logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Aðstoðarmaður forsætisráðherra í skattsvikum?

hrannar bUppljóstrarinn var minntur á það um helgina að Hrannari B. Arnarsyni aðstoðarmanni forsætisráðherra hafi tekist merkilega vel að láta fortíð sína falla í gleymsku og dá í þeim pólitíska spunadansi sem hann stýrir innan úr stjórnarráðinu. Þykir þeim Hrannar hafa verið undarlega stikkfrí þegar kemur að alls kyns umfjöllun vefmiðla og bloggara um hina og þessa stjórnmálamenn, fortíð þeirra, fyrri viðskiptamistök og hliðarspor sem ekki þykja sérlega vel til þess fallin að skapa traust á mönnum í embætti.

Þess sé nefnilega ekki svo langt að minnast að Hrannar hrökklaðist af framboðslista Reykjavíkurlistans fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1998 vegna fjármálafortíðar sinnar og ásakana um misferli, undanskot og skattsvik. Stóð styrinn um rekstur þeirra félaga Hrannars og Helga Hjörvars á nokkrum fyrirtækjum sem áttu það sameiginlegt að hafa farið kollsteypu, sum við vafasamar aðstæður.

Töluverð umræða varð um málið á síðum blaðanna í maí 1998. M.A sá Stefnir Kristjánsson viðskiptafræðingur ástæðu til að rita grein í DV þann 13 maí:

"Helgi Hjörvar og Hrannar B. Arnarsson, tveir af forystumönnum Rlistans í Reykjavík, eiga að baki miður glæsilegan feril í íslensku viðskiptalífi. Þeir hafa skilið eftir sig slóða gjaldþrotamála og bunka ógreiddra reikninga. í sameiningu  ráku þeir m.a. fyrirtækið Arnarsson og Hjörvar. Þrátt fyrir að líftimi þess fyrirtækis hafi ekki verið langur var það lýst gjaldþrota og voru lýstar kröfur í þrotabúið um 70 milljónir króna. Þar af var lýst kröfum vegna vangreidds virðisaukaskatts upp á nokkrar miujónir. Margir hér á landi hafa verið dæmdir af dómstólum til betrunarhússvistar fyrir það að standa ekki skil á virðisaukaskatti. Virðisaukaskattur er s.k. vörsluskattur og þeir sem ekki skila honum eru að stela fjármunum skattgreiðenda."

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sá þá ástæðu til að gefa yfirlýsingu um málið þann 12. maí þar sem hún sagði að "Hrannar Björn Arnarsson [hefði] átt  við fjárhagslega erfiðleika að stríða. ... Bú Hrannars Björns og fyrirtækis hans var tekið til gjaldþrotaskipta í maí 1994. Gjaldþrotaskiptunum lauk með því að Hrannar Björn náði nauðasamningum við lánardrottna sína í nóvember 1995."

Einnig var um málið fjallað í Morgunblaðinu sömu daga og sá blaðið ástæðu til að spyrja viðmælendur hvort þeir teldu Hrannar B. Arnarson flokkast sem alvarlegan fjárglæframann. Spurður um vangoldna vörsluskatta sína sagði Hrannar að "erfitt væri að henda reiður á þeirri umræðu allri saman. "Mér finnst satt að segja óeðlilegt að verið sé að krefja menn svara um hvenær einstakar greiðslur voru greiddar."

Að lokum dró Hrannar sig af framboðslista R-listans þar sem fjármálafortíð hans og sérstök samskipti við skattayfirvöld höfðu skaðað framboðið.

Heimildarmenn uppljóstrarans bentu honum á að það væri sérstakt að þeir Hrannar og Helgi væru nú báðir í stöðum sem krefðust þess að þeir hefðu stjórn á fjármálum og skattgreiðslum annarra, þrátt fyrir hlykkjótta fortíð í fyrirtækjarekstri og skattaskuldum. Hrannar hefði átt sæti í nefnd um breytingar á skattkerfinu og væri aðstoðarmaður þess forsætisráðherra sem hækkað hefði skatta meira en forverar sínir og Helgi Hjörvar væri sitjandi formaður Efnahags- og skattanefndar Alþingis. Telja heimildarmenn þetta til marks um að fjármálaminni Íslendinga sé tiltölulega stutt.

