logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Betri Reykjavík opnuð

betri reykjavik

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík opnaði nýjan samráðsvettvang fyrir Reykvíkinga á netinu í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í gær. Vefurinn heitir Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is. Gunnlaugur Sigurðsson, sem var valinn Reykvíkingur ársins 2011, setti inn fyrstu hugmyndina á vefinn. Snýst hugmynd hans um að stofna sérstaka aðstöðu fyrir veggjakrotara þar sem þeir geta fengið útrás fyrir iðju sína undir leiðsögn.

Á Betri Reykjavík mun íbúum borgarinnar gefast tækifæri allan ársins hring til að setja fram hugmyndir sínar um málefni er varða þjónustu og rekstur Reykjavíkurborgar. Íbúar munu geta skoðað fram komnar hugmyndir annarra, stutt þær eða verið á móti þeim. Einnig er hægt að setja fram rök og umræðupunkta um hugmyndir á vefnum.

Reykjavíkurborg skuldbindur sig til að taka mánaðarlega fimm efstu hugmyndirnar af Betri Reykjavík til formlegrar meðferðar viðkomandi fagráða. Munu fagsvið borgarinnar síðan framkvæma samþykktar hugmyndir. Verður ferli hugmynda sýnilegt á vefnum.

Hugmyndir af Betri Reykjavík sem koma til framkvæmda verða ætíð kynntar sem lýðsprottnar hugmyndir enda eru hugmyndir sem koma fram á vefnum sameign borgarbúa.

Málaflokkar sem notendur geta skráð hugmyndir á eru ferðamál, framkvæmdir, frístundir og útivist, íþróttir, mannréttindi, menning og listir, menntamál, samgöngur, skipulagsmál, stjórnsýsla, umhverfismál og velferðarmál.

Mynd/www.reykjavik.is: Frá opnun vefsins Betri Reykjavík í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í gær. Á myndinni eru meðal annarra Jón Gnarr,borgarstjóri og Gunnlaugur Sigurðsson, Reykvíkingur ársins sem setti inn fyrstu hugmyndina á nýja vefinn.

 

 

Landsbankinn fjármagnar nýjan skemmtigarð í Smáralind

Landsbankinn tekur þátt í að fjármagna nýjan og glæsilegan skemmtigarð sem verður opnaður í verslunarmiðstöðinni Smáralind í næsta mánuði. Skemmtigarðurinn verður þar sem Vetrargarðurinn var áður, í austurenda Smáralindar. Skrifað var undir fjármögnunarsamning milli Landsbankans og rekstrarfélags skemmtigarðsins á dögunum. Eyþór Guðjónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir munu sjá um rekstur Skemmtigarðsins en að fyrirtækinu standa fjórar fjölskyldur....

100. fundur bæjarstjórnar Álftaness

Boðað er til 100. fundar bæjarstjórnar Álftaness á morgun, föstudaginn 21. október, og hefst fundurinn kl. 16:30 í sal Álftanesskóla. Fundurinn verður sendur út beint á netinu og mun netslóð útsendingar birtast á heimasíðunni skömmu fyrir fund. Dagskrá fundarins er eftirfarandi....

Betri Reykjavík opnuð

Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík opnaði nýjan samráðsvettvang fyrir Reykvíkinga á netinu í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í gær. Vefurinn heitir Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is. Gunnlaugur Sigurðsson, sem var valinn Reykvíkingur ársins 2011, setti inn fyrstu hugmyndina á vefinn. Snýst hugmynd hans um að stofna sérstaka aðstöðu fyrir veggjakrotara þar sem þeir geta fengið útrás fyrir iðju sína undir leiðsögn....

Sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur á tillögum í hugmyndaleit um þjóðgarðinn á Þingvöllum

Í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík stendur nú yfir sýning á tillögum sem bárust í hugmyndaleit Þingvallanefndar sem efnt var til í sumar um þjóðgarðinn á Þingvöllum. Alls bárust 102 tillögur í hugmyndaleitinni frá 88 þátttakendum, en frestur til að skila inn tillögum rann út 22. ágúst. Óskað var eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla, án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins....

Michelsen úrsmiðir bjóða eina milljón í verðlaunafé

Michelsen úrsmiðir hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem heitið er einni milljón fyrir upplýsingar sem gætu orðið til þess að þýfið sem stolið var úr versluninni við Laugarveg í gær komi fram. Tilkynningin fer hér á eftir: "Eins og kunnugt er var framið vopnað rán af þremur óþekktum mönnum í gær í verslun okkar, Michelsen úrsmiðum, að Laugavegi 15. Ræningjarnir komust undan með umtalsvert magn af þýfi; Rolex, Tudor og Michelsen úr....

Punkhátíð í Kópavogi á laugardaginn

Punkhátíð verður haldin í Kópavogi, laugardaginn 22. október. Tilgangurinn er að minnast þess þegar fyrstu tónar punksins hljómuðu í Kópavoginum í kringum 1980. Tónleikar fara fram í Molanum og á Spot og munu stíga á svið meðlimir hljómsveita á borð við Fræbbblanna, Q4U, Snillinganna, Vonbrigða, Tappa Tíkarrass, Taugadeildar og fleiri....

Kvennaskólinn í Reykjavík í gamla Miðbæjarskólann

Kvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun gamla Miðbæjarskólann sem ríkið keypti af borginni á liðnu ári. Húsið var tekið til gagngerrar breytingar í samstarfi við húsafriðunarnefnd og tekið mið af kröfum til brunavarna, loftræstingar og annarra öryggisviðmiða. Framkvæmdir voru voru fjármagnaðar af verkkaupum, sem eru mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg. Heildarkostnaður nam 212 milljónum króna....

Tekjur Faxaflóahafna áætlaðar 2,5 milljarðar á næsta ári

Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. í síðustu viku var samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 ásamt áætlun um rekstur og fjárfestingar fyrir tímabilið 2013 - 2017. Áætlunin fer í framhaldi fyrir borgarstjórn Reykjavíkur til umfjöllunar í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins. Tekjur Faxaflóahafna sf. fyrir árið 2012 eru áætlaðar verða alls tæpir 2,5 milljarðar króna, en rekstrargjöld tæpir 2,2 milljarðar kr...

55% lögbrota er framin á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra um afbrotatíðni árið 2010, greint eftir embættum, sýnir að meirihluti lögbrota er framinn á höfuðborgarsvæðinu eða 55%. Hegningarlagabrot voru flest skráð á höfuðborgarsvæðinu, 10.868, 936 á Suðurnesjum, 799 á Selfossi og 685 á Akureyri. Meirihluti umferðarlagabrota var áhöfuðborgarsvæðinu eða 50%. Tæp 20% þeirra voru á Selfossi og 11% í umdæmi Borgarnes, að því er fram kemur í skýrslunni....

Fossasýning í Náttúrufræðistofu Kópavogs

Sýningin Eyjafjarðarfossar verður opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu Kópavogs laugardaginn 22. október. Á sýningunni eru ljósmyndir af 42 fossum í eyfirskum vatnsföllum eftir séra Svavar Alfreð Jónsson prest við Akureyrarkirkju. Sýningin stendur yfir til 1. desember. Ljósmyndirnar á sýningunni tók Svavar á árunum 2009 til 2011. Aðkoma að sumum fossunum var erfið og mátti Svavar þakka fyrir að sleppa heilu og höldnu....

Jarðskjálfti fannst í Reykjavík

Snarpur jarðskjálfti fannst greinilega á höfuðborgarsvæðinu klukkan 9:47 í morgun og var hann upp á tæplega 4,0 stig. Töluvert hefur verið um skjálfta í morgun og eiga þeir upptök sín á Hellisheiði, um 3 km norður af Hellisheiðarvirkjun. Allt lék á reiðiskjálfi í Hveragerði og fundust skjálftarnnir einnig á Selfossi....

Fjórir togarar lönduðu 1.400 tonnum í Hafnarfirði

Fjórir togarar lönduðu afla sínum í Hafnarfjarðarhöfn í þessari viku. Þetta eru togararnir Þór HF 4, Baldvin Njálsson GK 400 og erlendu togararnir Eldborg og Kiel. Afli togaranna er blandaður, enda koma þeir hver af sínum miðum. Samtals lönduðu togararnir um 1.400 tonnum af fiski. Á þessum árstíma er óvenjulegt að svo mikill afli berist til Hafnarfjarðar á einni viku....

Endurgerð í miðborginni fær viðurkenningu Philippe Rotthier

Endurnýjun byggðar og bygginga á horni Austurstrætis og Lækjargötu er vel heppnuð og hefur nú vakið athygli dómnefndar Philippe Rotthier stofnunarinnar árið 2011 fyrir bestu endurnýjun í borgum, bæjum eða byggingum í Evrópu sl. fimm ár. Arkitektastofurnar ARGOS, Gullinsnið og Studio Granda fá sérstaka viðurkenningu dómnefndarinnar fyrir verk sitt við hönnun endurbyggingar í kjölfar bruna. ...

Todmobile með tónleika í Hörpu

Föstudagskvöldið 18. nóvember leikur Todmobile í fyrsta sinn í Hörpu, nánar tiltekið í hinni glæsilegu Eldborg en á þessum hljómleikum kemur Todmobile fram í öllu sínu veldi og meira til því með í för verða bakraddasöngvarar og tveir trommuleikarar auk strengjasveitar og kórs. Hljómsveitin mun spila öll sín þekktustu lög ásamt nokkrum nýjum en ný plata sveitarinnar, sú sjöunda á 21 árs ferli lítur dagsins ljós í nóvember....

Ný náttúruverndarsamök stofnuð á Reykjanesskaga

Undanfarið hefur hópur áhugafólks um náttúruvernd undirbúið stofnun náttúruverndarsamtaka á Reykjanesskaga. Stofnfundur samtakanna verður haldinn þann 18. október næstkomandi og er markmiðið að sameina náttúruverndarfólk á Suðvesturlandi í eina öfluga breiðfylkingu sem muni láta til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum í landnámi Ingólfs....

Hafnarfjarðarbær mótmælir ákvörðun um lokun St. Jósefsspítala

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir harðlega ákvörðun um lokun St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og krefst þess að hún verði endurskoðuð og sameining við LSH gangi til baka. Ákvörðunin gengur þvert á þá sátt sem lofað var og þau fyrirheit sem gefin voru, um að St. Jósefsspítali gegndi áfram mikilvægu hlutverki í nærþjónustu við íbúa í Hafnarfirði, að því er fram kemur á vef bæjarins....

Opið hús í Höfða

Dagana 13. – 15. október verður opið hús í Höfða í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronald Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjevs, leiðtoga Sovétríkjanna, í húsinu árið 1986. Leiðtogafundurinn beindi á sínum tíma athygli umheimsins að Íslandi. Að mati margra sérfræðinga var á fundinum rudd braut fyrir nýja sýn í alþjóðamálum og tekið fyrsta skrefið að endalokum kalda stríðsins....

Landsmót 50+ verður í Mosfellsbæ 2012

Stjórn UMFÍ hefur tekið ákvörðun um næsta mótsstað fyrir Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri og mun það fara fram í Mosfellsbæ sumarið 2012. Framkvæmd mótsins verður í höndum UMFÍ og UMSK. UÍA, í samstarfi við Fjarðabyggð, sótti um mótið og blandaði sér þar í baráttu fjögurra annarra héraðssambanda en USAH, UMSB og UMSE sóttust einnig eftir að fá að halda mótið á næsta ári....

IKEA færir börnum á Íslandi afmælisgjöf

Í tilefni 30 ára afmælisviku IKEA á Íslandi dagana 15. - 21. september sl., lét verslunin 30 krónur af hverri greiðslufærslu í verslun og á veitingastað renna til innlendra verkefna Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Einnig seldu þrjú pör, sem kepptu í leiknum Helgarferð til IKEA, vinabönd í eina klukkustund og rann allur ágóði af sölunni til samtakanna. Alls söfnuðust 758.801 krónur....

Hjólum til framtíðar

Dagana 16. til 22 september nk. er haldin hin árlega samgönguvika þar sem mikilvægi vistbærra samgangna er í brennidepli. Samgönguvikan hefur verið skipulögð af sveitarfélögum fyrir íbúa sveitarfélaga. Einn af fyrstu viðburðum samgönguvikunnar er ráðstefnan „Hjólum til framtíðar“ sem haldin verður í Iðnó nk. föstudag....

Ljósmyndasýning Fuglaverndar tileinkuð Hjálmari R. Bárðarsyni

Fuglavernd stendur nú fyrir annarri ljósmyndasýningu sinni. Að þessu sinni er sýningin tileinkuð velunnara félagsins, Hjálmari R. Bárðarsyni, sem lést í mars 2009. Hjálmar var brautryðjandi í fuglaljósmyndun og gaf út fyrstu stóru ljósmyndabókina um íslenska fugla árið 1986. Sýningin opnaði sl. föstudag og stendur til 29. september í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin er opin virka daga frá 8-19 en um helgar frá 12-18. ...

Bieber-skrúðganga í Reykjavík

Bieber-skrúðganga fór fram í dag og var gengið frá Hlemmi í Reykjavík og niður á Ingólfstorg. Gangan varð fjölmenn, aðallega unglingsstúlkur, en fór fram án teljandi vandræða og án aðstoðar frá lögreglu. Mikil gleði og mikið gaman. Þetta var eins konar kröfuganga þar sem baráttumál hópsins er að fá kanadíska popptónlistarmanninn Justin Bieber til Íslands....

Málverkið Ísland afhjúpað í sundlaug Garðabæjar

Málverkið Ísland var afhjúpað í sundlaug Garðabæjar í vikunni. Verkið var unnið í sumar á bökkum sundlaugarinnar af listamanninum Birgi Rafni Friðrikssyni. Gunnar Einarsson bæjarstjóri og Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður menningar- og safnanefndar fengu þann heiður að afhjúpa verkið formlega og greina frá heitinu. Við þetta tækifæri var sundlaugargestum boðið ókeypis í sund og gestir gátu notið góðra og heilsusamlegra veitinga. ...

33 til 37 einstaklingar falla fyrir eigin hendi á Íslandi

Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna er í dag, laugardaginn 10. september. „Á hverju ári falla 33 til 37 einstaklingar fyrir eigin hendi á Íslandi. Sorg aðstandenda og fjölskyldna er yfirþyrmandi – þannig bætist sektarkenndin og skömmin við erfiðar tilfinningar missis sem syrgjendur eftir sjálfsvíg ástvins þurfa að takast á við,“ segir Halldór Reynisson verkefnisstjóri á biskupsstofu. Opnaður verður nýr vefur á www.sjalfsvig.is....

Togarinn ODRA landar 500 tonnum af grálúðu í Hafnarfirði

Togarinn ODRA landar í Hafnarfirði rúmlega 500 tonnum af grálúðu, sem skipið fékk á Grænlandsmiðum. Odra var 53 daga í veiðiferðinni, en Odra fór frá Hafnarfirði 16. júlí síðasliðinn. Togarinn er frá vinabæ Hafnarfjarðar Cuxhaven í Þýskalandi og er frá fyrirtækinu Deutche FishFang Union, en DFFU, eins og nafn fyrirtækisins er gjarnan skrifað, er í eigu Samherja ehf....

Þjónustumiðstöðin Miðgarður flytur í nýtt húsnæði

Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness mun flytja í nýtt húsnæði í dag, föstudaginn 9. september. Haustið 1997 opnaði Miðgarður dyr sínar í Langarima 21 og var hann þá fyrsta þjónustumiðstöð sinnar gerðar í Reykjavík. Í Langarima var húsnæðið bæði of lítið og óhentugt til þess að hýsa starfsemi Miðgarðs og því löngu orðið tímabært að flytja í betra húsnæði. Miðgarður mun því flytja í nýtt húsnæði að Gylfaflöt 5 í Grafarvogi,...

Laxveiði árnar að loka hver á fætur annarri

Nú eru laxveiði árnar að loka hver á fætur annarri. Veiði lauk í Elliðaánum síðastliðin mánaðarmót. Virðist sem að aðeins sjónarmunur sé á veiðinni nú í sumar miðað við árið í fyrra. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá veiðivörðum er tala veiddra laxa þetta sumarið tæplega 1.150 laxar. Ekki eru öll kurl komin til grafar en til samanburðar þá veiddust í Elliðaánum 1.164 laxar í fyrrasumar....

Fimm skip eftir að heimsækja höfuðborgina áður en vertíðinni lýkur

Þrjú skemmtiferðaskip komu til Reykjavikur í gær, 7. september, öll þýsk og heita: Aidaluna, Amadea og Bremen. Vertíð skemmtiferðaskipanna lýkur í Reykjavik með komu Boudicca þann 23. september, en samtals eiga 5 skip eftir að heimsækja höfuðborgina áður en vertíðinni lýkur þetta árið....

Leikskólakennarar samþykktu nýgerðan kjarasamning

Leikskólakennarar samþykktu nýgerðan kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga með 92,2% atkvæða en 78,8% félagsmanna greiddu atkvæði. Nei sögðu 5,6% og auðir seðlar voru 2,2%. Atkvæðagreiðslu lauk á þriðjudag, en hún hófst 1. september sl. og voru atkvæði greidd rafrænt en trúnaðarmenn sáu um framkvæmd hennar í leikskólum....

Slá upp tjaldbúðum til að vekja athygli á húsnæðisvanda stúdenta

Í hádeginu í dag ætlar Stúdentaráð Háskóla Íslands að slá upp tjaldbúðum í Skeifunni. Ætlunin er að vekja athygli á húsnæðisvanda stúdenta, en eins og flestum er kunnugt eru biðlistar eftir stúdentaíbúðum langir og leigurverð á almennum markaði mun hærra en hinn almenni stúdent ræður við. "Við munum skella nokkrum pylsum á grillið á slaginu 12 svo að þetta ætti að fara vel við hádegispásu frá lestri og skólastundum," segir í tilkynningu frá Stúdentaráði HÍ....

Fjórir tilnefndir til fjölmiðlaverðlauna

Dómnefnd hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna umhverfisráðuneytisins sem veitt verða í fyrsta sinn 16. september næstkomandi á Degi íslenskrar náttúru. Verðlaununum er ætlað er að hvetja til hverskyns umfjöllunar um íslenska náttúru, hvort heldur er í því skyni að vekja athygli á einstakri náttúru landsins eða benda á þær ógnir sem steðja að íslenskri náttúru og mikilvægi þess að varðveita hana og vernda í þágu komandi kynslóða....

Birgir Leifur fór fýluferð til Kazakhstan

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG verður ekki meðal keppenda á Kazakhstan Open mótinu sem hefst á morgun eins og hann ætlaði sér. Hann og eiginkona hans Elísabet Halldórsdóttir voru komin til Frankfurt í Þýskalandi á leið sinni til Kazakhastan, en komust ekki lengra vegna vandræða með vegabréfsáritun til Kazakhastan....

Kjarasamningur við Alcan á Íslandi var felldur

Kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins f.h. Alcan á Íslandi var felldur í atkvæðagreiðslu, en kosningu lauk í gær. Samningurinn var undirritaður 23. ágúst síðastliðinn og tók til félagsmanna VR sem starfa hjá Alcan á Ísland auk félagsmanna Verkalýðsfélagsins Hlífar, VM Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambandsins Íslands vegna Félag íslenskra rafvirkja og Félags rafeindavirkja, FIT Félags iðn- og tæknigreina og Matvís....

Garðabær gerir þriggja ára samning við Skólamat

Bæjarráð Garðabæjar tók tilboði Skólamatar í mat fyrir grunnskóla bæjarins eftir útboð sem auglýst var í sumar. Gildir samningurinn til þriggja ára. Börnin hafa tekið matnum vel þessa fyrstu viku og virðist almenn ánægja vera með gæði hans, að sögn Margrétar Bjarkar Svavarsdóttur, forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar....

YAIC ráðstefna um skapandi greinar og tækifæri í Hörpunni

YAIC heldur ráðstefna um skapandi greinar og tækifæri í netheimum í Hörpunni 10.-12. október. YAIC er framsækin ráðstefna og vinnusmiðjur þar sem leitast er við að varpa ljósi á ný viðskiptamódel í skapandi greinum á tímum stafrænnar byltingar. Tilgangurinn með ráðstefnunni er að koma á alþjóðlegu tengslaneti og skapa þekkingarbanka á Íslandi um stafræn viðskipti og markaðssetningu í skapandi greinum....

Íslandsbanki styrkir Galdrakarlinn í Oz og Svar við bréfi Helgu

Íslandsbanki og Borgarleikhúsið hafa frá upphafi bankans átt farsælt og gott samstarf. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri, undirrituðu áframhaldandi samstarfssamning í Borgarleikhúsinu í gær. Íslandsbanki er einn af megin bakhjörlum leikfélagsins og njóta viðskiptavinir Íslandsbanka samstarfsins í formi betri kjara á leiksýningum. Í ár mun Íslandsbanki styrkja tvær sýningar leikhússins; Galdrakarlinn í Oz og Svar við bréfi Helgu....

Yfir þúsund atvinnuleitendur hefja nám í skólum landsins í haust

Samningur um framkvæmd átaksins „Nám er vinnandi vegur“ milli stjórnvalda, framhaldsskóla og háskóla var undirritaður í dag. Viðstaddir undirritun samningsins voru mennta- og menningarmálaráðherra, velferðarráðherra, forsvarsmenn skóla og aðila vinnumarkaðarins. Fyrsta hluta átaksins, sem fól í sér eftirfarandi bráðaaðgerðir, er nú lokið samkvæm áætlun:...

Málverk af Bjarna lækni varðveitt í Hafnarborg

Í gær tók Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri við málverki af Bjarna Snæbjörnssyni lækni. Málverkið tilheyrði St. Jósefsspítala og voru það afkomendur Bjarna sem höfðu frumkvæði af því að koma verkinu til varðveislu hjá Hafnarfjarðarbæ. Saga Bjarna er samofin sögu spítalans og sögu Hafnarfjarðar og því þótti þeim tilvalið að málverkið yrði eign bæjarins nú þegar sögu St. Jósefsspítala er að ljúka. ...

