logo
miðvikudagur, 22. febrúar 2012
Mynd

Krefjast þess að hækkun Herjólfsfargjalda verði dregin til baka

Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja mótmælir harðlega hækkun fargjalda Herjólfs og krefst að stjórnvöld dragi hana tilbaka. "Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja leggst alfarið gegn áframhaldandi niðurskurði á opinberri þjónustu í Vestmannaeyjum. Nú þegar er niðurskurðurinn kominn vel yfir sársaukamörk hjá Heilbrigðisstofnun Vestmanneyja, lögreglunni og Framhaldsskóla Vestmannaeyja. Áframhaldandi skerðing á þjónustu út á landi er einfaldlega aðför að lífsskilyrðum Eyjamanna."...

Vestmannaeyjar fyrsti viðkomustaður Þórs

MyndVarðskipið Þór, nýtt eftirlits- og björgunarskip Íslendinga, er nú á siglingu frá Halifax til Íslands. Vestmannaeyjar er fyrsti viðkomustaður varðskipsins en það leggur að bryggju í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 26. október nk. Verður varðskipið opið til sýnis milli kl. 14:00 og 20:00 og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir um borð....

Lesa meira

50 tommu flatskjá og áfengi stolið úr Happy hour

MyndMilli klukkan 00:30 eftir miðnætti og 08:00 í morgun var brotist inn á bílaverkstæði Bíliðjunar við Unubakka 48 í Þorlákshöfn og þaðan stolið lykli að rauðri Mazda bifreið sem stóð fyrir utan verkstæðið. Skráninganúmer voru tekin af annari bifreið, sem var þar hjá, og þeim komið yfir á Mazda bifreiðina. Að því loknu ók þjófurinn af stað og í burtu frá verkstæðinu. Sömu nótt var brotist inn í veitingastaðinn Happy hour sem er í sömu götu nánar tiltekið Unubakka 4. Þaðan var stolið 50 tommu flatskjá og nokkur magni af áfengi....

Lesa meira

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Pennar

Mynd
27.1.2012 12:30:00
Hrund Guðmundsdóttir
Fýluferð
Mynd
9.12.2011 14:36:00
Ari Kr. Sæmundsen
Bullur og bull
Mynd
4.12.2011 20:12:00
Skafti Harðarson
Fyrir upplýsta umræðu um ESB
Mynd
21.11.2011 21:11:00
Frosti Sigurjónsson
Auglýsingarýni: Vissir þú?
Mynd
19.10.2011 00:41:00
Hilmar Gunnars
Tækniframfarir í arkitektúr.
Mynd
17.9.2011 18:25:00
Gunnar Jónsson
Flipp-femínismi
Mynd
1.9.2011 01:08:00
Ásmundur Einar Daðason
Brottflutningarnir kosta milljarða!
Mynd
11.8.2011 15:26:00
Reynir Þór Eggertsson
Að vera stikkfrí
Mynd
9.8.2011 10:25:00
Gissur Þórður Jóhannesson
Blautalón.
Mynd
11.7.2011 15:22:00
Les Mandarins
Hin drungalegi akstur æskunnar minnar
Mynd
23.6.2011 10:05:00
Ragnheiður Ingimundardóttir
Sjónvarpið og fl
Mynd
14.5.2011 00:43:00
BÍÓTíminn
Route Irish (2011) Gagnrýni

Fleiri Pennar

Nýjar merkingar við allar innkomuleiðir á hálendið

MyndUnnið er að því að setja upp nýjar og meira áberandi merkingar við allar innkomuleiðir á hálendi Íslands sem taka mið af ástandinu hverju sinni. Merkin er stór og áberandi, búin miklu endurskini. Á vef Vegagerðarinnar má sjá myndir af þeim öllum....

Lesa meira

Rannsóknir á fiskistofnum í Þjórsá halda áfram á vegum Landsvirkjunar

MyndLandsvirkjun hefur um árabil unnið að rannsóknum á lífríki Þjórsár en ítarlegar rannsóknir hafa átt sér stað á fiskistofnum í ánni allt frá árinu 1973. Í upphafi stóð Veiðimálastofnun fyrir rannsóknunum en í seinni tíð hafa rannsóknirnar að mestu verið unnar á vegum Landsvirkjunar með Veiðmálastofnun sem helsta ráðgjafa. ...