 

 

Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður

Uppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan....

Lúðvík næsti formaður Samfylkingarinnar

Uppljóstrarinn rak upp stór augu á föstudaginn þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar tilkynnti að hún væri hætt þingmennsku og hyggðist setjast á skólabekk til að læra siðfræði. Fjölmiðlar voru fljótir að átta sig á að varamaður Þórunnar væri Lúðvík Geirsson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði. Lúðvík setti á svið svolítið sjónarspil um það hvort hann myndi taka sæti á þingi, eins og þetta kæmi honum allt saman óskaplega á óvart. Heimildarmenn uppljóstrarans innan Samfylkingarinnar benda hins vegar á að þarna sé pólitísk flétta í gangi sem ekki sé Lúðvík ókunn. ...

Hvar er Ómar?

Uppljóstrarinn er opinn fyrir breytingum. En samt er hann þeirrar skoðunar að sumir hlutir breytist aldrei. Það er að segja var þeirrar skoðunar þar til að Eyjan.is tók upp á því að tengja kommentakerfi vefsins við Facebook. Kommentakerfi Eyjunnar hefur um margra ára skeið skipað staðfastan sess í hjörtum Íslendinga sem einn dýpsti ælupollur mannlegra skoðanaskipta á internetinu....

Allt miðar til hins besta

Uppljóstrarinn hlustaði á forsætisráðherra gefa þingheimi skýrslu um efnahagslífið í morgun. Það er ljóst af skýrslunni að forsætisráðherra er vel lesin í klassískum heimsbókmenntum og hefur tekið sér til fyrirmyndar heimspeki Alviðru, lærimeistara Birtings....

Er íslenskur her markmið nýja miðjuflokksins?

Eins og uppljóstrarinn fjallaði um í fyrradag er stefnuskrá hins nýja miðjuflokks Guðbjörns og Guðmundar hin merkilegasta lesning, ekki síst í þeim sér-íslensku málaflokkum sem sem ekki fást þýddir úr dönsku. Tillögur flokksins um stóraukin útgjöld til íslenskra hermála vöktu t.d. sérstaka athygli uppljóstrarans. ...

Björn Valur segir ekki allan sannleikann

Heimildarmenn uppljóstrarans hafa sérstakt dálæti á Birni Val Gíslasyni umfram aðra þingmenn. Telja þeir að það hljóti að vera óþarfi fyrir formann Vinstri-grænna að eiga varðhund þegar hann hefur Björn Val til að gjamma "réttar staðreyndir" í átt að hverjum sem reisir hönd móti niðurskurði, skattahækkunum og öðrum óvinsælum málaflokkum og formannsins. ...

Vefur nýja miðjuflokksins opinn. Stefnuskráin upphaflega afrituð frá dönskum hægriflokki.

Flestum er kunnugt að eftir aukalandsfund Sjálfstæðisflokksins í fyrra sagði Guðbjörn Guðbjörnsson sig úr flokknum vegna ágreinings um Evrópusambandsaðild og boðaði stofnun nýs miðjuflokks í íslenskri pólitík. Skyldi flokkurinn lagaður að fyrirmynd norrænna borgaraflokka. Nú í vikunni buðu fjölmiðlar upp á endursýningu á úrsögn Guðbjörns, en nú með Guðmundi Steingrímssyni í aðalhlutverki. Í þetta sinn skyldi nýji miðjuflokkurinn vera heldur til vinstri á miðjunni með grænum og frjálslyndum áherslum. ...

Ungir jafnaðarmenn sjá um grínið

Þegar uppljóstraranum leiðist bregður hann sér stundum á internetið í leit að skemmtun. Á ferðum sínum um hraðbrautir upplýsingatækninnar er fátt sem drepur tímann betur en myndbandavefurinn youtube.com. Þar má meðal annars finna fjölda íslenskra stjórnmálamyndbanda sem mörg hver eru hið besta skemmtiefni. ...

