Tíminn | 01.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Er íslenskur her markmið nýja miðjuflokksins?

Eins og uppljóstrarinn fjallaði um í
fyrradag er stefnuskrá hins nýja miðjuflokks Guðbjörns og Guðmundar
hin merkilegasta lesning, ekki síst í þeim sér-íslensku málaflokkum
sem sem ekki fást þýddir úr dönsku. Tillögur flokksins um stóraukin
útgjöld til íslenskra hermála vöktu t.d. sérstaka athygli
uppljóstrarans.
Útgjöld til
hermála? Já það er von að lesendur spyrji. Í varnarmálastefnu Lýðfrelsisflokksins kemur fram
að
Lýðfrelsisflokkurinn
vill að Íslendingar
verji
sama hlutfalli
þjóðartekna og hinar Norðurlandaþjóðirnar
til
að sinna eigin
öryggisgæslu. Við viljum
vera í stakk
búin
eftir 10 til
15 ár
að getasjálf
sinnt öryggisgæslu í okkar eigin
efnahagslögsögu.
Þetta virðist í fyrstu nokkuð sakleysisleg
tillaga um styrkingu á Landhelgisgæslunni. En eins og
uppljóstrarinn komst að í gær er sem betur fer hægt að lesa til
baka nánar útskýringar á því hvaða hugmyndir standa að baki
stefnunni með því að líta á samsvarandi stefnumál Norræna
íhaldsflokksins sem stefnan er unnin upp úr. Og þar kemur skýrt
fram að þeir sem skrifa stefnuna bera í brjósti sér von og áætlun
um íslenskan her. Samsvarandi kafli úr varnarmálastefnu Norræna íhaldsflokksins
hljómar nefnilega svona:
Norræni íhaldsflokkurinn vill
að Íslendingar verji sama
hlutfalliþjóðartekna og hinar Norðurlandaþjóðirnar til hermála. Við viljum
stofna íslenskt varnarlið
svo við getum eftir 10 til 15 ár sjálf sinnt
öryggisgæslu og verið með nauðsynlega viðbúnað
í okkar eigin efnahagslögsögu.
Nú taldi
uppljóstrarinn að hugmyndir um íslenskan her, eða varnarlið eins og
það er kallað hér, hefðu daið út með dómsmálaráðherratíð Björns
Bjarnasonar, en ljóst er að a.m.k. nokkrir stofnenda
Lýðfrelsisflokksins bera enn þessa hugmynd á höndum sér á bak við
tjöldin. Enda kemur skýrt fram á vefsíðu Lýðfrelsisflokksins að
sömu einstaklingar sem skrifuðu stefnuna um íslenskan her í
varnarmálastefnu Norræna íhaldsflokksins sitja nú í stjórn Lýðfrelsisflokksins með
Guðbirni Guðbjörnssyni.
Ísland á eins og önnur ríki að
koma sér upp eigin varnarliði. Íslendingar eiga að verja sama
hlutfalli þjóðarframleiðslunnar til hermála og hinar
Norðurlandaþjóðirnar. ... Þetta varnarlið og
"Landhelgisgæslan" hafi skip, flugvélar, þyrlur, búnað, tæki, tól
og þjálfun til að geta tekið þátt í heræfingum nágranna okkar hér á
Norður Atlantshafinu.
Stefnan er alveg skýr. Nægum peningum
verði varið í íslenskan her sem sé þjálfaður og útbúinn með tækjum
til að taka þátt í heræfingum til jafns við
nágrannaþjóðirnar.
Í stefnuskrá Lýðfrelsisflokksins
hefur þessi stefna verið "lagfærð" til að líta betur út, tilvísun í
íslenskt varnarlið hefur verið tekin út. En eftir stendur samt
upphaflega markmiðið um sjálfstæða öryggisgæslu á eigin svæði eftir
10-15 ár og krafan um að jafn miklu hlutfalli þjóðartekna verði
varið til öryggismála og hjá hinum
Norðurlandaþjóðunum.
Uppljóstraranum þótti því rétt að
athuga hvað þessi markmið þýddu í raun. Sem betur fer gátu
heimildarmenn gefið af því skýra mynd.
