Tíminn | 12.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Gjaldþrotasaga Hrannars og Hjörvars
Í kjölfar greinarinnar frá því í gær um vafaasama
fjármálafortíð þeirra Hrannars B. Arnarsonar og Helga Hjörvars
hefur uppljóstraranum borist fjöldi ábendinga um það sem
heimildarmenn hafa sumir kallað "gjaldþrotasögu Hrannars og
Hjörvars". Virðist þar sannast að eiga má von á ýmsu þegar gruggugt
yfirborðið er gárað.
Svo virðist sem ekki færri en sex félög og fyrirtæki sem Hrannar
B. Arnarson og Helgi Hjörvar hafa átt eða verið tengdir saman eða
sitt í hvoru lagi hafi orðið gjaldþrota á liðnum árum. Stærst
virðist hafa verið gjaldþrot félagsins Arnarson og Hjörvar sem þeir
félagar áttu og ráku í sameiningu en kröfur í þrotbúið námu alls 66
milljónum króna árið 1998.
Samkvæmt upplýsingum uppljóstrarans voru í kröfunum í
þrotabú félagsins nokkrar skuldir á vörslusköttum, m.a.
virðisaukaskattur að upphæð tæplega 1,8 milljónir króna,
tryggingagjald að upphæð rúmlega 332 þúsund krónur og opinber gjöld
að upphæð rúmlega 2,2 milljónir frá gjaldheimtunni í Reykjavík.
Alls höfðu Hrannar og Hjörvar því ekki staðið skil á a.m.k. 4
milljónum af vörslusköttum þegar félagið fór í þrot.
Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að í lögum um
virðisaukaskatt sé tekið hart á brotum á skilum þar sem þeir,
sem stunda virðisaukaskattskyldan rekstur eru aðeins innheimtumenn
skattsins fyrir ríkissjóð. Telja þeir að Hrannar og Hjörvar hafi
sloppið nokkuð billega frá þessum skuldum sínum í ljósi þess.
Hrannar náði nauðasamningum við kröfuhafa og virðist að lokum hafa
greitt um 14 milljónir af þeim 66 sem gerðar voru kröfur um.
En gjaldþrotasögunni var þó ekki lokið, heldur virðast fimm
önnur félög tengd Hrannari hafa orðið gjaldþrota á næstu þremur
árum, eða á tímabilinu 1994-1997.
Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 1998 tók Morgunblaðið
þessa sögu saman. Þar segir að félögin fimm hafi verið
Aðföng hf. , sem úrskurðað var gjaldþrota 22. marz 1994. Skiptum
lauk 6. febrúar 1995 með því að búið var eignalaust. Aðföng hf. var
stofnað 31.12. 1991 og það var afskráð 6. febrúar 1995. Tilgangur
með rekstrinum var "kaup aðfanga fyrir ýmis fyrirtæki og dreifing
þeirra, lánastarfsemi, kaup og sala eigna og tilheyrandi rekstur
þeirra".
VSKM hf. , sem úrskurðað var gjaldþrota 23. marz 1995. Skiptum
lauk 15. júní 1995 með því að búið var eignalaust. Fyrirtækið er
stofnað 31. desember 1991 og afskráð 15. júní 1995. Tilgangur með
rekstri félagsins var "viðskiptamiðlun, bókhaldsþjónusta,
skrifstofuþjónusta, innheimtustarfsemi, lánastarfsemi, kaup og sala
eigna og tilheyrandi rekstur þeirra".
Markaðsmenn ehf. , þar sem gert var árangurslaust fjárnám vegna
5,6 milljóna króna hinn 24. nóvember 1994 og aftur 29. júlí 1996.
Hrannar Björn er þar stjórnarformaður og prókúruhafi. Félagið er
stofnað 31. ágúst 1992 og er tilgangur þess "rekstur
sölumiðstöðvar, markaðsöflun og ráðgjöf. Allur annar skyldur
rekstur, lánastarfsemi, kaup og sala eigna og tileyrandi rekstur
þeirra".
