Tíminn | 31.03.2011 |
Kvestor
Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?
Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir
Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út
1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um
viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir
á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur
fram í þessari bók.
Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."
Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?