Meðaltal útgjalda Norðurlandaþjóðanna til
hernaðarmála var 1,425% af þjóðarframleiðslu árið 2009. Í fyrra
varði Ísland aðeins 0,26% af þjóðarframleiðslu, 4
milljörðum króna, til öryggismála (Landhelgisgæslunnar og
Varnarmálastofnunnar).
Ef hlutfallið á að verða sambærilegt
við Norðurlöndin þyrftu fjárlög að gera ráð fyrir 21,8 milljarða
framlagi til öryggis og hernaðarmála, sem er 545% hækkun. Til samanburðar má nefna að þetta myndi
jafngilda fjárveitingum ríkisins til Forsætisráðuneytisins,
Efnahags-og viðskiptaráðuneytisins, Iðnaðarráðuneytisins og
Utanríkisráðuneytisins til samans. Til að átta sig betur á tölunni
er hún tveimur milljörðum hærri en framlög ríkisins til allra
heilbrigðisstofnanna og sjúkrahúsa á landsbyggðinni og jafngildir
tveimur þriðju af rekstrarkostnaði
Landsspítalans.
Uppljóstrarinn kemst ekki hjá því að
velta fyrir sér hverju Íslendingar myndu vera tilbúnir að fórna til
að geta haldið uppi her eða Landhelgisgæslu af þessari
stærðargráðu.
Það er hins vegar ljóst að hátt
er stefnt með öryggi Íslands af þeim sem standa að nýja
miðjuflokknum. Enda markmið þeirra að vera þjóð meðal þjóða, eða
eins og segir í hernaðarstefnu Norræna
íhaldsflokksins:
Að vera með eigin
varnarlið hefur verið um aldir ein forsenda þess að
þjóðir heims hafa geta skilgreint sig sem þjóðir. ... Í dag eru
skattgreiðendur í Evrópu að verja
sínu skattfé til að halda uppi
öryggisgæslu og viðbúnaði hér við landi.
Vegna þessara fjárframlaga verkamanna, kennara og ekkna niðri í
Evrópu getum við kallað okkur sjálfstæða fullvalda þjóð á
alþjóðavettvangi. Er það þannig sem við viljum byggja þetta land um
ókomin ár? Eins og ölmusufólk upp á aðra komna?
... Með slíku varnarliði verðum við ekki
lengur upp á aðra komin til að geta kallast
sjálfstæð fullvalda þjóð.
Þetta orðalag kemur spánskt
fyrir sjónir þegar haft er í huga að meginstefna bæði
Lýðfrelsisflokksins og Norræna íhaldsflokksins er að Ísland gangi í
Evrópusambandið.
Tíminn | 07.10.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan....
Tíminn | 05.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn rak upp stór augu á föstudaginn þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar tilkynnti að hún væri hætt þingmennsku og hyggðist setjast á skólabekk til að læra siðfræði. Fjölmiðlar voru fljótir að átta sig á að varamaður Þórunnar væri Lúðvík Geirsson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði. Lúðvík setti á svið svolítið sjónarspil um það hvort hann myndi taka sæti á þingi, eins og þetta kæmi honum allt saman óskaplega á óvart. Heimildarmenn uppljóstrarans innan Samfylkingarinnar benda hins vegar á að þarna sé pólitísk flétta í gangi sem ekki sé Lúðvík ókunn.
...
Tíminn | 03.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn er opinn fyrir breytingum. En samt er hann þeirrar skoðunar að sumir hlutir breytist aldrei. Það er að segja var þeirrar skoðunar þar til að Eyjan.is tók upp á því að tengja kommentakerfi vefsins við Facebook. Kommentakerfi Eyjunnar hefur um margra ára skeið skipað staðfastan sess í hjörtum Íslendinga sem einn dýpsti ælupollur mannlegra skoðanaskipta á internetinu....
Tíminn | 02.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hlustaði á forsætisráðherra gefa þingheimi skýrslu um efnahagslífið í morgun. Það er ljóst af skýrslunni að forsætisráðherra er vel lesin í klassískum heimsbókmenntum og hefur tekið sér til fyrirmyndar heimspeki Alviðru, lærimeistara Birtings....
