logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Orð í tíma töluð

Ef ég væri byggingameistari mundi ég hafa húsin skrautlegri og meira í samræmi við skýin.

- Ísleifur Konráðsson listmálari..

 

Herferðin gegn biskupi

karl biskupStarfsmaður Ríkisútvarpsins fræddi uppljóstrarann um að innan stofnunarinnar væru nokkrir starfsmenn sem færu ekki leynt með andúð sína á kirkjunni en þeir virðast fá frjálsar hendur til að beita þjóðarútvarpinu. Hann sagði málið töluvert vera rætt meðal starfsmanna RÚV. Starfsmaðurinn sagði að sér væri misboðið eftir að hafa fylgst með gangi málsins og því ákveðið að taka saman nokkra punkta um umfjöllunina. Nöfnum er sleppt nema í tilviki núverandi og fyrrverandi biskups:

Nokkrir fjölmiðlamenn undir forystu Ríkisútvarpsins hafa tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið í herferð gegn þjóðkirkjunni og biskup Íslands. Í fyrra flutti RÚV endalausar neikvæðar fréttir af kirkjunni og stóð um leið fyrir átaki til að fá fólk til að segja sig úr þjóðkirkjunni þar sem hlustendur voru jafnóðum upplýstir um hvenær von væri á næstu tölum um úrsagnir. Ráðherrar og þingmenn voru svo krafðir svara um hvort þeir ætluðu að segja sig úr þjóðkirkjunni og farið fram á skýringar ef þeir ætluðu EKKI að gera það. 

Í fyrra voru það að mestu sömu tveir eða þrír fréttamennirnir sem báru hitann og þungann af herferðinni vikum saman. Nú er einn þessara fréttamanna komin aftur af stað og unnir sér ekki hvíldar en hún virðist mæta á allar vaktir til að það líði ekki dagur án þess að einhver krefjist þess í fréttum að biskup segi af sér fyrir eitthvað.

Fyrsta frétt virðist vera frátekin fyrir það ef einhverjir vilja gagnrýna biskupinn eða kirkjuna og reyndar þarf ekki mikla gagnrýni til. Fyrir nokkrum dögum var rætt við biskupsritara Ólafs Skúlasonar. Fréttamaðurinn hafði þó ekki mikinn áhuga á gagnrýni á störf biskupsritarans fyrrverandi en spurði hann þess í stað hvort Karl Sigurbjörnsson biskup gæti setið áfram. Viðmælandinn svaraði því til að málið væri í eðli sínu erfitt hvort sem biskup sæti áfram eða viki. Þessu var slegið upp sem aðal frétt kvöldsins undir fyrirsögninni "Segir erfitt fyrir biskup að sitja áfram".

Annar prestur hefur hins vegar ávallt verið reiðubúinn til að lýsa því yfir að biskup ætti að segja af sér og sendi meira að segja frá sér fréttatilkynningu þess efnis. RÚV fjallaði að sjálfsögðu um málið og sló því upp sem stórfrétt eins og það hefur áður gert þegar sami prestur hefur farið fram á afsögn biskups. Hins vegar gleymir fréttastofan iðulega að geta þess að umræddur prestur kærði á sínum tíma biskupinn fyrir að veita sér ekki embætti sem hún sóttist eftir, hvað þá að sagt sé frá því að presturinn er systir fréttamanns á RÚV.

Annar andstæðingur kirkjunnar tók svo við keflinu í Kastljósi rétt eins og síðast og tók biskupinn í sams konar viðtal og þá. Viðtal sem gekk út á að krefja biskupinn um afsögn án þess að leyfa honum að svara spurningum. 

