logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Samfylkingin og nýju vinnubrögðin

jóhanna sigHeimildarmenn uppljóstrarans á Alþingi segja að forystumenn Samfylkingarinnar séu farnir að finna óþægilega mikið fyrir aukinni gagnrýni á vinnubrögð og stefnu norrænu velferðarstjórnarinnar. Samfylkingin sem sé vön því geta endurskrifað söguna hafi nú áhyggjur af þróun mála og að grípa verði strax til aðgerða ef takast eigi að hreinsa Samfylkinguna líkt og tókst eftir hrunstjórnarsamstarf þeirra við Sjálfstæðisflokkinn.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, lét ekki sitt eftir liggja í þessum efnum í eldhúsdagsumræðum í gær. Þingflokksformaðurinn lagði sérstaka áherslu á hversu mikilvægt væri að taka upp ný og bætt vinnubrögð á Alþingi Íslendinga.

Heimildarmenn uppljóstrarans telja að í ljósi reynslunnar undanfarin tvö ár séu litlar líkur á breytingum. Samfylkingin hefur nú setið í ríkisstjórn frá því tveimur árum fyrir hrun og vinnubrögðin hafa aldrei verið ógegnsærri og jafn mikið gegn þjóðarvilja eins og nú. Skemmst sé að minnast Icesave málsins og þess að Samfylkingin reyndi að troða löglausum kröfum Breta og Hollendinga á þjóðina þvert gegn þjóðarvilja.  Einnig sé hægt að nefna brot í jafnréttismálum, hótanir vegna ESB umsóknar, svikin loforð gegn skuldsettum heimilum, skipulag atkvæðagreiðslu vegna landsdóms, svikin loforð um samráð allra flokka í veigamiklum málum o.fl.

Heimildarmenn uppljóstrarans telja að nýju vinnubrögðin sem Samfylkingin boðar lykti af örvæntingu. Þau séu auðsjáanlega sett fram í þeim tilgangi að reyna að blekkja íslensku þjóðina sem fyrir löngu sé búin að fá sig fullsadda af hinum nýju vinnubrögðum velferðarstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.