Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi geta hafist á morgun

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur að
fenginni ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar heimilað 1.000 tonna
veiði á rækju í Ísafjarðardjúpi. Níu ára hlé hefur verið á
rækjuveiði á svæðinu og áfram gildir bann við rækjuveiði á öðrum
innfjarðasvæðum.
Í árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar sem lauk 5.
október sl. kom fram veruleg hækkun stofnvísitölu rækju á
Skjálfanda og í Djúpi.
Á fyrrnefnda svæðinu er rækjan þó mjög smá og því leggur
stofnunin til að ekki verði hafnar veiðar á svæðinu. Í
Ísafjarðardjúpi er aftur á móti lagt til að opnað verði fyrir
rækjuveiðar með 1.000 tonna aflamarki og er það gert með reglugerð
sem birt er í dag. Veiðar mega hefjast á morgun, föstudaginn 21.
október.
Aflamark í rækju í Djúpi skiptist á 10 báta en þar af uppfylla
aðeins sex skilyrði um leyfi til veiðanna. Tveir bátanna eru í
krókaaflamarkskerfi og tveir eru ekki gerðir út í Ísafjarðardjúpi
sem er skilyrði leyfisveitingar.
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur að fenginni ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar heimilað 1.000 tonna veiði á rækju í Ísafjarðardjúpi. Níu ára hlé hefur verið á rækjuveiði á svæðinu og áfram gildir bann við rækjuveiði á öðrum innfjarðasvæðum. Í árlegri stofnmælingu Hafrannsóknastofnunarinnar sem lauk 5. október sl. kom fram veruleg hækkun stofnvísitölu rækju á Skjálfanda og í Djúpi....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Laugardaginn 3. desember verða stofnuð samtök áhugafólks um "Hreindýr á Vestfirði". Tilgangur samtakanna er að beita sér fyrir því að gerðar verði rannsóknir á heilbrigði hreindýranna, það er að segja hvort hætta sé á að þau geti smitað sauðfé af búfjársjúkdómum. Einnig að gerð verði rannsókn á gróðurfari á Vestfjörðum í þeim tilgangi að athuga hvort nægjanlegt æti sé fyrir dýrin....
Tíminn | 17.10.2011 |
Ritstjórn
Helga Guðrún Guðjónsdóttir var á þingi UMFÍ, sem haldið var í menningarhúsinu Hofi á Akureyri um helgina, einróma endurkjörin formaður Ungmennafélags Íslands til næstu tveggja ára. Helga hefur gegnt formennsku í UMFÍ síðan 2007, en hún var þá fyrsta konan sem kjörin var formaður samtakanna. Hún sagðist hlakka til næstu tveggja ára en það eru margar tillögur sem eru samþykktar á þinginu sem marka starfið næstu tvö árin....
Tíminn | 13.10.2011 |
Ritstjórn
Um síðustu helgi var haldin flugslysaæfing á flugvellinum á Gjögri þar sem æfð voru viðbrögð við flugslysi við flugvöllinn. Þegar slíkar æfingar eru haldnar er verið að láta reyna á samvinnu allra viðbragðseininga á svæðinu. Æfingin heppnaðist vel í alla staði. Aðstæður á Gjögri eru þannig að þar eru ekki til staðar nema hluti hinna hefðbundnu viðbragðsaðila eins og lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir, Rauði krossinn og heilbrigðisstarfsmenn. Verði stóráfall á Gjögri er gert ráð fyrir að aðstoð berist frá nærliggjandi svæðum, en þangað til sú aðstoð berst reynir á heimamenn....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Bændur á Lambavatni á Rauðasandi, utarlega við norðanverðan Breiðafjörð, vinna þessa dagana að kornslætti og þreskingu og flutningi í geymslur fyrir veturinn. Um er að ræða bæði sex raða og tveggja raða bygg sem notað verður sem kúafóður. Eyjólfur Tryggvason frá Lambavatni segir að sýru verði að blanda saman við kornið áður en það er sekkjað....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Í Kirkjuhvammi á Rauðasandi er verið að byggja íbúðarhús, ætlað fyrir starfsfólk Franska kaffihússins á staðnum. Þetta mun vera eina nýja íbúðarhúsið sem byggt er á suðursvæði Vestfjarða á þessu ári en verið er að gera upp nokkur gömul og merkileg hús. Að sögn Einars Jónssonar, staðarhaldara í Kirkjuhvammi, er húsið í eigu Skipholts ehf. Félagið hefur þegar gert upp gamla íbúðarhúsið í Kirkjuhvammi, sem breytt var í kaffihús, auk íbúðarhúss og útihúsa í Saurbæ á Rauðasandi...
Tíminn | 11.09.2011 |
Ritstjórn
Borgarísjaki sást 25 sjómílur norðvestur af Kögri í vikunni. Landhelgisgæslunni barst tilkynning um borgarískjakann frá fiskiskipi sem var statt um 16.3 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Var ískjakinn um 2-3 sjómílur norðan við skipið og virtist hann vera mjög stór. Þar sem skipið var ekki með radar var ekki hægt að mæla lengdina á honum....
Tíminn | 09.09.2011 |
Ritstjórn
Í sumar hafa verið gerðar miklar endurbætur á Kjartanshúsi við Hafnarstræti á Flateyri. Húsið hefur verið fært í sitt upprunalega horf við endurnýjun glugga og klæðningar. Kjartanshús er götuprýði þar sem það stendur í röð hinna veglegu skipstjórahúsa neðst við Hafnarstræti sem byggð voru af önfirskum skipstjórum og útgerðarmönnum á sinni tíð....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Skemmtiferðaskipið Silver Explorer kom við á Bíldudal á för sinni um Atlantshafið þann 1. september síðastliðinn. Skipið markaði ákveðin tímamót þar sem þetta er fyrsta og eina skip þessarar tegundar sem stoppar á sunnanverðum Vestfjörðum á þessu ári. Heimamenn binda vonir við að fleiri skemmtiferðaskip fylgi í kjölfarið enda er þetta landsvæði kjörin vettvangur slíkrar ferðaþjónustu....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku var unglingspiltur staðinn að verki við veggjakrot á Ísafirði. Drengurinn mun, með aðstoð föður síns, bæta fyrir gjörðir sínar. Tilkynning um afskipti lögreglunnar af drengnum var jafnframt send til barnaverndaryfirvalda. Í vikunni gaf lögreglan ökumönnum sem töluðu í farsíma sérstakan gaum og var einn kærður fyrir að nota ekki handfrjálsan búnað....
Tíminn | 03.09.2011 |
Ritstjórn
Tilboð í smíði nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Staðará í Steingrímsfirði á Strandavegi 643 voru opnuð í vikunni. Fjögur tilboð bárust og voru þau öll lítið eitt hærri en áætlaður verktakakostnaður hjá Vegagerðinni sem var rúmar 85,2 milljónir. Lægsta tilboðið var frá Eykt ehf í Reykjavík og hljóðaði upp á rúmar 85,9 milljónir....
Tíminn | 02.09.2011 |
Ritstjórn
Í vikunni var skrifað undir verksamning milli sveitarfélagsins Strandabyggðar og fyrirtækisins Ísar ehf. um endurbyggingu stálþils við Hólmavíkurhöfn og fyrsti verkfundur haldinn vegna framkvæmdarinnar. Verklok eru áætluð 1. mars 2012 og mun flutningur á tækjum til Hólmavíkur og undirbúningur undir framkvæmdir hefjast í næstu viku....
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Það er ekkert verið að tvínóna við hlutina þegar Hamingjudagar eru annars vegar, en fyrsti dagskrárliður fyrir árið 2012 hefur þegar verið negldur niður. Það er Hamingjuhlaupið margfræga sem hefur vaxið og dafnað með hverju ári, enda geta allir tekið þátt og hlaupið í takt við eigin getu. Að sögn Stefáns Gíslasonar, skipuleggjanda og upphafsmanns hlaupsins, mun hlaupið 2012 hefjast við Minja- og handverkshúsið Kört við Árnes í Trékyllisvík,...
