Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Guðmundur yfirgefur Framsókn og hyggst stofna nýjan flokk

Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður, sagði frá því í
Kastljósi Ríkissjónvarpsins í kvöld að hann hafi ákveðið að segja
sig úr Framsóknarflokknum og ætli að sitja sem óháður þingmaður
fyrst um sinn. Hann sagðist enn fremur hafa í hyggju að stofna
nýjan stjórnmálaflokk. Hann sagðist mjög óánægður með stefnu
flokksins í Evrópumálum og væri það helsta ástæða þess að hann
yfirgefi flokkinn nú. Hann segir að það þurfi frjálslyndan
alþjóðlega sinnaðan, grænan miðjuflokk, á Íslandi og vill beita sér
fyrir að stofna þannig flokk.
Hann sagðist ekki hafa fundið sig í stjórnarandstöðu, vildi
verða að gagni. Hann sagðist ekki ætla að lofa skilyrðislausum
stuðningi við ríkisstjórnina enda væri hann ekki sáttur við allt
sem hún væri að gera.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins,
segir afstöðu flokksins gegn Evrópusambandsaðild hafa skipt miklu
um ákvörðun Guðmundar Steingrímssonar. Þeir ræddu saman í dag
um ákvörðun Guðmundar og sagðist Sigmundur Davíð alltaf slæmt að
missa góðan mann úr röðum flokksins, en óskaði honum jafnframt góðs
gengis á nýjum vettvangi.
Tímamynd/Valur: Guðmundur Steingrímsson rær nú á önnur
mið í stjórnmálum.
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvort kæmi til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar Steingrímssonar. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 33,5% að það kæmi til greina að kjósa nýtt framboð Guðmundar. Meirihlutinn eða 66,5% sagðist þó ekki myndu kjósa nýtt framboð. Minnstur stuðningur við nýtt framboð Guðmundar er meðal Sjálfstæðismanna en mestur meðal Samfylkingarfólks. Könnunin var framkvæmd dagana 6.- 10. október og var heildarfjöldi svarenda 921 einstaklingur....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Á Skagaströnd er nú lokið endurbyggingu á grjótvörn í höfninni. Framkvæmdin gekk vel og lauk innan tímamarka. Fólst hún í endurgerð á grjótvörn Útgarðs á um 28 metra kafla og hækkun á 45 metra langri grjótvörn til móts við Miðgarð. Til viðbótar voru garðar sameinaðir vestan á Spákonufellseyju til að hamla sjógangi yfir bryggjusvæðið....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkir að heimila Skeljungi hf. að annast gerð deiliskipulags á lóð sem félagið hefur gert leigusamning um við eiganda jarðarinnar Melstaðar í Miðfirði. Skeljungur áformar að reisa þar 330 fermetra þjónustumiðstöð með eldsneytisafgreiðslu, veitingasölu og lítilli verslun. Áætlað er að um 10-15 starfsmenn muni starfa í þjónustumiðstöðinni allt árið um kring en að á sumrin muni starfsfólk verða allt að 20 talsins...
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Stefán Guðmundsson, stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki og fyrrverandi alþingismaður, varð bráðkvaddur í fyrradag, 79 ára gamall. Stefán fæddist á Sauðárkróki 24. maí 1932. Foreldrar hans voru Guðmundur Sveinsson skrifstofustjóri og Dýrleif Árnadóttir húsmóðir. Hann var alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í Norðurlandskjördæmi vestra 1979 til 1999....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Félags Ungra Framsóknarmanna í Skagafirði hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna afsagnar Sigurjóns Nordberg Kjærnested, formanns SUF. Þar segir m.a. að ekki hafi verið haldinn stjórnarfundur í Sambandi ungra framsóknarmanna síðan í apríl og "forystumenn SUF hafa ekki nýtt rétt sinn til setu á þingflokksfundum frá sama tíma, sem þó er einn mikilvægasti samráðsvettvangur ungliðahreyfingarinnar við forystu flokksins....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Miðvikudaginn 31. ágúst var síðasti opnunardagur Hafíssetursins á Blönduósi sumarið 2011. Um það bil 1250 gestir heimsóttu Hafíssetrið í sumar og er það nokkur fækkun frá undanförnum árum. Í ár er fyrsta árið þar sem útlendingar voru fleiri en Íslendingar og voru Þjóðverjar í meirihluta erlendra gesta. Hafíssetrið opna að nýju næsta vor, en opið verður um safnahelgi á Norðurlandi vestra þann 8. – 9. október...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Flugfélagsins Ernir hefur í hyggju að hætta flugi til og frá Sauðárkróki frá og með 1. janúar næst komandi. Í dag er flogið fimm sinnum í viku til og frá Sauðárkróki. Á sunnudögum, þriðjudögum (tvær ferðir), fimmtudögum og föstudögum. Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu og markaðsstjóri flugfélagsins Ernis á Sauðárkróki, staðfesti þetta í samtali við fréttavefinn Feyki í dag....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Næsta sunnudag, 28. ágúst, verður afmælishátíð í Reykjaskóla í tilefni af 80 ára afmæli skólans. Reykjaskóli eða Héraðsskólinn að Reykjum í Hrútafirði er skóli sem stendur á Reykjatanga við austanverðan Hrútafjörð í Vestur-Húnavatnssýslu. Allar byggingar skólans verða opnar gestum og gangandi. Hátíðardagskrá hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 15:00. Þar á eftir sjá kvenfélagskonurnar í Hrútafirði um kaffihlaðborð til kl. 17:00. ...
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Héraðshátíð Framsóknarmanna verður haldin laugardaginn 27. ágúst á Mælifelli á Sauðárkróki. Dagskráin hefst klukkan 19:00 með grillveislu og lýkur með dansleik þar sem hljómsveit Geirmundar Valtýssonar heldur uppi fjörinu. Skráning í grill hjá Ásgrími s. 893-1738 eða Gunnari s. 848-0285 fyrir föstudagskvöld....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi samþykkti í dag ályktun í tilefni af úrsögn Guðmundar Steingrímssonar þingmanns úr Framsóknarflokknum. Þar er Guðmundi m.a. þakkað fyrir samstarfið og óskað velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Hér á eftir fer ályktun KFNV:...
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Guðmundur Steingrímsson, alþingismaður, sagði frá því í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í kvöld að hann hafi ákveðið að segja sig úr Framsóknarflokknum og ætli að sitja sem óháður þingmaður fyrst um sinn. Hann sagðist enn fremur hafa í hyggju að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Hann sagðist mjög óánægður með stefnu flokksins í Evrópumálum og væri það helsta ástæða þess að hann yfirgefi flokkinn nú....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum fór fram afhending styrkja úr Húnasjóði fyrir árið 2011. Athöfnin fór fram á Hlöðunni þar sem Húnaþing vestra bauð upp á kaffi og meðlæti. Sigurbjörg Jóhannesdóttir afhenti styrkina fyrir hönd Húnasjóðs og sagði m.a. frá því að óvenju margir hefðu fengið úthlutað styrk í ár en Húnasjóður veitti öllum umsækjendum styrk að þessu sinni....
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Mánudag og þriðjudag fór fram alþjóðleg skíðaráðstefna á vegum NASAA (North Atlantic Ski Area Association) á Sauðárkróki. Er þetta í annað sinn sem slík ráðstefna er haldin á Íslandi og kom að þessu sinni í hlut skíðadeildar Tindastóls að sjá um framkvæmd hennar. Sagt er frá þessu á vef sveitarfélagsins Skagafjarðar. Formleg dagkrá stóð yfir dagana 8. og 9. ágúst en meðal atriða á fjölbreyttri dagskrá voru kynningar og umræður um skíðalyftur, uppbyggingu barnagarða, vindmyllur, aðgangsstýrikerfi, snjóframleiðslutæki...
