logo
miðvikudagur, 22. febrúar 2012
Mynd

Vilja sjá stórskipabryggju í Grindavík

Árni Johnsen er fyrsti fluttningsmaður að þingsályktunartillögu þar sem skorað er á innanríkisráðherra að hefja undirbúning og kostnaðaráætlun að dýpkun og breikkun innsiglingarinnar í Grindavíkurhöfn og aðstöðu fyrir stórskipabryggju við Stórubót eða innan hafnar. Þess er vænst að Siglingastofnun geti á skömmum tíma skilað hugmyndum að möguleikum bóta og uppbyggingar í Grindavík varðandi fiskiskipahöfn og aðstöðu flutningaskipa en mikilvægt er að hafa sem raunhæfasta kostnaðaráætlun til þess að vinna með að framgangi málsins....

Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum 10,7%

MyndSkráð atvinnuleysi í september 2011 var 6,6% að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar. Að meðaltali voru 10.759 atvinnulausir í september og fækkaði atvinnulausum um 535 að meðaltali frá ágúst eða um 0,1 prósentustig. Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 249 að meðaltali og konum um 286. Atvinnulausum fækkaði um 379 á höfuðborgarsvæðinu og um 156 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 7,6% á höfuðborgarsvæðinu en 4,9% á landsbyggðinni. Mest var það á Suðurnesjum 10,7%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,1%. Atvinnuleysið var 6,4% meðal karla og 6,8% meðal kvenna....

Lesa meira

Ný náttúruverndarsamök stofnuð á Reykjanesskaga

MyndUndanfarið hefur hópur áhugafólks um náttúruvernd undirbúið stofnun náttúruverndarsamtaka á Reykjanesskaga. Stofnfundur samtakanna verður haldinn þann 18. október næstkomandi og er markmiðið að sameina náttúruverndarfólk á Suðvesturlandi í eina öfluga breiðfylkingu sem muni láta til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum í landnámi Ingólfs....

Lesa meira

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Pennar

Mynd
27.1.2012 12:30:00
Hrund Guðmundsdóttir
Fýluferð
Mynd
9.12.2011 14:36:00
Ari Kr. Sæmundsen
Bullur og bull
Mynd
4.12.2011 20:12:00
Skafti Harðarson
Fyrir upplýsta umræðu um ESB
Mynd
21.11.2011 21:11:00
Frosti Sigurjónsson
Auglýsingarýni: Vissir þú?
Mynd
19.10.2011 00:41:00
Hilmar Gunnars
Tækniframfarir í arkitektúr.
Mynd
17.9.2011 18:25:00
Gunnar Jónsson
Flipp-femínismi
Mynd
1.9.2011 01:08:00
Ásmundur Einar Daðason
Brottflutningarnir kosta milljarða!
Mynd
11.8.2011 15:26:00
Reynir Þór Eggertsson
Að vera stikkfrí
Mynd
9.8.2011 10:25:00
Gissur Þórður Jóhannesson
Blautalón.
Mynd
11.7.2011 15:22:00
Les Mandarins
Hin drungalegi akstur æskunnar minnar
Mynd
23.6.2011 10:05:00
Ragnheiður Ingimundardóttir
Sjónvarpið og fl
Mynd
14.5.2011 00:43:00
BÍÓTíminn
Route Irish (2011) Gagnrýni

Fleiri Pennar

Suðurnesjamenn blása til skemmtilegra og fræðandi vinnudaga um næstu helgi

MyndAllir bæjarstjórar á Suðurnesjum hafa skrifað sameiginlega grein til að vekja athygli á nýju verkefni sem er hluti af uppbyggingarstarfsemi á svæðinu. Neikvæðar fréttir frá svæðinu hafa undanfarið verið áberandi í fjölmiðlum og er þetta hluti af því starfi að byggja upp jákvæðara viðhorf gagnavart atvinnustarfsemi á svæðinu....

Lesa meira

Framsóknarmenn vilja að bæjarfélögin fimm á Suðurnesjum sameinist í eitt sveitarfélag

MyndFélagsfundur í Framsóknarfélagi Reykjanesbæjar sem haldinn var á dögunum ályktar að það sé samfélaginu, íbúum og fyrirtækjum á Suðurnesjum til hagsbóta að bæjarfélögin fimm á Suðurnesjum sameinist í eitt sveitarfélag. Með því náist fram sparnaður, hagræðing og meiri skilvirkni í rekstri. ...

