Tíminn | 08.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Þreföld hagfræðivilla Þórólfs
Uppljóstrarinn hefur fyrir all löngu síðan spurnir
af því að í hópi harðkjarna ESB sinna hafi verið rætt um að "taka
þyrfti á bændum". Kemur það að sögn heimildarmanna til af því hve
samtök bænda hafa lagst fast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu
og lagt í mikla vinnu vegna aðildarumsóknarinnar. Heimildarmenn
uppljóstrarans segja það til að mynda hafa farið mjög fyrir
brjóstið á harðlínumönnunum að jafnvel formaður samninganefndar
Íslands hafi borið lof á vandaða undirbúningsvinnu bænda.
Síðustu vikur virðist þessi óánægja hafa sprungið út og
harðkjarni ESB-sinna virðist hafa látið málflutning bænda fara svo
óskaplega í taugarnar á sér að nauðsynlegt væri að leita hefnda. Og
ekki stendur á þátttökunni.
Forsvarsmenn Samtaka verslunar og þjónustu, sem gæta hagsmuna
stórmarkaðanna, láta allt í einu eins og þeir séu talsmenn neytenda
og gera það með því að ráðast á framleiðendur þeirra vara sem hafa
hækkað lang minnst í verði í kreppunni. Forseti Alþýðusambandsins
lætur sig ekki muna um að ráðast að starfsöryggi eigin félagsmanna
til að koma höggi á bændur og nokkrir sjálfskipaðir álitsgjafar
trana sér hvað eftir annað fram þegar þeir sjá tækifæri til að snúa
út úr landbúnaðarmálum. Þegar sauðfjárbændur báðu um launahækkun
voru fluttar af því vel yfir 100 fréttir og iðulega gefið í skyn að
bændur væru að hækka vörur sínar einhliða enda þótt þeir fái í raun
engu ráðið um verð afurða sinna. Þeir þurfa einfaldlega að bíða og
sjá hvað þeim býðst.
Og heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þegar ráðist er í
herferð gegn bændum hljóti allir þeir sem sjaldnast bregðast vondum
málstað að láta til sín taka.
Prófessor einn nefnist Þórólfur Matthíasson. Ríkisstjórnin hefur
yfirleitt getað reitt sig á Þórólf sem virðist iðulega fær um að
aðlagað fræði sín að pólitíkinni.
Uppljóstrarinn var nýlega minntur á hversu óþeytandi Þórólfur var
við að finna upp furðulegar kenningar til að réttlæta að
Íslendingar tækju á sig allar Icesavekröfurnar hvernig svo sem
samningarnir litu út. Sem fastagestur í Spegli Ríkisútvarpsins var
hann auk þess óþreytandi við að útskýra að ef Íslendingar féllust
ekki strax á Icesave-samninga 1, 2 og 3 myndi alþjóðasamfélagið
samstundist setja af stað samsæri um að útskúfa Ísland sem yrði að
nokkurs konar Norður-Kóreu.
Uppljóstrarinn þurfti ekki einu sinni heimildarmenn til að taka
eftir því þegar Þórólfur var eini hagfræðingurinn sem gerði tilraun
til að verja sjávarútvegsfrumvörp ríkisstjórnarinnar, jafnvel þótt
hann þyrfti í því skyni að beita röksemdafærslu sem sló flest met í
and-hagfræðilegum fáránleika. Jú, frumvarpið virtist að hans mati
við fyrstu sýn þeim kostum búið að það myndi skerða svo afkomu
sjávarútvegsfyrirtækja að þau yrðu ekki í stakk búin til að greiða
há laun og það myndi draga úr verðbólgu. Að lokum treysti þó ekki
einu sinni Þórólfur sér til að verja frumvörpin.
Það kom uppljóstraranum því ekki á óvart að þegar leggja á í
herferð gegn bændum væri Þórólfur til þjónustu reiðubúinn. Hann
hefur nú lagt sín lóð á vogarskálarnar með tveimur greinum í
Fréttablaðinu sem verða að teljast töluverð afrek því að fá dæmi
eru um að jafn mörgum rangfærslum hafi verið komið fyrir í jafn
stuttum texta ef frá eru talin skrif nokkurra ofstopabloggara.
