logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum 10,7%

ljosanott

Skráð atvinnuleysi í september 2011 var 6,6% að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar. Að meðaltali voru 10.759 atvinnulausir í september og fækkaði atvinnulausum um 535 að meðaltali frá ágúst eða um 0,1 prósentustig. Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 249 að meðaltali og konum um 286. Atvinnulausum fækkaði um 379 á höfuðborgarsvæðinu og um 156 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 7,6% á höfuðborgarsvæðinu en 4,9% á landsbyggðinni. Mest var það á Suðurnesjum 10,7%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,1%. Atvinnuleysið var 6,4% meðal karla og 6,8% meðal kvenna.

Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar
Alls voru 11.487 manns atvinnulausir í lok september. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 9.675. Fækkun atvinnulausra í lok septembermánaðar frá lokum ágúst nam 445, en 272 færri karlar voru á skrá  og 173 færri konur m.v.  ágústlok. Á landsbyggðinni fækkaði  um 88 og  um 357 á höfuðborgarsvæðinu.

Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 6.842 og fækkar um 686 frá lokumágúst  og er um 60% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok september. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fækkar úr 4.645 í lok ágúst í 4.457 í september eða um 188.

Alls  voru 1.774 á aldrinum 16-24 ára atvinnulausir í lok  september  en  1.858 í lok  ágúst og  fækkar þeim um 84 frá ágústlokum og eru um 15,4% allra atvinnulausra í september. Í lok september 2010 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 1.996.

Alls voru 222 laus störf  hjá vinnumiðlunum og í Starfatorgi í lok september, mest þjónustu  -afgreiðslu og sölustörf eða alls 62 og fækkar lausum störfum um 226 frá ágústlokum.    

Útlendingar á atvinnuleysisskrá
Alls voru 1.844 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok september, þar af 1.074 Pólverjar eða um 58% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok  mánaðarins. Langflestir  atvinnulausra  erlendra ríkisborgara voru starfandi í byggingaiðnaði eða 364.

Samtals voru 1.532 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok september í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á  síðasta skráningardegi í september. Þetta eru  um 13,3% af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lokseptember.

Af þeim  sem voru í hlutastörfum í lok  september voru 895 einstaklingar sem sóttu um atvinnuleysisbætur skv. lögum um minnkað starfshlutfall frá því í  nóvember 2008. Í  lok september voru 33 sjálfstætt starfandi skráðir á atvinnuleysisskrá vegna samdráttar í rekstri skv. áður nefndum lögum.Hópuppsagnir og gjaldþrot.

Í septembermánuði bárust Vinnumálastofnun 3  tilkynningar um hópuppsagnir þar sem 113 manns var sagt upp.  Alls fengu  60  launamenn greitt úr Ábyrgðarsjóði launa í september, þar af voru 30 starfandi í mannvirkjagerð.

Fjöldi í úrræðum í september
Alls voru 2.916 manns skráðir í sérstök úrræði hjá Vinnumálastofnun í september  skv. bráðabirgðatölum unnum úr frumskráningu í úrræði. Af þeim voru 1.479 karlar og 1.437 konur. Erlendir ríkisborgarar voru 412, eða um 14% þeirra sem eru í úrræðum.
Talsvert fleiri voru í úrræðum í september en mánuðina á undan og er fjölgun í öllum tegundum úrræða. Megin skýringin er þó fjölgun þeirra sem hefja nám á námssamningum, samtals voru 1.348 á slíkum samningum í september, þar af 991 í tengslum við átakið nám er vinnandi vegur. Um 440 manns tóku þátt í ýmis konar stuðningsnámskeiðum s.s.  starfsleitarnámskeiðum og ferilskrárgerð og önnur fjölmenn tegund úrræða er starfstengd vinnumarkaðsúrræði, þ.e. starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni ofl., en um 420 manns voru í slíkum úrræðum í september.

Horfur á vinnumarkaði í október
Yfirleitt  byrjar árstíðasveifla að hafa áhrif til aukningar atvinnuleysis í október.  Í október 2010  var atvinnuleysi 7,5%, en  7,1% í  september 2010. Vinnumálastofnun  áætlar  að atvinnuleysið í  október 2011 aukist og  verði á bilinu 6,7% - 7%.

Mæling á skráðu atvinnuleysi
Í septembermánuði síðastliðnum voru skráðir 236.709 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngildir því að 10.759 manns hafi að meðaltali verið atvinnulausir í mánuðinum. Mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Vinnumálastofnunar í september 2011 var 162.451. Mannaflinn byggist á mannfjölda 1. desember 2010 með tilliti til áætlaðrar atvinnuþátttöku á árinu 2011 og árstíðarsveiflu í atvinnuþátttöku. Skráð atvinnuleysi er mælt á þann veg að fjöldi atvinnuleysisdaga er umreiknaður í meðalfjölda einstaklinga, þar sem allir dagar í hverjum mánuði eru taldir nema laugardagar og sunnudagar og útkomunni deilt í áætlaðan mannafla á vinnumarkaði í hverjum mánuði.

 

 

Vilja sjá stórskipabryggju í Grindavík

Árni Johnsen er fyrsti fluttningsmaður að þingsályktunartillögu þar sem skorað er á innanríkisráðherra að hefja undirbúning og kostnaðaráætlun að dýpkun og breikkun innsiglingarinnar í Grindavíkurhöfn og aðstöðu fyrir stórskipabryggju við Stórubót eða innan hafnar. Þess er vænst að Siglingastofnun geti á skömmum tíma skilað hugmyndum að möguleikum bóta og uppbyggingar í Grindavík varðandi fiskiskipahöfn og aðstöðu flutningaskipa en mikilvægt er að hafa sem raunhæfasta kostnaðaráætlun til þess að vinna með að framgangi málsins....

Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum 10,7%

Skráð atvinnuleysi í september 2011 var 6,6% að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar. Að meðaltali voru 10.759 atvinnulausir í september og fækkaði atvinnulausum um 535 að meðaltali frá ágúst eða um 0,1 prósentustig. Körlum á atvinnuleysisskrá fækkaði um 249 að meðaltali og konum um 286. Atvinnulausum fækkaði um 379 á höfuðborgarsvæðinu og um 156 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 7,6% á höfuðborgarsvæðinu en 4,9% á landsbyggðinni. Mest var það á Suðurnesjum 10,7%, en minnst á Norðurlandi vestra 2,1%. Atvinnuleysið var 6,4% meðal karla og 6,8% meðal kvenna....

Ný náttúruverndarsamök stofnuð á Reykjanesskaga

Undanfarið hefur hópur áhugafólks um náttúruvernd undirbúið stofnun náttúruverndarsamtaka á Reykjanesskaga. Stofnfundur samtakanna verður haldinn þann 18. október næstkomandi og er markmiðið að sameina náttúruverndarfólk á Suðvesturlandi í eina öfluga breiðfylkingu sem muni láta til sín taka í umhverfis- og náttúruverndarmálum í landnámi Ingólfs....

Suðurnesjamenn blása til skemmtilegra og fræðandi vinnudaga um næstu helgi

Allir bæjarstjórar á Suðurnesjum hafa skrifað sameiginlega grein til að vekja athygli á nýju verkefni sem er hluti af uppbyggingarstarfsemi á svæðinu. Neikvæðar fréttir frá svæðinu hafa undanfarið verið áberandi í fjölmiðlum og er þetta hluti af því starfi að byggja upp jákvæðara viðhorf gagnavart atvinnustarfsemi á svæðinu....

Framsóknarmenn vilja að bæjarfélögin fimm á Suðurnesjum sameinist í eitt sveitarfélag

Félagsfundur í Framsóknarfélagi Reykjanesbæjar sem haldinn var á dögunum ályktar að það sé samfélaginu, íbúum og fyrirtækjum á Suðurnesjum til hagsbóta að bæjarfélögin fimm á Suðurnesjum sameinist í eitt sveitarfélag. Með því náist fram sparnaður, hagræðing og meiri skilvirkni í rekstri. ...