Aðrir fjölmiðlamenn hafa lagt sitt af mörkum og finna upp á ólíklegustu málum til að lýsa afstöðu sinni til kirkjunnar. Því eru fá takmörk sett hvað menn telja nýtilegt í herferðinni. Fyrir nokkru birti eitt dagblaðanna stóra mynd af biskupinum með fyrirsögn í stærstu mögulegri leturgerð: "Biskup neitar að hætta dúntekju". Þegar betur var að gáð fjallaði fréttin um að sóknarprestur á landsbyggðinni nýtti hólma sem kirkjan hefði haft til umráða frá því á miðöldum til dúntekju og kirkjan hefði ekki afsalað sér nýtingarréttinum.

Þótt Ólafur Skúlason hafi ekki verið dæmdur hafa biskupinn og kirkjuráð gripið til ýmissa ráðstafana til að bregðast við málinu. Kirkjuráð ákvað svo að láta óháða rannsóknarnefnd velta við öllum steinum. Niðurstaða þeirrar rannsóknar hefur hins vegar fyrst og fremst verið notuð sem tilefni til að halda áfram árásum á kirkjuna án tillits til þess hvað rannsóknin leiddi raunverulega í ljós. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að eina aðkoma núverandi biskups að málinu á sínum tíma var að fallast á að mæta á fund sem haldinn var beiðni X sem sakað hafði Ólaf Skúlason um kynferðislega áreitni. Sá fundur fór fram daginn eftir að Kirkjuráð samþykkti yfirlýsingu um málið en á þeim fundi hafði Karl beitt sér gegn því að yfirlýsingin væri stuðningsyfirlýsing við Ólaf (og fékk síðar bágt fyrir frá Ólafi m.a. í ævisögu hans).

Rannsóknarnefndin taldi að Karl og annar prestur hefði ekki átt að verða við ósk X um að mæta til fundar við hana eftir fund Kirkjuráðs vegna þess að það að samþykkja beiðni X hefði gefið henni óraunhæfar væntingar um að hægt yrði að leysa málið í sátt og því verið "yfirsjón af hans hálfu og verði því talin mistök í merkingu 1. gr. starfsreglna um nefndina". En svo segir í skýrslunni:

"Nefndin leggur hins vegar á það áherslu í þessu sambandi að við meðferð málsins hafi ekki komið fram vísbendingar um að Karl hafi gengið til þessa verks í öðrum tilgangi en að leitast við að verða við óskum X um að ná sáttum við kirkjuna."

Jafnframt segir að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að prestarnir sem hittu X hafi gert það af heilum hug og góðum ásetningi.Í fréttum Stöðvar 2 (19.6.) var því hins vegar haldið fram að Karl hefði átt frumkvæði að fundinum og dregin upp sú mynd að það hefði verið gert til að þagga málið niður.

Þannig hefur umfjöllunin öll einkenni hannaðrar atburðarásar og fréttirnar ganga allar út á að tengja núverandi biskups við syndir annars manns. Þetta er algengt í samfélögum þar sem reglur réttarríkisins eiga undir högg að sækja. Það þarf að refsa einhverjum og ekki aðalatriðið hver það er, bara finna einhvern sem liggur vel við höggi stöðu sinnar vegna. Ef viðkomandi reynir að verja sig er því stillt upp eins og að hann sé með því að gera lítið úr alvarlegum afbrotum þótt þau hafi verið framin af öðrum. Það að verjast eykur með öðrum orðum á "sekt" hins ásakaða.

Ýmsir fjölmiðlamenn hafa svo tekið sér hlutverk bæði dómara og böðuls í málinu. En á hvaða málflutningi byggjast tilraunirnar þeirra til að hrekja biskupinn fyrir björg? Lítum á tvö dæmi úr fréttum:

Fréttir RÚV 15. júní:
"Karl biskup sagði í samtali við fréttastofu í gær að X hefði leitað til ýmissa presta en ekki til lögreglu og sagðist ekki vita hvers vegna hún leitaði aðeins til presta. Þeir hafi haft afar litla möguleika til að gera eitt eða neitt. X furðar sig á svörum Karls. Hann fari undan í flæmingi. Hún segist einfaldlega hafa leitað til þeirra sem hún hélt að gætu velt af henni ábyrgðinni. Á þessum tíma hafi ekki verið möguleiki að fara til lögreglunnar. Allir hafi sagt að lögreglan myndi ekki trúa henni því að það hún gæti ekki leitt fram vitni."

