Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Tríólógía í Selinu á Stokkalæk

Sunnudaginn 16. október kl. 16 heldur Tríólógía tónleika í
Selinu á Stokkalæk. Tríóið skipa þær Hallveig Rúnarsdóttir sópran,
Sólveig Samúelsdóttir mezzósópran og Hrönn Þráinsdóttir
píanóleikari. Tríólógía mun flytja úrval dúetta eftir tónskáldin,
þar á meðal Mädchenlieder eftir Schumann sem ekki er oft flutt hér
á landi. Tónleikarnir eru svonefndir landsbyggðartónleikar sem
Félag íslenskra tónlistarmanna gengst fyrir með tilstyrk mennta- og
menningarmálaráðueytisins. Veitingar verða á tónleikunum og
eru miðapantanir í síma 4875512 og 8645870.
Dúettar Mendelsohns eru þekktari og eru vinsæl viðfangsefni
söngnema enda einstaklega fagrir og léttir yfirbragðs. Sólveig mun
svo flytja úrval af einsöngslögum Mendelssohns, þar á meðal hin
frægu lög Auf flügeln des Gesanges og Neue Liebe. Hallveig mun hins
vegar takast á við hinn stórkostlega ljóðaflokk Schumanns
Frauenliebe und Leben sem er einn þekktast ljóðaflokkur sem saminn
hefur verið fyrir kvenröddina.
Hallveig Rúnarsdóttir hóf söngnám hjá Sigurði
Demetz árið 1991. Hún lauk 8. stigi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík undir handleiðslu Rutar L. Magnússon 1998. Það sama ár
hóf hún nám hjá Theresu E. Goble við Guildhall School of Music and
Drama í London og útskrifaðist þaðan með láði sumarið 2001.
Hallveig hefur nokkrum sinnum komið fram með Sinfóníuhljómsveit
Íslands og hún hefur einnig sungið með Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna, kammersveitinni Aldavinum, kammerhópnum Caput,
Kammersveit Hafnarfjarðar, Íslensku kammersveitinni og Jón Leifs
Kammerata. Hallveig hefur komið fram sem einsöngvari víða um heim,
er virkur óratóríusöngvari hér á landi og víðar og hefur einnig
lagt áherslu á flutning barrokk- og endurreisnartónlistar. Hún er
einn af stofnendum kammerhópsins Rinascente. Hallveig hefur
sérstaklega verið virk í flutningi nýrrar tónlistar og hefur
frumflutt mörg ný íslensk verk, t.d. á Listahátíð í Reykjavík og á
Sumartónleikum í Skálholti. Hallveig hefur einnig haldið fjölda
einsöngstónleika á Íslandi undanfarin ár þar sem hún hefur lagt
áherslu á ljóðasöng.
Sólveig Samúelsdóttir mezzósópran er fædd á
Akureyri en alin upp í Trollhättan í Svíþjóð, á Ísafirði og í
Reykjavík. Hún stundaði píanónám frá 10 ára aldri hjá Sigríði
Ragnarsdóttur við Tónlistarskólann á Ísafirði og söng jafnframt með
kór skólans. Er Sólveig var 16 ára gömul flutti hún frá
Ísafirði til Reykjavíkur og hélt áfram píanónámi hjá Halldóri
Haraldssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík. Einnig sótti
hún einkatíma í píanóleik hjá Jónasi Sen einn vetur. Sólveig
hefur auk þess lokið stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands og
sveinsprófi í tannsmíði frá Tannsmiðaskóla Íslands. Sólveig hóf
söngnám við Söngskólann í Reykjavík 1997 og lauk þaðan 8. stigi
2002 undir handleiðslu Elísabetar F. Eiríksdóttur og Elínar
Guðmundsdóttur. Haustið 2002 hóf hún nám við Tónlistardeild
Listaháskóla Íslands og lauk þaðan B. Mus. gráðu í söng 2005 og
kennsluréttindanámi 2006. Aðalkennari hennar við LHÍ var Elísabet
Erlingsdóttir. Sólveig hefur sótt ýmis námskeið í söngtækni og
túlkun m.a. hjá Giovönnu Canetti, Galinu Pisarenko, Joy Mammen,
Mark Wildman og Kiri Te Kanawa. Síðastliðinn vetur sótti hún
einkatíma hjá Giovanna Canetti prófessor í Mílanó á Ítalíu. Sólveig
var annar tveggja sigurvegara í sólistakeppni Sinfóníuhljómsveitar
Íslands og Listaháskóla Íslands 2004 og kom fram sem einsöngvari
með Sinfóníuhljómsveitinni á tónleikum í Háskólabíói í janúar
2005. Hún hefur farið með nokkur hlutverk hjá Óperustúdíói Íslensku
Óperunnar og komið reglulega fram sem einsöngvari á ýmsum tónleikum
undanfarin ár. Þá hefur Sólveig tekið þátt í flutningi á
fjölmörgum kirkjulegum verkum.
Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari hóf nám við
Tónmenntaskólann í Reykjavík 7 ára gömul hjá Erlu Stefánsdóttur.
Hún stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík á árunum
1991-1998 hjá Jónasi Ingimundarsyni og lauk þaðan burtfararprófi. Í
Þýskalandi stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Freiburg og
lauk þaðan Diploma kennaraprófi með ljóðasöngsmeðleik sem aukafag
vorið 2004. Kennarar hennar voru dr. Tibor Szasz prófessor í
píanóleik og Hans-Peter Müller prófessor við ljóðasöngdeild. Að því
loknu stundaði Hrönn nám við tónlistarháskólann í Stuttgart undir
handleiðslu Cornelis Witthoefft prófessors þar sem hún lauk sumarið
2007 sérhæfðu Diploma námi við ljóðasöngdeild skólans. Hrönn hefur
komið fram á tónleikum víða, m.a. í Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu
og á Íslandi, bæði sem einleikari, meðleikari og við flutning
kammertónlistar. Hún hefur verið meðlimur kammersveitarinnar
Ísafoldar frá árinu 2004 en sveitin hlaut íslensku
tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins árið 2007. Hrönn er
kennari við Söngskólann í Reykjavík.
Tíminn | 22.10.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja mótmælir harðlega hækkun fargjalda Herjólfs og krefst að stjórnvöld dragi hana tilbaka. "Aðalfundur Framsóknarfélags Vestmanneyja leggst alfarið gegn áframhaldandi niðurskurði á opinberri þjónustu í Vestmannaeyjum. Nú þegar er niðurskurðurinn kominn vel yfir sársaukamörk hjá Heilbrigðisstofnun Vestmanneyja, lögreglunni og Framhaldsskóla Vestmannaeyja.
Áframhaldandi skerðing á þjónustu út á landi er einfaldlega aðför að lífsskilyrðum Eyjamanna."...
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Varðskipið Þór, nýtt eftirlits- og björgunarskip Íslendinga, er nú á siglingu frá Halifax til Íslands. Vestmannaeyjar er fyrsti viðkomustaður varðskipsins en það leggur að bryggju í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 26. október nk. Verður varðskipið opið til sýnis milli kl. 14:00 og 20:00 og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir um borð....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Milli klukkan 00:30 eftir miðnætti og 08:00 í morgun var brotist inn á bílaverkstæði Bíliðjunar við Unubakka 48 í Þorlákshöfn og þaðan stolið lykli að rauðri Mazda bifreið sem stóð fyrir utan verkstæðið. Skráninganúmer voru tekin af annari bifreið, sem var þar hjá, og þeim komið yfir á Mazda bifreiðina. Að því loknu ók þjófurinn af stað og í burtu frá verkstæðinu. Sömu nótt var brotist inn í veitingastaðinn Happy hour sem er í sömu götu nánar tiltekið Unubakka 4. Þaðan var stolið 50 tommu flatskjá og nokkur magni af áfengi....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Unnið er að því að setja upp nýjar og meira áberandi merkingar við allar innkomuleiðir á hálendi Íslands sem taka mið af ástandinu hverju sinni. Merkin er stór og áberandi, búin miklu endurskini. Á vef Vegagerðarinnar má sjá myndir af þeim öllum....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Landsvirkjun hefur um árabil unnið að rannsóknum á lífríki Þjórsár en ítarlegar rannsóknir hafa átt sér stað á fiskistofnum í ánni allt frá árinu 1973. Í upphafi stóð Veiðimálastofnun fyrir rannsóknunum en í seinni tíð hafa rannsóknirnar að mestu verið unnar á vegum Landsvirkjunar með Veiðmálastofnun sem helsta ráðgjafa. ...
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Sparisjóður Vestmannaeyja gaf Hveragerðisbæ hurðir á dögunum, skornar út í líki Adams og Evu. Þetta eru hurðirnar sem voru við innganginn í Eden í Hveragerði, sem brann sl. sumar. Framhlið umræddra hurða voru það eina sem ekki fuðraði upp með byggingunni. Erlendur F. Magnússon smiðurinn og listamaðurinn á bakvið hurðirnar hefur sóst eftir að fá þær til viðgerðar án árangurs....
Tíminn | 14.10.2011 |
Ritstjórn
Mikill eðjuframburður var í ám undir Eyjafjöllum síðasta vetur, en dró verulega úr honum í sumar. Nú fer eðjan af stað í haustrigningunum og Vegagerðin hefur verið að moka af krafti upp úr Svaðbælisá til að verja brúna á hringveginum. Holtsá hefur brotist úr farvegi sínum og hefur Landgræðslan aftur hafið uppmokstur úr henni neðan hringvegar....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Sunnudaginn 16. október kl. 16 heldur Tríólógía tónleika í Selinu á Stokkalæk. Tríóið skipa þær Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sólveig Samúelsdóttir mezzósópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Tríólógía mun flytja úrval dúetta eftir tónskáldin, þar á meðal Mädchenlieder eftir Schumann sem ekki er oft flutt hér á landi. Tónleikarnir eru svonefndir landsbyggðartónleikar sem Félag íslenskra tónlistarmanna gengst fyrir með tilstyrk mennta- og menningarmálaráðueytisins. Veitingar verða á tónleikunum og eru miðapantanir í síma 4875512 og 8645870....
Tíminn | 12.09.2011 |
Ritstjórn
Íbúar Hafnar í Hornafirði ráku upp stór augu á fimmtudagsmorgunn í síðustu viku, þegar uppgötvaðist að dyramottur höfðu um nóttina verið lagðar við útidyr hvers íbúðarhúss í bænum. Motturnar voru með áletruninni "Velkomin" en voru ómerktar að öðru leyti. Hverri mottu fylgdi hins vegar bréf frá símafyrirtækinu Vodafone, sem vildi með framtakinu vekja athygli á aukinni þjónustu við bæjarbúa....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, hættir með liðið eftir keppnistímabilið í knattspyrnu í haust. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV-íþróttafélagi. Eyjamenn hafa þegar fundið eftirmann Heimis, en það er fyrrum þjálfari ÍBV og núverandi þjálfari 1. deildarliðs Hauka, Magnús Gylfason. Magnús hefur ávallt haldið sterkum tengslum við ÍBV eftir að hann þjálfaði Eyjaliðið á árunum 2003-2004 en síðara árið endaði ÍBV í 2. sæti deildarinnar....
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Innanríkisráðherra og vegamálastjóri opnuðu á föstudag hinn nýja Bræðratunguveg með brú yfir Hvítá. Með veginum tengjast Bláskógabyggð og Hrunamannahreppur á nýjan hátt og leiðin milli Reykholts og Flúða styttist um 20 km. Vegurinn er 8 m breiður. Brúin Hvítá er 270 m að lengd með tveimur akbrautum auk þess sem 2 m breið göngu/reiðleið er á brúnni. Áætlaður heildarkostnaður vegna verksins er 1.140 m.kr....
Tíminn | 10.09.2011 |
Ritstjórn
Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, ritar athyglisverða grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann m.a. að hópur harðra fylgismanna aðildar að Evrópusambandiu, sem hefur nú skilið við Framsóknarflokkinn, hafi unnið slík skemmdarverk í flokknum að erfitt sé að sætta sig við slíkt. Hann sakar lítinn minnihluta flokksmanna, sem er hlynntur aðild, um rætnar árásir á þá sem eru andvígir aðild....
Tíminn | 08.09.2011 |
Ritstjórn
Rangárþing eystra leggur ákveðið fjármagn á hverju ári til uppbyggingu áfangastaða ferðamanna í sveitarfélaginu. Í sumar var m.a. unnið að uppsetningu á tröppum við Seljalandsfoss og var það stærsta verkefnið sem ráðist var til í ár á þessu sviði. Undanfarin ár hefur verið unnið að því að laga aðgengi í kringum fossinn og eru tröppurnar hluti af því. Verkefnið er einnig styrkt af umhverfissjóði Ferðamálastofu sem leggur 2 milljónir króna í þennan hluta verksins. Uppsetning tappanna tók um 6-7 vikur. ...
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Í dag var haldinn fundur í Vísindamannaráði almannavarna þar sem rætt var um atburði liðinna vikna undir Mýrdalsjökli. Frá því í júlí hefur verið nokkuð aukin jarðskjálftavirkni í Kötluöskjunni. Þessi jarðskjálftavirkni er þó ekki meiri en stundum hefur verið á undanförnum árum. Þá hefur orðið veruleg aukning á jarðhitavirkni í suðaustanverðri öskjunni. GPS mælingar sýna jafnframt að ekki hefur orðið umtalsvert landris innan öskjunnar á síðustu misserum....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Hvolsvelli hafa undanfarna daga fylgst náið með jarðskjálftavirkni í Mýrdalsjökli í samvinnu við vísindamenn Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Ákveðið hefur verið að vísíndamenn fljúgi yfir jökulinn núna síðdegis til þess að skoða aðstæður. Ekki hefur verið talin ástæða til að lýsa yfir háskastigi almannavarna. Vísindamannaráð almannavarna mun hittast á morgun miðvikudaginn 7. september og fara yfir stöðu og þróun mála....
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Bílaumferð um þjóðgarðinn á Þingvöllum hefur aukist gífurlega á þessu ári. Ræður þar miklu tilkoma nýja Lyngdalsheiðarvegarins en nú liggja fyrir umferðarmælingar Vegagerðarinnar það sem af er þessu ári. Þær staðfesta að nýi Lyngdalsheiðarvegurinn er mikil samgöngubót en eykur um leið umferðarálag í þjóðgarðinum. Ætla má að um ein milljón manns fari um veginn vestan við þjóðgarðinn árið 2011 en Vegagerðin gerir ráð fyrir að um 2,6 einstaklingar séu í hverjum bíl að jafnaði....
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Sr. Kristján Valur Ingólfsson hlaut flest atkvæði í kjöri til vígslubiskups í Skálholti. Kjörfundi lauk þann 26. ágúst síðastliðinn og atkvæði voru talin í gær. Á kjörskrá voru 149 manns og greidd voru 142 atkvæði. Sr. Kristján Valur fékk 80 atkvæði og Sr. Sigrún Óskarsdóttir fékk 61 atkvæði. Einn seðill var auður....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Hvolsvelli hafði samband og vildi benda veiðimönnum hreindýra að mikilvægt er, að ef verið er að flytja bráðina milli landshluta þarf að ganga miklu betur frá bráðinni heldur en sést á þeim myndum sem hér fylgja með og voru teknar í umdæmi þeirra. Er þessir veiðimenn stönsuðu við sjoppu á leiðinni lak blóð/blóðvatn úr kerrunni. Slíkt vekur óhug þeirra sem sjá og er einnig óþrifalegt. ...
Tíminn | 01.09.2011 |
Ritstjórn
Hin árlega Kjötsúpuhátíð Rangárþings eystra fer fram núna um helgina 2. - 4. september á Hvolsvelli. Hátíðin er aðeins fyrr á ferðinni í ár en áður hefur verið og góð leið til að byrja haustannir. Hátíðin sem áður hefur verið eingöngu með dagskrá á laugardegi er óðum að færa sig yfir á föstudag, með súpukvöldi, brennu og brekkusöng og harmonikku-fjölskyldudansleik í Hvolnum....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Gríðarleg aðsókn hefur verið í Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi. Skólinn hefur átt erfitt með að taka inn nýja nemendur og einstaka börn hafa verið lengi á biðlista. Innan Tónlistarskólans er um 540 nemendum kennt, sem dreifast nokkuð jafnt yfir alla Árnessýslu. Skólinn hefur ekki fengið hækkun að ráði á kennslukvóta sinn síðan kreppan skall á, en ekki orðið fyrir niðurskurði heldur....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Sunnudaginn 4. september kl. 16 halda þær Ásta María Kjartansdóttir sellóleikari, Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanóleikari og Lilja Guðmundsdóttir sópransöngkona tónleika í Selinu á Stokkalæk. Þær eru allar í tónlistarnámi erlendis. Lilja og Ásta eru einu íslensku nemendurnir í Konservatorium Wien í Austurríki og Ingileif stundar píanónám í Freiburg í Þýskalandi....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Bird Fair er árleg hátíð fuglaskoðara þar sem yfir 20.000 manns koma víðsvegar að úr heiminum til að kynnast því nýjasta í greininni sem sýnendur hafa upp á að bjóða, sem að þessu sinni voru 300 talsins. Íslandsstofa skipulagði á dögunum þátttöku í sýningunni Bird Fair á Englandi sem er stærsta fuglaskoðunarsýning í Evrópu....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Þessa dagana ber vel í veiði í hinum ýmsu ám landsins. Fyrsta maðkahollið byrjaði í Ytri Rangá eftir hádegi í gær, en sú vakt gaf 108 laxa og endaði dagurinn í alls 155 löxum. Í morgun voru 80 laxar komnir á land svo það gera 188 laxar fyrsta daginn í maðkahollinu. Fluguveiðihollin á undan voru að gefa að meðaltali 70 laxa á dag. Á þessu sést að laxinn er sólginn í maðkinn....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn á Selfossi höfðu afskipti af ökumanni bifreiðar vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Ástæða þótti til að gera leit að fíkniefnum í bifreiðinni. Til þess var fenginn fíkniefnahundur og gaf hann vísbendingu um að undir ökumannssæti væru fíkniefni. Í ljós kom að þar fannst dós með smurbætiefni....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Um helgina fór hópur vélhjólamanna inn á friðað svæði við Skógafoss. Þegar lögrelgan á Hvolsvelli kom á staðinn voru vélhjólamennirnir á bak og burt. Vitni voru hins vegar að akstrinum, einnig náðust niður skráningarnúmer þessara hjóla og er málið í rannsókn. Óheimilt er með öllu að aka inn að Skógafossi, heldur ber að leggja ökutækjum við bifreiðastæði við tjaldsvæðið á Skógum og ganga að fossinum....
Tíminn | 28.08.2011 |
Ritstjórn
Þann 3. september næstkomandi verður opinn dagur á Laugarvatni í tilefni af aldarafmæli skólans en septembermánuði hefur verið helgaður Menntavísindasviði á afmælisárinu. Farið verður í gönguferð um staðinn þar sem gerðar verða Mullersæfingar á leiðinni og einnig verður boðið upp á námskeið í stafgöngu í samstarfi við ÍSÍ. Einnig verður boðið upp á sundleikfimi í Heilsulindinni Fontana (gömlu gufunni á Laugarvatni) og sá staður býður tveir-fyrir-einn í heilsulindina. Lindin – Bistro verður svo með tilboð á heilsuréttum og –drykkjum...
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Vegna nýs kjarasamnings við félagsmenn í Félagi leikskólakennara þarf Sveitarfélagið Árborg líklega að hækka leikskólagjöldin sín. Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs Árborgar, segist ekki geta útilokað hækkun. "Einhverjar hækkanir eru ekki útilokaðar en stefnt er að því að fullnýta leikskólarýmin og forðast fækkun leikskólarýma í leikskólunum í Árborg“, sagði Eyþór í samtali við DFS (Dagskráin, fréttablað Suðurlands)....