Eftir að Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna hafði
tekið prófessorinn til bæna og bent á að nánast allt það sem kom
fram í fyrri greininni væru fullkomnar rangfærslur reyndi Þórólfur
að klóra í bakkann með annarri grein. En eins og oft gerist þegar
menn eru staðnir að rangfærslum og reyna að spinna áfram, í stað
þess að brjóta odd af oflæti sínu, vatt vitleysan upp á sig. Seinni
greininni svaraði svo Sindri Sigurgeirsson formaður Landssambands
sauðfjárbænda og útskýrði að Þórólfur færi með rangt mál í öllum
meginatriðum en einnig mörgum aukaatriðum.
Það væri að æra óstöðugan að ætla að fara yfir allar
furðukenningar Þórólfs um íslenskan landbúnað en uppljóstrarinn er
húmoristi og hefur gaman af því að skemmta lesendum. Því er ekki úr
vegi að líta á nokkur dæmi til gamans:
Þórólfur heldur að bændur ráði sjálfir á hvaða verði þeir selja
afurðir sínar en eins og fram kemur að ofan hafa þeir, ólíkt
flestum stéttum, ekkert um það að segja hvað þeir fá fyrir þá vöru
sem þeir framleiða.
Þórólfur gefur í skyn að bændur hafi lengi stundað það að henda
kjöti á haugana til að halda uppi verði. Formaður Bændasamtakanna
útskýrði að það hefði aðeins gerst einu sinni og það hefði verið
fyrir aldarfjórðungi þegar tveggja ára gömlu annars flokks kjöti
var hent. Þá reyndi Þórólfur að snúa sig út úr því með því að segja
að verslanir hefðu skilarétt á kjöti og gamalt kjöti úr verslunum
væri sent til baka og því hent. Hann virtist telja að bændur ættu
það kjöt og hentu því til þess að stórmarkaðirnir gætu ekki boðið
gamalt kjöt á útsöluverði. Formaður LS upplýsti þá að
skilarétturinn væri til staðar að kröfu verslunarinnar og bændur
hefðu lengi lagst gegn því fyrirkomulagi. Jafnframt greindi hann
frá því að það væri hagur allra að sem minnstu magni af kjöti væri
skilað og sem betur fer væri hlutfallið mjög lágt, líklega undir
1%.
Hversu stóru hlutfalli af öðrum matvælum, t.d. samlokum ætli sé
skilað og þeim hent af því þær seldust ekki? Á að banna verslunum
að skila gömlum samlokum og þvinga þær til að selja þær á
útsölu? Gosdrykkjaframleiðendur sjá t.d. um birgðahald fyrir
stórverslanir. Á að banna þeim að taka aftur útrunna vöru svo hægt
sé að selja gamalt kók á afslætti?Já og hversu hátt hlutfall af
dagblöðum, t.d. Fréttablaðinu ætli fari ólesin á haugana? Meira en
1%?
Eftir að hafa fengið út með útúrsnúningi á röngum forsendum að
bændur hlytu að græða á því að kjöti væri hent fór Þórólfur að
bölsótast út í að allt það kjöt sem hann hélt að hefði áður verið
hent væri nú flutt út. Taldi hann að skattgreiðendur fjármögnuðu
útflutninginn með greiðslum til landbúnaðar. Prófessorinn virtist
ekki skilja að ríkisgreiðslurnar væru fastur kostnaður sem hækkar
ekki þótt meira sé flutt út.
Ef Þórólfur vill átta sig á hugtakinu föstum kostnaði og því hvers
vegna það er hagkvæmara að fá meiri tekjur út á sama kostnað má
benda honum á bókina Rekstrarhagfræði eftir Birnu Stefnisdóttur sem
kennd er á fyrsta ári í Verzló. Hann getur líka prófað sig áfram
með því að fara í gegnum ágætt dæmahefti í hagfræði sem nokkrir
kennarar við skólann tóku saman og uppljóstrarinn lærði mikið af
forðum.