Kynning á árangri af þróunarsamvinnu í fátækustu ríkjum heims

Dagana 5. – 9. september standa frjáls félagasamtök ásamt Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) fyrir kynningarátaki á markmiðum og árangri þróunarsamvinnu. Miðvikudaginn 7. september verður gjörningur undir yfirskriftinni „Þróunarsamvinna ber ávöxt“ á fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri auk þess sem málþing um þróunarsamvinnu verður í sal 102 á Háskólatorgi í Háskóla Íslands fimmtudaginn 8. september. ...

Samningur um þjónustu við fimm fatlaða íbúa í Kastalagerði

Samningur um þjónustu við fimm fullorðna fatlaða einstaklinga sem búa að Kastalagerði 7 í Kópavogi var undirritaður af hálfu Kópavogsbæjar og Áss styrktarfélags í gær. Markmiðið er að íbúar Kastalagerðis fái þá þjónustu sem mætir hvað best óskum þeirra, aðstæðum og þörfum. Kópavogsbær tók yfir málefni fatlaðs fólks um áramótin og er samningurinn við Ás styrktarfélag liður í því ferli....

Með þrjá snáka og ræktaði kannabis

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ á föstudaginn. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 30 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Á sama stað var einnig að finna þrjá snáka og voru þeir líka fjarlægðir. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar....

Tollarar í ný einkennisföt

Hjá Tollstjóra verða ný einkennisföt tollvarða tekin í notkun á morgun, 6. september. Einkennisskjöldur með starfsnúmeri tollvarðar er helsta nýjungin auk þess sem svört skyrta, pólobolur eða rúllukragabolur leysa hvítu skyrtuna af hólmi. Oft hafa tollarar verið nefndir "svarta gengið" og nú bera þeir væntanlega nafn með rentu....

Garðabær auglýsir fjölmörg störf

Garðabær auglýsir nú mörg störf laus til umsóknar. Störfin sem í boði eru m.a. kennarastaða í Sjálandsskóla, nokkrar stöður í leik- og grunnskólum bæjarins, starf íþróttafulltrúa og starf þjónustufulltrúa í Ráðhúsinu svo eitthvað sé nefnt. Sótt er um störf á vegum Garðabæjar rafrænt á Mínum Garðabæ. Garðabær vinnur samkvæmt stjórnsýslu- og upplýsingalögum. Umsóknir eru vistaðar í skjalakerfi bæjarins og ekki er hægt að óska eftir nafnleynd. Öllum umsækjendum er svarað og þeim tilkynnt um ráðningu. ...

Herferð gegn munntóbaksnotkun

Fyrirmyndarleikmaðurinn er átaksverkefni gegn munntóbaksnotkun knattspyrnumanna og ungs fólks, á vegum Embættis Landlæknis, UMFÍ, KSÍ, ÍSÍ og ÁTVR. Einnig er herferðinni beint gegn notkun tóbaks á íþróttasvæðum. Átakið fer fram með þeim hætti að valinn hefur verið einn leikmaður frá hverju liði í efstu deild og ber hann titilinn fyrirmyndarleikmaður. Og notar ekki tóbak. ...

,,Brosandi börn" í HR

Fjölmargir lögðu leið sína á viðburðinn ,,Brosandi börn" sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík í dag. Þar fengu gestir að njóta japanskrar menningar og styðja börn á hamfarasvæðunum í Japan. Dagskráin var fjölbreytt og gæddu gestir sér m.a. á sushi, kökum og tei, brutu pappír, teiknuðu, dönsuðu og kepptu í japönskum leikjum. Sýndar voru allar japanskar bardagaíþróttir og er það í fyrsta sinn sem það er gert á Íslandi....

Perlan til sölu

Perlan á Öskjuhlíð er auglýst til sölu í dagblöðunum í dag. Í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur, sem á Perluna, kemur fram að salan sé hluti af aðgerðaráætlun Orkuveitunnar og eigenda hennar, sem var samþykkt í vor. Fasteignasalan Miklaborg sér um söluna en hún varð fyrir valinu þegar leitað var tilboða í umsjón með sölu stærri eigan fyrirtækisins. Orkuveitan hefur þegar selt skemmu og starfsmannahús við Andakílsárvirkjun, jarðirnar Berkseyri og Berkseyri ytri og almannavarnarskýli í Mosfellsdal....

Verð á strætókortum hækkar um 9-10% hinn 1. október

Verð á mánaðar-, þriggja mánaða og níu mánaða strætókortum hækkar um 9-10% hinn 1. október næstkomandi. Stök fargjöld haldast hins vegar óbreytt, eða 350 krónur, sem og öll form afsláttarfarmiða. Hækkun á verði tímabilskorta er liður í að auka hlut fargjaldatekna í rekstrarkostnaði Strætó með hliðsjón af þróun verðlags....

Mannlífið í borginni tekur oft á sig hinar ótrúlegustu myndir

Mannlífið í höfuðborginni er fjölbreytt, rétt eins og verkefni lögreglunnar. Í gærmorgun var hún kölluð til þegar drukkinn karl á fertugsaldri hugðist taka sér far með strætó. Slíkt er ekki alltaf lögreglumál en í þessu tilviki framvísaði maðurinn farmiða sem var ætlaður börnum. Hann neitaði þráfaldlega að greiða gjald í samræmi við aldur og hélt áfram að láta "barnalega". Svo fór að honum var vísað út úr strætisvagninum....

Eplatré gróðursett í Álfaheiði í Kópavogi

Leikskólabörn á leikskólanum Álfaheiði gróðursettu tvö eplatré á leikskólalóðinni í gær. Tilefnið var að í sumar fóru fram endurbætur á lóðinni sem heppnuðust mjög vel. Börnin munu án efa hlúa vel að trjánum og fylgjast spennt með því hvort lítil epli líti dagsins ljós einn góðan veðurdag....

200 svartir krossar í táknræum mótmælum við Alþingishúsið

Alþingi kom saman klukkan 10:30 í morgun að loknu sumarleyfi og mun starfa næstu tvær vikurnar. Þegar alþingismenn komu til þings blöstu við þeim 200 svartir krossar sem búið var að koma fyrir á Austurvelli, fyrir framan Alþingishúsið. Halldór Gunnarsson, einn þeirra sem stóð fyrir þessu, sagði að þetta væru táknræn þögul mótmæli. Hver og einn gæti túlkað fyrir hvað þetta stæði....

Fylgi Vinstri-grænna ekki mælst minna í fjögur ár

Fylgi stjórnmálaflokkana hefur lítið breyst undanfarna mánuði samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem greint var frá í fréttum Útvarpsins. Þriðjungur kjósenda styður ríkisstjórnina. Fjórtán prósent þeirra sem svöruðu þjóðarpúlsi Gallup í ágúst myndu ekki kjósa eða skila auðu á kjördag. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust nærri 17% styðja Framsóknarflokkinn, tæp 36% styðja Sjálfstæðisflokkinn, um 3% styðja Hreyfinguna og 22% styðja Samfylkinguna. Fylgi Vinstri grænna mælist nú 14% og hefur ekki mælst minna síðan í júlí árið 2007....

Busavígsla fór fram í MR í dag

Busavígsla fór fram í Menntaskólanum í Reykjavík í dag, en þar eru nýnemar tolleraðir af eldri nemum samkvæmt gamalli hefð í skólanum. Menntaskólinn í Reykjavík er elsti skóli landsins og á sér merka sögu. Hann kappkostar að skila nemendum sínum vel undirbúnum út í lífið....

Lone Scherfig er heiðursgestur á RIFF 2011

Heiðursgestur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2011 er danska kvikmyndagerðarkonan Lone Scherfig. Hún hlýtur Heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listræna sýn. Verðlaun þessi verða veitt í nafni Frú Vigdísar Finnbogadóttur og mun afhending þeirra verða árlegur viðburður á RIFF héðan í frá....

Komu skemmtiferðaskipa að ljúka þetta sumarið

Hollenska skemmtiferðaskipið Eurodam lagðist að Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Rúmlega 2.000 farþegar eru um borð í þessu glæsilega skipi, auk áhafnar sem telur 930 manns. Skipið er 86.273 brúttótonn og ganghraði 24 sjómílur. Nú þegar september gengur í garð fer heimsóknum þessara tignarlegu fararskjóta hingað til lands að ljúka þetta árið. ...

Þrímenntu á rafmagnsvespu!

Svokallaðar rafmagnsvespur hafa sést á höfuðborgarsvæðinu í auknum mæli í sumar. Því miður virðast sumir ekki gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að stjórna slíku farartæki, líkt og sést á meðfylgjandi mynd. Á henni eru þrír unglingar á einni rafmagnsvespu, sem ekið er á akbraut og á móti umferð. Hér hefði getað farið mjög illa! Lögreglan hvetur foreldra og forráðamenn til að ræða við börn sín um þær hættur sem leynast í umferðinni og hvað sé leyfilegt og hvað ekki....

Kaffi, kökur & rokk & ról", tónleikaröð í Vonarhúsinu í haust

Í Efstaleiti 7 er að finna göngudeild SÁÁ í glæsilegu 1.500 fm húsi sem hýsir auk göngudeildarinnar, skrifstofur samtakanna, rannsóknarstarf og forvarnadeild. Þar er og að finna forláta sal sem verður nýttur í haust undir bullandi sveitta rokktónleika. Helstu og merkustu sveitir íslenskrar tónlistar leika hvern þriðjudag í haust, en dagskrárstjóri er Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður og poppfræðingur. Benni Hemm Hemm og Prinspóló ríða á vaðið...

Tveir þreyttu minningarsund um Eyjólf Jónsson frá Ægissíðunni að Bessastöðum

Þann 29. ágúst stóð sjósundfélag lögreglunnar fyrir minningarsundi Eyjólfs Jónssonar frá Ægissíðunni að Bessastöðum. Lagt var upp með að synda stystu leið eða 2,5 km, en við athugun á korti að sundi loknu virðist sem vegalengdin hafi verið um 2,85 km þar sem komið var að landi. Að þessu sinni þreyttu þeir Jón Kristinn Þórsson og Arnþór Davíðsson sundið. Hitastig var tæpar 12 gráður....

Drög að deiliskipulagi nýs Landspítala

Forkynning á drögum að deiliskipulagi nýs Landspítala fer fram næstu daga og standa vonir til þess að deiliskipulagið öðlist gildi með vorinu. Deiliskipulagsdrögin taka til framtíðarskipulags bygginga fyrir Landspítala, Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum á Landspítalalóðinni við Hringbraut og eru þau grundvölluð á tillögu SPITAL hönnunarhópsins sem bar sigur úr bítum í skipulags- og forhönnunarsamkeppni árið 2010....

Kona í annarlegu ástandi með barn í bílnum

Kona á þrítugsaldri var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Hún var í annarlegu ástandi en í fórum hennar fundust fíkniefni. Með í för var barnið hennar en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu þess og barnaverndaryfirvöld upplýst um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð, en hún hafði þegar verið svipt ökuleyfi....

Bæklingur á 8 tungumálum um leikskóla og foreldrasamstarf

Leikskólasvið Reykjavíkurborgar hefur gefið út nýja bæklinga á átta tungumálum um leikskóla og aðra dagvistun. Þá er kominn út bæklingur sem miðar að því að efla foreldrasamstarf og heitir "Velkomin til samstarfs um leikskólabarnið". Bæklingarnir eru aðgengilegir í rafrænni flettiútgáfu og prentútgáfu. Þróunarsjóður innflytjendaráðs styrkti útgáfuna. Verkefnisstjóri fjölmenningar á Leikskólasviði er Fríða Bjarney Jónsdóttir....

Rekstrarafkoma Hafnarfjarðarbæjar neikvæð um 751 millj. kr.

Á aukafundi í bæjarráði Hafnarfjarðar í gær var kynnt uppgjör bæjarsjóðs fyrir fyrri hluta ársins. Þar kemur m.a. fram að rekstrarniðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði er jákvæð um tæpar 576 millj.kr. og rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um 886 millj.kr. Fjármagnsliðir hafa aftur á móti neikvæð áhrif á heildarniðurstöðu reikninganna vegna óhagstæðrar gengis- og verðlagsþróunar á tímabilinu. Rekstrarafkoma A hluta eftir fjármagnsliði var neikvæð um 580 millj.kr. og rekstrarafkoma A og B neikvæð um 751 millj.kr. ...

Sjö óku undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-39 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi....

Heimildarmynd um David Suzuki sýnd á RIFF

Heimildarmyndin The David Suzuki Movie verður sýnd á RIFF 2011. Myndin er samantekt á ævi og hugmyndum kanadíska vísindamannsins og umhverfissinnans David Suzuki og er henni leikstýrt af Vestur-Íslendingnum Sturlu Gunnarssyni. Báðir sækja þeir RIFF heim í tilefni af sýningu myndarinnar....

Fræðsluskilti afhjúpuð í Gálgahrauni í Garðabæ

Fræðsluskilti sem sýna áhugaverðar gönguleiðir og helstu staði í Gálgahrauni í Garðabæ voru afhjúpuð á dögunum. Á skiltunum eru kort sem sína fornar leiðir sem lágu um hraunið í lituðum línum og örnefni, ásamt texta um sögu svæðisins. Texti skiltanna er eftir Jónatan Garðason. ...

211 dagmömmur starfandi í Reykjavík - ekki verið fleiri síðan 2002

211 dagforeldrar (dagmömmur) eru nú að störfum í Reykjavík og hafa ekki verið fleiri síðan árið 2002. Á árinu 2010 voru að jafnaði 180 dagforeldrar að störfum í borginni, en hefur nú fjölgað um þrjátíu. Engu að síður skortir dagforeldra í einu borgarhverfi, Vesturbæ, þar sem minnst nýliðun hefur verið. Þá eru biðlistar hjá dagforeldrum í Laugardal og Háaleiti, enda þótt dagforeldrum þar hafi fjölgað um átta. Í öllum öðrum hverfum eru laus pláss hjá dagforeldrum, ...

Eldfjall verður sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík

Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, verður sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í september næstkomandi. Eldfjall er fyrsta íslenska myndin sem valin er til keppni á RIFF. Hún keppir við ellefu aðrar kvikmyndir í flokknum Vitranir (e. New Visions).Með sýningu myndarinnar er brotið blað í sögu RIFF því aldrei áður hefur íslensk mynd verið valin í aðalkeppnisflokk hátíðarinnar, Vitranir, en í þann flokk koma aðeins til greina myndir sem eru fyrsta eða annað verk höfundar....

Forseti Litháens heimsótti Höfða

Forseti Litháens, dr. Dalia Grybauskaitë, sem er í opinberri heimsókn hér á land i, heimsótti Höfða í morgun. Tilefnið var að í dag eru liðnir nákvæmlega tveir áratugir frá því að utanríkisráðherrar Íslands og Litháen staðfestu með undirritun að Íslendingar viðurkenndu fullt og óskorað sjálfstæði Litháa og annarra Eystrasaltsþjóða. Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, buðu til athafnarinnar....

Snákur og kanabisplöntur í húsi í Hafnarfirði

Snákur var haldlagður í húsi í Hafnarfirði í gær en dýrið var síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir. Í húsnæðinu var jafnframt að finna kannabisræktun en lagt var hald á nokkra tugi kannabisplantna, auk græðlinga. Lögregla tók einnig í sína vörslu kannabisefni sem fundust á fleiri stöðum í húsinu, sem og ýmsan búnað sem tengdist kannabisræktuninni....

Einar Clausen hlaut umhverfisviðurkenningu umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogsbæjar

Einar Clausen söngvari hlaut í gær umhverfisviðurkenningu umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogsbæjar fyrir að nota hjólreiðar sem aðalsamgöngumáta sinn síðastliðin fimmtán ár. Einar hjólar um fimm þúsund kílómetra á ári eða um 13 kílómetra á dag að jafnaði. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í anddyri Salarins og gerði Einar sér lítið fyrir og söng tvö lög við athöfnina við undirleik vinar síns Jónasar Þóris píanóleikara....

Drekafluga á sveimi í húsagarði við Kambsveg

Á dögunum bárust starfsfólki Náttúrufræðistofunnar Kópavogs fregnir af drekaflugu á sveimi í húsagarði við Kambsveg í Reykjavík, skammt frá Sundahöfn. Drekaflugan náðist ekki en heimilisfólkið náði ágætum ljósmyndum af henni. Ekki var hægt að greina hana til tegundar af ljósmyndunum en af þeim má ráða að um 10 cm langt dýr var að ræða....

Staðgengill borgarstjóra hættir

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag beiðni Regínu Ásvaldsdóttur, skrifstofustjóra og staðgengils borgarstjóra, um lausn úr starfi. Hún hefur gegnt starfi skrifstofustjóra borgarstjóra frá byrjun árs 2008. Hún hefur ennfremur starfað sem sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs borgarinnar og gegnt framkvæmdastjórastöðu í Miðgarði, fjölskylduþjónustu í Grafarvogi....

Bæjarhátíð Mosfellsbæjar hefst í dag

Í túninu heima, bæjarhátíð Mosfellsbæjar, hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin. Meðal nýjunga á hátíðinni í ár eru litboltavöllur og lazer-tag auk þess sem stefnt er á að setja íslandsmet í planki á setningarhátíðinni á Miðbæjartorgi föstudagskvöld. Þá er í fyrsta sinn í ár boðið upp á aðstöðu fyrir tjöld, hjólhýsi og húsbíla því nýtt tjaldstæði hefur verið tekið í notkun við Varmárskóla. Ókeypis aðgangur verður að tjaldstæðinu á bæjarhátíðinni....

Ljósin í glerhjúp Hörpu - myndskeið

Mörgum hefur verið tíðrætt um ljósin í glerhjúp Hörpunnar og sitt sýnist hverjum. Húsið var formlega vígt á menningarnótt sl. laugardag og ljósin þá tendruð í fyrsta skipti. Glerhjúpurinn er sköpunarverk Ólafs Elíassonar listamanns og hans fólks, sem kunnugt er. Tónlistin sem fylgir myndskeiðinu er Meditation, fiðlutónarnir sem spilaðir eru milli atriða í öðrum þætti óperunnar Thaïs eftir Jules Massenet. ...

Hamborgarar innkallaðir

Kjöthöllin hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað af markaði hamborgara sem framleiddir voru af fyrirtækinu og innihéldu sojaprótein án þess að upplýst væri um það í merkingum vörunnar. Soja og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla....

GR vann alla stóru titlana í golfi nema einn

Félagar úr Golfklúbbi Reykjavíkur hafa heldur betur verið að gera það gott í golfinu í sumar. Þeir hafa unnið alla stóru titlana sem í boði hafa verið, fyrir utan einn. Um helgina bættust við tveir Íslandsmeistaratitlar í safn GR-inga þegar Arnór Ingi Finnbjörnsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir urðu Íslandsmeistarar í holukeppni á Hellu....

Kútter Westward Ho siglir til Íslands 2012

Á föstudaginn var undirritaður samningur milli Faxaflóahafna sf. og Þórshafnar í Færeyjum um að kútterinn Westward Ho sigli til hafna Faxaflóahafna sf. árið 2012 og síðan á þriggja ára fresti eftir það. Kútter Westward Ho var byggður árið 1884. Hann er í eigu Þórshafnar en rekinn af félagasamtökunum Sluppvinir....

Lögregla hafði í nógu að snúast í Reykjavík, en engin stór áföll

Lögreglan hafði mikinn viðbúnað í Reykjavík á menningarnótt og að venju hafði hún í nógu að snúast. Útköllum fjölgaði eftir því sem á leið á nóttina og voru þau ekki bara bundin við miðborgina. T.d. var talsvert kvartað undan hávaða frá gleðskap í heimahúsum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt en þær eru flestar, ef ekki allar, minniháttar. Einhverjir fengu að gista í fangageymslunni við Hverfisgötu en þar hefur oft verið fjölmennara....

Yfir hundrað þúsund manns í miðbænum á menningarnótt

Reikna má með að um og yfir hundrað þúsund manns hafi lagt leið sína í miðborgina í gærkvöld til að fylgjast með viðburðum á menningarnótt. Lögregla segir að vel hafi tekist til þrátt fyrir ölvun og líkamsárásir, en engin þeirra alvarleg. Veðrið í gær var fullkomið, hiti um 15 gráður, logn og léttskýjað. Um 80.000 farþegar tóku strætó á Menningarnótt í fyrra og má búast við að þeir hafi verið fleiri í ár....

140 sundkappar syntu út í Viðey - myndir

Sjósunds og sjóbaðsfélag Reykjavíkur, SJÓR, var með hina árlegu sundferð fram og til baka til Viðeyjar í gær, föstudag. Veður var mjög gott og sjór tiltölulega hlýr og sléttur. Alls voru um 140 sundkappar sem þreyttu sundið aðra eða báðar leiðir. Myndir eru komnar í Myndaalbúmið hjá SJÓR og hægt að sjá myndirnar HÉR....

Þúsundir barna tóku þátt í Latabæjarhlaupinu

Mikill fjöldi barna og foreldrar tóku þátt í Latabæjarhlaupinu í rjómablíðu miðborg Reykjavíkur í dag. Hlaupið var ætlað börnum 8 ára og yngri. Í gær höfðu rúmlega 3.200 börn skráð sig til þátttöku en einnig var hægt að skrá börnin í Hljómskálagarðinum í dag og var nokkur fjöldi sem nýtti sér það. Í fyrra hlupu rúmlega 3.000 börn þannig að enn eitt metið er fallið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þetta árið. ...