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Upplýsingamiðstöðin og Pósturinn í Hveragerði hefur nú opnað á nýjum stað í Verslunarmiðstöðinni við Sunnumörk. Margir viðskiptavinir hafa undanfarið gripið í tómt þegar komið er á gamla staðinn og fólk jafnvel óttast að þjónustan væri horfin af vettvangi. Slíkt er þó alls ekki raunin heldur hefur Upplýsingamiðstöðin fengið allt annað og betra yfirbragð....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Eins metra langur urriði veiddist nýverið í Minnivallalæk er holl erlendra veiðimanna var þar á ferð. Sannaðist þarna að lengd og þyngd haldast ekki alltaf í hendur, því fiskurinn vóg þrátt fyrir allt „aðeins“ 7 kg, eða 14 pund! Frá þessu var greint í fréttatilkynningu frá Strengjum, leigutaka Minnivallalækjar. ...
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Viðey í Þjórsá verður friðlýst í dag, miðvikudaginn 24. ágúst, að ósk landeigenda. Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, mun undirrita friðlýsinguna í umhverfisráðuneytinu klukkan 15. Eyjan er 3,37 ha að stærð og verður friðlýst sem friðland. Með friðlýsingu Viðeyjar í Þjórsá er verið að styrkja líffræðilega fjölbreytni vistgerða og vistkerfa svæðisins með því að vernda tegundir plantna og annarra lífvera ásamt erfðaauðlindum sem tegundirnar búa yfir og búsvæði þeirra....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sólheima í Grímsnesi gegn íslenska ríkinu til Hæstaréttar. Ráðherra kynnti ákvörðunina á fundi ríkisstjórnar í dag. Sólheimar höfðuðu málið vegna 4% skerðingar fjárframlags til stofnunarinnar árið 2009. Krafist var viðurkenningar á því að skerðingin væri ólögmæt og til vara að um væri að ræða vanefnd þjónustusamnings ríkisins við Sólheima....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Töluvert meira var að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið, en vikuna þar á undan. Lögreglan þurfti að sinna ýmsum útköllum vegna ölvunarástands. Um var að ræða ágrening milli aðila, bæði í heimahúsum og á skemmtistöðum bæjarins....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Selfossi reyndi að stöva bíl á Biskupstungnabraut við Laugarvatnsveg vegna gruns um aðild að innbroti í sumarbústað við Úthlíð í liðinni viku. Bílstjórinn virti ekki stöðvunarmerki lögreglu heldur ók áfram áleiðis vestur Biskupstungnabraut, þaðan norður Þingvallaveg, síðan eftir Efri Grafningsvegi og loks um Nesjavallaleið en lenti út af vegi við lokun lögreglu skammt frá Suðurlandsvegi....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Á síðsta fundi bæjarráðs Hornafjarðar kynntu starfsmenn KPMG, þeir Flosi Eiríksson og Sigurjón Örn Arnason, niðurstöður sínur um afleiðingar af minna frumvarpi um fiskveiðistjórnun 70/2011. Helstu niðurstöður KPMG um áhrif minna frumvarpsins á Hornafjörð eru að veiðheimildir dragast saman sem nemur 581 þorskígildistonni sem er um 2,3% af heildaraflamarki á staðnum. Starfsmenn KPMG upplýstu að von væri á niðurstöðum um áhrif stærra frumvarpsins á næstu dögum....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Hin árlega flugeldasýning á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 27. ágúst klukkan ellefu. Upplýstir jakar og stórkostleg flugeldasýning í magnaðri umgjörð náttúrunnar skapa einstaka upplifun og mæta hundruð manna á hverju ári til að njóta sýningarinnar. Aðgangseyrir er 1000 krónur og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Allur ágóði rennur til Björgunarsveitar Hornafjarðar sem heldur utan um sýninguna.
...
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Vatnsafls- og jarðhitasvæði á Íslandi hafa nú verið flokkuð í þrjá flokka; nýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Tillaga að þingsályktunartillögu um vernd og nýtingu náttúrusvæða á Íslandi var kynnt í morgun. Tillagan fer nú í tólf vikna opið umsagnarferli, áður en endanleg þingsályktunartillaga verður lögð fyrir Alþingi. Búlandsvirkjun í Skaftártungu er flokkuð í biðflokk en gefið er hins vegar grænt ljós á virkjanir í Þjórsá....
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Selið á Stokkalæk er tónlistarsetur sem staðið hefur fyrir fjölmörgum tónleikum í allt sumar og í þessari viku eru tvennir tónleikar á dagskrá. Fimmtudaginn 11. ágúst munu þær Agnes Þorsteins sópran og Agnes Löve píanóleikari flytja tónlist eftir íslenska og erlenda höfunda af ýmsu tagi, ljóðatónlist og aríur meðal annars eftir Brahms, Schubert, Mozart og Puccini. Laugardaginn 13. ágúst klukkan 16 munu þær Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo píanóleikari flyta verk fyrir píanó og fiðlu, einleiksfiðlu eftir Tchaikovsky og Ysaye...
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Bæjarráð Árborgar vill að nýtt fangelsi verði byggt á Litla Hrauni að því er fram kemur í ályktun sem samþykkt var á fundi bæjarráðs þann 4. ágúst síðastliðinn. Í ályktun sinni telur bæjarráð upp kosti þess að byggja nýtt fangelsi á Litla Hrauni. Starfsemi þar sé gróin og í góðri sátt við umhverfi sitt. Að efla starfsemina þar sé bæði fljótlegasta og hagkvæmasta leiðin til að leysa með skjótum hætti brýta þörf fyrir aukið fangelsisrými í landinu en yfirvöld í Árborg hafa boðist til þess að fella niður öll gjöld vegna byggingarinnar. Flestir ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Tékkneski langferðabíllinn sem sökk ofan í Blautulón með fjölda tékkneskra ferðamanna í gær er kominn á þurrt. Myndirnar eru teknar af Sóldísi Helgu Sigurgeirsdóttur úr Flugbjörgunarsveitinni Hellu sem er á hálendisvakt björgunarsveita að Fjallabaki. Belgir voru bundnir við bílinn og blásnir upp þannig að bíllinn lyftist upp á yfirborðið og síðan var hann dreginn upp á land....
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
"Í undurfagurri umgjörð náttúru Kirkjubæjarklausturs og nágrennis, þar sem grænkan sigrast nú á öskunni, mun hin árlega tónlistarhátíð Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri bjóða upp á sannkallaða tónlistarveislu helgina 13. og 14. ágúst 2011" segir í frétt á vefsíðu Kirkjubæjarklausturs. Á kammertónleikunum koma meðal fram Garðar Thór Cortes tenór, Þóra Einarsdóttir sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran Krystyna Cortes píanóleikari, spænski gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui og lettneski píanóvirtúósinn ...
Tíminn | 09.08.2011 |
Ritstjórn
Unnur Stefánsdóttir framkvæmdastjóri lést á líknardeild Landspítalans í gær eftir stutta legu. Unnur fæddist hinn 18. janúar 1951 í Vorsabæ í Gaulverjahreppi. Foreldrar hennar voru Guðfinna Guðmundsdóttir húsmóðir og Stefán Jasonarson bóndi. Unnur starfaði um árabil innan Framsóknarflokksins og var meðal annars formaður Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, og varaformaður og síðar formaður Landssambands framsóknarkvenna...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Rétt fyrir klukkan 09:00 í morgun kom erlend kona, búsett á Íslandi, að máli við hálendisvakt björgunarsveita í Landmannalaugum og sagði fjögurra ára dóttur sína vera týnda á svæðinu. Fjölskyldan var búin að leita barnsins í u.þ.b. hálfa klukkustund þegar björgunarsveitin var kölluð til. ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Í liðinni viku voru 23 kærðir fyrir of hraðann akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Tveir þeirra óku það hratt að þeir verða sviptir ökurétti, annar á 149 km/klst hraða og sætir eins mánaðar sviptingu en hinn á 154 km/klst hraða og sætir á tveggja mánaða sviptingu. Álagðar sektir vegna hraðakstursbrota í liðinni viku nema um 1.100 þúsundum króna. ...
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Á fimmta tímanum í dag kom tilkynning til 112 um erlenda ferðamenn sem höfðu lent í vandræðum í á. Þeir væru komnir upp á land, blautir og kaldir.
Talsverðan tíma tók að fá viðeigandi upplýsingar, nákvæma staðsetningu og atburð. Hálendisgæsla Landsbjargar var send áleiðis en vísbendingar voru um að þetta væri á svæðinu við Fjallabaksleið. Loks kom í ljós að þetta var á leiðinni inn að Langasjó, við Blautulón en þar hafði rúta með 22 um borð farið út í lónið og á kaf....
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Á hverju ári er unnið mikið verk við að endurgera og viðhalda stígum inn í Þórsmörk. Þar hafa ferðaþjónustuaðilar og ferðafélögin unnið mikið verk í samstarfi við sveitarfélagið, Skógrækt ríkisins, Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun ofl. Um helgian er von á þyrlu Landhelgisgæslunnar inn í Goðaland til að flytja upp hrís, kurl og timbur til að laga stíga í Foldum, því ótækt er að koma efni til stígaviðgerðar með öðru móti....
Tíminn | 06.08.2011 |
Ritstjórn
Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í morgun mann sem setið hefur í gæsluvarðhaldi grunaður um nauðgun í Vestmanneyjum 31. júlí s.l. í áframhaldandi gæsluvarðhald til kl. 14:00 2. september 2011. Úrskurðurinn byggir á 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Áfram er unnið að rannsókn málsins og verða frekari upplýsingar um gang hennar ekki veittar að sinni, að sögn lögreglu....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Það hefur líklega farið fram hjá fáum að sumarið í ár hefur verið frekar þurrt og hefur það valdið skorti á neysluvatni í Flóahreppi á Suðurlandi. Þetta kemur fram í Áveitunni, fréttabréfi Flóahrepps, sem gefið er út af ungmennafélögum hreppsins: Baldri, Samhygð og Vöku. Íbúar hreppsins hafa þó ekki fundið fyrir skorti því vatni hefur verið dælt nánast stöðugt frá sveitarfélaginu Árborg í miðlunartank við Ruddakrók í allt sumar. Fyrirhugað er ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
"Að halda því fram Eyjamenn velji til að stjórna hátíðinni (Þjóðhátíðinni), menn sem stjórnist af gróðasjónarmiðum, styðji nauðgunarmenningu og eru skjól fyrir kynferðisbrotamenn, er óráðshjal." Þetta segir Páll Scheving, formaður Þjóðhátíðarnefndar, í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér. "Eyjamenn leiða dætur sínar í Herjólfsdal. Þeir eru ekki að leiða þær í gin ljónsins. Allt kapp er lagt á að tryggja öryggi gesta. Öryggisþátturinn er í stöðugri þróun og endurskoðun." Páll ítrekar að gerendur nauðguna beri einir ábyrgð á ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Gistinætur á hótelum á Íslandi í júní síðastliðnum voru 181.000 samanborið við 157.000 í júní 2010 að því er fram kemur í frétt frá Hagstofunni. Á Suðurlandi voru 25.340 gistinætur júní sem er 19% fjölgun samanborið við júní 2010. Það á svo eftir að koma í ljós hvaða áhrif hlaupið í Múlakvísl mun hafa. Gistinætur erlendra gesta voru um 85% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í júní og fjölgaði gistinóttum þeirra um 11% frá fyrra ári. Mikil aukning var á gistinóttum Íslendinga í júní, gistinætur voru ríflega 27 þúsund ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Sumrinu verður fagnað á Selfossi næstu helgi en þá fer þar fram bæjar- og fjölskylduhátíðin Sumar á Selfossi sem nú hefur verið haldin í mörg ár. Stóru hátíðartjaldi verður komið fyrir í miðbæjargarðinum en þar munu íbúar Selfoss fá sér morgunmat saman laugardagsmorgunin þann 6. ágúst milli 9:00 og 11:00. Dagskrá hátíðarinnar mun að mestu fara fram í miðbæjargarðinum en þar verður meðal annars boðið upp á kassaklifur, handverksmarkaði, sýningu á Parkour, Selfosströllið og sérstaka hátíðardagskrá á sviði ...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Norrænir sveitarstjórnarráðherrar halda sinn árlega fund hér á landi þessa dagana. Aðal umræðuefni fundarins eru fjármál sveitarfélaga í kjölfar efnahagshrunsins og kynning á ýmsum verkefnum er snúa að auknu lýðræði og íbúaþátttöku. Þetta efni var tekið upp sérstaklega að frumkvæði Íslendinga. Þá er farið yfir nýjungar í norrænni löggjöf í málefnum sveitarfélaga og fjallað um ýmis önnur málefni sveitarstjórnarstigsins. Fundurinn er haldinn á Suðurlandi og ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Margrét Hannesdóttir lést í gær, 107 ára að aldri. Hún var elsti Sunnlendingurinn og næstelsti Íslendingurinn. Aðeins átta aðrir hafa lifað svo lengi, allt konur. Margrét var fædd 15. júlí 1904, flutti til Reykjavíkur 1928 og giftist Samúel Kristjánssyni sjómanni 1930, en hann lést sumarið 1965, fyrir 46 árum. Margrét bjó á Langholtsveginum þar til í febrúar á þessu ári....
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Um næstu helgi verður tónleikaþrenna í Selinu á Stokkalæk. Þar koma fram þrír ungir tónlistarmenn sem tvímælalaust eiga sér glæsta framtíð í klassískri tónlist og hafa raunar þegar sannað hæfni sína og náð glæsilegum námsárangri bæði hér á landi og erlendis. Með þeim er svo reyndara tónlistarfólk í fremstu röð....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Banaslys varð í dag á heimreið að sumarhúsi í Landsveit í Rangárþingi ytra þegar barn á sjötta aldursári varð undir afturhjóli bifreiðar. Tilkynning barst lögreglu kl. 17:41. Barnið var flutt með þyrlu LHG á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en var úrskurðað látið nokkru eftir komuna þangað....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Seinustu tveir áratugir hafa verið Vestmannaeyingum erfiðir. Íbúum fækkaði, atvinnulífið gekk í gegnum þrengingar, samgöngur voru erfiðar og svartnættið virtist á stundum algert. Þegar upp var staðið var niðurstaðan næstum 20% íbúafækkun. Á seinustu árum hefur samfélagið hinsvegar verið að ná vopnum sínum á ný. Blessunarlega virðist varanlegri viðspyrnu nú vera náð og hefur búsettum Eyjamönnum nú fjölgað 3 ár í röð. Það var því Eyjamönnum öllum mikið gleðiefni þegar íbúi 4.200 fæddist nú fyrir skömmu en lægst fór íbúatalan í rétt rúm 4.000 árið 2007....
Tíminn | 03.08.2011 |
Ritstjórn
Nú er útlit fyrir að almennilegt hlaup geti verið að hefjast úr Eystri-Skaftárkatli en merki um það hafa komið fram á mælum Veðurstofunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Órói hefur mælst á jarðskjálftamælum í kringum Vestanverðan Vatnajökul frá því fljótlega eftir miðnætti í nótt og aur/grugg hefur frá sama tíma aukist mikið á mæli í Skaftá við Sveinstind. Vatn úr Eystri katlinum hefur enn ekki komið fram á mælinum við Sveinstind. Ef af verður, er ekki búist við að hlaupið nái hámarki í byggð fyrr en á föstudag segja ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á þrjár kannabisplöntun við húsleit í íbúð í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar. Húsráðandinn var færður til yfirheyrslu vegna málsins og viðurkenndi aðild að málinu. Talið er að fleiri tengist ræktuninni og er málið í rannsókn....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
"Fáklæddar þær fóru á stjá frúrnar hér í Tungunum. Þá varð skrýtið upplit á ýmsum karlapungunum." Þannig orti Jóhannes Sigmundsson er hann sá dagatal Kvenfélag Biskupstungna 2012. Konurnar hafa nefnilega endurtekið leikinn frá 2010 og gefa út nýtt dagatal fyrir árið 2012. Dagatalið prýðir eins og áður gullfallegar kvenfélagskonur léttklæddar í leik og starfi....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Njálsbrennuhátíð var haldin á Hvolsvelli um helgina og á laugardagskvöld var bærinn á Bergþórshvoli árið 1011 brenndur að viðstöddu fjölmenni. Sviðsett var aðdragandi Njálsbrennu og að endingu var Bergþórshvoll brenndur til grunna en hann hafði verið reistur hjá Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Hátíðin hófst á föstudag og var boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, tónleika, fornmannaíþróttir, þrautir og ýmsan atgang....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum lauk í gærkvöld, en hljómsveitir léku þó fyrir dansi fram undir morgun. Áætlað er að um 14 þúsund manns hafi lagt leið sína í Herjólfsdalinn um liðna helgi. Veðrið var ágætt lengst af, en töluvert rigndi á laugardaginn. Flestir gestir hátíðarinnar fara heim í dag og hafa ferðir Herjólfs verið samkvæmt áætlun. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd frá Þjóðhátíðinni. Þjóðhátíð 2012 verður sett föstudaginn 3. ágúst, fyrir þá sem ætla að mæta aftur að ári....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn á vakt í Vestmanneyjum s.l. nótt handtóku í nótt mann á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað stúlku nóttina áður. Atvikið mun hafa átt sér stað í og við salernisaðstöðu í Herjólfsdal milli kl. 04:00 og 05:00 aðfaranótt sunnudagsins. Stúlkan leitaði til lögreglu um miðjan dag í gær og hófst þá rannsókn lögreglu en stúlkan fór á Neyðarmóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss í gærkvöldi....
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Mikið var að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu nótt Þjóðhátíðar 2011. Fíkniefni fundust, nauðgun er í rannsókn og sérsveitarmenn handóku einn mann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Gestir Þjóðhátíðar eru nú farnir að streyma heim til sín og mun Herjólfur sigla stanslaust næstu tvo sólarhringa. Einnig mun flugfélagið Ernir og Flugfélag Íslands fara fjöldi ferða með farþega frá Eyjum. Lögreglan áætlar að nálægt 14 þúsund manns hafi verið í dalnum í gærkveldi á brekkusöng Árna ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Menningarlífið á Hornafirði hefur blómstrað í sumar og þar hafa verið opnar margar sýningar í sumar en um það er skrifað á vefnum Ríki Vatnajökuls. Þann 24. júní opnaði sýning á verkum Svavars Guðnasonar og hefur hún verið opin á hverjum degi síðan og verður það út sumarið. Tolli opnaði sölusýningu í lok júní í Kartöfluhúsinu var síðasta sýningarhelgi er núna um verslunarmannahelgina.
Hlynur Pálmason var með sýningu í Graðaloftinu á Humarhátíð og var sýningin vinsæl. Á föstudaginn í næstu viku, 5. ágúst, verður hann ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Sveitarfélagið Árborg hefur ráðið M. Sigríði Jakobsdóttur til starfa sem leikskólastjóra við sameinaðan leikskóla Brimvers á Eyrarbakka og Æskukots á Stokkseyri. Sameinaður leikskóli mun taka til starfa þegar sumarfrí enda í ágúst og verður pláss fyrir um 80 börn. Ákvörðun um ráðninguna var tekin að undangengnu opnu ráðningarferli á vegum Capacent, sem mat M. Sigríði vera hæfasta umsækjandann og hefur hún þegar hafið störf. Heilsuleikskólinn Æskukot stóð við Blómsturvelli 5 á Stokkseyri. Hann hóf starfsemi sína 11. október ...
