logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Formaður Framsýnar í verkefnum fyrir sjávarútvegsráðuneytið

form framsynar

Undanfarnar vikur hefur formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, starfað í þriggja manna nefnd á vegum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem ætlað er að vera ráðherranum til ráðgjafar um ákveðna málaflokka í fiskveiðistjórnunni. Um er að ræða strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, rækju- og skelbætur. Reiknað er með að nefndin skili af sér á næstu vikum.

Aðalsteinn er ekki ókunnugur því að starfa að sjávarútvegsmálum þar sem hann var m.a. skipaður í endurskoðunarnefnd(sáttanefnd) á vegum ráðherra í júlí 2009 sem lauk störfum í september 2010. Verkefnið var að gera tillögur um endurskoðun á lögum um stjórn fiskveiða. Ráðherra hefur nú beðið Aðalsteinn að taka að sér frekari verkefni fyrir ráðuneytið sem hann hefur fallist á. Að svo stöddu er ekki hægt að segja frá því í hverju verkefnið er fólkið, að því er fram kemur á heimasíðu Framsýnar.

Formaður Framsýnar hefur undanfarið verið í ákveðnum verkefnum fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráherra. Hann hefur verið beðinn um að taka að sér frekari verkefni fyrir ráðherrann.

 

 

24 sóttu um stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Dalvíkurbyggðar

Þann 16. október síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um auglýsta stöðu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í Dalvíkurbyggð en það er Capacent sem hefur yfirumsjón með ráðningunni. Mikill áhugi er á starfinu enda bárust 24 umsóknir og eru nöfn umsækjenda birt hér fyrir neðan í stafrófsröð:...

Formaður Framsýnar í verkefnum fyrir sjávarútvegsráðuneytið

Undanfarnar vikur hefur formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, starfað í þriggja manna nefnd á vegum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem ætlað er að vera ráðherranum til ráðgjafar um ákveðna málaflokka í fiskveiðistjórnunni. Um er að ræða strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, rækju- og skelbætur. Reiknað er með að nefndin skili af sér á næstu vikum....

Sif ráðin sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga

Stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga hefur ráðið Sif Jóhannesdóttur þjóðfræðing sem nýjan forstöðumann Menningarmiðstöðvar Þingeyinga frá 15. nóvember n.k. Sif er með MA próf í hagnýtri menningarmiðlun, BA próf í þjóðfræði með guðfræði sem aukafag og með próf í kennslufræði til kennsluréttinda á grunn- og framhaldskólastigi....

Segja pólitísk fingraför fjármálaráðherra af stjórn Landsvirkjunar greinileg

Félagsfundur í Framsóknarfélagi Þingeyinga var haldinn í gær og var samþykkt ályktun þar sem segir m.a. að Þingeyingar munu áfram berjast fyrir nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum enda hafa þeir lagt mikið undir. "Það er skýr krafa Framsóknarfélags Þingeyinga að orkan verði nýtt í Þingeyjarsýslum til að endurheimta störf og efla blómlega byggð."...

Tvær bifreiðar teknar traustataki á Siglufirði

Aðfararnótt 15. október s.l. voru tvær bifreiðar teknar traustataki á Siglufirði. Báðar bifreiðarnar voru ólæstar með lyklunum í. Annarri var ekið út af rétt norðan Siglufjarðar en hinni út af veginum skammt frá bænum Reykjarhóli í Fljótunum. Báðar bifreiðarnar eru mikið skemmdar ef ekki ónýtar. Í ljós kom að þarna höfðu tveir menn verið að verki á þrítugs- og fertugsaldri og voru þeir handteknir í Fljótunum eftir að vegfarendur höfðu komið að þeim...

Vilja halda viðræðum áfram á eigin forsendum

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar á Húsavík, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, tók fyrir erindi Sjómannasambands Íslands í síðustu viku. Sambandið óskar eftir samningsumboði frá aðildarfélögum sambandsins til gerðar kjarasamnings fyrir smábátasjómenn....

Fóru rúma 715 km á 24 klukkustundum

Í gær luku skíðakrakkar í Ólafsfirði sólarhrings maraþoni, en þetta gerðu þeir til að safna fyrir æfingaferð til Noregs. Þau hjóluðu, hlupu og renndu sér á hjólaskíðum, alls 715,8 kílómetra á 24 klukkustundum. Þau söfnuðu samtals 263 þúsund krónum. Krakkarnir vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem studdu þau í verkefninu og síðast en alls ekki síst bæjarbúum sem tóku frábærlega á móti þeim í áheitasöfnuninni....

Tilkoma Héðinsfjarðarganga auka umferð um Múlagöng

Heildarumferðin um Múlagöng hefur aukist um 24 prósent í ár frá því fyrir ári síðan miðað við teljara skammt sunnan ganganna. Meðalumferðin það sem af er ári er um 564 bílar á sólarhring. Meðalumferð ársins stefnir í 520 - 560 bíla á sólarhring en umferðin var 453 bílar á sólarhring árið 2010, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar....

"Fjölskylduferð á skódanum" til heiðurs Ingimari Eydal

Tónleikar sem nefnast "Fjölskylduferð á skódanum" til heiðurs Ingimari Eydal, sem hefði orðið 75 ára þann 20. október næstkomandi. Tónleikarnir verða haldnir í Hofi á Akureyri, laugardaginn 22. október kl. 20 (uppselt) og kl. 23 og síðan sunnudaginn 23. október kl. 16. Þessi ferð í Skódanum hans Ingimars verður full af elskulegheitum og óvæntum uppákomum! ...

Jökull spilaði stórt hlutverk við fíkniefnaleit lögreglunnar á Akureyri

Jökull, fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar á Akureyri, spilaði stórt hlutverk við fíkniefnaleit lögreglunnar í bænum í gær og á mánudaginn og fann m.a. efni sem höfðu verið vandlega falin. Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð manns á fertugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli. Hald var lagt á um 30 grömm af amfetamíni og nokkur grömm af kannabisefnum. Einnig voru haldlögð um 40 grömm af muldum e-töflum og nokkurt magn lyfseðilsskyldra lyfja sem ekki voru stíluð á húsráðanda...

Bændur fækka fötum á ný

Leiksýning Leikfélags Hörgdæla, Með fullri reisn, sem sló öll aðsóknarmet í vor, verður tekin til sýninga á ný nú í haust. Áætlaðar eru tíu sýningar og er nú þegar orðið uppselt á nokkrar þeirra. Sýningar fara fram frá 20. október til 5. nóvember og er hægt að panta miða í s. 821 9659. Af þessu tilefni orti Arnsteinn Stefánsson:...

Bergur bæjarstjóri og frístundabóndi í réttunum

Í gær var réttað í Húsavíkurrétt í fallegu haustveðri og töldu fjáreigendur ástæðu til að flagga í heila enda mikil hátíðarstund á hverju hausti þegar húsvískir frístundabændur ganga á fjöll og smala fé sínu til byggða. Að sögn fjáreigenda gengu göngurnar nokkuð vel en töluverður snjór var upp við Höskuldsvatn og niður að Krubb sem gerði þeim erfitt fyrir. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri á Húsavík og frístundabóndi, var að sjálfsögðu einn þeirra sem var í réttunum....

Óvenjuleg sýning á Siglufirði

Ræðarinn og ljósmyndarinn, Fiann Paul, er með sýningu utan á Bátahúsinu. Sýningin samanstendur af þrjátíu og tveimur ljósmyndum sem allar eru teknar á Grænlandi. Það óvenjulega við sýninguna er að hún er hönnuð til að vera utandyra og þola öll veður. Siglfirðingar eru hvattir til að leggja leið sína á staðinn og fá sér göngutúr kringum Bátahúsið og skoða þessar frábæru myndir af framandi slóðum....

Ökuhraði í skólahverfum og mikill

Að venju hefður lögreglan á Akureyri haldið uppi eftirliti m.a. með ökuhraða við skóla bæjarins í upphafi þessa skólaárs. Til þess hefur hún notað merkta sem ómerkta bíla og þá einnig verið með færanlega hraðamyndavél sem hefur sýnt það glögglega að ökuhraði er ekki alltaf í samræmi við lög og reglur. Til að mynda þá hafa um 50 ökumenn verið myndaðir nú sl. daga á götum við grunnskólana þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. og hefur ökuhraði þeirra verið allt að 80 km/klst. ...

Kuldalegt um að litast á Siglufirði

Það var frekar kuldalegt um að litast á Siglufirði seinni partinn í gær (miðvikudag). Kalt var í veðri og ýmist rigning eða slydda. Í gærmorgunn gaf að líta grá fjöll niður í miðjar hlíðar og undir kvöld bætti í, svo að búast má við því að láglendi verði að einhverju leyti hvítt þegar birtir með morgninum. Þessi snjór er þó líklega ekki kominn til að vera því spáð er hlýnandi veðri næstu daga. Samkvæmt gamla íslenska tímatalinu byrjar haustið í ár ekki fyrr en 22. september....

Evrópski menningarminjadagurinn er á morgun

Evrópski menningarminjadagurinn verður haldinn hér á landi á morgun, fimmtudaginn 8. september. Þema dagsins að þessu sinni er menningarlandslag. Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu....

Mældur á yfir 160 km hraða í Héðinsfjarðargöngunum

Lögreglumenn á eftirliti í Héðinsfjarðargöngum mældu í gærkvöldi bifreið á yfir 160 km/klst hraða, en bifreiðin var að aka frá Ólafsfirði til Siglufjarðar. Hámarkshraði í Héðinsfjarðargöngunum er 70 km/klst. Lögreglumenn misstu sjónar af bifreiðinni en haft var upp á ökumanninum seinna um kvöldið. Ökumaðurinn sem er 18 ára viðurkenndi brotið við yfirheyrslur hjá lögreglu og bar því við að hafa verið í kappakstri við aðra bifreið skömmu áður en mælingin fór fram....

Húsmóðirin sló í gegn í Hofi - aukasýning næstu helgi

Gleðileikurinn Húsmóðirin eftir Vesturport sló heldur betur í gegn í Hofi á Akureyri um helgina. Uppselt var á báðar sýningar helgarinnar og hefur því verið bætt við aukasýningu laugardagskvöldið 10. september kl. 19. Í sýningunni tekst Vesturport á við gamanleikjaformið þar sem hurðir opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt....

Ofurhugarnir komnir að landi á Húsavík - hringnum lokað

Rétt fyrir kl. 17:00 í dag komu kæjakræðararnir Riaan Manser og Dan Skinstad frá Suður Afríku til Húsavíkur og náðu þar með markmiði sínu að verða fyrstir til að róa umhverfis landið á tveggja manna kæjak. Ferð þeirra hófst frá Húsavík í 23. mars 2011. Félagarnir hafa lent í alls konar veðrum, glímt við misjafnar lendingar við strendur landsins og þurft að yfirstíga ýmsa aðra erfiðleika....

Réttardagar í Þingeyjarsýslu

Vegna óhagstæðs tíðarfars í vor var göngum og réttum frestað víðast hvar í Þingeyjarsýslu og landinu öllu um eina viku. Mývetningar og Austur-Bárðdælir lögðu af stað í göngur í gærmorgunn. Vestur-Bárðdælir smöluðu svokallaða forsmölun á fimmtudag. Að sögn Vagns Sigtryggssonar í Hrfilu leit féð þokkalega út. Réttað verður í Baldursheimsrétt, Hlíðarrétt og í Víðikersrétt á morgun, sunnudag....

Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi fagnar áformum Huang Nubo

Á síðustu árum hefur orðið gríðarleg uppbygging í fjölþættri ferðaþjónustu á Norðurlandi. Grundvöllur þessarar uppbyggingar er stóraukið framboð á afþreyingu, auk þess að hótelum, gistihúsum og veitingahúsum á Norðurlandi hefur fjölgað mikið á tiltölulega stuttum tíma. Fjárfestirinn Huang Nubo búinn að senda inn umsókn um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Meðal þess sem verður byggt upp er hótel, golfvellir og útivistarmöguleikar. Hefur Huang látið hafa eftir sér að bæði fyrirtæki hans og íbúar á Íslandi geti hagnast á verkefninu....

Kæjak ræðararnir ætla að ljúka hringferðinni á Húsavík á morgun

Ævintýramaðurinn Riaan Manser frá Suður-Afríku og félagi hans Dan Skinstad sem er með væga heilalömun, hófu kæjakferð sína frá Húsavík í mars sl. áleiðis umhverfis landið. Síðan þá hafa þeir lent í alls kyns veðrum, glímt við misjafnar lendingar við strendur landsins og þurft að yfirstíga ýmsa aðra erfiðleika. Þeir nálgast nú óðum það takmark sitt að róa umhverfis landið og stefna að því að koma til Húsavíkur upp úr hádegi (12:00) á morgun, laugardaginn 3. september....

Tilboð opnuð í jarðboranir í Hörgárdal og Öxnadal

Síðastliðið vor skrifuðu fulltrúar Hörgársveitar og Norðurorku hf. undir samstarfsyfirlýsingu um jarðhitarannsóknir í Hörgárdal og Öxnadal til að meta hvort jarðhitavinnsla á svæðinu sé vænleg. Kostnaðaráætlun vegna verksins hljóðar upp á tíu milljónir króna. Borun á hitastigulsholunum var boðin út um miðjan ágúst og bárust sjö tilboð frá sex aðilum, en einn skilaði inn frávikstilboði....