Met þátttaka í Reykjavíkurmaraþoni - 12.213 skráðir til leiks

Tæplega þrjú þúsund hlauparar voru ræstir út við útibú Íslandsbanka við Lækjargötu klukkan 8:40 í morgun þegar maraþonið, hálfmaraþonið og boðhlaupið hófst. Blíðskaparveður er í miðborginni og myndaðist mikil stemming meðal þátttakenda og áhorfenda þegar hlaupið hófst. Metþátttaka er í hlaupinu í ár en 12.213 hlauparar eru skráðir til leiks. Tæplega 1.400 erlendir hlauparar taka þátt í hlaupinu í ár og hafa þeir aldrei verið fleiri....

Golf: Ólafur Björn einu höggi frá því að komast áfram!

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á Wyndham Championship PGA-mótinu sem fram fer í Greensboro, Norður-Karólínu. Ólafur lék fyrsta hringinn í gær á 68 höggum, eða 2 höggum undir pari vallar. Annan hringinn í kvöld lék hann á 70 höggum, eða pari vallar - fékk einn fugl og einn skolla og hinar holurnar lék hann á pari....

Vígsla Hörpu

Vígsla Hörpu verður á morgun, laugardag. Fjölbreytt dagskrá verður í húsinu frá kl. 13 - 23. Glerhjúpurinn verður tendraður. Vígslutónleikar við vegginn. Kínverskir loftfimleikamenn. Ýmsir viðburðir menningarnætur. Opnun jazzhátíðar og margt fleira. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður á tvenna tónleika á vígsludegi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir....

Friðarsúlan í Viðey tendruð til að minnast þeirra er létust í hryðjuverkaárásunum í Noregi

Friðarsúlan Imagine Peace Tower í Viðey verður tendruð næstkomandi sunnudagskvöld. Tilefnið er að stjórnvöld í Noregi hafa ákveðið að sunnudagurinn 21. ágúst skuli tileinkaður minningu þeirra er létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og á Úteyju þann 22. júlí síðastliðinn. Reykjavíkurborg vill með þessu móti senda innilegar samúðarkveðjur til Norðmanna og minnast þeirra sem létust í árásunum....

Arion banki við Hlemm verður "tape-aður"

Arion banki, Apear Collective og Urban Utd. munu standa fyrir óvenjulegri uppákomu á Menningarnótt í Reykjavík fyrir utan útibú Arion banka við Hlemm. Þar mun listahópurinn Apear Collective umturna svæðinu með hjálp límbands. Um 20 listamenn munu taka þátt í verkefninu en Apear Collective er hópur fjöllistamanna sem koma víða að. Meðan á gjörningnum stendur munu plötusnúðar spila og börn fá blöðrur frá bankanum....

63 vopnuð verkefni hjá sérsveitinni árið 2010 – flest útköll í miðbæ Reykjavíkur

Árið 2010 var heildarfjöldi verkefna hjá sérsveit Ríkislögreglustjóra alls 4.207. Af þessum verkefnum voru almenn lögregluverkefni 3.079 og umferðarverkefni 607. Þetta kemur fram í ársskýrslu ríkislögreglustjóra sem nýlega kom út. Sérsveitin á að takast á við vopnuð lögreglustörf og öryggismál þegar þörf krefur hvar sem er á landinum og innan efnahagslögsögu Íslands. Starfsemi sveitarinnar skiptist í almenn lögreglustörf, sérverkefni og þjálfun en um 75% af vinnutíma sveitarinnar fer í lögregluverkefni og um 25% eða minna í ...

Endur-skoðendur endurvekja Óðinstorg sem markaðstorg

Endur-skoðendur borgarinnar er hópur sem vinnur að því að lífga upp á Óðinstorg í Reykjavík í sumar. Bílastæðum er lokað á laugardögum og eru þá eru haldnir alls kyns markaðir. Grunnhugmyndin að verkefninu var að endurvekja Óðinstorg sem markaðstorg. "Með þráðum er spunnið net sem rammar inn svæðið með mismunandi útfærslum og vísar þannig til fyrri tíma. Þræðirnir mynda skemmtilegt sjónarspil á torginu. Sem dæmi má strengja fantað, texta eða myndir allt eftir þema markaðsins hverju sinni. Þræðirnir eru sýnilegur frá ...

Grasagarðurinn í Reykjavík 50 ára – boðið upp á fræðslugöngu

Grasagarður Reykjavíkur fagnar í ár 50 ára starfsafmæli en garðurinn var stofnaður 18. ágúst 1961. Garðurinn hefur þróast mikið á þeirri hálfu öld sem liðin er frá stofnun hans. Á vefsíðu Reykjavíkurborgar kemur fram að í tilefni afmælisins verður boðið upp á fræðslugöngu um Grasagarðinn fimmtudaginn 11. ágúst kl. 20. Þáttaka er ókeypis og eftir gönguna verður boðið upp á piparmyntute.Í göngunni verður farið yfir skipulag garðsins og fyrirhuguð stækkun hans verður kynnt. Hönnuður nýja trjásafnsins, Margrét Sigurðardóttir, landslagsarkitekt ...

Útsvar og fasteignagjöld í borginni hækka ekki – þriggja ára fjárhagsáætlun lögð fram

Jón Gnarr borgarstjóri hefur lagt fram frumvarp að þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar fyrir árin 2012-2014. Í áætluninni er ekki gert ráð fyrir hækkun útsvars og fasteignagjalda. Frumvarpið byggir á endurskoðaðri fjárhagsáætlun A-hluta fyrir árið 2011 og endurskoðaðri áætlun Orkuveitu Reykjavíkur. Við gerð þess er í öllum aðalatriðum fylgt sömu aðferðafræði og viðhöfð hefur verið við tvær síðustu þriggja ára áætlanir að því er fram kemur í áætluninni. Meirihlutinn í Ráðhúsi Reykjavíkur hefur verið mikið gagnrýndur fyrir...

Björgunarskip dregur vélarvana bát heim í höfn

Landhelgisgæslan kallaði Björgunarsveit Hafnarfjarðar út rétt fyrir hádegi í gær, eftir að báturinn Teista óskaði eftir aðstoð eftir að hafa misst skrúfuna, en hann var þá staddur 17,2 sjómílur NV af Garðskaga. Einn maður var um borð í bátnum og amaði ekkert að honum. Fór björgunarskipið Einar Sigurjónsson úr Hafnarfirði til aðstoðar og um þremur klst. eftir útkallið, var ES kominn að Teistu og tók hana í tog. Báturinn var dreginn til hafnar ...

Breski leikstjórinn James Marsh verður á meðal gesta á RIFF 2011

Meðal gesta á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð, sem stendur yfir dagana 22. september til 2. október í Reykjavík í lok september, verður breski leikstjórinn James Marsh. Verður af því tilefni sérstakur flokkur helgaður honum og myndum hans á hátíðinni í ár. Meðal myndanna sem sýndar verða er hin margfræga heimildamynd Man On Wire frá 2008....

80 ökumenn í hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu

Tæplega áttatíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í grófustu brotunum var ekið á 50-60 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Í tveimur tilvikum var reyndar um enn svívirðilegri brot að ræða en á föstudagskvöld mældust tvö bifhjól á 180 km hraða á Vesturlandsvegi á móts við Höfðabakka. Meirihluti hinna brotlegu voru karlar en þeir eru flestir á þrítugs- og fertugsaldri. Tuttugu konur voru stöðvaðar í þessu hraðaeftirliti en þær eru á aldrinum 18-58 ára....

Samkomulag um þjónustukjarna og 100 nýjar íbúðir fyrir aldraða í Reykjavík

Hrafnista mun reisa þjónustukjarna og 100 þjónustu- og öryggisíbúðir fyrir aldraða við Sléttuveg þar sem boðið verður upp á alhliða þjónustu við aldraða. Reykjavíkurborg mun leigja þjónustukjarnann undir þjónustu borgarinnar við aldraða auk þess sem Reykjavíkurborg mun hafa til ráðstöfunar 20 þjónustuíbúðir sem leigðar verða út á vegum Velferðarsviðs borgarinnar. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, fyrir hönd Hrafnistu undirrituðu þjónustusamning ...

Kertafleytingar til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nakasaki

Í kvöld klukkan 22:30 mun fólk safnast saman við tjörnina í Reykjavík og fleyta kertum í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nakasaki. Á Akureyri verður kertafleyting fimmtudagskvöldið 11. ágúst. kl. 22:30 við Minjasafnstjörnina. Kertum hefur verið fleytt á Akureyri frá 1998. Ávarpið að þessu sinni flytur Áki Sebastian Frostason. Þetta er í tuttugasta og sjöunda skipti sem kertum er fleytt á Tjörninni í Reykjavík til að undirstrika kröfuna um frið. Um er að ræða hefð sem er uppruninn í Japan, en ...

Skólavörðurstígur áfram lokaður fyrir bílum – almenn ánægja meðal rekstraraðila

Ákveðið hefur verið að Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis verði göngugata til mánudagsins 15. ágúst. Borgaryfirvöld koma með þessu til móts við beiðni rekstraraðila við götuna sem óskuðu sérstaklega eftir því að áfram yrði lokað fyrir bílaumferð til þess að greiða fyrir aðgengi gangandi og hjólandi og til að efla mannlíf. Leyfi var veitt fyrir götuhátíð við Skólavörðustíg 2.- 7. ágúst og fól það í sér lokun neðsta hluta götunnar. Í bréfi frá þar sem óskað er eftir framlengingu kemur fram að almenn ánægja sé meðal rekstraraðila...

Ragnar ráðinn sviðsstjóri Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar

Borgarráð hefur samþykkt að ráða Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóra nýs Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Starfið var auglýst laust til umsóknar þann 24. júní sl. og bárust 15 umsóknir. Gert er ráð fyrir að Ragnar taki til starfa 1. september nk....

Golfboltar á "sport price"

Þrír ungir drengir úr Grafarvogi hafa verið að gera það gott í sölu á golfboltum að undanförnu. Þeir selja bolta sem þeir hafa fundið í kringum golfvöllinn að Korpúlfsstöðum. Þeir hreinsa boltana og gera þá fína og bjóða þá síðan til sölu á góðu verði við 7. teig á Korpunni. Þeir segja söluna hafa gengið vel og þegar blaðamaður Tímans átti leið um völlinn í gær höfðu þeir selt bolta fyrir um 10 þúsund krónur þann daginn....

Sól, sandur og strönd í Nauthólsvík

Veðrið hefur lekið við landsmenn síðustu tvo daga og gert er ráð fyrir góðu veðri fram eftir vikunni. Í gær voru þúsundir manna sem lögðu leið sína á Ylströndina í Nauthólsvík, enda fór hitinn um og yfir 20 stig víða á sunnanverðu landinu. Heitast var á Þingvöllum þar sem hiti fór í 22 stig. "Það er eins og maður sé komin til útlanda þegar maður er á Ylströndinni í góðu veðri," sagði einn viðmælenda Tímans....

Snekkjan Dardanella í Reykjavíkurhöfn

Þeir sem hafa lagt leið sína niður á Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn síðustu daga hafa væntanlega tekið eftir snekkju sem þar hefur legið við bryggju. Þetta er snekkjan Dardanella og er hún smíðuð í Hollandi, er 36 metra löng og smíðuð úr áli. Snekkjan heldur til Grænlands í dag, sunnudag. Þetta er þriðja "auðmannssnekkjan" sem heimsækir Reykjavík á þessu sumri....

Gleðigangan 2011 – myndir í öllum regnbogans litum

Það fór varla fram hjá mörgum að í gær fór fram í ellefta sinn Gleðigangan í Reykjavík. Á síðasta ári voru 70 til 80 þúsund manns í miðbænum á meðan gangan stóð yfir og ekki voru færri í gær. Göturnar voru fullar af fólki sem dillaði sér við tónlist, horfði á vagnanna og skemmti sér með fjölskyldu og vinum. Vagnar göngunnar voru jafn fjölbreyttir og þeir voru margir, allt frá súludansi til Egyptalands til forna. Síðastur fór vörubíll þakinn gylltum pallíettum og var það vagn Páls Óskars sem fékk gesti til að klappa, dansa og syngja ...

Styrkveitingar úr Menningarnæturpotti Landsbankans

Á hverju ári streyma inn til Reykjavíkurborgar skemmtilegar hugmyndir frá hugmyndasmiðum sem vilja setja svip sinn á fjölmennustu hátíð landsins - Menningarnótt 20. ágúst. Reykjavíkurborg reynir að greiða götur sem flestra og styrkir fjölda viðburða bæði með fjárframlögum sem og annarri aðstoð svo að hugmyndir þeirra líti dagsins ljós á hátíðinni....

Listasafn ASÍ 50 ára

Í tilefni af fimmtíu ára afmæli Listasafns ASÍ verður í dag, á laugardag, opnuð sýningin „Fimmtíu góðæri“ þar sem verður að finna úrval verka úr safneigninni eftir 65 listamenn. Sýningin stendur frá 6. ágúst til 11. september. Sýningastjórar eru Kristín Guðnadóttir forstöðumaður safnsins og Steinunn Helgadóttir. Aðgangur er ókeypis....

Hinsegin dagar haldnir í þrettánda sinn

Hinsegin dagar í Reykjavík eru nú haldnir í þrettánda sinn. Það sem eitt sinn var lítil eins dags hátíð, sem fimmtán hundruð gestir sóttu, hefur vaxið og dafnað með hverju ári og er núna litrík fjögurra daga hátíð sem 80–90 þúsund manns sækja. Hátíðin hefur ekki eingöngu verið hinsegin fólki ávinningur í baráttu þess. Hinsegin dagar eru einn litríkasti þátturinn í menningarlífi Reykvíkinga og njóta meiri vinsælda en flestir aðrir viðburðir á Íslandi....

Gítareinvígi, innsetningar og blue grass tónlist á Hlemmi í ágúst

Fólk sem á leið sína um Hlemm næstu daga mun upplifa óvenjulega stemningu þar því hópur listamanna ætlar að dvelja á svæðinu í ágúst og setja upp innsetningar. Verkefnið ber heitið Hittumst á Hlemmi og fyrir því stendur Urban Utd ásam Reykjavíkurborg. Hópurinn ætlar sér að lífga upp á Hlemmsvæðið með tilraunainnsetningum og viðburðum. Einnig gefst þjónustuaðilum tækifæri til að bjóða fram þjónustu sína. Segir í tilkynningu að efniviðurinn sé "allt það sem Hlemmsvæðið hefur upp á að ...

Borgarstjóri færir norska sendiráðinu minningabækur með 3.000 nöfnum

Jón Gnarr, borgarstjóri, afhenti í dag Silje Arnekleiv, staðgengli Dag Wernø Holter sendiherra Noregs, minningabækur sem legið hafa frammi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Alls höfðu rúmlega 3.000 manns skráð nöfn sín í minningabækurnar til þess að votta Norðmönnum hluttekningu vegna voðaverkanna í Osló og Útey þann 22. júlí sl. ...

Húsfreyjan strokkar og vinnukonan þeytir rokkinn - velkomin til fortíðar

Næstkomandi sunnudag verður sveitasælan í algleymingi á Árbæjarsafni að því er fram kemur á vefsíðu safnsins. Í hugum margra hafa gömlu sveitastörfin yfir sér rómantískan blæ en til að fæða og klæða fólk þurfti mörg handtök. Hér áður fyrr var það hverri konu mikilvægt að kunna að koma mjólk í mat og ull í fat. Í eldhúsinu mun húsfreyjan gera upp skyr og strokka smjör og á baðstofuloftinu mun vinnukonan þeyta rokkinn og teygja lopann. Í eldsmiðjunni verður eldsmiður að störfum. Safnir minnir svo á mjaltir kl. 16:30 og að ...

Hús Náttúrufræðistofnunar fékk viðurkenningu frá Garðabæ

Náttúrufræðistofnun og Urriðaholt ehf. hlutu á dögunum viðurkenningu bæjarstjórnar Garðabæjar fyrir smekklega og vel hirta lóð atvinnuhúsnæðis. Náttúrufræðistofnun Íslands fékk viðurkenningu í flokki fyrirtækja. Í umsögn umhverfisnefndar Garðabæjar segir m.a. að eigendur húss Náttúrufræðistofnunar eigi hrós skilið fyrir smekklegan frágang lóðar og umhverfis hússins á Urriðaholti....

Góð bleikjuveiði í Kleifarvatni og Þingvallavatni

Veiðimaðurinn Halldór Gunnarsson skellti sér í Kleifarvatnið sl. mánudag og fékk mjög fallegar bleikjur á Peacock púpu með kúluhaus. Bleikjurnar voru allt upp í 5 pund (2,4 kg). Í Þingvallavatni er mikil bleikja þessa dagana og einnig hafa menn verið að fá fína veiði í Úlfljótsvatni....

Umferð við Reykjavík heldur áfram að dragast saman

Það sem af er sumri er helgarumferð á hringveginum í kringum höfuðborgarsvæðið 6,7% minni en meðaltal undanfarinna ára og helgarumferðin um verslunarmannahelgina var langt undir meðaltalsumferð verslunarmannahelga áranna 2008 til 2010). Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni. Ástæðurnar fyrir þessum samdrætti í umferð gætu verið nokkrar. Hátt eldsneytisverð er möguleg ástæða en einnig var mikið um að vera á höfuðborgarsvæðinu og því þurfti fólk ekki að fara út á land til að ...

Lockerbie og Moses Hightower spila rafmagnslaust á Norðurpólnum

Fimmtudaginn 4.ágúst er komið að sjöttu tónleikunum af níu í "Rafmagnslaust á Norðurpólnum" en nú koma fram hljómsveitirnar Lockerbie og Moses Hightower. Hljómsveitin Lockerbie er nýkomin úr hringferð um landið þar sem þeir spiluðu með Of Monsters and Men og Agent Fresco og eru á fullu við að kynna plötuna sína, Ólgusjór, sem kom út á dögunum undir merkjum Record Records. Lockerbie spilar melódískt síðrokk og eru allir textar á íslensku. Moses Hightower var stofnuð árið 2007 en í fyrra gaf hljómsveitin út sína ...

Sagan endalausa sýnd í Laugardalshöllinni í sundlaugarbíói RIFF 2011

Meðal sérviðburða sem Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík býður árlega upp á er sundbíóið, en þá er þekkt kvikmynd sýnd í innanhússlaug, fullri af bíógestum á baðfötunum. Í ár verður það ævintýramyndin Sagan endalausa (The Neverending Story) sem sýnd verður í Sundbíóinu. Myndin segir frá Bastían Balthasar Búx, sem á ekki sjö dagana sæla þar sem skólabullur hrella hann án afláts. Dag einn tekst honum að flýja kvalara sína inn í bókabúð og í framhaldinu kemst hann yfir bók eina veglega, sem inniheldur að sögn Söguna ...

Gjöf til gjörgæsludeildar í Fossvogi til minningar um Sturlu Þór

Kristín Dýrfjörð og Friðrik Þór Guðmundsson, foreldrar Sturlu Þórs Friðrikssonar sem lést eftir flugslys í Skerjafirði árið 2000, hafa fært gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi að gjöf sjónvarp, DVD tæki og nokkra mynddiska til minningar um hann. "Við lok verslunarmannahelgar fyrir 11 árum urðu nokkur alvarleg slys þar sem fjöldi ungs fólks á leið heim af útihátíðum slasaðist og sumt af því lét lífið. Eitt þessara ungmenna var sonur okkar, Sturla Þór Friðriksson, sem var á leið heim með vini sínum, Jóni Berki Jónssyni, í flugi frá Vestmannaeyjum. ...

Stjórnlagaráð afhendir frumvarp að nýrri stjórnarskrá

Stjórnlagaráð afhenti forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttir, frumvarp að nýrri stjórnarskrá í Iðnó við hátíðlega athöfn í dag. Áður en frumvarpið var afhent lét hver ráðsfulltrúi í ljós viðhorf sitt til mikilvægis frumvarpsins með einni setningu. Salvör Nordal afhenti það svo með orðunum: "Valddreifing, gegnsæi og ábyrgð" en þessi hugtök hafði Stjórnlagaráð að leiðarljósi í vinnu sinni. Öll vinna ráðsins var aðgengileg á netinu og gat almenningu gert athugasemdir við drögin að nýrri stjórnarskrá á meðan þau voru í ...

Námsmenn vinna að stuttmynd um hús í grjótaþorpinu í Reykjavík

Hvernig hefur grjótaþorpið í Reykjavík breyst í gegnum árin? Hvernig var að vera fluga á vegg á íslensku heimili árið 1920? Þessum spurningum reyna fjórir námsmenn að svara í sumar en þau eru að búa til stuttmyndina Hákot og var verkefnið styrkt af Evrópu unga fólksins. Bryndís Hreiðarsdóttir heitir ein þeirra sem vinnur að myndinni og hún segir þetta allt hafa byrjað þegar hún var að ræða við vinkonu sína um fortíð húsa og húshafa. Til varð hugmynd að verkefni þar sem áhorfandinn fær að vera eins og fluga á vegg í ...

Lengri tími fyrir gangandi á Laugavegi

Verslunarmenn eru ánægðir með „vel heppnaða útfærslu á göngugötu á Laugavegi frá Vatnsstíg að Skólavörðustíg“ og hafa óskað eftir því við borgarráð að tíminn verði lengdur til 7. ágúst. Borgarráð ákvað á fundi sínum í gær, 28. júlí, að verða við þessari beiðni. Jafnfram veitti borgarráð leyfi fyrir götuhátíð á Skólavörðustíg 2. – 7. ágúst, en sú hátíð felur í sér lokun götunnar frá Bergstaðastræti að Bankastræti....

Er samráð eða samkeppni hjá íslensku olíufélögunum?

Það virðist ekki mikil verðsamkeppni hjá íslensku olíufélögunum fyrir mestu ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgina, sem nú er að ganga í garð. Ekki munar nema 70 aurum (0,7krónum) á hæsta og lægsta verði. Orkan gefur sig út fyrir að vera alltaf með lægsta verðið og nú er bensínlítrinn þar á 242,40 krónur. Hæsta verðið er hins vegar hjá Olís, 242,70 krónur á lítrann....