Tíminn | 31.08.2011 |
Ritstjórn
Á annan veg, kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, verður frumsýnd í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri eftir þrjá daga. Myndin var forsýnd í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði um helgina við frábærar viðtökur. Kvikmyndahátíðin í San Sebastian hefur boðið Á annan veg til þátttöku á hátíðinni í ár en hún fer fram 16. - 24. september á Spáni....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Þjóðfræðistofa býður í vetur upp á lista- og fræðimannadvöl í Skelinni, sem er huggulegt lítið hús á Hólmavík. Gestir fá að dvelja húsinu í eina viku á tímabilinu 15. september 2011 - 15. desember 2011. Dvölin er að jafnaði gjaldfrjáls en öllum gestum er skylt að skila af sér framlagi undir lok dvalar í formi sýninga, tónleika, fyrirlestra, námskeiða eða öðru sem um semst við Þjóðfræðistofu....
Tíminn | 29.08.2011 |
Ritstjórn
Kajak ræðararnir, Riaan Manser og Dan Skinstad, lentu báti sínum við Ávíkurána í Árneshreppi á Ströndum á laugardaginn. Þeir hófu róðurinn í kringum landið á Húsavík 27. mars og eru nú langt komnir með að loka hringnum. Þeir komu að landi í Ávíkinni sem er vík á milli Litlu og Stóru-Ávíkur og lentu við Ávíkurána um nónleytið. Það bilaði hjá þeim stýri á Hornströndum á dögunum og hefur það tafið ferðalag þeirra talsvert....
Tíminn | 27.08.2011 |
Ritstjórn
Varp margra fugla gekk óvenju illa sumarið 2011 vegna fæðuskorts og slæms tíðarfars. Haförninn átti sömuleiðis í nokkrum vandræðum en þó gekk arnarvarp vonum framar því 29 ungar komust á legg úr 19 hreiðrum. Varpárangur þar sem varpið heppnaðist var mjög góður og komust nú þrír ungar á legg úr einu hreiðri, sem er afar sjaldgæft....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Hreppsnefnd Árneshrepps hefur orðið við ósk bænda í hreppnum um að seinka leitum um eina viku frá því sem venjulegt er. Bændur telja að á viku geti beit lagast fyrir féð sem kemur af fjalli. Heyskapur tafðist vegna kulda sem herjaði á landið í vor og í byrjun sumars. Tún eru lítið farin að spretta aftur eftir heyskap og sumir bændur eiga ennþá eftir að slá seinni slátt. Fé er gjarnan haft á beit í um hálfan mánuð áður en slátrun hefst. ...
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um vegagerð á Vestfjarðavegi milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, Reykhólahreppi og Vesturbyggð. Vegagerðin mun standa fyrir opnum húsum þar sem framkvæmdin og mat á umhverfisáhrifum hennar verða kynnt og tekið verður við ábendingum og athugasemdum...
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Á ársfundi Byggðastofnunar á Sauðárkróki í gær var í fyrsta sinn afhent samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, Landstólpinn. Það var Jón Jónsson á Kirkjubóli, menningarfulltrúi Vestfjarða, sem hlaut viðurkenninguna. Í rökstuðningi kom fram að um nokkurs konar bjartsýnisverðlaun væri að ræða og að Jón hafi með störfum sínum vakið jákvæða athygli á sinni heimabyggð og verið ötull talsmaður ferðaþjónustu og menningar á Vestfjörðum....
Tíminn | 23.08.2011 |
Ritstjórn
Berjaspretta virðist með minna móti þetta árið. Kemur þar aðallega til að hitastigið síðastliðið vor og fyrripart sumars var afar óhagstætt. Einnig hefur lítil rigning haft áhrif á sprettuna. Ekki eru þó allar fréttir slæmar. Svo virðist sem berjasprettan sé afar staðbundin. Vestfirðir og Dalir virðist vera það svæði á landinu sem berin hafi átt auðveldast uppdráttar....
Tíminn | 22.08.2011 |
Ritstjórn
Kómedíuleikhúsið er nú að undirbúa haustleikferð um Vestfirði og Vesturland með tvo af sínum vinsælum leikjum. Ferðaplanið er fjölbreytt en alls verða sýndar 16 sýningar á 16 stöðum á 16 dögum. Fyrsta sýning verður föstudaginn 9. september og eftir það verður sýnd ein sýning á dag allt til laugardagsins 24. september....
Tíminn | 21.08.2011 |
Ritstjórn
Íslandsmeistaramótinu í hrútadómum 2011 lauk í dag. Alls tóku fimmtíu manns þátt, þrjátíu í flokki óvanra og tuttugu í flokki vanra hrútadómara. Það var Strandamaðurinn Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum sem fór með sigur af hólmi í flokki vanra þuklara, en Guðbrandur náði öðru sæti árið 2003 og því þriðja árið 2005. Guðbrandur hlaut til varðveislu í eitt ár verðlaunagripinn Horft til himins sem er tileinkaður minningu Brynjólfs Sæmundssonar ráðunautar, auk fjölda annarra verðlauna....
Tíminn | 19.08.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum hafa verið kallaðar út vegna karls og konu sem eru í sjálfheldu í Búðagili fyrir ofan Bíldudal. Einnig er búið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar og mun hún fara með undanfara björgunarsveita í Reykjavík vestur. Fólkið var á göngu og ætlaði niður gilið en situr nú alveg pikkfast þar enda aðstæður erfiðar, urð og klettar og afar bratt niður....
Tíminn | 10.08.2011 |
Ritstjórn
Áhugasamir Vestfirðingar eða aðrir sem kunna að eiga leið þar um geta næstu daga notið tónlistar hljómsveitarinnar Prins Póló sem er að leggja af stað í tónleikaferðalag um með það að markmiði að leika tónlist og borða góðan mat. Sveitin heldur tónleika á veitingastöðum sem hún kallar “nokkrir af bestu veitingastöðum á norðurhjara veraldar og þótt víðar væri leitað.” Miðaverð er 1000 krónur en þeir sem ákveða að fylgja sveitinni á alla tónleika greiða þá 1000 krónur fyrir allt saman sem eru 333 á staka tónleika. Matur, gisting eða ...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Íbúum á Íslandi hefur fjölgað alls staðar á landinu nema á Vestfjörðum og á Norðurlandi vestra. Þetta kemur fram í riti Hagstofunnar, Ísland í tölum 2011, sem nýlega kom út. Samkvæmt ritinu búa aðeins um 2% þjóðarinnar á Vestfjörðum í dag. Árið 1950 bjuggu 8% þjóðarinnar á Vestfjörðum og árið 1910 voru Vestfirðingar 16% af íbúum landsins....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Slökkviliðið á Hólmavík og á Drangsnesi var kallað út laust eftir hádegi á fimmtudag þar sem tilkynnt var um að kviknað hefði í bifreið sunnan við Veiðileysu í Árneshreppi á Ströndum. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík var ökumaður jeppans einn og slapp hann ómeiddur. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en eldsupptök eru ókunn....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku lagði starfsmaður Fiskistofu hald á fimm net sem voru ólögleg í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Netin voru í sjó á svokölluðum hvíldartíma, en ákveðnar reglur gilda þar um, en óheimilt er að stunda netaveiðar á silungi í netlögum sjávarjarða frá kl. 22.00 á föstudagskvöldi til kl. 10.00 á þriðjudagsmorgni....
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Gistinætur á hótelum á Íslandi í júní síðastliðnum voru 181.000 samanborið við 157.000 í júní 2010 að því er fram kemur í frétt frá Hagstofunni. Á Suðurlandi voru 25.340 gistinætur júní sem er 19% fjölgun samanborið við júní 2010. Það á svo eftir að koma í ljós hvaða áhrif hlaupið í Múlakvísl mun hafa. Gistinætur erlendra gesta voru um 85% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í júní og fjölgaði gistinóttum þeirra um 11% frá fyrra ári. Mikil aukning var á gistinóttum Íslendinga í júní, gistinætur voru ríflega 27 þúsund ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Reykhóladagar, sem er byggðarhátíð Reykhólahrepps, hefjast í kvöld og lýkur á sunnudag með Ólafsdalshátíð. Mikil dagskrá hefur verið sett saman og meðal dagskráratriða er bíó, kassabílakeppni, dráttarvélaakstur, pulsupartí og spurningakeppni, sýningar og siglingar, kvöldvaka og dansleikur....