Opin námskeið um kynjasamþættingu í Reykjavík og á Akureyri

Jafnréttisstofa býður upp á opin námskeið um kynjasamþættingu í Reykjavík og á Akureyri í september. Á námskeiðunum verður fjallað um stöðu jafnréttismála á Íslandi, í hverju kynjasamþætting felst, hvers vegna við þurfum á skipulögðu jafnréttisstarfi að halda og hvernig mögulegt er að aðlaga aðferðina að starfi þátttakenda....

Kaldbakur EA með 2,9% af úthlutuðum þorskígildum

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Úthlutað er 281.248 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 261.100 þorskígildistonn á sama tíma í fyrra, reiknað á þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð. Alls fá 612 skip úthlutað aflamarki í ár, fiskveiðiárið 2011/2012, samanborið við 637 skip fiskveiðiárið 2010/2011. Mest fer til Kaldbaks EA 1 sem gerður er út frá Akureyri, um 8.200 þorskígildistonn eða 2,9% af úthlutuðum þorskígildum. HB Grandi er það útgerðarfyrirtæki sem fær mesta úthlutun, líkt og í fyrra, eða 10,4% af heildinni, næst kemur Samherji með 6,22% og þá Þorbjörn hf. með 5,58%....

MP banki kaupir fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka

MP banki og Saga Fjárfestingarbanki hafa gengið frá samkomulagi um kaup MP banka á fyrirtækjaráðgjöf Saga Fjárfestingarbanka. Í því felst þjónusta og ráðgjöf varðandi kaup, sölu og samruna fyrirtækja sem og fjármögnun fyrirtækja og stofnana, umsjón með útboðum og skráningu verðbréfa og skylda starfsemi. ...

22 milljónir færðar á milli ára hjá félagsþjónustu Akureyrarbæjar

Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað færslu fjárveitinga á milli ára í málaflokkum félagsþjónustu og fræðslu– og uppeldismála. Góður rekstur á árinu 2010 gefur svigrúm til að færa rekstrarafgang þessara málaflokka yfir á núverandi fjárhagsár og nema upphæðirnar 12 milljónum króna til fjölskyldu– og búsetudeildar og 10 milljónum króna til skóladeildar....

Nautið mettaði þúsund munna á tæpum 4 tímum

Eins og fram hefur komið stóðu Landssamband kúabænda, Norðlenska og Bautinn fyrir heilgrillun á nauti á Akureyrarvöku sl. laugardag. Uppátækið heppnaðist framúrskarandi vel og fengu tæplega 1.000 gestir að smakka á úrvals nautakjöti. Byrjað var að skera af gripnum um kl. 13 á laugardaginn og var óslitin röð að borðinu til kl. 16.30 er allt var upp urið....

Á 180 km hraða í gegnum Héðinsfjarðargöng - myndband

Þeir sem ekki hafa farið í gegnum Héðinsfjarðargöngin geta upplifað það í myndbandi sem hér fylgir. Þar er ekið á 160-180 km hraða í gegnum göngin, eða þannig. Keyrt er í gegnum Héðinsfjarðargöng, frá Siglufirði til Ólafsfjarðar, með upptökuvél og er myndbandið sýnt á 2.5x hraða....

Heilgrillað naut fyrir alla á Akureyrarvöku

Í tilefni af 25 ára afmælis Landssamband kúabænda býður sambandið, í samvinnu við Norðlenska og Bautann, gestum Akureyrarvöku að gæða sér á heilgrilluðu nauti á morgun, laugardaginn 27. ágúst milli kl. 13 og 15. Grillið verður staðsett á bílastæðinu við Skipagötu í miðbæ Akureyrar....

Upplýsingavefur um báta og bátasmiði

Vefurinn www.aba.is var upphaflega upplýsingavefur um eyfirska báta og bátasmiði, en fljótlega var leitað fanga beggja vegna Eyjafjarðar og nær vefurinn nú yfir svæðið frá Horni að Fonti á Langanesi. Heimasíðunni var hrundið úr vör með það að leiðarljósi að safna saman öllu því, sem vitað er um bátasmíðar á svæðinu. Vefurinn hefur það fram yfir bók að hann er gagnvirkur á þann hátt að lesandinn getur lagt sitt af mörkum til að koma á framfæri þekkingu sinni á þeim málum, sem vefurinn fjallar um. ...

Stal tösku og veskjum með gjaldeyri að andvirði rúmlega 100.000 krónur

Aðfararnótt 24. ágúst s.l. var farið inn í all nokkrar bifreiðar í Glerárhverfi á Akureyri og stolið þaðan ýmsum smáhlutum svo sem verkfærum, mótorhjólahjálmi og smápeningum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Allar voru bifreiðar þessar ólæstar. Í einni bifreiðinni komst þjófurinn yfir húslykla sem hann notaði til að fara inn í hús þar sem hann stal tösku og veskjum með gjaldeyri að andvirði rúmlega 100.000 krónur....

Nýr framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands

Dagbjört Brynja Harðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og tók við starfinu af Mögnu Guðmundsdóttur þann 1. ágúst 2011. Dagbjört Brynja er lýðheilsufræðingur, kennari og myndlistarkona og hefur m.a. starfað sem markaðs- og kynningarstjóri fyrir Háskólann á Akureyri....

Þóroddur Bjarnason kjörinn formaður stjórnar Byggðastofnunar

Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn er í dag á Kaffi Króka á Sauðárkróki tók við ný stjórn stofnunarinnar. Þóroddur Bjarnason prófessor á hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri var kjörinn formaður stjórnarinnar. Fráfarandi formaður er Anna Kristín Gunnarsdóttir....

Aðsóknarmet í Síldarminjasafnið á Siglufirði slegið

Aðsóknarmet í Síldarminjasafniðá Siglufirði var slegið í ár, en metið var frá árinu 2004, um 14.000 gestir. Þetta var sumarið sem Hákon Noregsprins vígði Bátahúsið. Nú hefur metið verið bætt. Samkvæmt upplýsingum frá Anitu Elefsen, rekstrarstjóra safnsins, voru gestirnir orðnir 16.570 við lok dags í gær. Og enn má eiga von á fjölda fólks, sumarið er alls ekki liðið og haustmánuðirnir eftir....

Nýr sparisjóður á Akureyri

Undirbúningur að stofnun nýs sparisjóðs á Akureyri er í fullum gangi en á vordögum samþykkti stjórn Sparisjóðs Höfðhverfinga að auka stofnfé sjóðsins um allt að 500 milljónir króna til að undirbyggja útvíkkun á starfseminni með opnun sparisjóðs á Akureyri. Sparisjóðurinn verður til húsa að Glerárgötu 36....

Makríl landað á Siglufirði

Frystitogarinn Mánaberg ÓF-42 landaði 256.701 kg af makríl og 14.000 kg. af síld á Siglufirði fimmtudaginn fjórða ágúst síðastliðinn. Á heimasíðu Ramma, sem gerir Mánaberg út, segir að þetta sé í fyrsta skipti sem makríl er landað á Siglufirði. Flest skip útgerðarinnar eru á makrílveiðum um þessar mundir og hafa þau oftast landað í Þorlákshöfn. Mánaberg ÓF-42 er 1.378 brúttótonna frystitogari í eigi Ramma og er með heimahöfn á Ólafsfirði. Samkvæmt upplýsingum Sax.is þá var togarinn var smíðaður í Astillaros Luzuriaga ...

Umferð um Héðinsfjarðargöngin fer yfir 2000 bíla múrinn - nýtt met

Metumferð var um Héðinsfjarðargöng síðustu helgi en meðalumferð var 1779 bílar á sólarhring og á laugardaginum fóru yfir 2000 bílar um göngin. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni. Laugardaginn 6. ágúst sl. fóru 2107 bílar um Héðinsfjarðargöngin Siglufjarðarmegin en 2091 bíll um göngin Ólafsfjarðarmegin sem jafngildir því að 2099 bílar hafi farið um bæði göngin. Til samanburðar þá fóru um verslunarmannahelgina 1.729 bílar á sólarhring um Héðinsfjarðargöng sem var þá mesta umferð sem mælst ...

Þúsund gestir komu í Ljóðasetrið fyrsta mánuðinn

Nú þegar nákvæmlega einn mánuður er síðan Ljóðasetur Íslands var formlega opnað á Siglufirði er fjöldi gesta kominn yfir eitt þúsund. „Sú aðsókn er fram úr björtustu vonum og viðbrögð gesta hafa líka verið mjög ánægjuleg og á einn veg; allir mjög ánægðir með framtakið, andrúmsloftið á setrinu notalegt, gaman að skoða sig um og skoða áhugaverða hluti og fólk þakklátt fyrir upplestra og aðra viðburði sem boðið hefur verið upp á í setrinu,...

Kertafleytingar til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nakasaki

Í kvöld klukkan 22:30 mun fólk safnast saman við tjörnina í Reykjavík og fleyta kertum í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nakasaki. Á Akureyri verður kertafleyting fimmtudagskvöldið 11. ágúst. kl. 22:30 við Minjasafnstjörnina. Kertum hefur verið fleytt á Akureyri frá 1998. Ávarpið að þessu sinni flytur Áki Sebastian Frostason. Þetta er í tuttugasta og sjöunda skipti sem kertum er fleytt á Tjörninni í Reykjavík til að undirstrika kröfuna um frið. Um er að ræða hefð sem er uppruninn í Japan, en ...

Leitað að fallegasta garði Akureyrar

Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar leitar nú að fallegasta garði bæjarins að því er fram kemur á vefsíðu bæjarins. Óskað er eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals og aðlaðandi götumyndar. Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði og veitt viðurkenningar samkvæmt þeim. Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokkum: Flokkur nýrri garða...

Ber höfuð og herðar yfir aðra íbúa Siglufjarðar!

Það hefur verið mikið í tísku hér á landi „að planka” nánast hvar sem er. Tíska þessi hefur greinilega borist til Siglufjarðar ef marka má myndir inn á www.siglfirðingur.is. Þar má sjá mynd af Huldu Jakobínu Friðgeirsdóttur sjúkralið, ásamt hundinum Yrsu, þar sem hún "plankar" upp á vörðu á fjallinu Blekkli, við botn Siglufjarðar, sem er í 776 metra hæð yfir sjávarmáli. Meðal ummæla um myndina að Hulda bæri höfuð og herðar yfir aðra bæjarbúa Siglufjarðar....

Fiskidagurinn mikli hefst á Dalvík í kvöld

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er nú haldinn í ellefta sinn á Dalvík. Frá upphafi hefur markmið hátíðarinnar verið að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Ennfremur er allur matur og skemmtan á hátíðarsvæðinu ókeypis. Hátíðin hefst formlega í dag með Vináttukeðjunni og hún verður á sínum stað fyrir neðan Dalvíkurkirkju. Dagskráin er glæsileg að vanda. ...

100 aðilar sýna á Handverkshátíð sem hófst að Hrafnagili í dag

Handverkshátíðar 2011 hófst að Hrafnagili í dag og stendur fram á mánudag. Fjölbreytnin hefur aldrei verði meiri og sýnir hún glöggt þá miklu grósku sem er í íslensku handverki og hönnun í dag. Af þeim hundrað sýnendum sem taka þátt í ár eru um helmingur nýir aðilar alls staðar af landinu....

Einvígi milli Íslands og Færeyja í skák – 11 ára gamall keppandi

Um helgina fer fram 17. landskeppni Íslands og Færeyja í skák og tefld verður tvöföld umferð á 11 borðum á Húsavík og á Akureyri. Færeyingar unnu naumlega þegar hún var haldin á þeirra heimavelli fyrir tveimur árum. Alls hafa Íslendingar sigrað 11 sinnum frá því að keppni hófst árið 1978. Íslensku keppendurnir koma úr röðum Skákfélags Akureyrar, Skákfélagsins Goðans, Skáksambands Austurlands og Taflfélagsins Máta. Einn af keppendum Íslands verður hinn...

Selur skotinn á færi í Hörgá

Í gær urðu menn sem voru við veiðar í Hörgá í Hörgársveit varir við sel sem hafði gengið upp í ána. Brugðist var við skjótt, enda getur selur valdið miklum usla í lífríki árinnar og truflað veiðar verulega. Hann er því enginn aufúsugestur. Selurinn var skotinn á færi og hræið fjarlægt, að því er fram kemur á vef Hörgársveitar....

Samherji tekur við rekstri Útgerðafélags Akureyringa – 5900 þorksígildistonn og 150 starfsmenn

Nú er starfsemi Útgerðarfélags Akureyringa formlega hafin á vegum nýrra eigenda en í byrjun maí var útgerðarfyrirtækið keypt af Samherja en forstjóri þess er Þorsteinn Már Baldvinsson. "Okkur stjórnendum Samherja er ljóst hve stóran sess ÚA skipar í hugum heimamanna. Við gerum okkur grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir því að taka yfir þennan rekstur og munum leggja okkur fram um að hann gangi sem best í framtíðinni" segir Þorsteinn á vefsíðu Samherja en hann tók á móti togaranum Baldvini NC 100 þegar hann kom til hafnar ...