Tíminn | 31.07.2011 |
Ritstjórn
Skemmtanahald á hátíðarsvæðinu í Herjólfsdal fór vel fram síðastliðna nótt. Mun rólegra var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum en nóttina á undan og engin stærri mál komu upp. Reyndar gistu þrír fangageymslu, en það var að þeirra eigin ósk þar sem þeir munu ekki hafa fundið tjaldið sitt að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Átta fíkniefnamál komu upp síðdegis í gær og nótt og er málafjöldi fíkniefnamála á þessari hátíð nú orðin 29 mál sem er svipað og undanfarin ár. Flest málin eru minniháttar, en í einu málinu fann ...
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Um 2.000 manns komu á Þjóðhátíð til Vestmannaeyja í dag og búist er við öðrum eins fjölda á morgun. Það er reiknað með að 14 þúsund gestir verði á Þjóðhátíð á morgun, sunnudag. Lögreglan í Vestmannaeyjum segir hátíðina hafa gengið vel fyrir sig þrátt fyrir 5 líkamsárásir eftir nóttina. Sólin hefur skinið á Þjóðhátíðargesti í Herjólfsdal í dag en áfram er spáð rigningu á sunnanverðu landinu....
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan áætlar að gestir á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum séu 10-11 þúsund. Eitthvað mun bætast við í dag með Herjólfi og flugi og einnig á morgun. Veðurspá fyrir daga þá sem eftir eru að hátíðinni er með þeim hætti að gert er ráð fyrir rigningaskúrum en annars mildu veðri. Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu nótt og þurfti lögregan að sinna hinum ýmsum verkefnum....
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
Á mótssetningu Unglingalandsmótsins á Egilsstöðum í gærkvöldi tilkynnti Helga Guðrún Guðjónsdótir, formaður Ungmennafélags Íslands, hvar Unglingalandsmótin 2013 og 2014 yrðu haldin. Stjórn UMFÍ komast að þeirri ákvörðun að mótið 2013 færi fram á Hornafirði og 2014 yrði mótið á Sauðárkróki....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Umhverfisráðuneytið hefur staðfest stækkun Vatnajökulsþjóðgarð. Í því felst að búið er að friðlýsa Langasjó og nágrenni og hluta Eldgjár og nágrennis. Innan þeirra svæða sem reglugerðin tekur til eru náttúruminjar sem taldar eru hafa mikið gildi á heimsvísu, auk hins háa útivistar-, fræðslu- og vísindagildis þeirra. Stækkun þjóðgarðsins tekur til tveggja svæða á Náttúruverndaráætlun 2009-2013, samtals um 420 km2. Þegar samkomulag náðist við Skaftárhrepp um stækkun þjóðgarðsins sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra þetta ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Flugbjörgunarsveitin á Hellu hefur undanfarnar vikur verið við gæslustörf fyrir Íslenska fyrirtækið True North á Dómadalsleið, vegna kvikmyndatöku sem þar hefur verið í gangi. Það er breski leikstjórinn Ridley Scott sem þar var að taka upp myndina Prometheus en hann gerði einnig Alien myndirnar. Sveitin hefur verið þarna alla daga frá 11. júlí með 8 manns á dag sem hafa skilað yfir 1.400 klst í vinnu við að gæta þess að ferðamenn sem og aðrir villist ekki fyrir framan myndatökuvélarnar....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Vistmaður á Sólheimum sem var nýkominn heim eftir aðgerð fékk óvænta heimsókn kvöld eitt fyrr í vikunni en skyndilega stóð hæna á miðju stofugólfinu sem hafði laumað sér inn í gegnum svalahurðina.
Leifur reyndi að elta hænuna og fanga hana en það gekk frekar, sérstaklega vegna þess að Leifur er með gifs á fæti. "Upp hófst stuttur og snarpur eltingaleikur sem Leifur tapaði örugglega enda með gifs á öðrum fæti, hefur sjálfsagt hlaupið í hringi" segir á vefsíðu Sólheima þar sem sagt er frá atvikinu." Leifur hringdi á vin sinn og ...
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt upplýsingum frá vatnamælingamönnum Veðurstofu Íslands er hlaup að hefjast í Skaftá. Skaftá hljóp einnig síðasta sumar. Í Skaftárhlaupum getur vatn farið yfir Skaftártunguveg við Hvamm og vegurinn í Skaftárdal lokast, fyrir kemur að vatn fari yfir veginn við Hólaskjól á Fjallabaksleið nyrðri....
Tíminn | 28.07.2011 |
Ritstjórn
Á slaginu klukkan hálf sex í gær fengu Eyjamenn að setja niður merkingar fyrir þjóðhátíðartjöldin (hvítu) í Herjólfsdal og var spennan mikil áður en hlaupið var af stað. Settu menn sig í stellingar og sumir voru nánast með svipaða einbeitingu og spretthlauparar á Ólympíuleikunum. Um leið og klukkan sló 17:30 þá þustu menn og konur af stað með merkin sín og byrjuðu að merkja sér svæði. Vel gekk að koma merkingum fyrir og skemmtu menn sér konunglega við þetta....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Í tengslum við árlegt Kotmót Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi í Kirkjulækjarkoti, Fljótshlíð um Verslunarmannahelgina, þá verður hið vinsæla fjölskyldukarnival flutt frá mótsstað inn á Hvolsvöll og öllum bæjarbúum ásamt gestum og gangandi boðið að taka þátt dagskránni. Karnivalið verður haldið á túninu bak við Landsbankann laugardaginn 30. Júlí kl. 14:00 – 17:00....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Tungljurt, járnsmiður og silfurrani eru meðal nýrra landnema í Surtsey og sjávarrof meitlar stöðugt af eynni þannig að talsverðar breytingar hafa orðið á norðurtanga eyjarinnar síðast liðið ár. Þetta er meðal niðurstaðna vísindamanna Náttúrufræðistofnunar sem fóru í sinn árlega rannsóknaleiðangur dagana 18.-21. júlí s.l. Gerðar voru rannsóknir á jarðfræði og lífríki eyjarinnar....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Þeir Elvar Örn Jónsson, Hergeir Grímsson og Ómar Ingi Magnússon fóru á dögunum í handboltaskóla Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi og er sagt frá ævintýrum þeirra á umfs.is. Æft var nokkrum sinnum á dag í fimm daga auk þess sem fundir voru utan æfinga og annað í þeim dúr. Þá komu leikmenn frá Rhein-Neckar í heimsókn og voru spurðir spjörunum úr. Ferðin var vel heppnuð og gengu æfingarnar vel. Mikið var farið í varnarleik auk þess sem hreyfing án bolta og fleira í sóknarleik var tekið fyrir. Okkar menn þóttu standa sig vel og fengu ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Norðurflug býður upp á þyrluflug á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og er flogið frá Bakka. Norðurflug verður með flug frá Bakka fimmtudaginn 28. júlí frá kl. 16.00 til 21.00 og á föstudeginum 29. júlí frá kl. 12.00 til 20.00. Síðan hefst flug frá Vestmannaeyjum á mánudeginum 1. ágúst kl. 08.00 og flogið er til kl. 21.00. Verðið á þessum ferðum er 16.000 kr aðra leið. ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan í Vestmannaeyjum verður með öflugt eftirlit fyrir og um Þjóðhátíðina sem m.a. felur í sér eftirlit með hugsanlegu fíkniefnamisferli, umferð og eftirliti er varðar velferð ungmenna. Í tilefni af því vill lögreglan minna foreldra og forráðamenn barna á að útivistareglurnar eru í gildi þessa helgi eins og aðra daga ársins. Þá er rétt að benda á að ungmenni yngri en 18 ára eiga ekkert erindi á útihátíð án þess að vera í fylgd með fullorðnum....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Leyfi hefur fengist til að fjölga tímabundið farþegum um borð í Herjólfi á fimmtudegi fyrir Þjóðhátíð, föstudegi og á mánudegi og þriðjudegi eftir Þjóðhátíð. Fjölgun þessi þýðir um 130 farþega í ferð. Athygli er vakin á því að frá og með deginum í dag mun afgreiðsla Herjólfs hvorki breyta né endurgreiðir miða frá miðvikudeginum 27. júlí til miðvikudags 3. ágúst. ...
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Laugardaginn 30. júlí kl. 16 halda þau Hrafnhildur Árnadóttir sópran og Hákon Bjarnason píanóleikari tónleika í Selinu á Stokkalæk. Á efnisskránni er söng- og píanótónlist eftir Franz Liszt, Francis Poulenc og Hugo Wolf. Fluttir verða tveir stuttir sönglagaflokkar eftir Poulenc, La courte paille við hnyttin ljóð Maurice Carѐme og Fiançailles pour rire sem Poulenc vann í samvinnu við skáldkonuna Louise de Vilmorin....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Eftir rólega byrjun hefur veiði í Veiðivötnum vera að aukast samanborið við undanfarin ár og nú er veiðin vel yfir meðaltali á þessum tíma sumars. Þetta kemur fram á veidivotn.is. Í 5. viku veiddust 2250 fiskar. Mest veiddist í Litlasjó, 504 fiskar, og er hann allur að koma til samhliða hækkandi vatnshita. Langavatn, Nýjavatn og Skyggnisvatn gáfu einnig góða veiði. Heildarveiðin í Veiðivötnum er komin upp í 12953 fiska sem verður að teljast mjög góð veiði. Hæst meðalþyngd er í Ónefndavatni og Grænavatni (3,0-3,5 pd). Einnig ...
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Færeysk stórhátíð verður haldin á Stokkseyri dagana 29. júlí til 1. ágúst næstkomandi. Þar verður boðið upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Margt verður uppi á teningnum frá fimmtudegi til mánudags, söfn, sýningar og afþreying verða opin alla helgina, ýmiss tilboð verða í gangi auk þess sem aðgangur er ókeypis á fjölda viðburða m.a. diskótek, kajakakeppni, dorgveiðikeppni, brennu ífjörunni, fjöldasöng með Labba og flugeldasýningu svo fátt eitt sé nefnt....
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Kvenfélag Stokkseyrar hefur fært sundlauginni á Stokkseyri leikföng að andvirði 150.000 kr. í sumar en auk leikfanganna hefur félagið gefið lauginni teppi og tvo bala. Um 100 gestir hafa sótt sundlaug Stokkseyrar að meðaltali á hverjum degi í sumar að því er fram kemur á stokkseyri.is. 25 konur eru í Kvenfélagi Stokkseyrar þar sem aðalfjáröflun félagsins eru erfisdrykkjur og sjómannadagskaffi. Meðfylgjandi mynd var tekin af þeim Ásrúnu Ásgeirsdóttur, formanni félagsins (t.v.) og Huldu Ósk Guðmundsdóttur, gjaldkera þegar þær...
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Eden í Hveragerði brann til kaldra kola í gærnótt og í gærmorgun var búið að stofna Facebook síðu til minningar um apann í Eden sem er mörgum kær. Like-um á síðuna hefur fjölgað hratt. Þegar blaðamaður skoðaði hana fyrst í gær voru þar yfir 3000 like en nú hefur sú tala tvöfaldast eru nú 6.142 búnir að minnast apans Bóbó á Facebook. Hér að neðan eru nokkrar kveðjur. "Apinn í Eden hefur skemmt öllum sem komið hafa í Eden í áratugi" segir á síðunni og á vegg hennar hafa margir skrifað kveður og minningar um apann. "Veit ekki hversu ...
Tíminn | 22.07.2011 |
Ritstjórn
Veitingaskálinn Eden í Hveragerði brann til kaldra kola í nótt. Eldurinn kom upp laust fyrir miðnætti í gærkvöld og börðust um 40 slökkviliðsmenn við eldinn. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segist vonast til að Eden verði endurbyggð, enda hefur þessi merka stofnun einkennt Hveragerði um áraraðir....
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
"Rómantíkin sem hefur fylgt þjóðhátíð er hægt og rólega að hverfa fyrir poppmenningu og vörumerkjavæðingu stórfyrirtækja á kostnað hefða og gamalla siða í Dalnum. Eyjamenn eru höfðingjar heim að sækja, en að mínu áliti þarf að staldra aðeins við." Þetta ritar Hlynur Guðlaugsson, brottfluttur Vestmannaeyjungur sem ber sterkar taugar til síns heimabæjar. Í pistli sem hann birtir á Eyjafréttum.is skrifar hann um þróun þjóðhátíðar og biður hann Vestmannaeyjinga að staldra aðeins við og íhuga vel hvernig það vilji hafa hátíðina. "Sjálfur...
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Undanfarið hefur verið unnið að gróðursetningu í 20 ha. skóg í landi Stóra Kollabæjar í Fljótshlíð. Er þessi skógur gróðursettur í minningu Teits Sveinssonar frá Grjótá í Fljótshlíð (1917-2010) en hann gaf Skógræktarfélagi Rangæinga fé fyrir nokkrum árum sem skyldi nýtast til að rækta upp skóg í Fljótshlíð. Ákveðið var í haust að skógurinn yrði gróðursettur í landi Skógræktar ríkisins í Kollabæ og hefur verið unnið að undirbúningi, svo sem. jarðvinnslu og vegagerð í vetur. Í byrjun júlí var hafist handa við gróðursetningu og hafa verktakar ...
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Í gærkvöldi og nótt hefur leiðni aukist í Múlakvísl og Veðurstofan og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa fylgst náið með ástandinu á svæðinu. Rétt fyrir miðnætti varð vart við óróa í Mýrdalsjökli um leið og leiðni óx hraðar en áður. Samband við vatnshæðamæli við Léreftshöfuð rofnaði í um klukkustund. Í öryggisskyni var ákveðið að loka þjóðveginum um Mýrdalssand meðan ástandið var kannað. Upp úr klukkan 1:00 komst samband aftur á við vatnshæðamæli og var þá talið óhætt að opna veginn aftur að svo stöddu....
Tíminn | 20.07.2011 |
Ritstjórn
Góð þátttaka er á 85. Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum sem verður haldið á nýjum velli á Selfossi um næstkomandi helgi. Alls eru rúmlega 180 keppendur skráðir til leiks frá 14 félögum og samböndum. Skráningar eru samtals um 370 og því keppa allir í tveimur greinum að meðaltali, auk boðhlaupa. Fjölmennust verður sveit ÍR-inga á mótinu, en þeir eru skráðir með 52 keppendur í samtals 85 greinar. ...
Tíminn | 20.07.2011 |
Ritstjórn
"Bæjarráð Hornafjarðar þakkar Vegagerðinni fyrir vasklega framgöngu í smíði brúar yfir Múlakvís"” segir ályktun sem bæjarráð Hornafjarðar samþykkti síðastliðinn mánudag þar sem fjallað var meðal annars um Múlakvísl. Jafnframt þakkar bæjarráð bílaleigum, björgunarsveitum, Vegagerðinni og fleiri aðilum fyrir vinnu þeirra við ferjun bíla og manna yfir Múlakvísl. Ljóst er að allar aðgerðir sem ráðist var í leiddu til þess að tjón ferðaþjónustufyrirtækja var minna en óttast var í fyrstu. Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að unnin verði ...
Tíminn | 20.07.2011 |
Ritstjórn
Guðný Erla Guðnadóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans á Höfn í Hornafirði. Guðný Erla er verkfræðingur og hefur meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur undanfarið unnið sem Lána- og viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Íslandsbanka á Ísafirði. Guðný var einn 10 umsækjenda um stöðuna sem auglýst var í júní, en 4 konur og 6 karlar sóttu um....
Tíminn | 19.07.2011 |
Ritstjórn
Í gær, mánudaginn 18. júlí, fóru vísindamenn í þyrluflug með Landhelgisgæslunni yfir Vatnajökul og Mýrdalsjökul. Markmið flugsins var þríþætt. Farið var með GPS mæli á Vatnajökul nálægt Hamrinum til að fylgjast nánar með hreyfingum á jöklinum, en í síðasta vísindaflugi kom fram að þar hafði myndast nýtt jarðhitasvæði. Þá var flogið yfir Mýrdalsjökul til að fylgjast með sigkötlum sem mynduðust í hlaupinu 9. júli síðastliðinn auk þess sem skoðað var hvort breytingar væru á yfirborði jökulsins eftir jarðskjálftann aðfararnótt mánudags...
Tíminn | 19.07.2011 |
Ritstjórn
Eystri Rangá hrökk svo sannarlega í gang í fyrrakvöld eftir nokkra rólega daga í ánni. Áin hefur verið afar lituð undanfarið en hún náði að hreinsa sig á sunnudag. Einungis tveir laxar komu á land á morgunvaktinni í á sunnudag, en kvöldvaktin skilaði 20 löxum á land. Fyrir þá sem þekkja til í Eystri Rangá gaf svæði sex best eða rúman helming, en svæði eitt og fjögur voru einnig að skila sínu....
Tíminn | 18.07.2011 |
Ritstjórn
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun eru nú í fullum gangi, en tæplega 200 manns starfa á svæðinu í sumar. Ístak vinnur að verkinu sem felst í meginatriðum í gangnagerð, byggingu stíflu og gerð stöðvarhúss fyrir Landsvirkjun. Gert er ráð fyrir að um 200 manns muni starfa á svæðinu að jafnaði, utan aukningar sumarið 2013 en þá verði um 300 manns að störfum....
Tíminn | 18.07.2011 |
Ritstjórn
Fyrir nokkrum árum voru grunnskólarnir Sandvíkurskóli og Sólvallaskóli á Selfossi sameinaðir og hlaut nýji skólinn nafnið Vallaskóli. Nú hefur verið ákveðið að flytja starfsemi skólans alveg yfir á Sólvelli og þá er húsnæði gamla Sandvíkurskólans ónotað og hafa örlög þess ekki enn verið ákveðin. Bæjarráð Árborgar ákvað að stofna einkahlutafélag sem kaupir húsnæðið af sveitarfélaginu en bókfært verð þess er tæpar 107 milljónir króna og er húsnæðið um þrjú þúsund fermetrar. Á félagið að sjá um útleigu og rekstur...
Tíminn | 18.07.2011 |
Ritstjórn
Mikið var um of hraðann akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku. 27 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðann akstur, 21 karl og 6 konur, og sá sem hraðast fór var á 155 km. hraða á klst.
Einn þessara 27 ökumanna var var á 102 km/klst á leið sinni yfir brúna yfir Ytri Rangá við Hellu en þar er 50 km/klst. Annar var á 121 km/klst hraða á 70 km/klst kafla sem er á Suðurlandsvegi frá Lyngási að brekkubrún við Trésmiðjuna Rangá, skammt frá Hellu. Sá sem hraðast ók var á 155 km/klst hraða við Ytri Mókeldu austan við ...
Tíminn | 18.07.2011 |
Ritstjórn
Örnefnaskilti var afhjúpað við Strandarkirkju sl. laugardag. Um er að ræða skilti þar sem gefur að líta örnefnakort af Selvoginum sem Ómar Smári Ármannsson, lögreglumaður og áhugamaður um fornleifar hefur teiknað. Ómar Smári fékk dygga aðstoð heimamanna við gerð kortsins og ómetanleg hefur verið aðstoð þeirra Þórðar Sveinssonar, Þórarins Snorrasonar og Kristófers Bjarnasonar heitins....
Tíminn | 17.07.2011 |
Ritstjórn
Feðgarnir, sem björgunarsveitarmenn úr Árnessýslu hafa leitað síðdegis og í kvöld við Klukkuskarð fyrir ofan Laugarvatn, eru fundnir heilir á húfi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru feðgarnir rammviltir, en þeir fundust í Hrútadal undir Hrútatindi, um 3 kílómetrum frá bíl sínum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar mun líklega fljúga með mennina að bílnum....