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Mýrarboltamótinu á Ísafirði lauk á sunnudaginn og þótti takast vel og hafa þátttakendur aldrei verið fleiri. 52 lið voru skráð til leiks, 40 í karlaflokki og 12 í kvennaflokki. Veðrið var gott og aðstæður allar ákjósanlegar. Mýrarboltameistararnir þetta árið, og liðið sem hampaði mýrarboltabikarnum, stærsta bikar í íslenskri íþróttasögu, eru Aðskilnaðarsamtök Vestfjarða. ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Verkefni lögreglunnar á Vestfjörðum voru fjölbreytt í síðustu viku en þá var ekið á kindur, yfir 20 ökumenn voru teknir fyrir of hraðann akstur og maður var fluttu með þyrlu til Reykjavíkur eftir að hafa slasast á dansleik. Fyrst er það umferðin. 29 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðann akstur og sá ók hraðast var á 130 km/klst. Í tilkynningu frá lögreglunni segir um þann ökumann að hann: “þakkaði lögreglumanni fyrir að stöðva akstur sinn, með þeim orðum að hann hafi verið sofandi og ekki vaknað fyrr en farþegar hans bentu honum ...
Tíminn | 01.08.2011 |
Ritstjórn
Rétt upp úr klukkan 2 síðastliðna nótt voru björgunarsveitir af svæði 7 (norðanverðir vestfirðir) kallaðar út til að leita af tveimur kajak ræðurum sem höfðu lagt af stað á föstudagskvöldið og ætluðu að vera komnir til baka um kvöldmat á laugardag. Þeir höfðu skilið eftir ferðaáætlun sem hljóðaði uppá að þeir færu frá Flateyri í Önundarfirði og ætluðu að sigla í Staðardal í Súgandafirði og gista þar yfir nóttina....
Tíminn | 30.07.2011 |
Ritstjórn
53 lið eru skráð til leiks í Mýrarboltanum á Ísafirði, en keppnin hefst í dag og er þetta stærsta mótið til þessa. „Allar aðstæður eru hinar bestu, vellirnir verða mjög blautir í ár enda voru þeir fyrst vökvaðir í byrjun júlí þegar við héldum kynningarleik," segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur Mýrarboltans. Mikill fjöldi fólksi er komið í bæinn til að taka þátt í mótinu og segist Jóhann Bæring rosalega stemmningu fyrir mótinu, enda er er alltaf gott veður í Tungudalnum. Það klikkar aldrei," segir Jóhann Bæring....
Tíminn | 29.07.2011 |
Ritstjórn
Byggðasafn Vestfjarða og Skútusiglingar bjóða uppá skemmtilega nýjung á Ísafirði um Verslunarmannahelgina! Boðið verður uppá siglingu og handfæraveiðar á Gunnari Sigurðssyni ÍS 13. Er þetta kjörið tækifæri til að upplifa stemninguna sem var um borð í bátum sem þessum hér á árum áður. Hver ferð tekur um 3 klst. og verður rennt fyrir fisk og notið þess að sigla um Ísafjarðardjúp....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Mýrarboltamótið er haldið ár hvert á Ísafirði um Verslunarmannahelgina. Nú þegar hafa 40 lið skráð sig til leiks, 30 í karlaflokki og 10 í kvennaflokki. Sex eru inná í einu, en jafnan eru liðin þó skipuð 9-15 manns, því drullan þreytir menn fljótt. Vinahópar taka sig saman og mynda lið, einstaklingar taka þátt með skrapliðum svokölluðum....
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Sunnudag og mánudag síðastliðinn brunnu tvö hús á Vestfjörðum, var annað á Ísafirði en hitt á Patreksfirði. Við rannsókn kom í ljós að annars vegar var um gáleysi að ræða en hinsvegar um íkveikju.
Að morgni sunnudagsins 24. júlí síðastliðinn kom upp eldur í íbúð í fjölbýlishúsi á Ísafirði. Eldurinn var minni háttar og skemmdir litlar. Við rannsókn þess máls kom í ljós að um gáleysislega meðferð elds var að ræða og telst málið að fullu upplýst. Klukkan 04:40 aðfaranótt...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum fóru knattspyrnumenn BÍ/Bolungarvíkur í hljóðver til að taka upp stuðningsmannalag fyrir félagið. Liðið leikur í 1. deildinni og hefur verið að standa sig vel þar. Þá er liðið komið í undanúrslit bikarkeppninnar og mætir þar efsta liði úrvalsdeildarinnar KR. Leikurinn fer fram á Ísafirði og verður það einn stærsti knattspyrnuleikur sem Vestfirðingar hafa nokkru sinni spilað. KR-ingar eiga sitt stuðningsmannalag og nú eru Ísfirðingar engir eftirbátar þeirra á þeim vettvangi, hvað svo sem gerist í undanúrslitaleiknum....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Í gær barst lögreglunni á Ísafirði tilkynning um stóran hval á reki í Fljótavík. Sá er tilkynnti taldi hættu á að hvalinn ræki á land í Fljótavíkina. Gerðist það, yrði mikill skaði á háannatíma ferðamennskunnar. Lögregla tilkynnti málið til allra sem tilkynningu eiga að fá um slíkt. Enginn vill eiga hvalinn, hann er bara kostnaður í dag, „enginn hvalreki á fjörur manna“, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Ísafirði....
Tíminn | 25.07.2011 |
Ritstjórn
Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Aðalstræti á Patreksfirði á fimmta tímanum í nótt. Þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang var húsið alelda. Húsið var mannlaust og verið að gera það upp. Enginn var í bráðri hættu og kom slökkvilið Vesturbyggðar í veg fyrir að eldurinn bærist í nærliggjandi hús sem var rýmt....
Tíminn | 24.07.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitin Kópur á Bíldudal fór í óvenjulega leiðangur um daginn þegar sveitinni barst hjálparbeiðni frá bóndanum á Laugabóli þegar kálfur hafði fallið fram af brún á Langanesi og niður á sillu og var það í sjálfheldu en hafði þó eitthvað gras að bíta. Kópsmenn mættu með bát sveitarinnar og gátu komist að kálfinum úr fjöru. Smá bras var að koma kálfinum í bátinn, en hann var bundinn á fótum til þess að forðast óþarfa hamagang....
Tíminn | 23.07.2011 |
Ritstjórn
Rekstur SjávarSmiðjunnar á Reykhólum hófst um síðustu mánaðamót þegar þaraböðin voru opnuð, en þau eru einn hluti þessa framtaks. SjávarSmiðjan er frumkvöðlafyrirtæki um nýtingu sjávarfangs eins og þara á nýjan og fjölbreyttari hátt til meðferðar sem og almennrar heilsubótar fyrir fólk á öllum aldri. Á Reykhólum er gnægð af bæði heitu vatni og breiðfirsku þaramjöli frá Þörungaverksmiðjunni....
Tíminn | 22.07.2011 |
Ritstjórn
Á laugardaginn kemur, 23. júlí, verður þeirra heiðurs hjóna, Péturs Jens Thorsteinssonar og Ásthildar Guðmundsdóttur minnst, en 60 ár eru liðin frá því að minnisvarði var reistur um þau á Bíldudal. Í tengslum við þennan atburð verður ættarmót afkomenda þeirra og munu þeir meðal annars. færa Vesturbyggð bækling um starfssemi þeirra hjóna á Bíldudal. Pétur Jens Thorsteinsson byggði upp verslunarveldi sitt um og eftir árið 1880. Pétri fylgdi mesta uppgangstímabil í sögu staðarins. Hann gerði út fiski- og farskip, reisti ...
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Bæjarhátíðin á Tálknafirði nefnist Tálknafjör og stendur yfir núna um helgina. Hún byrjar annað kvold, föstudagskvöld, með fjölskylduvænum ratleik en síðan er gönguferð með leiðsögn sem endar á brennu og bollasúpu. Laugardagurinn verður þéttskipaður viðburðum en hátíðinni lýkur með poppmessu á sunnudag. Dagskrá Tálknafjörs (pdf) má finna hér á Tálknafjarðarvefnum....
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Hlauparar á vegum Friðarhlaupsins (World Harmony Run) komu til Þingeyrar um síðustu helgi og útnefndu Þingeyri sem fyrsta friðarþorpið á landinu. Af því tilefni fór fram hátíðleg athöfn við Gunnarsstein, rétt fyrir innan Þingeyri, þar sem fulltrúar bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar veittu viðurkenningunni viðtöku og dætur Gunnars heitins Friðfinnssonar afhjúpuðu skjöld sem aðstandendur Friðarhlaupsins höfðu látið koma fyrir á steininum....