Síðustu helgi fóru 1.729 bílar á sólarhring um Héðinsfjarðargöng

Það sem af er ári hefur umferð um Héðinsfjarðargöng aldrei verið meiri en hún var síðustu helgi, verslunarmannahelgina, þá miklu ferðamannahelgi. Um þetta er skrifað á siglfirðingi.is. Laugardaginn 30. júlí síðastliðinn fóru 1.974 bílar um göngin Siglufjarðarmegin en 1.913 Ólafsfjarðarmegin, sem gerir að meðaltali 1.944 bíla um bæði göng. Litlu minni umferð var um göngin á sunnudeginum 31. júlí eða 1.853 bílar að meðaltali. Umferð var heldur minni á mánudeginum og þá fóru um göngin 1.201 bílar. Verslunarmannahelgin er með hæsta ...

Íbúum Siglufjarðar fjölgaði um nokkur þúsund – síldarævintýri og skemmtiferðarskip

Mikið var um að vera á Siglufirði þessa helgina en þar voru síldardagar auk þess sem tvö skemmtiferðaskip komu til hafnar. Föstudaginn 29. júlí voru um 5 til 6 þúsund manns komnir til bæjarins til að njóta þess sem Síldarævintýrið hafði upp á að bjóða. Í góðu veðri, en í gær var 17 stiga hiti, var meðal annars boðið upp á tónleika og síldarsöltun í síldarminjasafninu. Föstudag og laugardag komu tvö skemmtiferðaskip til bæjarins. Föstudagsmorgunin kom Minerva til hafnar og var farþegafjöldi um 350 manns. Skipið er 35 ...

Minni umferð en áður á hálendinu yfir verslunarmannahelgina

Umferð hefur gengið vel um verslunarmannahelgina á hálendinu að sögn hálendisvaktar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Svo virðist sem minni umferð sé núna á hálendinu en hefur verið undanfarnar verslunarmannahelgar. Ekki er gott að segja hvað veldur en veðrið er búið að vera frekar blautt og kalt á hálendinu en það á örugglega sinn þátt í þessari fækkun....

Skemmtanahald á Akureyri gekk vel – SSSól stígur á svið í kvöld

Talsvert var að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna skemmtanahalds á Akureyri en þar fer nú fram fjölskylduhátíðin Ein með öllu. Lögreglan tekur þó fram í tilkynningu um hátíðina að skemmtanahald hafi farið vel fram og þau mál sem komust til kasta lögreglu reyndust vera minniháttar. Mikill fjöldi fólks var í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi og nótt og þó nokkur ölvun. Lögreglan þurfti aðallega að hafa afskipti af fólki sem hafði sofnað ölvunarsvefni utandyra víðs vegar um bæinn. Einn gisti fangageymslu lögreglunnar ...

Fjölmennt á útihátíðum - flestir á Akureyri

Stærsta ferðahelgi ársins er nú að renna upp. Fólk hefur streymt á útihátíðir Verslunarmannahelgarinnar út um allt land, bæði í gær og í dag. Flestir virðast hafa lagt leið sína til Akureyrar, á Eina með öllu. Þar er búist við 13-15 þúsund manns. Reiknað er með allt að 10 þúsund gestum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og svipuðum fjölda á Landsmót UMFÍ á Egilsstöðum. Þá er Síldarævintýrið á Siglufirði, en þangað voru komnir um 4.000 gestir í gærkvöld....

Aukin löggæsla í Vestmannaeyjum og á Akureyri um helgina

Ríkislögreglustjóri í samvinnu við lögregluembætti landsins og tollgæsluna stendur fyrir hertu eftirliti gegn sölu, meðferð og neyslu ólöglegra fíkniefna um verslunarmannahelgina. Eftirlitið er til viðbótar við aðra löggæslu og er ætlað að efla og styrkja eftirlit og afskipti tengd fíkniefnum á þeim stöðum sem þörf er talin á....

Minningarbók um hryðjuverkin í Noregi í ráðhúsinu á Akureyri

Búið er að koma fyrir minningarbók í Ráðhúsinu á Akureyri um fórnarlömb voðaverkanna sem framin voru í Osló og Útey í Noregi síðastliðinn föstudag. Þar með gefst fólki kostur á að koma við í þjónustuanddyrinu og skrifa nöfn sín í bókina og votta aðstandendum samúð sína. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar. Minningarbókinni var komið fyrir í gær og skráði Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar, fyrstur nafn sitt í bókina. Bæjarstjórnin hafði áður sent bæjaryfirvöldum í Álásundi, vinabæ ...

Hraundrangi klifinn - myndband

Þrír félagar úr Fjallateyminu klifu drangann fyrir ofan Hraun í Öxnadal á dögunum. Þeir gerðu skemmtilegt myndband um ferðina. Það og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt má finna á vefnum climbing.is. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dranginn er klifinn. Hann var klifinn í fyrsta sinn 5. ágúst 1956 af tveimur Íslendingum og einum Bandaríkjamanni. Sagnir höfðu verið um að kista full af gulli væri geymd upp á tindinum, en sú saga reyndist ekki á rökum reist að sögn klifurmannanna....

Ný leið til að nýta Jökulsá á Fjöllum til raforkuframleiðslu

Þann 11. júlí kynntu Birgir Jónsson dósent við HÍ og Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor við HA rannsóknarniðurstöður sínar um nýja leið til að nýta Jökulsá á Fjöllum til raforkuframleiðslu. Kynningin fór fram á Húsavík og mætti fjöldi manns, m.a. orkumálastjóri. Jafnframt var skýrslan um rannsóknina gerð opinber á vefslóðinni http://www.rha.is/is/page/utgefid_efni_2011. ...

Björgunarsveitir stóðu vörð um Dettifoss fyrir Ridley Scott

Björgunarsveitir á Norðurlandi eystra stóðu vörð um Dettifoss daganna 21. og 22. júlí meðan Ridley Scott tók upp atriði fyrir kvikmyndina Prómóþeus. Á meðan tökum stóð var aðgengi að fossinum takmarkað austan megin. Það voru björgunarsveitirnar Stefán úr Mývatnssveit, Núpar Kópaskeri og Súlur björgunarsveitin á Akureyri sem stóðu vaktina til að takmark aðgengi almennings að fossinum. Einnig sáu sveitirnar um sjúkragæslu á staðnum. "Verkefnið gekk vel og var gerður góður rómur af starfi sveitanna" segir á ...

Fimm ættliðir í beinan kvenlegg á Húsavík

Sigríður Kristín Hjálmarsdóttir frá Skógum II í Reykjahverfi varð nýlega langalangaamma, sem ekki er í frásögur færandi nema hvað ættliðirnir eru orðnir fimm í beinan kvenlegg. Þær langmæðgur komu saman nú á dögunum en þá var þessi mynd tekin. Litla stúlkan fæddist í vor og býr ásamt foreldrum sínum í Danmörku en þau hafa dvalið á Húsavík undanfarið og ætla að skíra 7. ágúst nk. áður en þau fara aftur út....

Nýr yfirhafnavörður ráðinn í Dalvíkurbyggð - höfnin rekin með hagnaði

Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn ný hafnarvörður Dalvíkurbyggðar og mun hann taka til starfa 1. september næstkomandi. Á 27. fundi hafnastjórnar Dalvíkurbyggðar, þann 6. júní síðastliðinn kom fram að Eggert Bollason yfirhafnavörður hafði ákveðið að láta af störfum, en hann varð 67 ára í febrúar á þessu ári. Hafnastjórn samþykkti að starf yfirhafnavarðar yrði auglýst laust til umsóknar og var hafnastjóra falið að eiga samstarf við Capacent á Akureyri um ráðningu í starfið. Á 28. fundi hafnastjórnar ...

Úttekt á Leikbæ í Dalvík – smæð skólans vandamál og skortur á trausti

Mennta- og menningarmálaráðuneytið birti nýlega úttekt sem það lét gera á leikskólanum Leikbæ í Dalvík. Leikbær er ekki stór leikskólinn og í úttektinni koma fram nokkur atriði tengt smæð skólans. Unnið er að fjölmörgum þróunrverkefnum en smæð skólans kemur í veg fyrir að starfsfólk geti sinnt þeim með fullnægjandi hætti. Í úttektinni kemur einnig fram að starfsmenn eru fáir og þess vegna sé oft erfitt fyrir skólann að sinna þeim verkefnum sem metnaður starfsmanna og sveitarfélags stendur til og skapar það mikið álag. Innra mat er ekki ...

Settu í sama laxinn á sömu sekúndu!

Veiðífélagarnir Sigurður Guðmundsson verslunarmaður og bæjarfulltrúi á Akureyri og Sveinn Aðalgeirsson starfsmaður Eimskips lentu í hreint ótrúlegri uppákomu í vikunni, þar sem þeir voru við veiðar í Fosspolli í Skjálfandafljóti. Þeir settu í sama laxinn á nánast sömu sekúndu og náðu að landa honum með góðri samvinnu. Frá þessu er greint á vef Vikudags á Akureyri....

Mikil mannfjöldi á Mærudögum í veðurblíðu á Húsavík

Mærudögunum á Húsavík lýkur formlega í dag. Mikil mannfjöldi var á hátíðinni í gær í veðurblíðu. Hátíðin hefur almennt farið vel fram og gestir hennar sem og íbúar Húsavíkur skemmti sér hið besta, en nokkuð var þó um ölvun í gærkvöld. Mærudagarnir og Norræna strandmenningarhátíðinni Sail Húsavík runnu saman í gærkveldi með stórtónleikum á hafnarstéttinni. Þar komu meðal annars fram Hjaltalín og Raggi Bjarna en hér á vef 640.is eru nokkrar myndir frá kvöldinu....

Ungir fornleifafræðingar að störfum í Þingeyjarsveit

Undanfarna daga hafa ansi ungir fornleifafræðingar verið að störfum í Þingeyjarsveit þar sem þeir hafa meðal annars grafið upp kuml og hauskúpu. Í ár eins og síðustu sumur er það Fornleifaskóli barnanna sem bauð börnum í Þingeyjarsveit að taka þá í 5 daga dagskrá á vegum verkefnisins. Krakkarnir fengu að prófa að grafa upp minjar sem komið hafði verið fyrir eða búnar til fyrir þetta tilefni og fannst þá kumlið og hauskúpan. Skólanum var skipt í tvo hópa eftir aldri. Í öðrum hópnum voru 9 til 12 ára börn og í hinum voru unglingar...

Sex fyrirtæki bjóða í Vaðlaheiðargöng – framkvæmdir hafa tafist talsvert

Sex fyrirtæki munu fá að bjóða í gerð Vaðlaheiðarganga en áætlað er að hefja framkvæmdir við göngun í lok þessa árs eða í byrjun þess næsta. Fram kemur á Vikudögum.is að stjórn Vaðlaheiðarganga hf. samþykkti á fundi sínum á Akureyri nýlega að gefa öllum sex aðilunum sem þátt tóku í forvali, kost á að taka þátt í útboði vegna gerðar Vaðlaheiðarganga. Af fyrirtækjunum sex eru tvö íslensk, Ístak og Norðurverk en hin fjögur eru samvinnuverkefni erlendra og íslenskra fyrirtækja. Vaðlaheiðargöng voru hluti af ...

Nýr 900 metra langur sjóvarnargarður á Hjalteyri

Nýlokið er gerð nýrrar sjóvarnar á Hjalteyri og gekk framkvæmdin ljómandi vel. Tæplega 900 metra langur sjóvarnargarður var byggður framan við fiskeldisstöðina. Rétt um 6000 m3 af grjóti fóru í verkið, efniviðurinn var sóttur á Moldhaugaháls. Verktaki var Árni Helgason ehf. á Ólafsfirði sem átti lægsta boð og verktakakostnaður varð rúmar 16 milljónir króna...

Norræn strandmenningarhátíð stendur nú yfir á Húsavík

Sail Húsavík er norræn strandmenningarhátíð stendur nú yfir á Húsavík og lýkur á laugardag. Að hátíðinni standa grasrótarsamtök á Norðurlöndum, Norræna húsið og heimamenn. Þátttakendur koma víðsvegar að úr Skandinavíu og frá Íslandi, samskonar hátíð verður haldin ári seinna í Ebeltoft í Danmörku svo Osló í Noregi o.s.frv. Nokkrir tugir skipa hafa komið siglandi á hátíðina bæði frá Íslandi og í Skandinavískri sam- siglingu frá Noregi með viðkomu í Hjaltlandseyjum og Færeyjum....

Fjölmenni á Miðaldadögum í Eyjafirði

Góð aðsókn hefur verið á Miðaldadaga við Gásir í Eyjafirði sem hófust á laugardaginn. Talið er að um 650 gestir hafi heimsótt Gásir á opnunardaginn. Góð stemmning ríkti enda var veður nokkuð gott þrátt fyrir að golan léki um bæði Gásverja og gesti. Um helgina fóru m.a. fram skylmingar, knattleikur, axarkast, bogfimi og steinakast. Auk þess sem unnið hefur verið að smáhandverki, kaðlagerð, kolagröf og rennisteinshreinsun....