Bæjarstjórn Grindavíkur leggur til að fiskveiðifrumvarpið verði dregið til baka

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar fjallaði á fundi sínum í gær, 7. september, um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, þingmál nr. 827, og fyrirliggjandi umsögn ferða- og atvinnumálanefndar um þingmál nr 827. Í umsögninni kemur ma. fram: Sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík skapa um 1.000 bein störf við veiðar og vinnslu á Íslandi, sem eru álíka mörg störf og eru í áliðnaði á Íslandi. Varlega áætlað hleypur fjöldi afleiddra starfa sem sjávarútvegur í Grindavík skapar á fleiri hundruðum....

Voveiflegt andlát manns í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum

Við reglubundið eftirlit lögreglu með fanga í fangageymslu lögreglunnar á Suðurnesjum um kl. 23:20 síðastliðið mánudagskvöld var komið að fanga sem svaraði ekki áreiti og kom ekki til meðvitundar þrátt fyrir endurlífgunartilraunir lögreglu og sjúkraflutningsmanna. Læknir sem kvaddur var á vettvang úrskurðaði manninn látinn. Hinn látni var 33 ára gamall pólskur karlmaður sem lögreglan hafði handtekið fyrr um daginn vegna mikillar ölvunar,...

Bátar skráðir í Grindavík með mestar aflaheimildir í þorski

Á síðasta fiskveiðiári voru bátar skráðir með heimahöfn í Reykjavík með mestar aflaheimildir íslenskra skipa og báta, eða 44.053 þorskígildistonn sem eru 14,4% úthlutaðra aflaheimilda. Næst komu bátar skráðir í Vestmannaeyjum með 30.645 þorskígildistonn eða 10% allra aflaheimilda og bátar skráðir í Grindavík með 27.227 þorskígildistonn (8,9% aflaheimilda). Sjá töflu yfir 10 hafnir með mest aflamark hér....

Tveir piltar villtir á Reykjanesi - þyrla Gæslunnar flutti þá heim

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út rétt um miðnætti til leitar að tveimur 19 ára piltum sem voru villtir norður af Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Höfðu þeir verið á ferð a fjórhjólum þegar þeir villtust í myrkrinu. Gátu þeir látið vita af vandræðum sínum í gegnum síma og var þá hafin leit. Björgunarsveitir náðu sambandi við drengina rétt fyrir klukkan þrjú í nótt og voru þeir þá orðnir kaldir....

Ferðamenn í fyrsta sinn yfir 100 þúsund í einum mánuði

Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fór 101.841 erlendur ferðamaður frá landinu í ágúst síðastliðnum eða um 12 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Aukningin nemur 13,7% milli ára. Erlendir ferðamenn hafa aldrei áður farið yfir 100 þúsund í einum mánuði og eru þeir nú helmingi fleiri en þeir voru í ágústmánuði 2002, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ferðamálastofu....

Kristbjörg er nýr formaður Landssambands framsóknarkvenna

15. landsþingi Landssambands framsóknarkvenna var haldið í Grindavík um helgina og var slitið í dag. Kristbjörg Þórisdóttir er nýr formaður framsóknarkvenna. Þingið var með sérstaklega hátíðlegu sniði vegna 30 ára afmælis landssambandsins. Á þinginu komu saman brautryðjendur landssambands framsóknarkvenna og núverandi framlínukonur. Þingað var bæði laugardag og sunnudag. Sérstök hátíðardagskrá var haldin á laugardagskvöldinu þar sem framsóknarkonum var boðið í heimsókn í Bláa Lónið. ...

Allt fór friðsamlega fram á Ljósanótt í Reykjanesbæ - metfjöldi í miðbænum

Engin alvarleg mál komu til kasta lögreglu á Ljósanótt í Reykjanesbæ í gær fyrir utan slys í leiktæki á hátíðarsvæðinu, þar sem 9 ára gömul stúlka slasaðist alvarlega á handlegg eftir að hafa fest hana í tækinu. Mikið annríki var hjá lögreglunni í gærkvöldi en miðað við mannfjölda gekk allt vel fyrir sig. Umferðin gekk hægt en greiðlega fyrir sig og lítið um umferðaróhöpp um helgina....

Brúðkaup í beinni á Ljósanótt

Á Ljósanótt þann 2. september nk. ætlar ungt par úr Reykjanesbæ, fótboltakappinn Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðrún Sædal Björgvinsdóttir, að ganga í það heilaga. Undirbúningur brúðkaupsins er liður í dagskrá Ljósanætur en gestum er boðið að fylgjast með förðun og hárgreiðslu á veitingastaðnum í Duus húsi frá kl. 10.00 til 14.00. ...

Flugeldasýningin verður á sínum stað á Ljósanótt í Reykjanesbæ

Menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar er haldin um helgina og lýkur með lýsingu Bergsins og glæsilegri flugeldasýningu. Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða hefur aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi. Áhersla er lögð á viðamiklar uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum....

Risa ufsi, langa og þorskur veiddust á Íslandsmóti í sjóstöng

Íslandsmeistaramót EFSA (Evrópusamband sjóstangveiðimanna) fór fram utan við Grindavík um helgina. Þar veiddust á sjóstöng risa ufsi, langa og þorskur - þrjú Íslandsmet féllu. Ufsinn sem veiddist var 15,5 kg og 113 sm og er sá stærsti sem veiðst hefur á sjóstöng hérlendis. Langan var hvorki meira né minna en 30 kg og var 165,5 sm á lengd sem er met og þorskurinn vigtaði 21,5 kg og var 138 sm og er sá stærsti sem veiðst hefur á félagsmóti EFSA og á sjóstangveiðimótum hér á landi....

Götur og hús Sandgerðinga skreytt - myndasafn

Sandgerðisdagar voru haldnir hátíðlegir í Sandgerði í síðustu viku og lauk formlega í gær og þótti hátíðin takast vel. Fjölmargir gestir lögðu leið sína í Sandgerði um helgina. Götur og hús bæjarins voru skreytt með gulum, rauðum, bláum og grænum litum. Það var greinilegt að hugmyndaflugið var mikið hjá bæjarbúum ef marka má myndir frá skreytingum á vef hátíðarinnar sem má sjá HÉR....

Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar virkjuð

Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð samkvæmt flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll kl. 04.51 í morgun, eftir að tilkynnt hafði verið um reyk í flugstjórnarklefa. Um var að ræða Boing 767 frá United Airlines sem var á leið frá Washington til London. Um borð voru 181 manns. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli heilu og höldnu kl. 05.19 og var hættustigi þá aflétt...

Matthías kveður skólann eftir 30 ára starf

Matthías Grindvík Guðmundsson umsjónarmaður Grunnskóla Grindavíkur til 30 ára hefur látið af störfum. Við skólasetningu í vikunni þakkaði Páll Leó Jónsson skólastjóri honum fyrir frábært starf í þágu skólans. Páll Leó afhenti honum kveðjugjöf frá skólanum og sagði m.a....

Fótboltastrákar þjónuðu konum í Sandgerði

Vel heppnað kósý kvöld kvenna var haldið í sundlauginni í Sandgerði í vikunni í tilefni Sandgerðisdögum og var fjölmennt. Boðið var upp á glæsilegar veitingar og þjónuðu strákarnir í meistaraflokki Reynis konunum og fórst það vel úr hendi....

Umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar afhent

Umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar 2011 voru afhent síðdegis í gær í Kvikunni, menningar- og auðlindahúsi. Fern verðlaun voru afhent, en Staðarhraun 29 og Suðurvör 3 fengu verðlaun fyrir fallegustu garðana, Ásabraut 1 fyrir vel heppnað viðhald á gömlu húsi og Bláa lónið fékk verðlaun sem snyrtilegasta fyrirtækið....

