logo
miðvikudagur, 22. febrúar 2012

BÍÓTíminn

Mynd
BÍÓTíminn er skrifaður af gagnrýnendum BÍÓFilmunnar. BÍÓFilman er kvikmyndasíða, stofnuð af áhugamönnum um kvikmyndir. Stefna BÍÓFilmunnar er að vera leiðandi í gagnrýni og pistlum tengdum kvikmyndum. Við viljum verða það traust síða að fólk hugsi fyrst um BÍÓFilmuna ætli það sér að sjá einhverja mynd, sama hvort hún sé í bíó eða eldri. Við gefum myndum einkunn á skalanum 0 – 5.

Gunnar Jónsson

Mynd
Höfundur er ekkert. Ef þér er misboðið vegna skoðana hans, ekki reiðast. Vorkenndu honum frekar. Og þú mátt vita að hann misbýður oft sjálfum sér. Líf höfundar hefur verið erfitt. Lífið er erfitt. Finnst þér það ekki? Öll viljum við vera góð en það er erfitt. Það er svo djöfulli mikil óvissa í lífinu. Og freistingar. Þessvegna lætur höfundur fólk sem þykist vita hluti af of mikilli fullvissu fara í taugarnar á sér. Höfundur veit ekki neitt. Ekki fyrir víst að minnsta kosti. Er þetta ekki nógu mikill texti? Er þetta kannski óskýr og óspennandi umsögn um höfund? Hann veit það ekki. Fjandinn.

Frosti Sigurjónsson

Mynd
Frosti Sigurjónsson er giftur og þriggja barna faðir í Reykjavík. Frosti lærði viðskiptafræði í Háskóla Íslands og síðar rekstrarhagfræði í London Business School. Störfin hafa snúist um rekstur og stjórnun tæknifyrirtækja þar á meðal hjá Nýherja, Marel, CCP, Dohop og DataMarket.

Reynir Þór Eggertsson

Mynd
Ég er 38 ára áhugamaður um stjórnmál, bókmenntir og dægurmenningu. Ég er með doktorspróf í norrænum bókmenntum (með áherslu á þýðingar á dönsku og íslensku eftir siðaskipti) og hef undanfarið ár starfað sem kennari í íslensku máli og bókmenntum við University College London. Þekktastur er ég þó líklega fyrir áhuga minn á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva - júróvísjón.

Egill Jóhannsson

Mynd
Egill Jóhannsson er viðskiptafræðingur frá HÍ, forstjóri Brimborgar, kvæntur og tveggja barna faðir. Ég hef áhuga á að deila skoðunum með öðrum. Ég hef sérstakan áhuga á því sem snýst hægt. Og snúa því í gang. Stjórnun breytinga. Athugasemdir og leiðbeiningar frá öðrum eru mjög vel þegnar og má senda á netfangið egillj(hjá)brimborg.is eða með athugasemdum á egill.blog.is.

Hrund Guðmundsdóttir

Mynd
Fædd 1974, bý í Hveragerði með aðra löppina í London þar sem ég bjó í fjölmörg ár. Er teiknari, málari, badmintonspilari, atvinnurekandi, Úlfamamma, eiginkona og kattakerling með græna fingur og allskonar valkvíða m.a.

Gissur Þórður Jóhannesson

Mynd
Ég er bara gamall karl sem hefur gaman af að fylgjast með og skifta mér af ýmsum málum.

Már Wolfgang Mixa

Mynd
Fjárfestingarstefna í anda Warren Buffett. Skynsemi í stjórnun og sjálfstæði í hugsun. Hef unnið á fjármálamarkaði í mörg ár. Besta ráðgjöfin: "When there is a stock-market boom, and everyone is scrambling for common stocks, take all your common stocks and sell them. ... No doubt the stocks you sold will go higher. Pay no attention to this -- just wait for the (recession), which will come sooner or later. When this (recession) -- or panic -- becomes a national catastrophe ... buy back the stocks. No doubt the stocks will go still lower. Again pay no attention. Wait for the next boom. Continue to repeat this operation as long as you live, and you'll have the pleasure of dying rich." Fred Schwed, 1940. Greinasafn - http://www.slideshare.net/marmixa