Þreföld hagfræðivilla Þórólfs

Uppljóstrarinn hefur fyrir all löngu síðan spurnir af því að í hópi harðkjarna ESB sinna hafi verið rætt um að „taka þyrfti á bændum“. Kemur það að sögn heimildarmanna til af því hve samtök bænda hafa lagst fast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og lagt í mikla vinnu vegna aðildarumsóknarinnar. Heimildarmenn uppljóstrarans segja það til að mynda hafa farið mjög fyrir brjóstið á harðlínumönnunum að jafnvel formaður samninganefndar Íslands hafi borið lof á vandaða undirbúningsvinnu bænda....

Gylfi Arnbjörnsson slær í gegn!

Gylfi Arnbjörnsson sló feilhögg gagnvart sínum eigin félagsmönnum á dögunum þegar hann hvatti Íslendinga til að sniðganga lambakjöt vegna þess að sauðfjárbændur lögðu til hækkun á afurðaverði. Gylfi virðist þurfa að skoða betur uppbyggingu og félagaskrá eigin samtaka, því að fjöldi félagsmanna ASÍ er í störfum tengdum landbúnaði og eiga því sitt undir því að Íslendingar kaupi áfram lambakjöt og aðrar landbúnaðarafurðir....

Er samkeppniseftirlitið enn í helgarfríi?

Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og díselolíu í gær. Svona rétt um leið og síðasti bíll kom í bæinn eftir ferðalagið um Verslunarmannahelgina. Líklega hefur heimsmarkaðsverðið lækkað akkúrat í gær líka. Og það merkilega er, að öll olíufélögin fá út sama lítraverð - eins og venjulega. Hér er ekkert samráð - það skyldi maður ekki ímynda sér. Spurningin er hvort samkeppniseftirlitið sé örugglega enn í helgarfríi !!!...

"Hrannar og Helgi nýttu sér krakka grei"

Upprifjun uppljóstrarans á fjármálasögu þeirra Hrannars B. og Helga Hjörvars hefur vakið nokkur viðbrögð í netheimum og sýnist sitt hverjum. Meðal annars er rætt um málið á vefsvæði Útvarps Sögu en þar gefst hlustendum kostur á að leggja orð í belg og bæta sumir þeirra sinni eigin upplifun við söguna. Uppljóstrarinn leggur ekki dóm á sannleiksgildið en þó verða sumar þessara yfirlýsinga að teljast nokkurrar athygli verðar....

Gjaldþrotasaga Hrannars og Hjörvars

Í kjölfar greinarinnar frá því í gær um vafaasama fjármálafortíð þeirra Hrannars B. Arnarsonar og Helga Hjörvars í gær hefur uppljóstraranum borist fjöldi ábendinga um það sem heimildarmenn hafa sumir kallað "gjaldþrotasögu Hrannars og Hjörvars". Virðist þar sannast að eiga má von á ýmsu þegar gruggugt yfirborðið er gárað....

Aðstoðarmaður forsætisráðherra í skattsvikum?

Upplljóstrarinn var minntur á það um helgina að Hrannari B. Arnarsyni aðstoðarmanni forsætisráðherra hafi tekist merkilega vel að láta fortíð sína falla í gleymsku og dá í þeim pólitíska spunadansi sem hann stýrir innan úr stjórnarráðinu. Þykir þeim Hrannar hafa verið undarlega stikkfrí þegar kemur að alls kyns umfjöllun vefmiðla og bloggara um hina og þessa stjórnmálamenn, fortíð þeirra, fyrri viðskiptamistök og hliðarspor sem ekki þykja sérlega vel til þess fallin að skapa traust á mönnum í embætti....

Lýgur Evrópuvefur Háskólans blákalt?

Uppljóstrarinn tók eftir því í gær að einn víðlesnasti bloggari landsins, blaðamaðurinn Páll Vilhjálmsson, vakti athygli á rangfærslum á Evrópuvefnum, sem er fjármagnaður af Háskóla Íslands og á að heita hlutlaus upplýsingagjöf um Evrópusambandið. "Evrópuvefurinn ber á borð bein ósannindi sem eru til þess fallin að fegra málstað aðildarsinna" segir Páll í færslu í gær og bætir við að upplýsingar sem vefurinn birti um að "breytingar á hlutföllum milli smáríkja og stærri ríkja með Lissabon-samningnum sé óverulegar" séu beinlínis rangar. ...