DV 16. júní:
"Y, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar heitins, var viðstödd Kirkjuþing í fyrradag. "Ég sé ekki eftir því að hafa farið," segir hún á DV.is. Í skilaboðum frá henni gagnrýnir hún Karl Sigurbjörnsson biskup harðlega, segir hann skammast sín ekkert og sína hroka.

Y varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu Ólafs Skúlasonar árið 1982, þá 26 ára gömul. Hann áreitti hana tvisvar - í annað skiptið var bænastund að hefjast á spítala og í hitt skiptið var hann umvafinn prestum. Enginn varð þess þó var þegar hann áreitti hana. Þau þekktust ekki áður en líkt og aðrar konur sem sögðu DV frá reynslu sinni átti Y erfiða reynsu að baki, en hún eignaðist tvíbura eftir nauðgun fjórtán ára gömul.

Y sagði frá reynslu sinni í fyrsta skiptið í viðtali við DV á seinasta ári. Eftir seinni samskipti þeirra Ólafs forðaðist hún hann eins og heitan eldinn. Hún sagði að hún hafi þó einu sinni rekist á hann úti á götu úti einu sinni - þá hafi hann sleikt út um.

"Ég grét, skammast mín ekki fyrir það," sagði hún um Kirkjuþingið. "En að hlusta á hann fyrir framan sig og horfa framan í hann var alveg með ólíkindum," segir hún um ræðu Karls Sigurbjörnssonar, biskups. "Að hlusta á hann spjalla við hina og þessa í hlénu, sá ég heldur enga iðrun eða að hann skammist sín. [...] Bara gaman hjá honum eins og ekkert hafi gerst." Hún sagðist enn mjög sár og reið vegna málsins. "Hvar er sannleikurinn hjá honum?" sagði hún enn fremur."

Áttu undirmenn biskups, óbreyttir prestar eða aðrir starfsmenn kirkjunnar að beita yfirmann sinn viðurlögum sem lögreglan var ekki talin fær um og það eftir að ríkissaksóknari hafði formlega neitað að rannsaka málið því það skorti til þess forsendur? Myndi RÚV gera sams konar kröfur til yfirmanna annarra stofnana? Er eðlilegt að núverandi biskup sé látinn taka á sig sök forvera síns og að ætlast til að hann fari með veggjum vegna afbrota hans?
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur fram að ýmis stjórnsýsluleg atriði hefði átt að vinna betur á undanförnum árum en því er jafnframt fagnað hversu langt hefur verið gengið í að bæta þar úr svo að hægt verði að taka til að forða því að sams konar mál komi upp aftur. 

Þegar alvarleg afbrot eiga sér stað er mikilvægt að beina reiðinni í rétta átt. Með því er ekki gert lítið úr þjáningum fórnarlambanna, þvert á móti, þau eiga það skilið að málstaður þeirra sé ekki afbakaður af þeim sem eru að beita sér fyrir einhverju öðru en réttlæti.

 

 

Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður

Uppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan....

Lúðvík næsti formaður Samfylkingarinnar

Uppljóstrarinn rak upp stór augu á föstudaginn þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar tilkynnti að hún væri hætt þingmennsku og hyggðist setjast á skólabekk til að læra siðfræði. Fjölmiðlar voru fljótir að átta sig á að varamaður Þórunnar væri Lúðvík Geirsson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði. Lúðvík setti á svið svolítið sjónarspil um það hvort hann myndi taka sæti á þingi, eins og þetta kæmi honum allt saman óskaplega á óvart. Heimildarmenn uppljóstrarans innan Samfylkingarinnar benda hins vegar á að þarna sé pólitísk flétta í gangi sem ekki sé Lúðvík ókunn. ...