Sandgerðingum hefur fjölgað um 189 á einu ári

Frá því í ágúst í fyrra hafa 189 einstaklingar eignast lögheimili í Sandgerðisbæ og í gær var öllum nýjum Sandgerðingum boðið til kynningar og móttöku í Vörðunni. Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri bauð gesti velkomna og fræddi þau um bæjarfélagið. Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar sagði frá sögu Sandgerðis og frá bæjarhátíðinni, Sandgerðisdagar, sem hefur þann megintilgang að íbúar eigi saman skemmtilega daga og styrki böndin sín á milli....

Sandgerðingar klæða bæinn sinn í sparifötin

Í lok ágúst á hverju ári klæða Sandgerðingar bæinn sinn í sparifötin og halda Sandgerðisdaga hátíðlega. Í ár verður hápunktur hátíðarhaldanna laugardaginn 27. ágúst en þó dreifist skemmtileg dagskráin á mun fleiri daga. Hátíðin hófst formlega í dag og stendur fram á sunnudag og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í þeim fjölbreyttu viðburðum sem boðið er upp á....

Mikið um byggingaframkvæmdir í Grindavík

"Nokkuð er byggt af íbúðarhúsnæði og iðnaðarhúsum í Grindavíkurbæ þrátt fyrir kreppuna" segir á vefsíðu Grindavíkurbæjar. Alls eru fimm einbýlishús í byggingu þessa dagana, þar af tvö sem hafa verið í byggingu á annað ár. Búið er að sækja um byggingaleyfi fyrir þremur íbúðaraðhúsum til viðbótar og einni einbýlishúsalóð. Þá eru tvö iðnaðarhús í byggingu og unnið að stórri viðhaldsframkvæmd á blokkinni í Staðarhrauni. Þess má geta að fjöldi þinglýstra leigusamninga á suðurnesjum í júlí voru 84 sem er 3.7% aukning milli ...

Fjölskylduhátíð í Vogum á laugardaginn

Hinn árlegi Fjölskyldudagur Sveitarfélagsins Voga verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 13. ágúst. Dagurinn verður stútfullur af skemmtilegri dagskrá sem teygir sig reyndar frá föstudegi yfir á sunnudag. Fjölskyldudagurinn er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur og vini til að eiga góða samverustund og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi....

Segir fjármálaráðherra hafa heimild til að stofna nýtt fjármálafyrirtæki

Í tilefni af umfjöllun um heimildir fjármálaráðherra til að stofna Spkef sparisjóð í því skyni að taka við rekstri Sparisjóðsins í Keflavík, telur fjármálaráðuneytið tilefni til að benda á að samkvæmt 1. gr. laga nr. 125/2008, oft nefnd neyðarlög, hefur fjármálaráðherra heimild til þess að stofna nýtt fjármálafyrirtæki til þess að taka yfir reksturs annars fjármálafyrirtækis sem komið er í þá stöðu að það getur ekki lengur starfað....

Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð á Suðurnesjum

Í gær stöðvaði fíkniefnadeild lögreglunnar á Suðurnesjum umfangsmikla kannabisræktun í heimahúsi. Við húsleitina var lagt hald á um 200 kannabisplöntur á ýmsum ræktunarstigum. Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar. Húsráðandinn var handtekinn á staðnum og við yfirheyrslu viðurkenndi hann ræktunina og telst málið upplýst....

Vélarvana bátur í innsiglingunni í Grindavík

Um hádegisbil í dag varð Margrét, sem er 15 tonna trébátur, vélarvana við baujuna í innsiglingunni í Grindavík. Suðaustan vindur var á svæðinu svo bátinn rak í átt að landi. Oddur V. Gíslason, björgunarskip SL í Grindavík, var kallað út en þegar það kom á staðinn hafði nærstaddur bátur kippt aðeins í hinn vélarvana bát sem var svo dreginn til hafnar af Oddi....

Athyglisverðar myndir úr Arngríms- og Bálkahelli

Í Krýsuvíkurhrauni leynast margar mannvistarleifar sem og náttúruminjar. Litla-Eldborg gaf t.d. af sér mikið hraunflæmi. Í þeirri afurð eru nokkrar hellarásir, s.s. Bálkahellir, um 450 m langur. Í honum eru áhugaverðar bergmyndanir, auk viðkvæmra dropsteina og hraunstráa. Í Arngrímshelli var fjárskjól um 1700. Þar hafðist og Krýsuvíkur-Gvendur við með fé sitt um 1830. Tóftir af húsi Arngríms eru framan við hellismunnann og mikið af hleðslum inni í honum....

Dagbjartur tekur við VÍS í Grindavík

Dagbjartur Willardsson hefur tekið við umboði VÍS í Grindavík, en umboðið var áður hjá SpKef. Í tilefni opnunarinnar verður kaffi og kruðerí fyrir unga sem aldna föstudaginn 5. ágúst frá kl. 14-17 að Víkurbraut 46, Verkalýðshúsinu, þar sem umboðið er nú til húsa....

Gönguhátíð í Grindavíkurlandi um verslunarmannahelgina

"Af stað á Reykjanesið", gönguhátíð í Grindavíkurlandi verður um verslunarmannahelgina 29. júlí til 1. ágúst. Boðið verður upp á fjórar gönguferðir með leiðsögn frá föstudegi til mánudags. Mælt er með að vera í góðum gönguskóm og taka með sér nesti. Gengið verður um stórbrotið umhverfi í nánd við höfuðborgarsvæðið. Föstudaginn 29. júlí verður gengið um Selskóg fyrir neðan fjallið Þorbjörn og fjallað verður um skógrækt í elskógi og fleira fróðlegt. Laugardaginn 30. júlí verður strandgönguferð en þá verður gengið ofan við Krýsuvíkurberg...

Bæjarstjóri Sandgerðis vissi ekki að fjársektum yrði beitt

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún segir að Kauphöll Íslands hefði aldrei minnst á fjársektir vegna tafa sem urðu á skilum á ársreikningi bæjarins. Í gær barst Sandgerðisbæ tilkynning frá Kauphöllinni að hún hyggðist beita heimild um svokallað févíti að upphæð 1,5 milljónir króna vegna tafa á skilum ársreikninga....

Musteri úr ull á Vogum á Vatnsleysuströnd

Listamennirnir Graham Keegan og Kira Kira hafa byggt musteri úr ull inn í Hlöðunni -sýningarrými í Vogum á Vatnsleysuströnd. Opnun þess verður fagnað næstkomandi sunnudag klukkan 17:00 með frumflutningi nýrrar tónsmíðar Kiru Kiru. Sérstakur gestur hennar er Pétur Hallgrímsson sem leikur á kjöltustálgítar. Í tónsmíðinni byggir Kira á orgelmöntru. "Mig langaði til þess að búa til músíkalskt ástand áþekkt því sem mér finnst gott að hafa hjá mér þegar ég hugleiði, eitthvað sem...

Íslandsmótið í golfi hófst í Leirunni í morgun

Íslandsmótið í höggleik hófst í ágætu veðri á Hólmsvelli í Leiru í morgun og stendur til sunnudags. Leiknar verða 72 holur og keppt í karla og kvennaflokkum. Mótið er hápunktur golfsumarsins, enda keppt um eftirsóttustu titla í íslensku golfi. Golfklúbbur Suðurnesja sér um framkvæmd mótsins og lagt ómælda vinnu við undibúning svo að framkvæmdin og umgjörðin verði sem glæsilegust....

Blái herinn heimsótti Grindavík

Tómas Knútsson og Blái herinn hans heimsóttu Grindavík á dögunum og tóku heldur betur til hendinni á Hópsnesinu. Dagsverkið voru 5 tonn af rusli, þar á meðal full kerra af plastrusli, eitt rafgeymabúnt, dekk og fleira. Tómas segir að nóg sé eftir að rusli á öðrum stöðum og var hann ánægður með hvernig til tókst í Grindavík...

