Landsvirkjun fær lán hjá NIB og EIB þrátt fyrir Icesave - hvað klikkaði?
Það vakti athygli Uppljóstrarans þegar greint var frá því að Landsvirkjun hefði handsalað lánaloforð frá Noræna fjárfestingabankanum vegna Búðarhálsvirkjunnar.
Eftir að grýlan um
fjármögnunarfrostið vegna Icesave var kveðin niður með fréttum af
afar hagstæðri fjármögnun Marel fyrir síðustu jól, hafa tafir á
fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar verið síðasta haldreipi talsmanna
þess að samþykkja þurfi samningana.
Sérstakega hefur verið haldið á lofti að opinberir fjárfestingabankar eins og Evrópski fjárfestingabankinn og Norræni fjárfestingabankinn vilji ekki lána Landsvirkjun fyrr en Icesave hefur verið samþykkt.
Nú er annað komið í ljós. Skyndilega hafði Norræni fjárfestingabankinn lofað að lána Landsvirkjun 8,6 milljarða króna, og það þrátt fyrir að enn séu líkur á að Icesave verði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Til að bíta höfuðið af skömminni bárust svo fréttir af því í ofanálag að Landsvirkjun hefði skrifað undir nýjan lánasamning við Evrópska fjárfestingabankann að fjárhæð 70 milljónir Evra eða að jafnvirði um 11,3 milljarða króna. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar lét þá hafa eftir sér að Lánveitingar NIB og EIB endurspegluðu mikið traust á fyirtækinu. Er þetta ekki síst áhugavert í ljósi þess að í stjórn EIB sitja fjármálaráðherrar bæði Bretlands og Hollands.
Uppljóstrarinn hefur heimildir fyrir því að gárungarnir telji að þarna hafi stjórnarflokkunum orðið illa á í messunni. Endalaus vandræði ríkisstjórnarinnar vegna stjórnlagaþings hafi valdið því að annars þrautþjálfaðir spunameistarar stjórnarráðsins hafi steingleymt að hringja sitt reglulega símtal í þessa tvo opinberu fjárfestingabanka til að minna þá á að ekki mætti lána Landsvirkjun fyrr en búið væri að samþykkja Icesave...