Manntafl ehf. , þar sem Hrannar Björn er stjórnarformaður, en þar
var gert árangurslaust fjárnám vegna 3,2 milljóna króna hinn 15.
janúar 1997 að kröfu tollstjórans í Reykjavík. Félagið er stofnað
31. desember 1991 og er tilgangur þess "útgáfustarfsemi, mótshald
og efling skákíþróttarinnar á Íslandi, lánastarfsemi, kaup og sala
eigna og tilheyrandi rekstur þeirra".
Útgáfuþjónustan MM ehf. Þar var gert árangurslaust fjárnám 6.
september 1994. Félagið er stofnað 31. desember 1991 og er
tilgangur þess "að standa að vandaðri útgáfu á bókum, blöðum og
tímaritum auk annarrar útgáfustarfsemi og annast ráðgjöf og
þjónustu á sviði útgáfumála ýmiskonar. Rekstur fasteigna,
lánastarfsemi og önnur eignaumsýsla telst einnig til markmiða
félagsins." Þetta fyrirtæki hét áður Íslenska vörumiðlunin, en
nafni þess hefur vrið breytt. Kennitalan er hin sama.
Morgunblaðið klykkir svo út með því að telja upp kröfurnar sem
gerð hafi verið í félögin fimm:
Arnarsson og Hjörvar sf. 66 milljónir nauðasamningar,
20% = 13,2 milljónir greiddar.
Aðföng hf. 1,5 milljónir. Gjaldþrot Búið eignalaust
VSKM hf. 5,4 milljónir. Gjaldþrot Búið eignalaust.
Markaðsmenn ehf. 5,6 milljónir. Árangurslaust fjárnám.
Manntafl ehf. 3,2 milljónir. Árangurslaust fjárnám.
Útgáfuþjónustan MM ehf. Fjárhæð liggur ekki fyrir. Árangurslaust
fjárnám.
Á þremur árum virðist Hrannari B. Arnarsyni því hafa tekist að
skilja eftir sig slóð gjaldþrota þar sem skuldir námu tæplega 82
milljónum króna, eftir því sem heimildarmönnum uppljóstrarans
reiknast til út frá opinberum heimildum. Uppljóstrarinn telur að
hugsanlega ættu spunameistarar Samfylkingarinnar að beina sjónum að
eigin heimalingum áður en þeir gagnrýna aðra.
Tíminn | 07.10.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan....
Tíminn | 05.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn rak upp stór augu á föstudaginn þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar tilkynnti að hún væri hætt þingmennsku og hyggðist setjast á skólabekk til að læra siðfræði. Fjölmiðlar voru fljótir að átta sig á að varamaður Þórunnar væri Lúðvík Geirsson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði. Lúðvík setti á svið svolítið sjónarspil um það hvort hann myndi taka sæti á þingi, eins og þetta kæmi honum allt saman óskaplega á óvart. Heimildarmenn uppljóstrarans innan Samfylkingarinnar benda hins vegar á að þarna sé pólitísk flétta í gangi sem ekki sé Lúðvík ókunn.
...
Tíminn | 03.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn er opinn fyrir breytingum. En samt er hann þeirrar skoðunar að sumir hlutir breytist aldrei. Það er að segja var þeirrar skoðunar þar til að Eyjan.is tók upp á því að tengja kommentakerfi vefsins við Facebook. Kommentakerfi Eyjunnar hefur um margra ára skeið skipað staðfastan sess í hjörtum Íslendinga sem einn dýpsti ælupollur mannlegra skoðanaskipta á internetinu....
Tíminn | 02.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hlustaði á forsætisráðherra gefa þingheimi skýrslu um efnahagslífið í morgun. Það er ljóst af skýrslunni að forsætisráðherra er vel lesin í klassískum heimsbókmenntum og hefur tekið sér til fyrirmyndar heimspeki Alviðru, lærimeistara Birtings....
Tíminn | 01.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Eins og uppljóstrarinn fjallaði um í fyrradag er stefnuskrá hins nýja miðjuflokks Guðbjörns og Guðmundar hin merkilegasta lesning, ekki síst í þeim sér-íslensku málaflokkum sem sem ekki fást þýddir úr dönsku. Tillögur flokksins um stóraukin útgjöld til íslenskra hermála vöktu t.d. sérstaka athygli uppljóstrarans. ...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Heimildarmenn uppljóstrarans hafa sérstakt dálæti á Birni Val Gíslasyni umfram aðra þingmenn. Telja þeir að það hljóti að vera óþarfi fyrir formann Vinstri-grænna að eiga varðhund þegar hann hefur Björn Val til að gjamma "réttar staðreyndir" í átt að hverjum sem reisir hönd móti niðurskurði, skattahækkunum og öðrum óvinsælum málaflokkum og formannsins.