10 kaupsamningum þinglýst í Reykjanesbæ í júní

Í júní mánuði var 10 kaupsamningum þinglýst í Reykjanesbæ og var heildarvelta þeirra 147 milljónir króna. Frá 8. júlí til og með 14. júlí 2011 var 2 kaupsamingum þinglýst, heildarveltan var 45 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,3 milljónir króna.Þinglýsingar í júní voru talsvert færri en í maí. Þá var 16 samningum þinglýst og var heildarvelta þeirra 356 milljónir króna en það sem af er ári hafa flestar þinglýsingar verið í maí mánuði. Þannig er það ekki bara í Reykjanesbæ en það sem af er ári voru flestar þinglýsingar á Akureyri...

„Hugvit fyrir gjaldeyri“ er að skila árangri

Í úthlutun Vaxtarsamnings Suðurnesja árið 2010 var veittur styrkur til verkefnisins „Hugvit fyrir gjaldeyri“, sem var klasasamstarf fjögurra fyrirtækja. Markmið verkefnisins var að hámarka hlutdeild íslensks hugvits, verkþekkingar og tæknibúnaðar við nýsmíðar fiskiskipa á komandi árum. Álasund ehf leiddi klasasamstarfið, en því lauk nýlega með góðum árangri. Afurðir verkefnisins eru tækni- og smíðalýsingar fyrir fjórar stærðir togveiðiskipa sem nú er verið að markaðssetja innanlands og utan....

Metveiði hjá skipum Þorbjarnar hf.

Skip Þorbjarnar hf. í Grindavík eru að veiða vel í sumar að því er fram kemur á vef Grindavíkurbæjar. Í síðustu viku komu til hafnar Gnúpur og Hrafn GK og bæði skip lönduðu met afla. Hrafn GK var með 620 tonn af blönduðum afla og er verðmæti hans um 244 milljónir króna. Er þetta það mesta sem skip hefur komið með úr einni veiðiferð en skipið var á veiðum í 30 daga. Þorbjörn hf. var upphaflega stofnað þann 24. nóvember árið 1953. Stofnendur voru fjórir sjómenn úr plássinu ásamt eiginkonum sínum, en þeir voru: Sigurður Magnússon, ...

Reykjanesbær gefur út sérstakan ferðabækling fyrir börn

Reykjanesbær hefur gefið út tvo nýja bæklinga þar sem bent á áhugaverða staði í bæjarfélaginu og næsta nágrenni, hvað hægt er að gera og hvert er hægt að fara. Annar bæklingurinn er sérstaklega ætlaður börnum og þar er bent á fjölda skemmtilegra tækifæra sem hægt er að njóta án mikilla fjárútláta, flestir staðirnir eru meira að segja alveg ókeypis fyrir börnin....

Krakkar úr Vinnuskóla Grindavíkur sinna hreinsunarstörfum í Skaftárhreppi

Þessa daganna eru sjö krakkar úr Vinnuskólanum í Grindavík ásamt tveimur flokksstjórum á Kirkjubæjarklaustri þar sem þau hreinsa til eftir eldgosið í Grímsvötnum. Hópurinn lagði af stað í gær og fer aftur heim á miðvikudagskvöld. Á fundi bæjarráðs Grindavíkur þann 25. maí síðastliðinn var samþykkt að bjóða fram krafta flokks úr vinnuskóla bæjarins til hreinsunarstarfa í Skaftárhreppi eftir eldgosið í Grímsvötnum. Markmiðið er að aðstoða við hreinsunina og gefa nemendum í vinnuskólanum tækifæri til að taka þátt í stóru ...

Hart tekið á svindlurum á golfvellinum

Undanfarin ár hefur borið á því að einstaklingar, sem ekki eru klúbbfélagar í Golfklúbbi Grindavíkur, hafa verið að læða sér á völlinn án þess að greiða vallargjald. Það er með öllu ólíðandi að menn skuli vera svo óprúttnir að leika völlinn án greiðslu, að því er fram kemur á heimasíðu GG. Nú hefur stjórn Golfklúbbs Grindavíkur ákveðið að taka hart á þessum málum og þeir sem verða uppvísir að slíku fá sendan gíróseðil heim til greiðslu á vallargjaldinu....

Grillveisla og jafningjafræðsla hjá vinnuskóla Grindavíkur

Fimmtudagsmorgun var viðburðaríkur hjá vinnuskóla Grindavíkur en þá fengu krakkarnir smá hvíld frá garðslætti. Slegið var upp grillveislu á æfingasvæði knattspyrnudeildarinnar og farið var í leiki og svo komu fulltrúar Hins Hússins og voru með jafningjafræðslu. Fyrstu árin eftir að Jafningjafræðslan var stofnuð var aðallega einblínt á fíkniefnaforvarnir en í seinni tíð hefur einnig verið lögð áhersla á sjálfsmynd ungs fólks og leitast við að styrkja hana og efla. Helsta ástæðan er sú að ýmsir fræðimenn telja að ýmis...

22 þúsund tonn á land í Grindavíkurhöfn fyrstu 5 mánuði ársins

Alls var rétt tæplega 22 þúsund tonnum landað í Grindavíkurhöfn fyrstu fimm mánuði ársins (janúar-maí), samanborið við tæp 25 þúsund tonn á sama tíma í fyrra. Þar munar mestu um töluverðan samdrátt í ýsu en jafnfram í öðrum tegundum. Hins vegar jókst þorskaflinn um rúm þrjú hundruð tonn á milli ára, eða í 3.600 tonn, samkvæmt samantekt Hagstofunnar. ...

Mengun á ströndinni við Garðaskaga – ekki ástæða til hreinsunaraðgerða

Umhverfisstofnun barst nýlega tilkynning um olíumengun á ströndinni við Garðskaga á Suðurnesjum. Fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kannaði svæðið bæði í gær og í dag og var það niðurstaða hans og Umhverfisstofnunar að mengunin sé ekki þess eðlis að ástæða sé til að fara í hreinsunaraðgerðir, um er að ræða lítið magn af olíu, svæðið muni jafna sig á einhverjum dögum og ekki verða skaði af. Hætta er á raski...

Kafbátur siglir frá Grindavík til Kanaríeyja

Í morgun sjósettu vísandamenn frá rannsóknarstofnunni PLOCAN á Spáni lítinn ómannaðan kafbát við Grindavík sem kallast Webb Glider. Kafbáturinn mun sigla til Kanaríeyja á næstu 4 til 5 mánuðum og mæla ýmsa eiginleika hafsins á leiðinni. Félagar í Björgunarsveitinni Þorbirni sigldu með kafbátinni um 10 mílur suður fyrir Grindavík þar sem kafbáturinn var settur í sjóinn....

Sólseturshátíð hefst í Garðinum á morgun

Sólseturshátíðin hefst í Garðinum á morgun, fimmtudag, og stendur yfir fram á sunnudag. Eitthvað er að finna á hátíðinni fyrir flesta aldurshópa. Hátíðarhöldin fara fram á Garðskaga en þar er góð aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og húsbíla. Snyrting, rennandi vatn og rafmagn er til staðar. Sólsetrið á Garðskaga er einstök sjón og tímasetning hátíðarinnar er vel við hæfi þar sem Sumarsólstöður eru nýafstaðnar og sólsetrið gyllir hafið á meðan Garðbúar og gestir þeirra syngja og gleðjast við varðeldinn. ...

Náttúruvika í Grindavík í næstu viku

Daganna 19. til 25. maí verður haldin haldin í Grindavík Náttúruvika á Reykjanesi. Vikan er hugsuð sem góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna en jafnframt á að minna á hvað náttúran hefur að bjóða og er dagskráin fjölbreytt. Hægt verður að fara í ratleiki, reipitog, hellaskoðun, boðið er upp fjórhjólaferð fyrir alla fjölskylduna og hægt er að ganga eldfjallahring í Grindavíkurlandi. Einnig er hægt að skoða söfn og sýningar eins og til dæmis Saltfisksetrið og Jarðorku sem sýnir jarðsöguna á áhrifaríkan hátt. Nánari upplýsingar á vef SJF...