Dalvíkingar bjóða landsmönnum upp á dýrindis fiskrétti

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð, fyrsta laugardag eftir Verslunarmannahelgi, 5. - 7. ágúst. Fiskverkendur og fleiri framtakssamir í byggðarlaginu bjóða, með hjálp góðra styrktaraðila, landsmönnum öllum upp á dýrindis fiskrétti, milli kl. 11:00 og 17:00. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk....

ÚA verður rekið sem sérstakt félag innan Samherja

Samkeppniseftirlitið hefur fyrir sitt leyti samþykkt kaup Snæfells ehf., dótturfélags Samherja hf., á aflaheimildum, landvinnslu og tveimur skipum Brims hf. Eins og áður hefur komið fram var skrifað undir kaupsamninga þann 1. maí sl. með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Ákveðið hefur verið að nýtt fyrirtæki beri nafnið Útgerðarfélag Akureyringa, ÚA, og mun Samherji formlega taka við rekstrinum eftir sumarlokanir nú í byrjun ágúst....

Víkingar og langskip, eldsmiðir og kaupmenn á Gásum í Eyjarfirði.

Víkingar munu vera allsráðandi á Gásum í Eyjafirði daganna 16. til 19. júlí en þá fara þar fram Miðaldadagar. Á Miðaldadögum færist líf í Gásakaupstað sem var forn verslunarstaður á miðöldum. Handverksfólk, íklætt miðaldaklæðnaði, vinnur að leður- og vattarsaumi, jurtalitun, reipisgerð, tálgun í tré, spjaldvefnaði, boga- og örvagerð svo eitthvað sé nefnt. Gert verður til kola í fyrsta skipti í Hörgársveit í 200 ár og brennisteinn, sem var mjög mikilvæg útflutningsvara á miðöldum, verður hreinsaður rétt eins og þá var ...

Borun að hefjast á Þeistareykjum

Starfsmenn Jarðborana hf. hafa undanfarna daga unnið að uppsetningu á jarðbornum Óðni á Þeistareykjum. Í ár verða boraðar tvær 2000-2500 metra djúpar rannsóknarholur á Þeistareykjum sem hafa þann tilgang annarsvegar að kanna jarðhitageyminn undir Ketilfjalli á austurhluta svæðisins og hinsvegar undir Stórahver á vesturhluta svæðisins. ...

Ný siglfirsk glæpasaga kynnt á Síldarævintýrinu

Næsta haust kemur út hjá bókaforlaginu Veröld sjálfstætt framhald siglfirsku glæpasögunnar Snjóblindu, en nýja sagan gerist einnig að miklu leyti á Siglufirði og segir frá rannsókn á morði á verktaka sem búsettur er þar, en lík hans finnst illa útleikið í Skagafirði. Að þessu sinni er það ekki aðeins lögreglan sem rannsakar málið heldur líka ung sjónvarpsfréttakona, en höfundurinn, Ragnar Jónasson, starfaði einmitt sjálfur á fréttastofu með námi og sækir í þann reynslubanka við skrifin. ...

Hraðamyndavél tekin í notkun í Héðinsfjarðargöngum

Í dag verða hraðamyndavélar í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum teknar í notkun. Myndavélin er starfræn og eru upplýsingar um hraðabrot sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðveginum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlunin er hluti samgönguáætlunar. Vegagerðin, Innanríkisráðuneytið, ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa vinna að...

Færri þinglýsingar en hærri velta í fasteignaviðskiptum á Akureyri

Þinglýsingum á fasteignasamningum á Akureyri fækkar aðeins milli maí og júní en velta eykst. Þinglýstir samningar voru 37 í júní, heildarveltan var 891 milljón króna og meðalupphæð á samning 24,1 milljón króna. Þar af voru 18 samningar um eignir í fjölbýli, 17 samningar um eignir í sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir. Í maí var 41 samningi þinglýst, fleiri en í maí, en veltan var minni en í júní, eða 833 milljónir. Þær eignir sem þinglýstar voru í júní voru því líklega verðmætari en þær sem þinglýstar voru í maí. Á síðasta ári ...

Búið að veiða fyrsta lax sumarsins á Hrauni – 103 cm hængur

Á föstudaginn síðastliðinn veiddist fyrsti lax sumarsins á Hrauni, 103 cm lúsugur hængur en hann veiddist við Engey sem er neðst á svæðinu. Þetta kemur fram á vef Stangveiðifélags Akureyrar en þar segir einnig að laxinn gæti hugsanlega vegið 23 til 24 pund en honum var sleppt. Hraun og hin svæðin neðan virkjunar voru mikil stórlaxasvæði hér á árum áður en laxinn hefur verið friðaður fyrir veiði á Hrauni og svæðunum í kring í 8 ár. "Ánægjulegt að hann sé smám saman að hasla sér völl aftur efst í dalnum, laxgengd hefur ...

Ný leið kynnt til raforkuframleiðslu úr Jökulsá á Fjöllum

Mánudagskvöldið 11. júlí nk. kl. 20:00 í sal stéttarfélagana á Húsavík boða þeir Birgir Jónsson og Jón Þorvaldur Heiðarsson frá Háskólanum á Akureyri til kynningarfundar um nýja leið til að nýta Jökulsá á Fjöllum til raforkuframleiðslu. Sú leið sem Birgir og Jón Þorvaldur munu kynna er ný af nálinni og hefur ekki áður verið sett fram. Hún felur í sér algjörlega nýja hugsun hvernig hægt er að nýta Jökulsá á Fjöllum þar sem útgangspunkturinn er að umhverfisáfin verði sem minnst og sem mest afturkræf. "Við teljum okkur einfaldlega hafa ...

Norræn strandmenningarhátíð á Húsavík

Nú styttist í norrænu strandmenningarhátíðina "Sail Húsavík" sem verður haldin 16.-23. júlí næstkomandi á Húsavík. Þetta er fjölskylduhátíð þar sem fólki gefst kostur á að upplifa norræna strandmenningu "á bryggjunni." Markmið hátíðarinnar er að stuðla að eflingu strandmenningar hér á landi og að efla tengsl á sviði siglinga og strandmenningar við nágranna þjóðir okkar í Skandinavíu og norður Evrópu. Stór seglskip og minni bátar frá Danmörku, Færeyjum, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi verða í Húsavíkurhöfn og mynda ...

Síðbúinn sunnudagur í vísindamiðstöðinni í Hafralækjarskóla.

Sunnudaginn 10. júlí gefst almenningi tækifæri á að líta við og heimsækja fornleifafræðinga í aðsetur þeirra í Hafralækjarskóla í Aðaldal. Á hverju sumri undanfarin ár er þar sett upp vísindamiðstöð í nokkrar vikur í senn þar sem saman koma, fornleifafræðingar og aðrir vísindamenn og dvelja við rannsóknir í sýslunni. Dagskráin hefst kl. 16.00 og geta gestir litið við hvenær sem þeim hentar á bilinu frá kl. 16.00 tl 18.00. Stuttir fyrirlestrar verða fluttir með 30 mínútna millibili um rannsóknirnar sem unnið er að og unnið hefur verið að í ...

Jarðhitaleit í Hörgárdal og Öxnadal

Hörgársveit og Norðurorka hf. hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um jarðhitaleit í Hörgárdal og Öxnadal. Forsenda yfirlýsingarinnar er framlag úr Orkusjóði til verksins. Verkið skiptist í tvo meginhluta, þ.e. boranir og rannsóknir. Áætlað er að heildarkostnaður við það verði 15-20 milljónir króna. Verkið verður kynnt á almennum fundi í Þelamerkurskóla föstudaginn 10. júní kl. 14 og í framhaldi af því verða teknar upp viðræður við landeigendur á svæðinu um málið. Meginhluti húsa í Hörgársveit er tengdur hitaveitu sem rekin er af ...

"Að ég fari að deyja? Nei, það væri það síðasta sem ég gerði”

„Í gamla daga var ljóðið sjálft fjölmiðill, menn sögðu svo margt í því. Ljóð voru eins og trússhestar milli byggðanna, með allar mögulegar upplýsingar og fréttir. Nú þarf þess ekki lengur en hin ljóðræna snilld er eftir og verður alltaf eftir. Hana drepur enginn.” Þetta segir Matthías Johannessen skáld og fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, í viðtali við Jónas Ragnarsson og birt er á vefnum www.siglfirðingur.is í tilefni þess að Ljóðasetur Íslands verður vígt á Siglufirði í dag....

257 tonnum af karfa landað í Þorlákshöfn

Í gærnótt kom frystitogarinn Mánaberg ÓF 42 til hafnar í Þorlákshöfn með góðan úthafskarfaafla af Reykjaneshrygg og var honum landað í gær. Í skipinu voru 257 tonn af afurðum, sem svarar til 436 tonna afla upp úr sjó. Mánaberg millilandaði í Reykjavík 20. júní síðastliðinn. svipuðu magni og hélt þaðan á úthafskarfamiðin. Heildaraflinn í þessari veiðiferð skipsins er því um 870 tonn upp úr sjó að verðmæti 300 milljónum króna. "Úthafskarfaveiðar hafa gengið vel á vertíðinni og varð heildarafli Mánabergs 1.311 tonnn og ágæt ...

Umfangsmikil viðhaldsverkefni í Laxárstöð í sumar

Landsvirkjun vinnur nú í sumar að viðhaldsverkefnum í Laxárstöðvum og eru endurnýjun á aðrennslispípu fyrir Laxá II og endurbætur á þrýstijöfnunartanki stærstu verkefnin. Pípan er keypt frá Noregi og verður pípueiningunum skipað upp á Húsavík til geymslu þar til þær verða lagðar á sinn stað síðar í sumar. Jöfnunartankur verður einangraður og klæddur að utan, og er það von Landsvirkjunar að með nýju útliti verði eftirleiðis meiri prýði af tankinum í landslaginu. Einnig er unnið að viðgerð á vatnshjóli...

Hugað að nýjum gervigrasvelli á Húsavík – áætlaður kostnaður 177 milljónir króna

Á fundi bæjarráðs Norðurþings í lok júní var fjallað um byggingu á nýjum gervigrasvelli á Húsavík og er áætlaður kostnaður 177 milljónir króna. Sveitarsjtórn leitaði til Mannvits á Húsavík vegna athugunar á undirbyggingu og jarðvatnslögnum í efri grasvellinum og kostnaðarmats framkvæmda." Allar þessar tölur eru grófar og geta sveiflast til vegna breyttra forsenda en gefa þó góða vísbendingu um stærð verkefnisins" segir í fundargerð um kostnaðaráætlunina og tók Mannvit sérstaklega fram að kostnaðaðaráætlun vegna ...

Metumferð um Héðinsfjarðargöngin um liðna helgi

Um síðustu helgi fóru 887 bílar að meðaltali á dag um Héðinsfjarðargöng, frá föstudegi til sunnudags, samkvæmt upplýsingum umferðardeildar Vegagerðarinnar á Akureyri. Þetta er meira en fyrra helgarmet sem er síðan um páska, 864 bílar á dag. Sunnudaginn 3. júlí fóru 987 bílar um Héðinsfjarðargöng, sem er heldur minna en á laugardaginn um páskana þegar 1010 bílar fóru um gönginn...

Nýr gervigrasvöllur á Húsavík

Á fundi bæjarráðs Húsavíkur í vikunni var fjallað um byggingu á nýjum gervigrasvelli á Húsavík. Á fundinum heimilaði bæjarráð framkvæmda- og hafnafulltrúa að undirbúa verkefnið og einstaka verkþætti þess til úboðs. Stefnt er að því að fyrsti áfangi verkefnisins hefjist í september 2011....

Gönguferðir um fornleifasvæði í Suður-Þingeyjarsýslu

Hið þingeyska fornleifafélag, Fornleifastofnun Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn standa að gönguferða- og heimsóknadagskrá um minjasvæði í Suður-Þingeyjarsýslu sumarið 2011. Hið þingeyska fornleifafélag var stofnað þann 2. október 2004 á Narfastöðum í Reykjadal. Stofnaðilar voru 10 talsins, einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir í Þingeyjarsýslu. Markmið félagsins er að að efla rannsóknir á íslenskri miðaldamenningu, undirbúa og framkvæma fornleifaskráningu og fornleifarannsóknir í Þingeyjarþingi og skapa ...

Tvö skemmiferðaskip koma til Siglufjarðar í sumar - gestir kynnast síldarævintýrinu

Í sumar munu tvö skemmiferðaskip heimsækja Siglufjörð og bæði skipin koma þangað á meðan Sildarævintýrið stendur yfir. Mínerva frá skipafélaginu Swan Hellenic leggur að bryggju um klukkan 9:00 þann 30. júlí og verða um 300 farþegar um borð. Clipper Oddyssey frá skipafélaginu Zegrahm Expeditions mun koma snemma morguns sunnudaginn 31. júlí og verða um 130 farþegar um borðir. Anita Elefsen hjá Síldarminjasafninu hefur verið að undirbúa dagskrá fyrir gestina. Hún mun kynna fyrir þeim sögu Siglufjarðar og síldarsöguna...

