logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Hvers vegna styrktist japanska jenið við hörmungarnar í Japan?

Hörmungum á borð við jarðskjálfta og flóðbylgur fylgir mannlegur sársauki sem orð fá hvorki lýst né sefað. Samúð okkar er með japönsku þjóðinni. En horft til framtíðar verður að draga lærdóm af slíkum áföllum.

Þó stigs- og eðlismunur sé á fjármálakreppu Íslands og hörmungum Japana má hinsvegar draga ákveðinn lærdóm af því sem gerist á fjármálamörkuðum þegar hörmungar Japana ríða nú yfir. Áfall Japana verður þegar markaðir hafa enn ekki náð sér að fullu eftir fjármálakrísuna sem hófst 2008.

japan jenÍslenska fjármálakerfið féll þegar í byrjun kreppunnar. Síðastliðin ár hafa seðlabankar heimsins keppst við að dæla lausu fé út í kerfið. Þrátt fyrir aðgerðir seðlabanka heimsins hafa margir af stærstu fjárfestum heims haldið sig til hlés og hefur umfang viðskipta dregist verulega saman. Ástandið er viðkvæmt.
Þegar hamfarirnar og kjarnorkuslysið reið yfir féllu japönsk hlutabréf hið mesta í sögunni. En á móti styrktist japanska jenið og náði sínum mesta styrk gagnvart bandaríkjadollar síðan frá seinni heimstyrjöld!

Það sem meira er um vert, G7 ríkin tóku sig saman í vikunni sem leið og höfðu í fyrsta skipti í sögunni samráð um að veikja japanska jenið og seldu 25 m.a. USD virði jena til að lækka verð þess. Samhliða falli jensins hækkuðu hlutabréf í Japan aftur nokkuð.

Erfitt er að bera saman 3ja stærsta mynt- og hagkerfi heims við 70sta smæsta hagkerfi heims. Þó er um að ræða í báðum tilfellum eyjur sem eru mjög háðar inn- og útflutningi. Japanir 124 millj. talsins búa á eyju sem er tæplega 4 sinnum stærri en Ísland og framleiða á mann litlu meira en Íslendingar á mann eða um 40 þús USD á mann.  En hversvegna hrynur krónan við áfall en jenið styrkist? Svarið er ólík samsetning eigna og skulda þjóðanna.

Japanir hafi búið við lága vexti um langt árabil sem hefur gert það að verkum að jen er ein vinsælasta skuldsetningarmynt heims. Hin hliðin á þeim peningi er að japanskar fjármálastofnanir eiga því kröfur á erlenda aðila. Japönsk fyrirtæki eru skuldsett í jenum en eiga mörg erlendar eignir. Japanska ríkið er skuldugt í jeni en japanski seðlabankinn er 3ji stærsti eigandi bandarískra skuldabréfa. Erlendar eignir en japanskar skuldir.

Íslenskir bankar, heimili og fyrirtæki voru í fjármálabólunni hinsvegar dugleg að gefa út skuldir í erlendri mynt en byggja upp eignastöðu á móti sem var með íslenskri áhættu. Íslenski seðlabankinn átti lítinn gjaldeyrisforða í hlutfalli við stærð íslenska fjármálakerfisins og hluti forðans var tekinn að láni.  Íslenskar eignir en erlendar skuldir.

Íslendingar eru enn að sleikja sárin eftir að hafa tekið stórt veðmál á eigin ágæti fyrir lánsfé frá útlöndum. Japanir hinsvegar geta notað erlendar eignir sínar til að byggja upp efnahaginn að nýju, og þurfa ekki að óttast greiðslufall því skuldir þeirra eru í eigin mynt.