Tónsmíðavika S.L.Á.T.U.R. 2011

Tónsmíðavika S.L.Á.T.U.R., samtaka listrænna ágengra tónsmíða umhverfis Reykjavík, verður haldin í Garði á Suðunesjum daganna 19. til 25. maí. Tónsmíðavikan fer þannig fram að fólk kemur saman og semur tónlist á daginn sem er svo leikin á kvöldin af atvinnuhljóðfæraleikurum. Alls munu 12 tónskáld taka þátt í hátíðinni og munu þau halda kynningar á verkum sínum. Hljóðfæraleikarar vikunnar að þessu sinni eru: Bergrún Snæbjörnsdóttir, Bára Sigurjónsdóttir, Heiða Árnadóttir og Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir...

Vélbyssuhreiður á Garðskagaflötum

Í síðustu viku var hafist handa við að koma 50 cal vélbyssuhreiðri á Garðskagaflötum í upprunalegt horf. Þessar byssur voru loftvarnir fyrir neyðarflugvöll Breta sem var á Garðskaga í seinni heimstyrjöldinni. Er þessi framkvæmd í samvinnu við Sveitarfélagið Garð og Byggðasafnið á Garðskaga....

Skora á Alþingi að vega ekki að hagsmunum sjávarbyggða

Bæjarstjórn Grindavíkur ályktaði um hið svokallaða ,,minna kvótafrumvarp“ á fundi sínum í gær. Bæjarstjórnin skorar á Alþingi Íslendinga að vega ekki að hagsmunum sjávarbyggða með þessum hætti, heldur hafa það að markmiði við endurskoðun þeirra reglna sem gilda í sjávarútvegi að þær styrki greinina í heild sinni og skapi hvata til þess að hámarka verðmæti, draga úr framleiðslukostnaði og auka þar með arðsemi og tekjur þjóðarbússins....

Starfsmannafélag Suðurnesja semur við ríkið - stjórn félagsins endurkjörin

Starfsmannafélag Suðurnesja hefur skrifað undir samning við ríkið vegna félagsmanna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Samningurinn gildir til 31. mars 2014 og er á svipuðum nótum og aðrir ríkissamningar sem gerðir hafa verið undanfarið. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum í fundarsal HSS þriðjudaginn 14. júní kl. 15:30 og að kynningu lokinni verður greitt um hann atkvæði. ...

Sjóræningjar, sumarlestur og listaverkasýning í bókasafni Reykjanesbæjar

Í bókasafni Reykjanesbæjar er Lestrareyja sem er kominn með 40 íbúa það sem af er þessu sumri. Börn á grunnskólaaldri geta orðið íbúar eyjunnar með því að taka þátt í sumarlestri sem hófst 1. júní síðastliðinn og stendur til 31. ágúst en sumarlesturinn á að hvetja börn til lesa og hjálpa þeim við að gera lestur að lífstíl. "Eins og undanfarin ár koma áhugasöm börn í afgreiðslu safnsins og tilkynna þátttöku. Börnin fá miða til að skrifa nafn sitt og aldur og teikna mynd af sjálfu sér og er miðinn að því loknu staðsettur á...

Framkvæmdir við eldsneytisverksmiðju á lokastigi

Framkvæmdir við eldsneytisverksmiðju við Svartsengi, sem er rétt hjá Bláa Lóninu, eru á lokastigi og áætlað er að prófanir á verksmiðjunni geti hafist í lok júní. Verksmiðjan er í eigu Carbon Recycling International (CRI) og er verksmiðjan sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum, að því er fram kemur á vf.is. Fyrirtækið hefur fundið upp aðferð til þess að hreinsa koltvísýring úr útblæstri orkuvera eða verksmiðjum og er kolefnið endurunnið til þess að framleiða eldsneyti. Koltvísýringnum er blandað við vetni sem framleitt...

Græna hverfið valið það best skreytta í Grindavík

Á bryggjuballinu í Grindavík í gær voru afhent verðlaun fyrir bestu skreytingarnar í ár á Sjóaranum síkáta. Úr vöndu var að ráða fyrir dómnefndina því skreytingarnar í bænum að þessu sinni eru hreint frábærar og hafa vakið mikla athygli víða. Hugmyndafluginu eru engin takmörk sett og heimilisiðnaðurinn hefur blómstrað. En best skreytta hverfið að þessu sinni var græna hverfið....

Samkomulag hefur náðst við kröfuhafa Reykjaneshafnar sem skuldar mikið

Samkomulag hefur náðst við kröfuhafa Reykjaneshafnar um endurfjármögnun til langs tíma á skuldum félagsins, sem heldur utan um fimm hafnir á Suðurnesjum. Bæjarstjóri segir þetta mikilvægan áfanga í að styrkja stöðu hafnarinnar en bæjarstjórnarfulltrúi Framsóknarflokks, sem er í minnihluta, segir þetta sýna í hnotskurn hvernig meirihluti Sjálfstæðisflokks hafi farið fram úr sér í ótímabærum fjárfestingum. Semja þurfti við 19 lánveitendur vegna uppgjörs á núverandi skuldum og bauð Reykjaneshöfn, sem er...

Bandarískt flugfélag byrjar áætlunarflug frá Keflavík til New York

Á Keflavíkurflugvelli lenda flugvélar dag og nótt en í morgun lenti flugvél sem markaði upphafið á beinu áætlunarflugi bandaríska flugfélagsins Delta Air Lines á milli Keflavíkurflugvallar og Kennedy flugvallar í New York. Fyrsta þota Delta, sem var af gerðinni Boeing 757-200, lenti á Keflavíkurflugvelli um klukkan 8:40 sem var aðeins á undan áætlun. Tekið var vel á móti farþegum og áhöfn og sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Luis E. Arreage klippti á borða...

Vélarvana í innsiglingunni í Grindavík

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út á níunda tímanum í morgun þegar bátur varð vélarvana í innsiglingunni í höfnina í Grindavík. Atlantic 21 bátur sveitarinnar, Árni í Tungu, fór á staðinn og var kominn að hinum vélarvana báti rúmum fimm mínútum eftir að beiðni um aðstoð barst. Einnig var björgunarskipið Oddur V. Gíslason sent á svæðið....

Náðu upp 4 tonna skipsskrúfu úr Capfagnet

Í gær lagði björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík upp í leiðangur austur í Hraunsvík. Tilgangur leiðangursins var að sækja rúmlega 4 tonna skipsskrúfu af Capfagnet sem strandaði í Hraunsfjöru árið 1931 þar sem fluglínutæki voru notuð fyrst hér á landi til að bjarga mannslífum. Fyrir nokkrum dögum fóru félagar sveitarinnar og sóttu ankeri sem fundust á svipuðum stað, en skrúfan þótti of stór og þurfti að undirbúa þá aðgerð betur, enda sat hún gróin við botnin ásamt öxlinum og fóðringum....

Ráðning verkefnastjóra hjá SSS dæmd ólögleg

Þann 9. ágúst 2010 var Björk Guðjónsdóttir ráðin í starf verkefnisstjóra hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) en sú ráðning hefur nú verið dæmd ólögmæt af Innanríkisráðuneytinu. Vorið 2010 gerði íslenska ríkið tvo samninga við SSS, annars vegar menningarsamning og hins vegar vaxtarsamning, og í báðum samningum voru skilyrði um að ráðinn yrði sér starfsmaður til að sinna verkefnum tengdum hvorum samningi fyrir sig. Friðleifur ...