Vegagerðin vill tvöfalda Drottningarbraut

Fyrir liggur ósk frá Vegagerðinni um að Drottningarbraut á Akureyri, sunnan Kaupvangstrætis, verði tvöföld og komi því sem tvær akreinar í hvora átt í framhaldi af Glerárgötunni. Þetta kom fram í svari Helga Snæbjörnssonar formanns skipulagnefndar við spurningu frá Edvard Huijbens bæjarfulltúa VG á bæjarstjórnarfundi í vikunni....

Landsvirkjun auglýsir ráðgjafaútboð vegna jarðhitavirkjana á Norðausturlandi

Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. hafa auglýst útboð á ráðgjafarþjónustu vegna fyrirhugaðra virkjana í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum. Útboðið er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu og rennur frestur til að skila inn tilboðum út þann 9. ágúst 2011. Heildar stofnkostnaður þessara framkvæmda er áætlaður um 47 milljarðar króna. Áfallinn rannsóknar og undirbúningskostnaður er nú um 5,4 milljarðar króna fyrir báðar virkjanirnar. Um er að ræða útboð á hönnun og gerð útboðsgagna vegna framkvæmda við allt að 90 MW ...

Íslandsbanki einn máttarstólpa Menningarhússins Hofs á Akureyri

Íslandsbanki hefur gert þriggja ára samstarfssamning við Menningarhúsið Hof á Akureyri. Menningarhúsið hefur verið starfrækt í tæpt ár og hafa vel á annað hundrað þúsund manns heimsótt það á þeim tíma. Þá hefur hin góða aðstaða í Hofi gert það að verkum að framboð hefur stóraukist á menningarviðburðum á Norðurlandi sem hefur haft jákvæð áhrif á menningarlíf Norðlendinga og samfélagið í heild, svo sem verslun, þjónustu og aðra atvinnuuppbyggingu....

Umhverfisráðherra undirritaði friðlýsingu Dimmuborga og Hverfjalls

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Dimmuborga og Hverfjalls við hátíðlega athöfn. Svæðin eru friðlýst sem náttúruvætti og markmiðið að varðveita sérstakar jarðmyndanir vegna mikils fræðslu- og útivistargildis svæðisins. Fyrr í mánuðinum samþykkti ríkisstjórnin 5 milljóna króna fjárveitingu til nauðsynlegra framkvæmda og rekstrar í tengslum við friðlýsingu Dimmuborga og Hverfjalls....

Stærsta vísindaráðsstefna sem haldin hefur verið á Akureyri

Á morgun, þann 22. júní, hefst í Háskólanum á Akureyri sjöunda ráðstefna Alþjóðlegra norðurslóðasamtaka félagsvísindamanna (IASSA) og stendur ráðstefnan í 4 daga og lýkur þann 26. júní. Þetta er stærsta vísindaráðsstefna sem haldin hefur verið á Akureyri en um 500 fræðimenn og sérfræðingar frá um 30 löndum taka þátt. Ráðstefnuna skipuleggur aðsetur samtakanna á Íslandi sem undanfarin 3 ár hefur starfað innan veggja Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar. Aðalskipuleggjandi ráðstefnunnar er Dr. Jón Haukur ...

Metaðsókn um nám í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri

40 nýjar umsóknir bárust Háskólanum á Akureyri um nám í sjávarútvegsfræðum næsta haust og hafa umsóknir aldrei verið fleiri. Hreiðar Þór Valtýsson lektor í sjávarútvegsfræðum við HA segir afar ánægjulegt að sjá slíka fjölgun á umsóknum og því sé framtíð námsins björt....

Úrslitastund í kjaradeilu Framsýnar við sveitarfélögin

Fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu Framsýnar og Samninganefndar sambands íslenskra sveitarfélaga vegna starfsmanna sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum á morgun, þriðjudag. Fundurinn verður hjá Ríkissáttasemjara. Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, telur fundinn vera mjög mikilvægan. Takist ekki að semja hljóti menn að skoða hvort ekki sé ástæða til að boða til verkfallsaðgerða....

Japanir heimsækja leikskólann Grænuvelli á Húsavík

Þann 14. júní síðastliðinn komu 12 leikskólakennarar frá Tokyo í starfskynningu á leikskólann Grænuvelli á Húsavík og var heimsóknin ánægjuleg fyrir bæði gesti og gestgjafa. Gestirnir fengu kynningu á starfsemi skólans og kennsluaðferðir og fengu þeir að gjöf handsápu sem búin er til í Lóni í Kelduhverfi. Japönsku kennararnir gáfu leikskólanum á móti forláta japanska ljósakrónu, hansaumuð búdasaumsveski, buddur og japanskt ofið efni. "Þar sem Ísland og Japan eru mjög ólík...

Menntaskólanum á Akureyri slitið í gær – dúx með einkunina 9,69

Menntaskólanum á Akureyri var slitið í 131. skipti í gær, þann 17. júní, og brautskráðust alls 166 nýstúdentar. Dúx í ár var Eva María Ingvadóttir með einkunina 9,69 og semi-dúxar, báðir með 9,5, voru þeir Gauti Baldvinsson og Gunnar Björn Ólafsson en sá síðarnefndi hlaut nýlega styrk Afreks- og hvatningarsjóðs stúdenta Háskóla Íslands. Í ræðu sinni fagnaði skólameistari því að náðst hefði kjarasamningur milli ríkis og kennara og sagði það vera alvarlegt fyrir menntun í landinu þegar kennarar drægjust aftur úr í launum...

Verslunin í Vaglaskógi opnaði í gær

Verslunin í Vaglaskógi sem Aðalheiður Kjartansdóttir rekur, opnaði í gær og var þá auglýst frítt kaffi í tilefni dagsins. Ekki verður selt tóbak í búðinni í sumar, en þar verða mjólkurvörur, grillvörur, gos, grillaðar langlokur og samlokur, íspinnar, ís úr vél þ.m.t. bragðaref, niðursuðuvörur, þurrvöru ýmsa og fleira og á sunnudögum vöfflur með ís og súkkulaði....

Háskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Akureyri leiða nýtt norðurslóðasamstarf

Háskólasetur Vestfjarða og Háskólinn á Akureyri leiða nýtt samstarfsnet á sviði haf- og strandsvæðastjórnunar en verkefnið er á vegum Norðurslóðaháskólans sem fagnar um þessar mundir 10 ára afmæli sínu. Markmið samstarfsnetsins er að efla tengslanet háskóla á norðurslóðum á sviði haf- og strandsvæðastjórnunar, koma á fót kennara- og stúdentaskiptum og efla rannsóknarsamstarf. Háskólasetrið og Háskólinn á Akureyri hafa verið aðilar að Norðurslóðaháskólanum um árabil. Aðrir aðilar að samstarfsnetinu um ...

Dimmuborgir og Hverfjall friðlýst

Í næstu viku mun umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, undirrita við hátíðlega athöfn friðlýsingu tveggja mikilvægra svæða í Skútustaðahreppi, Dimmuborga og Hverfjalls (Hverfell). Þetta munu verða fyrstu friðlýsingar á Mývatnssvæðinu eftir að lögum um vernd Mývatns og Laxár var breytt árið 2004. Ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt 5 milljóna króna fjárveitingu í verkefnið og verður þeim varið til aukinnar landvörslu og framkvæmda....

Hönd í hönd á Iðnaðarsafninu á Akureyri

Söfn eru ekki eingöngu vettvangur fræðslu og menntunar heldur eru þau einnig staður þar sem að safngripir eru uppspretta samræðna, samskipta og tengsla. Með þetta að leiðarljósi efndi Iðnaðarsafnið á Akureyri til verkefnisins Hönd í hönd, þar sem að börn og aldraðir kynntust og áttu í samræðum. Sýning byggð á verkefninu var opnuð þann 10. júní síðastliðinn og mun standa í allt sumar. Bæði ungir sem aldnir heimsóttu safnið og börnin heimsóttu aldraða tvisvar í Víðilund. Þeir safngripir sem vöktu áhuga barnanna og minningar hjá ...

Fugl fyrir milljón 2011

Nú er hafin í annað sinn ljósmyndakeppnin "Fugl fyrir milljón", en þar er keppt um bestu fuglamyndina tekna á Tröllaskaganum, í Hrísey, Grímsey, Drangey eða Málmey á tímabilinu 14. maí til 31. ágúst 2011. Hægt er að skrá sig hjá ýmsum ferðaþjónustuaðilum á Tröllaskaganum eða með því að senda tölvupóst á netfangið hotel@brimnes.is....

"Meðan fæturnir bera mig" til Akureyrar í dag

Hlaupahópurinn "Meðan fæturnir bera mig" er nú rúmlega hálfnaður með hlaup sitt í kringum landið. Hlaupið er til styrktar krabbameinssjúkum börnum og í morgun höfðu safnast rúmar 7,2 milljónir króna. Í dag hlaupa þau frá Reynihlíð til Akureyrar, alls um 100 km löng leið....

Kona segir Akureyrarbæ þvinga eigendur til að lóga köttum

"Það vill enginn þurfa að svæfa dýrin sín" segir Ragnheiður Gunnarsdóttir sem er ekki sátt með það hvernig bæjarstjórn Akureyrar hefur tekið á kattahaldi í bænum. Fleiri kettir finnist á vergangi en áður og skráningargjaldið er orðið 10.000 krónur og eftirlitsgjaldið 6.000 krónur. Akureyri.net birtir bréf frá Ragnheiði Gunnarsdóttur þar sem hún gagnrýnir meirihluta L-lista fyrir að þrengja að kattaeigendum. Fólk þarf að reiða fram háar fjárhæðir vilji það eiga ketti en það er alls óljóst hvert peningarnir ...

Fyrsti lax sumarsins í Laxá í Aðaldal

Fyrsti lax sumarsins veiddist í Laxá í Aðaldal í gær af urriðaveiðimanni. Á vefnum Vötnogveiði.is kemur fram að Jón Eyfjörð hafi í gær landað 92 cm nýgenginni hrygnu á Breiðeyri fyrir löndum Laxárfélagsins, en þar er stunduð urriðaveiði fyrir laxveiðitímann. Tók viðureignin 35 mínútur....

Samstarf um jarðhitaleit í Hörgárdal og Öxnadal

Hörgársveit og Norðurorka hf. hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um jarðhitaleit í Hörgárdal og Öxnadal. Forsenda yfirlýsingarinnar er framlag úr Orkusjóði til verksins. Verkið skiptist í tvo meginhluta, þ.e. boranir og rannsóknir. Áætlað er að heildarkostnaður við það verði 15-20 milljónir króna....

Verður kurl notað til að hita hús í Grímsey?

Í dag er Grímsey fjölmennasti þéttbýliskjarni á Íslandi þar sem allt húsnæði er hitað með brennslu jarðefnaeldsneytis. Það gæti breyst bráðlega en í síðustu viku fengu Skógrækt ríkisins, Norðurlandsskógar, Skógræktarfélag Eyfirðinga og Akureyrarbær styrk úr orkusjóði til að kanna hagkvæmni þess að kynda byggðina í Grímey með viðarkurli. Verkefnið felst í að kanna til hlítar möguleika á að nýta norðlenskt grisjunartimbur til að hita upp byggðina í Grímsey í stað olíukyndingar sem þar er nú. Kannaðir verða ýmsir möguleikar...

Thiago Trinsi gítarleikari á Akureyri kennir á námskeiðum út um allan heim

Thiago Trinsi heitir gítarleikari á Akureyri sem sem hefur tekið þátt í alþjóðlegum gítarkeppnum fyrir Íslands hönd, kennt á gítarnámskeiðum út um allan heim og heimildir herma að hann byrjað að spila á gítar um tveggja ára aldur. Thiago fæddist í borginni Porto Alegre í Rio Grande do Sol fylki í suðurhluta Brasilíu og er fylkið frægt fyrir að þaðan koma margar frægar ofurfyrirsætur, eins og til dæmis Gisele Bundchen og Adriana Lima...

Snjóflóðavarnir á Ólafsfjarðarvegi við Sauðanes

Vegagerðin fyrirhugar að koma upp snjóflóðavörnum á Ólafsfjarðarvegi við Sauðanes. Gerðir verða þrír svokallaðir snjóflóðaskápar ofan við veginn og sett upp stálþil framan við skápana. Verður þetta gert í þremur giljum þar sem snjóflóð eru mjög algeng. Áætlað er að verkinu verði lokið fyrir 1. október 2011....

Fiskvinnslufólk á Eyjafjarðarsvæðinu hefur áhyggjur af kvótafrumvörpunum

Fiskvinnslufólk á Eyjafjarðarsvæðinu hefur haft samband við veralýðsfélagið Einingu-Iðju og og líst yfir áhyggjum af stöðu sinni vegna afleiðinga kvótafrumvarpsins, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir að fólkið hafi áhyggjur af því að verið sé að skerða heimildir stöndugra fyrirtækja, þar sem verið hefur stöðug vinna allt árið, og auka hjá þeim sem hafa verið með minni umsvif og þeim sem ekki hafa gengi...