Ögmundur vill að nýtt fangelsi verði á Hólmsheiði

Fangelsismál hafa verið mikið í umræðunni undanfarið og í yfirlýsingu frá 26. júlí síðastliðnum segist ríkisstjórnin ætla að taka ákvörðun um framtíðarhúsnæði nýs fangelsis fyrir lok ágústmánaðar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði við Tîmann að hann vilji að nýtt fangelsi verði reist á Hólmsheiði en margar hugmyndir hafa verið viðraðar um staðsetningu á nýju fangelsi. Bygging nýs fangelsis var komin á mikið skrið á síðasta ári og stóðu þá vonir til að bygging gæti hafist haustið 2010 en ekkert varð úr því. Í október á síðasta ári kom ...

Sundlist eða listsund?

Þeir sem heimsótt hafa sundlaugina í Ásgarði í Garðabæ í þessari viku hafa mögulega brugðið í brún en á bökkum sundlaugarinnar er málverk í stöðugri vinnslu. Um er að ræða skemmtilegt samstarfsverkefni Garðabæjar og listamannsins Birgis Rafns Friðrikssonar. Vinna við verkin hófst mánudaginn 25. júlí sl. en þá stóð Birgir fyrir framan auðan flöt 150 x 300 cm og hófst handa. Sundlaugargestum gefst kostur á að fylgjast með verkinu í þróun á næstu vikum en áætluð verklok eru undir lok ágúst....

Drottningarsnekkjan Dannebrog í heimsókn í Reykjavík

Danska Drottningarsnekkjan Dannebrog er nú í stuttri heimsókn á Íslandi og liggur nú í Reykjavíkurhöfn. Skipið hefur hér skamma viðdvöl á leið yfir hafið og heldur áfram ferð sinni á sunnudag. Dannebrog er snekkja Margrétar Þórhildar Danadrottningar og hýsir oft dönsku konungshjónin í heimsóknum þeirra. Enginn úr konungsfjölskyldunni er um borð í snekkjunni hér. ...

Stjórnlagaráð vill persónukjör í þingkosningum – leggur til nýtt kosningakerfi

Þingmenn verða kosnir persónukjöri þar sem heimilt er að kjósa þvert á lista og þvert á kjördæmi nái tillögur Stjórnlagaráðs í frumvarpi að nýrri stjórnarskrá fram að ganga. Eru tillögurnar millivegur milli persónukjörs og flokkakjörs. "Kjósandi velur með persónukjöri frambjóðendur af listum í sínu kjördæmi eða af landslistanum, eða hvort tveggja" segir í frumvarpi Stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá. Landslisti er þá framboð fyrir allt landið og kjördæmalisti er framboð sem einungis er í einu kjördæmi...

Skapandi sumarhópar unnu langt umfram vinnuskyldu

Í dag halda skapandi sumarhópar Garðabæjar lokahátíð sína og fer hún fram á Garðatorgi frá klukkan 16 til 19. Fram kemur á vef Garðarbæjar aðvinna hópanna hafi verið ólík vinnu annarra vinnuhópa að því leyti að hluti vinnutímans, þrír tímar á dag, var frjáls, og máttu ungmennin skila þeim stundum þegar þeim hentaði og vinna þar sem þeir höfðu aðstöðu. Hver hópur þurfti síðan að skýrslu til flokkstjóra vikulega með nákvæmri útlistun á því hvernig, hvar og hvenær tímanum var eytt. Krakkarnir nýttu tímann vel og unnu ...

Gæsluvarðhald framlengt vegna hnífsstungu á Monte Carlo – fórnarlamb látið

Karl um fertugt var í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann unir niðurstöðunni að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Maðurinn var handtekinn á veitingahúsinu Monte Carlo við Laugarveg fyrir hálfum mánuði en þangað var lögreglan kölluð vegna líkamsárásar. Sá sem fyrir henni varð, karl á fimmtugsaldri, hlaut lífshættulega áverka og lést af þeirra völdum fyrr í vikunni. Margeir Margeirsson, eigandi ...

Unglingar kenna öldungum á tölvu

Mikill áhugi hefur verið hjá eldri borgurum á Seltjarnarnesi að sækja tölvunámskeið bæjarins í sumar. Unglingar í Vinnuskóla Seltjarnarness hafa leiðbeint og kennt á hin ýmsu kerfi s.s. word, excel, facebook, youtub og margt fleira. Þátttakendur hafa lýst yfir mikilli ánægju með þessi námskeið og krakkana sem hafa séð um að kenna þeim. Fleiri bæjarfélög mættu taka þetta framtak Seltjarnarness sér til fyrirmyndar....

Stjórnlagaráð lýkur störfum - frumvarp um nýja stjórnarskrá tilbúið

Stjórnlagaráð samþykkti rétt í þessu með öllum atkvæðum frumvarp sem inniheldur drög að nýrri stjórnarskrá og lýkur þar með vinnu ráðsins. Drögin, eða frumvarp til stjórnskipunarlaga, verður afhent forseta Alþingis næstkomandi föstudag, þann 29. júlí í Iðnó. Í frumvarpinu eru margar nýjungar, flest er ólíkt núverandi stjórnarskrá og verð frumvarpið að veruleika mun það breyta ansi miklu. "Það er ljúka núna ævintýraför. Þetta hefur verið krefjandi og skemmtilegt. Það hafa gerst undur og kraftaverk hér í þessu húsi undanfarnar vikur" ...

Nýtt þorp reis á Seltjarnarnesi í sumar

Fimmtudaginn 22. júni var uppskeruhátíð hjá krökkunum á smíðavellinum við Valhúsaskóla á Seltjarnarnes en þar hefur risið nýtt þorp í sumar smíðað og hannað með þarfir yngri íbúa bæjarins í huga. Krakkarnir sýndu foreldrum sínum byggingar sínar sem þau eru búin að vera að smíða í sumar. Leiðbeinendur grilluðu pylsur fyrir hina ungu smiði og gesti þeirra en ásamt foreldum litu íbúðar í nágrenninu við og sýndu byggingum krakkanna mikinn áhuga að því er fram kemur á vefsíðu Seltjarnarnesbæjar. Meðlimir sumarlistahópsins...

Tvístefna í Tryggvagötu í tilraunaskyni

Tryggvagötu milli Lækjargötu og Pósthússtrætis í Reykjavík verður í fyrramálið breytt í tvístefnugötu til að liðka fyrir flæði umferðar í miðborginni frá austri til vesturs. Breytingin er gerð í tilraunaskyni til eins árs og standi síðar vilji til að festa breytinguna í sessi þarf að endurskoða deiliskipulag svæðisins með það í huga, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar....

Mosfellsbær - vitni óskast

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manni, sem að því er virðist, kom í veg fyrir líkamsárás í Mosfellsbæ aðfaranótt laugardagsins 16. júlí sl. Málsatvik eru þau að umrædda nótt, á tímabilinu frá kl. 1-2, voru tveir menn staddir við bensínstöð N1 í Háholti. Annar þeirra var vopnaður barefli og hugðist berja hinn. Af því varð ekki en talið er að þriðji maðurinn, sem átt þar leið hjá, hafi komið í veg fyrir líkamsárás með því að skerast í leikinn....

"Stöndum saman með öllum þeim sem eiga um sárt að binda í dag"

"Stöndum saman með vinum okkar og frændum. Stöndum saman með þeim sem lentu í þessari hryllilegu árás. Stöndum saman með öllum þeim sem eiga um sárt að binda í dag. Í dag erum við öll Norðmenn." Svo mælti Guðrún Jóna Jónsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna fyrir utan Iðnó við tjörnina í Reykjavík í dag en þar safnaðist fólk saman til að sýna norsku þjóðinni samhug og minnast fórnarlamba hryðjuverkaárásanna í Osló sem tekið hafa líf fyrir 100 manns. Það ...

Minningarbók áfram opin í Ráðhúsinu

Mikill fjöldi mætti við Reykjavíkurtjörn nú undir kvöld til að sýna Norðmönnum samstöðu. Ráðhús Reykjavíkur var opið og þar lá frammi minningarbók fyrir þá sem vildu votta Norðmönnum hluttekningu vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað í Osló. Minningarbókin mun liggja frammi í ráðhúsinu í viku, en verður þá færð norska sendiráðinu. ...

Mozart á Gljúfrasteini og fjórar hendur á flyglinum

Tónar Mozart munu hljóma um hús Halldórs Laxness á Gljúfrasteini á morgun en þá munu Anna Guðný Guðmundsdóttir og Snorri Sigfús Birgisson koma fram og leika fjórhent á píanó. Þau munu flytja sónötu í C-dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart, þá síðustu sem hann samdi fyrir fjórhent píanó. Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 og aðgangseyrir er 1000 kr. Fram kemur á vefsíðu Gljúfrasteins að Mozart hafi sem mörg verk fyrir fjórhent píanó en síðasta verkið sem hann samdi af þeirr gerð er sónatan sem flutt verður á morgun. Hún var samin í ...

Götupartí á Laugarveginum í dag

Laugardaginn 23. júlí ætlar hópurinn Mako Mar í samstarfi við verslunareigendur, veitingastaði, kaffihús, samtök og aðra að standa fyrir götuveislu á göngugötunni við Laugaveg. Margt verður um að vera en dagskrá hefst um hádegisbil með flóamarkaði, en svo taka við fjölmargar uppákomur með upplestri, harmónikkuleik, salsadansi, söng og ljóðum. Meðal listamanna sem leggja fram krafta sína í götuveislunni eru Hugleikur Dagsson, söngkonan Bryndís Ásmunds og gítarleikarinn Franz Gunnarsson, félagar hljómsveitinni Ásjón og ...

Fengu viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi

Eigendur fjögurra einbýlishúsalóða í Garðabæ fengu í gær afhenta viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi 2011. Eigendur samliggjandi lóða fjölbýlishúsa við Strikið 2-12 fengu einnig viðurkenningu fyrir sérlega vel hirta lóð. Náttúrufræðistofnun Íslands fékk viðurkenningu í flokki fyrirtækja og stofnana og Kjarrás var valin snyrtilegasta gata bæjarins. ...

Steingrímur hljóp síðasta spölinn

Friðarhlaupinu lauk við Ráðhús Reykjavíkur í dag. Tegla Loroupe hlaupkona frá Kenýja og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, ásamt alþjóðlega Friðarhlaupsliðinu, hlupu síðasta spölinn frá Valsvellinum að Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar tók Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi, á móti hópnum. Lauk þar með 2.700 km og 2 vikna ferðalagi Friðarhlaupsins um Ísland, sem hófst 5. júlí síðastliðinn á Seltjarnarnesi. Þúsundir Íslendinga hafa haldið á Friðarkyndlinum og lagt hlaupinu lið í ár....

Hringnum lokað í Friðarhlaupinu

5. júní sl. lögðu 20 hlauparar frá 13 þjóðlöndum upp í tveggja vikna og 2700 km ferð sína með logandi Friðarkyndil umhverfis Ísland og var opnunarathöfnin á Seltjarnarnesi. Í hádeginu í dag verður hringnum lokað þegar hlaupararnir koma í Ráðhús Reykjavíkur. Tilgangurinn hlaupsins er að efla frið, vináttu og skilning manna og menningarheima....

Eingöngu konur veiða í Elliðaánum í dag

Konur sem tekið hafa þátt í verkefninu "Kastað til bata" veiða í Elliðaánum í boði Reykjavíkurborgar í dag, 21. júní. "Kastað til bata" er samstarfsverkefni Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila sem hafa boðið konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini í veiðiferð. Konurnar æfa sig í flugukasttækni og stunda veiðiskap og útiveru til að styrkja sig á sál og líkama, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu og veiða - ef heppnin er með....

Fíkniefni og þýfi fannst við húsleitir í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi níu húsleitir í Hafnarfirði fyrir helgina. Lagt var hald á talsvert af fíkniefnum, meðal annars nokkra tugi kannabisplantna, tæplega 100 grömm af amfetamíni og rúmlega 200 grömm af hassi. Lögreglan tók einnig í sína vörslu fjölmarga muni sem stolið var í innbrotum á höfuðborgarsvæðinu. Búið er að staðfesta að þýfið er úr að minnsta kosti níu innbrotum, bæði í heimahús og fyrirtæki. Unnið er að því að koma hinum stolnum munum aftur í réttar hendur. Fimm voru ...

Íslandsmótið í Strandhandbolta í Nauthólsvík

Laugardaginn 23.júlí verður Íslandsmótið í Strand Handbolta spilað í Nauthólsvík en það eru um 200 keppendur í 20 liðum sem spila á Íslandsmótinu á hverju ári, og er mikil spenna hjá keppendum að því er fram kemur á vef HSÍ. Strandhandbolti er spilaður um alla Evrópu yfir sumartímann og er gríðarlega vinsæll þar og á vaxandi vinsældum að fagna hér á landi. Þetta er í áttunda skiptið sem mótið fer fram og hefur það vaxið í umfangi ár frá ári. Síðasta sumar, var það lið Breiðholts sem urðu Íslandsmeistarar en í því liði spiluðu Sturla ...

Ungmenni selja af sér flíkurnar á uppskeruhátíð Molans

Ungmenni í Kópavogi munu "sýna og selja af sér flíkurnar á flóamarkaði, fara í leiki og spila spil undir blíðum tónum farandstónlistarmanna" á Hálsatorgi á morgun. Þá fer þar fram Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa hjá Molanum, ungmennahúsi Kópavogs,. Götuhátíð verður á Hálsatorgi frá kl. 11:00 til 14:00 og um kvöldið verður gestum og gangandi boðið í Molann að Hábraut 2. Eru allir boðnir velkomnir. Skapandi sumarstörf í Molanum eru nú að ljúka sínu fjórða starfsári. Í sumar tóku 28 ungmenni þátt í starfinu á ...

Nýr Rósagarður í Laugardalnum formlega vígður á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 21. júlí, verður farið í fræðslugöngu um rósir í Grasagarðinum í Laugardal í Reykjavík. Eftir gönguna verður gengið yfir í skrúðgarðinn í Laugardal þar sem nýr Rósagarður verður formlega vígður. Garðurinn er samstarfsverkefni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands, Reykjavíkurborgar og Yndisgróðurs. ...

20 holu golfvöllur í Brautarholti á Kjalarnesi

Auglýst hefur verið tillaga að deiliskipulagi fyrir Brautarholt 1 á Kjalarnesi. Deiliskipulagið nær yfir allan syðri hluta jarðarinnar þar sem gert verður ráð fyrir golfvelli. Á svæðinu eru m.a. áformaðar 20 golfbrautir ásamt bílastæðum og byggingareitum fyrir klúbbhús, dæluhús, áhalda- og starfsmannahús, lítil skýli til áningar ásamt íbúðarhúsi og bílgeymslu....

Róttæki sumarháskólinn – tengir saman aktívsima og hugmyndir

Daganna 13. til 19. ágúst verður Róttæki sumarháskólinn haldinn í ReykjavíkurAkademíunni og þar má læra um aktívisma, neysluhyggju, andóf og samtímaheimspeki. Markmið skólans er að efla hreyfingu róttækra aktívista á Íslandi sem hugsandi líkama með samtakamátt, að því er fram kemur á vefsíðu skólans. "Með róttækum aktívisma er átt við baráttuna fyrir efnahagslegu réttlæti, umhverfisvernd, femínisma, lýðræði og réttindum minnihlutahópa, svo dæmi sé nefnt. Með hugmyndum er átt við hvers kyns mannlega hugsun, hvort sem ...

Vinnuskóli Reykjavíkur fær Grænfánann í þriðja sinn

Vinnuskóli Reykjavíkur tekur þátt í alþjóðlega umhverfisverkefninu Skólar á grænni grein sem hefur það meðal annars að markmiði að bæta umhverfismennt. Skólinn fékk á dögunum Grænfánann í þriðja sinn, en hann er viðurkenning um að unnið sé markvisst og á lýðræðislegan hátt að umhverfisstjórnun og umhverfismennt. Frá þessu er sagt á vef Reykjavíkurborgar. Í Vinnuskólanum er rusl flokkað til endurvinnslu og umhverfismarkmið sett og þeim fylgt eftir. Allir nemendur og starfsmenn fá fræðslu um umhverfisvernd og...

Sex tilboð bárust í byggingarreitinn við Hörpu

Í dag rann út frestur til að skila tilboði í byggingarreitinn vestan við Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsið í miðborg Reykjavíkur. Um var að ræða opið söluferli af hálfu eiganda lóðarinnar, eignarhaldsfélagsins Situsar, sem kynnt var fyrir erlendum og innlendum fjárfestum. Tugir fyrirspurna komu frá áhugasömum fjárfestum en á endanum bárust sex formleg tilboð í byggingarréttinn á lóðinni – þrjú eru frá íslenskum aðilum og þrjú frá erlendum aðilum....

Safnar hvalaheilum á Íslandi

Dr. Paul Manger, prófessor í líffærafræði og einn helsti sérfræðingur heims á sviði samanburðarlíffærafræði er hér á landi og safnar heilum úr hvölum. Þetta kemur fram á vef Háskólans í Reykjavík. Dr. Manger fjallaði um rannsóknir sínar á hvölum og skyldum spendýrum í Háskólanum í Reykjavík. Dr. Manger er ekki sammála því að hvalir hafi gáfur á við menn og heldur því fram að hvalir hafi svipaða greind og önnur spendýr eins og til dæmis nautgripir. Niðurstöður rannsókna...

Fræðsluganga um hernámsárin í Kópavogi

Héraðsskjalasafn Kópavogs stendur fyrir fræðslugöngu um hernámsárin í Kópavogi á morgun, þriðjudaginn 19. júlí. Gangan hefst kl. 17:00 og eru allir velkomnir. Gangan tekur um það bil klukkutíma. Stefnt er að því að hittast á bílastæðinu við Siglingastofnun Íslands, Vesturvör 2, í Kópavogi. Þaðan verður genginn stuttur hringur í Fossvogi og farið yfir sögu hernámsins í bænum. Staldrað verður við hjá flugbátahöfninni, baðhúsi hermanna og skoðuð vélbyssuhreiður...

Áfram veðurblíða á sunnanverðu landinu

Veðrið hefur leikið við þá sem búa á suður og suðvesturlandi undanfarna daga. Útlit er fyrir að veðurblíðan haldi áfram í þessum landshlutum en fremur svalt verður fyrir norðan þar sem þokubakkar eru úti við norður- og austurströndina. Vindur er lítill á landinu, fremur hæg breytileg átt eða hafgola, en norðan 3-10 m/s A-lands. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast í uppsveitum SV-lands....

Nýtt tjaldstæði í Mosfellsbæ

Við eldri bekkjardeild Varmárskóla í Mosfellsbæ er búið að opna nýtt tjaldstæði fyrir ferðamenn. Á svæðinu er ágæt aðstaða fyrir tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. Hægt er að komast í rafmagn og á svæðinu er vaskur og skjólaðstaða til að vaska upp, salernisaðstaða, bekkir þar sem ferðamenn geta notið fagurs útsýnis af svæðinu sem stendur frekar hátt....

Gönguleið í Búrfellsgjá orðin greiðfærari

Gönguleiðin í Búrfellsgjá var í lélegu ástandi og þar hefur verið unnið að verulegum samgöngubótum. Timburstigi sem er niður um Hjallamisgengið var endurnýjaður. Þórir smiður garðyrkjudeildar Garðabæjar sá um smíði á nýja stiganum ásamt skógræktarhópi. Hópurinn er nú að lagfæra stíginn ofan Hjallamisgengis frá enda Vífilsstaðahlíðar og niður frá stiganum að Búrfellsgjá. Þessi stígur var orðinn úr sér genginn með grjót í yfirborði sem nú er hreinsað upp....

Gustur í stríð við Kópavogsbæ vegna hesthúsa í Glaðheimum

Hestamannafélagið Gustur í Kópavogi hefur staðið í deilum við Kópavogsbæ vegna hesthúsa félagsmanna í Glaðheimum. Kópavogsbær hefur nýlega sent félagsmönnum bréf þar sem segir að niðurrif húsa muni hefjast, án frekari viðvörunar, eftir 5. júlí 2011. Þessu mótmæla félagar í Gusti og segja Kópavogsbæ ekki standa við gerða samninga....

Fimmtán sækja um stöðu sviðsstjóra á nýju Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar

Fimmtán umsækjendur voru um stöðu sviðsstjóra á nýju Skóla- og frístundasviði en umsóknarfrestur rann út 10. júlí. Nýr sviðsstjóri mun leiða faglega uppbyggingu og rekstur sameinaðs Skóla- og frístundasviðs sem tekur til starfa um næstu áramót. Meðal umsækjenda eru 6 konur og 9 karlar með fjölbreytta menntun og í mismunandi störfum. Á listanum eru þrír viðskiptafræðingar, MA í mannauðsstjórnun, framkvæmdastjóri og lýðheilsufræðingur. Hið nýja svið mun annast rekstur leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðva...

Ársreikningar sveitarfélaga – tekjur hækka og Reykjavíkurborg með hæsta veltufjárhlutfallið

Heildartekjur sveitarfélaga á árinu 2010 voru 172,9 milljarðar króna árið 2010. Skattekjur lækkuðu lítillega en aðrir tekjuliðir hækkuðu. Heildartekjur sveitarfélaga hækkuðu um 2 milljarða árið 2010 miðað við árið 2009 en skattekjur lækkuðu um 1,4 milljarð. Greiðslur úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga hækkuðu um 0,3 milljarð króna og þjónustutekjur hækkuðu um 3,1 milljarð króna. Meðalútvarsprósenta hækkaði úr 13,11% á árinu 2009 í 13,12% á árinu 2010.Þetta kemur fram í fréttabréfi Hag...

Starfsleyfi Hringrásar háð ströngum skilyrðum segja borgaryfirvöld

Borgaryfirvöld líta brunann sem varð í endurvinnslustöð Hringrásar hf. í nótt alvarlegum augum vegna þeirra almannahættu sem eldsvoði á þessum stað getur valdið. Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs og embættismenn fóru yfir atburðarrásina á fundi sínum í morgun, ásamt slökkviliðsstjóra og fulltrúum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Starfsemi Hringrásar er starfsleyfisskyld samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og hefur starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá árinu 2008. Reglubundið eftirlit er ...