Tíminn | 17.07.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru að leita að þremur mönnum, feðgum, sem voru á göngu í Klukkuskarði, sem er norður af Laugarvatni. Talið er að þeir hafi lagt af stað í gær en höfðu ekki skilað sér heim í gærkvöldi þegar aðstandendur fóru að grenslast fyrir um þá....
Tíminn | 16.07.2011 |
Ritstjórn
Í dag var farið í vísindamannaflug á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra yfir Mýrdalsjökul. Markmið flugsins var að afla upplýsinga ástand jökulsins og bera þær saman við upplýsingar sem aflað var í flugi þann 11. júlí síðastliðinn. Eftir flugið í dag er ljóst að engar umtalsverðar breytingar hafa orðið á jöklinum. Leysingavatn er í dýpsta katlinum. Þetta vatn er eðlileg afleiðing sólbráðar af yfirborði jökulsins og stafar ekki af óvenjulegri jarðhitavirkni undir jöklinum....
Tíminn | 16.07.2011 |
Ritstjórn
Brúarvinnuflokkar, verktakar sem komið hafa að verkinu, björgunarsveitarmenn og aðrir í ferjuflutningum gengu fylktu liði yfir hina nýju brú yfir Múlakvísl rétt yfir tólf í dag laugardag. Einungis einni vikur frá því að hlaup hreif brúna frá 1990 með sér og einungis einni viku eftir að brúarsérftæðingar Vegagerðarinnar ákváðu með hvaða hætti yrði framkvæmt, og hvernig brúin yrði, hvar hún yrði o.s.frv. Það fór að nokkru eftir því efni sem til var í fórum Vegagerðarinnar. Niðurstaðan er 156 metra löng stálbitabrú, reist á ...
Tíminn | 16.07.2011 |
Ritstjórn
Seinkun verður á áætlun Herjólfs milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar í dag, laugardag 16. júní. Viðgerð hefur staðið yfir í alla nótt á stefnisloku Herjólfs og ekki lokið fyrr en nú í morgunsárið og því verður að seinka áætlun í dag. Allar ferðir dagsins seinka því um 2 klukkustundir. Farþegar eru hvattir til að fylgjast með frekari tilkynningum í dag á heimasíðu Herjólfs....
Tíminn | 15.07.2011 |
Ritstjórn
Vatni var hleypt undir hina nýju bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl klukkan 17 í dag og á meðan verður hlé á flutningum á fólki og bílum yfir ána. Þegar séð verður hvernig áin hagar sér í nýjum farvegi verður nýtt vað útbúið seint í kvöld og flutningar gætu þá hafist á ný. Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar ljúka sjálfri brúarsmíðinni í dag og eru síðustu handtökin við að setja upp vegrið og aka grjóti og möl í varnargarða....
Tíminn | 15.07.2011 |
Ritstjórn
Siglingamálastofnun svarar á heimasíðu sinni grein í Morgunblaðinu í dag þar sem forstjóri Björgunar hafði uppi stór orð um Landeyjahöfn. Að hans sögn á höfnin að vera hættuleg og kostnaðarsamt að hafa hana opna að vetrarlagi. "Svipuð sjónarmið heyrðust vissulega í vetur þegar aðstæður í Landeyjahöfn voru erfiðar, mikið af gosefnum úr Eyjafjallajökli hafði borist fyrir höfnina en veður voru of slæm fyrir dýpkunarskip til athafna. ...
Tíminn | 15.07.2011 |
Ritstjórn
Á næsta skólaári verða 26 bekkjardeildir í Vallaskóla og nemendur um 550 talsins og eru stjórnendur skólans ánægðir með að nú skuli vera að nást jafnvægi í nemendafjölda en þegar mest var voru 950 nemendur í skólanum sem þótti talsvert of mikið. Næsta vetur verða miklar breytingar á húsnæðsmálum. Vallaskóli varð til þegar Sandvíkurskóli og Sólvallaskóli voru sameinaðir. Nú verður öll starfsemi skólans flutt yfir á Sólvelli og verður hús sem áður var safnhús og félagsmiðstöð nýtt til að kenna 1. til 3. bekk. "Eftir ...
Tíminn | 15.07.2011 |
Ritstjórn
Brúarsmíðin við Múlakvísl hefur gengið það vel að nú er reiknað með að hægt verði að hleypa umferð á brúna á laugardag eða í síðasta lagi á sunnudag. Eftir að búið verður að veita ánni undir nýju bráðabrigðabrúna, sem gert verður síðdegis í dag föstudag eða kl. 17:00, verður staðan metin með tilliti til þess hvenær hægt verður að hleypa umferð á brúna og opna þar með Hringveginn að nýju.
Tímasetningar á þessari opnun verða ekki endanlegar fyrr en á laugardagsmorgun. Nauðsynlegt verður að gera hlé á ferjuflutningum...
Tíminn | 14.07.2011 |
Ritstjórn
Þann 11 júli var um 175 tonnum af makríl og smá síld landað úr Sigurbjörgu ÓF 1 í Þorlákshöfn. Skipið hafði verið við veiðar í 10 daga og var um hlutalöndun að ræða og var haldið út á sjó á ný eftir löndun.
Það eru 26 menn í áhöfn á Sigurbjörgu ÓF sem er frystitogari. Skipsstjórar eru þeir Villhjálmur Sigurðsson og Friðþjófur Jónsson. Skipið var smíðað 1987, er 2.700 hestöfl og er 893 brúttótonn...
Tíminn | 14.07.2011 |
Ritstjórn
Maðurinn sem hefur verið týndur upp á Fimmvörðuhálsi fannst í gærkvöldi við Steinholtsá sem er rétt norðan við Eyjafjallajökul. Björgunarsveitarmenn fundu manninn sem var orðinn frekar þrekaður eftir rúmlega sólarhrings göngu. Maðurinn var fluttur með björgunarsveitarbíl til byggða. Í gær leituðu að honum um 60 björgunarsveitarmenn, hundar og þyrla. Maðurinn hafði ekki getað gefið upp staðsetningu og gat ekki látið vita af sér áfram að öllum líkindum vegna þess að sími hans var rafmagnslaus...
Tíminn | 12.07.2011 |
Ritstjórn
Hlaupið í Múlakvísl hefur margskonar áhrif og hefur gert það að verkum að humarafla sem landað hefur verið í Þorlákshöfn hefur verið ekið norðurleiðina til Hafnar í Hornarfirði. Frá þessu er greint á Fiskifréttir.is. Ásgeir Gunnarsson, útgerðarstjóri, hjá Skinney Þinganes segir að enn sem komið er séu þeir að meta stöðuna. "Við höfum sent eina löndun norðurleiðina en ef suðurleiðin verður lokuð í tvær eða þrjár vikur eins og talað er um tökum við bátana bara heim um miðja vikuna og setjum þá á heimamið. Bátarnir eiga eftir að veiða ...
Tíminn | 12.07.2011 |
Ritstjórn
Það er Páll Óskar sem á Þjóðhátíðarlagið í ár og er það danslag eins og Palla er einum lagið sem ber heitið La Dolce Vita. Þjóðhátíðarlög skipa sérstakan sess í hugum þjóðarinnar. Þeirra er jafnan beðið með mikilli eftirvæntingu og verða oftast mjög vinsæl og mikið spiluð en jafnan umdeild því það er aldrei hægt að gera öllum til geðs. Þetta lag Páls Óskars er frábrugðið Þjóðhátíðarlögum undanfarinna ára. Þetta er dans-teknó lag en oftast hafa lögin verið hefðbundin hljómsveitarlög, ef svo má að orði komast, drifin áfram af trommu, ...
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Vonast er til að bráðabrigðabrú yfir Múlakvísl verði tilbúin upp úr miðri næstu viku eða undir þá helgi. Verkið hefur verið skipulagt í þaula og verði engar óvæntar uppákomur á að vera hægt að hleypa umferðinni á í síðari hluta næstu viku. Á staðinn eru komnir 40 rafmagnsstaurar sem bíða þess að verða reknir niður. Samkvæmt áætlun verður hafist handa við niðurreksturinn í kvöld og unnið sleitulaust við það verk alla nóttina og áfram þar til allir eru komnir á sinn stað. Síðdegis í dag hófust selflutningar á fólki og bílum yfir ...
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Flutningsgeta nettenginar í Vík fer í allt að 16Mb/s í stað 8 Mb/s áður með nýrri stöð sem Síminn var að setja upp. Með breytingunni er eldri símstöðvum skipt út fyrir nýrri, svokallaðri ISAM stöð. Þetta þýðir að íbúar í Vík eiga kost á mun meiri nethraða og gagnaflutningi og öðlast aðgang að tugum sjónvarpsstöðva. Þá geta viðskiptavinir Símans á svæðinu nýtt sér VOD-þjónustu Skjásins, stafræn myndbandaleiga, sem býður notendum upp á að leigja kvikmyndir og þætti. "Þetta er kærkomið framfaraskref...
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Farið er að ferja fólk yfir Múlakvísl en nokkur fjöldi fólks bíður eftir að komast yfir ána í rútur. Rúta og tveir trukkar eru fyrir austan til að ferja fólk og bíla yfir á vaði. Rútan fór með fyrsta hópinn fyrir fjögur að því er fram kemur á vefsíðu Vegagerðarinnar. Útbúin hafa verið plön beggja vegna þar sem hægt er að aka bílum beint á vörubílspall. Bílaflutningar eru einnig að hefjast. Miðað er við að ferja yfir ána til að minnsta kosti 22:00 í kvöld og jafnvel til miðnættis, Vörubílarnir geta tekið alla...
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Vegna yfirlýsingar Samtaka ferðaþjónustunnar og umfjöllunar um að langan tíma taki að koma upp bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl vill innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram: Þegar brúna yfir Múlakvísl tók af í hlaupi í ánni aðfaranótt laugardags og Hringvegurinn lokaðist hófust þegar ráðstafanir til að finna leiðir til að opna veginn sem fyrst. Stjórnvöld og Vegagerðin gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vegasamband komist á sem fyrst. Viðgerð á veginum er hafin, verið er að ýta upp vegi að nýju brúarstæði og efni í bráðabirgðabrú ...
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Í yfirlýsingu sem fundur ferðaþjónustuaðila í Mýrdal sem haldinn var í morgun hefur sent frá sér er lýst yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem komin er upp í kjölfar lokunar þjóðvegar 1 um Mýrdalssand. Þjóðvegur 1 sé lífæð íbúa og atvinnulífs á svæðinu. ...
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Fimmtudaginn 14. júlí kl. 20 halda þær Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari tónleika í Selinu á Stokkalæk. Þær hafa sett saman fjölbreytta efnisskrá sem hefur að geyma einhverjar þekktustu perlur flautu- og píanóbókmenntanna, svo sem Sónötu í Es-dúr eftir Johann Sebastian Bach með hinum fræga og undurfallega siciliano kafla, hið rómantíska Cantabile et Presto eftir George Enesco og hið þekkta fuglasöngsstykki Le merle le noir eftir Olivier Messiaen. Á tónleikunum verða veitingar og eru miðapantanir í síma 4875512 og 8645870....
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Sigurður Ingi Jóhannsson alþingismaður segir algerlega óásættanlegt að það eigi að taka tvær til þrjár vikur að koma hringveginum í lag. Hann telur eðlilegt að samgöngunefnd Alþingis verði kölluð saman strax og allir möguleikar kannaðir til að koma vegasambandi á við Múlakvísl á ný....
Tíminn | 10.07.2011 |
Ritstjórn
Stöðufundur var haldinn í Samhæfingarstöðinni í dag. Vísindamenn telja að hlaupinu í Múlakvísl sé lokið. Áfram verður unnið á óvissustigi þar sem viðbragð almannavarna er enn í fullum gangi. Ákveðið var að minnka hættusvæðið á Mýrdalsjökli þannig að heimilt er að fara um suðvestur hluta jökulsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra. Mörk bannsvæðisins verða endurskoðuð um leið og tekist hefur að skoða yfirborð jökulsins nánar og meta aðstæður. Flogið verður yfir jökulinn...
Tíminn | 10.07.2011 |
Ritstjórn
Í júní var börnum í Árborg boðið í sumarlestur og þemað þetta árið var víkingar. Um 50 krakkar skráðu sig og mættu reglulega í safnið. Fulltrúar frá Þjóðminjasafninu komu í heimsókn og fræddu krakkana um víkingana og þeirra daglegu störf og sýndu muni og fatnað sem fólk notaði. "Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðminjasafnið sendir fulltrúa út fyrir Reykjavik og sannarlega var þetta vel heppnað" segir á vefsíðu Árborgar. Einu sinni í viku hittust hóparnir og fengu ýmsa fræðslu og skemmtun, alltaf var...
Tíminn | 10.07.2011 |
Ritstjórn
Vegagerðin hóf strax í gær morgun undirbúning að smíði bráðabirgðabrúar en hún á þegar efni í slíka brú og brúargerðarflokkar hafa verið kallaðir úr fríi til að hefja verkið. Tjónið á hringveginum er umtalsvert en smíði nýrrar varanlegrar brúar auk lagfæringa á veginum og varnargörðum gæti kostað 400-500 milljónir. Óljóst er hvenær slík brú verður komin í gagnið. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Kjartan ...
Tíminn | 09.07.2011 |
Ritstjórn
Ekki verður enn greint á milli þess hvort um er að ræða hlaup eða lítið eldgos í Kötlu segja jarðfræðingar í samhæfingarmiðstöð Almannavarna. Hlaupið náði hámarki í nótt þegar það fór um Múlakvísl og hreif með sér brúna. Skjálftavirkni hefur farið minnkandi og hlaupið virðist vera í rénun....
Tíminn | 09.07.2011 |
Ritstjórn
Líkur eru á að eldgos sé að hefjast í Kötlu. Hlaup hófst í Múlakvísl í morgun og búið er að loka þjóðvegi eitt við brúna yfir Múlakvísl, en vegurinn hefur rofnað þar, rétt austan við Höfðabrekku. Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð hefur verið virkjuð og verið er að meta ástandið. Flogið var yfir Mýrdalsjökul, Kötlu, Múlakvísl og Mýrdalssand á sjöunda tímanum í morgun og sáust þá þrjú sigsvæði í Mýrdalsjökli og lítll vöxtur í Skálm. Lýst hefur verið yfir hættustigi vegna hlaupsins sem hefur þegar hrifið með sér brúna yfir Múlakvísl, sem byggð var 1990. ...
Tíminn | 08.07.2011 |
Ritstjórn
"Bæjarstjórn lýsir yfir þungum áhyggjum af þeim erfiðleikum sem stjórnendur Heilsustofnunar NLFÍ glíma nú við," segir í ályktun frá fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar. "Sífelld óvissa um framtíð rekstrarins er ekki boðleg þegar um jafn mikilvægan rekstur er að ræða og hér er. Nýjustu fréttir um yfirvofandi uppsagnir reyndustu starfsmanna stofnunarinnar valda ugg varðandi framtíðina." Stofnunin hefur veitt þúsundum einstaklinga endurhæfingu og í ályktun sinni hvetur bæjarstjórn Velferðarráðuneytið og samninganefnd ...
Tíminn | 08.07.2011 |
Ritstjórn
Markaðsstofa Suðurlands hefur nú verði starfrækt í tvö ár og unnið ötullega að því að styrkja hlutdeild fyrirtækja á Suðurlandi í ferðamannastraumnum og þjónustu við ferðamenn. Síðastliðinn vetur var tekin upp sú nýbreytni að bjóða ferðakaupendum í kynnisferðir um svæðið. Davíð Samúelsson framkvæmdastjóri Markaðsstofunnar er ekki í vafa um að kynning af þessu tagi skili sér í auknum fjölda ferðamanna inn á svæðið. "Vel skipulagðar kynnisferðir fyrir ferðakaupendur er einföld og ódýr leið til markaðssetningar fyrir ...
Tíminn | 06.07.2011 |
Ritstjórn
Síðustu dagana hafa GPS-landmælingatæki á Heklusvæðinu sýnt óvanalegar jarðskorpuhreyfingar sem túlka má sem afleiðingu af kvikuhreyfingum djúpt í rótum fjallsins. Engir jarðskjálftar hafa fylgt þessum færslum og jarðskorpuhreyfingarnar hafa að nokkru gengið til baka. Engin merki sjást um yfirvofandi eldgos. Þrýstingur í kviku undir Heklu hefur vaxið síðan í síðasta gosi og nú síðustu ár hefur hann verið svipaður eða hærri en á undan síðustu gosum. Því verður að telja að eldstöðin sé tilbúin í gos, að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavörnum ríkisins....
Tíminn | 06.07.2011 |
Ritstjórn
Í gærnótt kom frystitogarinn Mánaberg ÓF 42 til hafnar í Þorlákshöfn með góðan úthafskarfaafla af Reykjaneshrygg og var honum landað í gær. Í skipinu voru 257 tonn af afurðum, sem svarar til 436 tonna afla upp úr sjó. Mánaberg millilandaði í Reykjavík 20. júní síðastliðinn. svipuðu magni og hélt þaðan á úthafskarfamiðin. Heildaraflinn í þessari veiðiferð skipsins er því um 870 tonn upp úr sjó að verðmæti 300 milljónum króna. "Úthafskarfaveiðar hafa gengið vel á vertíðinni og varð heildarafli Mánabergs 1.311 tonnn og ágæt ...
Tíminn | 06.07.2011 |
Ritstjórn
Nú þegar rúmt ár er síðan eldgosinu í Eyjafjallajökli lauk hefur komið í ljós að stór svæði á heiðum og fjallendi hafa orðið fyrir barðinu af öskufalli. Mikil og gróf gjóska hefur borist fram heiðarnar í nágrenni gosstöðvanna og sums staðar valdið miklum gróðurskemmdum og jarðvegsrofi, að því er fram kemur á vef Landgræðslunnar....
Tíminn | 05.07.2011 |
Ritstjórn
Umhverfisráðuneytið hefur staðfest samning Umhverfisstofnunar og sveitarfélagsins Mýrdalshrepps um umsjón og rekstur friðlandsins í Dyrhólaey sem Umhverfisstofnun og sveitarfélagið höfðu gert í samræmi við 30. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd. Miklar deilur hafa verið um friðlandið og var meðal annars hliði sem var á veginu að friðlandinu stolið. Bændur á svæðinu hafa mótmælt því að friðlandið sé opið meðan á varptíma stendur og einnig hafa þeir mótmælt ráðningu landvarðar. Í samningnum er meðal annars kveðið...
Tíminn | 05.07.2011 |
Ritstjórn
Héraðsdómur Suðurlands hafnaði kröfu lögreglustjórans á Selfossi um gæsluvarðhald á manni sem handtekinn var í fyrrakvöld eftir að hafa hleypt skotum af byssu á Stokkseyri. Jafnframt var hafnað kröfu um að maðurinn sætti geðrannsókn. Málið er í rannsókn og ferð að henni lokinni til meðferðar hjá saksóknara....
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Það var í töluverðu að snúast hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið og um helgina enda Goslokahelgi í Eyjum og mikið af fólki á ferðinni. Hátíðarhöldin í Skvísusundi fóru ágætlega fram og var öflug gæsla á svæðinu. Aðfaranótt 2. júlí síðastliðinn var óskað eftir aðstoð lögreglu um borð í skip en þar hafði einn skipverjanna í ölæði brjálast. Tók hann meðal annars exi og olli nokkrum skemmdum með henni, auk þess sem hann ógnaði öðrum skipverjum með henni ...