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Fyrsti útgáfudagur búnaðarblaðsins Freyju er runninn upp. Fyrir rúmum 100 árum kom forveri Freyju, Freyr, fram á sjónarsviðið. Á þeim tíma voru ungmennafélög að verða til í hverri sveit og með þeim fóru um vindar samvinnu, bjartsýni og framtakssemi. Í þessu fyrsta tölublaði Freyju kennir ýmissa grasa. Loðdýr, nautgripir og sauðfé eru þær skepnur sem fá hvað mest plássið í þetta skipti, auk þess sem gefin eru góð ráð við garðrækt og farið yfir mikilvægi þess að varðveita þekkingu. ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur í á fjórða ár verið í viðræðum við Rarik með það að markmiði að fá hitaveitu í bæinn en hún yrði lögð frá Reykjum við Húnavelli. Ef af verður má áætla að um sé að ræða fjárfestingu upp á rúmlega 1 milljarð króna og er áætlaður framkvæmdatími um 2-3 ár. Adolf H. Berndsen oddviti telur að verði af þessari framkvæmd auki það möguleika í atvinnulífi og geri búsetu á Skagaströnd enn vænlegri. Framkvæmdirnar sjálfar muni auk þess skapa umsvif og atvinnu. En það sem mestu skipti sé að vænta megi ...
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Adolf H. Berndsen, oddviti á Skagaströnd segir það vonbrigði hvernig þróun í sjávarútvegi hafi komið illa við staðinn en hann bendir á að ný tækifæri hafi skapast og ný störf orðið til á öðrum sviðum. Árið 2007 opnaði skrifstofa Atvinnuleysistryggingasjóðs á Skagaströnd, en skrifstofan sér um alla útreikninga og greiðslur atvinnuleysisbóta á landinu. Eftir hrun hefur starfsemin aukist samhliða auknu atvinnuleysi og þar vinna nú um 25 manns, en 7 starfsmenn störfuðu þar þegar skrifstofan opnaði. Adolf segir sveitarfélagið sífellt vera að ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Adolf H. Berndsen, oddviti Skagastrandar, segir miklar breytingar hafa átt sér stað á Skagaströnd undanfarin ár, miklar breytingar í litlu samfélagi. Árið 2004 voru gerðir út frá Skagaströnd tveir frystitogarar, starfrækt var fiskvinnsla og öflug rækjuverksmiðja og á skrifstofu Skagstrendings störfuðu 6 manns. Á þessum tíma var aðeins einn opinber starfsmaður á Skagaströnd sem var hjúkrunarfræðingurinn við heilsugæsluna. Sama ár var Skagstrendingur hf. keyptur af FISK á Sauðárkróki og þá breyttist margt. Í dag er frystitogarinnn Arnar HU 1...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Dagrún Ísabella Leifsdóttir, sópransöngkona, og Gisele Grima frægur píanisti frá Möltu halda tónleikana Music Women. Á tónleiknunum vekja þær athygli á tónlistarkonum sem hafa gleymst eins og Clöru Schumann og Ninu Greig með tónlist, en einnig með fróðleik um líf og störf þeirra. Þrennir tónleikar verða haldnir og fara þeir fram í Miðgarði Skagafirði 5. ágúst kl. 20, Gljúfrasteini 7. ágúst kl. 16 og Stykkishólmskirkju 8. ágúst kl. 20. ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Það er eins og hundaæði hafi gripið um sig á Blönduósi ef marka má lista yfir skráða hunda, sem birtist reglulega á vef Blönduósbæjar. Í byrjun síðasta mánaðar voru 20 skráðir hundar í Blönduósbæ en núna eru þeir orðnir 38 samkvæmt nýbirtum lista. Aukningin er 18 hundar á tæplega tveimur mánuðum.
Sömu sögu má segja um skráða ketti. Í byrjun síðasta mánaðar voru sex skráðir kettir á Blönduósi, en þeim fjölgaði um sjö á einum mánuði og eru nú orðnir 13 talsins.
...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Áhöfn frystitogararans Málmey SK-1 var með söfnunarátak síðastliðna tvo túra fyrir Magnús Jóhannesson sem er bundinn við hjólastól eftir alvarlegt vinnuslys í júní. Frá þessu er greint á Feykir.is. Flestir í áhöfn Málmeyjar, 44 meðlimir, tóku þátt og alls söfnuðust 655 þúsund sem áhöfnin afhenti Magnúsi og fjölskyldu hans síðastliðinn fimmtudag, þann 28. júlí. Málmey er gerð út af Fisk seafood og á heimasíðu fyrirtæksins kemur fram að skipið er 2ja þilfara frystitogari með heimahöfn á Sauðárkróki. Hún var smíðuð í ...
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Rannsóknarhópur á vegum Náttúrustofu Suðurlands var í Skagafirði á dögunum við rannsóknir á lundastofninum. Erpur Snær Hansen, sem fór fyrir hópnum, var að kanna varpárangur lundans á svæðinu. Gerðar voru mælingar á holufjölda í lundavörpum og einnig voru notaðar holumyndavélar til að skoða varpárangur lundans. Frumniðurstöður benda til þess að lundinn sé í góðum málum í Skagafirði. Mikið um unga í holum og allt svart af lunda í Drangey. Lundinn var með fulla gogga af æti....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Á morgunvaktinni á svæði 1 í Blöndu veiddist lax í Damminum með þennan ófögnuð (sjá mynd) kræktan í kviðinn. Ekki leikur vafi á því að veiðiþjófar hafa verið á ferðinni þarna í nótt sem leið og notað þetta agn. Veiðiverði hefur að sjálfsögðu verið gert viðvart og má búast við aukinni veiðivörslu í framhaldi af þessu....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Þrátt fyrir að veiðin sé nokkuð róleg enn sem komið er í Víðidalnum eru þar þó nokkrir stórir drekar á sveimi. Þessi sem hér sést á mynd er 100 cm langur og tók hann Green Brahan no. 14 í Harðeyrarstreng á dögunum. Veiðimaðurinn heitir Konstantin Kravchenko. ...
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Óperuunnendur sem vita ekki hvað þeir eiga að gera um verslunarmannahelgina geta lagt leið sína í Skagafjörðinn en þar verða haldnir óperutónleikar. Þar koma fram einsöngvararnir Helga Rós Indriðadóttir sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran, Gissur Páll Gissurarson tenór og Ágúst Ólafsson barítón. Einnig stígur á stokk skagfirski Karlakórinn Heimir en meðleik annast sjö ungir hljóðfæraleikarar sem öll hafa nýverið lokið námi erlendis og kalla sig Bergmálshópinn 2011. Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnar ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Íþróttasal íþróttahússins á Skagaströnd hefur verið breytt í listagallerí en þar opnaði síðasta laugardag yfirlitssýning á verkum Sveinbjörns H. Blöndal. Fjöldi gesta var við opnunina og þar á meðal Birna Blöndal, ekkja Sveinbjörns, og börn þeirra. Sýningin á að sýna gestum hvernig myndlist Sveinbjörns þróaðist í gegnum árin og er verkum stillt upp í tímaröð. Flest verkin eru landslagsmyndir, vatnslita, akrýl og olíumálverk en einnig eru þarna skopmyndir en Sveinbjörn hóf feril sinn sem skopmyndateiknari í dagblöðum. Þetta eru verk sem hver ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Til að losna við lífrænan úrgang frá bændum og búfjáreigendum ákvað sveitarfélagið Skagafjörður að setja á laggirnar söfnun á hræjum og frá júlí byrjun hefur það kostað sveitarfélagið 980.000 krónur. Ekki er lengur heimilt að dýrahræ fari í söfnungargáma og það er heldur ekki tekið á móti þeim á nýjum urðunarstað við Stekkjavík. Eftir nokkra nefndarfundi í landbúnaðarnefnd og umhverfisnefnd var ákveðið að sveitarfélagið stæði fyrir söfnun á hræjum. Allmargir bændur hafa nýtt sér þetta og hefur verið farið í vikulegar ...
