logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Viðskiptasiðfræðingurinn viðsjáli

Heimildarmenn uppljóstrarans kættust mjög í dag, við þau tíðindi að Stefán Einar Stefánsson væri nýkjörinn formaður stéttafélagsins Virðing og Réttlæti, VR. Ekki var kætin að sögn tilkomin vegna stuðnings þeirra við Stefán í kjörinu, heldur fremur vegna þess að heimildarmönnum uppljóstrarans leiðist átakalaus verkalýðsbarátta. Sáu þeir fram á að ef sumir hinna frambjóðendanna næðu kjöri myndi hugsanlega lægja ofviðrið sem geisað hefur innan stjórnar og skrifstofu VR undanfarin tvö ár, með tilheyrandi tilbreytingalausum og rólegum fréttum af félaginu.

stefan einarHeimildarmenn uppljóstrarans horfa nú hins vegar eftir þessar nýju fréttir fram á bjarta tíð í næstu þáttum sápuóperunnar "Virðing og Réttlæti". Er það mat þeirra að skammt verði að bíða þess að nýjar deilur blossi upp í kring um hinn nýja formann. Það mat byggja þeir á því að slíkt hefur gerst nánast hvar sem hann hefur stigið niður fæti hingað til.

Nær átakasaga viðskiptasiðfræðingsins Stefáns Einars allt aftur til þess tíma sem hann var féhirðir nemendafélags Verslunarskólans, en hann sagði þá af sér eftir harðvítugar deilur um störf hans innan skólans. Skammt er að minnast þess þegar Stefán fór fremstur í flokki manna sem leigðu fokker flugvél til að fljúga atkvæðum á Ísafjörð í formannskjöri Sambands ungra sjálfstæðismanna. Þótti heimildarmönnum uppljóstrarans að þar hlyti að vera slegið Íslandsmet í einbeittri atkvæðasmölun. Stefáni tókst svo á dögunum að ýfa jafnvel kirkjunnar þjóna upp á móti sér er sögusagnir bárust til fjölmiðla um að hann hefði notað skrifstofu sína í sjálfri Hallgrímskirkju til bakherbergjafunda vegna framboðs síns til formanns VR.

Af ofangreindu þykir heimildarmönnum uppljóstrarans einsýnt að ekki verði endilega fullkomin ró og friður í kring um Stefán Einar á stóli formanns VR. Viðbrögðin í netheimum benda eindregið til þess að ýmsir séu farnir að brýna hnífasettin og ekki linnir yfirlýsingum og spurningum um það hvernig menn segi sig úr félaginu. Það er alltént ljóst að Stefáns Einars bíður ærið verkefni við að endurreisa heiður VR eftir ítrekuð PR slys fyrrverandi stjórna og formanna undanfarin tvö ár. Þar mun án efa reyna nokkuð á kristilegan náungakærleik guðfræðingsins.