Hvar er Ómar?

Uppljóstrarinn er opinn fyrir breytingum. En samt er hann þeirrar skoðunar að sumir hlutir breytist aldrei. Það er að segja var þeirrar skoðunar þar til að Eyjan.is tók upp á því að tengja kommentakerfi vefsins við Facebook. Kommentakerfi Eyjunnar hefur um margra ára skeið skipað staðfastan sess í hjörtum Íslendinga sem einn dýpsti ælupollur mannlegra skoðanaskipta á internetinu....

Allt miðar til hins besta

Uppljóstrarinn hlustaði á forsætisráðherra gefa þingheimi skýrslu um efnahagslífið í morgun. Það er ljóst af skýrslunni að forsætisráðherra er vel lesin í klassískum heimsbókmenntum og hefur tekið sér til fyrirmyndar heimspeki Alviðru, lærimeistara Birtings....

Er íslenskur her markmið nýja miðjuflokksins?

Eins og uppljóstrarinn fjallaði um í fyrradag er stefnuskrá hins nýja miðjuflokks Guðbjörns og Guðmundar hin merkilegasta lesning, ekki síst í þeim sér-íslensku málaflokkum sem sem ekki fást þýddir úr dönsku. Tillögur flokksins um stóraukin útgjöld til íslenskra hermála vöktu t.d. sérstaka athygli uppljóstrarans. ...

Björn Valur segir ekki allan sannleikann

Heimildarmenn uppljóstrarans hafa sérstakt dálæti á Birni Val Gíslasyni umfram aðra þingmenn. Telja þeir að það hljóti að vera óþarfi fyrir formann Vinstri-grænna að eiga varðhund þegar hann hefur Björn Val til að gjamma "réttar staðreyndir" í átt að hverjum sem reisir hönd móti niðurskurði, skattahækkunum og öðrum óvinsælum málaflokkum og formannsins. ...

Vefur nýja miðjuflokksins opinn. Stefnuskráin upphaflega afrituð frá dönskum hægriflokki.

Flestum er kunnugt að eftir aukalandsfund Sjálfstæðisflokksins í fyrra sagði Guðbjörn Guðbjörnsson sig úr flokknum vegna ágreinings um Evrópusambandsaðild og boðaði stofnun nýs miðjuflokks í íslenskri pólitík. Skyldi flokkurinn lagaður að fyrirmynd norrænna borgaraflokka. Nú í vikunni buðu fjölmiðlar upp á endursýningu á úrsögn Guðbjörns, en nú með Guðmundi Steingrímssyni í aðalhlutverki. Í þetta sinn skyldi nýji miðjuflokkurinn vera heldur til vinstri á miðjunni með grænum og frjálslyndum áherslum. ...

Ungir jafnaðarmenn sjá um grínið

Þegar uppljóstraranum leiðist bregður hann sér stundum á internetið í leit að skemmtun. Á ferðum sínum um hraðbrautir upplýsingatækninnar er fátt sem drepur tímann betur en myndbandavefurinn youtube.com. Þar má meðal annars finna fjölda íslenskra stjórnmálamyndbanda sem mörg hver eru hið besta skemmtiefni. ...

Þreföld hagfræðivilla Þórólfs

Uppljóstrarinn hefur fyrir all löngu síðan spurnir af því að í hópi harðkjarna ESB sinna hafi verið rætt um að „taka þyrfti á bændum“. Kemur það að sögn heimildarmanna til af því hve samtök bænda hafa lagst fast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og lagt í mikla vinnu vegna aðildarumsóknarinnar. Heimildarmenn uppljóstrarans segja það til að mynda hafa farið mjög fyrir brjóstið á harðlínumönnunum að jafnvel formaður samninganefndar Íslands hafi borið lof á vandaða undirbúningsvinnu bænda....

Gylfi Arnbjörnsson slær í gegn!