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Miðvikudaginn 29. júní síðastliðinn opnaði félagsmiðstöðin Zelsíuz í nýju húsnæði að Austurvegi 2b eða í Pakkhúsinu eins og það er kallað. Slegið var upp grillpartýi og leikjum á opnunardeginum og um kvöldið var boðið upp á tónlistaratriði sem og hátíðarávarp frá Kjartani Björnssyni, bæjarfulltrúa. Húsnæði félagsmiðstöðvarinnar sem áður var geymsla hefur tekið stakkaskiptum á stuttum tíma. Rykið og draslið er farið og staðurinn orðin að snyrtilegri félagsmiðstöð. Ungmennin...
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglunni á Selfossi bárust í gærkvöldi kl. 23:42 tilkynningar um að skothvellir heyrðust frá húsi á Stokkseyri. Í framhaldi af því var húsráðandi þar, sem var ölvaður, handtekinn og er nú í vörslu lögreglu. Við handtökuna hafði hann í hótunum í orði við lögreglumenn á vettvangi en beindi ekki skotvopnum sem hann var með að þeim. Hann hefur kannast við að hafa hleypt af skotum við hús sitt....
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Maður, sem var vistaður í fangageymslu lögreglustöðvarinnar á Selfossi um helgina, ærðist og réðist á lögreglumenn sem voru að fylgja honum á salerni fangageymslunnar. Hann skallaði og sló í höfuð lögreglumannanna. Beita þurfti úðavopni og liðsauka til að yfirbuga manninn. Tveir lögreglumenn leituðu að því loknu læknis og er grunur um að annar þeirra sé nefbrotinn. Maðurinn hafði nokkru áður verið handtekinn í Fljótshlíð vegna líkamsárásar og fluttur í fangageymslu á Selfossi. Mál hans verður sent saksóknara að lokinni rannsókn til frekari ákvörðunar....
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Stefnt var að því að opna Fontana gufubaðið á Laugarvatni sl. föstudag en að því varð ekki. Opnunin seinkar lengra fram í júlí. Frágangi er að ljúka á lóð og laugum auk þess sem gufuklefar og búningsherbergi eru að mestu tilbúin....
Tíminn | 03.07.2011 |
Ritstjórn
Hópurinn sem leitað var að við Illakamb í Lónsöræfum er fundinn heill á húfi. Það voru félagar í Björgunarfélagi Hornafjarðar sem fundu hópinn rétt fyrir kl. 20 í kvöld. Hópurinn mun fylgja björgunarsveitamönnunum til Hafnar í Hornafirði. Mikil þoka var á svæðinu og rigning....
Tíminn | 03.07.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveit frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg á Höfn er farin til aðstoðar gönguhópi á Lónsöræfum. Hópurinn telur 7 manns og var hann á leið af Illakambi, áleiðis í Kollumúlaskála, en villtist af leið í mikilli þoku. Fjarskiptasamband er við hópinn og engin hætta á ferðum. Hópurinn er vanur útivist og vel búinn, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu....
Tíminn | 03.07.2011 |
Ritstjórn
Fótboltagolfvöllur hefur verið opnaður í Þorlákshöfn, fyrsti sinnar tegundar á landinu. Sveinbjörn Jón Ásgrímsson og Dagbjört Hannesdóttir sem reka saman fyrirtækið Ölfussport í Þorlákshöfn eru frumkvöðlar verkefnisins og sóttu um landsvæði undir völlinn hjá Sveitarfélaginu. Undirtektir voru jákvæðar og völlurinn staðsettur út í nesi í Þorlákshöfn rétt hjá vitanum. Gaman er að geta þess að unnið hefur verið að þessari hugmynd í mörg ár og því gaman að hún sé orðin að veruleika í dag....
Tíminn | 03.07.2011 |
Ritstjórn
Vegna mikillar rigningar og bleytu á Hornafirði í gær var ákveðið að færa dagskrá á Humarhátíðarsviði inní íþróttahús Hafnar. Af sömu ástæðu varð að fella niður varðeld og söng sem vera átti í gærkvöld. Humarhátíð á Hornafirði var sett formlega á föstudagskvöld og lýkur formlega í dag....
Tíminn | 02.07.2011 |
Ritstjórn
Þrír gistu fangageymslur hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu nótt. Einn aðili var handtekinn á skemmtistað bæjarins þar sem hann hafði tekið upp hníf og hótað fólki með honum. Hann var handtekinn og færður í fangageymslu. Annar aðili sem var í miklu annarlegu ástandi var handtekinn þar sem hann hafði slegið aðila með hafnarboltakylfu. Hann var færður á lögreglustöðina og í fangageymslu. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á heilsugæslu til skoðunar og kom í ljós að ekki var um alvarlega áverka...
Tíminn | 01.07.2011 |
Ritstjórn
Grímur „rakari“ Þórisson náði draumahöggi allra kylfinga í dag er hann fór holu í höggi á 7. baut á Kiðjabergsvelli. Grímur var að keppa á Íslandsmóti 35 ára og eldri þegar hann náði högginu góða. Hann notaði 6-járn, en brautin er 166 metrar. Boltinn lenti fremst á flötinni og rúllaði beint ofan í holu við mikinn fögnuð viðstaddra....
Tíminn | 01.07.2011 |
Ritstjórn
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar fordæmir rannsóknarleyfi sem Orkustofnun veitti Sunnlenskri orku vegna rannsóknarleyfis í Grændal og á bæjarstjóri að kanna möguleika bæjarfélagsins á að kæra veitingu rannsóknarleyfisins. Í ályktun sem bæjarstjórn samþykkti segir að það sé afar sérstakt hjá Orkustofnun að veita rannsóknarleyfi þegar öll sveitarfélög sem málið varða, Náttúrufræðistofnun Ísland, Umhverfisstofnun og öll náttúrverndarsamtök á landinu eru sammála um það eigi að vernda Grænsdal. "Sú spurning hlýtur að vakna hver ...
Tíminn | 30.06.2011 |
Ritstjórn
Það var nóg að gerast í Árborg síðustu helgi, daganna 24. til 26. júní en met þátttaka var þetta árið í Landsmóti Fornbílaklúbbs Íslands og Bíladelludögum sem haldnir voru samhliða. Um 250 bílar voru til sýnis á svæðinu og um 4000 gestir komu til að skoða og taka þátt í hátíðarhöldunum. Bílar fornbílaklúbba eru oftast nýbónaðir og fínir á sýningardögum og þannig var það líka þetta árið en sömu sögu er ekki hægt að segja um þá bíla og mótorhjól sem voru í drullupyttinum. Þangað fóru margir bílar, jeppar og vélhjól en öll farartæki enduðu á...
Tíminn | 30.06.2011 |
Ritstjórn
"Menn hafa lengi verið að leita lausna til að skilja stofnvistfræði farfugla því þeir lifa tvöföldu lífi, eru háðir atburðum sem verka á þá bæði á varp- og vetrarstöðvum og þessir atburðir spila saman" segir Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi. Grein byggð á rannsóknum Tómasar og samstarfsmanna hans var birt í gær í Tímariti hinnar konunglegu bresku vísindaakademíu (Proceedings of the Royal Society - Biological Sciences), einu virtasta líffræðitímariti heims. Í greininni er greint frá...
Tíminn | 29.06.2011 |
Ritstjórn
Hæstiréttur hefur í dag staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um gæsluvarðhald yfir meintum barnaníðingi í Vestmanneyjum. Þeirri niðurstöðu dómsins er fagnað. Vert er hinsvegar að hafa í huga að með henni er gengið lengra í skilgreiningu á hugtakinu „almannahagsmunir“ en áður hefur verið gert. Settur saksóknari kaus að lýsa því, við flutning kröfunnar fyrir Héraðsdómi Suðurlands, sem mistökum Lögreglustjórans á Selfossi að hafa ekki gert kröfu um gæslu yfir meintum geranda, ...
Tíminn | 29.06.2011 |
Ritstjórn
Frá og með deginum í dag siglir Herjólfur fimm ferðir á milli lands og Eyja, alla daga nema þriðjudaga. Um er að ræða tilraunaverkefni fram í miðjan ágúst hið minnsta, en þá verður fyrirkomulagið endurmetið. Opnað verður fyrir sölu í aukaferðina í dag, eftir kl. 13:00....
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Hótel Eldhestar hefur nú fengið vottun Norræna Umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Hótel Eldhestar er frumkvöðull í umhverfismálum, en hótelið fékk fyrst vottun Svansins árið 2002. Strangar kröfur tryggja að hótelið er enn í fremstu röð varðandi lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa frá starfseminni. Nú bera alls 16 fyrirtæki merki Svansins, þar af tvö hótel og tvö farfuglaheimili....
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Fjölveiðiskipið Huginn VE hefur verið að mokfiska makríl úti fyrir suður og suðausturlandi að undanförnu. Skipið er nú á leið til Vestmannaeyja með fullfermi eftir nákvæmlega viku veiðiferð. „Þetta hefur gengið mjög vel og þetta er fjórða veiðiferðin frá Sjómannadegi. Við erum með 420 tonn af frosnum afurðum, sem er um 650 tonn upp úr sjó. Það er nákvæmlega vika síðan við lönduðum fullfermi í Eyjum,“ sagði Guðmundur Ingi Guðmundsson, stýrimaður á Huginn í samtali við Tímann....
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Hjólreiðahátíðin Tour de Hvolsvöllur hefur verið endurvakin frá gömlum glæðum og verður haldin laugardaginn 9. júlí n.k. á Hvolsvelli. „Mikil heilsuefling hefur verið á meðal landans að undanförnu og ekki síst hér á þessu svæði. Það er gaman að geta tekið þátt í því og tilvalið að efna til þessarar hátíðar hér, þar sem á árum áður voru haldin íslandsmeistaramót í hjólreiðum“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra. ...
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Miklar deilur hafa verið um lokun Dyrhólaeyjar og vilja sumir að svæðið sé opið allt árið fyrir ferðamenn á meðan aðrir vilja loka því yfir varptímann til að vernda fuglalíf og varp. Bændur á svæðinu læstu hliði gerði það að verkum að nýráðinn landvörður komst ekki í vinnuna. Seinna var hliðið fjarlægt og er fyrrverandi lögreglumaður búinn að játa að hafa tekið hliðið. Umhverfisstofnun hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmar að einstaklingar hafi ekki getað virt lokun svæðisins en lokunin átti að vernda fuglalíf...
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Föstudaginn 1. júlí næstkomandi verður tangóhátíð í Selinu á Stokkalæk. Þar koma fram tónlistarhópurinn Fimm í tangó og dansararnir Hannes Þór Egilsson og Guðmundur Elías Knudsen. Tangóballið í hlöðunni hefst kl. 21 og er miðaverð í reiðufé 2.000 krónur. Veitingar verða fram reiddar í kaffihúsastemmningu í hlöðunni þar sem fólk getur sjálft dansað eða setið og notið þess að hlusta og horfa á dans....
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Listasafn Hornafjarðar tók nýjan sýningarsal í notkun við hátíðlega athöfn síðastliðinn föstudag og var það Menntamálaráðherra sem opnaði salinn formlega. Þetta er fyrsti sérhannaði sýningarsalur listasafnsins sem hefur hingað til sýnt verk í stofnunum sveitarfélagsins og í Pakkhúsinu en listasafnið á um 250 listaverk. Salurinn er til húsa í Gömlu Slökkvistöðinni og opnunarsýning er á verkum Svavars Guðnasonar. Sýningar verða á verkum Svavars á sumrin en yfir vetrartímann verður á að vera fjölbreytt dagskrá ...
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Seflossi var kölluð til í níu slys um helgina. Alvarlegast var vélhjólaslys sem varð við Nesjavelli á föstudagskvöld. Maður steyptist af torfæruhjóli sem hann ók eftir vegslóða og fékk hjólið yfir sig. Hann var fluttur með þyrlu á slysadeild Landspítala. Við skoðun kom í ljós að brotnað hafði úr hryggjarlið. ...
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Ferðum Herjólfs milli lands og Eyja verður fjölgað í sumar, vegna mikillar eftirspurnar, segir í tilkynningu frá Eimskipum. Frá og með næsta miðvikudegi, 29. júní, mun Herjólfur sigla 5 ferðir á mánudögum og miðvikudögum, í stað fjögurra. Verður þessu fyrirkomulagi haldið að minnsta kosti fram í miðjan ágúst. Viðbótarferðirnar á mánudögum og miðvikudögum munu fara frá Vestmannaeyjum klukkan 14:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 16 og hefur þegar verið opnað fyrir sölu í þessar ferðir....
Tíminn | 26.06.2011 |
Ritstjórn
Framhalds safnaðarfundur Stórólfshvolssafnaðar var haldinn í vikunni í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli þar sem taka átti ákvörðun um byggingu nýrrar kirkju á Hvolsvelli. Fundurinn var vel sóttur þar sem farið var yfir forsendur þeirrar vinnu sem nú þegar hefur farið fram við undirbúning og hugmyndavinnu. Miklar og góðar umræður sköpuðust meðal fundarmanna. ...
Tíminn | 26.06.2011 |
Ritstjórn
Garðyrkju- og blómasýningin "Blóm í bæ" fór fram í Hveragerði um helgina. Þetta var í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. Ævintýraveröld hefur verið sköpuð í bænum sem er hreint út sagt töfrandi. Mikill fjöldi gesta sóttu hátíðina heim í fínu veðri og nutu fjölbreyttrar sýningar á öllu því sem tilheyrir græna geiranum enda sýningasvæðið í alfara leið fyrir ferðamenn. Skreytingarnar í bænum verða áfram....
Tíminn | 24.06.2011 |
Ritstjórn
Það hefur hálfgert æði gripið um sig í sambandi við, að planka. Skipverjar á Huginn VE hafa ekki verið eftirbátar annarra í þessum efnum og hafa nú allir áhafnarmeðlimir "plankað". Skipið hefur verið á makrílveiðum suður af landinu og þar hefur verið rjómablíða og veiði ágæt. Þeir segja að hugmyndin um að planka hafi komið að ofan. Nú þegar allir eru búnir að láta mynda sig getur lesendur heimasíðu þeirra kosið besta "Plankarann" en myndirnar eru hér í myndaalbúmi á heimasíðunni. Sjón er sögu ríkari....
Tíminn | 23.06.2011 |
Ritstjórn
Ábending hefur borist til lögreglunnar á Hvolsvellií vegna hættu við Gígjökul. Menn sem nýlega voru þarna á ferð tóku eftir að myndast hefur lítið lón við jökulsporðinn. Nú er talsverð umferð þarna og vill lögreglan hvetja menn sem fara þarna upp að jökli að fara mjög varlega. Þetta á reyndar við um allt Lónstæðið gamla. Þetta er meira og minna ís heldur þunnu malarlagi. Ef menn fara fram á bakka „nýja lónsins“ og falla í vatnið þá er glæra ís neðan við vatnsborðið....
Tíminn | 23.06.2011 |
Ritstjórn
Í gær var undirritað samkomulag um stofnun vettvangshjálparliðs á Flúðum sem getur veitt fyrstu viðbrögð í alvarlegum slysum og veikindum í uppsveitum Árnessýslu. Það eru félagar úr Björgunarfélaginu Eyvindi á Flúðum sem skipa vettvangshjálparliðið en samkomulagið er gert milli þeirra, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, lögreglunnar í Árnessýslu og Árnesingadeildar Rauða krossins. Vettvangshjálparliðið verður mannað þrettán félögum í Björgunarfélaginu sem hafa undirgengist bráðaliðanámskeið og er ...
Tíminn | 23.06.2011 |
Ritstjórn
Vestmannaeyjabær hefur veitt öllum börnum leikskólapláss sem voru á biðlista þann 14. júní síðastliðinn. Verið er að senda út bréf til foreldra og munu börnin geta hafið leikskólanám í ágúst eða september. Þetta var samþykkt á fundi Fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyja þann 16. júní. Börnin munu ganga í leikskólann Sólann sem mun þurfa að fjölga starfsmönnum. Áætlaður kostnaður er undir 4 milljónum krónum aukalega á ári. Bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, er ánægður með þetta en hann segir að vegna mikillar ...
Tíminn | 22.06.2011 |
Ritstjórn
Nýlega opnaði ný gagnvirk orkusýning um endurnýjanlega orkugjafa í Búrfellstöð og er sýningunni ætlað að veita landsmönnum sem og erlendum gestum innsýn í vinnslu og notkun endurnýjanlegra orkugjafa en eftirspurn eftir slíkum orkugjöfum fer vaxandi um heim allan. Sýningin er hönnuð af Gagarín fyrir Landsvirkjun. Gagnvirka orkusýningin í Búrfellsstöð varpar ljósi á endurnýjanlega aflgjafa, tækifæri og takmarkanir auk sögu nýtingar þeirra á Íslandi. Tilgangurinn er að fræða og skemmta á lifandi hátt en um leið að ...
Tíminn | 22.06.2011 |
Ritstjórn
Helgina 24. – 26. Júní nk. verður hið árlega Landsmót fornbílaklúbbs Íslands haldið á Gesthúsasvæðinu á Selfossi. Tengt landsmótinu munu bíladelludagar á Selfossi verða haldnir í annað sinn á sunnudeginum með tilheyrandi spóli og drulluakstri. Landsmótið hefst á föstudeginum með hópakstri frá Reykjavík en mótið er sett formlega rétt rúmlega 21:00 um kvöldið á Gesthúsasvæðinu. Á laugardeginum verður sýningarsvæðið opið frá 13:00 – 18:00 en boðið verður upp á sýningu og kynningu á bílum, markað, handverk, keppni fjarstýrðra ...
Tíminn | 21.06.2011 |
Ritstjórn
Árleg Jónsmessuhátíð verður haldin á Eyrarbakka laugardaginn 25. júní og verðu mikið um að vera. Dagurinn hefst á viðburðum fyrir fjölskylduna og meðal þess sem verður í boði er kassaklifur, þrautabraut, ratleikur og Skoppa og Skrítla munu skemmta. Yfir daginn er hægt að heimsækja Eyrbekkinga, láta spá fyrir sér, skoða Laugabúð, taka þátt í kýló eða fara á tónleika í Gónhól eða Merkigili. Þennan dag er ókeypis inn á Byggðasafn Árnesinga og Sjóminjasafnið. Kýr kemur í gamalt fjós og smjör verður strokkað í mjólkurhúsi sem ...
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
Í gærmorgun, um klukkan 06:30, barst lögreglunni á Selfossi tilkynning um tvo menn að príla utan í Ljósafossvirkjun við Úlfljótsvatn. Starfsmaður virkjunarinnar fór að kanna málið og þá var annar mannanna á sundi í vatninu, rétt við inntaksmannvirki virkjunarinnar. Hann komst á þurrt af eigin rammleik....
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
Vikan hjá lögreglunni á Hvolsvelli var nokkuð góð og án teljandi slysa. Nokkur umferð var en veður var frekar kalt í vikunni. Þyrlueftirlit var á mánudeginum þar sem farið var hálendið, en fjallvegir eru enn með snjó og aurbleytu og ekki alveg ljóst hvenær opnað verður á umferð um þá. ...
Tíminn | 19.06.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viki fóru krakkar í Hornafirði í fuglaskoðunarferð í Óslandið en sumarstarf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar hefst vanalega með slíkri ferð. Leiðsögumaður var Björn Arason. Krakkarnir sáu máva og vaðfugla, æðarunga og svo endur á Óslandstjörninni. Margir krakkanna voru með hjálma til varnar kríum en kríuvarp er ekki komið almennilega í gang vegna kulda og skorts á æti. Ósland er eyja með landbrú við Höfn í Hornafirði og er þar mikið fuglalíf segir á vef Umhverfisstofnunar. Í Óslandi má sjá basaltafsteypur af trjám sem ...