Seðlabankinn framkvæmir stefnu Framsóknar

Þær fréttir bárust úr Seðlabankanum í morgun að Seðlabankinn hafi nú teiknað upp næstu skref í afléttingu gjaldeyrishafta. Felast þau í tveimur samstæðum útboðum á næstu vikum, þar sem bankinn hefur í raun milligöngu um að selja útlendingum gjaldeyri í eign lífeyrissjóða í skiptum fyrir verðtryggð ríkisbréf á hagstæðum kjörum....

Jóhanna smánar forsætisráðherra framtíðarstórveldis.

Heimildarmenn uppljóstrarans segja reiði ríkja í kínverska sendiráðinu eftir að Jóhanna Sigurðardóttir neitaði að gefa sér tíma til að hitta kínverska forsætisráðherrann sem hefur áhuga á að koma í opinbera heimsókn til Íslands. Segja má að Jóhanna hafi hér sett punkt aftan við andúð vinstri flokkana á Kína undanfarin áratug. Þessi andúð birtist sérstaklega í hvert sinn sem kínverskir ráðamenn komu í heimsóknir hingað til lands á valdatíma sjálfstæðismanna. ...

Samningatækni ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur: "Give'em what they want".

Heimildarmenn uppljóstrarans innan utanríkisþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af þeirri nýju hefð í samningatækni sem nú virðist vera að myndast í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þessi nýja tækni er reyndar ekki ný af nálinni heldur var beitt með vafasömum árangri á fjórða áratugnum undir nafninu "friðþæging" eða "appeasement", og hverrar kjörorð mætti kalla: Gefum þeim það sem þeir vilja. ...

Opinberaði Össur loks raunveruleg samningsmarkmið?

Eftir pistla gærdagsins um yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar varðandi samningsmarkmið Íslands gagnvart ESB í sjávarútvegsmálum var uppljóstrarinn minntur á orð utanríkisráðherra í erlendum fjölmiðlum um sama efni frá því í fyrra, þegar sameiginlegur undirbúningur Íslands og ESB að samningaviðræðum hófst. Við það tækifæri var utanríkisráðherra vígreifur og sagði við BBC þann 28. júlí 2010 að íslenska efnahafslögsaagan ætti að verða séstakt yfirráðasvæði undir stjórn Íslenskra yfirvalda sem skyldu áfram bera ein ábyrgð á skipan fiskveiða: ...

Og svo sveiflast Össur, og Össur sveiflast svo...

Fréttaflutningur erlendra fjölmiðla af Össuri Skarphéðinssyni hefur vakið athygli heimildarmanna uppljóstrarans undanfarið fyrir nokkrar sakir. Í fyrsta lagi virðist Össur telja að erlendar fréttir berist ekki til Íslands og hann geti því sagt eitt hér heima og annað erlendis. Í annan stað virðist honum fyrirmunað að gefa fjölmiðlum sömu skilaboð um sama málefni tvö viðtöl í röð. ...

Lærði Össur samningatækni af Neville Chamberlain?

Heimildarmenn uppljóstrarans eru sammála um að sjaldan hafi ráðherra kastað hagsmunum eigin þjóðar jafn rækilega fyrir borð á alþjóðavettvangi og utanríkisráðherra Íslands Össur Skarphéðinsson gerði í viðtali við Euronews þann 28. júní s.l. Aðspurður svaraði Össur því til að Íslendingar þyrftu "engar sérstakar undanþágur vegna sjávarútvegs" í samningum við ESB. Heimildarmenn uppljóstararns telja ástæðu til að spyrja í fullri alvöru hvort Össur Skarphéðinsson geti áfram sinnt starfi utanríkisráðherra ...