Lesa meira

Fær ekki að laga útskurðinn á hurðunum sem voru við innganginn í Eden

MyndSparisjóður Vestmannaeyja gaf Hveragerðisbæ hurðir á dögunum, skornar út í líki Adams og Evu. Þetta eru hurðirnar sem voru við innganginn í Eden í Hveragerði, sem brann sl. sumar. Framhlið umræddra hurða voru það eina sem ekki fuðraði upp með byggingunni. Erlendur F. Magnússon smiðurinn og listamaðurinn á bakvið hurðirnar hefur sóst eftir að fá þær til viðgerðar án árangurs....

Lesa meira

Farvegir fallvatna á Suðurlandi fullir af aur og eðju

MyndMikill eðjuframburður var í ám undir Eyjafjöllum síðasta vetur, en dró verulega úr honum í sumar. Nú fer eðjan af stað í haustrigningunum og Vegagerðin hefur verið að moka af krafti upp úr Svaðbælisá til að verja brúna á hringveginum. Holtsá hefur brotist úr farvegi sínum og hefur Landgræðslan aftur hafið uppmokstur úr henni neðan hringvegar....

Lesa meira

Mynd

Tríólógía í Selinu á Stokkalæk

Mynd
Sunnudaginn 16. október kl. 16 heldur Tríólógía tónleika í Selinu á Stokkalæk. Tríóið skipa þær Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sólveig Samúelsdóttir mezzósópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Tríólógía mun flytja úrval dúetta eftir tónskáldin, þar á meðal Mädchenlieder eftir Schumann sem ekki er oft flutt hér á landi. Tónleikarnir eru svonefndir landsbyggðartónleikar sem Félag íslenskra tónlistarmanna gengst fyrir með tilstyrk mennta- og menningarmálaráðueytisins. Veitingar verða á tónleikunum og eru miðapantanir í síma 4875512 og 8645870....

Dyramottur lagðar fyrir framan útidyr allra íbúðarhúsa á Hornafirði

Mynd
Íbúar Hafnar í Hornafirði ráku upp stór augu á fimmtudagsmorgunn í síðustu viku, þegar uppgötvaðist að dyramottur höfðu um nóttina verið lagðar við útidyr hvers íbúðarhúss í bænum. Motturnar voru með áletruninni "Velkomin" en voru ómerktar að öðru leyti. Hverri mottu fylgdi hins vegar bréf frá símafyrirtækinu Vodafone, sem vildi með framtakinu vekja athygli á aukinni þjónustu við bæjarbúa....

Heimir hættir með ÍBV og Magnús tekur við

Mynd
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, hættir með liðið eftir keppnistímabilið í knattspyrnu í haust. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV-íþróttafélagi. Eyjamenn hafa þegar fundið eftirmann Heimis, en það er fyrrum þjálfari ÍBV og núverandi þjálfari 1. deildarliðs Hauka, Magnús Gylfason. Magnús hefur ávallt haldið sterkum tengslum við ÍBV eftir að hann þjálfaði Eyjaliðið á árunum 2003-2004 en síðara árið endaði ÍBV í 2. sæti deildarinnar....

leiðin milli Reykholts og Flúða styttist um 20 km

Mynd
Innanríkisráðherra og vegamálastjóri opnuðu á föstudag hinn nýja Bræðratunguveg með brú yfir Hvítá. Með veginum tengjast Bláskógabyggð og Hrunamannahreppur á nýjan hátt og leiðin milli Reykholts og Flúða styttist um 20 km. Vegurinn er 8 m breiður. Brúin Hvítá er 270 m að lengd með tveimur akbrautum auk þess sem 2 m breið göngu/reiðleið er á brúnni. Áætlaður heildarkostnaður vegna verksins er 1.140 m.kr....