Bruninn í Hringrás líklega íkveikja – lögregla auglýsir eftir vitnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú brunann í Hringrás og kom fram í hádegisfréttum Rúv að líklega væri um íkveikju að ræða. Tilkynnt var um reyk skömmu fyrir klukkan 3 í nótt og mikinn reyk lagði frá dekkjum sem kviknað hafði í. Í morgun hafði slökkvilið náð tökum á eldinum. Vegna rannsóknarinnar biður lögreglan þá sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir í Klettagörðum og nágrenni í nótt að hafa samband í síma 444-1000. Um er að ræða tímabilið frá miðnætti og til þess að lögregla og slökkvilið komu á vettvang...

Slökkviliðið hefur náð tökum á Hringrásarbruna – slökkvistarfi 95% lokið

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldi sem logað hefur á Hringrásarsvæðinu frá því á þriðja tímanum í nótt en tölverðan reyk leggur frá svæðinu. Fulltrúi slökkviliðsins sagði í morgunfréttum Rúv að slökkvistarfi væri 95% lokið. Nú vinna slökkviliðsmenn að því að drepa eldinn alveg. Vindáttin er enn af landi og reyk leggur út á haf. Haft hefur verið samband við forráðamenn fyrirtækja á iðnaðarsvæðinu við Klettagarða og nágrenni til að hvetja þá til að loka fyrir loftræstingu og náðst hefur í flesta ...

Reisa á nýjar íbúðir fyrir eldri borgara í Kópavogi

Ráðgert er að reisa 28 íbúða fjölbýlishús fyrir eldri borgara á Kópavogstúni 2 til 4 á næstu tveimur árum samkvæmt viljayfirlýsingu byggingafyrirtækisins Dverghamra og Samtaka aldraðra sem undirrituð var í síðustu viku. Samtök aldraðra auglýsa íbúðirnar meðal félagsmanna sinna og sjá um sölu þeirra en framkvæmdir eiga að hefjast þegar allar íbúðirnar hafa verið seldar. Íbúðirnar verða tveggja, þriggja og fimm herbergja. Þær stærstu verða 200 fm þakíbúðir en en hinar verða um 80 til 130 fm að stærð. Dverghamrar ...

Níu óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru níu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og einn á Seltjarnarnesi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, tveir á laugardag, fjórir á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-40 ára. Þess má geta að einn þeirra var með þrjú börn í bílnum þegar hann var stöðvaður við aksturinn en viðkomandi hafði þegar verið sviptur...

Ungmenni úr Vesturheimi heimsækja Háskóla Ísland

Ellefu ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum eru stödd hér á landi á vegum
 Snorraverkefnisins og taka nú þátt í tveggja vikna náms- og
 menningardagskrá í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
 fræðum. Samtals dvelur hópurinn hérlendis í sex vikur. Snorraverkefnið hefur verið starfrækt í 13 ár og er á vegum
 Norræna Félagsins og Þjóðræknisfélags Íslendinga. "Það er verkefninu mjög mikilvægt að tengja þátttakendurna Háskóla Íslands og ég vona að það haldi áfram að vera þannig. Sigurborg Hilmarsdóttir kenndi þeim ...

Breytingar á reglum um gjaldfrjáls bílastæði fyrir visthæfa bíla

Borgarráð samþykkti á fundi sínum fyrir helgi breytingar á reglum um bílastæði fyrir visthæfa bíla. Í þeim felst að bílarnir mega ekki vera þyngri en 1.600 kg. og að gjaldfrelsi fellur niður ef þeir eru á nagladekkjum. Jafnframt endurnýjast ekki gjaldfrelsi við tilflutning á milli bílastæða og eigendur visthæfra bíla þurfa að merkja þá með klukkuskífum útgefnum af Reykjavíkurborg. Leggja má visthæfum bílum í eina og hálfa klukkustund án endurgjalds í gjaldskyld bílastæði í borginni. Samkvæmt nýjum...

Ökumaður handtekinn eftir umferðaróhapp í Norðlingaholti

Ökumaður var handtekinn eftir umferðaróhapp í Norðlingaholti skömmu eftir hádegi. Engan sakaði en hinn handtekni er karl á þrítugsaldri sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Maðurinn, sem var undir áhrifum fíkniefna, var á stolnum bíl. Um svipað leyti var konu á sextugsaldri gert að hætta akstri í Breiðholti. Hún hafði neytt áfengis en var þó undir leyfilegum mörkum. Fyrr í dag stöðvaði lögreglan svo bíl í Kópavogi en við stýrið var 18 ára piltur sem...

Frumbyggjalíf og nýtt heimsmet í flugdrekaflugi í Viðey

Í samstarfi við skátafélagið Landnema er gestum boðið að setja sig í fótspor frumbyggja í Viðey laugardaginn 9 júlí. Þátttakendum er kennt að reisa sér skýli, kveikja eld og hvaðeina annað sem nauðsynlegt er fyrir frumbyggja að kunna skil á eins og að steikja pylsur yfir eldi. Jafnframt eru flugdrekaeigendur hvattir til að fjölmenna í Viðey með dreka sína og slá Íslandsmetið sem sett var í fyrra og reyna jafnvel við heimsmet. Dagskráin hefst kl.14:30 og lýkur 16:30. Flugdrekaeigendum...

Flugvél Flugfélags Íslands klædd í sumarföt

Ein af flugvélum Flugfélags Íslands hefur verið klædd í sumarfötin og vonast flugfélagið til að farþegar hafi ánægju af þessari nýbreyttni. Flugfélag Íslands býður fjölbreytt úrval dagsferða til allra áfangastaða innanlands og til Grænlands. Í sumar verða tvær nýjar dagsferðir í boði til Grænlands. Þá er í fyrsta sinn í sumar boðið upp á sérstaka golfpakka innanlands, bæði fyrir einstaklinga og hópa, þar sem hægt er að leika golf á Akureyri, Ísafirði, Reykjavík og Egilsstöðum....

120 kíló af lamba- og svínakjöti á grillið hjá HB Granda

Hin árlega grillveisla fyrir starfsmenn HB Granda í Reykjavík og gesti var haldin í hádeginu í gær í einstakri veðurblíðu, sól og 16°C hita. Grillað var á gámaplaninu við austurenda fiskiðjuversins á Norðurgarði og þótti veislan heppnast einstaklega vel. 250 starfsmenn fyrirtækisins gæddu sér á gómsætu grillkjöti. Þess má geta að alls fóru um um 120 kíló af lamba- og svínakjöti á grillin. Meðlætið var heldur ekki skorið við nögl, 20 kíló af kartöflusalati, 10 kílógrömm af hrásalati, 20 lítrar af sósu og 8 kílógrömm af maísbaunum....

Búið að veiða 176 laxa í Elliðaánum - börnum boðið að renna fyrir lax í dag

Í gær var búið að veiða 176 laxa í Elliðaánum. Stöðugar göngur eru í árnar og sem dæmi um það gengu 30 laxar gegnum teljarann við rafstöðina í fyrrinótt. Aðspurðir segja þeir mikinn lax í neðanverðri ánni, þó sérstaklega frá Teljarastreng og niður í sjó. Útlitið er því ágætt fyrir framhaldið í Elliðaánum. Börnum og unglingum verður boðið að renna fyrir lax í Elliðaánum í dag, föstudaginn 8. júlí, klukkan 15:00. Á annað hundrað ungmenni fá að spreyta sig við veiðarnar, samkvæmt tilkynningu frá SVFR....

Björk með sex tónleika í Hörpunni

Björk Guðmundsdóttir heldur sex tónleika í tónlistarhúsinu Hörpu í október. Þetta verða fyrstu tónleikar Bjarkar hér á Íslandi í 3 ár. Fyrstu tvennir tónleikarnir verða hluti af Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni. Aðeins verða 700 miðar í boði á hverja tónleika. Miðasala á tónleikana hefst á hádegi á fimmtudaginn, 14. júlí, og fer hún fram á www.icelandairwaves.is og www.harpa.is....

Andlát barns - móðirin í farbanni

Kona á þrítugsaldri hefur verið úrskurðuð í farbann til 4. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konan var handtekin um síðustu helgi vegna rannsóknar á voveiflegu andláti barns. Í framhaldinu var hún lögð inn á sjúkrahús en síðar færð í gæsluvarðhald. Konan er nú laus úr haldi lögreglu. Rannsókn lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu á voveiflegu láti barns, síðastliðin laugardag, hefur miðað áfram. "Í ljósi þess sem nú liggur fyrir þykja ekki lengur fyrir hendi þau skilyrði gæsluvarðhalds yfir konunni, sem ...

Byggja undirgöng undir Reykjanesbraut við Álverið í Straumsvík

Fyrirhugað er að byggja undirgöng undir Reykjanesbraut við Álverið í Straumsvík í Hafnarfirði. Fjárveiting í fyrirhugaða framkvæmd er á vegáætlun 2011. Áætlað er að verkið verði boðið út á næstunni og framkvæmdir hefjist í ár, en verklok eru áætluð 2012....

Ný flotbryggja í Norðurbugt í Reykjavíkurhöfn

Ný flotbryggja, einkum ætluð fiskibátum, var sjósett í Norðurbugt Vesturhafnarinnar í þessari viku. Bryggjan er framleidd hjá Loftorku í Borgarnesi og er úr steinsteypu en það er fyrirtækið KRÓLI sem sá um framkvæmd og uppsetningu bryggjunnar. Samtals eru 14 viðlegufingur, 7 hvoru megin, og geta því 28 bátar legið við festar í einu. Auk þess er aukabryggja sem liggur þvert á aðalbryggjuna og þar er pláss fyrir stærri báta....

Borgin gefur dugmiklum starfsmönnum kost að veiða í Elliðaánum

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að leyfa borgarbúum að njóta Elliðaánna á þeim veiðidögum sem Reykjavíkurborg hefur til ráðstöfunar í ánum. Borgin ætlar að gefa einstaklega dugmiklum starfsmönnum borgarinnar kost á því að veiða í ánum í einn dag á góðum tíma....

11 nýjir leikskólar taka til starfa í Reykjavík

Um mánaðamótin tóku til starfa 11 nýir sameinaðir leikskólar í Reykjavík en sameining leikskólanna í Reykjavík var mjög umdeild og olli miklum deilum. Meirihluti borgarstjórnar sagði sameininguna vera nauðsynlega hagræðingaraðgerð en minnihluti borgarstjórnar og margir foreldrar og starfsfólk leikskóla sögðu aðgerðirnar illa ígrundaðar, að ekki hafði verið haft samráð við foreldra og starfsfólk og að aðgerðirnar myndi ekki skila neinni hagræðingu, jafnvel auka kostnað. Nýjum skólum fylgja nýjar stöður og störf en ...

Burstabærinn Krókur í Garðabæ

Undanfarin sumur hefur burstabærinn Krókur á Garðaholti í Garðabæ verið opinn almenningi til sýnis. Krókur er opinn á hverjum sunnudegi í sumar (júní - ágúst) frá kl. 13-17 og aðgangur er ókeypis. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. Í sumar er unnið að viðgerðum og endurbótum á...

2700 km Friðarhlaup um Ísland hafið - myndir

Klukkan rúmlega 10 í morgun lögðu 20 hlauparar frá 13 þjóðlöndum upp í tveggja vikna og 2700 km ferð sína með logandi Friðarkyndil umhverfis Ísland og var opnunarathöfnin á Seltjarnarnesi. Tilgangurinn er að efla frið, vináttu og skilning manna og menningarheima á milli og lýkur ferðalaginu við Höfða í Reykjavík 22. júlí....

Gamla og nýja Ísland mætast í Gerðarsafni

Nú stendur yfir í Gerðarsafni í Kópavogi sýning Finnboga Péturssonar og Árna Páls Jóhannssonar sem ber heitið: Góðir Íslendingar. Þeir hafa unnið að sýningunni mjög lengi og segja margra áratuga vinnu loks lokið. Sýningin stendur yfir til 31. júlí. "Sýningin fjallar á fínlegan hátt um samfélagsleg málefni og sjálfsmynd þjóðarinnar. Ávarpið „Góðir Íslendingar“ er svo margétin tugga að við gefum henni varla gaum. Þó ættu þessi orð einmitt að vekja okkur til umhugsunar: Hvern er verið að ávarpa og í hvaða tilgangi?" Þeir félaga nýta sér ...

Yfir 30.000 heimsóttur Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í júní

Mikil aðsókn var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í júní en þá heimsóttu 30.495 gestir garðinn sem er mesti fjöldi gesta í júní síðan 2003. Gestir í garðinum geta nú séð nýjan íbúa hans þar en kálfurinn Gjafar frá Bakka er nýfluttur þangað. Hann er gjöf til garðsins frá kúabúinu Bakka á Kjalarnesi. Gjafar er rauður á lit og deilir stíu með kálfinum Garmi sem kemur frá Selalæk á Rangárvöllum og er einnig rauður. Stíufélagarnir eru báðir fæddir um síðustu Hvítasunnuhelgi. Tekin var ákvörðun um að byggja húsdýragarð í Reykjavík fyrir 25 ...

Lögregla rannsakar vofeifilegt andlát barns í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú voveifilegt lát barns. Lík þess fannst í ruslagámi við hótel í Reykjavík þar sem kona, sem talin er hafa fætt það, vinnur. Í gærmorgun var komið með konu á bráðamóttöku Landsspítalans vegna blæðinga og kviðverkja. Þrátt fyrir að konan kannaðist ekki við að hafa verið ófrísk, töldu læknar að hún hefði misst fóstur og verkir og blæðing stöfuðu af því....

Austurvallarkórinn syngur kreppulög í Kolaportinu

Austurvallarkórinn ætlar að koma saman og syngja nokkur kreppulög í Kolaportinu klukkan 14:00 í dag. Tilefnið er ekki eingöngu mótmælin úti Evrópu og víðar heldur það að vekja áheyrendur til glaðvakandi meðvitundar um óréttlætið og lýðræðishallann sem við búum við. Við höfum nefnilega ekki efni á því að sitja þegjandi undir þeim hörmungum sem stjórnsýslan og fjármálastofnanirnar eru að leggja á okkur Íslendinga....

Ljósmyndasamkeppni Breiðholts – stuð og stemning

Á fundi hverfisráðs Breiðholts fimmtudaginn 9. júní var ákveðið að efna að venju til ljósmyndasamkeppni í tengslum við Breiðholtsdaga, en dagsetning þeirra verður kynnt í ágúst. Að þessu sinni verða kjörorð Breiðholtsdaga - stuð og stemning - og er ágætt að áhugaljósmyndarar hafi þau orð á bak við eyrað við myndatökur í sumar og haust, segir á vefsíðu Reykjavíkurborgar. Reglur keppninnar eru með hefðbundnu sniði: Hver þátttakandi má senda inn þrjár myndir sem tengjast þema samkeppninnar. Óheimilt er að senda inn...

"Ánægjuleg endurbygging" segir borgarstjóri um húsin á mótum Austurstrætis og Lækjargötu

Jón Gnarr borgarstjóri opnaði formlega í dag húsin þrjú á mótum Austurstrætis og Lækjargötu sem hafa verið endurgerð eftir eldsvoða í apríl árið 2007. Húsin mynduðu eina elstu varðveittu götumynd Reykjavíkur og voru eitt helsta kennileiti borgarinnar. Við endurbygginguna var lögð áherla á að hafa húsin í sama stíl og þau voru fyrir bruna. Var handbragði og efnisvali fylgt eins nákvæmlega og hægt var en tekið var tillit til nútíma þarfa og notkunar. Við formlega opnun húsanna sagði Jón Gnarr borgarstjóri m.a. að raski fylgdu yfirleitt leiðindi og óþægindi fyrir íbúana. Undanfarin ár hefði ...

Stjórnlagaráð fjallar um náttúru Íslands í dag – eiga náttúruauðlindir að vera í þjóðareigu?

Í morgun hófst 15. fundur Stjórnlagaráðs og verður meðal annars fjallað um náttúru Íslands og rætt verður um tillögur sem skilgreina auðlindir sem þjóðareign. Í tillögum A-nefndar um náttúru Íslands er kveðið á um að auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, skuli vera sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn geti fengið þær eða réttindi tengd þeim til eignar eða varanlegra afnota. Tillögurnar kveða á um að stjórnvöld skuli bera ábyrgð á verndun auðlinda í náttúru Íslands og að við nýtingu auðlinda skuli hafa ...

Bandaríska ríkið styrkir kafbátaverkefni Háskólans í Reykjavík

Sendiherra Bandaríkjanna, Luis Arreaga, og Björn Þór Jónsson, forseti tölvunarfræðideildar HR, undirrituðu fimm milljóna króna styrktarsamning í Háskólanum í Reykjavík í gær. Styrkurinn, sem veittur er úr The Fund for Innovation in Public Diplomacy, rennur til kafbátaverkefnis HR. Kafbátaverkefni Háskólans í Reykjavík hlýtur styrkinn vegna þeirrar nýstárlegu vísinda- og tækniaðferða sem hópurinn beitir, samfara skapandi notkun samfélagsmiðla. Verkefnið þykir undirstrika öflugt samstarf Íslendinga og Bandaríkjamanna á ...

Gjaldskrá vegna 15 metra sorphirðuþjónustu lækkar

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að lækka gjaldskrá fyrir viðbótarþjónustu vegna sorpíláta sem standa lengra en 15 metra inni á lóð. Lækkar gjaldið úr 4.800 krónum niður í 4.000 krónur á ári á hvert sorpílát miðað við losun á tíu daga fresti. Gjaldið verður aðeins 2.000 krónur á ári ef losað er á 20 daga fresti. Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Ítarlegar mælingar og innleiðing 15 metra viðbótarþjónustunnar á síðustu mánuðum hafa leitt í ljós mikið af verðmætum upplýsingum um sorphirðuna í borginni. Getur ...

Föstudagsfiðrildi Hins Hússins og Götuleikhússins

Dans, tónlist, leiklist og myndlist er meðal þess sem er á dagskrá Föstudagsfiðrildis Listhópa Hins Hússins og Götuleikhússins sem haldið verður næstkomandi föstudag, þann 1. júlí. Einnig verður haldið upp á opnun Laugavegs sem göngugötu. Flautuleikarinn Nína mun spila sig niður Laugaveginn og flytja austræna tóna á kínversku flautuna hulusi. Á Lækjartorgi og í Austurstræti mun Götuleikhúsið sýna "in sönnu andlit" - melónudrama í þremur þáttum. "Örlagavefur 14 einstaklinga spinnst saman í ólýsanlegri sögu um hann...

Flutningaskip sett í farbann í 20 daga í Hafnarfjarðarhöfn

Við hafnarríkiseftirlit Siglingamálastofnunar í Hafnarfjarðarhöfn fyrr í þessum mánuði var flutningaskipið Beauty Song sett í farbann. Stofnunin gerði athugasemdir við stjórnbúnaðs olíuskilju. Endurbætur fóru fram í samráði við flokkunarfélag skipsins og eftir fullnægjandi endurbætur var farbanni aflétt 26. júní, 20 dögum eftir að farbannið var sett á skipið....

Seglskip bandaríska sjóhersins í Reykjavikurhöfn

Bandarískt seglskip sem heitir USCGC Eagle lagðist upp að Miðbakkanum í Reykjavík í morgun. Skipið er skólaskip Bandaríska sjóhersins og kemur hér í kurteisisheimsókn. Í áhöfn eru 80 menn og 155 sjóliðsforingjaefni eru um borð....

14 ára stúlka veiddi stærsta laxinn!

Stórveiðikonan Hekla Sólveig Gísladóttir veiddi á föstudag stærsta laxinn sem fengist hefur í Elliðaánum í sumar. Hekla er aðeins 14 ára gömul og strax orðin vön veiðikona og hefur komið í Elliðaárnar áður og þekkir því nokkuð til. Reyndist fiskurinn vera hrygna, 6 kg að þyngd og 83 cm að legnd. Ummálið var 41 cm, að því er fram kemur á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur....

Jónas heiðraður fyrir að aka strætisvagni í 40 ár

Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála, heiðraði fyrir helgina Jónas Engilbertsson sem ekið hefur strætisvagni í Reykjavík í fjóra áratugi. Einnig var hann heiðraður af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Jónas hefur þannig sinnt almenningssamgöngum í þessa fjóra áratugi og hefur án efa upplifað ýmsar breytingar á strætisvögnunum, umferðinni í Reykjavík og ferðavenjum fólks þennan tíma....

Styrkir til þróunarverkefna í leikskólum Reykjavíkurborgar

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, afhenti formlega styrki menntaráðs til leikskólastarfs við hátíðlega athöfn í ráðhúsinu sl. fimmtudag. Samtals bárust 10 umsóknir um almenna styrkir Reykjavíkurborgar vegna leikskólamála og veittir voru 5 styrkir til stofnana og einstaklinga sem vinna með leikskólum að einstöku verkefnum....

Stjórnlagaráð fjallaði um málskotsrétt forseta Íslands í dag

Í morgun hófst 14. ráðsfundur Stjórnlagaráðs og meðal þess sem var á dagskrá eru tillögur B-nefndar um málskotsrétt forseta Íslands sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur beitt þrisvar sinnum einn forseta. B-nefnd setur fram tvo valkosti. Í fyrri valkostinum er núverandi 26. grein að mestu óbreytt og forseti heldur sjálfstæðum málskotsrétti. En það þarf þá að finna nákvæma útfærslu á frestum, málsmeðferð og málum sem eru undanþegin þjóðaratkvæðagreiðslu. Forseta yrði veittur vikufrestur til...

