logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Auglýsingar áfram.is í leyfisleysi?

Stuðningsmenn Icesave samningsins hafa nú sett af stað milljóna króna auglýsingaherferð sem gengur m.a. út á að ýmsir þekktir einstaklingar láta, að því er virðist, hafa eftir sér fullyrðingar um Icesave. Heimildarmenn uppljóstrarans velta því fyrir sér hvernig samtökin fjármagna slíka herferð, enda sögðu fulltrúar indefence samtakanna frá því á sínum tíma að þeir hefðu þurft að skrapa saman fé frá stuðningsmönnum til að kaupa auglýsingar.

afram.is_logo_faniUppljóstrarinn veit hins vegar fyrir víst að a.m.k. margar auglýsinganna þar sem valinkunnum einstaklingum er telft fram sem stuðningsmönnum Icesave eru birtar í heimildaleysi. Mun víða hafa orðið uppi fótur og fit þegar menn opnuðu dagblöðin í morgun og komust að því að þeir hefðu óafvitandi tekið að sér að auglýsa Icesave fyrir Áfram samtökin.

Uppljóstrarinn hefur einnig heimildir fyrir því að ekki hafi verið haft fyrir því að fá leyfi til að nota ljósmyndir af viðkomandi fólki í auglýsingaskyni. Fyrir alþingiskosningarnar 2009 kærði Steingrímur J. Sigfússon menn á Vesturlandi fyrir að birta mynd af sér í lítilli auglýsingu í hérðasfréttablaði með spurningunni: "Trúir því einhver að ríkisstjórn Samfylkingar og VG muni ekki sækja um aðild að ESB?"

Uppljóstrarinn sér þó að Áfram Icesave hópurinn virðist hafa breytt um lógó frá því í gær. Þá notaði hópurinn íslenska fánann sem merki, en eins og flestir vita þá er það ólöglegt. Uppljóstrarinn bíður spenntur eftir að sjá hverju þessi ágæti hópur fólks tekur upp á næst.