...
Tíminn | 30.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Flestum er kunnugt að eftir aukalandsfund Sjálfstæðisflokksins í fyrra sagði Guðbjörn Guðbjörnsson sig úr flokknum vegna ágreinings um Evrópusambandsaðild og boðaði stofnun nýs miðjuflokks í íslenskri pólitík. Skyldi flokkurinn lagaður að fyrirmynd norrænna borgaraflokka. Nú í vikunni buðu fjölmiðlar upp á endursýningu á úrsögn Guðbjörns, en nú með Guðmundi Steingrímssyni í aðalhlutverki. Í þetta sinn skyldi nýji miðjuflokkurinn vera heldur til vinstri á miðjunni með grænum og frjálslyndum áherslum.
...
Tíminn | 25.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Þegar uppljóstraranum leiðist bregður hann sér stundum á internetið í leit að skemmtun. Á ferðum sínum um hraðbrautir upplýsingatækninnar er fátt sem drepur tímann betur en myndbandavefurinn youtube.com. Þar má meðal annars finna fjölda íslenskra stjórnmálamyndbanda sem mörg hver eru hið besta skemmtiefni.
...
Tíminn | 08.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fyrir all löngu síðan spurnir af því að í hópi harðkjarna ESB sinna hafi verið rætt um að „taka þyrfti á bændum“. Kemur það að sögn heimildarmanna til af því hve samtök bænda hafa lagst fast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og lagt í mikla vinnu vegna aðildarumsóknarinnar. Heimildarmenn uppljóstrarans segja það til að mynda hafa farið mjög fyrir brjóstið á harðlínumönnunum að jafnvel formaður samninganefndar Íslands hafi borið lof á vandaða undirbúningsvinnu bænda....
Tíminn | 04.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Gylfi Arnbjörnsson sló feilhögg gagnvart sínum eigin félagsmönnum á dögunum þegar hann hvatti Íslendinga til að sniðganga lambakjöt vegna þess að sauðfjárbændur lögðu til hækkun á afurðaverði. Gylfi virðist þurfa að skoða betur uppbyggingu og félagaskrá eigin samtaka, því að fjöldi félagsmanna ASÍ er í störfum tengdum landbúnaði og eiga því sitt undir því að Íslendingar kaupi áfram lambakjöt og aðrar landbúnaðarafurðir....
Tíminn | 04.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og díselolíu í gær. Svona rétt um leið og síðasti bíll kom í bæinn eftir ferðalagið um Verslunarmannahelgina. Líklega hefur heimsmarkaðsverðið lækkað akkúrat í gær líka. Og það merkilega er, að öll olíufélögin fá út sama lítraverð - eins og venjulega. Hér er ekkert samráð - það skyldi maður ekki ímynda sér. Spurningin er hvort samkeppniseftirlitið sé örugglega enn í helgarfríi !!!...
Tíminn | 12.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Upprifjun uppljóstrarans á fjármálasögu þeirra Hrannars B. og Helga Hjörvars hefur vakið nokkur viðbrögð í netheimum og sýnist sitt hverjum. Meðal annars er rætt um málið á vefsvæði Útvarps Sögu en þar gefst hlustendum kostur á að leggja orð í belg og bæta sumir þeirra sinni eigin upplifun við söguna. Uppljóstrarinn leggur ekki dóm á sannleiksgildið en þó verða sumar þessara yfirlýsinga að teljast nokkurrar athygli verðar....
Tíminn | 12.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Í kjölfar greinarinnar frá því í gær um vafaasama fjármálafortíð þeirra Hrannars B. Arnarsonar og Helga Hjörvars í gær hefur uppljóstraranum borist fjöldi ábendinga um það sem heimildarmenn hafa sumir kallað "gjaldþrotasögu Hrannars og Hjörvars". Virðist þar sannast að eiga má von á ýmsu þegar gruggugt yfirborðið er gárað....