Tíminn | 01.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Eins og uppljóstrarinn fjallaði um í fyrradag er stefnuskrá hins nýja miðjuflokks Guðbjörns og Guðmundar hin merkilegasta lesning, ekki síst í þeim sér-íslensku málaflokkum sem sem ekki fást þýddir úr dönsku. Tillögur flokksins um stóraukin útgjöld til íslenskra hermála vöktu t.d. sérstaka athygli uppljóstrarans. ...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Heimildarmenn uppljóstrarans hafa sérstakt dálæti á Birni Val Gíslasyni umfram aðra þingmenn. Telja þeir að það hljóti að vera óþarfi fyrir formann Vinstri-grænna að eiga varðhund þegar hann hefur Björn Val til að gjamma "réttar staðreyndir" í átt að hverjum sem reisir hönd móti niðurskurði, skattahækkunum og öðrum óvinsælum málaflokkum og formannsins.
...
Tíminn | 30.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Flestum er kunnugt að eftir aukalandsfund Sjálfstæðisflokksins í fyrra sagði Guðbjörn Guðbjörnsson sig úr flokknum vegna ágreinings um Evrópusambandsaðild og boðaði stofnun nýs miðjuflokks í íslenskri pólitík. Skyldi flokkurinn lagaður að fyrirmynd norrænna borgaraflokka. Nú í vikunni buðu fjölmiðlar upp á endursýningu á úrsögn Guðbjörns, en nú með Guðmundi Steingrímssyni í aðalhlutverki. Í þetta sinn skyldi nýji miðjuflokkurinn vera heldur til vinstri á miðjunni með grænum og frjálslyndum áherslum.
...
Tíminn | 25.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Þegar uppljóstraranum leiðist bregður hann sér stundum á internetið í leit að skemmtun. Á ferðum sínum um hraðbrautir upplýsingatækninnar er fátt sem drepur tímann betur en myndbandavefurinn youtube.com. Þar má meðal annars finna fjölda íslenskra stjórnmálamyndbanda sem mörg hver eru hið besta skemmtiefni.
...
Tíminn | 08.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fyrir all löngu síðan spurnir af því að í hópi harðkjarna ESB sinna hafi verið rætt um að „taka þyrfti á bændum“. Kemur það að sögn heimildarmanna til af því hve samtök bænda hafa lagst fast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og lagt í mikla vinnu vegna aðildarumsóknarinnar. Heimildarmenn uppljóstrarans segja það til að mynda hafa farið mjög fyrir brjóstið á harðlínumönnunum að jafnvel formaður samninganefndar Íslands hafi borið lof á vandaða undirbúningsvinnu bænda....
Tíminn | 04.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Gylfi Arnbjörnsson sló feilhögg gagnvart sínum eigin félagsmönnum á dögunum þegar hann hvatti Íslendinga til að sniðganga lambakjöt vegna þess að sauðfjárbændur lögðu til hækkun á afurðaverði. Gylfi virðist þurfa að skoða betur uppbyggingu og félagaskrá eigin samtaka, því að fjöldi félagsmanna ASÍ er í störfum tengdum landbúnaði og eiga því sitt undir því að Íslendingar kaupi áfram lambakjöt og aðrar landbúnaðarafurðir....
Tíminn | 04.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og díselolíu í gær. Svona rétt um leið og síðasti bíll kom í bæinn eftir ferðalagið um Verslunarmannahelgina. Líklega hefur heimsmarkaðsverðið lækkað akkúrat í gær líka. Og það merkilega er, að öll olíufélögin fá út sama lítraverð - eins og venjulega. Hér er ekkert samráð - það skyldi maður ekki ímynda sér. Spurningin er hvort samkeppniseftirlitið sé örugglega enn í helgarfríi !!!...
Tíminn | 12.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Upprifjun uppljóstrarans á fjármálasögu þeirra Hrannars B. og Helga Hjörvars hefur vakið nokkur viðbrögð í netheimum og sýnist sitt hverjum. Meðal annars er rætt um málið á vefsvæði Útvarps Sögu en þar gefst hlustendum kostur á að leggja orð í belg og bæta sumir þeirra sinni eigin upplifun við söguna. Uppljóstrarinn leggur ekki dóm á sannleiksgildið en þó verða sumar þessara yfirlýsinga að teljast nokkurrar athygli verðar....
Tíminn | 12.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Í kjölfar greinarinnar frá því í gær um vafaasama fjármálafortíð þeirra Hrannars B. Arnarsonar og Helga Hjörvars í gær hefur uppljóstraranum borist fjöldi ábendinga um það sem heimildarmenn hafa sumir kallað "gjaldþrotasögu Hrannars og Hjörvars". Virðist þar sannast að eiga má von á ýmsu þegar gruggugt yfirborðið er gárað....