Með ýmsum ályktunum og ágiskunum reyndi prófessorinn að færa rök
fyrir því að landbúnaður skilaði nánast engum gjaldeyri og dró
meðal annars kostnaðinn við innfluttar vélar og aðföng frá
útflutningstekjunum. Þannig gleymdi hann aftur að huga að því að um
væri að ræða fastan kostnað við aðra framleiðslu og gott betur,
hann setti allan fasta kostnaðinn yfir á tekjurnar sem féllu til
óháð fasta kostnaðinum. Semsagt tvöföld villa.
Hafandi enn ekki áttað sig á fasta kostnaðinum hélt hann því fram
að fyrst ríkið væri að borga 0,4-1,2 milljarða til bænda til að
framleiða 2,75 milljarða af gjaldeyri gæti það allt eins keypt 1,2
milljarða af gjaldeyri í banka í stað þess að búa þá til með
útflutningi. Eins og áður segir borgar ríkið ekki fyrir
útflutninginn og þótt það gerði það væri það að kaupa 1,2 milljarða
í gjaldeyri í banka ekki það sama og að fá 2,75 milljarða í
gjaldeyristekjur af útflutningi. Í fyrsta lagi eru 1,2 milljarðar
lægri upphæð en 2,75 og í öðru lagi verður gjaldeyrir ekki til í
bankanum.
Prófessorinn býr semsagt til falskan kostnað, gleymir að reikna
með tekjunum umfram falska kostnaðinn og virðist telja að íslenska
ríkið geti prentað gjaldeyri.Þreföld villa!
Uppljóstrarinn verður að játa að afstaða Þórólfs til Icesave fer
að verða skiljanlegri miðað við þessa hagfræði.
Loks ber Þórólfur gjaldeyristekjur af útflutningi lambakjöts saman
við gjaldeyristekjur af álframleiðslu og ber saman hversu mikinn
gjaldeyri sauðfjárbóndi framleiðir miðað við starfsmann í álveri.
Það er útaf fyrir sig ánægjulegt að Þórólfur skuli loksins hafa
gert sér grein fyrir mikilvægi útflutningstekna af áli. Störf í
álframleiðslu skapa mjög mikil útflutningsverðmæti. Hins vegar
gleymist ýmislegt í samanburði hagspekingsins. Í fyrsta lagi
gleymir hann að huga að fjárfestingarkostnaðinum við byggingu
virkjunar og álvers. Meira að segja Karl Marx vissi af samspili
fjármagns og vinnuafls. Það þarf að borga vexti af lánunum sem
tekin voru til að reisa virkjanirnar .
Hafandi tínt til alls konar kostnað, ekki hvað síst ímyndaðan
kostnað, til að draga frá útflutningstekjum af landbúnaði gleymir
prófessorinn alveg að huga að kostnaðinum við álútflutninginn. Það
þarf að greiða af erlendum lánum sem tekin voru til að byggja
virkjanir og verksmiðjur, flytja þarf inn tæki, súrál og annað
hráefni og auk þess eru verksmiðjurnar í eigu útlendinga sem flytja
arð út.
Stærsta skissan er þó ef til vill sú að gleyma að huga að þeim
gjaldeyrisSPARNAÐI sem landbúnaðurinn skilar. Vegna innlendrar
framleiðslu sparar þjóðarbúið tugi milljarða í gjaldeyri sem ekki
þarf að verja í innflutning. Hins vegar spörum við okkur ekki
mikinn innflutning á áli með því að framleiða ál hér. Álpappírinn,
dósirnar og bílarnir eru eftir sem áður keypt fyrir gjaldeyri. Með
því er ekki lítið gert úr mikilvægi áliðnaðarins en það er
ástæðulaust að nota hann til að gera lítið úr landbúnaði.