Tíminn | 11.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Upplljóstrarinn var minntur á það um helgina að Hrannari B. Arnarsyni aðstoðarmanni forsætisráðherra hafi tekist merkilega vel að láta fortíð sína falla í gleymsku og dá í þeim pólitíska spunadansi sem hann stýrir innan úr stjórnarráðinu. Þykir þeim Hrannar hafa verið undarlega stikkfrí þegar kemur að alls kyns umfjöllun vefmiðla og bloggara um hina og þessa stjórnmálamenn, fortíð þeirra, fyrri viðskiptamistök og hliðarspor sem ekki þykja sérlega vel til þess fallin að skapa traust á mönnum í embætti....
Tíminn | 09.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn tók eftir því í gær að einn víðlesnasti bloggari landsins, blaðamaðurinn Páll Vilhjálmsson, vakti athygli á rangfærslum á Evrópuvefnum, sem er fjármagnaður af Háskóla Íslands og á að heita hlutlaus upplýsingagjöf um Evrópusambandið. "Evrópuvefurinn ber á borð bein ósannindi sem eru til þess fallin að fegra málstað aðildarsinna" segir Páll í færslu í gær og bætir við að upplýsingar sem vefurinn birti um að "breytingar á hlutföllum milli smáríkja og stærri ríkja með Lissabon-samningnum sé óverulegar" séu beinlínis rangar.
...
Tíminn | 07.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Þær fréttir bárust úr Seðlabankanum í morgun að Seðlabankinn hafi nú teiknað upp næstu skref í afléttingu gjaldeyrishafta. Felast þau í tveimur samstæðum útboðum á næstu vikum, þar sem bankinn hefur í raun milligöngu um að selja útlendingum gjaldeyri í eign lífeyrissjóða í skiptum fyrir verðtryggð ríkisbréf á hagstæðum kjörum....
Tíminn | 06.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans segja reiði ríkja í kínverska sendiráðinu eftir að Jóhanna Sigurðardóttir neitaði að gefa sér tíma til að hitta kínverska forsætisráðherrann sem hefur áhuga á að koma í opinbera heimsókn til Íslands. Segja má að Jóhanna hafi hér sett punkt aftan við andúð vinstri flokkana á Kína undanfarin áratug. Þessi andúð birtist sérstaklega í hvert sinn sem kínverskir ráðamenn komu í heimsóknir hingað til lands á valdatíma sjálfstæðismanna. ...
Tíminn | 05.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans innan utanríkisþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af þeirri nýju hefð í samningatækni sem nú virðist vera að myndast í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þessi nýja tækni er reyndar ekki ný af nálinni heldur var beitt með vafasömum árangri á fjórða áratugnum undir nafninu "friðþæging" eða "appeasement", og hverrar kjörorð mætti kalla: Gefum þeim það sem þeir vilja. ...
Tíminn | 05.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Eftir pistla gærdagsins um yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar varðandi samningsmarkmið Íslands gagnvart ESB í sjávarútvegsmálum var uppljóstrarinn minntur á orð utanríkisráðherra í erlendum fjölmiðlum um sama efni frá því í fyrra, þegar sameiginlegur undirbúningur Íslands og ESB að samningaviðræðum hófst. Við það tækifæri var utanríkisráðherra vígreifur og sagði við BBC þann 28. júlí 2010 að íslenska efnahafslögsaagan ætti að verða séstakt yfirráðasvæði undir stjórn Íslenskra yfirvalda sem skyldu áfram bera ein ábyrgð á skipan fiskveiða:
...
Tíminn | 04.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Fréttaflutningur erlendra fjölmiðla af Össuri Skarphéðinssyni hefur vakið athygli heimildarmanna uppljóstrarans undanfarið fyrir nokkrar sakir. Í fyrsta lagi virðist Össur telja að erlendar fréttir berist ekki til Íslands og hann geti því sagt eitt hér heima og annað erlendis. Í annan stað virðist honum fyrirmunað að gefa fjölmiðlum sömu skilaboð um sama málefni tvö viðtöl í röð.
...