Herferðin gegn biskupi

Starfsmaður Ríkisútvarpsins fræddi uppljóstrarann um að innan stofnunarinnar væru nokkrir starfsmenn sem færu ekki leynt með andúð sína á kirkjunni en þeir virðast fá frjálsar hendur til að beita þjóðarútvarpinu. Hann sagði málið töluvert vera rætt meðal starfsmanna RÚV. Starfsmaðurinn sagði að sér væri misboðið eftir að hafa fylgst með gangi málsins og því ákveðið að taka saman nokkra punkta um umfjöllunina. Nöfnum er sleppt nema í tilviki núverandi og fyrrverandi biskups:...

Bjargar forsætisráherra Vestfjörðum?

Öllum er ljóst að stór hluti samgöngukerfis Vestfjarða eru lélegir malarvegir sem sannarlega þarfnast viðhalds enda hefur lítið verið um fjármagn til vegagerðar á Vestfjörðum vegna mikillar áherslu ríkisstjórnarinnar á Héðinsfjarðargöng, Landeyjarhöfn og fleiri arðbær samgönguverkefni....

Hanna Birna hjólar í Bjarna Ben í haust

Átökin innan Sjálfstæðisflokksins hafa verið öllum augljós undanfarið og ekki hefur þurft heimildarmenn uppljótrarans til að vita að staða Bjarna Benediktssonar sem formanns flokksins er mjög ótrygg. Landsfundur hefur verið boðaður í október og nú bíða menn eftir því að sjá hvort einhver gerir atlögu að Bjarna og formannsstólnum. Tveir kandídatar hafa helst verið nefndir í því sambandi af heimildarmönnum uppljóstrarans innan Sjálfstæðisflokksins....

Vg og Lýbía

Vinstri hreyfingin grænt framboð naut mikils fylgis fyrir síðustu kosningar og Steingrímur J. Sigfússon var sá stjórnmálamaður sem naut mest trausts meðal almennings. Frá 2009 hefur fylgi Vg hinsvegar fallið jafn hratt og kosningarloforðin hafa verið svikin. Framganga flokksins varðandi Evrópusambandsaðild, Icesave málið, velferðarbrúnna, skuldavanda heimilanna o.fl. hefur valdið því að nokkrir þingmenn og fjölmargir flokksmenn hafa yfirgefið hreyfinguna á þessum tíma. ...

Samfylkingin og nýju vinnubrögðin

Heimildarmenn uppljóstrarans á Alþingi segja að forystumenn Samfylkingarinnar séu farnir að finna óþægilega mikið fyrir aukinni gagnrýni á vinnubrögð og stefnu norrænu velferðarstjórnarinnar. ...

Gylfi og Vilhjálmur að skilja?

Gylfi Arnbjörnsson fer nú hamförum gegn stefnu Vilhjálms Egilssonar og Samtaka atvinnulífsins í kjölfar þess að upp úr viðræðum slitnaði um skammtímasamninga eftir að Icesave atkvæðagreiðslan fór ekki á þann veg sem þeir félagar Gylfi og Vilhjálmur höfðu í sameiningu ákveðið að væri best fyrir verkafólk í landinu. Heimildarmönnum uppljóstrarans þykir þessi harka sem hlaupin er í samskipti þeirra Gylfa og Vilhjálms sérstök í ljósi þess að varla hafi gengið hnífurinn milli þeirra undanfarin tvö ár. Minnast heimildarmenn þess sérstaklega hversu þétt þeir stóðu saman sem vopnabræður í Icesave málinu, sama hvaða skelfingarsamningur lá á borðinu. ...

Frumhlaup Bjarna

Heimildarmenn uppljóstrarans innan Vinstri-grænna telja að Bjarni Benediktsson hafi gert stór mistök með því að setja fram vantraust á ríkisstjórnina í þessari viku. Rökstyðja þeir það með því að eftir að Guðfríður Lilja var sett af fyrir Árna Þór hafi vanþóknun órólegu deildarinnar innan þingflokksins náð nýjum hæðum. Telja heimildarmenn uppljóstrarans að ef þingflokkur vinstri grænna hefði verið látinn malla í sínum eigin suðupotti alla þessa viku hefði staðan verið orðin ískyggileg við upphaf páskaleyfis þingmanna um næstu helgi. ...

Laug Landsvirkjun?