Tíminn | 18.06.2011 |
Ritstjórn
Þann 15. júní ákvað Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja að leyfa ekki lundaveiði í ár. Ákvörðunin var nauðsynleg og var tekin í sátt með helstu hagsmunaaðilum segir Gunnlaugur Grettisson, formaður Umhverfis- og skipulagsráðs í grein á Eyjar.net. Grettir segir ákvörðunina hafa verið bæði erfiða og auðvelda. Hún hafi verið erfið vegna þess að lundaveiðar séu samgrónar sögu og menningu Vestmannaeyja en hún hafi verið auðveld vegna þess að ástand lundastofnsins sé slæmt og um það eru bæði veiðimenn og fræðimenn...
Tíminn | 18.06.2011 |
Ritstjórn
Það er ekki oft sem Íslendingar geta farið í bílabíó en það var hægt á Selfossi í gær þegar dans- og söngvamyndin Grease var sýnd á 20 fm risaskjá á planinu við Hótel Selfoss sem var fullt af bíllum. Kvikmyndin var sýnd á skjá og hljóðrásinni útvarpað og gátu gestir fengið sér popp og candy-floss meðan á sýningu stóð. Þarna hefur því kannski skapast á Selfossi stemmning sem vanalega sést aðeins í kvikmyndum eins og Grease...
Tíminn | 16.06.2011 |
Ritstjórn
Leikskólarnir á Eyrabakka og Stokkseyri verða sameinaðir í einn skóla og tekur breytingin gildi að loknu sumarleyfi næstkomandi ágúst.
"Það er búið að skoða það í talsverðan tíma hvað hægt sé að gera í hagræðingu í þessum málaflokki. Leikskólarnir við ströndina eru báðir litlir, um 30 börn á Eyrabakka og færri á Stokkseyri. Þess vegna er þægilegt að sameina þessar einingar," sagði Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, í samtali við sunnlenska.is og bætir við að engin tækifæri séu í sameiningu leikskólanna á Selfossi sem eru ...
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Þreyttir ferðalangar geta nú hvílt lúin bein í Höfn Inn, nýju gistiheimili sem nýlega var opnað á Höfn í Hornafirði í húsnæði sem áður hýsti verslun Krónunar. Á gistiheimilinu eru 12 herbergi sem öll eru með sér baðaðstöðu.Rekstraraðilar eru Halldór Birgisson og Christiane Oliveira og leigja þau húsið af Þvöll ehf. Framkvæmdir hófust í byrjun apríl og lauk 24. maí síðastliðinn og gengu "með afbrigðum vel og komu fjölmargir iðnaðarmenn að framkvæmdunum og eiga þeir allir þakkir skilið fyrir vasklega framgöngu...
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Hvítasunnumót Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja, SJÓVE, var haldið í Vestmannaeyjum um helgina. Þátttakendur voru 45 á 12 bátum. Veður var þolanlegt en heildarveiði í dræmara lagi. Það veiddust alls 12 tegundir og þar af var einn aðili, Stefán Guðjónsson úr Sjóstangaveiðifélagi Reykjavíkur (Sjór) með 10 tegundir....
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Mikil erill var hjá lögreglunni á Hvolsvelli í síðustu viku og um hvítasunnuhelgina. Alls voru bókuð 130 mál. Á sunnudagsmorgninum voru tvö umferðaróhöpp í umdæminu. Jeppabifreið sem var á leið frá Vík valt á Reynisfjalli nokkru sunnan við afleggjara að Heiði...
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Tónleikaröðin “ Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju “ hefur göngu sína í dag, þriðjudaginn 14. júní, í fimmta sinn. Þessir klukkustundarlöngu tónleikar hafa mælst vel fyrir í fögru umhverfi þingstaðarins forna og oft þétt setinn bekkurinn í kirkjunni. Kveikjan að tónleikunum er stofnun Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum til eflingar tónlistarstarfi við kirkjuna....
Tíminn | 13.06.2011 |
Ritstjórn
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi í síðustu tillögu þess efni að hefja undirbúning að viðbyggingu við Sundhöll Selfoss. Slík viðbygging hefur verið í umræðunni í nokkrun tíma og er gert ráð fyrir henni á þriggja ára áætlun sveitarfélagsins. Sundhöllin er vinsæl og á sólríkum sumardögum komast færri að en vilja vegna þess að laugar og pottar eru fullir af fólki. Ný viðbygging ætti því að gleðja sundlaugargesti. Í greinargerð með samþykktinni segir: "Endurbætur á búningsa stöðu, móttöku...
Tíminn | 13.06.2011 |
Ritstjórn
Unnendur klassískrar tónlistar finna eitthvað við sitt hæfi í Selinu á Stokkalæk næstu helgi en þá fara þar fram tvennir tónleikar þar sem tónlist Chopin, Schubert, Atla Heimis auk annara verður flutt af reynslumiklum tónlistarmönnum. Laugardaginn 18. júní kl. 16 leikur Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari þrjár ballöður og sónötu nr.2 í b-moll tónlist eftir Frédéric Chopin. Sunnudaginn 19. júní klukkan 16 munu þær Selma Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari flytja blöndu af klassískum verkun eftir ...
Tíminn | 12.06.2011 |
Ritstjórn
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 10. júní að veita 40 milljónum króna til gróðurstyrkingar á öskufallssvæðum og fól Landgræðslu ríkisins að annast framkvæmdir. Í framhaldi af því hefur stofnunin þegar keypt tilbúinn áburð og gert er ráð fyrir að dreifing hans hefjist strax í næstu viku, enda afar mikilvægt að örva vöxt gróðurs sem fyrst svo gróðurtímabilið nýtist sem best....
Tíminn | 12.06.2011 |
Ritstjórn
Í Vík í Mýrdal er nú verið að byggja sandfangara, en verkið var boðið út snemma í vor. Sandfangarinn er 276 m langur brimvarnargarður, hornrétt út frá fjörunni neðan við kauptúnið Vík. Hlutverk hans er, eins og nafnið gefur til kynna, að fanga sand og hamla þannig landbroti í Víkurfjöru. Verkinu á að vera lokið eigi síðar en 30. september....
Tíminn | 08.06.2011 |
Ritstjórn
Bæjar-, fjölskyldu- og tónlistarhátíðin Kótelettan verður haldin á Selfossi næstu helgi og verður þar að finna góða blöndu af skemmtun, mat og tónlist en meðal hljómsveita sem stíga á svið eru Skítamórall, Paparnir og Jet Black Joe. Á hátíðinni munu sunnlenskir framleiðendur kynna afurðir sínar og geta gestir meðal annars bragðað á sunnlensku lambi, nauti, grænmeti, fuglakjöti og mjólkurafurðum. Einnig munu gestir geta skoðað, og kannski bragðað á, stærsta hamborgara Íslands. Fjölbreytt skemmtiatriði verða...
Tíminn | 07.06.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt tillögu frá Innanríkisráðuneyti og Vegagerðinni þá mun SASS, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, taka yfir samgöngumál og rekstur almenningssamgangna á starfssvæði samtakanna. Með þessum breyingum er verið að færa ákvörðunarvaldið til þeirra sen nýta þjónustuna. Frá þessu er greint á Sunnlenska.is. Þetta mun líklega taka gildi þann 1. janúar næstkomandi og þá munu sveitarfélög hafa umsjón með sérleyfisbílum og strætósamgöngum ...
Tíminn | 07.06.2011 |
Ritstjórn
Dagana 30. - 31. maí fóru tveir sérfræðingar frá náttúrustofnun Íslands, þeir Erling Ólafsson skordýrafræðingur og Sigurður H. Magnússon gróðurvistfræðingur, í skoðunarferð um öskusvæðið í Vestur-Skaftafellssýslu. Tilgangurinn var að kanna öskufall eftir nýafstaðið Grímsvatnagos og huga að gróðri, smádýralífi og fuglalífi á öskusvæðinu. Þrátt fyrir verulegt öskufall má ætla að gróður muni víðast hvar á láglendi standast þetta áfall en það fer þó mjög eftir tíðarfari á komandi vikum...
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Björgunarfélög landisin bjarga ekki einungis fólki úr hættu því stundum þurfa dýr á aðstoð að halda. Í síðustu viku aðstoðaði Björgunarfélag Árborgar bónda á bænum Ferjunesi í Flóahreppi, sem er rétt fyrir utan Selfoss, við að bjarga kvígunni Bót úr Þjórsá. Verið var að hleypa kvígum út þegar Bót, stökk af stað í átt að Þjórsá og reif niður girðingu í leiðinni. Þegar kvígan var komin út í á reyndi bóndinn að nálgast hana en það gekk illa því hún "skellti sér bara á sund og baulaði hátt og snjallt á bóndann...
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn á Selfossi höfðu í mörg horn að líta um helgina. Í Þorlákshöfn var þremur bifreiðum stolið um helgina. Í einu tilvikinu voru tveir ungir ölvaðir menn sem tóku bifreið þar sem hún stóð ólæst við Oddabraut. Annar mannanna ók bifreiðinni. Ökuferðinni lauk inni í húsagarði eftir að ekið var á aðra bifreið. Báðir mennirnir voru handteknir og færðir í yfirheyrslu. Báðar bifreiðarnar skemmdust mikið....
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Vikan var góð í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli. Alls voru 96 mál bókuð í dagbók lögreglunnar, þar af voru 28 stöðvaðir fyrir að aka of hratt í umdæminu. Sá sem hraðast ók var á 130 km. hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km....
Tíminn | 01.06.2011 |
Ritstjórn
Lögreglufélag Vestmannaeyja mótmælir harðlega þeim skipulagsbreytingum sem boðaðar hafa verið hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og segir í ályktun sem samþykkt var í gær að öryggi bæjarbúa sé stefnt í hættu og að lögreglan muni ekki geta sinnt því hlutverk sem henni er ætlað. Samkvæmt skipulagsbreytingunum þá munu 8 lögreglumenn vera starfandi í Eyjum og...
Tíminn | 01.06.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn föstudag var farin vettvangsferð á vegum Veiðimálastofnunar austur fyrir fjall og ár kannaðar á öskufallssvæðinu frá Grímsvatnagosinu. Veiðimálastofnun hefur ekki spurnir af neinum fiskidauða í ám eða vötnum í kjölfar Grímsvatnagossins. Sjóbirtingur, hrygningarfiskur og geldfiskur, sem verið hefur í ánum í vetur er líklega hluti genginn til sjávar...
Tíminn | 31.05.2011 |
Ritstjórn
Ákveðið hefur verið að fresta torfærukeppninni á Hellu sem fram átti að fara laugardaginn 4. júní vegna þess að ekki hafa nógu margir skráð sig til leiks. Ekki hefur verið ákveðin ný dagsetning fyrir keppnina. Torfærukeppnin á Hellu hefur verið haldin árlega síðan 1973, fyrir utan eitt ár, og á hana koma fjölmargir áhorfendur. Oftast taka um 14 keppendur þátt í og var góð þáttaka á síðasta ári og kemur lítill áhugi í ár á óvart. Að sögn...
Tíminn | 31.05.2011 |
Ritstjórn
Humarveiðitímabilið hófst 10 apríl síðastliðinn og hefur það mikil áhrif á lífið á Höfn í Hornafirði en í tengslum við veiðarnar verða til yfir 100 störf. "Hér er atvinnuleysi óþekkt meðal ungs fólks, því við þurfum að ráða til okkar um 70 manns í landvinnsluna vegna sumarleyfa. Framhaldsskólakrakkarnir koma beint í vinnu er skólum lýkur og 16 ára unglingar hefja störf 15. júní. Þannig að þessi vinnsla skiptir...
Tíminn | 31.05.2011 |
Ritstjórn
Helgina 3. - 5. júní verður haldið meistaranámskeið í flautuleik í Selinu á Stokkalæk. Aðalkennari námskeiðsins er 1. flautuleikari Konunglegu Concertgebouw hljómsveitarinnar í Amsterdam, Emily Beynon. Emily er frá Wales og stundaði nám sitt hjá William Bennett við Konunglegu Akademíuna í London, Royal Academy of Music. Einnig munu Hallfríður Ólafsdóttir 1. flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Jón Guðmundsson flautukennari miðla nemendum úr þekkingarbrunni sínum á námskeiðinu....
Tíminn | 30.05.2011 |
Ritstjórn
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri lýkur sínum starfsvetri með vordögum sem verða haldnir í nýsmíðuðu skólahúsi þann 30., 31. maí og 1. júní nk. Hefð er fyrir vordögum á þessum tíma en að þessu sinni verða vordagarnir svolítið sérstakir. Því má raunar bæta við að það hittist líka svo á að á þessum sama tíma eru líka skólastjóraskipti, nýr tekur til starfa í haust. Stofnað verður fríríkið Barnabær....
Tíminn | 30.05.2011 |
Ritstjórn
Verkefni lögreglunnar á Selfossi voru fá en fjölbreytt í síðustu viku. Ein líkamsárás var kærð um helgina en atvikið átti sér stað um kl. 03:00 við skemmtistaðinn 800 Bar á Selfossi. Þar hafði maður slegið mann í andlitið með bjórglasi með þeim afleiðingum að sá sem varð fyrir högginu hlaut skurð á enni. Árásarmaðurinn var handtekinn og færður til yfirheyrslu en skömmu áður hafði maðurinn brotið þrjár rúður á skemmtistaðnum...
Tíminn | 30.05.2011 |
Ritstjórn
Kvenfélagið Eining á Hvolsvelli hefur unnið ötult starf að undanförnu og safnað fyrir hjartastuðtæki sem afhent var forsvarsmönnum björgunarsveitarinnar Dagrenningu á Hvolsvelli á dögunum. Björgunarsveitirnar hafa unnið mikið og gott starf undanfarin ár við að aðstoða ferðamenn, hvort sem er á hálendi eða láglendi, við gæslu eða mannbjörg....
Tíminn | 29.05.2011 |
Ritstjórn
Vefsíðan Stokkseyri.is er vinsæl út um allan heim en frá áramótum hefur síðan verið heimsótt frá 48 löndum. Vefurinn hefur auðvitað mest verið heimsóttur á Íslandi og þar á eftir koma nágrannaþjóðir okkar, Noregur Svíðþjóð og Danmörk. En að auki hefur hann meðal annars verið verið heimsóttur frá Bandaríkjunum, Marokkó, Frakklandi, Indlandi, Jamaíka, Brasilíu, Slóveníu, Víetnam og Chile....
Tíminn | 29.05.2011 |
Ritstjórn
Þjónustumiðstöð almannavarna á Kirkjubæjarklaustri tók til starfa s.l. föstudag. Meginverkefni hennar er að sinna eftirmálum eldgossins í Grímsvötnum sem snúa að íbúum, sveitarfélögum og uppbyggingarstarfi. Þjónustumiðstöðin er staðsett í grunnskólanum á Klaustri og er opin öllum þeim sem þurfa aðstoð eða upplýsingar vegna eldgossins...
Tíminn | 29.05.2011 |
Ritstjórn
Ákveðið hefur verið að djazzhátíðin Dagar lita og tóna verði ekki haldin í ár og eru ástæðan helst dræm aðsókn vegna samkeppni frá öðrum viðburðum. Hátíðin fagnaði á síðasta ári 20 afmæli og hefur í þau ár verið stór þáttur í menningarlífi Vestmannaeyja. Á hátíðinni hafa helstu djazzarar og blúsarar landsins spilað svo sem Ragnheiður Gröndal, Jagúar, Tómas R. Einarsson og fleiri. "Aðsókn hefur verið að minnka síðustu ár með aukinni samkeppni og nú...
Tíminn | 27.05.2011 |
Ritstjórn
Landbúnaður gengur almennt vel í Austur-Skaftafellssýslu, segir Grétar Már hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Sauðburði er að ljúka og þó svo að meðalvigt lambsskrokka í sýslunni hafi lækkað á síðasta ári þá eru 4 af 50 afurðahæstu sauðfjárbúum á Íslandi í Austur-Skaftafellssýslu. Kornrækt hefur aukist síðustu ár og segir Grétar Már að aukna kornrækt megi líklega rekja til verðhækkunar á fóðri. Slík hækkun gerir það að verkum að bændur sjá hag sinn...
Tíminn | 27.05.2011 |
Ritstjórn
Starfsmenn Landbúnaðarháskóla Íslands, þau Rannveig Guicharnaud og Ólafur Arnalds, fóru sl. miðvikudag á gjóskufallsvæðið í Skaftárhreppi m.a. til að safna sýnum til greininga á flúor í samvinnu við starfmenn Búnaðarsambandsins. Umtalsverð gjóska hefur fallið á svæðinu frá Kirkjubæjarklaustri austur að Núpsvötnum og er mesta gjóskan frá Dverghömrum að Núpsstað....
Tíminn | 26.05.2011 |
Ritstjórn
Hreinsun á ösku hefur gengið hratt og örugglega fyrir sig í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs, Skaftafelli, og er svæðið formlega opnað á ný í dag kl. 17:00, aðeins 2 dögum eftir að öskufalli lauk. „Við rýmdum svæðið á laugardagskvöldinu, rétt eftir að gosið hófst, en strax í gær byrjuðum við að hreinsa svæðið – eða um leið og lögreglan opnaði veginn aftur,“ segir Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, í Skaftafelli....
Tíminn | 26.05.2011 |
Ritstjórn
Nú unnið hörðum höndum að því að hreinsa burt ösku af húsum á gossvæðinu. Í dag verða 50-60 björgunarsveitarmenn frá höfuðborgarsvæðinu, Mosfellsbæ, Þorlákshöfn og uppsveitum Árnessýslu að störfum ásamt slökkviliði. Farið verður á tankbílum milli bæja og skolað af húsum og þökum og hreinsað úr niðurföllum og rennum...
Tíminn | 25.05.2011 |
Ritstjórn
Náttúrustofa Suðurlands leggur til að ekki verði leyft að tína svartfuglsegg í Vestmannaeyjum í ár og að engin lundaveiði verði leyfð næstu ár. Náttúrustofa hefur sent greinargerð og tillögur þess efnis til Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja. "Þessi tillaga um lundaveiðibann endurspeglar viðbrögð við þeirri miklu fækkun sem þegar hefur átt sér stað í stofninum og með hliðsjón af að ástandið er fremur líklegt til að vara lengur...
Tíminn | 25.05.2011 |
Ritstjórn
Vík í Mýrdal hefur sloppið mjög vel við öskufall vegna eldgossins í Grímsvötnum og er þar litla ösku að finna. Öll þjónustufyrirtæki í sveitafélaginu eru opin, tjaldstæði opna um mánaðarmótin, gólfvöllurinn er tilbúinn til notkunar og unnið er að því að hreinsa sundlaugina sem verður opnuð bráðlega. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mýrdalshreppi sem segir að allir ferðaþjónustuaðilar í sveitafélaginu séu tilbúnir...
Tíminn | 25.05.2011 |
Ritstjórn
Nýlega var í fyrsta skipti ráðinn landvörður í Dyrhólaey en honum gengur erfiðlega að sinna starfi sínu vegna þess að bændur á svæðinu læstu hliði sem liggur yfir veg að eynni. Dyrhólaey hefur verið vinsæll ferðamannastaður í gegnum árin og segja bændur á svæðinu að umferð ferðamanna hafi haft mikil og slæm áhrif á lífríkið í eyjunni. Svæðið er friðlýst og hefur í mörg ár verið lokað fyrir umferð meðan á varptíma stendur...