Gylfi Arnbjörnsson sló feilhögg gagnvart sínum eigin félagsmönnum á dögunum þegar hann hvatti Íslendinga til að sniðganga lambakjöt vegna þess að sauðfjárbændur lögðu til hækkun á afurðaverði. Gylfi virðist þurfa að skoða betur uppbyggingu og félagaskrá eigin samtaka, því að fjöldi félagsmanna ASÍ er í störfum tengdum landbúnaði og eiga því sitt undir því að Íslendingar kaupi áfram lambakjöt og aðrar landbúnaðarafurðir....

Er samkeppniseftirlitið enn í helgarfríi?

Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og díselolíu í gær. Svona rétt um leið og síðasti bíll kom í bæinn eftir ferðalagið um Verslunarmannahelgina. Líklega hefur heimsmarkaðsverðið lækkað akkúrat í gær líka. Og það merkilega er, að öll olíufélögin fá út sama lítraverð - eins og venjulega. Hér er ekkert samráð - það skyldi maður ekki ímynda sér. Spurningin er hvort samkeppniseftirlitið sé örugglega enn í helgarfríi !!!...

"Hrannar og Helgi nýttu sér krakka grei"

Upprifjun uppljóstrarans á fjármálasögu þeirra Hrannars B. og Helga Hjörvars hefur vakið nokkur viðbrögð í netheimum og sýnist sitt hverjum. Meðal annars er rætt um málið á vefsvæði Útvarps Sögu en þar gefst hlustendum kostur á að leggja orð í belg og bæta sumir þeirra sinni eigin upplifun við söguna. Uppljóstrarinn leggur ekki dóm á sannleiksgildið en þó verða sumar þessara yfirlýsinga að teljast nokkurrar athygli verðar....

Gjaldþrotasaga Hrannars og Hjörvars

Í kjölfar greinarinnar frá því í gær um vafaasama fjármálafortíð þeirra Hrannars B. Arnarsonar og Helga Hjörvars í gær hefur uppljóstraranum borist fjöldi ábendinga um það sem heimildarmenn hafa sumir kallað "gjaldþrotasögu Hrannars og Hjörvars". Virðist þar sannast að eiga má von á ýmsu þegar gruggugt yfirborðið er gárað....

Aðstoðarmaður forsætisráðherra í skattsvikum?

Upplljóstrarinn var minntur á það um helgina að Hrannari B. Arnarsyni aðstoðarmanni forsætisráðherra hafi tekist merkilega vel að láta fortíð sína falla í gleymsku og dá í þeim pólitíska spunadansi sem hann stýrir innan úr stjórnarráðinu. Þykir þeim Hrannar hafa verið undarlega stikkfrí þegar kemur að alls kyns umfjöllun vefmiðla og bloggara um hina og þessa stjórnmálamenn, fortíð þeirra, fyrri viðskiptamistök og hliðarspor sem ekki þykja sérlega vel til þess fallin að skapa traust á mönnum í embætti....

Lýgur Evrópuvefur Háskólans blákalt?

Uppljóstrarinn tók eftir því í gær að einn víðlesnasti bloggari landsins, blaðamaðurinn Páll Vilhjálmsson, vakti athygli á rangfærslum á Evrópuvefnum, sem er fjármagnaður af Háskóla Íslands og á að heita hlutlaus upplýsingagjöf um Evrópusambandið. "Evrópuvefurinn ber á borð bein ósannindi sem eru til þess fallin að fegra málstað aðildarsinna" segir Páll í færslu í gær og bætir við að upplýsingar sem vefurinn birti um að "breytingar á hlutföllum milli smáríkja og stærri ríkja með Lissabon-samningnum sé óverulegar" séu beinlínis rangar. ...

Seðlabankinn framkvæmir stefnu Framsóknar

Þær fréttir bárust úr Seðlabankanum í morgun að Seðlabankinn hafi nú teiknað upp næstu skref í afléttingu gjaldeyrishafta. Felast þau í tveimur samstæðum útboðum á næstu vikum, þar sem bankinn hefur í raun milligöngu um að selja útlendingum gjaldeyri í eign lífeyrissjóða í skiptum fyrir verðtryggð ríkisbréf á hagstæðum kjörum....