Lesa meira

Bæjarstjórn Grindavíkur leggur til að fiskveiðifrumvarpið verði dregið til baka

MyndBæjarstjórn Grindavíkurbæjar fjallaði á fundi sínum í gær, 7. september, um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, þingmál nr. 827, og fyrirliggjandi umsögn ferða- og atvinnumálanefndar um þingmál nr 827. Í umsögninni kemur ma. fram: Sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík skapa um 1.000 bein störf við veiðar og vinnslu á Íslandi, sem eru álíka mörg störf og eru í áliðnaði á Íslandi. Varlega áætlað hleypur fjöldi afleiddra starfa sem sjávarútvegur í Grindavík skapar á fleiri hundruðum....

Lesa meira

Voveiflegt andlát manns í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum

MyndVið reglubundið eftirlit lögreglu með fanga í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum um kl. 23:20 síðastliðið mánudagskvöld var komið að fanga sem svaraði ekki áreiti og kom ekki til meðvitundar þrátt fyrir endurlífgunartilraunir lögreglu og sjúkraflutningsmanna. Læknir sem kvaddur var á vettvang úrskurðaði manninn látinn. Hinn látni var 33 ára gamall pólskur karlmaður sem lögreglan hafði handtekið fyrr um daginn vegna mikillar ölvunar,...

Lesa meira

Mynd

Bátar skráðir í Grindavík með mestar aflaheimildir í þorski

Mynd
Á síðasta fiskveiðiári voru bátar skráðir með heimahöfn í Reykjavík með mestar aflaheimildir íslenskra skipa og báta, eða 44.053 þorskígildistonn sem eru 14,4% úthlutaðra aflaheimilda. Næst komu bátar skráðir í Vestmannaeyjum með 30.645 þorskígildistonn eða 10% allra aflaheimilda og bátar skráðir í Grindavík með 27.227 þorskígildistonn (8,9% aflaheimilda). Sjá töflu yfir 10 hafnir með mest aflamark hér....

Tveir piltar villtir á Reykjanesi - þyrla Gæslunnar flutti þá heim

Mynd
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út rétt um miðnætti til leitar að tveimur 19 ára piltum sem voru villtir norður af Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Höfðu þeir verið á ferð a fjórhjólum þegar þeir villtust í myrkrinu. Gátu þeir látið vita af vandræðum sínum í gegnum síma og var þá hafin leit. Björgunarsveitir náðu sambandi við drengina rétt fyrir klukkan þrjú í nótt og voru þeir þá orðnir kaldir....

Ferðamenn í fyrsta sinn yfir 100 þúsund í einum mánuði

Mynd
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fór 101.841 erlendur ferðamaður frá landinu í ágúst síðastliðnum eða um 12 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Aukningin nemur 13,7% milli ára. Erlendir ferðamenn hafa aldrei áður farið yfir 100 þúsund í einum mánuði og eru þeir nú helmingi fleiri en þeir voru í ágústmánuði 2002, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ferðamálastofu....

Kristbjörg er nýr formaður Landssambands framsóknarkvenna

Mynd
15. landsþingi Landssambands framsóknarkvenna var haldið í Grindavík um helgina og var slitið í dag. Kristbjörg Þórisdóttir er nýr formaður framsóknarkvenna. Þingið var með sérstaklega hátíðlegu sniði vegna 30 ára afmælis landssambandsins. Á þinginu komu saman brautryðjendur landssambands framsóknarkvenna og núverandi framlínukonur. Þingað var bæði laugardag og sunnudag. Sérstök hátíðardagskrá var haldin á laugardagskvöldinu þar sem framsóknarkonum var boðið í heimsókn í Bláa Lónið. ...