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Unglistahátíðin Eldur hefur staðið yfir á Hvammstanga síðustu dag og lýkur henni í dag. Veður var gott og fjöldi manns sótti dagskrá hátíðarinnar í gær. Þetta var í 9. sinn sem hátíðin er haldin og alltaf mikið stuð og stemmning. Öll vinna við undirbúning hátíðarinnar er unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu. Á hverju ári er fengið nýtt fólk til þess að skipuleggja hátíðina og þess vegna fá nýjar hugmyndir að líta dagsins ljós....
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Í dag fer fram hið árlega Skagafjarðarrallý Bílaklúbbs Skagafjarðar. Keppnin gildir til Íslandsmeisara í rallakstri og eru 15 keppendur skráðir til leiks. Frá þessu er greint á Feykir.is. Keppnin skipist í tvo hluta, sérleiðir og ferjuleiðir en það er á sérleiðum sem hin eiginlega keppni fer fram. þær eru lokaðar utanaðkomandi umferð á meðan á keppni stendur og þar reyna keppendur að aka sem hraðast, ná sem bestum tíma. Bílarnir eru ræstir inn á sérleiðirnar með einnar mínútu millibili og sigurvegarar þegar upp er staðið er sú...
Tíminn | 22.07.2011 |
Ritstjórn
Í gömlu fiskvinnsluhúsi við fjöruna á Skagaströnd er ekki lengur verkaður fiskur heldur er þar Nes listamiðstöð, eða Nes Artist Residency. Þangað koma listamenn frá öllum heimshornum til að vinna að list sinni. Einu sinni í mánuði er opið hús þar sem gestir geta spjallað við listamenn og skoðað verk þeirra. Í gær var opið hús og í tilefni þess fór blaðamaður Tímans í heimsókn. "Nes listamiðstöð var stofnuð árið 2008. Hingað koma um 100 manns ári sem flestir dvelja í mánuð en margir hafa þó dvalið hér í tvo til þrjá mánuði" segir Ólafía...
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi var sett á Hvammstanga í gærkvöld en á dagskrá hátíðarinnar sem stendur fram á sunnudag er fjölbreytt úrval námskeiða og skemmtunar við allra hæfi. Hátíðin hefur verið haldin ár hvert síðan 2003. Öll vinna við undirbúning hátíðarinnar er unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu....
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðið laugardagskvöld hélt togarinn Arnar-HU á Skagaströnd til hafs á ný eftir sex daga í landi þar sem hann landaði um 500 tonnum af afla. Arnar-HU átti að halda úr höfn klukkan 22 á laugardagskvöldið og var mikil umferð á bryggjunni um kvöldið. Áhugasamir komu til að fylgjast með og fjölskyldur sjómanna komu til að kveðja þá. Fljótlega eftir klukkan 22 fór Húnabjörg, bátur björgunarsveitarinnar á Skagaströnd af stað. Var kaðall bundinn á milli Húnabjargar og Arnars og þannig fékk togarinn aðstoð við að snúa við í höfninni. Að því loknu...
Tíminn | 19.07.2011 |
Ritstjórn
Selatalningin mikla var haldin í fimmta árið í röð sunnudagurinn 17. júlí. Í ár voru alls 1033 selir taldir á Heggstaðarnesi og Vatnsnesi og eru það heldur færri en í fyrra því þá var niðurstaðan 1057 selir. Eins og fyrri ár var talningin framkvæmd af sjálfboðaliðum ásamt starfsfólki Selasetursins. Í ár tóku um 30 manns þátt í að telja seli á 27 svæðum og fóru þeir gangandi, á hesti og á bát. Að talningu lokinni var boðið upp á kaffi í á Selasetrinu....
Tíminn | 14.07.2011 |
Ritstjórn
Frystitogarinn Arnar-HU 1 kom til hafnar á Skagaströnd síðastliðinn sunnudag og herma heimildir Tímans að um borð hafi verið 400 tonn af karfa aðallega en einnig grálúðu. Það hefur mikil áhrif á bæinn þegar togarinn er í höfn og vinna um 20 manns að því að þjónusta hann að sögn Guðjóns Guðjónssonar skipsstjóra. Fiskmarkaður Skagastrandar landar aflanum og vinna 12 til 15 manns við það. Vélaverkstæðið leggur til 4 til 5 og svo sinna einnig 2 rafvirkjar viðhaldi og raunar er það svo að erfitt er að fá þjónustu frá ...
Tíminn | 08.07.2011 |
Ritstjórn
Fulltrúar Kaupfélags Skagfirðinga og Sveitarfélagsins Skagafjarðar undirrituðu á dögunum samning sem kveður á um að KS tekur að sér rekstur upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðafólk í verslun sinni í Varmahlíð. Sveitarfélagið Skagafjörður hefur með sérstökum samningi við ferðamálayfirvöld í landinu rekið svokallaða landshlutaupplýsingamiðstöð á ársgrundvelli í Varmahlíð síðan árið 2004. Miðstöðin hefur verið staðsett í litlu húsi sem byggt var fyrir starfsemi miðstöðvarinnar og handverkssölu Alþýðulistar, sem ...
Tíminn | 06.07.2011 |
Ritstjórn
Þeir sem aka þjóðveginn norður á land keyra í gegnum Blönduós, sjá áhugaverða kirkju og eflaust hafa margir stungið sér til sunds í sundlauginni eða gist á tjaldstæði bæjarins. "Við eru stolt af tjaldstæðinu" segir Ágúst Þór Bragason forseti Bæjarstjórnar og fulltrúi L-lista. Mikið hefur verið lagt í tjaldstæðið og er það liður í að styrkja ferðaþjónustuna í bænum sem 1. desember árið 2010 taldi 904 íbúa en bærinn hefur gengið í gegnum miklar sveiflur í íbúafjölda. Þegar bærinn var fjölmennastur bjuggu þar yfir 1000 ...
Tíminn | 05.07.2011 |
Ritstjórn
Ef þú ert á leið um Norðurland vestra og hungrið er farið að segja til sín er ágætt að koma við á Skagaströnd. Þar við sjóinn í næstum aldargömlu húsi er kaffihús eitt sem laðar að marga ferðamenn á hverju sumri. Café Bjarmanes er rekið af Steinunni Ósk Óskarsdóttur og er þetta fjórða sumarið sem kaffihúsið er opið, en það er bara opið á sumrin. "Hér er allt bakað á staðnum" segir Steinunn sem býður upp á fjölbreytt úrval af kökum sem flestar eru bornar fram með smá rjóma og skreyttar með berjum. Ef gestir koma á réttum ...
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Selfossi og Þyrludeild Landhelgisgæslunnar sinntu um helgina umferðareftirliti úr þyrlu. Farið var um Suður-, Vestur- og Norðurland og umferðinni fylgt eftir. Almennt var ökuhraði hófstilltur og ekki tilefni til afskipta. Einn ökumaður var þó kærður fyrir að aka á 141 km/klst hraða á Norðurlandsvegi skammt frá Hvammstanga....
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Ljóðasetur Íslands á Siglufirði verður formlega tekið í notkun föstudaginn 8. júlí við hátíðlega athöfn sem hefst kl. 15. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, vígir setrið, en hún er þekkt fyrir áhuga sinn á ljóðum. Þórarinn Eldjárn og fleiri ljóðskáld munu lesa upp úr verkum sínum og flutt verður áður óbirt ljóð eftir Matthías Johannessen, sem hann hefur afhent setrinu. Þá munu kvæðamenn kveða....
Tíminn | 03.07.2011 |
Ritstjórn
Landsmóti hestamanna lauk síðdegis með úrslitum í A-flokki gæðinga, en þar sigraði Hinrik Bragason á Ómi frá Kvistum með 8,98 í aðaleinkunn. Áætlað er að um 8 þúsund manns hafi sótt Vindheimamela heim um helgina. Mótið fór vel fram og framkvæmdin til fyrirmyndar. Aðeins eitt leiðinlegt tilvik kom upp, nauðgunarmál, sem sannarlega varpaði skugga á mótið....