Þórólfur andæfði á sínum tíma atvinnusköpun í áliðnaði vegna þess
að þau fækkuðu starfsmönnum annars staðar, t.d. í fiskverkun. Nú
telur hann hins vegar réttast væri að setja fáeina bændur í
álframleiðslu til að vinna upp gjaldeyrinn sem landbúnaður skapar
og láta þúsundir bænda og starfsfólk í íslenskum matvælaiðnaði fara
að gera eitthvað annað. Hvað annað ætti það að vera? T.d. að bætast
í hóp þeirra 15.000 íslendinga sem eru atvinnulausir og þurfa að
þiggja atvinnuleysisbætur. Hvað skapar það mikinn
gjaldeyri?
Að öllu þessu upptöldu getur uppljóstrarinn ekki varist því að
spyrja: Hvað skapar Þórólfur Matthísson mikinn gjaldeyri?
Tíminn | 07.10.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort sem er innan flokks eða utan....
Tíminn | 05.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn rak upp stór augu á föstudaginn þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar tilkynnti að hún væri hætt þingmennsku og hyggðist setjast á skólabekk til að læra siðfræði. Fjölmiðlar voru fljótir að átta sig á að varamaður Þórunnar væri Lúðvík Geirsson fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði. Lúðvík setti á svið svolítið sjónarspil um það hvort hann myndi taka sæti á þingi, eins og þetta kæmi honum allt saman óskaplega á óvart. Heimildarmenn uppljóstrarans innan Samfylkingarinnar benda hins vegar á að þarna sé pólitísk flétta í gangi sem ekki sé Lúðvík ókunn.
...
Tíminn | 03.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn er opinn fyrir breytingum. En samt er hann þeirrar skoðunar að sumir hlutir breytist aldrei. Það er að segja var þeirrar skoðunar þar til að Eyjan.is tók upp á því að tengja kommentakerfi vefsins við Facebook. Kommentakerfi Eyjunnar hefur um margra ára skeið skipað staðfastan sess í hjörtum Íslendinga sem einn dýpsti ælupollur mannlegra skoðanaskipta á internetinu....
Tíminn | 02.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hlustaði á forsætisráðherra gefa þingheimi skýrslu um efnahagslífið í morgun. Það er ljóst af skýrslunni að forsætisráðherra er vel lesin í klassískum heimsbókmenntum og hefur tekið sér til fyrirmyndar heimspeki Alviðru, lærimeistara Birtings....
Tíminn | 01.09.2011 |
Uppljóstrarinn
Eins og uppljóstrarinn fjallaði um í fyrradag er stefnuskrá hins nýja miðjuflokks Guðbjörns og Guðmundar hin merkilegasta lesning, ekki síst í þeim sér-íslensku málaflokkum sem sem ekki fást þýddir úr dönsku. Tillögur flokksins um stóraukin útgjöld til íslenskra hermála vöktu t.d. sérstaka athygli uppljóstrarans. ...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Heimildarmenn uppljóstrarans hafa sérstakt dálæti á Birni Val Gíslasyni umfram aðra þingmenn. Telja þeir að það hljóti að vera óþarfi fyrir formann Vinstri-grænna að eiga varðhund þegar hann hefur Björn Val til að gjamma "réttar staðreyndir" í átt að hverjum sem reisir hönd móti niðurskurði, skattahækkunum og öðrum óvinsælum málaflokkum og formannsins.
...
Tíminn | 30.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Flestum er kunnugt að eftir aukalandsfund Sjálfstæðisflokksins í fyrra sagði Guðbjörn Guðbjörnsson sig úr flokknum vegna ágreinings um Evrópusambandsaðild og boðaði stofnun nýs miðjuflokks í íslenskri pólitík. Skyldi flokkurinn lagaður að fyrirmynd norrænna borgaraflokka. Nú í vikunni buðu fjölmiðlar upp á endursýningu á úrsögn Guðbjörns, en nú með Guðmundi Steingrímssyni í aðalhlutverki. Í þetta sinn skyldi nýji miðjuflokkurinn vera heldur til vinstri á miðjunni með grænum og frjálslyndum áherslum.
...
