"Kæruleysisleg ummæli" sökkva skipum
Á tímum þegar varnarbarátta er háð í íslenska hagkerfinu er lífsnauðsynlegt að þeir sem hafa valist í forsvar fyrir almenning fari með völd sín og áhrif af mikilli ábyrgð og hógværð. Kæruleysisleg ummæli geta valdið ómældum skaða við slíkar aðstæður.
Ummæli Jóns Gnarr borgarstjóra um slæma stöðu Orkuveitu Reykjavíkur eru dæmi um slík ummæli og eru jafnvel talin eiga þátt í að koma í veg fyrir milljarða endurfjármögnun Orkuveitunnar. Borgarstjóri lýsti því yfir á Facebook-síðu sinni að fyrirtækið væri á hausnum og eru slík ummæli tekin alvarlega úti í heimi komin frá æðsta embættismanni borgarinnar, eiganda Orkuveitunnar.
Í síðari heimstyrjöldinni háðu bandamenn mikla baráttu og þá var notað orðatiltækið: "Loose Lips Sink Ships" til að vara menn við að tala ekki kæruleysislega því að aldrei er að vita hver gæti verið að hlusta. Ummæli borgarstjóra eru í alla staði verulega alvarlegt mál og ámælisverð.
Staða Orkuveitunnar er langt frá því að vera gamanmál fyrir borgarbúa eða aðra landsmenn og ljóst að ef endurfjármögnun Orkuveitunnar tekst ekki sem skildi getur komið til þess að hún falli í hendur erlendra fjármagnseigenda. Viðamikil áætlun um fjármögnun Orkuveitunnar verður kynnt á stjórnarfundi fyrirtækisins í dag. Borgaryfirvöld hafa rætt möguleikann á að leggja fyrirtækinu til milljarða króna úr sérstökum sjóði og þá hefur verið rætt um að Landsvirkjun komi með fjármagn inn í fyrirtækið.