Allt fór friðsamlega fram á Ljósanótt í Reykjanesbæ - metfjöldi í miðbænum

Mynd
Engin alvarleg mál komu til kasta lögreglu á Ljósanótt í Reykjanesbæ í gær fyrir utan slys í leiktæki á hátíðarsvæðinu, þar sem 9 ára gömul stúlka slasaðist alvarlega á handlegg eftir að hafa fest hana í tækinu. Mikið annríki var hjá lögreglunni í gærkvöldi en miðað við mannfjölda gekk allt vel fyrir sig. Umferðin gekk hægt en greiðlega fyrir sig og lítið um umferðaróhöpp um helgina....

Brúðkaup í beinni á Ljósanótt

Mynd
Á Ljósanótt þann 2. september nk. ætlar ungt par úr Reykjanesbæ, fótboltakappinn Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, að ganga í það heilaga. Undirbúningur brúðkaupsins er liður í dagskrá Ljósanætur en gestum er boðið að fylgjast með förðun og hárgreiðslu á veitingastaðnum í Duus húsi frá kl. 10.00 til 14.00. ...

Fleiri fréttir

Keflavíkurflugvöllur

SV 9 m/s
4,1°
Skýjað

fimmtudagur

ASA 10 m/s
/
Rigning

föstudagur

V 16 m/s
/
Lítils háttar rigning

laugardagur

VSV 5 m/s
/
Alskýjað

sunnudagur

SSV 5 m/s
/
Lítils háttar rigning

mánudagur

SSV 6 m/s
/
Snjóél

þriðjudagur

SSV 8 m/s
/
Skúrir
Síðast sótt: 22.2.2012- vedur.is
Mynd
 
Lesa meira

Uppljóstrarinn

Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður

bjornvalurUppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan. Hefur sú foringjahollusta gengið svo langt að heimildarmenn uppljóstrarans eru orðnir sannfærðir um að blogg Björns Vals sé skipulega notað til að koma á framfæri óþægilegum árásum á andstæðinga fjármálaráðherra sem hann vill ekki sjálfur gangast við, en þar fara nú hæst árásir á "íhaldið" sem Björn Valur skilgreinir sem Forseta Íslands og Biskups Íslands og að því er virðist alla aðra sem ekki eru flokksbundnir í ríkisstjórnarflokkunum.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þótt Björn Valur hafi komið inn á Alþingi í kosningum 2009 sem fulltrúi nýrra tíma á Íslandi þá nái samstarf hans við Steingrím J. Sigfússon mun lengra aftur í tímann. Á vef Alþingis má t.d. sjá að Björn Valur sat á Alþingi sem varaþingmaður Alþýðubandalagsins árið 1990.  Það sem ekki er tekið fram þar er að Björn Valur var þá (sem og árin 2007 og 2008) varamaður Steingríms J. Sigfússonar.

 

Björn Valur, eða "varðhundur fjármálaráðherra" eins og heimildarmenn skopast með að hann sé nefndur í gríni og alvöru, hefur því verið vinstri kantmaður í íslenskum stjórnmálum í rúm tuttugu ár og allan þann tíma verið í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon.  Uppljóstraranum getur ekki annað en glaðst yfir því að Birni Val hafi loksins verið launuð húsbóndahollustan með embætti þingflokksformanns.   Heimildarmenn telja að Þuríður Backman (sem tók eftirminnilega við embættinu í fréttaviðtali á flugvelli úti í löndum með orðunum "HA?") hafi aldrei verið fyrsti kostur forystu VG. Þuríður hafi aðeins lent í starfinu óvart þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að láta hafa sig að fífli eftir að forysta VG setti hana af eftir fæðingarorlof eins og frægt er orðið.

 

Heimildarmenn uppljóstrarans telja að með kosningu Björns Vals í embætti þingflokksformanns hafi Steingrímur J. Sigfússon slegið tvær flugur í einu höggi, treyst til muna tak sitt á ódælum þingmönnum innan flokks og gefið árásum varðhundarins á "íhaldið" stóraukið vægi út á við. Hvort tveggja komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er um líf ríkisstjórnarinnar á komandi vetri.

Lesa meira

Kvestor

Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?

Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út 1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur fram í þessari bók.

Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."

Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?
Lesa meira

Aðsendar greinar

Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?

vigdis framsoknÞann 16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá verið halda umsókninni að ESB til streitu?