Hippar í Hörpu – "boðskapur Hársins á alltaf við"

Eftir að hafa sýnt Hárið við góðar undirtektir í Menningarhúsinu Hofi, en uppselt var á allar 15 sýningar, hefur leikhópurinn Silfurtunglið ákveðið að flytja sig um set og setja söngleikinn upp í salnum Norðurljós í Hörpu. Munu sýningar hefjast 7. júlí. "Viðtökurnar hafa verið hreint út sagt frábærar: við fundum fyrir miklum meðbyr í bænum við undirbúning sýningarinnar og sýningarnar gengu framar björtustu vonum" segir Jana María Guðmundsdóttir sem fer með hlutverk Sheilu í Hárinu. Hún situr einnig stjórn Silfurtunglsins og er ...

Lögreglan fann heimagerða byssu við húsleit í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær rúmlega tvítugan mann eftir að skotvopn fannst við húsleit í Hafnarfirði. Við húsleitina fannst heimagerð byssa og 22 kalíbera skotfæri, ásamt litilræði af fíkniefnum. Lögregla telur hugsanlegt að skotvopnið hafi verið notað til að vinna skemmdarverk á ökutæki á Seltjarnarnesi í síðustu viku. Á staðnum fundust einnig gögn sem tengjast ætluðum meðlimum vélhjólahópsins Hells Angels og er hinn handtekni grunaður um að tengjast hópnum. Við aðgerðinar naut lögregla liðsinnis sérsveitar...

Magnús Pálsson útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur 2011

Magnús Pálsson myndlistarmann var í dag útnfendur Borgarlistamaður Reykjavíkur 2011. Útnefningin fór fram í Höfða og gerði Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs grein fyrir vali ráðsins á borgarlistamanni. Við þetta tækifæri var listamanninum veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé og tónlist fluttu félagar úr Caput, Tónlistarhópi Reykjavíkur 2011. ...

Opinn ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur

Orkuveita Reykjavíkur heldur á morgun, þann 23. júní, opinn ársfund. Á fundinum verða kynntar áherslubreytingar í rekstri, skipulagi og þjónustu OR. Drög að nýrri eigendastefnu fyrir fyrirtækið verða kynnt og rætt verður um stöðu úttektar eigenda á tildrögum fjárhagsvanda fyrirtækisins. Þetta er í fyrsta sinn sem OR heldur opinn ársfund og er það "gert til að auka gegnsæi í starfseminni og stuðla að upplýstri umræðu um málefni þess" segir á vef OR. Fundurinn verður haldinn ...

Borgarstjórn hefur valið fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur

Borgarstjórn hefur valið fulltrúa í fimm manna stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til eins árs og fimm til vara; formanns- og varaformannskjör. Formaður var kjörinn án atkvæðagreiðslu, en það er Haraldur Flosi Tryggvason. Varaformaður var kosin með sama hætti og var Brynhildur Davíðsdóttir fyrir valinu. Ný stjórn tekur til starfa á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur sem verður haldinn þann 23. júní 2011....

Rannveig Einarsdóttir ráðin sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað á fundi sínum þann 15. júní síðastliðinn að ráða Rannveigu Einarsdóttur sem sviðsstjóra fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar. Alls voru 22 umsækjendur um stöðuna. Rannveig er fædd í Reykjavík árið 1961. Hún lauk BA-próf í félagsfræði og starfsréttindanámi í félagsráðgjöf árið 1986 og mastersnámi í opinberri stjórnsýslu,MPA, árið 2005. Rannveig starfaði sem félagsmálastjóri á Ísafirði á árunum 1986 til 1987. Árið 1988...

Ómar Guðjónsson valinn bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2011

Ómar Guðjónsson tónlistarmaður er bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2011. Gunnar Einarsson bæjarstjóri tilkynnti um val á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2011 við hátíðlega athöfn í Vídalínskirkju þann 17. júní síðastliðinn. Flestir landsmenn hafa heyrt Ómar spila þótt þeir geri sér ekki endilega grein fyrir því en af hljómsveitum sem hann er fastur meðlimur í má nefna Jagúar, ADHD, Latinsveit Tómasar R. Einarssonar og Sjs big band. Ómar er fæddur árið 1978 og byrjaði að nema á píano um átta ára aldur en 12 ára átti gítarinn hug hans ...

Hafnafjarðarmeistaramót í Dorgveiði

Þriðjudaginn 21. júní standa leikjanámskeiðin í Hafnarfirði fyrir hinni árlegu dorgveiðikeppni við Flensborgarbryggju. Keppnin er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára. Í ein 20 ár hefur Hafnarfjarðarbær staðið fyrir þessari dorgveiðikeppni og í fyrra tóku rúmlega 300 börn þátt. Sigurvegarinn veiddi rúmlega tíu fiska og vó þyngsti fiskur keppninnar um 500 gr. "Þessi keppni hefur þótt takast vel og verið ungum keppendum og sumarstarfi Vinnuskólans til mikils sóma" segir á vef Hafnarfjarðabæjar. Þeir sem eiga...

Þema Menningarnætur þetta árið er “Gakktu í bæinn”

Menningarnótt í Reykjavík verður haldin í sextánda sinn þann 20. ágúst næstkomandi. Á torgum og götum, í húsasundum og görðum, í galleríum, verslunum, menningarstofnunum og heimahúsum verða viðburðir af öllum toga og fylla miðborgina lífi. Þema hátíðarinnar í ár er “Gakktu í bæinn!“Þemað vísar til þessarar gömlu íslensku venju að bjóða fólk velkomið með því að segja því að ganga í bæinn og gera vel við gesti sína. Miðborgin býður gestum að ganga í bæinn, Harpan verður formlega vígð og opnar dyr sínar, og gestir eru hvattir til að ...

Reykjavíkurborg heiðraði minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur

Í gær, á kvenréttindadaginn 19. júni, heiðraði Reykjavíkurborg minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og baráttukvenna fyrir kvenfrelsi. Athöfnin fór fram í Hólavallakirkjugarði. Kórinn Graduale Nobili, undir stjórn Jóns Stefánssonar söng tvö lög við athöfnina og Elsa Hrafnhildur Yeomann, forseti borgarstjórnar, flut ræðu um líf og starf Bríetar. Að lokinni athöfn var boðið til kaffisamsætis og dagskrár sem Kvennréttindasamband Íslands efndi til á Hallveigarstöðum í tilefni dagsins....

Auglýsa stöður aðstoðarleikskólastjóra í 18 leikskólum

Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsækjendum í stöður aðstoðarleikskólastjóra í átján leikskólum borgarinnar. Um er að ræða stöður í ellefu sameinuðum leikskólum og í sjö öðrum að auki. Umsóknarfrestur um stöðurnar í sameinuðu skólunum er til 19. júní en til 21. júní og 22. júní í hinum skólunum...

Sterkasti maður Íslands í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag

Keppnin um sterkasta mann Íslands hefst í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag, fimmtudaginn 16. júní, klukkan 16:00. Keppt verður í Kútakasti, Fjölþraut, Réttstöðulyftu og Atlassteinum. Alls eru 5 keppendur skráðir til leiks og mun sigurvegarinn taka þátt í keppninni um Sterkasta mann heims fyrir Íslands hönd síðar á árinu....

Gamli forsætisráðherrabústaðurinn til leigu!

Fasteignasalan Miklaborg auglýsir hið glæsilega hús Jóns Magnússonar, fyrrum forsætisráðherra, að Hverfisgötu 21 í Reykjavík til leigu. Húsið er við hliðina á Þjóðleikhúsinu. Húsið var byggt af bæjarfógetanum í Reykjavík, Jóni Magnússýni árið 1912. Hann varð síðan fyrsti forsætisráðherra Íslands 1917. Kristján konungur X og drottning hans Alexandrina heimsóttu Ísland 1926 og gistu þá hjá forsætisráðherrahjónunum á Hverfisgötu 21 meðan þau dvöldu í Reykjavík. Húsið er til leigu og getur losnað síðar á árinu....

Fjórðungur ökumanna á Hringbraut óku of hratt - einn var á 103 km hraða

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mældi hraða ökumanna á Hringbraut í Reykjavík á föstudag og af þeim 618 ökutækjum sem lögreglan mældi ók um fjórðungur, eða 27%, of hratt. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið á Hringbraut í austurátt, að Bústaðavegi og mældi lögreglan í eina klukkustund. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km. hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 80 km. hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 103 km. hraða. Lögreglan var við hraðamælingar á þessum sama stað í mars og þá var brotahlutfallið...

Eddukvæði um goð, fortíð og framtíð, upphaf og endi í Eldborg á mánudag

Annan í hvítasunnu mun norsk tónlist hljóma um Eldborg, stærsta sal Hörpu en þá munu óperukórinn í Reykjavík og Bærum sinfóníuhljómsveitin í Noregi halda tónleika. Á efnisskrá tónleikanna eru þekkt verk eftir norska tónskáldið Edvard Grieg sem er óður til Ólafs Tryggvasonar konungs, Hjalar-ljod eftir Eiving Groven sem samið var í tilefni af 900 ára afmælið Oslóborgar. Stærsta verk tónleikanna er kórverkið Völuspá eftir David Monrad Johansen. Uppruni verksins er óþekktur en reiknað er með að það sé ort á Íslandi eða Noregi...

Kannabis og vopn fundust hjá mönnum sem taldir eru vera í Hells Angels

Tveir karlmenn á þrítugsaldri sem lögreglan telur að séu meðlimir Íslandsdeildar Hells Angels, voru handteknir á miðvikudag við iðnaðarhúsnæði í austurborginni. Við húsleit þar fundust rúmlega 120 kannabisplöntur á nokkrum ræktunarstigum. Það er mat lögreglu að ræktunin, sem var á tveimur hæðum húsnæðissins, hafi verið þar í nokkurn tíma. Við húsleitina fundust einnig tvær haglabyssur, tvíhleypa og hálfsjálfvirk. Búið var að sverfa verksmiðjunúmerið af báðum byssunum en ekki liggur fyrir um tilgang þeirra á...

Götu og torgsala hefst í Reykjavík

Í gær var gengið frá fyrsta samningnum um götu- og torgsölu í samræmi við nýjar reglur um slíka sölustarfsemi, sem samþykktar voru í borgarráði 14. apríl. Var samningurinn gerður við fyrirtækið Frico ehf. sem verður með söluvagn á Skólavörðuholti við Frakkastíg og gerir Friðrik Björnsson forsvarmaður þess ráð fyrir að hefja sölu um miðja næstu viku. Í nýju reglunum er kveðið á um umgengni...

Fimleikafélagið Gerpla fagnar 40 ára afmæli

Fimleikafélagið Gerpla fagnar 40 ára afmæli sínu í ár og setti félagið af því tilefni upp afmælissýninguna Fantasía. Gerpla hefur verið í fremstu röð fimleikafélaga á landinu og í Evrópu allri og síðastliðið haust vann félagið gull á Evrópumótinu í hópfimleikum. Gerpla var á forsíðu Nýtt Líf eftir að hópurinn sem heild hafði verið valin kona ársins í kjölfar þess að hafa orðið Evrópumeistarar. Einnig hjálpuðu stúlkur í félaginu ...

Þrír sprækir kópar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Allar þrjár landselsurtur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í Laugardal í Reykjavík hafa nú kæpt og eru því þrír sprækir kópar sem fylgja mæðrum sínum um í selalauginni og á bökkum hennar. Móðurástin er mjög áberandi hjá urtum, sem láta vel að kópum sínum og gefa þeim orkuríka mjólk fyrstu fjórar til sex vikurnar. Eftir þann tíma bíta urturnar kópana frá sér og þurfa þeir upp frá því að bjarga sér sjálfir....

Fíkniefni fundust við reglubundið umferðareftirlit lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á 2 kg af marijúana og nokkrar kannabisplöntur við leit í bifreið sem stöðvuð var á Suðurlandsvegi á dögunum. Grunsemdir vöknuðu um fíkniefnamisferli þegar bifreiðin var stöðvuð við reglubundið eftirlit en sterka kannabislykt var að finna úr bifreiðinni. Tvær konur á þrítugsaldri, ökumaður og farþegi bifreiðarinnar, voru handteknar og færðar til vistunar. Í bifreiðinni var einnig ungt barn ökumannsins og var barnaverndaryfrvöldum gert viðvart...

Verður kurl notað til að hita hús í Grímsey?

Í dag er Grímsey fjölmennasti þéttbýliskjarni á Íslandi þar sem allt húsnæði er hitað með brennslu jarðefnaeldsneytis. Það gæti breyst bráðlega en í síðustu viku fengu Skógrækt ríkisins, Norðurlandsskógar, Skógræktarfélag Eyfirðinga og Akureyrarbær styrk úr orkusjóði til að kanna hagkvæmni þess að kynda byggðina í Grímey með viðarkurli. Verkefnið felst í að kanna til hlítar möguleika á að nýta norðlenskt grisjunartimbur til að hita upp byggðina í Grímsey í stað olíukyndingar sem þar er nú. Kannaðir verða ýmsir möguleikar...

100 reiðhjól á uppboði hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Um 100 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstkomandi laugardag, 11. júní, klukkan 11. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið verður haldið utandyra við Askalind 2a í Kópavogi. Þar er skjólgott port og því ætti veðrið ekki að setja strik í reikninginn. Væntanlega verður líf og fjör á uppboði lögreglunnar enda á það sér langa sögu og á þeim er jafnan múgur og margmenni. Á síðasta ári...

Bjartmar Guðlaugsson opnar myndlistarsýningu

Margir þekkja Bjartmar Guðlaugsson ef til vill best sem tónlistarmann en honum er margt til lista lagt og í dag opnar hann myndlistarsýningu ásamt því að gefa út bók. Þema myndlistarsýningarinnar er hafið en Bjartmar segir listsköpun sína lengi hafa verið tengda sjómennsku og erfiðu lífi við sjávarsíðuna. Bókin inniheldur ljóð Bjartmars og söngtexta og hann myndskreytir hana sjálfur. Sýningin verður á Sjávarbarnum og Keisaranum...

Börnum frá Kirkjubæjarklaustri boðið á Sumargleði Frístundabílsins í Hafnarfirði

Sumargleði Frístundarbílsins í Hafnarfirði fer fram á Hörðuvöllum á morgun frá kl. 12-15 og er opin öllum Hafnfirðingum. Börnum í Grunnskólanum á Kirkjubæjarklaustri er sérstaklega boðið að vera þátttakendur í Sumargleðinni. Þau verða sótt á Klaustur að morgni og keyrð aftur austur að kveldi. ...

Lögreglan stöðvar kannabisræktun í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í tveimur íbúðum í Hafnarfirði á dögunum. Við húsleit á öðrum staðnum fundust tæplega 60 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar, en á hinum voru um 50 kannabisplöntur, sem voru skemmra á veg komnar. Húsráðandi í annarri íbúðinni er karl á sextugsaldri en í hinni karl og kona, sem bæði eru um tvítugt. Ekki...

Fjölbreytt dagskrá á "Hátíð hafsins" um helgina

Hátíð hafsins verður haldin á Granda í Reykjavík um helgina í tilefni sjómannadagsins. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir unga jafnt sem aldna. Undanfarin tvö ár hefur hátíðin verið haldin vestur á Granda. Þar er Sjóminjasafnið til húsa, þar eru fiskvinnslufyrirtæki, netagerðir og fjölmörg fyrirtæki sem tengjast hafinu...

Kjalnesingar stofna þróunarfélag

Hópur Kjalnesinga kom saman í vikunni og stofnaði með sér félag um atvinnuþróun á Kjalarnesi. Félagið hlaut nafnið Þróunarfélag Kjalnesinga, félaginu voru settar samþykktir og kosin stjórn. Á Kjalarnesi er í dag 11,6% atvinnuleysi, sem er með því mesta í hverfum borgarinnar. Stórum vinnustöðum hefur verið lokað á liðnum árum og mikið af atvinnuhúsnæði á Kjalarnesi sem stendur ónotað....

Japönsk kirsuberjatré gróðursett í Hljómskálagarðinum

Jón Gnarr borgarstjóri tók í gær við 50 japönskum kirsuberjartrjám sem Reykjavíkurborg fékk að gjöf frá Japansk-Íslenska samfélaginu, sem fagnar í ár 20 afmæli sínu, og Íslensk-japanska félaginu, sem fagnar í ár 30 ára afmæli sínu og tákna trén 50 samanlagðan aldur félagana tveggja. Jón Gnarr og hr. Wakita, formaður Japansk-íslenska félagsins, gróðursettu í sameiningu eitt kirsuberjartré og sendiherra Japans á Íslandi færði þakkir fyrir hönd japönsku ríkisstjórnarinnar ...

38% þeirra sem óku um Háteigsveg í gær óku of hratt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði í gær brot 45 ökumanna á Háteigsvegi í Reykjavík en fylgst var með ökutækjum sem óku í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði þeirra sem keyrðu of hratt var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði og sá sem hraðast ók mældist á ...

Undirskriftalisti Barnaheilla afhentur Jóni Gnarr borgarstjóra

Barnaheill – Save the Children á Íslandi afhentu í dag Jóni Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, undirskriftir tæplega 11.000 einstaklinga þar sem þeir skora á yfirvöld að tryggja börnum, sem eru vitni að heimilisofbeldi, tilhlýðilegan stuðning. Rannsókn samtakanna sem kynnt var febrúar leiddi í ljós að þessum börnum standa ekki nægileg úrræði til boða af hálfu félagslega kerfisins í Reykjavík....

Vatnsberinn fluttur á horn Lækjargötu og Bankastrætis

Borgarráð hefur samþykkt að höggmyndin Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson verði flutt ofan af holtinu við Veðurstofu Íslands og hún staðsett á horni Lækjargötu og Bankastrætis, samkvæmt tillögu Listasafns Reykjavíkur. Ásmundur var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar. Hann lauk við Vatnsberann árið 1937 og er hann eitt þekktasta verk hans....

20% sölustaða í Hafnarfirði selja börnum tóbak

Forvarnafulltrúi Hafnarfjarðar stóð fyrir könnun á því hvort unglingar gætu keypt sígarettur á sölustöðum tóbaks í Hafnarfirði. Í 20% tilfella gátu unglingarnir keypt sígarettur. Tveir unglingar úr 10. bekk fóru á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur. 4 sölustaðir seldu unglingunum tóbak af 20 sölustöðum sem eru aðgengilegir ungu fólki....

Rösklega 200 dagforeldrar í Reykjavík

Dagforeldrum í Reykjavík hefur fjölgað um þrjátíu frá áramótum og eru þeir nú rösklega 200 að störfum. Markvisst átak til að fjölga dagforeldrum hófst í lok síðasta árs og lauk stór hópur réttindanámi í byrjun ársins, eða 35 manns. Tæplega 900 börn dvelja um þessar mundir hjá dagforeldrum í Reykjavík....

Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu vel undir heilsuverndarmörkum

Í dag hafa loftgæði á höfuðborgarsvæðinu verið mjög góð og vel undir heilsuverndarmörkum (50 µg/m3 að meðatali á sólarhring). Hæsta gildi sem hefur mælst á Grensásvegi frá miðnætti er um 42 µg/m3. Á Selfossi hafa svifryksmælingar farið lítið eitt hækkandi frá um klukkan 10 í morgun og um klukkan 13:00 var klukkustundargildið 85 µg/m3. Við þær aðstæður geta viðkvæmir einstaklingar fundið fyrir einhverjum einkennum....

Fundur með foreldrum um skaðsemi kannabis

Fimmtudaginn 26. maí fer fram málþingið Bara gras? og er því ætlað að fræða foreldra um skaðsemi kannabisreykinga. Málþingið verður haldið í Háteigsskóla klukkan 19:30 og eru allir, sérstaklega foreldrar, hvattir til að mæta. Á málþinginu munu fulltrúar frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu flytja erindi um skaðsemi kannabis og annara fíkniefna. Þær Áslaug Einarsdóttir, Andrea Marel og Elísa Snæbjörnsdóttir verkefnastjórar Kamps munu fjalla...

Lýsi hf hlaut umhverfisviðurkenningu Faxaflóahafna

Umhverfisviðurkenning Faxaflóahafna sf. var veitt í fimmta sinn á aðlfundi Faxaflóahafna á dögunum. Fyrirtækið Lýsi hf. var fyrir valinu að þessu sinni. Lýsi hf er leiðandi fyrirtæki í vinnslu afurða til manneldis úr sjávardýraolíum. Nú liggur fyrir hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík umsókn um stækkun verksmiðjunnar, til að anna aukinni eftirspurn á erlendum mörkuðum....

Mikið um hraðakstur í Reykjavík í dag

Mikið var um hraðakstur í Reykjavík í dag en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði alls 233 ökumenn sem óku of hratt. Lögreglan fylgdist sérstaklega með akstri á tveimur stöðum í dag og var klukkutíma á hvorum stað fyrir sig. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stekkjarbakka í vesturátt, við Vatnsveituveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi fóru 580 ökutæki þessa akstursleið og óku 187 of hratt ...

Laugarvegur verður Mannréttindavegur

Reykjavíkurborg endurnefnir Laugarveg næsta laugardag, þann 28. maí, í tilefni af 50 ára afmæli Amnesti International og mun vegurinn þá heita Mannréttindavegur. Það verður margt um að vera í tilefni afmælisins og verður meðal annars farið í Mannréttindagöngu frá Kjörgarði við Laugarveg og segir á heimasíðu Amnesty á Íslandi að þannig geti fólk gengið Mannréttindaveginn í átt að heimi þar sem allir fái notið mannréttinda...

Fleiri þurfa fjárhagaðstoð í Kópavogsbæ

Mun fleiri þurftu fjárhagsaðstoð frá Kópavogsbæ árið 2010 en árið á undan og er aukningin 60 fjölskyldur og einstaklingar eða 60 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársskýrslu Félagsþjónustu Kópavogs fyrir árið 2010. Árið 2010 var veitt aðstoð að upphæð 230 milljónir króna samanborið við 170 milljónir króna árið 2009 og er munurinn þar á milli 60 milljónir króna. Árið 2010 nutu 555 fjölskyldur og einstaklingar aðstoðar en árið á undan var sú tala 495...