Tíminn | 19.07.2011 |
Ritstjórn
Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir um þessar mundir eftir starfsmanni í 50% starf en þeir sem sækja um þurfa að geta brugðið sér í mörg hlutverk. Sá sem starfið hlýtur þarf að vera aðstoðarmaður sveitarstjóra, vinna að bréfaskriftum, sjá umbóhald og innheimtu, vera í móttöku, skjalavörslu og auk annara starfa sem starfsmanni verða falin. "Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir 50% starf á skrifstofu sveitarfélagsins í líflegu umhverfi í Þróunarsetrinu á Hólmavík" segir á heimasíðu sveitarfélagsins sem er á Vestfjörðum og ...
Tíminn | 19.07.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Vestfjörðum hafði nóg að gera í síðustu viku og rannsakaði þá riffil sem henni barst, hún fer yfir skróplista vegna skoðun ökutækja og einnig fylgist hún vel með því hvernig ökutækjum er lagt. Lögreglan hefur haft til rannsóknar mál sem hófst með því að komið var með riffil til lögreglunnar. Landvörður á Hornströndum kom með riffilinn sem fundist hafið í Hornvík. Eigandi riffilsins hefur gefið sig fram og gefið skýringar á málavöxtum en vopnið var réttilega á hann skráð. Honum verður afhent vopnið en ...
Tíminn | 17.07.2011 |
Ritstjórn
Aukasólir eru ekki mjög algengt ljósfyrirbæri á Ströndum, en sjást helst þegar sól er lágt á lofti. Fyrir nokkrum dögum voru þrjár sólir á lofti samtímis við Steingrímsfjörðinn og Jón Jónsson náði að fanga þær á mynd. Sólin var þá í úlfakreppu, því gíll og úlfur sáust samtímis sitt hvoru megin við hana....
Tíminn | 16.07.2011 |
Ritstjórn
Þessa daganna fer fram hlaupahátíð á Vestfjörðum þar sem keppt verður meðal annars í sjósundi, hjólreiðum og svo hlaupa keppendur 10 km í Óshlíðarhlaupinu. Frá þessu er greint á bb.is. Í dag er hjólreiðakeppnin á dagskrá. Hjólaðir verða 55 kílómetrar, frá Þingeyri og inn Kirkjubólsdal, upp Álftamýrarheiði og upp í Kvennaskarð áður en haldið er niður Stapadal að sjó í Arnarfirði. Frá Stapadal liggur leiðin eftir ýtuvegi Elísar Kjarans út í Lokinhamradal, áfram fyrir Sléttanes að Svalvogavita, eftir syllunni í Hrafnholunum inn í ...
Tíminn | 15.07.2011 |
Ritstjórn
Í dag verða hraðamyndavélar í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum teknar í notkun. Myndavélin er starfræn og eru upplýsingar um hraðabrot sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðveginum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlunin er hluti samgönguáætlunar. Vegagerðin, Innanríkisráðuneytið...
Tíminn | 12.07.2011 |
Ritstjórn
Helgina 15. - 17. júlí fagnar hestamannafélagið Stormur á Vestfjörðum 40 ára afmæli sínu en það var stofnað þann 29. ágúst árið 1971. Fjölbreytt dagskrá hefur verið sett saman í tilefni stórafmælisins en hún hefst á opnu félagsmóti Storms föstudaginn þann 15. júlí. Afmælisveislan fer fram á laugardagskvöldinu, undir stjórn Benna Sig. frá Bolungarvík, og boðið verður upp á grillmat að hætti Guðmundar Helgasonar á Hótel Núpi. Meðal dagskrárliða eru söngur, leikir og afmælishappdrætti þar sem aðalvinningur er folald frá Laugabóli í ...
Tíminn | 12.07.2011 |
Ritstjórn
Sláttur er hafinn eða er um það bil að hefjast á hverjum bænum á fætur öðrum í Reykhólahreppi og er þetta nokkru seinna en venjulega en veður hefur lengst af verið kalt og þurrt, að því er fram kemur á vefsíðu hreppsins, og segja bændur út um allt landa það sama. "Eftir því sem best er vitað var Gústaf Jökull fyrstur til að hefja slátt á Miðjanesi á fimmtudag. Á laugardaginn byrjaði sláttur a.m.k. á Stað og Gróustöðum en margir telja góða venju að byrja á laugardegi." Að sögn Stefáns bónda á Gróustöðum er ágætlega ...
Tíminn | 10.07.2011 |
Ritstjórn
Opnuð hefur verið ný verslun á Ísafirði sem ber heitið Vestfirzka verzlunin og mun hún sérhæfa sig í vörum frá Vestfjörðum. Í tilkynningu frá verzluninni kemur fram að það er Vestfirzka forlagið sem stendur að baki henni ásamt Minnsta kaupstað, ljósmyndara á svæðinu og hönnuði. Verzlunin er staðsett við hliðina á Gamla bakaríinu í Aðalstræti 24. Í versluninni má finna mikið úrval af vestfirskum bókum og vestfirskri tónlist. Þar verður einnig boðið upp á einstak úrval af ljósmyndum frá Vestfjörðum. Meðal annars ...
Tíminn | 09.07.2011 |
Ritstjórn
Púkar víða að af landinu hafa tekið sér bólfestu á Ísafirði um helgina en þar er stóra Púkamótið nú haldið í sjöunda sinn að sögn fréttavefs BB. Um þrjátíu fótboltakempur taka þátt í mótinu sem stendur yfir í dag og á morgun. Sumir keppendur koma langt að til að taka þátt í þessu einstæða móti en það er ætlað púkum á fullorðinsaldri. Þátttakendur þurfa að vera orðnir 30 ára og eru sumir þeirra komnir hátt á áttræðisaldur. ...
Tíminn | 07.07.2011 |
Ritstjórn
Það var heldur betur líf á flugvellinum á Reykhólum í gær þegar níu fisvélar lentu þar. Þetta voru félagar í Fisfélagi Reykjavíkur í hinni árlegu stóru ferð sinni út um land. Bensín var tekið við verslunina Hólakaup enda ekki langt að fara því að búðin er innan við hundrað metra frá enda flugbrautarinnar....
Tíminn | 07.07.2011 |
Ritstjórn
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er ásamt fylgdarliði frá ráðuneytinu og Vegagerðinni um þessar mundir á ferð um Vestfirði einkum til að kynna sér stöðu vegamála í fjórðungnum en vegir á Vestfjörðum eru margir hverjir mjög slæmir og hafa Vestfirðingar í mörg ár barist fyrir því að fá betri vegi. Ráðherra hittir sveitarstjórnarfólk og starfsmenn Vegagerðar og hefur einnig rætt við lögreglumenn, að því er fram kemur á heimasíðu Innanríkisráðuneytisins. Ráðherra átti í gær fund með bæjarstjórum ...
Tíminn | 06.07.2011 |
Ritstjórn
Starfsemi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða jókst talsvert á milli áranna 2009 og 2010. Stafar það bæði af auknu atvinnuleysi og samstarfi við Vinnumálastofnun um námsúrræði vegna þess, en einnig af vaxandi áhuga fólks á námi. Árið 2010 hélt Fræðslumiðstöðin 114 námskeið, en þau voru 106 árið 2009. Samanlagður fjöldi þátttakenda síðasta ár var 1.260 en var 1.102 árið 2009. Kennslustundir voru 3.516 síðasta ár en 3.016 árið 2009 og nemendastundir árið 2010 voru 41.164 en 30.783 árið 2009. Á árinu 2010 veitti Fræðslumiðstöðin 472 viðtöl hjá náms- ...
Tíminn | 06.07.2011 |
Ritstjórn
Náttúrustofa Vestfjarða fékk úthlutað styrk úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar nú á dögunum. Styrkurinn var veittur vegna verkefnisins „Sjálfbærni villtra lyfja-og seiðplantna á Íslandi“ og var að upphæð ein milljón króna. Markmið með verkefninu er að gera rannsókn á hvernig hægt sé að nýta villtar íslenskar jurtir á sjálfbæran hátt svo ekki sé gengið á þolmörk þeirra....
