

bjornvalurUppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan. Hefur sú foringjahollusta gengið svo langt að heimildarmenn uppljóstrarans eru orðnir sannfærðir um að blogg Björns Vals sé skipulega notað til að koma á framfæri óþægilegum árásum á andstæðinga fjármálaráðherra sem hann vill ekki sjálfur gangast við, en þar fara nú hæst árásir á "íhaldið" sem Björn Valur skilgreinir sem Forseta Íslands og Biskups Íslands og að því er virðist alla aðra sem ekki eru flokksbundnir í ríkisstjórnarflokkunum.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þótt Björn Valur hafi komið inn á Alþingi í kosningum 2009 sem fulltrúi nýrra tíma á Íslandi þá nái samstarf hans við Steingrím J. Sigfússon mun lengra aftur í tímann. Á vef Alþingis má t.d. sjá að Björn Valur sat á Alþingi sem varaþingmaður Alþýðubandalagsins árið 1990.  Það sem ekki er tekið fram þar er að Björn Valur var þá (sem og árin 2007 og 2008) varamaður Steingríms J. Sigfússonar.

 

Björn Valur, eða "varðhundur fjármálaráðherra" eins og heimildarmenn skopast með að hann sé nefndur í gríni og alvöru, hefur því verið vinstri kantmaður í íslenskum stjórnmálum í rúm tuttugu ár og allan þann tíma verið í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon.  Uppljóstraranum getur ekki annað en glaðst yfir því að Birni Val hafi loksins verið launuð húsbóndahollustan með embætti þingflokksformanns.   Heimildarmenn telja að Þuríður Backman (sem tók eftirminnilega við embættinu í fréttaviðtali á flugvelli úti í löndum með orðunum "HA?") hafi aldrei verið fyrsti kostur forystu VG. Þuríður hafi aðeins lent í starfinu óvart þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að láta hafa sig að fífli eftir að forysta VG setti hana af eftir fæðingarorlof eins og frægt er orðið.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans telja að með kosningu Björns Vals í embætti þingflokksformanns hafi Steingrímur J. Sigfússon slegið tvær flugur í einu höggi, treyst til muna tak sitt á ódælum þingmönnum innan flokks og gefið árásum varðhundarins á "íhaldið" stóraukið vægi út á við. Hvort tveggja komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er um líf ríkisstjórnarinnar á komandi vetri.

Lesa meira

Kvestor

Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?

Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út 1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur fram í þessari bók.

Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."

Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?
Lesa meira

Aðsendar greinar

Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?

vigdis framsoknÞann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?

Í nefndaráliti með tillögunni kemur fram að með umsóknarferlinu yrði tryggt að Alþingi yrði hluti af því heildarferli stjórnsýslu sem mál ættu að fara í gegnum áður en þau yrðu endanlega afgreidd og þannig átti að tryggja að stjórnsýslan miðlaði upplýsingum til þingsins um málefni er tengdust viðræðunum svo að þingið geti gegnt eftirlitshlutverki sínu í ferlinu. Á þessu er mikill misbrestur því þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, utandagskrárumræður og beiðnir um fundi í utanríkisnefnd fá þingmenn afar takmarkaðar upplýsingar um aðlögunarferlið. Sér þess sér helst stað í frumvörpum ríkisstjórnarinnar við innleiðingar gerða og tilskipana ESB.

Sá háttur er samt hafður á að hvergi er tiltekið í frumvörpunum sjálfum að um skilyrði ESB sé að ræða vegna umsóknarinnar. Blekkingarleik er beitt í skjóli EES samningsins. Nefni ég hér örfá frumvörp sem orðið hafa að lögum á síðasta þingi sem skilyrt var að lögleiða og hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. Ákvæði um Þróunarsjóð EFTA lögleitt í EES samninginn - kostar ríkissjóð í nýjum útgjöldum 5,3 milljarða. Lög um losunarheimildir - stofnkostnaður 20 milljónir og ný útgjöld 45 milljónir á ári. Lög um grunngerð landupplýsinga - 30 milljónir á ári. Fjölmiðlalög - rekstur fjölmiðlanefndar 33 milljónir á ári. Lög um stjórn vatnamála - ný útgjöld 130 milljónir á ári.

Utanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að eins sé líklegt að kostnaður upp á 4 milljarða lendi á ríkinu vegna innleiðingar nýs tollakerfis í landbúnaði. Mörg sambærileg frumvörp liggja inn í þinginu sem bíða afgreiðslu. Hliðaráhrif umsóknarferlisins hafa því gríðarleg áhrif á ríkissjóð. Það skal og á það minnst að atvinnusköpunartækifæri ríkisstjórnarinnar liggur í lögleiðingu þessara frumvarpa því oftar en ekki þarf að bæta við starfsmönnum í undirstofnunum til "eftirlits" . Kratavæðingin er því algjör og opinberi geirinn þenst út.

Þá að beinum kostnaði við umsóknina. Í umræddri greinargerð er talið að kostnaður sem falli undir utanríkisráðuneytið á árabilinu 2010 - 2012 verði um 800 milljónir og lunginn af þeim kostnaði felst í þýðingum reglna ESB yfir á íslensku. Það er hreint galið að skattgreiðendur beri kostnað af þýðingum alls lagabálks ESB áður en vitað er hvort gengið verður inn eður ei. Ekki er gefin upp kostnaður annarra ráðuneyta - en ljóst er að stjórnsýslan liggur á hliðinni vegna umsóknarinnar - sem er e.t.v. skýringin á hví slík kyrrstaða ríki hér á landi.

Fljótt á litið má áætla að beinn kostnaður við umsóknarferlið verði á bilinu 1,5 - 2 milljarðar. Þær upplýsingar er ekki hægt að fá frá stjórnarráðinu og heykist hver ráðherrann á fætur öðrum að veita þinginu og almenningi upplýsingar um þennan kostnað. Samandregið er um að ræða gríðarlegan dulinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu á fylgiskjali IV í þingsályktunartillögunni kemur fram að kostnaður aðildarviðræðnanna sé háður óvissu sér í lagi í ljósi þess hversu hratt viðræðurnar ganga. Kostnaðarmatið er byggt á 18 mánaða ferli sem átti að ljúka um mitt ár 2011. Nú er sá tími liðinn og langt í land með að samningar takist. Rökrétt er því að tvöfalda beinan kostnað af ferlinu. Ef umsóknin verður ekki dregin til baka er ljóst að kostnaðurinn við umsóknina mun hlaupa á tugum milljarða.

Á meðan Össur Skarphéðinsson situr einn á brennandi tröppunum í Brussel með umsóknina er vegið að grunnþáttum íslensks samfélags með niðurskurði og skattpíningu.