Kjalnesingar opna endurvinnslustöðina sem Sorpa læsti með hengilásum fyrir 4 vikum

Íbúar Kjalarness vilja aðgerðir í endurvinnslumálum sínum. Til að knýja á um það var endurvinnslustöðin á Kjalarnesi opnuð í dag kl 16. „Þetta er algjörlega óþolandi ástand að geta ekki losnað við garða- og jarðvegsúrgang hér á Kjalarnesi“ sagði einn íbúi og bætti við: „Það dettur ekki nokkrum heilvita manni í hug að keyra 30 km vegalengd með þennan endurvinnsluúrgang niður í bæ."...

Reykjavíkurborg ætlar að minnast leiðtogafundarins

Þess verður minnst í haust að 25 ár eru liðin frá því að leiðtogafundur Ronalds Reagans, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og Mikhails Gorbatsjovs, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna, var haldinn í Höfða í Reykjavík þann 11. október árið 1986. Borgarráð hefur skipað starfshóp sem hefur verið falið að koma með tillögu að dagskrá og fjárhagsramma verkefnisins. Starfshópinn skipa: Eva Einarsdóttir, formaður hópsins, Heiða Kristín Helgadóttir, Hjálmar Sveinsson, Kjartan Magnússon og Rúna Malmquist....

Svifryk yfir mörkum í Reykjavík í dag

Styrkur svifryks verður sennilega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, 19. maí. Ástæðan er uppþyrlun ryks og úr umhverfi og af umferðargötum. Aðalmælistöðin við Grensásveg og farstöð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sýna svifryksgildi yfir heilsuverndarmörkum. Styrkur svifryks 878 míkrógrömm á rúmmetra við Grensásveg klukkan 11.30 í morgun, en heilsuverndarmörkin eru 50....

Hafnarfjarðarbær boðar áframhaldandi aðhald í rekstri

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2010 var tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í gær. Meginniðurstaða ársreikninganna er að afkoma bæjarsjóðs er jákvæð. Enn gætir áhrifa efnahagshrunsins í rekstri sveitarfélagsins, tekjur hafa lækkað, útgjöld til félagsmála hafa hækkað og skuldir hafa stökkbreyst vegna verðlags- og gengisbreytinga....

Obama í heimsókn í Hafnarfirði

Í gærmorgunn kom Zarah Obama í heimsókn á leikskólann Stekkjarás í Hafnarfirði. Hún er var gift afa Barack Obama Bandaríkjaforseta og er því titluð langamma forsetans. Hún er hér á landi á vegum Paul Ramses Oduor til að kynna sér skólamál hér á landi og vekja athygli Íslendinga á verkefni sem í gangi er í Kenýja, heimaland Zarah....

Breiðholtslaug fagnar 30 ára afmæli

Breiðholtslaug fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir. Vegleg dagskrá verður dagana 20 .- 27. maí þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Meðal annars verður boðið upp á diskó, prjónakaffi, þrautabraut, harmonikkuleikur, pottaspjall og mælingar hjá hjúkrunarfræðing....

Viðsnúningur í rekstri borgarinnar

Ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram á fundi borgarstjórnar í dag. Þar kemur fram að afkoma borgarsjóðs var mun betri á síðasta ári en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 13.671 mkr árið 2010 en árið 2009 var hún neikvæð um 1.650 mkr. Þessi viðsnúningur skýrist einkum af auknum tekjum A-hluta og gengishagnaði í samstæðunni...

Sjö ný "hús" í Öskjuhlíð

Í Öskjuhlíð hafa verið reist 7 hús á síðustu dögum sem koma til með að standa þar í nokkra daga. Þessi mannvirki hafa nemendur í byggingartæknifræði við HR og arkitektanemar við LHÍ hannað og byggt í námskeiðinu Hönnun, ferli, framkvæmd, undir leiðsögn Björns Guðbrandssonar arkitekts....

Hreinsun hafin í Öskjuhlíðinni

Hreinsun í Reykjavíkurborg er hafin, garðeigendur eru í óða önn að ljúka við vorverkin og borgarstarfsmenn vinna nú hörðum höndum við hreinsunarstörf. Hafist var handa við hreinsun í Öskjuhlíð í gær, þar voru á ferð starfsmenn frá framkvæmda- og eignasviði borgarinnar og kraftmikill hópur frá sjálfboðaliðasamtökunum SEED. Alls voru tólf manns að störfum við hreinsun í Öskjuhlíð....

Borgarbúar hvattir til að gefa öndum lítið brauð í sumar

Borgarbúar eru beðnir um að stilla brauðgjöf við Tjörnina í hóf eða hætti henni alveg á sumrin til að koma í veg fyrir að mávar fái of mikið í gogginn og svo er brauð gagnslaust fyrir andarunga á sumrin. Ör fjölgun máva í þéttbýli síðastliðin ár stafar af minni sílagengd í sjó en áður - en ekki síður af umgengni borgarbúa. Mávurinn leitar víða inn í borgina en gott ráð til að fækka honum er að skilja aldrei eftir óvarðar matarleifar, ganga vel frá öllum matarúrgang...

Viðsnúningur í rekstri Kópavogsbæjar

Rekstrarafkoma Kópavogsbæjar á árinu 2010 var betri en ráð var gert fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Hún var jákvæð um 1.032 milljónir króna en árið á undan var hún neikvæð upp á 4.068 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða bæjarins varð 988 milljónum krónum betri en áætlunin .Þetta er meðal þess sem fram kemur í ársreikningi bæjarins fyrir árið 2010. ...

Ætla að hlaupa 94 km leið á landsþing Landsbjargar á Hellu

Félagar í Hjálparsveit skáta í Garðabæ ætla að hlaupa boðhlaup frá Jötunheimum í Garðabæ til Hellu, á landsþing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, sem verður haldið þar um næstu helgi. Leiðin er 94 kílómetrar og er áætlað að hlaupið verði í 10-12 klukkutíma....

1900 sumarstörf í boði hjá Reykjavíkurborg

Nú er verið að vinna í því hjá Reykjavíkurborg að fara yfir mikinn fjölda umsókna sem borist hafa vegna sumarstarfa hjá borginni, en störfin verða um 1.900 talsins í sumar. Reykjavíkurborg setti 78 milljónir til viðbótar í sumarstörf handa ungu fólki og er áætlað að ráða í ríflega 700 störf vegna hennar....

Heita vatnið 70% dýrara í Reykjavík en á Seltjarnarnesi

Heita vatnið í Reykjavík er nú rúmlega 70% dýrara en hjá nágrannasveitafélaginu Seltjarnarnesi og 35% dýrara en í Mosfellsbæ eftir síðustu hækkun Orkuveitu Reykjavíkur 3. maí, en þá hækkaði heita vatnið um 8%....

Nýr viti á Skarfagarði í Sundahöfn

Nýr viti hefur verið reistur á endanum á Skarfagarði í Sundahöfn. Skarfagarður og aðliggjandi svæði hefur verið að taka breytingum m.a. með opnun á aðgengis að sandströnd við Skarfaklett. Þá verður gönguleið fram á enda Skarfagarðs malbikuð á næstu dögum....

Undirritun samnings um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð

Það var líf og fjör um alla Öskjuhlíð og í Nauthólsvík á laugardaginn þegar Öskjuhlíðardagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn. Tilefni hátíðarinnar var undirritun samkomulags um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð með það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði....

Mosfellingar efla heilsu og heilbrigt líferni

Lögð verður mikil áhersla á heilsuna og heilbrigt líferni í Mosfellsbæ í næstu viku. Daganna 9. til 14. stendur Mosfellsbær fyrir heilsuviku og er þetta í fjórða sinn sem slík heilsuvika haldin. Markmið hennar er að efla heilsu Mosfellinga og vekja athygli á heilbrigði líferni. Í heilsuvikunni munu veitingastaðir bjóða upp á heilsurétti, flutt verða erindi...

Menningarhátið í Kópavogi

Kópavogsdagar, árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar, hófst í gær í áttunda sinn og mun standa til 14. maí. Dagskráin er fjölbreytt og samkvæmt vef Kópavogsbæjar eiga dagarnir að gefa innsýn það mikla og frjóa menningarstarf sem á sér stað í bænum. Flestir viðburðir eru ókeypis en boðið verður upp á tónleika, fjölmargar myndlistarsýningar...

Flóamarkaður á Eiðistorgi

Síðasta sumar var mikið um flóamarkaði víðsvegar um höfuðborgarsvæðið og ætla íbúar á Seltjarnarnesi að endurtaka leikinn í ár. Í dag, á milli 13-17, verður flóamarkaður á Eiðistorgi. Þar er öllum frjálst að kaupa og selja án gjalds og gestir og gangandi geta skoðað vöruúrvalið og keypt sér kaffi og með því. Á facebook síðu markaðarins segir...

Leiðarvísir fyrir notkun á upplýsingatækni í leikskólastarfi gefinn út

Töfraveggurinn er heiti á verkefni sem ætlað er virkja leikskólabörn í markvissri vinnu með tölvu og upplýsingatækni. Leikskólinn á Bakka hefur mikið notað upplýsingatækni í skapandi starfi undanfarin ár. Reynslan þar sýnir að hægt sé að nýta tölvur mikið betur í skemmtilegu starfi með börnum og hefur starfið á Bakka hlotið mikla athygli. Raunar svo mikla að ákveðið...

Öskjuhlíðardagurinn haldinn í fyrsta sinn

Öskjuhlíðardagurinn verður haldinn í fyrsta sinn á morgun, laugardaginn 7. maí. Tilefni dagsins er undirritun samkomulags um stofnun starfshóps sem ætlað er að móta samstarf Reykjavíkurborgar, Háskólans í Reykjavík og Skógræktarfélags Íslands um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð með það að markmiði að styrkja svæðið sem náttúruperlu, útivistar- og kennslusvæði....

Farfuglaheimilin í Reykjavík og Winnipeg í samstarf

Bandalag íslenskra farfugla og systursamtök þeirra í Kanada hafa hafið samstarf sína á milli en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð síðastliðið sumar. Samtökin vilja vinna að því sameiginlega markmiði sínu að efla ferðalög milli þessara tveggja landa....

Svavar Knútur og Hljómsveitin Ég í rafmagnsleysi á Norðurpólnum

Í kvöld mun Svavar Knútur og Hljómsveitin Ég halda órafmagnaða tónleika á Norðurpólnum auk þess sem að hljómsveitin Flugdrekafélagið kemur í fyrsta skipti fram opinberlega. Tónleikarnir munu hefjast á slaginu 21:00 en húsið opnar klukkutíma fyrr. Miðaverð er 1500 krónur en hægt að fá 10% afslátt af miðverði...

Ókeypis dagblöð fyrir farþega í strætó

Frá og með deginum í dag munu farþegar í 22 strætisvögnum Strætó BS geta nælt sér í ókeypis dagblöð í vagninum til að lesa á meðan á ferðinni stendur. Markmiðið er að gera ferðalagið með strætó enn ánægjulegra. Þeir sem vilja geta einnig tekið blöðin með sér að ferð lokinni til að lesa síðar....

Nýr sameinaður leikskóli fær nafnið Bakkaberg

Foreldrar og starfsfólk í leikskólunum Bakka og Bergi, sem sameinaðir voru á síðasta ári, hafa ákveðið að nöfn skólanna skuli líka sameinuð. Leikskólinn, sem starfræktur er í Grafarvogi og á Kjalarnesi, skuli því heita Bakkaberg. ...

5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á. Minnt er á að nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk, og raunar sömuleiðis fyrir hvern óhæfan hjólbarða eins og það er orðað í reglugerð um sektir vegna brota á umferðarlögum, og því betra að taka þau undan hið fyrsta....

Elsa Hrafnhildur er nýr forseti borgarstjórnar

Elsa Hrafnhildur Yeoman var kjörin forseti borgarstjórnar á borgarstjórnarfundi í dag. Björk Vilhelmsdóttir var kjörin 1. varaforseti og 2. varaforseti Óttarr Ólafur Proppé. Forseti og varaforseti borgarstjórar eru yfirleitt kjörnir til eins árs, en þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, sem áður gegndu embættum forseta og 1. varaforseta báðust lausnar var kosið að nýju í dag...

Gera á Reykjavík að ráðstefnuborg

Gera á Reykjavíkurborg að vinsælum áfangastað ferðamanna utan háannatíma samhliða því að setja Ráðstefnuborgina Reykjavík í forgrunn.Eru þetta aðal markmið Ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar 2011-2020 sem samþykkt var á borgarstjórnarfundi í dag. Samkvæmt stefnunni á einnig að efla nýsköpun og vöruþróun í ferðaþjónustu í Reykjavík...

Samkeppni um nafn á nýjum sérskóla

Reykjavíkurborg efnir til samkeppni um nafn á nýjum sameinuðum sérskóla í Reykjavík sem varð til með sameiningu Safamýrarskóla og Öskjuhlíðarskóla. Mun skólinn taka til starfa þann 1. ágúst næstkomandi. Tillögur þarf að senda inn fyrir 6. maí...

15 metra reglan tekur gildi 1. júní

Frá og með 1 júni mun Sorphirðan aðeins sækja sorptunnur sem eru innan við 15 metra frá mögulegri stoppustöð sorphirðubíls. Mælingum vegna reglunar lýkur bráðlega og munu þeir sem hafa tunnur fyrir utan 15 metra fá send bréf þess efnis og hafa þeir maí mánuð til að bregðast við. Fyrir þá sem hafa tunnur sínar í meira en 15 metra fjarlægð frá stoppustöð er hægt að kaupa sérstaka þjónustu...

Fíkniefni og þýfi haldlagt í Breiðholti

Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Breiðholti í Reykjavík fyrir helgina, en þeir voru gripnir við sölu á fíkniefnum. Lögreglan hafði fylgst með ferðum þeirra en kaupandinn, karl á fertugsaldri, var sömuleiðis handtekinn. Í bíl fíkniefnasalanna fundust rúmlega 30 grömm af marijúana og var það ætlað til sölu....

Íbúar á Kjalarnesi innsigla Sorpu

Íbúar á Kjalarnesi hafa innsiglað hlið endurvinnslustöðvar Sorpu á Kjalarnesi. Í framhaldi af skilti sem Sorpa setti upp í lok síðustu viku um lokun endurvinnslustöðvarinnar er komið annað skilti sem segir „innsiglað af íbúum Kjalarness“....

70 ára Reykvíkingar heiðraðir í Ráðhúsinu

Liðlega 300 manns sóttu móttöku til heiðurs 70 ára Reykvíkingum í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær, 1. maí. Jón Gnarr, borgarstjóri, hélt stutt ávarp í upphafi móttökunnar. Þar rifjaði hann upp helstu viðburði á fæðingarári gestanna, árið 1941....

Frá pönki í borgarstjórastól

Seta Jóns Gnarr á borgarstjórastóli heldur áfram að vekja athygli umheimsins. Nú er fjallað um hann í vefútgáfu þýska blaðsins Spiegel þar sem fjallað er um pönk ár hans og leikferil, Besta flokkinn og auðvitað setu hans á borgarstjórastjóli. Greinin dregur upp mynd af Jóni Gnarr sem gömlum pönkara í nýju og óvenjulegu hlutverki. Á borgarstjórans í pönki eru rifjuð upp og ýmislegt sem hann gerði þá eins og að...

Stúdentsefni óðu út í Tjarnarhólmann

Í dag kvöddu dimitantar Menntaskólans í Hamrahlíð kennara og aðra starfsmenn skólans. Fyrst í morgun var öllum boðið í morgunmat á Matgarði skólans og síðan var kveðjuathöfn á sal. Eftir það fóru tilvonandi stúdentar í miðbæ Reykjavíkur og skemmtu sér þar konunglega. Tveir MH-ingar gerðu að gamni sínu og óðu út í Tjarnarhólmann í Reykjavíkurtjörn eins og sjá má á myndinni. ...

Free Stöff veggurinn opinn allan sólarhringinn!

Undanfarin ár hafa hjónin Þórgnýr og Rúna Vala ásamt öðrum íbúum Frakkastígs 19 í Reykjavík staðið fyrir "Free Söff" veggnum á Frakkastíg. Þar er hægt að koma með alskyns dót sem hætt er að gegna sínum tilgangi...

46 leikskólastjórnendum sagt um mánaðamótin

46 stjórnendur í leikskólum, sem sagt verður upp nú um mánaðamótin, eiga allir möguleika á að sækja um ýmis störf hjá leikskólunum, s.s. starf leikskólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra eða deildarstjóra, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar....

Kannabisræktun í Breiðholti

Á skírdag fundust um 50 kannabisplöntur sem vógu rúmlega tvö kíló í húsleit í Breiðholti. Samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafði maður samband við lögregluna eftir að hafa fundið kannabislykt á stigagangi í blokk þar sem hann var gestkomandi. Gerði lögreglan húsleit í kjölfarið...

17 ára á 157 km. hraða í Ártúnsbrekku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi bifreið sem mældist á 157 km. hraða og var ökumaðurinn 17 ára. Mun ökumaður þurfa að greiða háa sekt og verður hann sviptur ökuleyfi...

Kópavogur: Litrík fuglahús hljóta umhverfisverðlaun

Verk leikskólabarnanna á deildinni Steinholti á Kópasteini í Kópavogi hlaut verðlaun í listaverkasamkeppni Græns apríls. Erla Vigdís Kristinsdóttir leikskólakennari átti hugmyndina að verkinu sem eru fuglahús úr mjólkurfernum....

Búið að velja í ljósmyndasamkeppni Hafnarfjarðar

Hafnarfjarðarbær hefur valið sex ljósmyndir sem bárust í ljósmyndsamkeppni sem auglýst var fyrr í vetur undir heitinu "að fanga stemmningu Hafnarfjarðar". Myndirnar verða sendar til vinabæjar Hafnarfjarðar, Tartu í Eistlandi, og þær sýndar á útistandi í miðbæ Tartu, en allir vinabæir norræna samstarfsins fá einn stand til umráða....

370 hlauparar í Víðavangshlaupi ÍR

96. Víðavangshlaup ÍR fór fram í frekar kuldalegu veðri, roki og rigningu, í miðbæ Reykjavíkur í gær, sumardaginn fyrsta. Alls tóku 370 hlauparar á öllum aldri þátt í hlaupinu, sem einnig var liður í Powerade mótaröðinni. Sigurvegarar urðu þau Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni og Þórólfur Ingi Þórsson úr ÍR. ...

Barnabókaverðlaun menntaráðs veitt

Kristjana Friðbjörnsdóttir og Böðvar Guðmundsson hlutu barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar í gær en verðlaunin eru veitt fyrir barnabækur sem þykja skara fram úr. Kristjana hlaut verðlaunin fyrir fyrir bókina Flateyjarbréfin...

Hanna Birna hættir sem forseti borgarstjórnar

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, og Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna, hafa ákveðið að hætta sem forseti og 1. varaforseti borgarstjórnar. Þær hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þess efnis....

Segja að sameining skóla stangist ekki á við lög

Allar fyrirhugaðar sameiningar leik- og grunnskóla í Reykjavík eru í fullu samræmi við lög nr. 90/2008 um leik- og grunnskóla, að því er fram kemur á heimasíðu Reykjavíkurborgar. "Nýju lögin opnuðu á möguleika á samrekstri skóla sem mörg sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni hafa nú nýtt sér."...

Útskriftarsýningar nemenda í Listaháskóla Íslands

Þessa vikuna munu nemendur í Listaháskóla Íslands standa fyrir tveimur útskriftarsýningum. Annars vegar er það tískusýning útskriftarnema í fatahönnun og svo er það sýning á verkum nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskólans. Tískusýningin fer fram fimmtudaginn þann 21. apríl...

Stöður sviðsstjóra mennta- og leikskólasviðs lagðar niður

Borgarráð hefur samþykkt að hafinn skuli undirbúningur að sameiningu leikskóla- og menntasviðs. Stöður sviðsstjóra mennta- og leikskólasviðs verða lagðar niður og staða sviðsstjóra sameinaðs sviðs auglýst laus til umsóknar. Borgarstjóra hefur verið falið að skila tillögu að sameiningu ásamt umsögn stjórnkerfisnefndar í byrjun maí en stefnt er að því að nýr sviðsstjóri taki til starfa eigi síðar en 1. júlí næstkomandi....

Hvetja foreldra leikskólabarna til að mæta á pallana í Ráðhúsinu

Börnin okkar, samtök foreldrafélaga og foreldraráða leikskóla Reykjavíkur, hvetja foreldra leikskólabarna til að mæta á pallana í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, þriðjudag, þegar sameiningar og áframhaldandi niðurskurður í menntakerfinu verður ræddur. Borgarstjórnarfundur hefst kl. 14:00 og verða leikskólamál fyrst á dagskrá. ...

Veiði í Elliðavatni hefst á miðvikudag

Elliðavatn verður opnað veiðimönnum að morgni 20. apríl næstkomandi, eða eftir þrjá daga, og hefst sala veiðileyfa strax í fyrramálið. Verð veiðileyfa verður óbreytt frá fyrra ári, en veiðileyfin verða til sölu hjá SVFR. Í sumar verður heill dagur seldur á 1.200 krónur og sumarkort verður á 13.500 krónur...

Borgin styrkir björgunarsveitir um 8 milljónir á ári

Undirritaður var styrktarsamningur milli björgunarsveita í Reykjavík og Reykjavíkurborgar sl. föstudag. Samningurinn er til þriggja ára, árleg upphæð til sveitanna er 8 milljónir og heildarupphæð á samningstímabilinu 24 milljónir króna...

Reykjavíkurborg opnar upplýsingavef á pólsku

Jón Gnarr borgarstjóri opnaði í gær upplýsingavef á pólsku um þjónustu borgarinnar á kaffihúsinu C is for Cookie sem er rekið af Pólverjunum Agnieszka Sokolowska og Stanislaw Zawada. Fram kom á Fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar sem haldið var 6. nóvember 2010 að helsta umkvörtunarefni innflytjenda væri skortur á upplýsingum. ...