Tíminn | 03.07.2011 |
Ritstjórn
Fulltrúar frá Hrossarækt.is afhentu styrk til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, á landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í dag. Styrkurinn sem nemur rúmum tveimur milljónum og er afrakstur söfnunar á vegum Hrossaræktar.is þar sem boðnir voru upp folatollar á Stóðhestaveislu í Ölfushöll sl.vetur og happdrættismiðar seldir í kjölfarið. ...
Tíminn | 02.07.2011 |
Ritstjórn
Landsmót heldur áfram, úrslitakeppnir eru í fullum gangi og brekkan er þéttsetin. Í B-úrslitum í tölti voru meðal keppenda hjónin Hulda Gústafsdóttir, sem keppti á Sveig frá Varmadal, og Hinrik Bragason, sem keppti á Sigri frá Hólabakki. Hjónin stóðu sig vel, hirtu bæði silfur og gull, og var það Hulda sem hreppti fyrsta sætið með einkunnina 8,28 en Hinrik var með einkunnina 8,17. Hross frá ræktunarbúum voru sýnd sérstaklega og vöktu mikla athygli. "Ellefu frábær hrossaræktarbú komu og sýndu landsmótsgestum glæsilega ...
Tíminn | 01.07.2011 |
Ritstjórn
Í gær var opnað við hátíðlega athöfn Spákonuhof á Skagaströnd. Hofið er sýning um Þórdísi spákonu sem er fyrsti nafngreindi íbúi Skagastrandar en einnig geta gestir látið spá fyrir sér með lófalestri, í kaffibolla og í rúnir. Það var margt um manninn á opnuninni og boðið var upp á drykki og veitingar og haldnar voru ræður. Það eru þær Sigrún Lárusdóttir og Dagný Marín Sigmarsdóttir sem sjá um daglegan rekstur hofsins. Í ræðu sinni lýsti Dagný uppruna verkefnisins og hvernig það þróaðist úr hugmynd í veruleika en verkefnið var nokkur ...
Tíminn | 01.07.2011 |
Ritstjórn
Landsmót hestamanna á Vindheimamelum var sett í gærkvöldi við hátíðlega athöfn. Haldnar voru ræður, karlakórinn Heimir söng og farið var í hópreið sem marseraði inn á mótssvæðið á eftir fánaberum íslenska fánans. Sigurður Ægisson mótsstjóri er ánægður með setningarathöfnina. "Glæsileg" segir hann jákvæður að vanda "um 300 hestar voru í hópreiðinni og veðrið var mjög gott" og um söng karlakórsins segir hann fátt fallegra en söng karlakórs undir Skagfirskum fjöllum. Til máls tóku m.a. Svandís Svavarsdóttir ...
Tíminn | 30.06.2011 |
Ritstjórn
Landsmót hestamanna snýst ekki einungis um keppnina og að sjá keppendur lyfta bikurum á loft. Landsmót hestamanna er einnig mikið markaðsmót, bæði fyrir hestafólk en einnig fyrir aðila í veitingabransanum og þá sem selja íslenskt handverk. "Landsmót er stór markaðsgluggi" segir Sigurður Ægisson mótsstjóri landsmóts. Hann nefnir sem dæmi að ungt hestafólk sem hafi bætt sig mikið milli landsmóta og þurfi nýja hesta til að geta bætt sig áfram leiti að nýjum hestum á landsmóti. Mótið er einnig gluggi fyrir erlenda ...
Tíminn | 29.06.2011 |
Ritstjórn
Líkt og í öðrum keppnum þurfa keppendur á Landsmóti hestamanna að fylgja ákveðnum stöðlum og reglum til að geta tekið þátt.Áður en keppendur á landsmóti fara með hestinn á reiðvöllinn koma þeir við í hvítu og rauðu tjaldi rétt austan við aðal reiðvöllinn en þar halda sig menn úr Járningamannafélagi Íslands. Þeir sjá um fótaskoðun á mótinu og "framfylgja reglugerðum" mótsins, eins og einn þeirra komst að orði. Járningamennirnir mæla hófa hestanna, lengd og ...
Tíminn | 29.06.2011 |
Ritstjórn
Í keppnum eru augnablikin fyrir keppni oft mjög taugatrekkjandi. Keppendur þurfa að undirbúa sig og hestinn áður en farið er inn á keppnisvöllinn og á landsmóti hestamanna er lítill völlur fyrir austan keppnisvöllinn notaður sem upphitunarsvæði. Þangað fara keppendur eftir að járningamenn hafa tekið út hófa og skeifur og keppendur eru á upphitunarsvæðinu í 5 til 10 min. Þar láta þeir hestinn æfa gangtegundirnar og fara yfir málin með þjálfara. Fylgdarmaður eins keppandans minntist á að undirbúningsvöllurinn væri aðeins of ...
Tíminn | 29.06.2011 |
Ritstjórn
Landsmót hestamanna hófst síðastliðinn sunnudag og er í ár haldið á Vindheimamelum í Skagafirði. Aldrei hafa fleiri hross verið skráð til leiks, veðurspáin er hagstæð og stemmningin er góð meðal gesta og starfsfólks. Það er því útlit fyrir að landsmót hestamanna heppnist vel í ár og Sigurður Ævarsson mótsstjóri er ánægður. "Viðtökurnar í ár voru frábærar" segir hann og nefnir sem dæmi að metþáttaka sé í ár. Skráðir gæðingar eru um 500, kynbótahross um 250 og alls munu um 1000 hross koma fram á mótinu. Von er á yfir 8500 gestum á mótið en...
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Nýlega var styrkjum úthlutað úr verkefninu Atvinnusköpun í sjávarbyggðum. Alls var 109 milljónum úthlutað á landsvísu til 32 verkefna og af þeim eru 4 á Norðurlandi vestra. Tvö verkefni á Skagaströnd fengu styrk. Biopol ehf., sem er líftæknisetur, fékk 3 milljónir fyrir framleiðslu á fjölómettuðum omega-3 fitusýrum með smáþörungum. Hitt fyrirtækið er MarinAgra ehf. en það fæst við nýsköpun í líftækni og fékk 3 milljónir fyrir verkefni sem heitir Náttúruleg íblöndunarefni. Á Sauðárkróki fengu...
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn fimmtudag var Grænfáninn dreginn að húni í leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga. Þetta er fyrsti Grænfáninn í Húnaþingi Vestra en fáninn er hluti af alþjóðlegu verkefni sem heitir Skólar á grænni grein. Markmið verkefnisins er að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja fá fánann fylgja 7 skrefum sem fela það meðal annars í sér að stofnuð er sérstök umhverfisnefnd innan skólans og nemendur eru fræddir um umhverfismál. Umsjónaraðili með...
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Landsmóti hestamanna verður framhaldið á Vindheimamelum í Skagafirði í dag, en mótinu lýkur á sunnudag. Fjöldi gesta er kominn á svæðið og verður hápunktur mótsins um helgina og þá er reiknað með að þúsundir manna mæti á mótsstað. Fjöldi hrossa á landsmóti hefur aldrei verið meiri og sem dæmi um það eru skráð 473 hross í gæðingahluta mótsins....
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Sendiherra Bretlands á Íslands, Ian Witting, kom í heimsókn til Skagastrandar síðastliðinn fimmtudag, þann 23. júní.
Sendiherran fór í fylgd með sveitastjórnarfulltrúum um bæinn og heimsótti helstu fyrirtæki og atvinnustaði. Hann heimsótti meðal annars: BioPol, Fræðasetur Háskóla Íslands, Nes listamiðstöð og auðvitað Kántríbæ. Á Skagaströnd.is segir: "Þrátt fyrir mikið annríki á greiðslustofu Vinnumálastofnunar, svona rétt fyrir mánaðarmót, voru viðtökur þar góðar og vakti sendiherranum nokkra undrun hve öflugur...
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Upp er runninn annar dagur Landsmóts hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði. Veður var ágætt í morgun, en nokkur vindur á svæðinu. Það verður stanslaus veisla á báðum keppnisvöllum í allan dag og fram á kvöld. Hægt er að sjá Landsmótið í beinni útsendingu á Netinu gegn vægu gjaldi....