Ragnhildur Sigurðardóttir

Mynd
Golfkennari. Grunnskólakennari/Íþróttir frá KHÍ 1994 Móðir - kona - tvíburi:) Áhugamanneskja um allt sem er skondið og skemmtilegt. ragsi@simnet.is

Ari Kr. Sæmundsen

Mynd
Fæddur í Reykjavík 30. mars 1951. Giftur Sigríði Á. Skúladóttur, kennara, og eiga þau þrjú uppkomin börn og 2 barnabörn. Doktorspróf í líffræði frá Karolinska Institute í Stokkhólmi og pungapróf í rekstrar- og viðskiptafræði frá Endurmenntunardeild HÍ. Á og rekur fyrirtækið Gróco ehf, sem sérhæfir sig í tækjum og rekstrarvöru fyrir rannsóknastofur. Hefur skrifað eina bók, smásagnasafnið „Með stein í skónum“, sem kom út hjá Sölku forlagi hrunárið 2008. Þraukar enn í óbærilegum léttleika íslenskrar tilveru.

Les Mandarins

Mynd
Hópur af stúlkum hver úr sinni áttinni sem sameinast um það að vera kvenkyns. Hafa áhuga á öllu milli himins og jarðar svo sem tísku, ljósmyndun, hönnun, myndlist, tónlist, bókmenntum og menningu. Eru dömulegir kvennskörungar að nafni: Erna Viktoría, Helena Marteinsdóttir, Sigríður Elísa Eggertsdóttir og Gabríella Ýr ásamt tilfallandi fagurkerum.

Hilmar Gunnars

Mynd
Hilmar er áhugasamur um umhverfi sitt og náungann. Það hljómar kærleiksríkt en í raun er drifkrafturinn á bak við skrifin ótæmandi áhugi á arkitektúr og hönnun. Hilmar hlaut B.A. gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Árið 2007-2008 stundaði hann masternám í arkitektúr við Sci-Arc í Los Angeles og útskrifaðist síðan með mastersgráðu í arkitektúr frá Arkitektaskólanum í Árósum árið 2010. Netfang: hilmargunn@yahoo.com.

Ragnheiður Ingimundardóttir

Mynd
Ég er smábóndi rétt hjá Hólmavík og einnig vinn ég sem verslunarstjóri í Vínbúðinn á Hólmavík. Ég á 3 börn og 7 barnabörn, er mikil prjónakona og prjóna helst í frítímum á milli þess sem ég er á netinu. Annars er ég fædd og uppalin í Kópavogi en var sem barn alltaf í sveit hér norður á Ströndum og örlögin höguðu því svo að hér náði ég mér í mann og hér er ég búin að búa í 29 ár.

Ásmundur Einar Daðason

Mynd
Höfundur er Alþingismaður Framsóknarflokksins í NV-kjördæmi.

Skafti Harðarson

Mynd
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og hagfræði. Tók snemma afstöðu með hugmyndum um frelsi einstaklingsins í anda Locke, Hume og Mill. Síðar tóku við hugmyndir frjálshyggjumanna eins og Hayek og Friedman. Einn stofnenda Félags frjálshyggjumanna 1979. Tók langt frí frá öllum afskiptum af stjórnmálum þar til við hrunið haustið 2008. En þá fengu hljómgrunn margs konar skelfilegar hugmyndir sem festa munu Íslendinga í altumlykjandi ríkisafskiptum og kreppu um ókomna tíð. Gegn þeim hugmyndum þarf að vinna. Jákvæður fjölskyldumaður, faðir og afi, sem hefur starfað við verslun og viðskipti frá því 1978 bæði á eigin vegum og fyrir aðra. Kominn vel á veg yfir miðjan aldur. „Ég vil minna ykkur á það, að hófleysi í því að verja frelsið er enginn löstur. Og leyfið mér líka að minna ykkur á , að hófsemi í leitinni að réttlæti er ekki nein dyggð!” - Barry Goldwater forsetaframbjóðandi repúblikana í Bandaríkjunum 1964