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitir á sunnanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út upp úr klukkan 18:30 í kvöld. Erlend kona hafði fallið í fjalllendi við Vatsdalsvatn í Vatnsdalsfirði á Barðaströnd og treysti sér ekki til byggða. Konan gat gefið góða grein fyrir staðsetningu sinni og gekk greiðlega að finna hana. Ákveðið var að fá þyrlu frá LHG til að flytja konuna til byggða. Þyrlan mætti á svæðið upp úr kl. 20 og flutti konuna til Reykjavíkur....
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Reykhólahreppur í núverandi mynd varð til 4. júlí 1987 við sameiningu fimm hreppa - Geirdalshrepps, Reykhólahrepps, Gufudalshrepps, Múlahrepps og Flateyjarhrepps. Þannig mætti segja að í dag sé „þjóðhátíðardagur“ sveitarfélagsins - rétt eins og Bandaríkja Norður-Ameríku, þar sem þess er minnst að sjálfstæðisyfirlýsing þeirra var samþykkt 4. júlí 1776. ...
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Á hátíðarfundi sveitarstjórnar Strandabyggðar á Hamingjudögum voru valdir tveir heiðursborgarar sveitarfélagsins. Þetta eru þau Ólafía Jónsdóttir frá Skriðinsenni í Bitrufirði og Sverrir Guðbrandsson frá Heydalsá í Tungusveit. Tóku þau síðan á móti viðurkenningu úr hendi Ingibjargar Valgeirsdóttur sveitarstjóra við setningarathöfn Hamingjudaga á Hólmavík....
Tíminn | 03.07.2011 |
Ritstjórn
Gestir Hamingjudaga á Hólmavík stóðu sig vel í gær þegar gerð var atlaga að Íslandsmeti í "hóp-planki." Nærri 300 manns, börn og fullorðnir, tóku þátt í plankinu mikla á grasinu á Klifstúni á Hólmavík, en enn er eftir að fara yfir myndbönd til að sjá nákvæmlega fjöldann sem tók þátt og hvort einhver hafi gert ógilt....
Tíminn | 01.07.2011 |
Ritstjórn
"Mýrarboltamótið á Ísafirði er þekkt fyrir að beita óhefðbundnu regluverki. Þannig er bleikt spjald gefið þegar brot hefur í för með sér meiðsli eða eymsli. Þá þarf sá brotlegi að kyssa bágtið. Þegar brot er einstaklega fólskulegt er svartur hauspoki settur á leikmanninn og ber honum að leika með pokann í 2 mínútur" segir í fréttatilkynningu frá Mýrarboltafélagi Íslands en félagið hefur ákveðið að koma á nýrri reglu. "Fari brot alveg útfyrir allan þjófabálk eða munnsöfnuðurinn við dómara einstaklega rætinn, fær leikmaðurinn gula...
Tíminn | 01.07.2011 |
Ritstjórn
Heimilisfólk á dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum spáir því að núna sé sumarið komið til að vera fram á haust. Heimilisfólkið naut blíðunnar í gær , gróðursetti sumarblóm og spáði í veðrið. "Eiginlega er sumarið komið á Reykhólum núna fyrst. Nema það fari strax aftur eins og á sunnudaginn var. Þá kíkti það í síðdegiskaffi en fór aftur þegar kláraðist úr bollanum - leist sennilega ekkert á tíðarfarið. Í allan dag hefur hins vegar verið veðurblíða og glaðasólskin, hitinn fór yfir fimmtán stig síðdegis og vindur hægur. Það eru viðbrigði...
Tíminn | 30.06.2011 |
Ritstjórn
Stjórnarformaður Íslenska kalkþörungafélagsins hefur kært Fiskistofu vegna þess að stofan veitti fyrirtækinu Fjarðarlaxi leyfi til að setja niður eldiskvíar fyrir framan kalkþörunganámu sem kalkþörungafélagið hefur sérleyfi á. Kvíar Fjarðarlax eru þannig staðsettar að ekki hægt að komast framhjá nema valda skemmdum á tækjum og búnaði Fjarðarlax. Stjórnarformaðurinn segir að það hljóti að vera hægt að staðsetja eldiskvíar annars staðar í Arnarfirði sem sé nú ansi stór. Hann sakar Fiskistofu einnig um dónaskap og yfirgang...
Tíminn | 29.06.2011 |
Ritstjórn
Hvítabjörn sem var felldur í Rekavík á Hornströndum 2. maí reyndist vera ríflega þriggja ára gömul birna. Hún var við það að verða kynþroska en einungis 95 kílógramma þung og 173 cm löng. irnan er talin hafa lotið forsjár móður fram á seinni hluta vetrar 2010 en eftir það hafi hún þurft að finna fótum sínum forráð ein og óstudd...
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Nýlega var styrkjum úthlutað úr verkefninu Atvinnusköpun í sjávarbyggðum. Alls voru það 32 verkefni sem fengu styrk að þessu sinni og af þeim voru 8 verkefni á Vestfjörðum sem alls fengu 29.500.000 milljónir króna. Verkefnin eru fjölbreytt og tengjast flest líftækni og nýtingu á sjávarafurðum en einnig eru þarna verkefni sem tengjast víkingum, dekkjum og hjólastólum. Upphæðir voru á bilinu 1 til 5 milljónir króna. Alls var 109 milljónum króna úthluta á landsvísu til verkefna sem eiga að stuðla að atvinnusköpun í sjávarbyggðum en...
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Vegagerðin var í Héraðsdómi Reykjavíkur sýknuð af kröfu Ósafls sf. upp á ríflega 50 milljónir króna auk dráttarvaxta. Krafan var byggð á því að verðbætur hefðu orðið þetta minni en ella vegna lagabreytinga sem höfðu áhrif á byggingarvísitöluna þegar Ósafl vann við byggingu Bolungarvíkurganganna. Kröfunum var hafnað og Ósafl sf, auk þess dæmt til að greiða málskostnað....
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Reimar Vilmundarson á Sædísi ÍS-67, sem sér um ferðir á Hornstrandir frá Norðurfirði, hefur aflýst ferðum að minnsta kosti í fjóra daga vegna veðurs - og það yfir hásumarið. Ekkert sjóveður hefur verið frá því í fyrradag til skemmtisiglinga norður á Strandir með fólk. Enda haugasjór og vindur af norðri og norðaustri með stinningskalda rigningu og súld. Eitthvað hefur verið um að fólk hafi afpantað í ferðir á Hornstrandir....
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn laugardag, þann 25. júní, var fyrsta skóflustungan tekin að nýjum íbúðum aldraðra í Bolungarvík. Það er Byggingarfélag eldri borgara í Bolungarvík sem stendur fyrir framkvæmdunum og munu Vestfirskir Verktakar ehf. byggja húsið. Áætlað er að það muni taka um 18 mánuði að klára bygginguna og stefnt er að því að hún verði fokheld þann 1. desember næstkomandi. "Í tilefni af fyrstu skóflustungunni að húsinu var haldin falleg athöfn þar sem Kristný Pálmadóttir, væntanlegur íbúi í húsinu, hélt stutta tölu og séra ...
Tíminn | 27.06.2011 |
Ritstjórn
Vegagerðin er nú að undirbúa framkvæmd vegna endurbóta á 0,6 km kafla í botni Álftafjarðar í Súðavíkurhreppi við Ísafjarðardjúp. Djúpvegur er stofnvegur og er aðalvegurinn milli norðanverðra Vestfjarða og Hringvegar. Stytting vegna breytinganna er um 89 metrar. Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum á Ísafirði þann 5. apríl 2011 að veita 350 m.kr. til vegagerðar á Vestfjörðum, umfram þær fjárveitingar sem eru á samgönguáætlun. Vegagerðinni er falið faglegt val á verkefnum....
Tíminn | 26.06.2011 |
Ritstjórn
Líknarsjóður Bíldudalskirkju var stofnaður við guðsþjónustu á hátíðinni Bíldudals grænum í gær. Sjóðnum er ætlað að skapa vettvang fyrir einstaklinga, stofnanir, félög og fyrirtæki til að leggja fé fram fé til líknar og hjálparstarfa í sókninni og að halda utan um fjármuni til líknarmála. ...
