logo
miðvikudagur, 23. maí 2012

Hve margir eru stuðningsmenn Þráins?

thrainn_atli

Úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG á dögunum varð til þess að VG félagar, m.a. í Suðurkjördæmi, gáfu frá sér ályktanir þar sem skorað var á þau, og sérstaklega Atla, að segja af sér þingmennsku. En ekki eru allir þeirrar skoðunar. Því til sönnunar birtist síðastliðinn föstudag hvatning á vefmiðlinum Smugunni til Atla frá 26 kjósendum VG í Suðurkjördæmi um að "víkja hvergi af réttri braut og halda áfram þingmennsku."

Það kom heimildarmönnum uppljóstrarans hins vegar í opna skjöldu þegar fyrrum samherji Atla í þingflokki VG, Þráinn Bertelsson, lagði sín lóð á vogarskálar þessarar umræðu á facebook síðu sinni í gærmorgun. Þar hæðist Þráinn að því að stuðningsmenn Atla séu ekki nema rétt um 20 talsins og veltir fyrir sér hversu margir það séu þá sem ekki vilji að Atli haldi áfram þingsetu.

Heimildarmönnum uppljóstrarans í þingliði ríkisstjórnarflokkanna þykir heldur vel í lagt hjá Þráni, Enda minnist þess enginn að tuttugu kjósendur VG (eða annarra) hafi sent Þráni opinberar stuðningsyfirlýsingar þegar hann gekk til liðs við flokkinn. Samkvæmt rökfærslu Þráins sjálfs ætti fólk því að velta fyrir sér hversu margir kjósendur hafi verið þeim vistaskiptum andsnúnir.