Jóhanna smánar forsætisráðherra framtíðarstórveldis.

Heimildarmenn uppljóstrarans segja reiði ríkja í kínverska sendiráðinu eftir að Jóhanna Sigurðardóttir neitaði að gefa sér tíma til að hitta kínverska forsætisráðherrann sem hefur áhuga á að koma í opinbera heimsókn til Íslands. Segja má að Jóhanna hafi hér sett punkt aftan við andúð vinstri flokkana á Kína undanfarin áratug. Þessi andúð birtist sérstaklega í hvert sinn sem kínverskir ráðamenn komu í heimsóknir hingað til lands á valdatíma sjálfstæðismanna. ...

Samningatækni ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur: "Give'em what they want".

Heimildarmenn uppljóstrarans innan utanríkisþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af þeirri nýju hefð í samningatækni sem nú virðist vera að myndast í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þessi nýja tækni er reyndar ekki ný af nálinni heldur var beitt með vafasömum árangri á fjórða áratugnum undir nafninu "friðþæging" eða "appeasement", og hverrar kjörorð mætti kalla: Gefum þeim það sem þeir vilja. ...

Opinberaði Össur loks raunveruleg samningsmarkmið?

Eftir pistla gærdagsins um yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar varðandi samningsmarkmið Íslands gagnvart ESB í sjávarútvegsmálum var uppljóstrarinn minntur á orð utanríkisráðherra í erlendum fjölmiðlum um sama efni frá því í fyrra, þegar sameiginlegur undirbúningur Íslands og ESB að samningaviðræðum hófst. Við það tækifæri var utanríkisráðherra vígreifur og sagði við BBC þann 28. júlí 2010 að íslenska efnahafslögsaagan ætti að verða séstakt yfirráðasvæði undir stjórn Íslenskra yfirvalda sem skyldu áfram bera ein ábyrgð á skipan fiskveiða: ...

Og svo sveiflast Össur, og Össur sveiflast svo...

Fréttaflutningur erlendra fjölmiðla af Össuri Skarphéðinssyni hefur vakið athygli heimildarmanna uppljóstrarans undanfarið fyrir nokkrar sakir. Í fyrsta lagi virðist Össur telja að erlendar fréttir berist ekki til Íslands og hann geti því sagt eitt hér heima og annað erlendis. Í annan stað virðist honum fyrirmunað að gefa fjölmiðlum sömu skilaboð um sama málefni tvö viðtöl í röð. ...

Lærði Össur samningatækni af Neville Chamberlain?

Heimildarmenn uppljóstrarans eru sammála um að sjaldan hafi ráðherra kastað hagsmunum eigin þjóðar jafn rækilega fyrir borð á alþjóðavettvangi og utanríkisráðherra Íslands Össur Skarphéðinsson gerði í viðtali við Euronews þann 28. júní s.l. Aðspurður svaraði Össur því til að Íslendingar þyrftu "engar sérstakar undanþágur vegna sjávarútvegs" í samningum við ESB. Heimildarmenn uppljóstararns telja ástæðu til að spyrja í fullri alvöru hvort Össur Skarphéðinsson geti áfram sinnt starfi utanríkisráðherra ...

Herferðin gegn biskupi

Starfsmaður Ríkisútvarpsins fræddi uppljóstrarann um að innan stofnunarinnar væru nokkrir starfsmenn sem færu ekki leynt með andúð sína á kirkjunni en þeir virðast fá frjálsar hendur til að beita þjóðarútvarpinu. Hann sagði málið töluvert vera rætt meðal starfsmanna RÚV. Starfsmaðurinn sagði að sér væri misboðið eftir að hafa fylgst með gangi málsins og því ákveðið að taka saman nokkra punkta um umfjöllunina. Nöfnum er sleppt nema í tilviki núverandi og fyrrverandi biskups:...