Hvað ungur nemur, gamall temur – Golfkennsla í Grindavík

Í sumar býður Golfklúbbur Grindavíkur upp á golfkennslu fyrir börn og unglinga án endurgjalds. Markmiðið með kennslunni er að leyfa börnum og unglingum að prófa og kynnast golfíþróttinni, að kenna undirstöðuatriði íþróttarinnar (agi, tækni, reglur og leikskilningur) og einnig er krökkum kennt að hafa gaman af íþróttinni. Kennslan hefst næstkomandi miðvikudag, þann 1. júni, og heitir golfkennarinn Jóhann Kristján Halldórsson en um hann segir á vef Grindavíkurbæjar...

Átak í að fækka villiköttum í Grindavík

Nú stendur yfir átak í Grindavík í því að fækka villiköttum í bænum. Bæjarstjórn Grindavíkur hvetur bæjarbúa til þess að merkja og skrá ketti sína, en gjaldið fyrir hvern kött er 15.000 krónur. Búið er að veiða milli 20 og 30 villiketti síðustu vikur í bænum, en þeir eru geymdir í 7 daga hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja áður en þeim er lógað....

Málþing um menningu á Suðurnesjum næstu helgi

Menningarráð Suðurnesja mun ásamt menningarfulltrúum Sveitafélaga á Suðurnesjum standa fyrir málþingi um menningu laugardaginn 28. maí næstkomandi. Þema málþingsins er staðarvitund/staðarímynd og dagskráin samanstendur af fyrirlestrum og stuttum kynningum. Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis. Fyrirlesarar eru Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari og blaðamaður, Kjartan Ragnarsson...

Bæjarstjóri leggur fram gögn og segir málin leysast bráðlega

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ viðurkennir ekki að það séu stórkostlegar brotalamir í sjórnsýslu Reykjanesbæjar eins og Kristinn Björnsson, bæjarráðsfulltrúi Framsóknarflokks, bókaði á bæjarráðsfundi nýlega. Kristinn gerði athugasemdir annars vegar við að bærinn hefði keypt hlut í Íslendingi ehf. án umræðu í bæjarráði og hins vegar við þá leynd sem hvílt hafi yfir samskiptum bæjaryfirvalda við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitafélaga...

Reykjanesbær fær nýjan vef

Í dag fór í loftið nýr og endurbættur vefur Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is. Að endurbótunum koma fjögur fyrirtæki sem öll eru af Suðurnesjum en þau eru Kosmos & Kaos, Netsamskipti, Dacoda og Ýmir Mobile. Nýtt útlit vefsins miðar að því að gera hann notendavænni og auðvelda aðgang að upplýsingum auk þess sem magn og fjölbreytni upplýsinga hefur verið aukið....

Segir stórkostlegar brotalamir í stjórnsýslu Reykjanesbæjar

Kristinn Þór Jakobsson, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, segir mörg álitamál koma fram í ársreikningi Reykjanesbæjar fyrir síðasta ár. Hann segir stórkostlegar brotalamir í stjórnsýslu Reykjanesbæjar sem séu ámælisverðar. "Ljóst er að ráðist hefur verið í framkvæmdir og kaup á hlutafélagi óskyldu rekstri bæjarfélagsins, án umræðu og afgreiðslu í bæjarráði eða bæjarstjórn," segir hann m.a. í bókun á síðasta fundi bæjarstjórnar....

Fermingarveisla sem breyttist í brúðkaup

Síðastliðinn sunnudag fermdist Thelma Dögg Pálsdóttir, en hún er dóttir þeirra Páls Jónssonar og Rebekku Rós Ellertsdóttur sem búa að Stafnesvegi 22 í Sandgerði. Í miðri fermingarveislunni hennar Thelmu voru allir gestir beðnir að koma út í garð þar sem Sigurður Grétar Sigurðsson prestur var tilbúinn að gefa Pál og Rebekku saman, en enginn vissi fyrirfram af þessu....

Þörungavinnsla í Grindavík skilar góðum árangri

Í Grindavík er fyrirtækið Hafnot sem veiðir þörunga og þurrkar svo hægt sé að nota þá í matargerð. Hugmyndin að fyrirtækinu hefur verið í huga eiganda fyrirtækisins, Grettis Hreinssonar, í 15 ár en hann gerði ekkert í henni fyrr en hann fór á ráðstefnu fyrir tveimur árum. Þá byrjaði hann að þurrka þörunga og selja og nú auglýsir fyrirtækið eftir tveimur starfsmönnum, helst í framtíðarvinnu. Á vef Grindavíkurbæjar...

Ankeri úr Cap Fagnet á þurrt eftir 80 ár í sjó

Síðasta laugardag fóru nokkrir félagar í Björgunarsveitinni Þorbirni úr Grindavík ásamt köfurum árla morguns að Hraunsfjörðu að flaki Cap Fagnets og náðu þar tveimur ankerum sem þeir komu með að landi. Ankerin komust því á þurrt land eftir 80 ára veru í sjónum, en voru merkilega heilleg að sjá...

Ældu í sjóinn og héldu áfram að vinna

Hraustir drengir úr 7. bekk grunnskóla Grindavíkur fóru í vikunni út á sjó með kennara sínum. Það var áhöfnin á Árna í Teigi sem bauð þeim að koma með í veiðitúr. Drengirnir fengu að taka þátt í allri vinnu um borð. Drengirnir voru hörku duglegir, ældu í sjóinn, þurrkuðu sér síðan bara um munninn og héldu áfram að vinna!...

Ammoniaksleiki í fiskverkun í Sandgerði

Slökkvilið Sandgerðis var kallað út á níunda tímanum í gærkvöldi vegna ammoniak leka í Slægingarþjónustu Suðurnesja við Strandgötu 6 í Sandgerði. Þar lak ammóníak af kælikerfi. Tveir slökkviliðsmenn i eiturefnabúningum fóru inn og tókst þeim að stöðva lekann....

Fjölþjóðlegur dagur á leikskóla

Haldið var upp á svokallaðan fjölþjóðlegan dag á leikskólanum Gefnarborg í Garði í gær en á leikskólanum eru börn af sex þjóðernum. Boðið var upp á dagskrá með skemmtun og fróðleik sem tengdust þjóðerni þeirra barna sem eru á leikskólanum. Einnig var boðið upp á þjóðlegan mat frá sex þjóðlöndum sem krakkarnir og foreldrar þeirra gæddu sér á í samkomuhúsi bæjarins....

Höfnin í Vogum verður frístundahöfn

Ákveðið hefur verið að Vogahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd verði frístundahöfn. Sú ákvörðun felur í sér að ekki verði starfrækt vigt eða að sveitarfélagið hafi löggiltan vigtarmann. Hvorki er hægt að fá afgreidda olíu eða ís við höfnina. Í því ljósi er ákvörðun bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga formlega staðfesting á fyrirkomulagi sem lengi hefur verið....

Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja stofnað

Þann 27. apríl var Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja formlega stofnað. Því er ætlað að vera í forystu um uppbygginu þekkingasetur á Suðurnesjum og mun einnig vinna fjölbreytt verkefni á sviði atvinnu og byggðaþróunar og nýsköpunar. Gert er ráð fyrir fjórum stöðugildum ráðgjafa við félagið...

Framsóknarfélag Suðurnesja gagnrýnir hagkvæmnisathugun

Ekki eru allir á eitt sáttir með skýrslu frá Innanríkisráðuneytinu sem segir flutninga á starfsemi Landhelgisgæslunar til Suðurnesja óhagstæða. Framsóknarfélagið í Reykjanesbæ hefur sent út ályktun þar sem skýrslan er gagnrýnd. Hagkvæmnisathugunin er sögð byggja á skökkum forsendum og skorað er á ráðherra að hætta ekki við flutningana fyrr en allar hliðar málsins liggi fyrir...