Tíminn | 25.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Þegar uppljóstraranum leiðist bregður hann sér stundum á internetið í leit að skemmtun. Á ferðum sínum um hraðbrautir upplýsingatækninnar er fátt sem drepur tímann betur en myndbandavefurinn youtube.com. Þar má meðal annars finna fjölda íslenskra stjórnmálamyndbanda sem mörg hver eru hið besta skemmtiefni.
...
Tíminn | 08.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fyrir all löngu síðan spurnir af því að í hópi harðkjarna ESB sinna hafi verið rætt um að „taka þyrfti á bændum“. Kemur það að sögn heimildarmanna til af því hve samtök bænda hafa lagst fast gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og lagt í mikla vinnu vegna aðildarumsóknarinnar. Heimildarmenn uppljóstrarans segja það til að mynda hafa farið mjög fyrir brjóstið á harðlínumönnunum að jafnvel formaður samninganefndar Íslands hafi borið lof á vandaða undirbúningsvinnu bænda....
Tíminn | 04.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Gylfi Arnbjörnsson sló feilhögg gagnvart sínum eigin félagsmönnum á dögunum þegar hann hvatti Íslendinga til að sniðganga lambakjöt vegna þess að sauðfjárbændur lögðu til hækkun á afurðaverði. Gylfi virðist þurfa að skoða betur uppbyggingu og félagaskrá eigin samtaka, því að fjöldi félagsmanna ASÍ er í störfum tengdum landbúnaði og eiga því sitt undir því að Íslendingar kaupi áfram lambakjöt og aðrar landbúnaðarafurðir....
Tíminn | 04.08.2011 |
Uppljóstrarinn
Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og díselolíu í gær. Svona rétt um leið og síðasti bíll kom í bæinn eftir ferðalagið um Verslunarmannahelgina. Líklega hefur heimsmarkaðsverðið lækkað akkúrat í gær líka. Og það merkilega er, að öll olíufélögin fá út sama lítraverð - eins og venjulega. Hér er ekkert samráð - það skyldi maður ekki ímynda sér. Spurningin er hvort samkeppniseftirlitið sé örugglega enn í helgarfríi !!!...
Tíminn | 12.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Upprifjun uppljóstrarans á fjármálasögu þeirra Hrannars B. og Helga Hjörvars hefur vakið nokkur viðbrögð í netheimum og sýnist sitt hverjum. Meðal annars er rætt um málið á vefsvæði Útvarps Sögu en þar gefst hlustendum kostur á að leggja orð í belg og bæta sumir þeirra sinni eigin upplifun við söguna. Uppljóstrarinn leggur ekki dóm á sannleiksgildið en þó verða sumar þessara yfirlýsinga að teljast nokkurrar athygli verðar....
Tíminn | 12.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Í kjölfar greinarinnar frá því í gær um vafaasama fjármálafortíð þeirra Hrannars B. Arnarsonar og Helga Hjörvars í gær hefur uppljóstraranum borist fjöldi ábendinga um það sem heimildarmenn hafa sumir kallað "gjaldþrotasögu Hrannars og Hjörvars". Virðist þar sannast að eiga má von á ýmsu þegar gruggugt yfirborðið er gárað....
Tíminn | 11.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Upplljóstrarinn var minntur á það um helgina að Hrannari B. Arnarsyni aðstoðarmanni forsætisráðherra hafi tekist merkilega vel að láta fortíð sína falla í gleymsku og dá í þeim pólitíska spunadansi sem hann stýrir innan úr stjórnarráðinu. Þykir þeim Hrannar hafa verið undarlega stikkfrí þegar kemur að alls kyns umfjöllun vefmiðla og bloggara um hina og þessa stjórnmálamenn, fortíð þeirra, fyrri viðskiptamistök og hliðarspor sem ekki þykja sérlega vel til þess fallin að skapa traust á mönnum í embætti....