Segir fylgismenn aðildar hafa unnið skemmdarverk í Framsóknarflokknum

Mynd
Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, ritar athyglisverða grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann m.a. að hópur harðra fylgismanna aðildar að Evrópusambandiu, sem hefur nú skilið við Framsóknarflokkinn, hafi unnið slík skemmdarverk í flokknum að erfitt sé að sætta sig við slíkt. Hann sakar lítinn minnihluta flokksmanna, sem er hlynntur aðild, um rætnar árásir á þá sem eru andvígir aðild....

Tröppur við Seljalandsfoss

Mynd
Rangárþing eystra leggur ákveðið fjármagn á hverju ári til uppbyggingu áfangastaða ferðamanna í sveitarfélaginu. Í sumar var m.a. unnið að uppsetningu á tröppum við Seljalandsfoss og var það stærsta verkefnið sem ráðist var til í ár á þessu sviði. Undanfarin ár hefur verið unnið að því að laga aðgengi í kringum fossinn og eru tröppurnar hluti af því. Verkefnið er einnig styrkt af umhverfissjóði Ferðamálastofu sem leggur 2 milljónir króna í þennan hluta verksins. Uppsetning tappanna tók um 6-7 vikur. ...

Fleiri fréttir

Stórhöfði

VSV 7 m/s
4,6°
Heiðskírt

fimmtudagur

SA 14 m/s
/
Rigning

föstudagur

V 24 m/s
/
Lítils háttar rigning

laugardagur

VNV 12 m/s
/
Lítils háttar rigning

sunnudagur

SSV 14 m/s
/
Rigning

mánudagur

SV 11 m/s
/
Snjóél

þriðjudagur

SV 14 m/s
/
Lítils háttar rigning
Síðast sótt: 22.2.2012- vedur.is
 
Lesa meira

Uppljóstrarinn

Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður

bjornvalurUppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan. Hefur sú foringjahollusta gengið svo langt að heimildarmenn uppljóstrarans eru orðnir sannfærðir um að blogg Björns Vals sé skipulega notað til að koma á framfæri óþægilegum árásum á andstæðinga fjármálaráðherra sem hann vill ekki sjálfur gangast við, en þar fara nú hæst árásir á "íhaldið" sem Björn Valur skilgreinir sem Forseta Íslands og Biskups Íslands og að því er virðist alla aðra sem ekki eru flokksbundnir í ríkisstjórnarflokkunum.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þótt Björn Valur hafi komið inn á Alþingi í kosningum 2009 sem fulltrúi nýrra tíma á Íslandi þá nái samstarf hans við Steingrím J. Sigfússon mun lengra aftur í tímann. Á vef Alþingis má t.d. sjá að Björn Valur sat á Alþingi sem varaþingmaður Alþýðubandalagsins árið 1990.  Það sem ekki er tekið fram þar er að Björn Valur var þá (sem og árin 2007 og 2008) varamaður Steingríms J. Sigfússonar.

 

Björn Valur, eða "varðhundur fjármálaráðherra" eins og heimildarmenn skopast með að hann sé nefndur í gríni og alvöru, hefur því verið vinstri kantmaður í íslenskum stjórnmálum í rúm tuttugu ár og allan þann tíma verið í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon.  Uppljóstraranum getur ekki annað en glaðst yfir því að Birni Val hafi loksins verið launuð húsbóndahollustan með embætti þingflokksformanns.   Heimildarmenn telja að Þuríður Backman (sem tók eftirminnilega við embættinu í fréttaviðtali á flugvelli úti í löndum með orðunum "HA?") hafi aldrei verið fyrsti kostur forystu VG. Þuríður hafi aðeins lent í starfinu óvart þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að láta hafa sig að fífli eftir að forysta VG setti hana af eftir fæðingarorlof eins og frægt er orðið.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans telja að með kosningu Björns Vals í embætti þingflokksformanns hafi Steingrímur J. Sigfússon slegið tvær flugur í einu höggi, treyst til muna tak sitt á ódælum þingmönnum innan flokks og gefið árásum varðhundarins á "íhaldið" stóraukið vægi út á við. Hvort tveggja komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er um líf ríkisstjórnarinnar á komandi vetri.

Lesa meira

Kvestor

Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?

Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út 1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur fram í þessari bók.

Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."

Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?
Lesa meira

Aðsendar greinar

Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?

vigdis framsoknÞann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?