Tíminn | 24.05.2011 |
Ritstjórn
Það var nóg að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku og voru verkefnin fjölbreytt, allt frá því að afhenda rykgrímur og hlífðargleraugu vegna öskufalls yfir í slagsmál og kreditkortasvindl.
Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar eftir skemmtanahald helgarinnar en árásin átti sér stað bæði inni á veitingastaðnum Cornero og fyrir utan staðinn. Þarna hafði orðið ósætti á milli tveggja manna inni á staðnum sem endaði...
Tíminn | 24.05.2011 |
Ritstjórn
Dregið hefur úr gosinu frá því í gær og nær gosmökkurinn nú í 3-6 km hæð. Gjóskuframleiðsla hefur að sama skapi minnkað mikið en hins vegar hefur gríðarlegt magn af ösku fallið á landið og er ennþá í háloftunum. Gosið í Grímsvötnum er samkvæmt mati vísindamanna af sömu stærðargráðu og dæmigert Kötlugos, að því er fram kemur á vef Búnarðarsambands Suðurlands....
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Öskufall er farið að valda dauða sauðfé á bænum Arnardranga í Landbroti sunnan Kirkjubæjarklausturs. Bóndinn á bænum, Helgi V. Jóhannson, er með um 300 kindur og 480 lömb en ekki hefur tekist að koma öllum kindunum inn í hús. Hefur Helgi því þurft að gefa sauðféngu heyrúllur og vatn úti í öskumekkinum. Í viðtali við RÚV talar bóndinn um Kötlugosið 1918 og...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Líklegt er að aska frá gosinu í Grímsvötnum muni halda áfram að falla í Vestmannaeyjum næstu daga vegna þess að spáð er áframhaldandi Norð- og norðaustlægum áttum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnanefnd Vestmannaeyja. Umtalsvert öskufall hefur verið í Vestmannaeyjum síðasta sólarhringinn og fínt öskufjúk er nú í bænum. Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja bendir fólki á að unnt er að nálgast rykgrímur á lögreglustöð, heilbrigðisstofnuninni og á ...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Gosið í Grímsvötnum hefur haft ýmis konar áhrif á daglegt líf í Rangárþingi ytra. Sundlaugin á Hellu er svört af ösku og ákveðið hefur verið að halda henni lokaðri þar til hægt verður að hreinsa hana og halda henni hreinni. Allir heitir pottar hafa verið hreinsaðir og reynt verður að hafa þá opna meðan á gosinu stendur, það er þó alls óvíst hvernig það muni ganga. Þykkt öskuský lá yfir svæðinu í gær...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Markaðsstofa Suðurlands hvetur þá sem ætla að ferðast um Suðurland á næstu dögum og í sumar að fylgjast vel með fréttum af framvindu gossins áður en ferðaáætlunum er breytt. Þrátt fyrir að gosið í Grímsvötnum sé stórt bendir ýmislegt til þess að það sé að minnka, auk þess sem gos i Grímsvötnum standi venjulega stutt. Margt getur því breyst á stuttum tíma. Ólíklegt er að gosið nú hafi sömu áhrif og...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Útvegsmenn á Hornafirði héldu félagsfund í síðustu viku þar sem samþykkt var ályktun þar sem m.a. er skorað á ríkisstjórnarflokkana að draga frumvörp um stjórnun fiskveiða til baka og koma aftur að þeirri vinnu sem búin var að fara fram á grundvelli sáttanefndar s.l. ár þar sem víðtæk sátt náðist um framtíð íslensk sjávarútvegs. Ályktunin fer hér eftir:...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Tvær fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins eru nú opnar á hamfarasvæðinu, á Kirkjubæjarklaustri og Hofgarði í Öræfum vegna gossins í Grímsvötnum. Rauði krossinn vinnur nú að því að skipuleggja áfallahjálp til íbúa á svæðinu ásamt heilbrigðisþjónustunni, kirkju, sveitarfélögum og almannavörnum. Hjálparsími Rauða krossins 1717 og er fólki bent á að hringja til að nálgast almennar upplýsingar og til að sækja sér sálrænan stuðning....
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Lítið hefur verið að gera hjá björgunarsveitum á öskufallssvæðinu í morgun. Nokkur verkefni liggja fyrir en illmögulegt er að sinna þeim þar sem skyggni á svæðinu er afar lítið og ekkert á köflum. Þó hefur Akur, brynvarinn bíll Björgunarfélags Akraness, verið í verkefnum í allan morgun en verið er að koma fólki til og frá vinnu við hjúkrunarheimilið á Klaustri en þar hafa margir verið í vinnu frá í gær. ...
Tíminn | 22.05.2011 |
Ritstjórn
Drengurinn sem fluttur var frá Selfossi á sjúkrahús í Reykjavík í gær eftir að hann fannst meðvitundarlaus í innisundlaug Sundhallar Selfoss er látinn. Hann var á sjötta aldursári. Ekki er unnt að birta nafn hans að svo stöddu....
Tíminn | 21.05.2011 |
Ritstjórn
Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos væri hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið vikjuð vegna þessa. Dökkur gosmökkur frá Grímsvötnum sést frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. Síðast gaus í Grímsvötnum í Vatnajökli árið 2004. Í kvöld verður flogið með vísindamenn yfir svæðið og aðstæður kannaðar....
Tíminn | 20.05.2011 |
Ritstjórn
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hyggst takmarka enn frekar lundaveiði í eyjunni og kemur til greina að banna veiðar alveg í ár. Ráðið fjallaði um þetta á síðasta fundi sínum og í ályktun sem samþykkt var kemur fram að bráðlega verði lagðar fram tillögur um enn frekari takmarkanir eða algjört bann á veiðum. Ráðið bendir þeim sem eru...
Tíminn | 18.05.2011 |
Ritstjórn
Fjöldi þeirra sem þurfa fjárhagsaðstoð frá Sveitafélaginu Árborg hefur næstum tvöfaldast frá því á sama tíma á síðasta ári. Framkvæmdastjóri sveitafélagsins telur eina ástæðuna fyrir þessu vera ungt fólk sem hefur aldrei verið á vinnumarkaði og á því ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Sveitafélagið hefur hafið vinnu við að komast að rót vandans og ...
Tíminn | 18.05.2011 |
Ritstjórn
Banaslys varð í Hrunamannahreppi í gær, þriðjudag. Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu rétt fyrir kl. 23:00 um að slys hefði orðið er grjóthnullungur fór í gegnum þak á vélgröfu og lenti á stjórnanda hennar. Engin vitni voru að slysinu. Hinn látni var einn við vinnu í efnisnámu þegar losnaði um grjótið sem var í stáli ofan við gröfuna....
Tíminn | 17.05.2011 |
Ritstjórn
Landsvirkjun og Orkusalan ehf. áforma að reisa allt að 80 MW vatnsaflsvirkjun í Hólmsá í Skaftárhreppi, í Vestur Skaftafellssýslu. Virkjunin þarf að fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum og í drögum að matstillögu kemur fram að gert er ráð fyrir að stífla Hólmsá við Atlaey. Þannig á að myndast um 10 km² miðlunarlón og með 38 hárri jarðstíflu.
Úr lóninu verður vatni veitt um 6,5 km. löng aðrennslisgöng...
Tíminn | 16.05.2011 |
Ritstjórn
Matís hefur opnað nýja matarsmiðju á Flúðum en megin verkefni hennar er að hjálpa einstaklingum og smærri fyrirtækjum að þróa og koma vörum sínum á markað. Verkefnin sem Matarsmiðjan vinnur að eru mjög fjölbreytt, allt frá framleiðslu á pítsasósu yfir í að bæta rekstur mötuneyta, og segir Vilberg Traustason stöðvarstjóri að í raun sé hægt að vinna flest í smiðjunum svo framarlega sem hugmyndin sé góð. Matarsmiðjan var opnuð formlega...
Tíminn | 15.05.2011 |
Ritstjórn
Í gærmorgun var slökkviliðið á Selfossi kallað út vegna elds sem logaði í gróðri í Þorsteinsvík við Þingvallavatn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem hafði ekki breiðst mikið út og þurfi bara að senda einn dælubíl á vettvang. Það voru veiðimenn við vatnið sem tilkynnu neyðarlínunni um eldinn sem logaði aðallega í mosa.
...
Tíminn | 13.05.2011 |
Ritstjórn
Póstþjónusta Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út sex ný frímerki með myndum af UNESCO heimsminjum á Norðurlöndum og er Surtsey á einu þeirra. Surtsey fór á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna árið 2008 sem einstakur staður náttúruminja á heimsmælikvarða....
Tíminn | 12.05.2011 |
Ritstjórn
Viðsnúningur hefur orðið á rekstri Sveitafélagsins Árborgar. Hagnaðurinn af rekstri sveitafélagsins var 172 milljónir árið 2010 en árið 2009 sýndi sveitafélagið taprekstur upp á 449 milljónir. Heildarskuldir og skuldbindingar Árborgar voru rúmlega 9 milljarðar árið 2010 og er það lækkun um 1,8% frá fyrra ári en þá voru skuldir sveitafélagsins 9.394 milljónir króna. Að sögn Ingibjargar Garðarsdóttur, fjármálastjóra Árborgar, er hægt að útskýra...
Tíminn | 09.05.2011 |
Ritstjórn
Herjólfur mun áfram sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fram til fimmtudagsins 12. maí,en eftri það verður ástandið endurmetið. Bókanir fyrir þriðjudag til fimmtudags opnuðu á hádegi í dag. Siglingar verða áfram eftir flóðatöflu....
Tíminn | 09.05.2011 |
Ritstjórn
Í vikunni voru tólf ökumenn kærðir fyrir hraðakstur, einn fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Aðfaranótt fimmtudags var brotist inn í bifreið í Borgarheiði í Hveragerði og stolið úr henni útvarpstæki og MP3 spilara. Lögreglan biður þá sem veitt geta upplýsingar um þetta atvik að hafa samband í síma 480-1010....
Tíminn | 09.05.2011 |
Ritstjórn
Landsvirkjun og Orkusalan ehf. áforma að reisa allt að 80 MW vatnsaflsvirkjun í Hólmsá í Skaftárhreppi, í Vestur Skaftafellssýslu. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og er matsvinnan þegar hafin og má nálgast drög að tillögu að matsáætlun á heimasíðu Landsvirkjunar....
Tíminn | 08.05.2011 |
Ritstjórn
Glöggir vegfarendur á Hvolsvelli hafa eflaust rekið augun í skilaboð frá leikskólabörnum sem eru víða um þorpið. Hópur barna af leikskólanum Örk á Hvolsvelli fór nú á dögunum í göngutúr um bæinn. Markmið með ferðinni var að tína alls kyns rusl og búa svo til úr því listaverk! Ekki var hópurinn búinn að tína lengi þegar börnin höfðu orð á því hvað væri mikið af sígarettustubbum bókstaflega út um allt. ...
Tíminn | 08.05.2011 |
Ritstjórn
Sunnlenski sveitadagurinn var haldinn þriðja árið í röð á Selfossi og þótti heppnast vel. Áætlað er að allt í 12 þúsund gestir hafi heimsótt hátíðarsvæðið til að kynna sér sunnlensk fyrirtæki og smakka á hinum ýmsu matvælum en meðal þess sem boðið var upp á í ár var heilgrillað naut. Einnig var sýnd glíma, boðið upp andlitsmálningu auk þess sem landbúnaðartæki voru til sýnis...
Tíminn | 08.05.2011 |
Ritstjórn
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, var í kærkvöldi send í loftið til að sækja slasaðan vélsleðamann sunnan Skjaldbreið. Lögreglan á Selfossi segir manninn vera fimmtugan og hafa verið með félögum sínum þegar hann féll af vélsleðanum. Ekki er vitað hverslu alvarleg meiðsli mannsins eru...
Tíminn | 06.05.2011 |
Ritstjórn
Landsvirkjun og Skeiða- og Gnúpverjahreppur hafa gert með sér samkomulag um yfirtöku Skeiða- og Gnúpverjahrepps á sundlaug Landsvirkjunar í Þjórsárdal með öllum réttindum sem henni fylgja. Sundlaugin í Þjórsárdal var upphaflega byggð skömmu fyrir 1980....
Tíminn | 06.05.2011 |
Ritstjórn
Landbúnaður og íslenskar sveitir verða í aðalhlutverki á Selfossi á morgun, laugardaginn 7. maí, en þá verður haldinn hátíðlegur Sunnlenski sveitadagurinn. Er þetta þriðja árið í röð sem dagurinn er haldinn en síðasta ár komu um 8.000 gestir. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá...
Tíminn | 05.05.2011 |
Ritstjórn
Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip verður áfram siglt í Landeyjahöfn fram helgi og verður farið eftir sjávarföllum, öldufari og veðri. Farnar verða þrjár ferðir á dag og er búið að opna fyrir bókanir í þessar ferðir. Farþegar eru hvattir til að mæta tímanlega og vera tilbúnir með farmiða sína...
Tíminn | 03.05.2011 |
Ritstjórn
Karl og kona voru í Héraðsdómi Suðurlands dæmd til að greiða hvort öðrum 300.000 krónur í bætur fyrir meiðyrði. Þau dæmdu heita Eggert Haukdal og Benedikta Haukdal og tengist málið deilumáli sem áður hefur komist til kasta dómstóla. Deilurnar hófust eftir að Eggert seldi Benediktu og manni hennar jörðina Bergþórshvol...
Tíminn | 03.05.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Selfossi rannsakar hvarf á Rottweilertík sem var í haldi lögreglunnar eftir að hafa bitið konu í Hveragerði 4. mars síðastliðinn. Tíkin var í haldi á viðurkenndu hundahóteli á Arnarstöðum í Flóa....
Tíminn | 03.05.2011 |
Ritstjórn
Í gær og í dag er áfram unnið að dýpkun í Landeyjahöfn. Útlit er fyrir að nægjanlegt dýpi náist í dag til að ferjusiglingar til hafnarinnar geti hafist, en það mun skýrast betur að lokinni dýptarmælingu síðar í dag. Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Siglingamálastofnunar, segist ekki geta lofað því að Landeyjahöfn verði opnuð aftur á morgun, "en við bíðum niðurstöðu mælinga og vonum það besta," sagið hún....
Tíminn | 02.05.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði 19 ökumenn fyrir hraðakstur í síðustu viku og ók sá hraðasti á 141 km hraða á klukkustund. Síðasta helgi var róleg og nefnir lögreglan leiðinlegt veður sem helstu ástæður þess að ekki var meira að gera en það rigndi mikið þar eins og á fleiri stöðum á Suðurlandi síðustu helgi. ...
Tíminn | 02.05.2011 |
Ritstjórn
Að sögn lögreglunar á Selfossi var lítið um afbrot í umdæmi hennar um síðustu helgi en þó þurfti lögreglan að hafa afskipti af nokkrum einstaklingum. Helst þurfti lögreglan að hafa afskipti af pari sem gerði sér ferð á Selfoss til að stela og svíkja fjármuni úr verslunum. Fyrst reyndi konan að svíkja pening út úr verslun með því að stela þaðan bók og skila henni svo í sömu verslun til að fá inneignarnótu...
Tíminn | 30.04.2011 |
Ritstjórn
Þessa helgina stendur yfir áttunda landsmót kvennakóra á Íslandi og er það Jórukórinn á Selfossi sem sér um framkvæmd mótsins þetta árið. Konum á Selfossi fjölgar til muna yfir helgina því um 600 konur eru skráðar til þáttöku og auk íslensku kvennakóranna mun Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn einnig taka þátt. Haldnir verða nokkrir tónleikar á landsmótinu...
Tíminn | 30.04.2011 |
Ritstjórn
Íbúar í Árborg geta fengið reiktunarsvæði hjá sveitafélaginu í sumar. Hefur sveitastjórnin ákveðið að nýta svæði fyrir vestan Eyrabakka undir ræktun og eiga skilyrði þar að vera sem best. Munu íbúar geta leigt svæði frá 10 m² upp í 50 m² allt eftir þörfum hvers og eins....
Tíminn | 29.04.2011 |
Ritstjórn
Nýr forstöðumaður Kötluseturs í Mýrdal hefur tekið til starfa og er það Eggert Sólberg Jónsson. Eggert er með master próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og ætti sú þekking að nýtast honum vel í starfi forstöðumanns Kötluseturs. ...
Tíminn | 29.04.2011 |
Ritstjórn
Víða hér á landi var fylgst með brúðkaupi þeirra Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton í Westminster Abbey dómkirkjunni í Lundúnum í dag í gegnum sjónvarpið. Svo var einnig í Shell-Skálanum á Stokkseyri en þar kom Öldungaráðið saman til sérstaks hátíðarfundar vegna brúðkaupsins í Lundúnum....
Tíminn | 27.04.2011 |
Ritstjórn
Starfsmenn Suðurlandsdeildar Skógræktar ríkisins vinna nú hörðum höndum að því að finna til efni í fiskihjalla. Hefur eftirspurn eftir innlendu hjallaefni aukist mjög undanfarið og er helsta skýringin sú að fiskihjallar á Suðurlandi hafa skemmst vegna veðurs í vetur...
Tíminn | 27.04.2011 |
Ritstjórn
Undanfarið hefur staðið yfir söfnun á prjónafatnaði sem sendur verður til hamfarasvæðanna í Japan og hafa þar hornfirskar prjónakonur ekki látið sitt eftir liggja. Konurnar í dagvistinni í Ekru afhentu á dögunum í söfnunina 67 sokkapör, 31 pör af vettlingum, 11 húfur , 5 trefla og slæður, 2 barnateppi og 1 barnasett....
Tíminn | 27.04.2011 |
Ritstjórn
Kosning til vígslubiskups í Skálholti, sem fram fór fyrr í mánuðinum, hefur verið dæmd ógild. Kosningin verður því væntanlega endurtekin frá upphafi. Ástæðan fyrir ógildingunni er að tvö atkvæði bárust eftir að frestur til að skila inn atkvæðum í kjörinu hafi verið runninn út, en atkvæðin tvö voru talin með....
Tíminn | 27.04.2011 |
Ritstjórn
Ellefu manns sækja um skólastjórastöðu við Barnaskólann Eyrabakka og Stokkseyri. Þetta kemur fram á Sunnlenska.is. Umsækjendurnir eru Anna Sigríður Árnadóttir, Bergljót Kristín Ingvadóttir, Elísabet St. Jóhannsdóttir, Helgi Rafn Jósteinsson...
Tíminn | 26.04.2011 |
Ritstjórn
Töluvert var um skemmdarverk í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Aðfaranótt 21. apríl voru þrír menn handteknir grunaðir um að hafa skemmt stafi á Tryggingamiðstöðinni. Þeir neituðu allir sök og var sleppt eftir skýrslutöku. Rúður voru brotnar í tveimur húsum, fyrst í Hamraskóla og svo í veitingastaðnum Kaffi Maríu...
Tíminn | 26.04.2011 |
Ritstjórn
Icelandic Glacial Water hefur verið valið opinbert vatn klassísku kvikmyndahátíðar TCM 2011. Icelandic Glacial Water er tappað á flöskur í Ölfusi og er merkið að hluta til í eigu athafnamannsins Jóns Ólafssonar en hann var einn af stofnendum Icelandic Water Holdings sem framleiðir vatnið...
Tíminn | 26.04.2011 |
Ritstjórn
Seinni partinn í gær barst tilkynning til lögreglunnar á Selfossi um ferðamann sem slasaðist á fæti er hann var á göngu í Reykjadal, sem er ofan við Hveragerði. Björgunarsveitarmenn í Hveragerði voru kallaðir til aðstoðar. Þegar komið var að manninum var hann með opið fótbrot og hafði misst mikið blóð....