Heimildarmenn uppljóstrarans ráku upp stór augu í dag þegar þessi frétt um fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar hjá Evrópska fjárfestingabankanum birtist á Vísi í dag. Þar segir meðal annars: "Fjárfestingarbanki Evrópu var búinn að lána Landsvirkjun fyrir Búðarhálsvirkjun en það var skilyrt við að lánshæfið myndi ekki lækka. Ef það fellur er Búðarhálsvirkjun samt á dagskrá, en fjármögnun verkefnisins verður með styttri lánstíma og aðeins verri kjörum." ...

Suður við höfin...

Uppljóstrarinn hefur verið að taka púlsinn á heimildarmönnum sínum nú í kjölfar þess að þjóðin hafnaði Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Margt þykir þeim merkilegt, og nefna þar til dæmis að sumir þeirra sem hvað virkastir hafa verið í bloggheimum við að tala fyrir Já-i hafi hálfpartinn gengið af göflunum þegar niðurstöðurnar birtust. ...

Viðskiptasiðfræðingurinn viðsjáli

Heimildarmenn uppljóstrarans kættust mjög í dag, við þau tíðindi að Stefán Einar Stefánsson væri nýkjörinn formaður stéttafélagsins Virðing og Réttlæti, VR. Ekki var kætin að sögn tilkomin vegna stuðnings þeirra við Stefán í kjörinu, heldur fremur vegna þess að heimildarmönnum uppljóstrarans leiðist átakalaus verkalýðsbarátta. ...

Háskólahúmor

Háskóli Íslands stendur fyrir hálfsdags málþingi um ýmis álitaefni vegna Icesave næst komandi laugardag, en þá verður vika í þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Málþingið verður líklega auglýst á morgun en samkvæmt heimildamönnum uppljóstrarans ætlar Háskólinn að „fara alla leið“ í kaldhæðninni. ...

"Kæruleysisleg ummæli" sökkva skipum

Á tímum þegar varnarbarátta er háð í íslenska hagkerfinu er lífsnauðsynlegt að þeir sem hafa valist í forsvar fyrir almenning fari með völd sín og áhrif af mikilli ábyrgð og hógværð. Kæruleysisleg ummæli geta valdið ómældum skaða við slíkar aðstæður....

Hve margir eru stuðningsmenn Þráins?

Úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG á dögunum varð til þess að VG félagar, m.a. í Suðurkjördæmi, gáfu frá sér ályktanir þar sem skorað var á þau, og sérstaklega Atla, að segja af sér þingmennsku. En ekki eru allir þeirrar skoðunar. Því til sönnunar birtist síðastliðinn föstudag hvatning á vefmiðlinum Smugunni til Atla frá 26 kjósendum VG í Suðurkjördæmi um að "víkja hvergi af réttri braut og halda áfram þingmennsku."...

Auglýsingar áfram.is í leyfisleysi?

Stuðningsmenn Icesave samningsins hafa nú sett af stað milljóna króna auglýsingaherferð sem gengur m.a. út á að ýmsir þekktir einstaklingar láta, að því er virðist, hafa eftir sér fullyrðingar um Icesave. Heimildarmenn uppljóstrarans velta því fyrir sér hvernig samtökin fjármagna slíka herferð,...

"House of pain"

Uppljóstrarinn hefur fengið ábendingu um að gamla Morgunblaðshúsið í Kringlunni hafi fengið nýtt hlutverk og gangi nú undir nafninu "House of pain"....

Landsvirkjun fær lán hjá NIB og EIB þrátt fyrir Icesave - hvað klikkaði?

Eftir að grýlan um fjármögnunarfrostið vegna Icesave var kveðin niður með fréttum af afar hagstæðri fjármögnun Marel fyrir síðustu jól, hafa tafir á fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar verið síðasta haldreipi talsmanna þess að samþykkja þurfi samningana....

Hvort hefur betur Jóhanna eða Jón?

Í kjölfar úrsagnar Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar úr þingflokki VG hafa menn velt fyrir sér stöðu ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra. Meirihlutinn er tæpur en einungis 33 þingmenn styðja ríkisstjórnina....