440 tonnum af úthafskarfa landað úr Mánabergi

Í dag er verið að landa úthafskarfa úr Mánabergi ÓF 42 í Þorlákshöfn. Heildarafli skipsins er um 440 tonn eftir 21 úthaldsdag. Þetta er í fyrsta skipti sem Mánabergið landar afla sínum í Þorlákshöfn. Nú fer áhöfnin í frí vegna sjómannadagsins, en heldur síðan aftur til veiða strax eftir helgi og er stefnan sett á áframhaldandi úthafskarfaaveiðar....

Bandarísk listakona opnar sýningu á Akureyri

Bandaríska listakonan Nicole Pietrantoni opnar sýninguna Souvenirs/Signs í Boxinu á Akureyri laugardaginn 4. júní. Sýningin samanstendur af grafíkmyndum og innsetningum eftir Nicole sem blandar saman stafrænni og hefðbundinni prentun, rannsókn hennar endar í innsetningum og verkum á pappír sem kanna samskipti manns við náttúru. Undanfarið hefur hún unnið hjá Íslenska grafíkfélaginu...

Rannsóknarborunum flýtt á Norðausturlandi

Stjórnir Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf. hafa samþykkt að auka verulega við rannsóknir vegna undirbúnings jarðgufuvirkjana á Norðausturlandi í sumar, að því er þingeyski fréttamiðillinn Skarpur greinar frá. Markmið félaganna er að flýta öflun upplýsinga um afkastagetu jarðhitasvæðanna í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum til að mæta aukinni eftirspurn væntanlegra orkukaupenda á svæðinu....

Samherji greiðir starfsmönnum sínum auka launauppbót

Allir starfsmenn Samherja í landi, sem hafa unnið hjá fyrirtækinu frá áramótum, fá 63.100 krónur í auka-launauppbót um næstu mánaðamót. Í nýsamþykktum kjarasamningum eru ákvæði um tvær eingreiðslur sem eiga að greiðast ofan á laun nú um mánaðamótin. Þær nema samtals 60 þúsund krónum. Samherji hefur ákveðið að rúmlega tvöfalda þessar umsömdu greiðslur, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins....

Rekstur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga gekk vel - viðskiptavinum fjölgar stöðugt

Sparisjóður Suður-Þingeyinga hélt aðalfund sinn á Breiðumýri á dögunum. Rekstur Sparisjóðsins gekk vel á síðasta ári og var hagnaður eftir skatta kr. 25,5 milljónir. Niðurstaða efnahagsreiknings um áramótin var um 7,5 milljarðar. Þá fjölgar viðskiptavinum sparisjóðsins stöðugt. Stjórn Sparisjóðs Suður-Þingeyinga var endurkjörin. Stjórnarformaður er Ari Teitsson og sparisjóðsstjóri Guðmundur E. Lárusson....

Ísfélagið hlaut Hvatningarverðlaun Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga

Ísfélag Vestmannaeyja hf. hlaut á dögunum Hvatningarverðlaun Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, en þetta var í tíunda sinn sem verðlaunin eru afhent. Ísfélagið fékk viðurkenninguna fyrir öfluga uppbyggingu í grunnatvinnuvegi á svæðinu sem skiptir sköpum um þróun og velferð samfélagsins” eins og segir í verðlaunaskjalinu. Frá því að Ísfélagið hóf rekstur á Þórshöfn í upphafi árs 2007 hefur það fjárfest fyrir á annan milljarð króna...

Víkingar taka á móti skemmtiferðaskipi á Akureyri

Farþegar á skemmtiferðaskipinu MSC Poesia fengu óvenjulegar móttökur þegar það lagðist að bryggju á Akureyri í gær. Á bryggjunni biðu þeirra þrír norðlenskir víkingar í fullum herklæðum en þeir félagar voru á vegum Víkingaferða. Frá þessu er greint á Akureyri.net. Ekki fylgir sögunni hvert erindi þessara víkinga var en langskip víkinga eru líklega eins og pappírsskip í samanburði við Poesia sem er ...

Slæmt veður fer illa með æðarvarp – 600 hreiður yfirgefin

Slæmt veður undanfarnar vikur hefur farið illa með æðarvarp í Siglufirði og um 60% hreiðra í firðinum hafa verið yfirgefin. Fram kemur á Siglo.is að það eru um 600 hreiður og má áætla að í hverju hreiðri séu að meðaltali 4 egg en yfirgefin egg hafa orðið mávum að bráð. Líkt og á tjörninni í Reykjavík þýðir lítið að skjóta mávana en "nokkrir áhugamenn um fuglavarp hafa gripið til byssu og skotið máfa til að hindra það að þeir útrými öllu varpi ...

Háskólalestin á Húsavík

„Mennt er máttur“ – segir orðtakið. Það var mikið um að vera þegar Háskólalestin heimsótti Húsavík um helgina. Í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands er starfsemi Háskóla unga fólksins með hátíðarsniði í ár og farin er ferð um landið með Háskólalestinni. Verkefnið er unnið í samstarfi við Rannsóknarsetur Háskólans á landsbyggðinni, Egilsstöðum, Höfn, Hvolsvelli, Sandgerði, Seltjarnarnesi, Stykkishólmi, Bolungarvík, Skagaströnd og Húsavík. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir gesti og gangandi á öllum aldri, viðburðir og vísindi, fjör og fræði....

Mikil óánægja með lokun starfsstöðvar Já.is á Akureyri.

Bæjarráð Akureyrar fjallaði á fundi í gær um uppsagnir hjá Já.is sem hefur ákveðið að loka starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri. "Bæjarráð lýsir yfir megnri óánægju með ákvörðun Já Upplýsingaveitna hf. að loka starfsstöð ja.is á Akureyri. Fyrirtækið hefur um áraraðir, bæði fyrir og eftir einkavæðingu, notið þjónustu góðs og trausts starfsfólks sem verður nú fyrir barðinu á þeirri ákvörðun ...

Eyjafjarðarsveit greiðir niður skuldir og skilar góðri afkomu

Árið 2010 greiddi Eyjafjarðarsveit niður skuldir, skar niður í rekstri og skilaði hagnaði upp á um 56 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrir árið 2010, sem var samþykktur af sveitastjórn í gær þann 24. maí. Á síðasta ári voru rekstrartekjur sveitafélagsins samtals 662,6 milljónir króna og rekstrargjöld voru 610,7 milljónir króna. Þegar kemur að stökum útgjaldaliðum...

Búist er við 400 þátttakendum á Vorfund Samorku

Búist er við um 400 þátttakendum á vorfund Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, sem haldinn verður í Hofi á Akureyri daganna 26. og 27. maí. Fundurinn er nú haldinn í sjötta sinn en hann er haldinn á þriggja ára fresti og alltaf á Akureyri. Vorfundir Samorku eiga að örva og hvetja til faglegrar samvinnu orku- og veitufyrirtækja um tæknileg málefni, öryggismál og fleira í því skyni að auka gæði þjónustunnar...

Grímseyjardagur í fyrsta sinn um helgina

Í ár verður í fyrsta sinn efnt til Grímseyjardags og verður hann haldinn á laugardaginn kemur. Liður í þessari dagskrá verður sýning á bjargsigi en einnig verður kríueggjaleit, ratleikur, boðið upp á siglingu og fleira. Loks verður botn sleginn í dagskrána með glæsilegu sjávarréttahlaðborði í félagsheimilinu að kvöldi Grímseyjardagsins en allar konurnar í eynni koma þá með sinn sjávarrétt og úr verður hið glæsilegasta veisluhlaðborð....

Laxá í Aðaldal er drauma laxveiðiá íslenskra veiðimanna

Á vefnum Flugur.is er birt niðurstaða skoðunarkönnunar um drauma veiðiá stangaveiðimanna. Á fimmta hundruð veiðimenn tóku þátt í valinu á draumaánni og fékk Drottningin sjálf lang flest atkvæði, alls um 16% tilnefninga. Það þarf kannski ekki að koma á óvart. Næst á eftir er Selá í Vopnafirði og í því þriðja Miðfjarðará í Húnavatnssýslu....

Fjallabyggð og sjómenn þar gætu tapað miklu á nýju kvótafrumvarpi

Útgerðarfyrirtækið Rammi er ekki ánægt með nýtt kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar og segir að Fjallabyggð muni tapa miklu á frumvarpinu. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að Fjallabyggð muni tapa 1.850 þorsksígildistonnum miðað við að veiði helstu nytjastofna nái 20 ára meðaltali. "Þessi tonn verða færð frá þeim sem nú nýta þessar aflaheimildir yfir í pólitíska potta sem ráðherra útdeilir úr að eigin geðþótta"...

Skrifað undir nýja verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá

Laugardaginn 14. maí undirritaði Svanlaug Svavarsdóttir umhverfisráðherra nýja verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá. Meginmarkmið verndaráætlunarinnar er að draga fram verndargildi svæðisins og marka stefnu um verndun þess með tilliti til þeirra markmiða sem sett hafa verið í lögum um verndarsvæðið. Undirritun verndaráætlunarinnar fór fram í gestastofu...

Aþena kemur til Akureyrar á morgun

Skemmtiferðaskipið Aþena leggur að bryggju á Akureyri snemma í fyrramálið. Er það fyrsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Akureyrar í sumar en fyrsta stopp þess á Íslandi er Reykjavík. Aþena er rúmlega 16.000 brúttótonn að stærð og eru 388 farþegar um borð, þar af um 270 Svíar. Gert er ráð fyrir að 55 skemmtiferðaskip...

Súlur sigurvegarar í Björgunarleikum 2011

Hópur frá Súlum - Björgunarsveitinni á Akureyri sigraði í Björgunarleikum 2011 sem haldnir voru í tengslum við landsþing SL á Hellu um helgina. Með þessum sigri varði hópurinn, sem er skipaður undanförum sveitarinnar, titil sinn en þeir sigruðu leikana líka árið 2009. Í öðru sæti var Björgunarfélag Akraness og Hjálparsveit skáta í Garðabæ í því þriðja....

Skrautlegur fugl í heimsókn á Siglufirði

Í gær kom afar sjaldgæfur fugl í heimsókn til Siglufjarðar. Þar var um að ræða býsvelg (Merops apiaster), sem einungis einu sinni hefur sést á Íslandi áður; það var á Eskifirði í júní árið 1989. Hjónin Örlygur Kristfinnsson og Guðný Róbertsdóttir urðu hans fyrst vör og létu Sigurð Ægisson vita og tókst honum að ná af honum myndum og birti á vefsíðunni www.siglfirðingur.is....

Fyrirtæki stofnað til að rannsaka framleiðslu á metan úr kúamykju

Stofnað hefur verið fyrirtæki á Akureyri sem stefnir að því að framleiða metan úr kúamykju. Fyrirtækið heitir Metan úr héraði ehf. og að því standa Elvar Jónsteinsson, Bjarni Sigurðsson og Þórður Birgisson. Þeir tóku þátt í Atvinnu- og nýsköpunarhelgi sem Háskólinn á Akureyri hélt daganna 15. til 17. apríl og unnu til þriggja verðlauna...

"Það er engu líkara en að stjórnvöld geri í því að bregða fyrir okkur fæti"

Mikil óánægja er með tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðikerfinu meðal sjávarútvegsmanna. Garðar Ólafsson er útgerðarmaður í Grímsey og er allt annað en sáttur með tillögurnar. Garðar rekur fyrirtækið Sigurbjörn sem gerir út þrjá báta ásamt því að reka einu fiskvinnsluna í eyjunni. Hjá fyrirtækinu starfa fimmtán manns og er um að ræða stærsta avinnustaðinn í Grímsey...

Hreinsunardagur fjölskyldunnar á Húsavík

Það er langt liðið á vorið í Þingeyjarsýslum og margt kemur undan snjónum. Ár hvert koma Húsvíkingar saman einn blíðviðris laugardag og hreinsa bæinn sinn með samstilltu átaki, fjölskyldna, félagasamtaka og hópa sem vilja fegra bæinn sinn. Húsvíkingar hittust í morgun og tíndu rusl sem safnast hafði yfir veturinn en dagurinn er liður í fegrunarátaki í sveitarfélaginu Norðurþingi....

Atvinnuleysi á Norðurlandi eystra lækkar hratt

Atvinnuleysi á Norðurlandi eystra er á hraðri niðurleið og er nú komið niður í 6,6%, en það var 7,9% í mars á þessu ári. Soffía Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi, segir í samtali við Vikudag að þegar kemur að atvinnumálum þá sé besti tíminn framundan. Verið sé að auglýsa mörg sumarstörf og svo hafi nýlega verið auglýst 900 störf á vegum sveitafélaga og ríkisins sem ætluð eru fyrir námsmenn og atvinnulausa í sumar...

Þrir menn handteknir vegna dreifingar á fíkniefnum

Síðastliðinn miðvikudag handtók lögreglan á Akureyri þrjá karlmenn á Siglufirði og á sama tíma var einn maður til viðbótar færður til skýrslutöku í Reykjavík. Allir tengjast mennirnir máli sem snýst um dreifingu á 600 grömmum af marijúana í Fjallabyggð. Málið hefur verið í rannsókn síðan í byrjun þessa árs og fór lögreglan á Akureyri með rannsókn þess og fékk aðstoð frá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu...