Tíminn | 26.06.2011 |
Ritstjórn
Markaðshelgi verður í Bolungarvík um næstu helgi, 1. og 2. júlí. Hún verður með svipuðu sniði og í fyrra með smá breytingum þó, sem felur það í sér að hátíðarsvæðið verður fyrir utan Félagsheimilið í miðbæ Bolungarvíkur. Bænum verður skipt upp í litasvæði eins og var í fyrra og verða áfram litir UMFB, efri bær rauður og neðri bær blár. ...
Tíminn | 24.06.2011 |
Ritstjórn
Aðalskipulag Strandabyggðar 2010 - 2022 hefur verið staðfest af Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur. Er áætlað að auglýsing þess efnis birtist í B-tíðindum Stjórnartíðinda í byrjun júlí. Vinna við gerð nýs Aðalskipulags fyrir Strandabyggð í Strandasýslu hófst árið 2007 en sveitarfélagið varð til árið 2006 þegar Broddaneshreppur og Hólmavíkurhreppu voru sameinaðir. Er þetta fyrsta aðalskipulag Strandabyggðar. Haldnir voru tveir íbúafundir...
Tíminn | 23.06.2011 |
Ritstjórn
Í dag var umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík þar sem allir voru hvattir til að fegra í kringum vinnustaði sína. Var þáttaka svo mikil og góð að ákveðið var að framlengja daginn sem verðu líka á morgun. Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík er liður í hreinsunarátaki í Strandabyggð sem stendur yfir þessar vikurnar. Geta fyrirtæki og stofnanir óskað eftir að starfsmenn Áhaldahúss Strandabyggðar flytji rusl til förgunar. Fjölmenni var í flokkunarstöð Sorpu í gær þar sem fólk var að skila heimilissorpi, timbri...
Tíminn | 23.06.2011 |
Ritstjórn
Grjóthnullungum rigndi yfir íbúðarhús ofarlega í Bolungarvík um hádegisbil í dag. Ástæðan er sú að verið er að sprengja í fjallinu fyrir ofan húsið vegna framkvæmda við snjóflóðavarnargarð. Vitað er að rúður í húsum brotnuðu og íbúar flýttu sér heim til að vitja húsa sinna, að því er fram kom í fréttum RÚV....
Tíminn | 23.06.2011 |
Ritstjórn
Þrátt fyrir almennan samdrátt í umferðinni stendur umferð um Bolungarvíkurgöng og Héðinsfjarðargöng undir þeim væntingum sem til þeirra voru gerðar. Umferðin það sem af er ári var um 6 prósentum meiri um Bolungarvíkurgöng en um Óshlíðina á sama tímabili í fyrra, að því er fram kemur á heimasíðu Vegagarðarinnar.
...
Tíminn | 22.06.2011 |
Ritstjórn
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri Reykhólahrepps sagði í fréttum RÚV í gær, að svör skorti um stöðu Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum. Framkvæmdastjóri verksmiðjunnar hætti skyndilega fyrir skömmu og engar skýringar á brotthvarfi hans hafa fengist þrátt fyrir að ítrekað hafi verið leitað eftir þeim. Ingibjörg Birna segir það vera óþægilegt að vita ekki stöðu fyrirtækisins og fyrirvaralaust brotthvarf framkvæmdastjórans hafi komið á óvart. Mikilvægt sé fyrir sveitarfélagið að Þörungaverksmiðjan verði áfram í ...
Tíminn | 21.06.2011 |
Ritstjórn
Eydís Sunna Harðardóttir á Tindum í Geiradal var fjallkona Reykhólahrepps á þjóðhátíðinni í Bjarkalundi. Það var vel til fundið vegna þess að hún er „þjóðhátíðarbarn“ - fædd 17. júní 1996 og átti því 15 ára afmæli á 200 ára fæðingarafmæli Jóns forseta. Eydís Sunna flutti kvæði eftir breiðfirsku skáldkonuna Ólínu Andrésdóttur....
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
Ungt athafnafólk á Ísafirði ætti að geta fundið sér eitthvað til dundurs á Ísafirði í sumar því á morgun opnar þar í bæ smíðavöllur en þangað geta krakkar komið og smíðað kofa. Krakkar þurfa sjálfir að koma með hamar en timbur er á staðnum sem fékkst frá ýmsum fyrirtækjum í bænum sem gáfu timbur. Starfsmenn frá Vinnuskóla bæjarins verða á smíðasvæðinu frá klukkan 9 til 14 til að aðstoða krakkanna. "Ýmis fyrirtæki í bænum hafa lagt hönd á plóg og því mun vonandi vera nóg af byggingarefni í sumar. En lumi einhver á afgangs ...
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
Hátíðin Bíldudals grænar verður á Bíldudal í Arnarfirði um næstu helgi og er þetta í fimmta sinn sem hátíðin fer fram. Hátíðin fer fram annað hvert ár og hefur ávallt heppnast sérlega vel og gestum farið fjölgandi í hvert skipti. Dagskráin hefst fimmtudaginn 23. júní nk. en formleg setningarathöfn fer fram á Tungunni á föstudagskvöldinu og hátíðinni lýkur svo sunnudaginn 26. júní....
Tíminn | 19.06.2011 |
Ritstjórn
Framkvæmdir eru hafnar við nýja 450 kw virkjun í Nautaskál í Breiðadal í Önundarfirði og áætlað er að framkvæmdum ljúki fyrir áramót. Eigandi virkjunarinnar er Aðalsteinn Bjarnason. Undirbúningur að virkjuninni hefur staðið í nokkurn tíma en vatsmælingar hafa verið stundaðar reglulega síðan árið 2000. Virkjunin verður tengd við raforkukrefið um næstu áramót og mun orkubú Vestfjarða kaupa rafmangið. Túrbínurnar í virkjunina eru framleiddar af Eiði Jónssyni á vélaverkstæðinu Árteigi í Þineyjarsýslu ...
Tíminn | 18.06.2011 |
Ritstjórn
Í gær, þann 17. júní, útskrifaði Háskólasetur Vestfjarða 13 nemendur úr mastersnámi í haf- og strandsvæðastjórnun. Í tilefni af útskriftinni var haldin sérstök Háskólahátíð sem samanstóð af hátíðlegri útskriftarathöfn og um kvöldið óformleg samkoma námsmanna, kennara og starfsmanna, bæði núverandi og fyrrverandi, sem og aðstandenda, vina og stofnaðila. Háskólasetur Vestfjarða bauð fyrst upp á nám í haf- og strandsvæðastjórnun árið 2008 og er þetta annar hópurinn sem útskrifast og verður fjórði árgangurinn innritaður...
Tíminn | 18.06.2011 |
Ritstjórn
Vestfirska forlagið hefur gefið út tvær nýjar bækur um Jón Sigurðsson. Ein heitir Maðurinn sem lánaðist og hin heitir We call him president. Maður sem lánaðist er tekin saman af Hallgrími Sveinssyni og í henni er fjallað um uppruna og helstu áfanga á æviferli Jóns. "Fjallað er um uppruna og helstu áfanga á æviferli hans. Umsagnir samtíðarmanna eru áberandi, en ætla verður að þeir geti trútt um talað. Hverja ætti svo sem frekar að kalla til vitnisburðar um þennan óskason Íslands?" segir...
Tíminn | 16.06.2011 |
Ritstjórn
Atli Georg Árnason hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum. Einn af stjórnarmönnum fyrirtækisins tilkynnti þetta á fundi með starfsfólki í gær. Starf framkvæmdastjóra verður auglýst eins fljótt og tök eru á. Þangað til nýr hefur verið ráðinn mun Þorgeir Samúelsson framleiðslustjóri verksmiðjunnar sjá um daglegan rekstur...
Tíminn | 15.06.2011 |
Ritstjórn
Andrea Björnsdóttir er nýr oddviti Reykhólahrepps og var kjörin með fjórum greiddum atkvæðum. Kjósa þurfti nýjan oddvita eftir að fyrrum oddviti, Gústaf Ólafsson tilkynnti hreppsnefnd að hann gæfi ekki kost á sér áfram. Eiríkur Kristjánsson var svo kosinn varaoddviti með fjórum atkvæðum og Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir Sveinn Ragnarsson voru kjörnir skrifarar. Hreppsnefndin þakkaði fráfarandi oddvita fyrir störf hans í þágu sveitarfélagsins og bauð nýjan oddvita velkomin til starfa. Reykhólahreppur er á sunnanverðum Vestfjörðum. Íbúafjöldi...