Tíminn | 09.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn tók eftir því í gær að einn víðlesnasti bloggari landsins, blaðamaðurinn Páll Vilhjálmsson, vakti athygli á rangfærslum á Evrópuvefnum, sem er fjármagnaður af Háskóla Íslands og á að heita hlutlaus upplýsingagjöf um Evrópusambandið. "Evrópuvefurinn ber á borð bein ósannindi sem eru til þess fallin að fegra málstað aðildarsinna" segir Páll í færslu í gær og bætir við að upplýsingar sem vefurinn birti um að "breytingar á hlutföllum milli smáríkja og stærri ríkja með Lissabon-samningnum sé óverulegar" séu beinlínis rangar.
...
Tíminn | 07.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Þær fréttir bárust úr Seðlabankanum í morgun að Seðlabankinn hafi nú teiknað upp næstu skref í afléttingu gjaldeyrishafta. Felast þau í tveimur samstæðum útboðum á næstu vikum, þar sem bankinn hefur í raun milligöngu um að selja útlendingum gjaldeyri í eign lífeyrissjóða í skiptum fyrir verðtryggð ríkisbréf á hagstæðum kjörum....
Tíminn | 06.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans segja reiði ríkja í kínverska sendiráðinu eftir að Jóhanna Sigurðardóttir neitaði að gefa sér tíma til að hitta kínverska forsætisráðherrann sem hefur áhuga á að koma í opinbera heimsókn til Íslands. Segja má að Jóhanna hafi hér sett punkt aftan við andúð vinstri flokkana á Kína undanfarin áratug. Þessi andúð birtist sérstaklega í hvert sinn sem kínverskir ráðamenn komu í heimsóknir hingað til lands á valdatíma sjálfstæðismanna. ...
Tíminn | 05.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans innan utanríkisþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af þeirri nýju hefð í samningatækni sem nú virðist vera að myndast í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þessi nýja tækni er reyndar ekki ný af nálinni heldur var beitt með vafasömum árangri á fjórða áratugnum undir nafninu "friðþæging" eða "appeasement", og hverrar kjörorð mætti kalla: Gefum þeim það sem þeir vilja. ...
Tíminn | 05.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Eftir pistla gærdagsins um yfirlýsingar Össurar Skarphéðinssonar varðandi samningsmarkmið Íslands gagnvart ESB í sjávarútvegsmálum var uppljóstrarinn minntur á orð utanríkisráðherra í erlendum fjölmiðlum um sama efni frá því í fyrra, þegar sameiginlegur undirbúningur Íslands og ESB að samningaviðræðum hófst. Við það tækifæri var utanríkisráðherra vígreifur og sagði við BBC þann 28. júlí 2010 að íslenska efnahafslögsaagan ætti að verða séstakt yfirráðasvæði undir stjórn Íslenskra yfirvalda sem skyldu áfram bera ein ábyrgð á skipan fiskveiða:
...
Tíminn | 04.07.2011 |
Uppljóstrarinn
Fréttaflutningur erlendra fjölmiðla af Össuri Skarphéðinssyni hefur vakið athygli heimildarmanna uppljóstrarans undanfarið fyrir nokkrar sakir. Í fyrsta lagi virðist Össur telja að erlendar fréttir berist ekki til Íslands og hann geti því sagt eitt hér heima og annað erlendis. Í annan stað virðist honum fyrirmunað að gefa fjölmiðlum sömu skilaboð um sama málefni tvö viðtöl í röð.
...
Tíminn | 04.07.2011 |
Uppljostrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans eru sammála um að sjaldan hafi ráðherra kastað hagsmunum eigin þjóðar jafn rækilega fyrir borð á alþjóðavettvangi og utanríkisráðherra Íslands Össur Skarphéðinsson gerði í viðtali við Euronews þann 28. júní s.l. Aðspurður svaraði Össur því til að Íslendingar þyrftu "engar sérstakar undanþágur vegna sjávarútvegs" í samningum við ESB. Heimildarmenn uppljóstararns telja ástæðu til að spyrja í fullri alvöru hvort Össur Skarphéðinsson geti áfram sinnt starfi utanríkisráðherra
...