Bjargar forsætisráherra Vestfjörðum?

Öllum er ljóst að stór hluti samgöngukerfis Vestfjarða eru lélegir malarvegir sem sannarlega þarfnast viðhalds enda hefur lítið verið um fjármagn til vegagerðar á Vestfjörðum vegna mikillar áherslu ríkisstjórnarinnar á Héðinsfjarðargöng, Landeyjarhöfn og fleiri arðbær samgönguverkefni....

Hanna Birna hjólar í Bjarna Ben í haust

Átökin innan Sjálfstæðisflokksins hafa verið öllum augljós undanfarið og ekki hefur þurft heimildarmenn uppljótrarans til að vita að staða Bjarna Benediktssonar sem formanns flokksins er mjög ótrygg. Landsfundur hefur verið boðaður í október og nú bíða menn eftir því að sjá hvort einhver gerir atlögu að Bjarna og formannsstólnum. Tveir kandídatar hafa helst verið nefndir í því sambandi af heimildarmönnum uppljóstrarans innan Sjálfstæðisflokksins....

Vg og Lýbía

Vinstri hreyfingin grænt framboð naut mikils fylgis fyrir síðustu kosningar og Steingrímur J. Sigfússon var sá stjórnmálamaður sem naut mest trausts meðal almennings. Frá 2009 hefur fylgi Vg hinsvegar fallið jafn hratt og kosningarloforðin hafa verið svikin. Framganga flokksins varðandi Evrópusambandsaðild, Icesave málið, velferðarbrúnna, skuldavanda heimilanna o.fl. hefur valdið því að nokkrir þingmenn og fjölmargir flokksmenn hafa yfirgefið hreyfinguna á þessum tíma. ...

Samfylkingin og nýju vinnubrögðin

Heimildarmenn uppljóstrarans á Alþingi segja að forystumenn Samfylkingarinnar séu farnir að finna óþægilega mikið fyrir aukinni gagnrýni á vinnubrögð og stefnu norrænu velferðarstjórnarinnar. ...

Gylfi og Vilhjálmur að skilja?

Gylfi Arnbjörnsson fer nú hamförum gegn stefnu Vilhjálms Egilssonar og Samtaka atvinnulífsins í kjölfar þess að upp úr viðræðum slitnaði um skammtímasamninga eftir að Icesave atkvæðagreiðslan fór ekki á þann veg sem þeir félagar Gylfi og Vilhjálmur höfðu í sameiningu ákveðið að væri best fyrir verkafólk í landinu. Heimildarmönnum uppljóstrarans þykir þessi harka sem hlaupin er í samskipti þeirra Gylfa og Vilhjálms sérstök í ljósi þess að varla hafi gengið hnífurinn milli þeirra undanfarin tvö ár. Minnast heimildarmenn þess sérstaklega hversu þétt þeir stóðu saman sem vopnabræður í Icesave málinu, sama hvaða skelfingarsamningur lá á borðinu. ...

Frumhlaup Bjarna

Heimildarmenn uppljóstrarans innan Vinstri-grænna telja að Bjarni Benediktsson hafi gert stór mistök með því að setja fram vantraust á ríkisstjórnina í þessari viku. Rökstyðja þeir það með því að eftir að Guðfríður Lilja var sett af fyrir Árna Þór hafi vanþóknun órólegu deildarinnar innan þingflokksins náð nýjum hæðum. Telja heimildarmenn uppljóstrarans að ef þingflokkur vinstri grænna hefði verið látinn malla í sínum eigin suðupotti alla þessa viku hefði staðan verið orðin ískyggileg við upphaf páskaleyfis þingmanna um næstu helgi. ...

Laug Landsvirkjun?