200 manns á Kjördæmamóti í bridge á Siglufirði

Um 200 manns munu spila á Kjördæmamóti í bridge sem haldið verður á Siglufirði um næstu helgi. Mótið er árlegt og er byggt á gömlu kjördæmaskiptingunni. Þannig munu fulltrúar 8 þessara „kjördæma“ etja kappi ásamt liði frá Færeyjum og liði heimamanna....

Á dansskónum í Akureyrarkirkju

Það verður mikil fjölbreytni í helgihaldi á Akureyri um næstu helgi. Í Akureyrarkirkju verður haldin dansmessa og kirkjugestir verða boðnir velkomnir á dansskónum. Frá þessu er greint á nýjum og breyttum fréttavef Þjóðkirkjunnar....

Kristín Gunnlaugsdóttir opnar yfirlitssýningu á Akureyri

Næstkomandi sunnudag, þann 7. maí, opnar í Listasafninu á Akureyri yfirlitssýning á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur. Á þessari sýningu mun Kristín vera með síðustu málverkin sem hún málaði, fjallamyndir og eggtemperur sem áður hafa verið sýndar á sýningunni "Gullin mín" í október 2010. Einnig mun hún sýna íkona og veggteppi og svo geta sýningargestir flett og keypt nýja bók um Kristínu...

Samið um starfsnám laganema við Háskólann á Akureyri

Háskólinn á Akureyri hefur gert starfsnámssamning við við embætti Sýslumannsins á Akureyri, Héraðsdóm Norðurlands eystra og stjórnsýsludeild Akureyrarbæjar. Mun samningurinn gera laganemum kleift að vinna hjá þessum stofnunum meðan á námi stendur. Þetta er í fyrsta skipti sem lagadeild Háskólans á Akureyri gerir skrifalegan samning um starfsnám við...

Yfir þúsund gestir í afmælisveislu Framsýnar

Rúmlega þúsund manns tóku þátt í afmælishátíð Framsýnar í Íþróttahöllinni á Húsavík í gær, 1. maí. Hátíðin var með veglegra móti í ár í tilefni þess að um þessar mundir eru liðin 100 ár frá stofnun fyrsta stéttarfélagins á Húsavík, Verkamannafélags Húsavíkur. Meðal hátíðargesta voru forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff. ...

Krían komin til Siglufjarðar

Einn af vorboðunum fljúgandi er komin til Siglufjarðar en þar komu menn auga á fyrstu kríurnar í gær. Vorið er víst gott á Siglufirði en eftirfarandi lýsing er á Siglo.is: Frábært vor á Sigló! Góðviðri flesta daga, enginn snjór á láglendi ...

Sólbakur EA í mokveiði í Barentshafi - fékk allt upp í 90 tonn á dag!

Togarinn Sólbakur EA hefur verið að gera það gott í þorskveiðum í Barentshafi að undanförnu. Í síðustu fjórum veiðiferðum þangað norður hefur hann fiskað tæplega eitt þúsund tonn, eða um 240 tonn að meðaltali í túr. ...

Flugslysaæfing í Grímsey

Í dag er haldin flugslysaæfing í Grímsey þar sem æfð eru viðbrögð við flugslysi við flugvöllinn. Þegar slíkar æfingar eru haldnar er verið að láta reyna á samvinnu allra viðbragðseininga á svæðinu. Aðstæður í Grímsey eru þannig að þar eru ekki til staðar nema hluti hinna hefðbundnu viðbragðsaðila eins og lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir, Rauði krossinn og heilbrigðisstarfsmenn...

11.400 manns fóru um Héðinsfjarðargöng um páskana

Vegagerðin hefur ekki mælt meiri umferð um Héðinsfjarðargöngin á einum sólarhring en þann 22. apríl síðastliðinn. Um páskana fóru um 4.383 bílar að meðaltali um bæði göng (í báðar áttir). Vegagerðin reiknar að jafnaði með að 2,6 séu í hverjum bíl að rútum meðtöldum...

Hagnaður KEA rúmar 100 milljónir

Hagnaður KEA eftir skatta á síðasta ári nam rúmlega 101 milljón króna en var 276 milljónir króna árið áður. Heildareignir félagsins námu um 4,3 milljörðum króna og eigið fé var 4,2 milljarðar króna. Ekki urðu mikar breytingar á eignasafni félagsins á síðasta starfsári, að því er fram kemur á heimasíðu KEA....

Metaðsókn á skíðasvæði Siglfirðinga

Mikill fjöldi fólks var á skíðum í dymbilviku og um páskana á skíðasvæðinu í Skarðsdal í Siglufirði. Sem dæmi má nefna að á föstudag og laugardag komu 700 manns hvorn dag, að því er fram kemur á vef skíðasvæðisins. Fyrir viku sagði Egill Rögnvaldsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, í viðtali að gestafjöldinn í vetur væri kominn í tíu þúsund manns....

Kröfur í þrotabú Orkuvarðar ehf. um 160 milljónir króna

Nú þegar frestur er liðinn til að lýsa kröfum í þrotabú Orkuvarðar ehf. er ljóst að þær nema um 160 milljónum króna og eru forgangskröfur 40 milljónir króna. Félagið var stofnað í kringum RES-orkuskólann sem settur var á laggirnar árið 2007. Átti hann að vera alþjóðlegur háskóli á sviði endurnýjanlegra orkugjafa...

Margt í boði í Siglufirði um páskana

Það verður mikið um að vera í Siglufirði í vikunni sem nú er hafin og á páskadögunum – helgihald, skemmtanir og íþróttamannvirki opin. Svo má ekki gleyma hve fljótlegt er að skjótast til næstu þéttbýlisstaða við Eyjafjörðinn, að því er fram kemur á siglfirska fréttavefnum Siglfirðingur.is....

Milljónamæringurinn fundinn

Mikil spenna hefur verið á Siglufirði síðan í ljós kom að lottómiði, sem hafði að geyma 61 milljón króna vinning í Lottóinu, var keyptur á bensínstöð Olís þar í bæ um síðustu helgi. Nú hefur komið í ljós að hjón af höfuðborgarsvæðinu áttu miðann góða sem þau keyptu í heimsókn sinni til Siglufjarðar um síðustu helgi. Þau gáfu sig fram við íslenska Getspá í gær....

Farið inn í ólæsta bíla og hús á Akureyri

Undanfarna daga hafa óþekktir aðilar verið að fara inn í ólæsta bíla og hús á Akureyri en litlu hefur verið stolið. Síðustu daga hefur lögreglunni á Akureyri hefur borist margar tilkynningar um þetta. Henni hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þeirra sem þarna voru að verki...

Ferskur afli úr skipi frá Evrópusambandslandi unninn á Dalvík

Togarinn Baldvin frá Cuxhaven kom til Dalvíkur á laugardagskvöld og landaði þar um 200 tonnum af ferskum bolfiski, aðallega þorski. Löndunin markar ákveðin tímamót því þetta er í fyrsta sinn í meira en tvo áratugi sem ferskum afla úr skipi frá Evrópusambandslandi er landað til vinnslu á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Samherja....

Siglfirðingur fær 60 milljónir í lottóinu

Einn var með allar fimm Lottó-tölur gærkvöldsins réttar og fær vinningshafinn rúma 61 milljón króna í sinn hlut. Um sexfaldan pott var að ræða enda er vinningurinn einn sá allra hæsti í sögu lottósins. Vinningsmiðinn var keyptur í Olís-skálanum á Siglufirði. Lottótölurnar voru 2, 3, 11, 28 og 36 og bónustalan var 27. Jókertölurnar voru 9 - 2 - 6 - 1 - 5....

Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri

Ungt fólk verður virkjað til athafna helgina 15.-17. apríl á Akureyri en þá verður haldin þar Atvinnu- og nýsköpunarhelgin. Markmiðið með helginni er að aðstoða fólk eða hópa við að þróa viðskiptahugmyndir og þeim til aðstoðar verða á þriðja tug sérfræðinga með reynslu eða menntun í frumkvöðlastarfsemi. ...

Múlaberg landaði 80 tonnum á Siglufirði

Í dag var verið að landa 80 tonnum af blönduðum fiski úr Múlabergi SI 22 á Siglufirði. Megnið af þeim afla verður unnin í vinnslu Rammans í Þorlákshöfn. Múlabergið hættir nú á bolfiskveiðum og byrjar aftur að veiða rækju fyrir vinnslu Rammans á Siglufirði....

Framsýn mótmælir að dómþing leggist af á Húsavík í sumar

Til stendur að dómþing leggist af á Húsavík í sumar og flytjist til Akureyrar með verulegri óhagræðingu og kostnaðarauka fyrir íbúa og stofnanir svæðisins. Regluleg dómþing hafa verið haldin í Þingeyjarsýslum allt frá árinu 1262. Stéttarfélagið Framsýn hefur sent innanríkisráðherra bréf þar sem skorað er á hann að afturkalla boðaðar breytingar þegar í stað....

Framsýn vill fund með SA

Þrjú verkalýðsfélög; Framsýn, Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðsfélag Þórshafnar óskuðu í morgun eftir fundi með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins um sérmál og launalið kjarasamnings aðila. Þessi þrjú félög ákváðu á sínum tíma að segja skilið við önnur stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands vegna mismunandi áherslna í kröfugerð sambandsins ...

Bændur ósáttir um landverð vegna Vaðlaheiðarganga

Eigendur lands sem tekið verður vegna fyrirhugaðra framkvæmda við gerð Vaðlaheiðarganga eru ósáttir við það verð sem Vegagerðin býður og þykir það í lægri kantinum. Samningaviðræður eru í gangi milli aðila, en mikið ber í milli, að því er fram kemur í Bændablaðinu....

Vill láta reisa styttu af sigurliði Norðurþings

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að Þingeyingar hafa eignast nýjar hetjur og átrúnaðargoð, en það er sigurlið Norðurþings í Útsvari. Á þingeyska fréttavefnum Skarpur.is segir það vel við hæfi að reisa styttu af liðinu fyrir framan stjórnsýsluhús Norðurþings á Húsavík....

Góð afkoma og skuldir lækka hjá Akureyrarbæ

Rekstur Akureyrarbæjar, fyrir fjármagnsliði, gekk vel árið 2010 og betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sjóðsstreymi var einnig ágætt. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.406 millj.kr. en var jákvæð um 1.675 millj. kr. eftir fjármagnsliði. Er það liðlega 600 milljóna króna betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir en í áætlun samstæðunnar var jákvæð afkoma áætluð 1.075 millj.kr., að því er fram kemur á heimasíðu Akureyrarbæjar....

Borað eftir metangasi í Glerárdal ofan við Akureyri

Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða eru að ljúka borunum á rannsóknarholum í Glerárdal fyrir ofan Akureyri. Verið er að kanna hvort að á gömlu haugunum leynist nægilega mikið magn af metangasi svo að hægt sé að nýta það. ...

Samherji veðlaunar þá sem mæta best til vinnu

Samherji hf. ætlar að veita 13 starfsmönnum sínum sérstök hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi mætingu til vinnu á árinu 2010. Starfsmennirnir fá hver um sig ferðaávísun að upphæð 100 þúsund krónur. Þetta er fjórða árið í röð sem fyrirtækið veitir slíka viðurkenningu, að því er fram kemur á heimasíðu Samherja....

Fjórar konur efna til sumarsólstöðuhátíðar í Árskógi

Fjórar konur hafa tekið sig saman og ætla að efna til sumarsólstöðuhátíðar, sem er jafnframt Kundalini jógahátíð og verður í Árskógi við Eyjafjörð 18. - 22. júní í sumar. Þar verður stundað Kundalíní jóga kvölds og morgna, fyrirlestrar, grænmetisfæði og hráfæði, fuglaskoðun, grasaferð, gönguferðir, tónleikar, sjósund og margt fleira, að því er fram kemur á nýrri heimasíðu Sumarsólstöðuhátíðarinnar....

Húsfyllir á vorfagnaði Hreims að Ýdölum

Uppskeruhátíð karlakórsins Hreims í Þingeyjarsýslu var haldin að Ýdölum í Aðaldal í gærkvöld og var húsfyllir á þessum frábæru tónleikum. Tónleikarnir báru yfirskriftina Rússarnir koma og eins og titillinn ber með sér var rússnesk tónlist meginviðfangsefni kvöldsins. Gestasöngvarar með kórnum voru Gissur Páll Gissurarson og Hera Björk Þórhallsdóttir....

Norðurþing hafði betur á úrslitastundu

Lið Norðurþings sigraði lið Akureyrar í úrslitum spurningakeppni Útsvars í Sjónvarpinu eftir æsispennandi keppni í kvöld. Norðurþing hlaut 75 stig, en lið Akureyrar 73. Úrslitin réðust ekki fyrr en í síðustu spurningu kvöldsins, en lengi leit út fyrir öruggan sigur Akureyringa. ...

Þolinmæði verkafólks er löngu þrotin, samninga strax!

Aðalfundur Framsýnar stéttarfélags var haldinn á Húsavík í gær og var húsfyllir. Ánægja ríkti með stjórn félagsins og stendur félagið mjög vel fjárhagslega. Kjara- og atvinnumál voru fundarmönnum hugleikin og var samþykkt ályktun þar um. Þar kemur fram að verkafólki sé haldið í gíslingu vegna endurskoðunar á fiskveiðistjórnunarkerfinu,...

