
24 sóttu um stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Dalvíkurbyggðar
Formaður Framsýnar í verkefnum fyrir sjávarútvegsráðuneytið
Undanfarnar vikur hefur formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, starfað í þriggja manna nefnd á vegum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem ætlað er að vera ráðherranum til ráðgjafar um ákveðna málaflokka í fiskveiðistjórnunni. Um er að ræða strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, rækju- og skelbætur. Reiknað er með að nefndin skili af sér á næstu vikum....
Sif ráðin sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga
Stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga hefur ráðið Sif Jóhannesdóttur þjóðfræðing sem nýjan forstöðumann Menningarmiðstöðvar Þingeyinga frá 15. nóvember n.k. Sif er með MA próf í hagnýtri menningarmiðlun, BA próf í þjóðfræði með guðfræði sem aukafag og með próf í kennslufræði til kennsluréttinda á grunn- og framhaldskólastigi....
Segja pólitísk fingraför fjármálaráðherra af stjórn Landsvirkjunar greinileg
Félagsfundur í Framsóknarfélagi Þingeyinga var haldinn í gær og var samþykkt ályktun þar sem segir m.a. að Þingeyingar munu áfram berjast fyrir nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum enda hafa þeir lagt mikið undir. "Það er skýr krafa Framsóknarfélags Þingeyinga að orkan verði nýtt í Þingeyjarsýslum til að endurheimta störf og efla blómlega byggð."...
Tvær bifreiðar teknar traustataki á Siglufirði
Aðfararnótt 15. október s.l. voru tvær bifreiðar teknar traustataki á Siglufirði. Báðar bifreiðarnar voru ólæstar með lyklunum í. Annarri var ekið út af rétt norðan Siglufjarðar en hinni út af veginum skammt frá bænum Reykjarhóli í Fljótunum. Báðar bifreiðarnar eru mikið skemmdar ef ekki ónýtar. Í ljós kom að þarna höfðu tveir menn verið að verki á þrítugs- og fertugsaldri og voru þeir handteknir í Fljótunum eftir að vegfarendur höfðu komið að þeim...
Vilja halda viðræðum áfram á eigin forsendum
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar á Húsavík, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, tók fyrir erindi Sjómannasambands Íslands í síðustu viku. Sambandið óskar eftir samningsumboði frá aðildarfélögum sambandsins til gerðar kjarasamnings fyrir smábátasjómenn....
Fóru rúma 715 km á 24 klukkustundum
Í gær luku skíðakrakkar í Ólafsfirði sólarhrings maraþoni, en þetta gerðu þeir til að safna fyrir æfingaferð til Noregs. Þau hjóluðu, hlupu og renndu sér á hjólaskíðum, alls 715,8 kílómetra á 24 klukkustundum. Þau söfnuðu samtals 263 þúsund krónum. Krakkarnir vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem studdu þau í verkefninu og síðast en alls ekki síst bæjarbúum sem tóku frábærlega á móti þeim í áheitasöfnuninni....
Tilkoma Héðinsfjarðarganga auka umferð um Múlagöng