Tíminn | 11.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Upplljóstrarinn var minntur á það um helgina að Hrannari B. Arnarsyni aðstoðarmanni forsætisráðherra hafi tekist merkilega vel að láta fortíð sína falla í gleymsku og dá í þeim pólitíska spunadansi sem hann stýrir innan úr stjórnarráðinu. Þykir þeim Hrannar hafa verið undarlega stikkfrí þegar kemur að alls kyns umfjöllun vefmiðla og bloggara um hina og þessa stjórnmálamenn, fortíð þeirra, fyrri viðskiptamistök og hliðarspor sem ekki þykja sérlega vel til þess fallin að skapa traust á mönnum í embætti....
Tíminn | 09.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn tók eftir því í gær að einn víðlesnasti bloggari landsins, blaðamaðurinn Páll Vilhjálmsson, vakti athygli á rangfærslum á Evrópuvefnum, sem er fjármagnaður af Háskóla Íslands og á að heita hlutlaus upplýsingagjöf um Evrópusambandið. "Evrópuvefurinn ber á borð bein ósannindi sem eru til þess fallin að fegra málstað aðildarsinna" segir Páll í færslu í gær og bætir við að upplýsingar sem vefurinn birti um að "breytingar á hlutföllum milli smáríkja og stærri ríkja með Lissabon-samningnum sé óverulegar" séu beinlínis rangar.
...
Tíminn | 07.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Þær fréttir bárust úr Seðlabankanum í morgun að Seðlabankinn hafi nú teiknað upp næstu skref í afléttingu gjaldeyrishafta. Felast þau í tveimur samstæðum útboðum á næstu vikum, þar sem bankinn hefur í raun milligöngu um að selja útlendingum gjaldeyri í eign lífeyrissjóða í skiptum fyrir verðtryggð ríkisbréf á hagstæðum kjörum....
Tíminn | 06.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans segja reiði ríkja í kínverska sendiráðinu eftir að Jóhanna Sigurðardóttir neitaði að gefa sér tíma til að hitta kínverska forsætisráðherrann sem hefur áhuga á að koma í opinbera heimsókn til Íslands. Segja má að Jóhanna hafi hér sett punkt aftan við andúð vinstri flokkana á Kína undanfarin áratug. Þessi andúð birtist sérstaklega í hvert sinn sem kínverskir ráðamenn komu í heimsóknir hingað til lands á valdatíma sjálfstæðismanna. ...
Tíminn | 05.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans innan utanríkisþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af þeirri nýju hefð í samningatækni sem nú virðist vera að myndast í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þessi nýja tækni er reyndar ekki ný af nálinni heldur var beitt með vafasömum árangri á fjórða áratugnum undir nafninu "friðþæging" eða "appeasement", og hverrar kjörorð mætti kalla: Gefum þeim það sem þeir vilja. ...
Tíminn | 05.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Eftir pistla gærdagsins um yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar varðandi samningsmarkmið Íslands gagnvart ESB í sjávarútvegsmálum var uppljóstrarinn minntur á orð utanríkisráðherra í erlendum fjölmiðlum um sama efni frá því í fyrra, þegar sameiginlegur undirbúningur Íslands og ESB að samningaviðræðum hófst. Við það tækifæri var utanríkisráðherra vígreifur og sagði við BBC þann 28. júlí 2010 að íslenska efnahafslögsaagan ætti að verða séstakt yfirráðasvæði undir stjórn Íslenskra yfirvalda sem skyldu áfram bera ein ábyrgð á skipan fiskveiða:
...
Tíminn | 04.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Fréttaflutningur erlendra fjölmiðla af Össuri Skarphéðinssyni hefur vakið athygli heimildarmanna uppljóstrarans undanfarið fyrir nokkrar sakir. Í fyrsta lagi virðist Össur telja að erlendar fréttir berist ekki til Íslands og hann geti því sagt eitt hér heima og annað erlendis. Í annan stað virðist honum fyrirmunað að gefa fjölmiðlum sömu skilaboð um sama málefni tvö viðtöl í röð.
...