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Þórir Kr. Þórisson, hjólreiðakappi og fyrrverandi bæjarstjóri á Siglufirði, renndi á fáki sínum inn til Siglufjarðar kl. 14.30 á laugardaginn eftir að hafa hjólað alla leið frá Seltjarnarnesi, alls um 400 km. Fjöldi fólks tók á móti hjólreiðakappanum á Ráðhústorginu á Siglufirði. Síðan var haldin veisla í húsnæði Iðju/dagvistar honum til heiðurs....
Tíminn | 26.06.2011 |
Ritstjórn
Í dag lýkur keppni á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið er á Hvammstanga, en mótið hefur farið mjög vel fram að sögn mótshaldara. Í morgun hófst keppni í pútti, skák og starfsíþróttum þar sem keppt er í pönnubökubakstri og kökuskreytingu. Síðustu greinar mótsins eru keppni í þríþraut og dráttarvélaakstri....
Tíminn | 26.06.2011 |
Ritstjórn
Landsmót hestamanna hófst í dag, sunnudaginn 26. júní, á Vindheimamelum í Skagafirði. Byrjað verður á knapafundi barna og unglinga kl. 10:00 og síðan klukkan 11:45 hefst forkeppni í unglingaflokki á gæðingavellinum og klukkan 13:00 hefst forskoðun kynbótahrossa og munu hryssur 7 vetra og eldri byrja. Hér fyrir neðan má sjá dagskrá keppnis-og kynbótagreina....
Tíminn | 25.06.2011 |
Ritstjórn
Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var sett við Hvammsá á Hvammstanga í gærkvöld. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, og Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, voru meðal þeirra sem fluttu stutt ávörp....
Tíminn | 25.06.2011 |
Ritstjórn
Félaga tamningamanna veitir árlega þeim nemanda í Háskólnaum á Hólum sem hlýtur hæsta einkunn á tamningaprófi, Tamningabikarinn. Handhafi hans árið 2011 er Hekla Katharina Kristinsdóttir. Þess má geta að Hekla Katharina hefur unnið sér keppnisrétt á HM í Austurríki síðar í sumar, á Gautreki frá Torfastöðum. Við óskum henni til hamingju, og áframhaldandi góðs gengis....
Tíminn | 24.06.2011 |
Ritstjórn
Heildarmat fasteigna á landinu öllu hækkar um 6,8% og verður tæplega 4.400 milljarðar króna og mesta hækkunin er á Norðurlandi vestra. Þetta kemur fram í nýju fasteignamati fyrir árið 2012 sem Þjóðskrá birti í gær en stofnunin segir að fasteignamarkaðurinn sé greinilega að taka við sér á ný eftir hrun. Mesta hækkun á landinu er á Norðurlandi vestra (11,9%) en minnsta hækkunin er á Austurlandi (2,8%). Hækkun fasteignamats í öðrum landshlutum er sem hér segir: Suðurnes (4,3%), Vesturland (9,6%), Vestfirðir (9,9%), Norðurland ...
Tíminn | 24.06.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar var haldinn í 19. júní sl. Viggó Jónsson, sem verið hefur formaður síðustu sjö árin, gaf ekki kost á sér áfram og nýr formaður var kjörin Elín Gróa Karlsdóttir. Aðrir í stjórn eru: Hafdís Steinarsdóttir, Gunnar Valgarðsson, Ólafur Sigmarsson og Stefán Vagn Stefánsson....
Tíminn | 22.06.2011 |
Ritstjórn
Nemendur 7. bekkjar í Höfðaskóla á Skagaströnd vildu láta laga körfuboltavöll skólans en körfur vallarins voru lélegar og malbikið svo gróft að hætta var á að krakkar slösuðu sig ef þeir féllu á það í hita leiksins. Krakkarnir tóku sig þá til og bjuggu til kostnaðaráætlun fyrir verkið og sendu sveitastjórn ásamt bréfi. "Vegna ástands vallarins er hann minna notaður því enginn vill meiða sig eða skemma fötin sín. Við vildum gjarnan fá nýjar körfur og fleiri, mismunandi háar." segir í bréfinu og undir það skrifa allir nemendur...
Tíminn | 21.06.2011 |
Ritstjórn
Í gær var landað úr Mánabergi ÓF 42 í Reykjavík eftir góða karfaveiði á Reykjaneshrygg. Heildarafli eftir tveggja vikna veiðiverð var um 425 tonn og áætlað aflaverðmæti um 150 milljónir króna. Að lokinni löndun hélt Mánaberg strax aftur til karfaveiða á hryggnum, að því er fram kemur á heimasíðu Ramma....
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
Í ár mun UMFÍ halda í fyrsta skipti landsmót fyrir 50 ára og eldri og fer það fram á Hvammstanga daganna 24. til 26. júní. Keppt verður í 13 keppnisgreinum en meðal þeirra eru golf, sund, frjálsar íþróttir, blak og þríþraut. Mótið er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða fyrirlestrar og sýningahópar. Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennafélags Íslands og USVH í samstarfi við sveitarfélagið Húnaþing vestra. Samstarfsaðilar eru Félag áhuga fólks um íþróttir aldraðra, FÁÍA, og...
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Tónlist, dans, fræðsla, skemmtun, barokkmessa og hátíðartónleikar er meðal þess sem gestir Barokksmiðju Hólastiftis munu geta notið en hún verður haldin á Hólum í Hjaltadal dagana 23. til 26. júní. Kjarni smiðjunar eru námskeið sem hefjast 23. júní. Það verður meðal annars boðið upp á söngnámskeið undir stjórn Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur og dansnámskeið undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur þar sem kenndir verða dansar frá barokktímabilinu. Fræðslu og fyrirlestra halda meðal annars Þóra Kristjánsdóttir...
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Kanínurækt er nú hafin á Hvammstanga. Það er Birgit Kostizke sem á hugmyndina og er frumkvöðull á bak við stofnun fyrirtækis til að rækta kaninur til kjötvinnslu á Íslandi. Stefna fyrirtækisins er reka kanínubú með um 250 lífdýr og tæplega 6000 sláturdýr....
Tíminn | 12.06.2011 |
Ritstjórn
Matthías Johannessen skáld og fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, hefur afhent Ljóðasetri Íslands á Siglufirði tugi ljóðabóka eftir sig og aðra. Verða þær komnar á sinn stað þegar setrið verður vígt föstudaginn 8. júlí. Matthías hitti Þórarin Hannesson, forstöðumann Ljóðasetursins, í Reykjavík í sl. föstudag og lýsti mikilli ánægju með hugmyndina og taldi Siglufjörð tilvalinn stað fyrir setrið, enda væri hann menningarbær frá fornu fari...
Tíminn | 11.06.2011 |
Ritstjórn
Sólin skein á Skagaströnd í dag þegar opnunarathöfn Kántrýsetursins fór fram en í setrinu má sjá texta, myndir og gripi úr ævi Hallbjörns Hjartarsonar, kúreka norðursins. Athöfnin hófst klukkan 15:00 og var Kántrýbær fullur af fólki sem gæddi sér á kaffi og litlum kökum með og hlustaði ræður Margrétar Blöndal útvarpskonu og Adolfs Berndsen oddvita Skagastrandar. Það eru núverandi rekstraraðilar Kántrýbæjar, þau Gunnar Sveinn Halldórsson og Svenny H. Hallbjörnsdóttir (Hjartarsonar) sem standa að setrinu með stuðningi Menningarráðs ...
Tíminn | 10.06.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Framsóknarfélags Skagafjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem frumvörpum ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu er mótmælt harðlega. Framsóknarmenn segja breytingarnar ekki vera neitt annað en árás á landsbyggðina og þeir gagnrýna að fumvörpin séu lögð fram án hagfræðilegrar úttektar á breytingum áhrifanna. "Í Skagafirði er rekinn öflugur sjávarútvegur sem hefur skapað fjölda starfa í samfélaginu um árabil og er ein af meginstoðum verðmætasköpunar í héraðinu...