Tíminn | 04.07.2011 |
Uppljostrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans eru sammála um að sjaldan hafi ráðherra kastað hagsmunum eigin þjóðar jafn rækilega fyrir borð á alþjóðavettvangi og utanríkisráðherra Íslands Össur Skarphéðinsson gerði í viðtali við Euronews þann 28. júní s.l. Aðspurður svaraði Össur því til að Íslendingar þyrftu "engar sérstakar undanþágur vegna sjávarútvegs" í samningum við ESB. Heimildarmenn uppljóstararns telja ástæðu til að spyrja í fullri alvöru hvort Össur Skarphéðinsson geti áfram sinnt starfi utanríkisráðherra
...
Tíminn | 21.06.2011 |
Ritstjórn
Starfsmaður Ríkisútvarpsins fræddi uppljóstrarann um að innan stofnunarinnar væru nokkrir starfsmenn sem færu ekki leynt með andúð sína á kirkjunni en þeir virðast fá frjálsar hendur til að beita þjóðarútvarpinu. Hann sagði málið töluvert vera rætt meðal starfsmanna RÚV. Starfsmaðurinn sagði að sér væri misboðið eftir að hafa fylgst með gangi málsins og því ákveðið að taka saman nokkra punkta um umfjöllunina. Nöfnum er sleppt nema í tilviki núverandi og fyrrverandi biskups:...
Tíminn | 13.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Öllum er ljóst að stór hluti samgöngukerfis Vestfjarða eru lélegir malarvegir sem sannarlega þarfnast viðhalds enda hefur lítið verið um fjármagn til vegagerðar á Vestfjörðum vegna mikillar áherslu ríkisstjórnarinnar á Héðinsfjarðargöng, Landeyjarhöfn og fleiri arðbær samgönguverkefni....
Tíminn | 11.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Átökin innan Sjálfstæðisflokksins hafa verið öllum augljós undanfarið og ekki hefur þurft heimildarmenn uppljótrarans til að vita að staða Bjarna Benediktssonar sem formanns flokksins er mjög ótrygg. Landsfundur hefur verið boðaður í október og nú bíða menn eftir því að sjá hvort einhver gerir atlögu að Bjarna og formannsstólnum. Tveir kandídatar hafa helst verið nefndir í því sambandi af heimildarmönnum uppljóstrarans innan Sjálfstæðisflokksins....
Tíminn | 10.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Vinstri hreyfingin grænt framboð naut mikils fylgis fyrir síðustu kosningar og Steingrímur J. Sigfússon var sá stjórnmálamaður sem naut mest trausts meðal almennings. Frá 2009 hefur fylgi Vg hinsvegar fallið jafn hratt og kosningarloforðin hafa verið svikin. Framganga flokksins varðandi Evrópusambandsaðild, Icesave málið, velferðarbrúnna, skuldavanda heimilanna o.fl. hefur valdið því að nokkrir þingmenn og fjölmargir flokksmenn hafa yfirgefið hreyfinguna á þessum tíma. ...
Tíminn | 09.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans á Alþingi segja að forystumenn Samfylkingarinnar séu farnir að finna óþægilega mikið fyrir aukinni gagnrýni á vinnubrögð og stefnu norrænu velferðarstjórnarinnar. ...
Tíminn | 28.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Gylfi Arnbjörnsson fer nú hamförum gegn stefnu Vilhjálms Egilssonar og Samtaka atvinnulífsins í kjölfar þess að upp úr viðræðum slitnaði um skammtímasamninga eftir að Icesave atkvæðagreiðslan fór ekki á þann veg sem þeir félagar Gylfi og Vilhjálmur höfðu í sameiningu ákveðið að væri best fyrir verkafólk í landinu. Heimildarmönnum uppljóstrarans þykir þessi harka sem hlaupin er í samskipti þeirra Gylfa og Vilhjálms sérstök í ljósi þess að varla hafi gengið hnífurinn milli þeirra undanfarin tvö ár. Minnast heimildarmenn þess sérstaklega hversu þétt þeir stóðu saman sem vopnabræður í Icesave málinu, sama hvaða skelfingarsamningur lá á borðinu.
...