Tíminn | 04.07.2011 |
Uppljostrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans eru sammála um að sjaldan hafi ráðherra kastað hagsmunum eigin þjóðar jafn rækilega fyrir borð á alþjóðavettvangi og utanríkisráðherra Íslands Össur Skarphéðinsson gerði í viðtali við Euronews þann 28. júní s.l. Aðspurður svaraði Össur því til að Íslendingar þyrftu "engar sérstakar undanþágur vegna sjávarútvegs" í samningum við ESB. Heimildarmenn uppljóstararns telja ástæðu til að spyrja í fullri alvöru hvort Össur Skarphéðinsson geti áfram sinnt starfi utanríkisráðherra
...
Tíminn | 21.06.2011 |
Ritstjórn
Starfsmaður Ríkisútvarpsins fræddi uppljóstrarann um að innan stofnunarinnar væru nokkrir starfsmenn sem færu ekki leynt með andúð sína á kirkjunni en þeir virðast fá frjálsar hendur til að beita þjóðarútvarpinu. Hann sagði málið töluvert vera rætt meðal starfsmanna RÚV. Starfsmaðurinn sagði að sér væri misboðið eftir að hafa fylgst með gangi málsins og því ákveðið að taka saman nokkra punkta um umfjöllunina. Nöfnum er sleppt nema í tilviki núverandi og fyrrverandi biskups:...
Tíminn | 13.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Öllum er ljóst að stór hluti samgöngukerfis Vestfjarða eru lélegir malarvegir sem sannarlega þarfnast viðhalds enda hefur lítið verið um fjármagn til vegagerðar á Vestfjörðum vegna mikillar áherslu ríkisstjórnarinnar á Héðinsfjarðargöng, Landeyjarhöfn og fleiri arðbær samgönguverkefni....
Tíminn | 11.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Átökin innan Sjálfstæðisflokksins hafa verið öllum augljós undanfarið og ekki hefur þurft heimildarmenn uppljótrarans til að vita að staða Bjarna Benediktssonar sem formanns flokksins er mjög ótrygg. Landsfundur hefur verið boðaður í október og nú bíða menn eftir því að sjá hvort einhver gerir atlögu að Bjarna og formannsstólnum. Tveir kandídatar hafa helst verið nefndir í því sambandi af heimildarmönnum uppljóstrarans innan Sjálfstæðisflokksins....
Tíminn | 10.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Vinstri hreyfingin grænt framboð naut mikils fylgis fyrir síðustu kosningar og Steingrímur J. Sigfússon var sá stjórnmálamaður sem naut mest trausts meðal almennings. Frá 2009 hefur fylgi Vg hinsvegar fallið jafn hratt og kosningarloforðin hafa verið svikin. Framganga flokksins varðandi Evrópusambandsaðild, Icesave málið, velferðarbrúnna, skuldavanda heimilanna o.fl. hefur valdið því að nokkrir þingmenn og fjölmargir flokksmenn hafa yfirgefið hreyfinguna á þessum tíma. ...
Tíminn | 09.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans á Alþingi segja að forystumenn Samfylkingarinnar séu farnir að finna óþægilega mikið fyrir aukinni gagnrýni á vinnubrögð og stefnu norrænu velferðarstjórnarinnar. ...
Tíminn | 28.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Gylfi Arnbjörnsson fer nú hamförum gegn stefnu Vilhjálms Egilssonar og Samtaka atvinnulífsins í kjölfar þess að upp úr viðræðum slitnaði um skammtímasamninga eftir að Icesave atkvæðagreiðslan fór ekki á þann veg sem þeir félagar Gylfi og Vilhjálmur höfðu í sameiningu ákveðið að væri best fyrir verkafólk í landinu. Heimildarmönnum uppljóstrarans þykir þessi harka sem hlaupin er í samskipti þeirra Gylfa og Vilhjálms sérstök í ljósi þess að varla hafi gengið hnífurinn milli þeirra undanfarin tvö ár. Minnast heimildarmenn þess sérstaklega hversu þétt þeir stóðu saman sem vopnabræður í Icesave málinu, sama hvaða skelfingarsamningur lá á borðinu.
...