Opið hús á Ásbrú

Ásbrú býður í dag gestum að koma og kynna sér starfsemina sem þar fer fram. Ásbrú er samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs og er staðsett á Keflavíkurflugvelli í húsnæði sem tilheyrði áður hersveitum NATO. Þetta er fjórða skiptið sem Ásbrú er með opinn dag og síðasta ár komu tæplega 20.000 manns. ...

Björgunarsveitir aðstoða á suðvesturhorni landsins

Vindur hefur verið að gera usla á Suðvesturhorni landsins í dag og hafa björgunarsveitir á Suðurnesjum, Hafnarfirði og Grindavík sinnt nokkrum aðstoðarbeiðnum vegna þess. Á Suðurnesjum aðstoðaði björgunarsveit íbúa húss sem fékk timbur inn um glugga hjá sér. Einnig fuku þakplötur af kofaskrifli og hjólhýsi, sem áður hefur verið til vandræða í óveðri, var bundið niður. ...

Átak fyrir námsmenn og atvinnuleitendur í Reykjanesbæ

Reykjanesbær er eitt fjölmargra sveitarfélaga sem taka þátt í verkefni Vinnumálastofnunar og Velferðarráðuneytisins um átak til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur í sumar. Á vef Reykjanesbæjar undir laus störf má sjá nánari upplýsingar um störfin og skulu umsóknir berast inn rafrænt í gegnum mittreykjanes.is fyrir 10. maí n.k....

Hvalreki sunnan við Stafnes

Búrhval (karldýr) hefur rekið á land sunnan við Stafnes á Reykjanesskaga. Hann rak í Skarfurð, sem er um tvo kílómetra sunnan við Stafnesið. Hvalurinn er um 14-15 metra langur og er farinn að rotna talsvert. Það var Arnbjörn Eiríksson sem tók myndir af hvalrekanum og má sjá fleiri HÉR....

Frægir kafarar kafa í Garði

Í byrjun maí hefst mikið ferðalag, ofan og neðansjávar í Garði en þá mun hinn heimskunni sjávarlíffræðingur og neðansjávarljósmyndari Alex Mustard ásamt þeim Gísla A. Guðmundssyni og Erlendi Guðmundssyni skoða og mynda helstu köfunarstaði við Íslandsstrendur og á Þingvöllum....

Þriggja ára áætlun Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir lækkun skulda

Reykjanesbær áætlar að svonefnt skuldahlutfall bæjarsjóðs verði komið niður í 195% árið 2014, samkvæmt þriggja ára áætlun sem lögð var fram í bæjarstjórn í fyrrakvöld. Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur og peningalegar eignir verði nýttar til að greiða niður skuldir á tímabilinu. Gert er ráð fyrir að skuldahlutfall samstæðu verði komið í 211% árið 2014....

Barnahátíð í Reykjanesbæ

Börn ættu ekki að vera í neinum vandræðum með að finna sér eitthvað að gera í Reykjanesbæ yfir páskahelgina en í gær hófst árleg barnahátið í bænum. Hátiðin stendur yfir frá 20. - 25. apríl og er nú haldin í sjötta sinn....

Söguganga á föstudaginn langa í Garðinum

Á föstudaginn langa fyrir réttu ári síðan fór nokkur hópur starfsmanna Garðs, fjölskylda þeirra og vinir í „Sögugöngu“ og var þá gengið frá Stafnesvita í Ósabotna undir leiðsögn Péturs Brynjarssonar skólastjóra. Gangan þótti takast vel og því hefur verið ákveðið að halda þessum góða sið áfram og bjóða upp á göngu á föstudaginn langa 22. apríl nk. kl. 10:00 og eru allir velkomnir í gönguna....

Tap á rekstri Grindavíkurbæjar

Ársreikningur 2010 fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir hans var lagður fram á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs, þ.e. A-hluta var 112,4 milljónir kr. í tap. Áætlun gerði ráð fyrir 96,5 milljónum kr. í tap...

Fundu eftirlíkingu skotvopns við húsleit í Reykjanesbæ

Lögreglan fann eftirlíkingu skotvopns við húsleit í Reykjanesbæ í gærdag. Tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn tvítugur voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en skotvopnið fannst á heimili annars þeirra....

Fleiri vilja nágrannavörslu í Reykjanesbæ

Nágrannavörslu hefur verið komið á í Starmóa í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annars og fylgjast með híbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Starmói er níunda nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu, að því er fram kemur á vef Reykjanesbæjar....

Reykjanesbær greiðir niður skuldir um 2,5 milljarða kr.

Reykjanesbær hefur ákveðið að greiða niður skuldir um 2,5 milljarða kr. Samsvarandi innistæða bæjarsjóðs á reikningi í Landsbankanum er nýtt til að greiða niður skuldabréfaútboð sem bærinn efndi til í október 2008. Í ársreikningi fyrir árið 2009 eru tilgreindar 14,1 milljarður í skuldir og skuldbindingar. Þessi skuldalækkun nemur 17,7% af þeirri upphæð....

Endurgerð Krýsuvíkurkirkju gengur vel

Eitt af fjölmörgum verkefnum sem Byggðasafn Hafnarfjarðar tekur þátt í þessa dagana er endurgerð Krýsuvíkurkirkju en það verk er unnið í samvinnu við Iðnskólann í Hafnarfirði, Vinafélag Krýsuvíkurkirkju, Þjóðminjasafn Íslands og Húsafriðunarnefnd ríkisins....

Grillaður saltfiskur með sætum kartöflum!

Saltfisksetur Íslands í Grindavík og félagið Matur-saga-menning stóðu á dögunum fyrir uppskriftarkeppni um bestu saltfiskréttina 2011. Fjölmargar uppskriftir voru sendar inn og fyrsta sæti í keppninni hlaut Ólöf Jakobsdóttir fyrir uppskrift af grilluðum saltfiski með sætum kartöflum....

Búið að sameina bankaútibúin í Grindavík

Útibú SpKef í Grindavík, sem Landsbankinn tók yfir fyrir skömmu í verslunarmiðstöðinni í Grindavík, var lokað síðasta þriðjudag. Þrír starfsmenn SpKef hófu svo störf á miðvikudaginn í sameiginlegu útibúi Landsbankans í Grindavík....

Frístundakort er tilraunaverkefni í Vogum

Bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga hefur ákveðið að taka upp frístundakort. Ákveðið var að veita 500.000 krónum í frístundkort á árinu 2011. Með frístundakorti er lögð áhersla á að styðja og hvetja börn og ungmenni í Sveitarfélaginu Vogum til þess að taka þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Frístundakort þetta er tilraunaverkefni sveitarfélagsins. ...

Ætla að prjóna lengsta trefil í heimi

Við setningu Menningarviku í Grindavík fyrir ári síðan hófst tilraun til þess að prjóna lengsta trefil í heimi. Við mælingu á Menningarvikunni nú fyrir helgi kom í ljós að búið er að prjóna 1,45 kílómetra. ...

Bryggjubræður hlutu menningarverðlaun Grindavíkur

Menningaravika Grindavíkur var sett í Grindavíkurkirkju í dag með pompi og pragt, en hún er nú haldin þriðja árið í röð. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2011 komu í hlut bræðranna Aðalgeirs og Kristins Jóhannssona, verta á kaffihúsinu Bryggjunni, sem hafa sett mikinn svip á menningarlíf bæjarins eftir að þeir opnuðu kaffihús á neðstu hæð netagerðarinnar Krosshús við höfnina, ...

Einar ráðinn útibússtjóri í Reykjanesbæ

Einar Hannesson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Spkef hefur verið ráðinn útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ og mun hann taka við nýrri stöðu nú þegar. Umsækjendur um stöðuna voru 15, þar af 5 starfsmenn Landsbankans og 10 utan bankans. Þrjár konur sóttu um starfið en 12 karlar. Þetta kemur fram á heimasíðu Landsbankans....