Tíminn | 21.06.2011 |
Ritstjórn
Starfsmaður Ríkisútvarpsins fræddi uppljóstrarann um að innan stofnunarinnar væru nokkrir starfsmenn sem færu ekki leynt með andúð sína á kirkjunni en þeir virðast fá frjálsar hendur til að beita þjóðarútvarpinu. Hann sagði málið töluvert vera rætt meðal starfsmanna RÚV. Starfsmaðurinn sagði að sér væri misboðið eftir að hafa fylgst með gangi málsins og því ákveðið að taka saman nokkra punkta um umfjöllunina. Nöfnum er sleppt nema í tilviki núverandi og fyrrverandi biskups:...
Tíminn | 13.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Öllum er ljóst að stór hluti samgöngukerfis Vestfjarða eru lélegir malarvegir sem sannarlega þarfnast viðhalds enda hefur lítið verið um fjármagn til vegagerðar á Vestfjörðum vegna mikillar áherslu ríkisstjórnarinnar á Héðinsfjarðargöng, Landeyjarhöfn og fleiri arðbær samgönguverkefni....
Tíminn | 11.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Átökin innan Sjálfstæðisflokksins hafa verið öllum augljós undanfarið og ekki hefur þurft heimildarmenn uppljótrarans til að vita að staða Bjarna Benediktssonar sem formanns flokksins er mjög ótrygg. Landsfundur hefur verið boðaður í október og nú bíða menn eftir því að sjá hvort einhver gerir atlögu að Bjarna og formannsstólnum. Tveir kandídatar hafa helst verið nefndir í því sambandi af heimildarmönnum uppljóstrarans innan Sjálfstæðisflokksins....
Tíminn | 10.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Vinstri hreyfingin grænt framboð naut mikils fylgis fyrir síðustu kosningar og Steingrímur J. Sigfússon var sá stjórnmálamaður sem naut mest trausts meðal almennings. Frá 2009 hefur fylgi Vg hinsvegar fallið jafn hratt og kosningarloforðin hafa verið svikin. Framganga flokksins varðandi Evrópusambandsaðild, Icesave málið, velferðarbrúnna, skuldavanda heimilanna o.fl. hefur valdið því að nokkrir þingmenn og fjölmargir flokksmenn hafa yfirgefið hreyfinguna á þessum tíma. ...
Tíminn | 09.06.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans á Alþingi segja að forystumenn Samfylkingarinnar séu farnir að finna óþægilega mikið fyrir aukinni gagnrýni á vinnubrögð og stefnu norrænu velferðarstjórnarinnar. ...
Tíminn | 28.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Gylfi Arnbjörnsson fer nú hamförum gegn stefnu Vilhjálms Egilssonar og Samtaka atvinnulífsins í kjölfar þess að upp úr viðræðum slitnaði um skammtímasamninga eftir að Icesave atkvæðagreiðslan fór ekki á þann veg sem þeir félagar Gylfi og Vilhjálmur höfðu í sameiningu ákveðið að væri best fyrir verkafólk í landinu. Heimildarmönnum uppljóstrarans þykir þessi harka sem hlaupin er í samskipti þeirra Gylfa og Vilhjálms sérstök í ljósi þess að varla hafi gengið hnífurinn milli þeirra undanfarin tvö ár. Minnast heimildarmenn þess sérstaklega hversu þétt þeir stóðu saman sem vopnabræður í Icesave málinu, sama hvaða skelfingarsamningur lá á borðinu.
...
Tíminn | 14.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans innan Vinstri-grænna telja að Bjarni Benediktsson hafi gert stór mistök með því að setja fram vantraust á ríkisstjórnina í þessari viku. Rökstyðja þeir það með því að eftir að Guðfríður Lilja var sett af fyrir Árna Þór hafi vanþóknun órólegu deildarinnar innan þingflokksins náð nýjum hæðum. Telja heimildarmenn uppljóstrarans að ef þingflokkur vinstri grænna hefði verið látinn malla í sínum eigin suðupotti alla þessa viku hefði staðan verið orðin ískyggileg við upphaf páskaleyfis þingmanna um næstu helgi.