Tíminn | 14.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans innan Vinstri-grænna telja að Bjarni Benediktsson hafi gert stór mistök með því að setja fram vantraust á ríkisstjórnina í þessari viku. Rökstyðja þeir það með því að eftir að Guðfríður Lilja var sett af fyrir Árna Þór hafi vanþóknun órólegu deildarinnar innan þingflokksins náð nýjum hæðum. Telja heimildarmenn uppljóstrarans að ef þingflokkur vinstri grænna hefði verið látinn malla í sínum eigin suðupotti alla þessa viku hefði staðan verið orðin ískyggileg við upphaf páskaleyfis þingmanna um næstu helgi.
...
Tíminn | 12.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans ráku upp stór augu í dag þegar þessi frétt um fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar hjá Evrópska fjárfestingabankanum birtist á Vísi í dag. Þar segir meðal annars:
"Fjárfestingarbanki Evrópu var búinn að lána Landsvirkjun fyrir Búðarhálsvirkjun en það var skilyrt við að lánshæfið myndi ekki lækka. Ef það fellur er Búðarhálsvirkjun samt á dagskrá, en fjármögnun verkefnisins verður með styttri lánstíma og aðeins verri kjörum."
...
Tíminn | 10.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur verið að taka púlsinn á heimildarmönnum sínum nú í kjölfar þess að þjóðin hafnaði Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Margt þykir þeim merkilegt, og nefna þar til dæmis að sumir þeirra sem hvað virkastir hafa verið í bloggheimum við að tala fyrir Já-i hafi hálfpartinn gengið af göflunum þegar niðurstöðurnar birtust.
...
Tíminn | 31.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans kættust mjög í dag, við þau tíðindi að Stefán Einar Stefánsson væri nýkjörinn formaður stéttafélagsins Virðing og Réttlæti, VR. Ekki var kætin að sögn tilkomin vegna stuðnings þeirra við Stefán í kjörinu, heldur fremur vegna þess að heimildarmönnum uppljóstrarans leiðist átakalaus verkalýðsbarátta. ...
Tíminn | 30.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Háskóli Íslands stendur fyrir hálfsdags málþingi um ýmis álitaefni vegna Icesave næst komandi laugardag, en þá verður vika í þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Málþingið verður líklega auglýst á morgun en samkvæmt heimildamönnum uppljóstrarans ætlar Háskólinn að „fara alla leið“ í kaldhæðninni.
...
Tíminn | 29.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Á tímum þegar varnarbarátta er háð í íslenska hagkerfinu er lífsnauðsynlegt að þeir sem hafa valist í forsvar fyrir almenning fari með völd sín og áhrif af mikilli ábyrgð og hógværð. Kæruleysisleg ummæli geta valdið ómældum skaða við slíkar aðstæður....
Tíminn | 28.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG á dögunum varð til þess að VG félagar, m.a. í Suðurkjördæmi, gáfu frá sér ályktanir þar sem skorað var á þau, og sérstaklega Atla, að segja af sér þingmennsku. En ekki eru allir þeirrar skoðunar. Því til sönnunar birtist síðastliðinn föstudag hvatning á vefmiðlinum Smugunni til Atla frá 26 kjósendum VG í Suðurkjördæmi um að "víkja hvergi af réttri braut og halda áfram þingmennsku."...
Tíminn | 26.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Stuðningsmenn Icesave samningsins hafa nú sett af stað milljóna króna auglýsingaherferð sem gengur m.a. út á að ýmsir þekktir einstaklingar láta, að því er virðist, hafa eftir sér fullyrðingar um Icesave. Heimildarmenn uppljóstrarans velta því fyrir sér hvernig samtökin fjármagna slíka herferð,...
Tíminn | 25.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fengið ábendingu um að gamla Morgunblaðshúsið í Kringlunni hafi fengið nýtt hlutverk og gangi nú undir nafninu "House of pain"....
Tíminn | 24.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Eftir að grýlan um fjármögnunarfrostið vegna Icesave var kveðin niður með fréttum af afar hagstæðri fjármögnun Marel fyrir síðustu jól, hafa tafir á fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar verið síðasta haldreipi talsmanna þess að samþykkja þurfi samningana....
Tíminn | 23.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Í kjölfar úrsagnar Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar úr þingflokki VG hafa menn velt fyrir sér stöðu ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra. Meirihlutinn er tæpur en einungis 33 þingmenn styðja ríkisstjórnina....