Í nefndaráliti með tillögunni kemur fram að með umsóknarferlinu yrði tryggt að Alþingi yrði hluti af því heildarferli stjórnsýslu sem mál ættu að fara í gegnum áður en þau yrðu endanlega afgreidd og þannig átti að tryggja að stjórnsýslan miðlaði upplýsingum til þingsins um málefni er tengdust viðræðunum svo að þingið geti gegnt eftirlitshlutverki sínu í ferlinu. Á þessu er mikill misbrestur því þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, utandagskrárumræður og beiðnir um fundi í utanríkisnefnd fá þingmenn afar takmarkaðar upplýsingar um aðlögunarferlið. Sér þess sér helst stað í frumvörpum ríkisstjórnarinnar við innleiðingar gerða og tilskipana ESB.

Sá háttur er samt hafður á að hvergi er tiltekið í frumvörpunum sjálfum að um skilyrði ESB sé að ræða vegna umsóknarinnar. Blekkingarleik er beitt í skjóli EES samningsins. Nefni ég hér örfá frumvörp sem orðið hafa að lögum á síðasta þingi sem skilyrt var að lögleiða og hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. Ákvæði um Þróunarsjóð EFTA lögleitt í EES samninginn - kostar ríkissjóð í nýjum útgjöldum 5,3 milljarða. Lög um losunarheimildir - stofnkostnaður 20 milljónir og ný útgjöld 45 milljónir á ári. Lög um grunngerð landupplýsinga - 30 milljónir á ári. Fjölmiðlalög - rekstur fjölmiðlanefndar 33 milljónir á ári. Lög um stjórn vatnamála - ný útgjöld 130 milljónir á ári.

Utanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að eins sé líklegt að kostnaður upp á 4 milljarða lendi á ríkinu vegna innleiðingar nýs tollakerfis í landbúnaði. Mörg sambærileg frumvörp liggja inn í þinginu sem bíða afgreiðslu. Hliðaráhrif umsóknarferlisins hafa því gríðarleg áhrif á ríkissjóð. Það skal og á það minnst að atvinnusköpunartækifæri ríkisstjórnarinnar liggur í lögleiðingu þessara frumvarpa því oftar en ekki þarf að bæta við starfsmönnum í undirstofnunum til "eftirlits" . Kratavæðingin er því algjör og opinberi geirinn þenst út.

Þá að beinum kostnaði við umsóknina. Í umræddri greinargerð er talið að kostnaður sem falli undir utanríkisráðuneytið á árabilinu 2010 - 2012 verði um 800 milljónir og lunginn af þeim kostnaði felst í þýðingum reglna ESB yfir á íslensku. Það er hreint galið að skattgreiðendur beri kostnað af þýðingum alls lagabálks ESB áður en vitað er hvort gengið verður inn eður ei. Ekki er gefin upp kostnaður annarra ráðuneyta - en ljóst er að stjórnsýslan liggur á hliðinni vegna umsóknarinnar - sem er e.t.v. skýringin á hví slík kyrrstaða ríki hér á landi.

Fljótt á litið má áætla að beinn kostnaður við umsóknarferlið verði á bilinu 1,5 - 2 milljarðar. Þær upplýsingar er ekki hægt að fá frá stjórnarráðinu og heykist hver ráðherrann á fætur öðrum að veita þinginu og almenningi upplýsingar um þennan kostnað. Samandregið er um að ræða gríðarlegan dulinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu á fylgiskjali IV í þingsályktunartillögunni kemur fram að kostnaður aðildarviðræðnanna sé háður óvissu sér í lagi í ljósi þess hversu hratt viðræðurnar ganga. Kostnaðarmatið er byggt á 18 mánaða ferli sem átti að ljúka um mitt ár 2011. Nú er sá tími liðinn og langt í land með að samningar takist. Rökrétt er því að tvöfalda beinan kostnað af ferlinu. Ef umsóknin verður ekki dregin til baka er ljóst að kostnaðurinn við umsóknina mun hlaupa á tugum milljarða.

Á meðan Össur Skarphéðinsson situr einn á brennandi tröppunum í Brussel með umsóknina er vegið að grunnþáttum íslensks samfélags með niðurskurði og skattpíningu.