Jarðsögusýningin "Gjáin í Eldborg" flutt í Saltfisksetrið

HS Orka hefur samþykkt að láta Saltfisksetrinu í Grindavík í té jarðsögusýninguna Gjána sem nú er í Eldborg. Haft hefur verið samráð við Björn G. Björnsson leikmyndahönnuð sem hannaði bæði Gjána og Saltfiskseturssýninguna og hefur hann gert tillögur að uppsetningu á sýningunni á efri hæð Saltfisksetursins sem unnið er eftir....

Bókasöfnin í Sandgerði sameinuð

Í Sandgerði hafa verið rekin tvö aðskilin bókasöfn, skólabókasafnið í grunnskólanum og almenningsbókasafnið í Vörðunni. Við gerð fjárhags- og starfsáætlunar bæjarfélagsins fyrir árið 2011 var ákveðið að sameina söfnin í þeim tilgangi að ná fram sparnaði í rekstri sveitarfélagsins. Áætlað er að sameinað almennings- og skólabókasafn verði til húsa í grunnskólanum....

Grindavíkurdeild RKÍ kallar eftir túlkum

Neyðarvarnarnefnd Grindavíkurdeildar RKÍ kallar eftir túlkum á hvaða erlenda tungumáli sem er, en viðkomandi þarf einnig að geta tjáð sig á íslensku. Í neyðarvarnaráætlun, sem neyðarvarnarnefndum hjá öllum deildum RKÍ er gert að útbúa og uppfæra árlega, er gert ráð fyrir að deildir séu með túlka á lista ...

Keilir hefur jákvæð áhrif á menntunarstig á Suðurnesjum

Á þriðja heila starfsári Keilis hafa 720 nemendur verið útskrifaðir og 400 nemendum sköpuð ný tækifæri til að hefja háskólanám með tilkomu háskólabrúar. Meirihluti þeirra kemur frá Suðurnesjum og nærri 90% þeirra stunda nú háskólanám....

Skrauta átti lægsta tilboðið í undirgöng undir Reykjanesbraut

Í gær voru opnun tilboða í gerð undirganga norðan hringtorgsins við Grænás í Reykjanesbæ ásamt lagningu aðliggjandi göngu- hjóla- og reiðstíga. Skrauta ehf. í Hafnarfirði átti lægsta tilboðið upp á tæpar 65 milljónir, sem er 70,2% af áætluðum verktakakostnaði. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 20. september 2011. ...

Framtíðarsjóður nýttur til hagsbóta fyrir bæjarbúa

Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt samhljóða að ganga á höfuðstól Framtíðarsjóðs með uppgreiðslu langtímaskulda að markmiði. Garður mun nýta allt að 430 millj. kr. til uppgreiðslu langtímalána og eftir uppgreiðslu lánanna verða skuldir Garðs alls 245 milljónir króna. ...

Styrkir öll íþróttafélögin á Suðurnesjum

Bláa Lónið hefur veitt öllum íþróttafélögunum á Suðurnesjum styrki. Fulltrúar félaganna veittu styrkjunum móttöku fimmtudaginn 17. mars í Bláa Lóninu. Heildarvirði styrkjanna nú er rúmlega 5 milljónir króna en þeir eru í formi aðgangskorta í Bláa Lónið....

Tæplega 20 störf flutt til Reykjanesbæjar

Landsbankinn hefur nú leyst úr málum allra starfsmanna Spkef eftir samruna við bankann. Með flutningi tæplega 20 starfa í bakvinnslu til Reykjanesbæjar skapast störf fyrir þá starfsmenn sem áður störfuðu við sambærileg störf í höfuðstöðvum Spkef. Þegar hefur verið leyst úr málum allra starfsmanna í útibúum og afgreiðslum Spkef víðsvegar um landið. Af 130 starfsmönnum Spkef eru um 15 sem leitað hafa á önnur mið, þar af nokkrir af yfirmönnum fyrirtækisins, segir í tilkynningu frá Landsbankanum....

Lífið er saltfiskur!

Oft er sagt að lífið sé saltfiskur. Það á vissulega við um Grindvíkinga sem aðra. Nú stendur yfir hin árlega saltfisksuppskriftakeppni á vegum Saltfisksetursins í Grindavík og félagsins Matur-Saga-Menning. Keppnin hófst um síðustu helgi og lýkur í menningarviku með verðlaunaafhendingu....

Hugmyndabanki fyrir vinnuskólann í Vogum

Vogar leggja á herslu á að vera vinalegur bær. Sveitarfélagið óskar nú eftir skemmtilegum hugmyndum að störfum fyrir vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Til dæmis hvernig hægt er að skreyta bæinn og gera hann líflegri en nú er, hvort sem um er að ræða listaverk eða aðrar skreytingar, segir á heimasíðu Sveitafélagsins Voga....

Réttindakennurum fjölgar úr 70% í 95% í Reykjanesbæ

Réttindakennurum við grunnskóla Reykjanesbæjar hefur fjölgað úr 70% í 95% á síðustu 6 árum. Markvisst hefur verið unnið að því að fjölga réttindakennurum við grunnskóla Reykjanesbæjar, sem lið í að bæta skólastarfið. Þau 5% sem upp á vantar eru ýmist starfsmenn með aðra framhaldsmenntun eða eru langt komnir með nám til kennararéttinda, að því er fram kemur á vef Reykjanesbæjar....

Forstjóri Bankasýslunnar vill sameina fleiri sparisjóði

Ákveðið hefur verið að sameina SpKef sparisjóð og Landsbankann. SpKef sparisjóður samanstóð af sameinuðum sparisjóði Keflavíkur, sparisjóði Húnaþings og Stranda, sparisjóði Vestfirðinga og sparisjóði Ólafsvíkur. Eftir standa nú tíu sparisjóðir en ríkið á helmingshlut, eða meira, í fimm þeirra....

13 kaupsamningum þinglýst í febrúar

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir í Reykjanesbæ í febrúar 2011 var 13, en var 11 í sama mánuði í fyrra. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um eignir í sérbýli. Heildarveltan var 325 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25 milljónir króna. Fjöldi þinglýsinga á þessu svæði í janúar var 14....

Sandgerðingar í gleðigöngu alla laugardaga

Í vetur hefur Ferða- og menningarráð Sandgerðis staðið fyrir skipulögðum gönguferðum, Gleðigöngu" um Sandgerði og nágrenni. Markmið gönguferðanna er að fólk á öllum aldri komi saman og stundi heilsusamlega útiveru og kynnist um leið sínu nærumhverfi. Kvaðir og skyldur göngumanna eru ekki aðrar en þær að koma alltaf með góða skapið og göngugleðina í farteskinu og svo kannski kaffibrúsa og súkkulaðirúsínur í lengri ferðir....

Reykjanesbær vill vistvænar samgöngur

Reykjanesbær hyggst vera í forystu bæjarfélaga til að stuðla að notkun vistvænnar orku í samgöngum. Markmiðið er að innan fimm ára verði öll samgöngutæki sem bærinn nýtir, svo sem almenningsvagnar og þjónustubílar, knúnir vistvænum orkugjöfum. Leitað verður samstarfs við helstu fyrirtæki sem tengjast Reykjanesbæ....

Festi í Grindavík auglýst til sölu

Félagsheimilið Festi við Víkurbraut 58 í Grindavík er til sölu í því ástandi sem fasteignin er. Markmiðið með sölu fasteignarinnar er að húsið nýtist á sem fjölbreytilegastan máta fyrir samfélagið í Grindavík. Gert er ráð fyrir að samkomusalur verði áfram til staðar. ...

Bláa Lónið verður hluti af kynningarmyndi í sýningarskála Íslands í Frankfurt

Sögueyjan Ísland og Bláa Lónið hafa gert með sér samkomulag um að Bláa Lónið verði einn af styrktaraðilum heiðursþátttöku Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf, og Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar, undirrituðu samninginn i lok febrúar....