Tíminn | 15.06.2011 |
Ritstjórn
Yfir 100 ára sögu franskra sjómanna á og við Ísland er gert skil á sýningunni Franskir sjómenn við Íslandsstrendur sem sett hefur verið upp á Minjasafni Egils Ólafssonar á Hnjóti í Örlygshöfn við sunnanverðan Patreksfjörð. Sýningin samanstendur af gömlum myndum og munum sem margir eru yfir 100 ára. Búin hafa verið til veggspjöld um helstu samskipti Fransmanna við landsmenn og einnig er fjallað um bækur sem skrifaðar hafa verið um franska sjómenn á íslandsmiðum. Á sýningunni er svo svokallað nútímahorn...
Tíminn | 15.06.2011 |
Ritstjórn
Í dag verður úthlutað úr Pokasjóði í Salnum í Kópavogi, en alls hefur 1.100 milljónum verið úthlutað úr sjóðnum frá því 1995. Meðal þeirra sem fá úthlutað er Raggagarður í Súðavík, sem fær eina milljón til framkvæmda á útivistarsvæðinu. "Það er frábært þegar svona sjóðir, félagasamtök og aðrir hafi trú á því sem við erum að gera og hjálpi okkur við uppbyggingu á fjölskyldugarði á Vestfjörðum fyrir alla landsmenn," segja aðstandur Raggagarðs á Facebook síðu sinni....
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Fjöldi keppenda er skráður til leiks á Skákhátíðina í Árneshreppi á Vestfjörðum sem fram fer daganna 17. - 19. júní. Keppnin hefst 17. júní á tvískákmóti, á laugardeginum er keppt í atkskák og svo er hraðskákmót á Kaffi Norðurfirði. Keppendur ráða hvaða daga þeir keppa og er þáttaka ókeypis. Verðlaunapottur er 100 þúsund krónur, en fjöldi annarra glæsivinninga er í boði, allt frá bókum og geisladiskum til dýrgripa frá Úsbekistan og Eþíópíu. Síðast en ekki síst geta heppnir keppendur nælt sér í muni úr rekaviði...
Tíminn | 14.06.2011 |
Ritstjórn
Hrafnseyrarhátíð verður 17. júní og er búið er að setja upp mikla dagskrá á Hrafnseyri í Arnarfirði þar sem 200 ár eru þá liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, setur hátíðina og hátíðaræðu dagsins flytur Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Þá mun Elvar Logi Hannesson flytja brot úr einleik um Jón Sigurðsson....
Tíminn | 13.06.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn föstudag opnaði Georg Guðni sýningu í Listasafni Ísafjarðar en hann er þekktur fyrir túlkanir á íslensku landslagi. Málverk hans af fjöllum einkennast af marglaga littónum þar sem einfaldleiki og andrúm viðfangsefnisins hefur forgang. "Georg Guðni hefur sagt að hann máli ekki „eftir“ viðfangsefni sínu, fjöllum eða landslagi heldur málar hann eftir minni og hugartengslum við staðinn. Þessi hljóðlátu verk sem hann skapar verða eins og tákn...
Tíminn | 12.06.2011 |
Ritstjórn
Hjólreiðahópurinn Brellurnar fékk góðar viðtökur þegar stúlkurnar í hópnum renndu inn á Patreksfjörð í gær. Fjölmenni var samankomið til að fagna Brellunum, en þær luku við að hjóla hringveginn í kringum Vestfirði til styrktar vinkonu sinni, Fríðu Eyrúnu Sæmundsdóttur, sem er blind. Var þeim vel fagnað með ræðuhöldum, söng og gríni og tók Ómar Ragnarsson þátt í sprellinu. ...
Tíminn | 11.06.2011 |
Ritstjórn
Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Þórodd ehf. þar sem rekstraraðila er heimilt að framleiða allt að 3000 tonn af laxi á ári í sjókvíum í Patreksfirði og í Tálknafirði þannig að framleidd verði allt að 1500 tonn í hvorum firði. Þá er heimilt allt að 398 tonna þorskeldi á einu svæði við Tálknafjörð en þar er um að ræða eldri starfsemi. Samanlögð heimild til fiskeldis er því 3398 tonn á ári....
Tíminn | 10.06.2011 |
Ritstjórn
„Eftir að hafa ekið Barðaströndina í dag og um Þverdalsskarð til Bíldudals, þykja mér allar kröfur um vegabætur í öðrum landshlutum verða hjóm eitt. Við Austfirðingar eigum við lúxusvandamál að stríða með okkar vegi í samanburði við fólk á sunnanverðum Vestfjörðum." Þetta skrifaði Björgvin Valur Guðmundsson á Stöðvarfirði á bloggi sínu á Eyjunni í gærkvöldi undir fyrirsögninni Þjóðvegir 60 og 63....
Tíminn | 09.06.2011 |
Ritstjórn
Á hundrað ára afmæli skólahalds á Hólmavík afhenti Steinunn Ingimundardóttir frá Reykjarfirði við Ísafjarðardjúp Grunn- og Tónskólanum á Hólmavík og Héraðsbókasafni Strandamanna veglega bókagjöf. Hún gaf hana fyrir hönd fjölskyldu sinnar í tilefni þessara merku tímamóta, að því er fram kemur á vef Strandamanna....
Tíminn | 09.06.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitir frá Tálknafirði, Partekfirði og Bíldudal ásamt björgunarskipinu Verði voru kallaðar út um hálf ellefu í morgun eftir að hjálparbeiðni barst frá báti sem strandaður var við Arnarstapa, skammt utan við Tálknafjörð nánar tiltekið við Mölvík....
Tíminn | 07.06.2011 |
Ritstjórn
Hvítasunnuhelgina 10. – 12. júní verður Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda haldin í fimmta sinn á Patreksfirði. Frumsýndar verða tvær nýjar heimildarmyndir, alls verða sýndar yfir 20 myndir og Einarinn verður veittur fyrir þá mynd sem áhorfendur telja besta. Efni heimildarmyndanna er fjölbreytt og á hátíðinni má meðal annars sjá mynd um stjórnmálaskoðanir Halldórs Laxness, Anti-American Wins the Nobel Prize, myndina Busca la Vida sem fjallar um ...
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Útgerðarfélög í landinu halda áfram að lýsa óánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Nú hefur útvegsmannafélag Vestfjarða sent frá sér yfirlýsingu þar sem meðal annars er sagt að aflaheimildir á Vestfjörðum muni skerðast um 3.700 þorskígildistonn og að um 100 störf munu tapast við veiðar og vinnslu ef Alþingi samþykkir lögin. Úvegsmannafélagið kvartar einnig yfir þv...
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Vikan var róleg hjá lögreglunni á Vestfjörðum og þurfti lögreglan aðallega að fást við umferðaróhöpp. Fimmtudaginn 2. júní fór bifhjól út fyrir veg á Barðastrandarvegi við Birkimel eftir að ökumaður missti stjórn á hjólinu í lausamöl. Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Patreksfirði til skoðunar og í framhaldi með sjúkraflugi til Reykjavíkur en hann reyndist minna slasaður en haldið var í fyrstu. Laugardaginn 4. júní var tilkynnt um...
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Sjómennskan getur oft á tíðum verið ævintýri líkust. Kristján Guðmundsson skipstjóri sem rær ásamt öðrum manni á Björg Hauks ÍS frá Ísafirði lenti í sannkölluðu ævintýri í síðustu viku er þeir komu að landi með kjaftfullann bát, eða 9,3 tonn. Þess má geta að báturinn er aðeins 8,3 brúttótonn. ...
Tíminn | 05.06.2011 |
Ritstjórn
Í dag, sjómannadaginn, munu Brellurnar leggja af stað til að hjóla Vestfjarðahringinn sem er um 640 km. Brellurnar er vísun í fjallið fyrir ofan þorpið Patreksfjörð Brellurnar skipa Björg Sæmundsdóttir, Elín Krístín Einarsdóttir, Halldóra Birna Jónsdóttir, María Ragnarsdóttir, Salóme Þorbjörg Guðmundsdóttir og Sædís Eiríksdóttir sem mun keyra bílinn og leysa af að hjóla....