Tíminn | 14.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans innan Vinstri-grænna telja að Bjarni Benediktsson hafi gert stór mistök með því að setja fram vantraust á ríkisstjórnina í þessari viku. Rökstyðja þeir það með því að eftir að Guðfríður Lilja var sett af fyrir Árna Þór hafi vanþóknun órólegu deildarinnar innan þingflokksins náð nýjum hæðum. Telja heimildarmenn uppljóstrarans að ef þingflokkur vinstri grænna hefði verið látinn malla í sínum eigin suðupotti alla þessa viku hefði staðan verið orðin ískyggileg við upphaf páskaleyfis þingmanna um næstu helgi.
...
Tíminn | 12.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans ráku upp stór augu í dag þegar þessi frétt um fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar hjá Evrópska fjárfestingabankanum birtist á Vísi í dag. Þar segir meðal annars:
"Fjárfestingarbanki Evrópu var búinn að lána Landsvirkjun fyrir Búðarhálsvirkjun en það var skilyrt við að lánshæfið myndi ekki lækka. Ef það fellur er Búðarhálsvirkjun samt á dagskrá, en fjármögnun verkefnisins verður með styttri lánstíma og aðeins verri kjörum."
...
Tíminn | 10.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur verið að taka púlsinn á heimildarmönnum sínum nú í kjölfar þess að þjóðin hafnaði Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Margt þykir þeim merkilegt, og nefna þar til dæmis að sumir þeirra sem hvað virkastir hafa verið í bloggheimum við að tala fyrir Já-i hafi hálfpartinn gengið af göflunum þegar niðurstöðurnar birtust.
...
Tíminn | 31.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans kættust mjög í dag, við þau tíðindi að Stefán Einar Stefánsson væri nýkjörinn formaður stéttafélagsins Virðing og Réttlæti, VR. Ekki var kætin að sögn tilkomin vegna stuðnings þeirra við Stefán í kjörinu, heldur fremur vegna þess að heimildarmönnum uppljóstrarans leiðist átakalaus verkalýðsbarátta. ...
Tíminn | 30.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Háskóli Íslands stendur fyrir hálfsdags málþingi um ýmis álitaefni vegna Icesave næst komandi laugardag, en þá verður vika í þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Málþingið verður líklega auglýst á morgun en samkvæmt heimildamönnum uppljóstrarans ætlar Háskólinn að „fara alla leið“ í kaldhæðninni.
...
Tíminn | 29.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Á tímum þegar varnarbarátta er háð í íslenska hagkerfinu er lífsnauðsynlegt að þeir sem hafa valist í forsvar fyrir almenning fari með völd sín og áhrif af mikilli ábyrgð og hógværð. Kæruleysisleg ummæli geta valdið ómældum skaða við slíkar aðstæður....
Tíminn | 28.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG á dögunum varð til þess að VG félagar, m.a. í Suðurkjördæmi, gáfu frá sér ályktanir þar sem skorað var á þau, og sérstaklega Atla, að segja af sér þingmennsku. En ekki eru allir þeirrar skoðunar. Því til sönnunar birtist síðastliðinn föstudag hvatning á vefmiðlinum Smugunni til Atla frá 26 kjósendum VG í Suðurkjördæmi um að "víkja hvergi af réttri braut og halda áfram þingmennsku."...
Tíminn | 26.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Stuðningsmenn Icesave samningsins hafa nú sett af stað milljóna króna auglýsingaherferð sem gengur m.a. út á að ýmsir þekktir einstaklingar láta, að því er virðist, hafa eftir sér fullyrðingar um Icesave. Heimildarmenn uppljóstrarans velta því fyrir sér hvernig samtökin fjármagna slíka herferð,...
Tíminn | 25.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fengið ábendingu um að gamla Morgunblaðshúsið í Kringlunni hafi fengið nýtt hlutverk og gangi nú undir nafninu "House of pain"....
Tíminn | 24.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Eftir að grýlan um fjármögnunarfrostið vegna Icesave var kveðin niður með fréttum af afar hagstæðri fjármögnun Marel fyrir síðustu jól, hafa tafir á fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar verið síðasta haldreipi talsmanna þess að samþykkja þurfi samningana....
Tíminn | 23.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Í kjölfar úrsagnar Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar úr þingflokki VG hafa menn velt fyrir sér stöðu ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra. Meirihlutinn er tæpur en einungis 33 þingmenn styðja ríkisstjórnina....