...
Tíminn | 12.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans ráku upp stór augu í dag þegar þessi frétt um fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar hjá Evrópska fjárfestingabankanum birtist á Vísi í dag. Þar segir meðal annars:
"Fjárfestingarbanki Evrópu var búinn að lána Landsvirkjun fyrir Búðarhálsvirkjun en það var skilyrt við að lánshæfið myndi ekki lækka. Ef það fellur er Búðarhálsvirkjun samt á dagskrá, en fjármögnun verkefnisins verður með styttri lánstíma og aðeins verri kjörum."
...
Tíminn | 10.04.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur verið að taka púlsinn á heimildarmönnum sínum nú í kjölfar þess að þjóðin hafnaði Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Margt þykir þeim merkilegt, og nefna þar til dæmis að sumir þeirra sem hvað virkastir hafa verið í bloggheimum við að tala fyrir Já-i hafi hálfpartinn gengið af göflunum þegar niðurstöðurnar birtust.
...
Tíminn | 31.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Heimildarmenn uppljóstrarans kættust mjög í dag, við þau tíðindi að Stefán Einar Stefánsson væri nýkjörinn formaður stéttafélagsins Virðing og Réttlæti, VR. Ekki var kætin að sögn tilkomin vegna stuðnings þeirra við Stefán í kjörinu, heldur fremur vegna þess að heimildarmönnum uppljóstrarans leiðist átakalaus verkalýðsbarátta. ...
Tíminn | 30.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Háskóli Íslands stendur fyrir hálfsdags málþingi um ýmis álitaefni vegna Icesave næst komandi laugardag, en þá verður vika í þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Málþingið verður líklega auglýst á morgun en samkvæmt heimildamönnum uppljóstrarans ætlar Háskólinn að „fara alla leið“ í kaldhæðninni.
...
Tíminn | 29.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Á tímum þegar varnarbarátta er háð í íslenska hagkerfinu er lífsnauðsynlegt að þeir sem hafa valist í forsvar fyrir almenning fari með völd sín og áhrif af mikilli ábyrgð og hógværð. Kæruleysisleg ummæli geta valdið ómældum skaða við slíkar aðstæður....
Tíminn | 28.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG á dögunum varð til þess að VG félagar, m.a. í Suðurkjördæmi, gáfu frá sér ályktanir þar sem skorað var á þau, og sérstaklega Atla, að segja af sér þingmennsku. En ekki eru allir þeirrar skoðunar. Því til sönnunar birtist síðastliðinn föstudag hvatning á vefmiðlinum Smugunni til Atla frá 26 kjósendum VG í Suðurkjördæmi um að "víkja hvergi af réttri braut og halda áfram þingmennsku."...
Tíminn | 26.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Stuðningsmenn Icesave samningsins hafa nú sett af stað milljóna króna auglýsingaherferð sem gengur m.a. út á að ýmsir þekktir einstaklingar láta, að því er virðist, hafa eftir sér fullyrðingar um Icesave. Heimildarmenn uppljóstrarans velta því fyrir sér hvernig samtökin fjármagna slíka herferð,...
Tíminn | 25.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Uppljóstrarinn hefur fengið ábendingu um að gamla Morgunblaðshúsið í Kringlunni hafi fengið nýtt hlutverk og gangi nú undir nafninu "House of pain"....
Tíminn | 24.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Eftir að grýlan um fjármögnunarfrostið vegna Icesave var kveðin niður með fréttum af afar hagstæðri fjármögnun Marel fyrir síðustu jól, hafa tafir á fjármögnun Búðarhálsvirkjunnar verið síðasta haldreipi talsmanna þess að samþykkja þurfi samningana....
Tíminn | 23.03.2011 |
Uppljóstrarinn
Í kjölfar úrsagnar Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar úr þingflokki VG hafa menn velt fyrir sér stöðu ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra. Meirihlutinn er tæpur en einungis 33 þingmenn styðja ríkisstjórnina....