Garðbæingar komnir í 11.000 íbúa!

Garðbæingar náðu tölunni 11 þúsund 24. mars sl. þegar lítil stúlka sem búsett er í Sjálandshverfi kom í heiminn. Stúlkan, sem hefur ekki hlotið nafn ennþá, er dóttir þeirra Guðrúnar Gyðu Franklín og Gunnars Logasonar. ...

Háskólahlaupið 2011

Í dag fór Háskólahlaupið 2011 fram og var gert ráð fyrir mettþáttöku í ár en um 400 manns skráðu sig í hlaupið. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 3 eða 7 km og hægt er að taka tíma á þáttakendum sé þess óskað. Boðið var upp á æfingar fyrir hlaupið í mars og það sem af er apríl og hafa þær verið vel sóttar. ...

Menningarstyrkir veittir í Hafnarfirði

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar veitti á dögunum styrki til lista og menningarstarfsemi. Veittir voru 20 styrkir og fór athöfnin fram í Hafnarborg. Styrkfjárhæð var samtals kr. 4.870.000. Hæstu styrkina í ár, 800 þúsund krónur, hlutu Leikfélag Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir....

Endurgerð Krýsuvíkurkirkju gengur vel

Eitt af fjölmörgum verkefnum sem Byggðasafn Hafnarfjarðar tekur þátt í þessa dagana er endurgerð Krýsuvíkurkirkju en það verk er unnið í samvinnu við Iðnskólann í Hafnarfirði, Vinafélag Krýsuvíkurkirkju, Þjóðminjasafn Íslands og Húsafriðunarnefnd ríkisins....

Fyrirliggjandi samningur við SÁÁ upp á 14 milljónir

Hjá Velferðarsviði Reykjavíkur eru fyrirliggjandi drög að samningi við SÁÁ um þjónustu fyrir 14 milljónir króna. Gerð samningsins var samþykkt á fundi velferðarráðs í síðasta mánuði. Af hálfu Reykjavíkurborgar er fyrirhugað að leggja til að samningurinn verði undirskrifaður fyrir páska og að hann gildi frá 1. janúar 2011....

Vatnstjón á tugum heimila í Árbæjarhverfi

Tjón varð á nokkrum tugum heimila í Árbæjarhverfinu sunnan og vestanverðu í gærkvöldi í tengslum við bilun sem varð í hitaveitunni um kvöldmatarleytið, að því er fram kemur á vef Orkuveitunnar. Hugsanlegt er að tjón hafi orðið víðar en þegar er orðið vart. Verði fólk vart við leka er skorað á það að gæta varúðar vegna brunahættu....

Öll börn fædd 2009 fá leikskólapláss í Reykjavík

Foreldrar um 1.300 barna, sem fædd eru á árinu 2009 eða fyrr, hafa fengið boð um leikskólavistun eftir sumarleyfi í ágúst, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. Innritun barna í leikskóla Reykjavíkur stendur nú sem hæst, en eftir er að innrita á bilinu 200 og 300 börn. Stefnt er að því að öll börn fædd 2009 fái boð um leikskólapláss á árinu. ...

Vatnsmýrin verði "Opin rannsóknarstofa"

Háskóli Íslands, Norræna húsið og Reykjavíkurborg hafa ákveðið að hefja endurbætur á friðlandinu í Vatnsmýrinni. Samningur þar að lútandi var undirritaður í dag. Leitað hefur verið álits sérfræðinga innan og utan háskólans til þess að tryggja að framkvæmdirnar verði sem jákvæðastar fyrir lífríkið....

Fíkniefnasali handtekinn í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði á föstudag. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann að fíkniefnin, 20 grömm af amfetamíni, hefðu verið ætluð til sölu. Við húsleitina naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og fíkniefnaleitarhunds frá tollinum....

Yngt upp í borgarstjórn

Á morgun munu fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna sitja borgarstjórnarfund í Ráðhúsi Reykjavíkur ásamt borgarfulltrúum. Fundurinn fer fram í fundarsal borgarstjórnar og hefst kl. 14. Átta fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna sitja fundinn ásamt sjö borgarfulltrúum og því má segja að ungt fólk myndi tímabundið meirihluta í stjórn borgarinnar....

Sterk fjárhagsstaða Garðabæjar

Niðurstaða ársreiknings Garðabæjar fyrir árið 2010 ber vott um sterka fjárhagsstöðu bæjarins í erfiðu árferði. Rekstarafgangur ársins nam 611 millj. kr. Rekstrartekjur Garðabæjar nema samtals 5.770 millj. kr. og voru 282 millj. kr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir....

Áhugi á lóðum í Kópavogi að glæðast

Áhugi eftir lóðum í Kópavogi virðist vera að glæðast. Dregið var á milli tveggja umsókna um lóð í Dalaþingi 25 í Kópavogi á fundi bæjarráðs Kópavogs í morgun. Þetta er í annað sinn sem dregið er á milli umsækjenda um lóð í Kópavogi eftir hrun. ...

Garðabær gerir samstarfssamning við GKG, Odd og Andvara

Í síðustu viku undirritaði Garðabær samstarfssamninga við golfklúbbana GKG og Odd, auk hestamannafélagsins Andvara. Í samningunum er kveðið á um fastar fjárhæðir frá Garðabæ til þessara félaga varðandi almennan rekstur og barna- og unglingastarf sérstaklega. ...

Fjórðungur ökumanna ók of hratt á Kársnesbraut í Kópavogi

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, gegnt Marbakkabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 256 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða....

200 manns á íbúafundi um gerð deiliskipulags í Arnarnesi

Nærri tvö hundruð manns mættu á íbúafund um gerð deiliskipulags í Arnarnesi sem haldinn var í Sjálandsskóla í síðustu viku. Skipulagsnefnd Garðabæjar boðaði til fundarins. Í líflegum umræðum um málið að loknum kynningum var helst rætt um nýtingarhlutfall íbúðarlóða, skipulag opna svæðisins á háholtinu, trjágróður og göngu- og hjólreiðarstíga....

Útibú Landsbankans í Hafnarfirði sameinuð

Í gær voru útibú Landsbankans í Hafnarfirði sameinuð í endurbættu og húsnæði að Fjarðargötu 9. Húsnæði Landsbankans við Bæjarhraun hefur verið lokað. Sameinað útibú verður mjög vel í stakk búið til að mæta kröfum viðskiptavina, jafnt einstaklinga sem fyrirtækja...

Austurstræti verður göngugata

Framkvæmdir eru hafnar við að breyta Austurstræti milli Lækjargötu og Pósthússtrætis í göngugötu. Ásýnd strætisins breytist nokkuð því grænu stálpollarnir sem liggja eftir endilöngu strætinu við núverandi bílastæði verða fjarlægðir og skapast þar svigrúm fyrir mannlífið í götunni. Trén í götunni verða áfram. ...

13 líkamsárásir í höfuðborginni um helgina

Þrettán líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags. Þá fann lögreglan fíkniefni við húsleit í íbúð í Breiðholti á föstudag. Þar var einnig lagt hald á muni sem grunur leikur á að sé þýfi....

Sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu funda í dag

Kjörnir sveitarstjórnarmenn og lykilembættismenn frá öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu koma saman um helgina til að móta sameiginlega framtíðarsýn og setja fram hugmyndir um bestu leiðir í samvinnu og samstarfi á svæðinu. ...

Gerð verður óháð úttekt á stöðu og rekstri OR

Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gærkvöld aðgerðaráætlun vegna Orkuveitu Reykjavíkur. Þá var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum tillaga um að fela borgarstjóra að láta fara fram óháða úttekt á stöðu og rekstri OR....

Opnist árið 2040!

Í dag fékk Borgarskjalasafn afhent til varðveislu frá Borgarbókasafni sérstakan minningarkassa um John Lennon. Borgarbókasafn mun taka aftur við kassanum og opna hann við hátíðlega viðhöfn þriðjudaginn 9. október 2040. Tilgangur íslenska kassans var m.a. að gefa aðdáendum Lennons hér á landi færi á að senda ýmislegt tengt honum og friðarboðskap hans inn í framtíðina....

Hjúkrunarheimili rís í Garðabæ - skapar 120 ársverk

Fyrsta skóflustungan að nýju hjúkrunarheimili og þjónustuseli fyrir eldri borgara í Garðabæ var tekin í gær. Hjúkrunarheimilið verður fyrir 60 heimilismenn og er hannað eftir hönnunarviðmiði velferðarráðuneytisins sem m.a. gerir ráð fyrir einbýlum. Framkvæmdatími er 20 mánuðir....

Grænir dagar í Háskóla Íslands

GAIA, félag meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands, stendur frá 30. mars til 1. apríl (miðvikudag til föstudags) fyrir Grænum dögum í skólanum. Markmið daganna er að vekja nemendur og nærumhverfi skólans til umhugsunar um umhverfismál....

Nemendur í Garðaskóla frábærir í PISA

Nýlega voru kynntar niðurstöður á PISA 2009, sem er rannsókn OECD á færni nemenda í 10. bekk, í lesskilningi, læsi í stærðfræði og náttúrufræði. Vorið 2009 tóku nemendur í 10. bekk Garðaskóla í Garðabæ þátt í þessari rannsókn eins og jafnaldrar þeirra í öllum skólum á Íslandi....

Músíktilraunir í fullum gangi

Músíktilraunir 2011 hafa staðið að undanförnu í Tjarnarbíói í Reykjavík. Lokaundanúrslitakeppnin fer fram í kvöld. Sex hljómsveitir eru þegar komnar í lokakeppnina og síðan ræðst það í kvöld hvaða tvær hljómsveitir bætast við. Úrslitakvöldið verður síðan 2. apríl í Íslensku Óperunni....

Ása ráðin jafnréttisráðgjafi Kópavogsbæjar

Ása Arnfríður Kristjánsdóttir, lögfræðingur hjá Kópavogsbæ, hefur tekið við verkefnum jafnréttisráðgjafa hjá bænum. Jafnréttisráðgjafi starfar með jafnréttis- og mannréttindaráði og sér m.a. um að fylgja eftir jafnréttisstefnu bæjarins í samvinnu við ráðið og bæjaryfirvöld....

Ábyrgð fylgir orði hverju, segir bæjarstjórinn í Hafnarfirði

Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur skrifað mánudagspistla á heimasíðu bæjarins að undanförnu. Í dag gerir hann að umræðuefni hve mikil áhrif það geti haft út á við að vera með gáleysislega umræðu um fjármál. Þar vitnar hann til frétta af ummælum Jóns Gnarr borgarstjóra um fjármál Orkuveitunnar í Fésbókarfærslu sinni....

Hringekja HR og Hlíðaskóla

Á annað hundrað grunnskólanemenda úr Hlíðaskóla tók á dögunum við viðurkenningu fyrir að hafa tekið þátt í Hringekju HR. Hringekjan er samstarf Háskólans í Reykjavík við efri deildir grunnskólanna. Markmið þess er að gefa grunnskólanemendum nýja sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra og áhuga á tækni- og raungreinum....

14% ökumanna yfir hámarkshraða á Bústaðavegi

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, að Litluhlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 501 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði....

Álftanesskóli sigurvegari í "Veistu svarið"

Síðastliðinn mánudag, þann 21. mars sl., sigraði lið Álftanesskóla spurningakeppni ÍTH og grunnskólanna, "Veistu svarið". Eftir spennandi úrslitaviðureign sigraði lið Álftanesskóla lið Víðistaðaskóla 27-21....

Undirbúa að senda inn stjórnsýslukæru verði af lokun Sorpu

Hafinn er undirbúningur þess að senda inn stjórnsýslukæru verði af lokun Sorpu á Kjalarnesi. Íbúasamtök Kjalarness hafa sent frá áskorun til borgarstjórnar vegna samþykktar borgarráðs að leggja skuli af endurvinnslustöð Sorpu á Kjalarnesi...

Bjarni ráðinn upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar

Bjarni Brynjólfsson hefur verið ráðinn upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar. Bjarni er 47 ára gamall fjölmiðlafræðingur frá Polytechnic of Central London (nú University of Westminster). Hann á að baki langan feril á sviði fjölmiðla og almannatengsla auk ýmissa tengdra sviða. ...

Kannabisræktun í íbúð í Hlíðunum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Hlíðunum í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 140 kannabisplöntur auk neysluskammta af hassi og marijúana. Þrír karlar á þrítugsaldri voru yfirheyrðir í þágu rannsóknarinnar en einn þeirra játaði að standa að ræktuninni og viðurkenndi hann jafnframt að efnin væru ætluð til sölu....

Hafnfirðingar fá ljósmyndasafn að gjöf

Fyrir skömmu barst Byggðasafni Hafnarfjarðar vegleg gjöf frá systkinunum Helgu Gunnarsdóttur og Þórði Edilonssyni Gunnarssyni en það var ljósmyndasafn sem áður var í eigu afa þeirra Þórðar Edilonssonar (f. 1875 d. 1941)....

Náttúrufræðistofa Kópavogs fær góða gjöf

Guðríður Gísladóttir, Kópavogsbúi til margra ára, færði á dögunum Náttúrufræðistofu Kópavogs að gjöf myndarlegt safn steina og kristalla sem hún og eiginmaður hennar, Haukur heitinn Einarsson, höfðu safnað víðs vegar að af landinu. Að sögn Hilmars J. Malmquist forstöðumanns Náttúrufræðistofunnar er góður fengur að gjöfinni....

Fasteignaverð hækkar á höfuðborgarsvæðinu

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 308,1 stig í febrúar 2011 og hækkar um 1% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,6%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,8% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún 2%. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs....

Sumarstörf hjá Seltjarnarnesbæ

Seltjarnarnesbær vill ráða ungt fólk til sumarstarfa. Um er að ræða almenn garðyrkjustörf, verkamannastörf, flokkstjórastörf, ýmis afleysingastörf og leiðbeinendastörf vegna ævintýra- og leikjanámskeiða og smíðavallar. Einnig skapandi sumarstörf í listahópi Seltjarnarness. Í boði eru 90 stöðugildi. Um er að ræða val á milli tveggja tímabila þ.e. frá 23. maí til 14. júlí og 20. júní til 11. ágúst. ...

Barnakóramót Hafnarfjarðar

Barnakóramót Hafnarfjarðar verður haldið laugardaginn 26. mars í Víðistaðakirkju. Þar munu koma fram börn og ungmenni í kórum í Hafnarfirði. Kórarnir munu koma fram á tvennum tónleikum. Fyrri tónleikarnir verða kl. 12.30 og þeir síðari klukkan 15:30. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir....

Gamli Kópavogsbærinn og Kópavogshæli verða friðuð

Húsafriðunarnefnd Kópavogs hefur samþykkt að undirbúa friðun tveggja gamalla húsa á Kópavogstúni, gamla Kópavogsbæjarins og Kópavogshælisins. Skipulagsnefnd Kópavogsbæjar ákvað á síðasta ári að óska eftir því að húsin yrðu friðuð. Það kemur í hlut menntamálaráðherra að friða húsin að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar....

Kópavogsbær boðar 65 milljóna kr. niðurskurð til íþróttafélaga

Stóru íþróttafélögin í Kópavogi; Gerpla, HK og Breiðablik, hafa í vetur átt í viðræðum við bæjaryfirvöld í Kópavogi um framlög til félaganna árið 2011. Félögin eru mjög ósátt við niðurstöðu fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar. Óánægjan stafar fyrst og fremst af því að félögin telja að það samkomulag sem aðilar gerðu með sér í desember sl. hafi verið rangtúlkað af bæjarfélaginu. Kópavogsbær boðar nú niðurskurð til félaganna upp á 26 milljónir, eða um 21%, í stað þeirra 16 milljóna sem aðilar urðu ásáttir um. Við þetta vilja félögin ekki una og hafa nú sent erindi til Kópavogsbæjar þar sem beðið er um leiðréttingu....

Bretra Breiðholt mótmælir sameiningu leik- og grunnskóla

Íbúðasamtökin Bretra Breiðholt átelur harðlega þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í tenglum við fyrirhugað sameigningu á leikskólum og grunnskólum í Breiðholti. Ekki hefur verið haft fullnægjandi samráð við íbúa hverfisins og notendur þjónustunnar né heldur við það hæfa fólk sem starfar á þessum vettvangi og þekkir best til....

Eigið fé Strætó bs. jákvætt í fyrsta sinn í 7 ár

Samkvæmt ársreikningnum er eigið fé Strætó bs. nú orðið jákvætt um rúmar 188 milljónir króna. Þetta er í fyrsta sinn sem eigið fé byggðasamlagsins er jákvætt síðan árið 2004. Frá árinu 2007 hefur markvisst verið unnið að því að koma rekstri Strætó á réttan kjöl eftir mikinn hallarekstur árin á undan og hefur það gengið eftir, bæði með auknu stofnframlagi sveitarfélaganna sem og miklu aðhaldi í rekstri. Heildarvelta Strætó bs. var tæpar 3.580 milljónir króna á síðasta ári....

Oslóartréð nýtt upp til agna!

Í tilefni alþjóðlegs árs skóga var ákveðið að leita eftir samstarfi við Félag trésmiða um „görnýtingu" á einu ákveðnu tré. Hugmynd var að sjá, með áþreifanlegum hætti, hversu marga og hvers konar gripi mætti vinna úr því. Vegna áratugalangs samstarfs við Norðmenn á sviði skógræktar og þess vináttuvottar sem Oslóartréð er, var ákveðið að nýta það í þetta verkefni....

Upplýsingastandur við Norðurströnd út á Nesi

Búið er að koma upp upplýsingastandi á göngustígnum við Norðurströnd út á Nesi. Þar er hægt er að fræðast um náttúrufar, umhverfi, listaverk, gönguleiðir og fleira á Seltjarnarnesi....

Snyrtistofur koma illa út úr könnun á verðmerkingum

Dagana 13. jan. – 2. feb. sl. var gerð könnun á verðmerkingum á snyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu. Farið var á 54 snyrtistofur og skoðað hvort verðskrá yfir þjónustu væri sýnileg og hvort söluvörur væru merktar á skýran og greinilegan hátt eins og lög gera ráð fyrir....

Átt þú fallegar myndir sem fanga stemmingu Hafnarfjarðar?

Hafnarfjarðarbær efnir til ljósmyndsamkeppni og er skilafrestur mynda til 11. apríl. Ljósmyndasamkeppni Hafnarfjarðarbæjar er m.a. liður í að velja myndir til þátttöku í ljósmyndasýningu frá vinabæjunum sem haldin verður í tengslum við vinabæjamót í Tartu í Eistlandi. Myndunum verður komið fyrir á útistöndum í miðbæ Tartu. ...

600 ungmenni fá sumarvinnu í Kópavogi

Gert er ráð fyrir því að um 600 ungmenni frá sautján ára aldri verði ráðin í sumarstörf hjá Kópavogsbæ í sumar, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Kópavogs. Bæjarráð samþykkti almennar vinnureglur við ráðningarnar á fundi sínum á dögunum en opnað er fyrir umsóknir um sumarstörfin laugardaginn 12. mars á vef Kópavogsbæjar. Tekið verður við umsóknum til 4. apríl en ekki verður tekið á móti neinum umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur. Ráðningartími í flest störfin eru sjö til átta vikur fyrir 18 ára og eldri en rúmar fimm vikur fyrir 17 ára. Skilyrði til ráðningar er að eiga lögheimili í Kópavogi....

Holt skal hann heita og vísar nafnið til Breiðholts

Foreldrar, börn og starfsfólk í sameinaða leikskólanum Fellaborg og Völvuborg hafa valið nýtt nafn á skólann. Holt skal hann heita og vísar nafnið til Breiðholts, en leikskólinn er í Fellahverfinu í Breiðholti. Leikskólarnir Fellaborg og Völvuborg voru sameinaðir í júlí í fyrra. Starfsmenn vildu breyta nafni hans og var þeim, foreldrum og börnum gefið tækifæri til að koma með tillögur að nýju nafni. Alls bárust þrjátíu tillögur. ...

Stolnir hlutir í vörslu lögreglu

Töluvert er um stolna muni í vörslu lögreglunnar og þar kennir ýmissa grasa eins og tölvur, gsm-símar, myndavélar og sjónvörp. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda hlutanna á meðfylgjandi myndum. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 á skrifstofutíma, þ.e. virka daga frá kl. 8-16, en hinir stolnu munir eru geymdir á lögreglustöðinni á Flatahrauni 11 í Hafnarfirði....

Húsdýragarðurinn: Nýtt aðsóknarmet í febrúar

Alls heimsóttu tæplega 8.300 gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðinn heim í nýliðnum febrúar, að því er fram kemur á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Gamla aðsóknarmetið fyrir febrúar var frá árinu 1991 taldi 5.390 gesti....

Fjöldi gistinátta á hótelum svipaður á milli ára

Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 54.200, en voru 54.800 í sama mánuði árið 2010, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Á höfuðborgarsvæðinu voru 44.300 gistinætur í janúar samanborið við 44.900 í janúar 2010. Á Suðurnesjum voru 2.900 gistinætur í janúar sem er sambærilegt við fyrra ár....

Brynjar Gauti átti mynd ársins - sýningin opin til 10. apríl

Árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem ber heitið Myndir ársins er nú opin í Gerðarsafni í Kópavogi og verður opin til 10. apríl. Á sýningunni er að finna bestu blaða- og tímaritaljósmyndir og myndskeið frá árinu 2010. Á jarðhæð safnsins er sýning Þorkels Þorkelssonar ljósmyndara sem nefnist Burma: Líf í fjötrum. ...

Gestum sundlauganna í Reykjavík fjölgar milli ára

Ekkert lát er á aðsókn á sundstaði borgarinnar. Árið 2010 voru gestir sundlauganna 1.904.957 sem er aukning frá árinu 2009 en þá voru þeir 1.833.627. ...