logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Hvort hefur betur Jóhanna eða Jón?

Í kjölfar úrsagnar Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar úr þingflokki VG hefur uppljóstrarinn velt fyrir sér stöðu ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra. Meirihlutinn er tæpur en einungis 33 þingmenn styðja ríkisstjórnina.

jon bjarnaÞessi breyttu hlutföll ríkisstjórnarinnar hafa styrkt stöðu Jóns Bjarnasonar til muna - en til stóð að leggja hans ráðherraembætti niður með stofnun atvinnuvegaráðuneytis sem er óskabarn Jóhönnu Sigurðardóttur. Jón hefur, eins og allir vita, lagst eindregið gegn stofnun nýs ráðuneytis.

Nú er það hins vegar altalað að ríkisstjórnin muni ekki halda þingmeirihluta hafi Jóhanna sitt fram því þá muni Jón Bjarnason og Ásmundur Einar Daðason líka ganga á dyr.

Uppljóstrarinn hefur einnig heimildir fyrir því að ólgan innan VG sé hvergi nærri búin. Nú þegar séu nokkur svæðisfélög og aðilarfélög VG að undirbúa ályktanir til stuðnings Atla Gíslasyni og Lilju Mósesdóttur. Uppljóstraranum hefur veirð bent á að félög sem stutt hafa Steingrím með ályktunum séu flest með nýtt fólk í forystu enda mikil fækkun orðið í röðum VG undanfarið. Forystumenn félaga hafa gefist upp, líkt og Atli og Lilja, á stefnu Steingríms sem er allt önnur en flokkurinn var kosinn útá. Nýja fólkið sem komið er í stjórnirnar vill hins vegar hlýða sínum herra.

Ekki má gleyma því að í þingflokki VG eru enn nokkrir sem talist hafa til kattanna og hafa því níu líf. Í raun má segja að brotthvarf Atla og Lilju hefur styrkt stöðu vina þeirra í VG þar sem Steingrímur er uppá náð þeirra kominn. Nú er bara spurning hvort Steingrímur áttar sig á því að hann hefur Jóhönnu í vasanum þar sem amk. þrír í þingflokknum teljist enn til órólegu deildarinnar.