Tíminn | 25.04.2011 |
Ritstjórn
Í vikunni voru 77 mál skráð hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Þrettán ökumenn voru stöðvaðir fyrir að aka of hratt í umdæminu, en sá sem hraðast ók var á leið sinni austan við Hvolsvöll á 141 kílómetra hraða. Frá áramótum hafa 113 ökumenn verið stöðvaðir fyrir að aka of hratt á Hvolsvallarsvæðinu...
Tíminn | 23.04.2011 |
Ritstjórn
Bakkabrim er kaffiskýli við gömlu bryggjuna á Eyrarbakka en það er í litlu 30 fermetra húsi sem byggt var af eigendunum sjálfum, hjónunum Örnu Ösp Magnúsdóttur og David Kelley í fyrra. Þetta er líklega eitt minnsta kaffihús landsins og nú hafa þau opnað kaffihúsið aftur eftir veturinn og munu hafa opið alla páskahátiðina eða til annars í Páskum, frá kl. 11:00 til 17:00....
Tíminn | 21.04.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðna nótt var gerður aðsúgur að lögreglumönnum sem voru við skyldustörf í Vestmannaeyjum. Var þar um að ræða ungmenni er voru fyrir utan skemmtistaðinn Prófastinn í Vestmannaeyjum en þar fór fram dansleikur á vegum Framhaldsskóla Vestmannaeyja....
Tíminn | 20.04.2011 |
Ritstjórn
Tvö eignarspjöll voru tilkynnt til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í liðinni viku. Annað þeirra átti sér stað um borð í Herjólfi. Hafði einhver, eða einhverjir, tekið sig til og hent björgunarhring í sjóinn. Málið er óupplýst...
Tíminn | 18.04.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Selfossi hefur áhyggjur af því hve margir voru sektaðir fyrir að vera ekki spenntir í öryggisbelti í síðustu viku. Lögreglan sektaði ellefu ökumenn fyrir að nota ekki öryggisbelti, einn ökumaður var kærður fyrir að farþegi yngri en 15 ára væri ekki í belti og svo var farþegi í framsæti var kærður fyrir að vera ekki í belti. Lögreglan minnir á að sekt fyrir að vera ekki spenntur í belti er 10.000 kr....
Tíminn | 14.04.2011 |
Ritstjórn
Lengi hefur staðið styrr um málefni gæludýra í Árborg og ekki er langt síðan að sveitafélagið bannaði lausagöngu katta en það entist ekki lengi. Lausaganga hunda er aftur á móti bönnuð og hvergi er hægt að leyfa hundum að hlaupa frjálsum um....
Tíminn | 13.04.2011 |
Ritstjórn
Herjólfur siglir ekki í dag vegna viðhalds og ljóst er að þegar ferðir hefjast að nýju mun hann sigla til Þorlákshafnar, en ekki Landeyjahafnar, og þannig mun það vera fram yfir páska....
Tíminn | 12.04.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku var lögreglu í Vestmanneyjum tilkynnt um að innkaupapoka með matvælum hafi verið stolið þar sem hann stóð á gangstétt á Bárustíg fyrir utan verslunina 66 í Eyjum. Hafði eigandi pokans verið að bera muni úr bifreið sinni, upp tröppur sem liggja að íbúð sem er fyrir ofan verslunina...
Tíminn | 11.04.2011 |
Ritstjórn
Þrátt fyrir afleitt veður um helgina náði dýpkunarskipið Skandia að dýpka lítillega í Landeyjahöfn. Framundan eru miklir umhleypingar og miðað við ölduspá verður ölduhæðin yfir 2 metra fram til 20 apríl. Það er því nokkuð ljóst að enn verður bið á því að Herjólfur geti siglt þangað....
Tíminn | 11.04.2011 |
Ritstjórn
Talsvert var að gera hjá lögreglunni á Hvolsvelli þessa vikuna. Eitthvað var um foktjón á Hvolsvelli og í nágrenni og vörubílspallur fauk á nokkur hús í Vík og urðu einhverjar skemmdir vegna pallsins. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu um helgina. ...
Tíminn | 11.04.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn á Selfossi sinntu margs konar verkefnum um helgina og voru mikið á ferðinni meðal annars í tengslum við kosningarnar. Í gærkvöldi var maður handtekinn í Flóa grunaður um ölvunarakstur. Bifreiðin hafði hafnað utan vegar og maðurinn sat undir stýri þegar lögregla kom á staðinn...
Tíminn | 07.04.2011 |
Ritstjórn
Mikil umræða hefur spunnist um siglingar Herjólfs til og frá Landeyjarhöfn og vandræðagang við dýpkun hafnarinna. Eimskip, sem gerir út Herjólf, segir í tilkynningu að staðreyndir málsins séu að nýjasta dýptarkort, gefið út af Siglingamálastofnun, sýni að dýpi í hafnarmynni Landeyjarhafnar er hvergi nægjanlegt svo öruggt þyki að sigla inn í höfnina....
Tíminn | 05.04.2011 |
Ritstjórn
Aðfararnótt 5. apríl var brotist inn í hesthús á Selfossi og þaðan teknir 6 hnakkar ásamt miklu af beislum, múlum og öðrum fylgihlutum. Þetta er umtalsvert tjón fyrir eiganda og er því mikið lagt upp úr að finna reiðtygin aftur.
...
Tíminn | 05.04.2011 |
Ritstjórn
Rólegt var hjá lögreglunni á Hvolsvelli í liðinni viku. 19 ökumenn voru stöðvaðir fyrir að aka of hratt og var sá hraðast á 130 km/klst., þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Eitt hestaslys var rétt fyrir austan Hvolsvöll í vikunni og var hestamaðurinn fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur til frekari skoðunar. ...
Tíminn | 04.04.2011 |
Ritstjórn
Sunnudaginn 10. apríl kl. 16 mun tríóið Sopranos halda tónleika í Selinu á Stokkalæk. Tríóið skipa söngkonurnar Hörn Hrafnsdóttir, Margrét Grétarsdóttir og Svana Berglind Karlsdóttir. Þær stöllur eru þekktar fyrir léttleika, glaðværð og leikræn tilþrif og munu reita af sér fjaðrir og fima tónstiga á tónleikunum....
Tíminn | 01.04.2011 |
Ritstjórn
Línubáturinn Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25 hefur verið að gera það gott á tegundum utan kvóta síðustu vikurnar. Aflinn úr síðustu fjórum veiðferðum í mars er um 50 tonn af blálöngu og aflaverðmæti miðað við sölutölur fiskimarkaða um 12 milljónir króna....
Tíminn | 01.04.2011 |
Ritstjórn
Almannagjá á Þingvöllum er opinn fyrir umferð á ný. Bráðabirðaviðgerð gekk vel og var smíðaður fleki yfir holuna sem myndaðist í gær og girðing sett umhverfis. Þjóðgarðurinn mun skoða í framhaldinu hvernig göngustígurinn verður lagfærður og til hvaða varanlegu aðgerða verði gripið. ...
Tíminn | 01.04.2011 |
Ritstjórn
Hugmyndir eru uppi um byggingu kirkju sem einnig yrði menningarhús í miðbæ Hvolsvallar. Hugmyndirnar voru kynntar á opnum fundi í Hvolsskóla í vikunni. Þar fór formaður byggingarnefndar Kjartan Þorkelsson, sýslumaður, yfir undirbúningsvinnu sérstakrar byggingarnefndar ...
Tíminn | 01.04.2011 |
Birgir Þórðarson
Mikið hefur verið um að vera í Sveitarfélaginu Ölfusi að undanförnu, bæði í dreifbýlinu og höfninni. Athygli vakti í vikunni tíðar skipakomur í Þorlákshöfn m.a. losaði hollenska flutningaskipið Velserdijk um 3.000 tonn af áburði fyrir bændur. Þrjú fyrirtæki flytja inn áburð; ...
Tíminn | 01.04.2011 |
Ritstjórn
Í leysingum undanfarinna daga myndaðist lítil hola í göngustíginn í Kárastaðastíg efst í Almannagjá á Þingvöllum. Þegar starfsmenn þjóðgarðsins skoðuðu hana og ætluðu að lagfæra kom djúp gjá í ljós undir henni sem teygir sig til suðurs undir göngustígnum. ...
Tíminn | 31.03.2011 |
Ritstjórn
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í dag, með sex atkvæðum af sjö, harðorða ályktun þar sem nýrri reglugerð vegna makrílveiða er mótmælt. Í ályktuninni er lýst yfir andstöðu við þau vinnubrögð sem voru viðhöfð í aðdraganda nýrrar reglugerðar sjávarútvegsráðherra um veiðararnar, að því er fram kemur í Eyjafréttum....
Tíminn | 31.03.2011 |
Ritstjórn
Póstnúmer í sveitarfélaginu Ölfuss hafa löngum valdið íbúum þar vanda af ýmsu tagi; í dreifbýlinu hefur póstnúmerið verið „801 Selfoss“ og í Höfninni „815 Þorlákshöfn“. Um áramót ákvað Póstmálastjórn að breyta þessu í dreifbýlinu og kalla það „816 Þorlákshöfn“. Þetta finnst íbúum ekki gott og veldur misskilningi bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga....
Tíminn | 30.03.2011 |
Ritstjórn
Við reglubundið eftirlit á aflspennum Búrfellsstöðvar kom í ljós veikleiki í einum af spennum stöðvarinnar. Talið er að hætta sé á því að veikleikinn geti síðar leitt til bilunar á spenninum. Því hefur verið ákveðið að skipta út umræddum aflspenni. ...
Tíminn | 29.03.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku sást stakur svartsvanur í álftahóp í Mýrdalnum – en það er sjaldgæf sjón hér á landi. Svartsvanurinn er algengur í Ástralíu og lifir þar á fljótum og stöðuvötnum. Fullorðinn fugl er eilítið smærri en okkar hvíta álft. ...
Tíminn | 28.03.2011 |
Ritstjórn
Sautján ökumenn voru stöðvaðir um umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli fyrir að aka of hratt í liðinni viku. Sá sem hraðast ók var á 125 km. hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km. en það var við Hjörleifshöfða. Alls voru bókuð 63 mál hjá lögreglunni á Hvolsvelli í vikunni....
Tíminn | 28.03.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn frá Selfossi á ómerktri lögreglubifreið á leið í verkefni veittu, í síðustu viku, athygli einkennilegu aksturslagi bifreiðar á Austurvegi á Selfossi. Fylgst var með bifreiðinni og ekki leið á löngu að snjóboltar flugu út um hliðarrúður bifreiðarinnar. Greinilegt var að ökumaður var að kasta þeim í bifreiðar sem urðu á leið hans.
...
Tíminn | 28.03.2011 |
Ritstjórn
Nú er verið að setja upp leikritið Gaukssögu í Árnesi Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Leikdeild UMFGnúp frumsýndi um helgina leikritið sem Vilborg Halldórsdóttir hefur samið um Gauk Trandilsson á Stöng í Þjórsárdal....
Tíminn | 25.03.2011 |
Ritstjórn
Vegagerðin og sveitarfélagið Árborg undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að gera könnun á hagkvæmni sameiginlegs brúar- og virkjunarmannvirkis í Ölfusá vegna undirbúnings færslu Hringvegar 1 framhjá Selfossi í samræmi við samgönguáætlun....
Tíminn | 25.03.2011 |
Ritstjórn
Fjórir ungir sagnfræðingar stefna að því að bjóða upp á menningartengda ferðaþjónustu í stórum þjóðveldisskála úr torfi og grjóti innan Þingvallasvæðisins. Þeir hafa kynnt hugmyndina fyrir ráðamönnum í þjóðgarðinum og bíða nú svars hvort leyfi fáist til byggingar innan svæðisins ...
Tíminn | 25.03.2011 |
Ritstjórn
Mæðgurnar, Ingibjörg Sólrún Magnúsdóttir og Elísabet Halldórsdóttir, hafa tekið að sér veitingareksturinn í golfskálanum á Kiðjabergsvelli í sumar. Þess má geta að Elísabet er eiginkona Birgis Leifs Hafþórssonar atvinnukylfings og golfkennara....
Tíminn | 24.03.2011 |
Ritstjórn
Um síðustu helgi varstofnfundur Fornvélafélags Íslands haldinn í húsakynnum Jötun Véla á Selfossi. Reiknaðvar með 15-20 á fundinn enmætingin fór fram úr björtustuvonum því um 50 manns mættu, að því er fram kemur í héraðsfréttablaðinu Dagskránni á Selfossi....
Tíminn | 24.03.2011 |
Ritstjórn
Um næstu helgi verður blásið til nýrrar tónlistarhátíðar í Selinu á Stokkalæk. Hátíðin nefnist Podium festival en þar mun ungt tónlistarfólk víðs vegar úr Evrópu koma saman og leika fjölbreytta kammermúsik. Hugmyndin með hátíðinni, sem hefur áður verið haldin í Noregi og Þýskalandi, er að skapa ferskan vettvang fyrir nýja kynslóð tónlistarmanna...
Tíminn | 23.03.2011 |
Ritstjórn
Hreppsnefnd Hrunamannahrepps gerir „alvarlegar athugasemdir“ við fyrirhugaðar breytingar á hækkun á ökuleyfisaldri úr 17 ára í 18 ára. Auk þess átelur hreppsnefndin breytingar um að hækka aldur þeirra sem stjórna dráttarvél við landbúnaðarstörf úr 15 ára upp í 16 ára aldur....
Tíminn | 23.03.2011 |
Ritstjórn
Í Pésanum, hinu víðförla fréttablaði Hrunamannahrepps, kemur fram að Hrunamenn hafa aftur rofið 800 manna múrinn. Þetta gerðist núna í byrjun mars. Á liðnum fjórum áratugum hefur íbúum Hrunamannahrepps fjölgað umfram landsmeðaltal, eða úr tæplega 500 árið 1970 og nú 2011 eru þeir orðnir fleiri en 800....
Tíminn | 22.03.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið. Skemmtana hald helgarinnar fór þokkalega fram, þó var eitthvað um pústra við skemmtistaði og ein líkamsárás kærð eftir þær æfingar, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar í Eyjum....
Tíminn | 22.03.2011 |
Ritstjórn
Landgræðslan hefur gengið frá kaupum á 850 tonnum af áburði, að undangengnu útboði á Evrópska efnahagssvæðinu, að því er fram kemur á heimasíðu Landgræslunnar, www.land.is. Skeljungur átti hagstæðasta tilboðið og nemur heildarupphæð samningsins rúmum 70 milljónum króna....
Tíminn | 18.03.2011 |
Ritstjórn
Samtök Lista- og handverksfólks í Ölfusi efndi til handavinnukvölda í vetur þar sem unnið var sameiginega að gerð vinateppis. Þátttakendur prjónuðu eða hekluðu búta sem voru 15x15 cm stórir og í lokin voru allir bútarnir heklaðir saman. Teppið er nú komið á Bæjarbókasafn Ölfuss þar sem það er geymt. ...
Tíminn | 17.03.2011 |
Ritstjórn
Föstudaginn 11. mars þreyttu 22 sundmenn Guðlaugssund í Laugaskarði í Hveragerði. Synt var til að minnast frækilegs afreks Eyjamannsins Guðlaugs Friðþórssonar er komst lífs af er báturinn Hellisey sökk um 6 kílómetra suðaustur af Heimaey....
Tíminn | 17.03.2011 |
Ritstjórn
Kvikmyndin Breki er 11 mínútna löng stuttmynd sem fjallar um minningar Haraldar Ara Karlssonar þegar faðir hans, Karl, ferst í hörmulegu sjóslysi um borð í togaranum Breka VE. Hægt verður að horfa á myndina á Netinu í einhvern tíma og því um að gera fyrir þá sem ekki hafa séð myndina að nýta sér þetta tækifæri. ...
Tíminn | 15.03.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Útvegsbændafélags Vestmannaeyja mótmælir harðlega reglugerð um stjórn makrílveiða á komandi vertíð. Sérstaklega athygli vekur einróma samþykkt stjórnar LÍÚ, þar sem lagt var til að viðbótarheimildum yrði úthlutað á allar útgerðir, skuli algjörlega hundsuð....
Tíminn | 11.03.2011 |
Ritstjórn
Að miðnætti þriðjudagsins 8 mars losnuðu útigangshross frá Norður Götum með þeim afleiðingum að eitt þeirra varð fyrir bíl á þjóðvegi, miðja vegu milli Gatna og Gilja. Lögreglan var tilkölluð af hálfu ökumanns en hrossin voru horfin af braut er lögregluna bar að. Eigendum hrossins var ekki tilkynnt um þetta af hálfu lögreglu og gátu því ekki hafið leit fyrr en daginn eftir. Öll hross hafa skilað sér utan eins veturgamals merarfolalds sem þrátt fyrir mikla leit hefur ekki komið í leitirnar....
Tíminn | 08.03.2011 |
Ritstjórn
Fýll sem kom í net við Eyjólfsklöpp suðvestur af Heimaey um miðjan febrúar, reyndist vera að minnsta kosti fjörtíu og eins árs gamall. Fuglinn var merktur og kom í ljós að Óskar Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða hafði merkt þennan fýl fullorðinn í Stórhöfða 17. október 1970....
Tíminn | 08.03.2011 |
Ritstjórn
Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands (HNLFÍ) í sumar en þá verður brugðist við þeim niðurskurði sem stofnunin varð fyrir í upphafi árs með því að opna hótel í húsakynnunum en hefðbundin starfsemi mun liggja niðri í 8 vikur í sumar. Með tilkomu Hotel Hot Spring í Hveragerði mun gistirými í Hveragerði aukast til muna en næsta sumar verða 234 hótelherbergi í Hveragerði. Er þetta án efa met miðað við íbúatölu en Hvergerðingar eru rúmlega 2.300 talsins....
Tíminn | 08.03.2011 |
Ritstjórn
Gosið í Eyjafjallajökli hefur verið valið eldgos ársins 2010 af Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna, að því er fram kemur í frétt á vef Discovery. Í greininni kemur fram að 64 eldfjöll í heiminum hafi verið virk á síðasta ári. Sum eldfjallanna hafi gosið í margar aldir. En víða annarsstaðar kom eldgosið algjörlega á óvart. ...
Tíminn | 03.03.2011 |
Ritstjórn
Um eitt tonn af rófum frá Hrafnkeli Karlssyni bónda að Hrauni í Ölfusi hafa verið sendar mánaðarlega til Færeyja síðan í haust, að því er fram kemur á Sunnlenska.is. Að sögn Hrafnkels líkar Færeyingum vel við rófurnar og útlit fyrir að áframhaldandi sala verði á þeim þangað og eru vonir um að hægt verði að auka magnið smám saman....
Tíminn | 02.03.2011 |
Ritstjórn
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi og fyrrum sýslumaður á Ísafirði, er einn sjö umsækjenda um embætti ríkissaksóknara. Umsóknirnar verða nú sendar til meðferðar hjá hæfnisnefnd er skal vera innanríkisráðherra til fulltingis við undirbúning skipunar í embættið og skila honum rökstuddu og skriflegu mati á hæfni umsækjenda. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. apríl nk. en þá lætur Valtýr Sigurðsson af störfum....
Tíminn | 01.03.2011 |
Ritstjórn
41. ársþing USVS var haldið á Hótel Vík í Mýrdalnum þann 26. mars. Þar var m.a. tikynnt um val á Íþróttamanni USVS 2010. Arnar Snær Ágústsson frá umf. Kötlu varð fyrir valinu. Efnilegasti íþrótttamaður USVS 2010 var kjörinn Þorsteinn Björn Einarsson umf. Kötlu...