Tíminn | 10.06.2011 |
Ritstjórn
Nú er hægt að fara í hvalaskoðun á Ólafsfirði en Norðursigling ehf. heitir fyrirtækið sem býður upp á ferðirnar. Í tilefni þess bauð Norðursigling og Hótelið Brimnes gestum í skemmtisiglingu þann 8. júní síðastliðinn og var siglt á tveimur skonnortum, Hildi og Knerri.
"Það var ánægjulegt fyrir okkur að koma til Ólafsfjarðar þótt veðrið hefði að sjálfsögðu mátt vera betra en það var norðan kaldi og gekk á með slydduéljum" sagði Hörður Sigurbjarnason, eigandi og skipstjóri Norðursiglingar. Siglt var út í fjarðarkjaftinn...
Tíminn | 09.06.2011 |
Ritstjórn
Skagastrandarbær verður undirlagður af kántrý næsta laugardag, þann 11. júní. Þá opnar Kántrýsetur í Kántrýbæ en í setrinu verður saga Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis. Af því tilefni verður mikið um að vera í bænum. Síðdegisútvarp Rásar 2 mun senda út frá Skagaströnd á morgun, föstudaginn 10. júní og svo verður þátturinn Bergson og Blöndal sendur frá Skagaströnd laugardeginum. Björgvin Halldórs og Selma Björnsdóttir mæta ...
Tíminn | 08.06.2011 |
Ritstjórn
Undanfarna þrjá mánuði hefur starfsfólk heilbrigðisstofnunarinnar á Blönudósi tekið þátt í heilsueflingu. Lögð var áhersla á heilbrigðan lífstíl og allt sem honum fylgir eins og hreyfingu, hollan mat, vatnsdrykkju og nægan svefn. Átakið hófst á því að í febrúar þátakendur sendir í ummálsmælingu, vigtun, blóðþrýstings- og púlsmælingu og blóðsykurinn var mældur hjá þeim sem vildu. Heilsueflingin var mjög einstaklingsmiðuð og hver þáttakandi bjó til sína eigin áætlun og ákvað markmið sín sjálfur ...
Tíminn | 04.06.2011 |
Ritstjórn
Fyrir ofan bæinn Skagaströnd er Spákonufell sem nefnt er eftir Þórdísi spákonu sem sögð er vera fyrsti íbúi Skagastrandar. Menningarfélagið Spákonuarfur var stofnað 2007 og hefur það að markmiði að miðla sögu Þórdísar spákonu og liður í því er opnun Spákonuhofsins. Spákonuhof á Skagaströnd, sem áætlað er að opni sumarið 2011, er sýning um Þórdísi spákonu, fyrsta nafngreinda íbúa Skagastrandar sem uppi var á síðari hluta 10. aldar. Margt er vitað ...
Tíminn | 01.06.2011 |
Ritstjórn
Nú eru liðin 3 ár frá því að fyrstu listamennirnir komu til að dvelja hjá Nesi listamiðstöð ehf. á Skagaströnd og alls hafa um 285 listamenn nýtt sér aðstöðuna. Listamiðstöðin veitir listamönnum aðstöðu til að vinna að listsköpun sinni gegn gjaldi, lágmarksdvalartími er einn mánuður en margir hafa verið lengur og dæmi eru um að listamenn hafi verið í listamiðstöðinni í hálft ár og hafa sumir tekið maka og börn með. Eitt af markmiðum Nes...
Tíminn | 29.05.2011 |
Ritstjórn
Í janúar árið 2007 var undirritaður samningur á milli Blönduósbæjar og einkahlutafélagsins 2 Áttir um afnot á landi til að byggja fjölskyldu- og skemmtigarð sem átti að opna í síðasta lagi í árslok 2011. Það hafa hins vegar engar framkvæmdir verið á svæðinu síðustu ár og þess vegna hefur bæjarráð ákveðið að segja upp samningnum við einkahlutafélagið 2 Áttir sem ætlaði sér að reisa garðinn. Hugmyndin um að opna...
Tíminn | 28.05.2011 |
Ritstjórn
Vinaverkefnið í Skagafirði hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla þetta árið en þau voru afhent í sextánda sinn þann 24. maí síðastliðinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu af Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Verkefnið er samstarfsverkefni leik-, grunn- og framhaldsskóla í Skagafirði, frístundadeildar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, íþróttahreyfingarinnar og foreldra í Skagafirði. Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt ein hvatningarverðlaun og dugnaðarforkaverðlaun...
Tíminn | 28.05.2011 |
Ritstjórn
Nú er hætt að gjósa í Grímsvötnum og erlendir ferðamenn streyma til landsins bæði flugleiðis og sjóleiðis með Norrænu. Margir ferðamenn sem hingað koma með flugi taka sér bílaleigubíl og aka um landið. Þeir sem koma með Norrænu eru flestir með bíla sína meðferðis. Það eru því margir erlendir ferðamenn á vegum landsins yfir sumartímann....
Tíminn | 28.05.2011 |
Ritstjórn
Næstkomandi sunnudag, 29. maí, klukkan 14, opnar Hafíssetrið í Hillebrantshúsinu á Blönduósi að nýju eftir veturinn. Á sýningu setursins hefur bæst við heimildarmyndin „Þegar hafísinn kom“ sem gerð var af Catherine Chambers, doktorsnema við Háskólann í Alaska og Katharina Schneider, forstöðumanni Hafíssetursins síðastliðið sumar. Í myndinni segja heimamenn frá minningum sínum um hafís og hafískomu.
Boðið verður upp á kaffi, kakó og ...
Tíminn | 27.05.2011 |
Ritstjórn
Þýska hljómsveitin Die Ukrainiens er í heimsókn á Íslandi og mun halda tvenna tónleika hér á landi. Hljómsveitin leikur mjög hressa og dansvæna tónlist sem lýst hefur verið sem athyglisverðri blöndu af Rússadiskó og Balkantónlist. Á tónleikum flytur hljómsveitin þekkt þjóð- og popplög frá Rússlandi, Úkraínu og öðrum austur evrópskum löndum í bland við frumsamda tónlist. Die Ukrainiens spilar á Faktorý í kvöld, 27...
Tíminn | 25.05.2011 |
Ritstjórn
Í dag klukkan 16:00 verða þeir Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U2,1 og Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður West Ham og U21, vera í íþróttahúsinu á Blönduósi og ætla þeir að gefa krökkum nýjan DVD disk sem KSÍ var að gefa út. DVD diskurinn heitir Tækniskóli KSÍ og var búinn til fyrir börn og unglinga sem æfa knattspyrnu á Íslandi. Á disknum er kenndar um 100 tækniæfingar sem ungir knattspyrnuiðkendur geta svo æft heima ...
Tíminn | 24.05.2011 |
Ritstjórn
Kanínukjöt er spennandi valkostur fyrir sælkera og kröfuharða neytendur þar sem kjötið er talið hollt og inniheldur minni fitu og kólesteról en aðrar kjöttegundir. Þetta er álit Birgitar Kositzke sem vinnur að því að koma af stað ræktun á holdakanínum til manneldis í Húnaþingi vestra. Verkefnið, sem hlaut styrk frá Atvinnumálum kvenna, er ennþá á byrjunarstigi en vinna við viðskiptaáætlun er langt á veg kominn. IMPRA hefur aðstoðað Birgit við markaðskönnun ...
Tíminn | 17.05.2011 |
Ritstjórn
Glæpasagan Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson er væntanleg í þýskri útgáfu þann 7. október. Bókin er komin á vef Amazon þar sem hægt er að sjá kápumyndina, lesa um bókina og panta hana í forsölu. Snjóblinda gerist á Siglufirði og fjallar um Ara sem býðst staða við lögregluembættið á Siglufirði að lokinni útskrift úr lögregluskólanum...