Hvalur kynnir sig persónulega á Húsavík

Hvalaskoðunarvertíðin fer senn í hönd á Húsavík og stefnir í gott hvalasumar. Sumir eru spenntari en aðrir fyrir sumrinu en hnúfubakur nokkur heimsótti Húsvíkinga heim í gær og synti inn í höfnina til að skoða aðstæður....

Aðflugsæfingar að flugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný með komu flugsveitar kanadíska flughersins sunnudaginn 3. apríl, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Verkefnið er í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland....

Kaldi stækkar um þriðjung

Bruggsmiðjan á Árskógssandi í Eyjafirði framleiðir bjórinn Kalda sem hefur notið mikilla vinsælda frá því að hann kom fyrst á markað árið 2006. Nú hefur verið ákveðið að stækka brugghúsið um þriðjung og var fyrsta skóflustungan að stækkuninni tekin 23. mars síðastliðinn...

Grannaslagur í Hofi

Lið Akureyrar og Norðurþings etja kappi í útslitaviðureign Útsvars veturinn 2010-2011 nk. föstudagskvöld í beinni útsendingu Sjónvarpsins frá Hofi á Akureyri. Þættinum verður einnig varpað á risatjaldi í minni sal Hofs þannig að það má gera ráð fyrir mikilli stemningu í húsinu....

Vaðlaheiðargöng boðin út

Vegagerðin hefur auglýst eftir þátttakendum í forvali vegna Vaðlaheiðargangna, milli Eyjarfjarðar og Fnjóskadals auk tilheyrandi framkvæmda við vegagerð o.fl. Verktakar hafa frest til 3. maí næstkomandi til að skila inn forvalsgögnum. Göngin verða rúmlega 7 km að lengd og 9,5 m að breidd og akbrautin um 7 m breið....

Frístundakort í Fjallabyggð?

Á fundi frístundanefndar Fjallabyggðar sem haldinn var þann 24. mars sl. voru lögð fram ný drög að reglum um frístundakort. Í fundargerðinni kemur meðal annars fram:...

Rauðaskriða er eina hótelið á Íslandi með Svansvottun

Hótel Rauðaskriða í Aðaldal hefur nú fengið vottun Norræna Umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Strangar kröfur Svansins tryggja að hótelið er í fremstu röð varðandi lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa frá starfseminni. Rauðaskriða er eina hótelið á Íslandi með Svansvottun, en alls bera 15 fyrirtæki nú merki Svansins. ...

Börn verða foreldrar

Nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar taka þátt í forvarnarverkefninu "Hugsað um barn" nú um helgina. Fengu þau afhent svokallað raunveruleikabarn til að hafa með sér heim. ,,Barnið" er dúkka sem er hönnuð eins og ungabarn í útliti og hegðar sér sem slíkt....

Atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri 15.-17. apríl

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin verður haldin í Háskólanum á Akureyri helgina 15.-17. apríl nk. Helgin er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og atvinnulífsins. Einstaklingar með hugmyndir um atvinnu og nýsköpun koma saman til að skapa ný störf í samfélaginu, hvort heldur sem um er að ræða ný eða starfandi fyrirtæki. ...

Nýr formaður í Framsóknarfélagi Fjallabyggðar

Aðalfundur Framsóknarfélags Fjallabyggðar var haldinn í gærkvöld. Um 30 félagsmenn mættu á fundinn og tóku þátt í aðalfundarstörfum. Þau tímamót urðu að Bogi Sigurbjörnsson og Skarphéðinn Guðmundsson óskuðu ekki eftir endurkjöri í stjórn félagsins eftir 11 ára setu, en Bogi var formaður og Skarphéðinn gjaldkeri....

Fá ekki að skipta um stéttarfélag

Á heimasíðu stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík segir frá því að töluvert sé um að verkafólk utan félagssvæðis Framsýnar óski eftir inngöngu í Framsýn, ekki síst úr Eyjafirði. Ekki er alltaf hægt að verða við þessum óskum þar sem í gildi er ákveðnar reglur meðal stéttarfélaga innan ASÍ um félagsaðild....

Krafa um hljóðvarpsútsendingu í Héðinsfjarðargöngum

Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu um öryggismál í jarðgöngum hér á landi. Á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar sem haldinn var síðastliðinn þriðjudag voru lagðar fram upplýsingar um kostnað við að koma upp hljóðvarpsútsendingum í Héðinsfjarðargöngum....

Elsa Guðrún Jónsdóttir íþróttamaður Ólafsfjarðar

Skíðagöngukonan Elsa Guðrún Jónsdóttir var kjörin Íþróttamaður Ólafsfjarðar árið 2010. Athöfnin fór fram í Tjarnarborg 22. mars. Eins og fram hefur komið er þetta líklega í síðasta skiptið sem íþróttamaður Ólafsfjarðar verður valinn, hér eftir verður valinn íþróttamaður Fjallabyggðar....

Fjallabyggð gæti orðið spennandi valkostur fyrir golfáhugafólk

Í Fjallabyggð er nú verið að vinna að uppbyggingu tveggja 9 holu golfvalla, í Ólafsfirði og á Siglufirði. Leggja á fjármuni í endurbætur á golfvellinum í Ólafsfirði og hefja á uppbyggingu nýs golfvallar við skógræktina í Hólsdal í samvinnu við golfklúbb Siglufjarðar og Rauðku sem er fyrirtæki athafnamannsins Róberts Guðfinnssonar sem byggt hefur upp öfluga og glæsilega ferðaþjónustu á Siglufirði....

Bíósýningar í Tjarnarborg!

Í fundargerð menningarnefndar Fjallabyggðar 10. mars sl. var vel tekið í fyrirspurn um að halda bíósýningar í Tjarnarborg, en Tjarnarborg er menningarhús í eigu sveitarfélagsins. ...

Aðsókn að Menntaskólanum á Tröllaskaga fram úr björtustu vonum

Menntaskólinn á Tröllaskaga hefur verið starfræktur frá haustinu 2010. Aðsókn að skólanum hefur farið fram úr björtustu vonum. Á heimsíðu skólans kemur m.a. fram að 21 hafi sótt um skólavist á vorönn en því miður hafi ekki verið hægt að taka alla nemendur inn þar sem flestir námshópar eru orðnir yfirfullir....

Viðsnúningur í langvarandi neikvæðri byggðaþróun

Í Þingeyjarsýslum er mikil orka í iðrum jarðar og hana vilja Þingeyingar beilsa til að skapa störf og snúa við langvarandi neikvæðri byggðaþróun. Störfum hefur fækkað um 750-800 á síðastliðnum árum, sem hefur leitt til þess að byggðir standa veikar eftir og samfélagið elst. ...

1087 atvinnulausir á Norðurlandi eystra

Atvinnuleysið á Norðurlandi eystra var 6,8% í febrúar og voru 1.087 einstaklingar skráðir atvinnulauir í lok mánaðarins. Flestir voru atvinnulausir á Akureyri eða 733 einstaklingar. Ekki er að sjá að atvinnuleysið muni aukast á næstu vikum, þess í stað má reikna með að það var hægt batnandi. ...

Akureyrarbær styrkir kræklingarækt í Hrísey

Á fundi bæjarráðs Akureyrar í síðustu viku var tekið fyrir erindi frá Birni Gíslasyni f.h. Tækifæris hf þar sem óskað er eftir þátttöku Akureyrarbæjar í endurreisn skelræktar við Hrísey með hlutafjárframlagi að upphæð 2 milljónir króna í nýju skelræktarfélagi. Bæjarráð samþykkti erindið og hljóta það að teljast ánægjuleg tíðindi fyrir eyjaskeggja enda munar um hvert starf í svo litlu samfélagi sem Hrísey er....

15% íbúa Siglufjarðar eru sjötíu ára eða eldri

Samkvæmt nýjustu tölum frá Hagstofunni voru 2.037 íbúar í Fjallabyggð og hafði þeim fækkað um 45 á einu ári. Hinn 1. janúar 2010 bjuggu 1.214 manns á Siglufirði og 852 á Ólafsfirði. Á báðum stöðunum eru karlarnir fleiri en konurnar og munar 24 á Siglufirði en 27 á Ólafsfirði. Tölur fyrir upphaf þessa árs eru ekki enn tiltækar....

Skemmtilegt vísnasafn Hörgársveitar

Á vef Hörgársveitar er að finna skemmtilegt vísnasafn. Þetta eru nokkrar lausavísur sem ortar hafa verið af þeim sem búið hafa á því svæði sem Hörgársveit nær yfir. Nú hafa um 30 einstaklingar sent inn vísur sínar og er hægt að skoð þær á vefnum. Þess er vænst að þeim fjölgi smám saman....

Svínið Bogga stækkar og stækkar

Það vakti töluverða athygli þegar samstarfsmenn stéttarfélagsins Framsýnar í Þingeyjarsýslu færðu Aðalsteini Baldurssyni formanni sínum svín í afmælisgjöf fyrir síðustu áramót. Töluvert margir hafa leitað eftir fréttum af svíninu sem fékk nafnið Bogga í höfuðið á varaformanni Framsýnar, sem grunuð er um að hafa staðið á bak við þessa óvenjulegu afmælisgjöf. ...

Opið fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu

Búið er að opna fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Akureyri vegna Icesave samninganna sem Alþingi samþykkti hinn 16. febrúar 2011. Kosið er í húsakynnum Sýslumannsins á Akureyri að Hafnarstræti 107 milli kl. 09:00 og 15:30 virka daga. Þá er einnig búið að opna fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu í útibúi embættisins á Dalvík sem er að Gunnarsbraut 6....

Heildarkostnaðurinn við Héðinsfjarðargöng 14,2 milljarðar

Í umræðu um Héðinsfjarðargöng hafa komið upp villandi upplýsingar um kostnað við göngin og samanburð á upphaflegri áætlun og endanlegri útkomu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Uppreiknuð upphafleg áætlun er 12,1 milljarðar króna en uppreiknaður heildarkostnaður nam 14,2 milljörðurm króna. Í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að heildarkostnaður við Héðinsfjarðargöng yrðu 7,6 milljarðar króna en áætlunin var gerð í janúar 2006....

Stofnun hlutafélags um gerð Vaðlaheiðarganga - kostnaður 10,4 milljarðar

Hlutafélagið Vaðlaheiðargöng hf. var á dögunum stofnað á Akureyri samkvæmt heimild í lögum um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir sem Alþingi samþykkti 16. júní 2010. Hluthafar eru Vegagerðin með 51 prósents hlut og Greið leið ehf. með 49 prósenta hlut....

Ný heimasíða hjá Fjallabyggð

Fjallabyggð hleypti á dögunum af stokkunum nýrri og glæsilegri heimasíðu. Hún er unnin í Moya kerfi frá Stefnu og er aðgengileg í alla staði. Verður hún yfirfarin næstu daga, til að athuga hvort allt sé nú ekki eins og til var ætlast. Þar segir að allar ábendingar varðandi heimasíðuna er hægt að senda á gisli@fjallabyggd.is. Sjá HÉR....

Styttur bæjarins!

Lögreglan á Akureyri óskar eftir upplýsingum um eiganda styttu (sjá mynd) sem er í óskilum hjá lögreglunni á Akureyri. Styttan fannst í Giljahverfi á Akureyri í lok febrúar. Þeir sem geta gefið upplýsingar um styttuna eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma: 464-7700. ...

Akureyringar þurfa að greiða sérstakt kattagjald

Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykktt gjaldskrá fyrir kattahald í Akureyrarkaupstað. Eftirlitsgjald verður kr. 6.000 og skráningargjald kr. 10.000, eða samtals 16.000 krónur á hvern kött. Einnig á að gelda alla fressketti eldri en fimm mánaða og kötturinn skal ávallt vera með ól með plötu um hálsinn þar sem skráningarnúmer kattarins og símanúmer eiganda er ritað....

Sorpurðun hætt í Glerárdal

28. febrúar urðu tímamót í sorphirðumálum Akureyringa þegar allri urðun var hætt á Glerárdal en þar hefur sorp verið urðað sl. 40 ár. Framvegis verður öllu sorpi til urðunar ekið á Sölvabakka við Blönduós. ...

Fálkasetur Íslands stofnað

Stofnfundur Fálkaseturs Íslands var haldinn í Gljúfrastofu 1. mars. Ólafur Nielsen flutti þar erindi um Íslenska fálkann. Hugmyndin að félaginu var kynnt, en skv. drögum að samþykktum er tilgangur félagsins að vera samstarfsvettvangur einstaklinga, stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja á Norðausturlandi um uppbyggingu og rekstur Fálkaseturs í Gljúfrastofu....

Vefur Norðursiglingar hlaut Íslensku vefverðlaunin

Vefsetur Norðursiglingar, www.nordursigling.is, hlaut nú fyrir skemmstu Íslensku vefverðlaunin. Verðlaunin eru veitt árlega þeim íslensku vefjum sem þykja standa fremstir ár hvert og er þá horft til ýmissa atriða, tæknilegar útfærslur eru skoðaðar, útlit og notendavæni. Þá er rækilega ígrundað hversu vel vefurinn þjónar tilgangi sínum....