Háskólahúmor
Háskóli
Íslands stendur fyrir hálfsdags málþingi um ýmis álitaefni vegna
Icesave næst komandi laugardag, en þá verður vika í
þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave.
Málþingið verður líklega auglýst á morgun en samkvæmt heimildamönnum uppljóstrarans ætlar Háskólinn að "fara alla leið" í kaldhæðninni. Háskóli Íslands hefur sem kunnugt er legið undir ámæli fyrir einsleitan málflutning háskólaelítunnar í Icesavemálinu, ekki hvað síst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í fyrra. Nú ætlar skólinn að sýna að hann hafi húmor fyrir sjálfum sér og bjóða almenningi að verja hálfum laugardegi á málþingi þar sem eftirfarandi álitsgjafar munu ræða Icesave frá ýmsum hliðum:
Þórólfur Matthíasson -sem í hálft ár hefur Speglað afstöðu fjármálaráðherra á Ríkisútvarpinu.
Maximillian Conrad -sem á m.a. setninguna: "Rödd Evrópuborgara sem slík heyrist ekki nema skoðanamyndun verði á Evrópugrundvelli".
Gylfi Magnússon -fyrrverandi viðskiptaráðherra ríkisstjórnarinnar sem stendur að málinu og harðasti pólitíski stuningsmaður allra Icesavesamninga ásamt fjármálaráðherra.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir -varðaþingmaður Samfylkingarinnar sem var óþreytandi við að halda því fram að heimurinn myndi fyrirlíta Ísland ef við féllumst ekki á allar kröfur möglunarlaust.
Elvira Mendez-Pinedo -undantekningin til að sanna regluna.
Gylfi Zoëga -sennilega frumlegasti talsmaður allra Icesavesamninga.
Þarna eru samankomnir þeir álitsgjafar sem eiga öll frægustu ummælin á fyrri stigum málsins:
"Kúba norðursins", "Norður-Kórea vestursins", "Efnahagsleg ísöld" osfrv.
Til að fullkomna grínið hefst málstofan svo á erindi um hvernig hægt sé að semja hlutlaust kynningarefni.