Í nefndaráliti með tillögunni kemur fram að með umsóknarferlinu yrði tryggt að Alþingi yrði hluti af því heildarferli stjórnsýslu sem mál ættu að fara í gegnum áður en þau yrðu endanlega afgreidd og þannig átti að tryggja að stjórnsýslan miðlaði upplýsingum til þingsins um málefni er tengdust viðræðunum svo að þingið geti gegnt eftirlitshlutverki sínu í ferlinu. Á þessu er mikill misbrestur því þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, utandagskrárumræður og beiðnir um fundi í utanríkisnefnd fá þingmenn afar takmarkaðar upplýsingar um aðlögunarferlið. Sér þess sér helst stað í frumvörpum ríkisstjórnarinnar við innleiðingar gerða og tilskipana ESB.

Sá háttur er samt hafður á að hvergi er tiltekið í frumvörpunum sjálfum að um skilyrði ESB sé að ræða vegna umsóknarinnar. Blekkingarleik er beitt í skjóli EES samningsins. Nefni ég hér örfá frumvörp sem orðið hafa að lögum á síðasta þingi sem skilyrt var að lögleiða og hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. Ákvæði um Þróunarsjóð EFTA lögleitt í EES samninginn - kostar ríkissjóð í nýjum útgjöldum 5,3 milljarða. Lög um losunarheimildir - stofnkostnaður 20 milljónir og ný útgjöld 45 milljónir á ári. Lög um grunngerð landupplýsinga - 30 milljónir á ári. Fjölmiðlalög - rekstur fjölmiðlanefndar 33 milljónir á ári. Lög um stjórn vatnamála - ný útgjöld 130 milljónir á ári.

Utanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að eins sé líklegt að kostnaður upp á 4 milljarða lendi á ríkinu vegna innleiðingar nýs tollakerfis í landbúnaði. Mörg sambærileg frumvörp liggja inn í þinginu sem bíða afgreiðslu. Hliðaráhrif umsóknarferlisins hafa því gríðarleg áhrif á ríkissjóð. Það skal og á það minnst að atvinnusköpunartækifæri ríkisstjórnarinnar liggur í lögleiðingu þessara frumvarpa því oftar en ekki þarf að bæta við starfsmönnum í undirstofnunum til "eftirlits" . Kratavæðingin er því algjör og opinberi geirinn þenst út.

Þá að beinum kostnaði við umsóknina. Í umræddri greinargerð er talið að kostnaður sem falli undir utanríkisráðuneytið á árabilinu 2010 - 2012 verði um 800 milljónir og lunginn af þeim kostnaði felst í þýðingum reglna ESB yfir á íslensku. Það er hreint galið að skattgreiðendur beri kostnað af þýðingum alls lagabálks ESB áður en vitað er hvort gengið verður inn eður ei. Ekki er gefin upp kostnaður annarra ráðuneyta - en ljóst er að stjórnsýslan liggur á hliðinni vegna umsóknarinnar - sem er e.t.v. skýringin á hví slík kyrrstaða ríki hér á landi.

Fljótt á litið má áætla að beinn kostnaður við umsóknarferlið verði á bilinu 1,5 - 2 milljarðar. Þær upplýsingar er ekki hægt að fá frá stjórnarráðinu og heykist hver ráðherrann á fætur öðrum að veita þinginu og almenningi upplýsingar um þennan kostnað. Samandregið er um að ræða gríðarlegan dulinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu á fylgiskjali IV í þingsályktunartillögunni kemur fram að kostnaður aðildarviðræðnanna sé háður óvissu sér í lagi í ljósi þess hversu hratt viðræðurnar ganga. Kostnaðarmatið er byggt á 18 mánaða ferli sem átti að ljúka um mitt ár 2011. Nú er sá tími liðinn og langt í land með að samningar takist. Rökrétt er því að tvöfalda beinan kostnað af ferlinu. Ef umsóknin verður ekki dregin til baka er ljóst að kostnaðurinn við umsóknina mun hlaupa á tugum milljarða.

Á meðan Össur Skarphéðinsson situr einn á brennandi tröppunum í Brussel með umsóknina er vegið að grunnþáttum íslensks samfélags með niðurskurði og skattpíningu.