Tíminn | 15.05.2011 |
Ritstjórn
Í dag er síðasti dagurinn til að tryggja sér miða í forsölu á Landsmót hestamanna 2011 sem haldið verður í Skagafirði daganna 26. júní til 3. júli. Margir hafa nýtt nýtt sér forsöluna og sparað sér þannig pening en miðar í forsölu eru á afslætti. Anna Lilja Pétursdóttir hjá Landsmóti hestamanna er ánægð með forsöluna. “Forsalan gengur betur núna heldur en í fyrra...
Tíminn | 12.05.2011 |
Ritstjórn
Bæjarsvala settist að tímabundið inn á lager hjá Rarik á Siglufirði í gærkvöldi. Ekki tókst að koma henni út fyrr en í morgun og var henni sleppt eftir myndatöku. Bæjasvala er svo til árviss flækingur á Íslandi. Mest sést hún á vorin, undir lok apríl eða í byrjun maí, en einnig dálítið á haustin, alveg fram í október. Varpheimkynnin eru í Evrópu, Norður-Afríku og í tempraða beltinu í Asíu (um það bil 40°N til 65°N)...
Tíminn | 11.05.2011 |
Ritstjórn
Þeir gæludýraeigendur sem eiga hund og eða kött á Blönduósi þurfa nú að standa skil á gjöldum til bæjarins. Í gjaldskrá fyrir gæludýrahald kemur fram að árgjald fyrir hund er krónur 15.120 en árgjald fyrir köttinn er krónur 1.470. Það er því rúmlega tífaldur munur á því hvort maður á hund eða kött. Hunda- og kattahald á Blönduósi er háð leyfum samkvæmt samþykkt bæjarins....
Tíminn | 09.05.2011 |
Ritstjórn
Tímamótasamningur var gerður milli Strandabyggðar og Héraðssambands Strandamanna á dögunum. Samningurinn er til eins árs og snýst um að tómstundafulltrúi Strandabyggðar, Arnar Snæberg Jónsson, tekur að sér framkvæmdastjórn sambandsins til 1. apríl 2012....
Tíminn | 09.05.2011 |
Ritstjórn
Selasetur Íslands hefur verið til húsa að Brekkugötu 2, hinu sögufræga VSP húsi, á Hvammstanga síðan það komst á laggirnar árið 2005. Nú er verið að vinna að flutningi þess í stærra og aðgengilegra húsnæði, gamla Gærukjallarann þar sem nytjamarkaðurinn hefur verið til húsa undanfarinn ár....
Tíminn | 08.05.2011 |
Ritstjórn
Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi, að því er fram kom í fréttum RÚV. Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir....
Tíminn | 05.05.2011 |
Ritstjórn
Hönnun og lagning göngustíga átti allan hug nemenda sem táku þátt í árlegu námskeiði ferðamálanema við Hólaskóla í göngustígagerð síðustu helgi.
Námskeiðið er samstarfsverkefni milli Hólaskóla og Umhverfisstofnunar en þaðan kom einn sérfræðingur og svo langtímasjálfboðaliði í umhverfisvernd sem kenndu nemendum hvernig eigi að meta göngustíga...
Tíminn | 05.05.2011 |
Ritstjórn
Ágúst Ólason hefur verið ráðinn skólastjóri Varmahlíðarskóla í Skagafirði. Tólf sóttu um stöðuna. Páll Dagbjartsson lætur nú af störfum skólastjóra eftir tæplega 40 ára farsælt starf sem stjórnandi grunnskóla og íþróttamannvirkja í Varmahlíð....
Tíminn | 04.05.2011 |
Ritstjórn
Menningarráð Norðurlands veitti í gær, þriðjudaginn 3. maí, verkefnastyrki til menningarmála á Norðurlandi. Frá þessu er greint á Feyki.is. Alls voru veittir styrkir til 50 verkefna og var heildarupphæðin 12,5 milljónir. Styrkirnir voru misháir, allt frá einni milljón niður í 50 þúsund, og fengu þrjú verkefni eina milljón króna....
Tíminn | 02.05.2011 |
Ritstjórn
Tólf sóttu um stöðu skólastjóra Varmahlíðarskóla í Skagafirði, en gert er ráð fyrir að hann taki til starfa í síðasta lagi þann 1. ágúst 2011. Páll Dagbjartsson lætur nú í vor af störfum eftir tæplega 40 ára farsælt starf sem stjórnandi grunnskóla og íþróttamannvirkja í Varmahlíð....
Tíminn | 27.04.2011 |
Ritstjórn
Hin árlega Sæluvika Skagfirðinga verður sett 1. maí. Boðið verður upp á fjölbreytta menningardagskrá víðs vegar um fjörðinn. Sæluvika Skagfirðinga er ein elsta menningarhátíð landsins og nær saga hennar allt aftur til ársins 1874 ...
Tíminn | 27.04.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundur Séttarfélagsins Samstöðu sendir baráttukveðjur til samninganefnda innan Alþýðusambands Íslands og fordæmir harkalega þá óbilgirni Samtaka atvinnulífsins að tengja fiskveiðistjórnunarkerfið við samningagerð á almennum vinnumarkaði....
Tíminn | 26.04.2011 |
Ritstjórn
Óperan fræga Óperudraugurinn, eða The Panthom of the Opera, verður frumsýnd þann 1. maí næstkomandi í Miðgarði í Skagafirði. Uppsetningin er samstarfsverkefni Óperu Skagafjarðar og Draumaradda norðursins...
Tíminn | 26.04.2011 |
Ritstjórn
Undirritaður hefur verið samningur milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Stefaníu Hjördísi Leifsdóttur varðandi rekstur félagsheimilisins Ketilási í Fljótum í Skagafirði næstu tvö árin. Félagsheimilið Ketilás er rúmlega 300 fermetrar að gólffleti....
Tíminn | 21.04.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitin Húni í Vestur-Húnavatnssýslu hefur gengið frá kaupum á sérútbúnum harðbotna björgunarbáti af gerðinni Ribcraft 585. Stefnt er að því að taka bátinn fomlega í notkun á Sjómannadaginn 5. júní. Þetta er mikil fjárfesting fyrir björgunarsveitina, en svona bátur kostar vel á sjöttu milljón króna fullbúinn....
Tíminn | 21.04.2011 |
Ritstjórn
Á undanförnum árum hefur verið mikil aukning í lönduðum afla á Skagaströnd. Það sem af er kvótaárinu er uppsafnaður afli orðinn 7.868 tonn en fyrir ári var sú tala 6.384 tonn. Er sú aukning í framhaldi af veiðum síðustu ára...
Tíminn | 20.04.2011 |
Ritstjórn
Kona um sjötugt i lést í umferðarslysi í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu í gærkvöldi þegar jepplingur og flutningabíll rákust saman. Ökumaður flutningabílsins mun vera ómeiddur. Slysið varð á þjóðveginum, nálægt bænum Jörfa. ...
Tíminn | 19.04.2011 |
Ritstjórn
Björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd var kallað út um klukkan hálf eitt í nótt þegar tilkynning barst um vélarvana bát norður af Ströndum. Um var að ræða 23 tonna bát, Kópanes, og um borð voru tveir menn. Sakaði þá ekki....
Tíminn | 17.04.2011 |
Ritstjórn
Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga á árinu 2010 nam tæpum tveimur og hálfum milljarði króna eftir skatta. Þetta er mesti hagnaður Kaupfélagsins frá upphafi. Rekstrartekjur Kaupfélags Skagfirðinga 2010 voru tæpir 26 milljarðar króna. Ársreikningur félagsins var kynntur á aðalfundi í gær. Þess má geta að allt að helmingur Skagfirðinga hefur framfærslu sína beint af störfum á vegum Kaupfélags Skagfirðinga....