"Fjölskylduferð á skódanum" til heiðurs Ingimari Eydal

Jökull spilaði stórt hlutverk við fíkniefnaleit lögreglunnar á Akureyri

Bændur fækka fötum á ný

Bergur bæjarstjóri og frístundabóndi í réttunum

Óvenjuleg sýning á Siglufirði

Akureyri
1 m/s
fimmtudagur
3 m/s
föstudagur
2 m/s
laugardagur
2 m/s
sunnudagur
3 m/s
mánudagur
3 m/s
þriðjudagur
3 m/s
Uppljóstrarinn
Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður
Uppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi
Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að
undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti
stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort
sem er innan flokks eða utan. Hefur sú foringjahollusta gengið svo
langt að heimildarmenn uppljóstrarans eru orðnir sannfærðir um að
blogg Björns
Vals sé skipulega notað til að koma á framfæri óþægilegum
árásum á andstæðinga fjármálaráðherra sem hann vill ekki sjálfur
gangast við, en þar fara nú hæst árásir á "íhaldið" sem Björn Valur
skilgreinir sem Forseta Íslands og Biskups Íslands og að því er
virðist alla aðra sem ekki eru flokksbundnir í
ríkisstjórnarflokkunum.
Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þótt Björn Valur hafi komið inn á Alþingi í kosningum 2009 sem fulltrúi nýrra tíma á Íslandi þá nái samstarf hans við Steingrím J. Sigfússon mun lengra aftur í tímann. Á vef Alþingis má t.d. sjá að Björn Valur sat á Alþingi sem varaþingmaður Alþýðubandalagsins árið 1990. Það sem ekki er tekið fram þar er að Björn Valur var þá (sem og árin 2007 og 2008) varamaður Steingríms J. Sigfússonar.
Björn Valur, eða "varðhundur fjármálaráðherra" eins og heimildarmenn skopast með að hann sé nefndur í gríni og alvöru, hefur því verið vinstri kantmaður í íslenskum stjórnmálum í rúm tuttugu ár og allan þann tíma verið í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon. Uppljóstraranum getur ekki annað en glaðst yfir því að Birni Val hafi loksins verið launuð húsbóndahollustan með embætti þingflokksformanns. Heimildarmenn telja að Þuríður Backman (sem tók eftirminnilega við embættinu í fréttaviðtali á flugvelli úti í löndum með orðunum "HA?") hafi aldrei verið fyrsti kostur forystu VG. Þuríður hafi aðeins lent í starfinu óvart þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að láta hafa sig að fífli eftir að forysta VG setti hana af eftir fæðingarorlof eins og frægt er orðið.
Heimildarmenn uppljóstrarans telja að með kosningu Björns Vals í embætti þingflokksformanns hafi Steingrímur J. Sigfússon slegið tvær flugur í einu höggi, treyst til muna tak sitt á ódælum þingmönnum innan flokks og gefið árásum varðhundarins á "íhaldið" stóraukið vægi út á við. Hvort tveggja komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er um líf ríkisstjórnarinnar á komandi vetri.
Kvestor
Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?
Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út 1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur fram í þessari bók.Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."
Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?
Aðsendar greinar
Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?
Þann
16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja
inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að
þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar
tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir
umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti
hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá
verið halda umsókninni að ESB til streitu?
Í nefndaráliti með tillögunni kemur fram að með umsóknarferlinu yrði tryggt að Alþingi yrði hluti af því heildarferli stjórnsýslu sem mál ættu að fara í gegnum áður en þau yrðu endanlega afgreidd og þannig átti að tryggja að stjórnsýslan miðlaði upplýsingum til þingsins um málefni er tengdust viðræðunum svo að þingið geti gegnt eftirlitshlutverki sínu í ferlinu. Á þessu er mikill misbrestur því þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, utandagskrárumræður og beiðnir um fundi í utanríkisnefnd fá þingmenn afar takmarkaðar upplýsingar um aðlögunarferlið. Sér þess sér helst stað í frumvörpum ríkisstjórnarinnar við innleiðingar gerða og tilskipana ESB.
Sá háttur er samt hafður á að hvergi er tiltekið í frumvörpunum sjálfum að um skilyrði ESB sé að ræða vegna umsóknarinnar. Blekkingarleik er beitt í skjóli EES samningsins. Nefni ég hér örfá frumvörp sem orðið hafa að lögum á síðasta þingi sem skilyrt var að lögleiða og hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. Ákvæði um Þróunarsjóð EFTA lögleitt í EES samninginn - kostar ríkissjóð í nýjum útgjöldum 5,3 milljarða. Lög um losunarheimildir - stofnkostnaður 20 milljónir og ný útgjöld 45 milljónir á ári. Lög um grunngerð landupplýsinga - 30 milljónir á ári. Fjölmiðlalög - rekstur fjölmiðlanefndar 33 milljónir á ári. Lög um stjórn vatnamála - ný útgjöld 130 milljónir á ári.
Utanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að eins sé líklegt að kostnaður upp á 4 milljarða lendi á ríkinu vegna innleiðingar nýs tollakerfis í landbúnaði. Mörg sambærileg frumvörp liggja inn í þinginu sem bíða afgreiðslu. Hliðaráhrif umsóknarferlisins hafa því gríðarleg áhrif á ríkissjóð. Það skal og á það minnst að atvinnusköpunartækifæri ríkisstjórnarinnar liggur í lögleiðingu þessara frumvarpa því oftar en ekki þarf að bæta við starfsmönnum í undirstofnunum til "eftirlits" . Kratavæðingin er því algjör og opinberi geirinn þenst út.
Þá að beinum kostnaði við umsóknina. Í umræddri greinargerð er talið að kostnaður sem falli undir utanríkisráðuneytið á árabilinu 2010 - 2012 verði um 800 milljónir og lunginn af þeim kostnaði felst í þýðingum reglna ESB yfir á íslensku. Það er hreint galið að skattgreiðendur beri kostnað af þýðingum alls lagabálks ESB áður en vitað er hvort gengið verður inn eður ei. Ekki er gefin upp kostnaður annarra ráðuneyta - en ljóst er að stjórnsýslan liggur á hliðinni vegna umsóknarinnar - sem er e.t.v. skýringin á hví slík kyrrstaða ríki hér á landi.
Fljótt á litið má áætla að beinn kostnaður við umsóknarferlið verði á bilinu 1,5 - 2 milljarðar. Þær upplýsingar er ekki hægt að fá frá stjórnarráðinu og heykist hver ráðherrann á fætur öðrum að veita þinginu og almenningi upplýsingar um þennan kostnað. Samandregið er um að ræða gríðarlegan dulinn kostnað fyrir ríkissjóð.
Í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu á fylgiskjali IV í þingsályktunartillögunni kemur fram að kostnaður aðildarviðræðnanna sé háður óvissu sér í lagi í ljósi þess hversu hratt viðræðurnar ganga. Kostnaðarmatið er byggt á 18 mánaða ferli sem átti að ljúka um mitt ár 2011. Nú er sá tími liðinn og langt í land með að samningar takist. Rökrétt er því að tvöfalda beinan kostnað af ferlinu. Ef umsóknin verður ekki dregin til baka er ljóst að kostnaðurinn við umsóknina mun hlaupa á tugum milljarða.
Á meðan Össur Skarphéðinsson situr einn á brennandi tröppunum í Brussel með umsóknina er vegið að grunnþáttum íslensks samfélags með niðurskurði og skattpíningu.