Heimildarmenn uppljóstrarans ráku upp stór augu í dag þegar þessi frétt um fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar hjá Evrópska fjárfestingabankanum birtist á Vísi í dag. Þar segir meðal annars: "Fjárfestingarbanki Evrópu var búinn að lána Landsvirkjun fyrir Búðarhálsvirkjun en það var skilyrt við að lánshæfið myndi ekki lækka. Ef það fellur er Búðarhálsvirkjun samt á dagskrá, en fjármögnun verkefnisins verður með styttri lánstíma og aðeins verri kjörum." ...

Suður við höfin...

Uppljóstrarinn hefur verið að taka púlsinn á heimildarmönnum sínum nú í kjölfar þess að þjóðin hafnaði Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Margt þykir þeim merkilegt, og nefna þar til dæmis að sumir þeirra sem hvað virkastir hafa verið í bloggheimum við að tala fyrir Já-i hafi hálfpartinn gengið af göflunum þegar niðurstöðurnar birtust. ...

Viðskiptasiðfræðingurinn viðsjáli

Heimildarmenn uppljóstrarans kættust mjög í dag, við þau tíðindi að Stefán Einar Stefánsson væri nýkjörinn formaður stéttafélagsins Virðing og Réttlæti, VR. Ekki var kætin að sögn tilkomin vegna stuðnings þeirra við Stefán í kjörinu, heldur fremur vegna þess að heimildarmönnum uppljóstrarans leiðist átakalaus verkalýðsbarátta. ...

Háskólahúmor

Háskóli Íslands stendur fyrir hálfsdags málþingi um ýmis álitaefni vegna Icesave næst komandi laugardag, en þá verður vika í þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Málþingið verður líklega auglýst á morgun en samkvæmt heimildamönnum uppljóstrarans ætlar Háskólinn að „fara alla leið“ í kaldhæðninni. ...

"Kæruleysisleg ummæli" sökkva skipum

Á tímum þegar varnarbarátta er háð í íslenska hagkerfinu er lífsnauðsynlegt að þeir sem hafa valist í forsvar fyrir almenning fari með völd sín og áhrif af mikilli ábyrgð og hógværð. Kæruleysisleg ummæli geta valdið ómældum skaða við slíkar aðstæður....

Hve margir eru stuðningsmenn Þráins?

Úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG á dögunum varð til þess að VG félagar, m.a. í Suðurkjördæmi, gáfu frá sér ályktanir þar sem skorað var á þau, og sérstaklega Atla, að segja af sér þingmennsku. En ekki eru allir þeirrar skoðunar. Því til sönnunar birtist síðastliðinn föstudag hvatning á vefmiðlinum Smugunni til Atla frá 26 kjósendum VG í Suðurkjördæmi um að "víkja hvergi af réttri braut og halda áfram þingmennsku."...

Auglýsingar áfram.is í leyfisleysi?

Stuðningsmenn Icesave samningsins hafa nú sett af stað milljóna króna auglýsingaherferð sem gengur m.a. út á að ýmsir þekktir einstaklingar láta, að því er virðist, hafa eftir sér fullyrðingar um Icesave. Heimildarmenn uppljóstrarans velta því fyrir sér hvernig samtökin fjármagna slíka herferð,...

"House of pain"

Uppljóstrarinn hefur fengið ábendingu um að gamla Morgunblaðshúsið í Kringlunni hafi fengið nýtt hlutverk og gangi nú undir nafninu "House of pain"....

Landsvirkjun fær lán hjá NIB og EIB þrátt fyrir Icesave - hvað klikkaði?

Eftir að grýlan um fjármögnunarfrostið vegna Icesave var kveðin niður með fréttum af afar hagstæðri fjármögnun Marel fyrir síðustu jól, hafa tafir á fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar verið síðasta haldreipi talsmanna þess að samþykkja þurfi samningana....

Hvort hefur betur Jóhanna eða Jón?

Í kjölfar úrsagnar Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar úr þingflokki VG hafa menn velt fyrir sér stöðu ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra. Meirihlutinn er tæpur en einungis 33 þingmenn styðja ríkisstjórnina....