Tíminn | 15.04.2011 |
Ritstjórn
Sæluostar úr sveitinni verða til sölu fyrir páska en þeir eru framleiddir af vinkonunum Stellu Jórunni A. Levy og Sæunni Vigdísi Sigvaldadóttur í Vestur-Húnavatnssýslu. Hér er á ferðinni svokallaður fersk-ostur og búinn til í fimm bragðtegundum: hreinn ostur; piparostur; sólþurrkaðir tómatar og óreganó; graslauksostur; hvítlaukur og basil....
Tíminn | 14.04.2011 |
Ritstjórn
Hestaeigendafélagið á Blönduósi afhenti í gær bæjarráði ályktun þar sem félagið harmar að bæjaryfirvöld á Blönduósi skuli hafa séð sig knúin til að fara að úrskurði yfirfasteignamatsnefndar vegna álagningar fasteignagjalda 2011. Hestamenn telja óeðlilegt að greiða sama fermetraverð fyrir ræktað land annars vegar og örfoka mel eða moldarflag hins vegar....
Tíminn | 06.04.2011 |
Ritstjórn
Á föstudaginn var undirritaður á Siglufirði samningur sveitarfélaganna tíu sem mynda byggðasamlag um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra. Nýi samstarfssamningurinn byggir á eldir samningum sem sveitarfélögin í Húnavatnssýslum, Skagafirði og Siglufirði hafa haft við ríkið um rekstur málefna fatlaðra allt frá árinu 1999....
Tíminn | 04.04.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku var haldinn aðalfundur Hestamannafélagsins Léttfeta á Sauðárkróki. Helstu tíðindi af fundinum eru þau að formannsskipti urðu í félaginu. Guðmundur Sveinsson, sem verið hefur þar í formannsstól s.l. átta ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Úlfar Sveinsson var kjörinn nýr formaður....
Tíminn | 31.03.2011 |
Ritstjórn
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra á Borðeyri í síðustu viku var lagt fram bréf frá oddvita Bæjarhrepps þar sem hann, fyrir hönd sveitarstjórnar Bæjarhrepps, óskar eftir viðræðum við sveitarstjórn Húnaþings vestra um mögulega sameiningu sveitarfélaganna tveggja, samkvæmt 90. grein sveitarstjórnarlaganna um frjálsa sameiningu sveitarfélaga....
Tíminn | 29.03.2011 |
Ritstjórn
Á stjórnarfundi Ungmennafélags Íslands sem haldinn var 25. mars sl. í Þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík var samþykkt að fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ verði haldið á Hvammstanga í umsjá Ungmennasambands Vestur Húnvetninga dagana 24. - 26. júní í sumar. ...
Tíminn | 26.03.2011 |
Ritstjórn
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að ríkisstjórninni verði falið að efna til framkvæmdaátaks í vegamálum á árunum 2011-2013. Á því tímabili verði 22 milljörðum króna varið til verkefnisins sem viðbót við þau verkefni sem hafa verið ákveðin með fjárlögum 2011. Reykjabraut og Miðfjarðarvegur eru meðal verkefna sem nefnd eru í tillögunni....
Tíminn | 24.03.2011 |
Ritstjórn
Nýverið var gerð úttekt á nokkrum grunnskólum landsins þar á meðal Árskóla á Sauðárkróki. Kannað var ytra umhverfi og innra starf skólans. Í skýrslunni kemur fram að innra starf skólans er til mikillar fyrirmyndar og að sameining Barnaskólans og Gagnfræðaskólans fyrir um áratug hafi tekist mjög vel....
Tíminn | 22.03.2011 |
Ritstjórn
Sæluvikan, árleg lista- og menningarhátíð í Skagafirði, verður haldin 1-7. maí nk. Meðal stærstu viðburða þetta árið verður dægurlagakeppni Sæluviku sem fram fer á Sauðárkróki, föstudaginn 6. maí. Keppnin er öllum opin og eru allir lagahöfundar landsins hvattir til að senda inn lög. Dómnefnd mun velja 10 lög sem keppa á úrslitakvöldinu um titillinn Sæluvikulagið 2011....
Tíminn | 21.03.2011 |
Ritstjórn
Eins og kannski flestum er kunnugt fer Landsmót hestamanna fram á Vindheimamelum í Skagafirði í 26. júní til 3. júlí í sumar. Miðasala er nú hafin og fer hún fram á heimasíðu Landsmótsins; http://www.landsmot.is/...
Tíminn | 20.03.2011 |
Ritstjórn
Námskeið um uppbyggingu verkefna og fyrirtækja í skapandi greinum á Norðurlandi vestra verður haldið 31. mars, 1. og 2. apríl á Sauðárkróki. Þátttakendur gefst kostur sækja námskeiðið á grundvelli verkefnis sem þeir vilja vinna að og er gert ráð fyrir virkri þátttöku þeirra á námskeiðinu....
Tíminn | 17.03.2011 |
Ritstjórn
Í umræðu um Héðinsfjarðargöng hafa komið upp villandi upplýsingar um kostnað við göngin og samanburð á upphaflegri áætlun og endanlegri útkomu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Uppreiknuð upphafleg áætlun er 12,1 milljarðar króna en uppreiknaður heildarkostnaður nam 14,2 milljörðurm króna. Í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að heildarkostnaður við Héðinsfjarðargöng yrðu 7,6 milljarðar króna en áætlunin var gerð í janúar 2006....
Tíminn | 13.03.2011 |
Ritstjórn
Bæjarráð Akureyrarbæjar hefur falið bæjarstjóra að óska eftir fundi með bæjarstjóra Blönduósbæjar og sveitarstjóra Húnavatnshrepps til þess að ræða mismunandi hagsmuni sveitarfélaganna varðandi styttingu hringvegarins með hinni svokölluðu Svínavatnsleið/Húnavallaleið....
Tíminn | 09.03.2011 |
Ritstjórn
Engilbert Ástráðarson á Sauðárkróki óskaði fyrir skömmu eftir því að fá að bæta starfsheitinu „kall andskoti“ aftan við nafnið sitt í skráningu símaskrárinnar. Því var hins vegar hafnað á þeim forsendum að tungutakið samrýmdist ekki hefðum og venjum í símaskránni og væri auk þess ágengt og hálf dónalegt....
Tíminn | 09.03.2011 |
Ritstjórn
Vinnumálastofnun Norðurlands vestra hefur gert samkomulag við Skottu kvikmyndafjelag um að koma á fót Kvikmyndasmiðju í Skagafirði fyrir atvinnuleitendur. Hugmyndin er að bjóða atvinnuleitendum upp á tækifæri til að kynnast kvikmyndagerð frá hinum ýmsu sjónarhornum....
Tíminn | 07.03.2011 |
Ritstjórn
Í ár eru 80 ár frá því að skólahald hófst í Reykjaskóla en það var 7. janúar árið 1931 sem fyrstu nemendur hófu nám við skólann. Starfsemi hefur verið óslitinn í skólanum frá þessum tíma en 1940 - 1943 hafði breskt setulið aðsetur á Reykjatanga og þar með í skólanum. ...
Tíminn | 06.03.2011 |
Ritstjórn
Örlygur Kristfinnsson er Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2011. Þetta er í annað sinn sem valinn er Bæjarlistamaður Fjallabyggðar og tekur Örlygur við nafnbótinni af Bergþóri Morthens sem bar titilinn árið 2010. Sandra Finnsdóttir, formaður nefndarinnar, veitti Örlygi blóm er tilkynning um bæjarlistamann ársins var kunngerð. Hún fór einnig yfir það ötula starf sem Örlygur hefur tekið að sér í Fjallabyggð sem safnstjóri, rithöfundur, myndlistarmaður, hönnuður, kvæðamaður og lífskúnstner. ...
Tíminn | 04.03.2011 |
Ritstjórn
Rúnar Jónsson hjá bifreiðaverkstæði KS á Sauðárkróki sagði í samtali við Feyki á dögunum að aðrir aflgjafar á birfreiðar en eldsneyti séu ekki í boði á Norðurlandi vestra, þar með talið metangas. Sú leið sem fjármálaráðherra hefur boðað að skipta yfir í metan er því ekki í boði á þessu svæði....