Tíminn | 02.06.2011 |
Ritstjórn
Meðal þess sem fram fer um Sjómannadagshelgina á Patreksfirði eru Skosku hálandaleikarnir sem hefjast í dag og standa yfir næstu 5 daga. Um 18 erlendum keppendum er boðið á Hálandaleikana og verða fulltrúar íslenskra og erlendra sjónvarpsstöðva á leikinum. Stjórn Sjómannadagsins stendur að Hálandaleikunum í samvinnu við Pétur Guðmundsson kúluvarpara, en Pétur hefur keppt í Hálandaleikum um árabil og er núverandi heimsmethafi...
Tíminn | 01.06.2011 |
Ritstjórn
Þær Sigurlína Jónasdóttir og Kristín Ósk Jónasdóttir hafa lagt fram stjórnsýsluákæru á hendur Ísafjarðarbæ vegna ráðningu í starf sviðsstjóra Skóla- og tómstundasviðs. Þetta kemur fram á bb.is. Innanríkisráðuneytið mun vinna úr kærunum en það getur tekið ráðuneytið nokkrar vikur upp í mánuði að kveða upp úrskurð. Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir kærurnar ekki hafa borist bænum og segist því ekki geta tjáð sig um ...
Tíminn | 01.06.2011 |
Ritstjórn
Mikil óánægja er með úthlutun Fiskistofu á leyfum til laxeldis í Arnarfirði en þar fékk fyrirtækið Fjarðarlax leyfi til að setja upp eldisstöð, nánast ofan á námu Íslenska Kalkþörungafélagsins. Annað fyrirtæki, Arnarlax efh., sótti um leyfi fyrir sínar kvíar í meira en tveggja km fjarlægð frá námum Kalkþörungafélagsins í Arnarfirði, en var synjað. Arnarlax hefur þegar lagt inn stjórnsýslukæru vegna mismununar á leyfisveitingum Fiskistofu og telja Fiskistofu brjóta lög....
Tíminn | 31.05.2011 |
Ritstjórn
Umhverfisstofnun ætlar að taka sýni á 12 stöðum í Skutulsfurði til að rannsaka mengun vegna díoxín og skyldra efna frá sorpbrennslunni Funa í Engidal og frá gömlu sorpbrennslunni Skarfaskeri utan við Hnífsdal.
Þessar mælingar eru hluti af stærra verkefni Umhverfisstofnunar sem vinnur að því að mæla mengun frá sorpbrennslum á öllu landinu en einnig verða gerðar mælingar í kringum áramótabrennusvæði í Reykjavík, Skutulsfirði og í...
Tíminn | 31.05.2011 |
Ritstjórn
Sjómannadagurinn er ætíð haldinn fyrstu helgina í júní. Á Patreksfirði hefur verið sleginn minnispeningur í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá því að sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur á Patreksfirði 8. júní 1941. Peningurinn er í fallegri öskju og er úr bronsi, fimm cm í þvermál. Hver peningur er tölusettur og númerið slegið í röndina....
Tíminn | 30.05.2011 |
Ritstjórn
Ísafjarðarbær er vinsæll meðal sendiherra þessa daganna en von er á rússneska sendiherranum í heimsókn í dag, þeim bandaríska á morgun og ekki er langt síðan indverski og norski sendiherrann heimsóttu bæinn. Einnig er von á breska sendiherranum í byrjun júlí. Samkvæmt BB.is er sameiginlegur áhugi meðal sendiherra á landinu að kynna sér svæðið og tækifærin sem þar er að finna og er ekki vitað um aðrar ástæður fyrir heimsóknunum...
Tíminn | 29.05.2011 |
Ritstjórn
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní hefst gróðursetningarátak í Bíldudal og áætlað er að planta í sumar rúmlega 6.000 trjám í hlíðinni fyrir ofan bæinn en nú eru 25 ár síðan gróðursetning hófst á þessu svæði. Á næstu árum er svo áætlað að halda gróðursetningu áfram og það á líka að gera göngustíg eftir hlíðinni fram dalinn. Einnig er fyrirhugað að hefja grisjun í gömlu skógræktinni sem orðin er hálfrar aldar gömul...
Tíminn | 27.05.2011 |
Ritstjórn
Vegamálastjóri ákvað nýlega að veita aukalega 30 milljónum króna til viðhalds á malarvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að þetta viðhald eigi að stuðla að því að vegirnir verði í betra ástandi í sumar en verið hefur undanfarin ár. Hluti þeirra aðgerða sem fjárveitingin fer til eru þegar komnar í framkvæmd. Féð verður notað á Dynjandisheiði, Vestfjarðavegi, Ketildalsvegi, Örlygshafnarvegi og víðar...
Tíminn | 27.05.2011 |
Ritstjórn
Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestfirðinga var haldinn þann 25. maí síðastliðinn og þá var ársreikningur sjóðsins samþykktur. Í ársreikningnum kemur fram yfirlit yfir fjármál og rekstur sjóðsins árið 2010 sem var honum mjög hagstætt. Hrein eign sjóðsins, sem notuð er til að greiða út lífeyri, er nú 26,6 milljarðar króna og er það hækkun um 1,5 milljarð króna frá því á árinu á undan. Sjóðurinn greiddi 796 milljónir í lífeyri til 1.688 einstaklinga árið 2010 og er það fjölgun um 41 einstakling frá 2009...
Tíminn | 25.05.2011 |
Ritstjórn
Kvennakórinn Norðurljós heldur vortónleika sunnudaginn 29. maí næstkomandi í Hólmavíkurkirkju. Á efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt úrval af lögum en kórinn mun meðal annars flytja lög eftir eftir Jónas og Jón Múla Árnason, Magnús Eiríksson, Bubba, KK, Egil Ólafsson og fleiri. Miði á tónleikana kostar 2000 krónur fyrir fullorðna og 1000 krónur fyrir börn 6 til 14 ára. Að loknum tónleikum...
Tíminn | 24.05.2011 |
Ritstjórn
Torfhildur Torfadóttir á Ísafirði er 107 ára í dag. Hún er elsti núlifandi Íslendingurinn, fædd í Asparvík í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu árið 1904, yngst ellefu systkina og ólst upp í Selárdal í Steingrímsfirði. Nokkur systkina Torfhildar náðu háum aldri, Ásgeir varð 100 ára, Eymundur 96 ára og Guðbjörg 91 árs. Frá þessu er greint á vefnum Langlífi....
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið hvaða verkefni hljóti styrki í fyrri úthlutum ráðsins árið 2011. Alls eru það 34 verkefni sem hljóta styrki og hljóða tveir hæstu styrkirnir upp á eina milljón króna. Verkefnin sem hlutu hæstu styrkina eru Staparnir – ljósa- og ljóðlistaverk og tónlistarhátíðin fræga Aldrei fór ég Suður.
Heildarupphæðin sem ráðið úthlutaði var 14.650.000 krónur en samtals var sótt um ...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Bæjarstjórn og atvinnumálanefnd Vesturbyggðar hafa lýst áhyggjum yfir ástandi vega í fjórðungnum sem eru engan veginn í samræmi við öran vöxt í ferðaþjónustu og umsvif fyrirtækja á svæðinu. Frá þessu er greint á bb.is. Atvinnumálanefnd Vesturbyggðar krefst þess að Vegagerðin sjái til þess að viðhald vega verði viðunandi á næstu misserum og öryggi vegfarenda þannig tryggt í ljósi meiri umferðar um svæðið...
Tíminn | 20.05.2011 |
Ritstjórn
Nýlega útskrifaði Fræðslumiðstöð Vestfjarða 23 leiðsögumenn sem geta nú leiðbeint ferðamönnum um Vestfirði og Dali. Er þetta annar hópurinn sem lýkur svæðisleiðsögunámi á Vestfjörðum. Námið tekur þrjár annir og er skipulagt af Fræðslumiðstöð Vestfjarða undir faglegri stjórn Leiðsöguskólans í Kópavogi. Útskriftarathöfnin fór þannig fram að...
Tíminn | 19.05.2011 |
Ritstjórn
Lömunareitrunin PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði og Steingrímsfirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP vera yfir viðmiðunarmörkum. Matvælastofnun varar því við sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði og Steingrímsfirði. Kræklingarækt er stunduð í Steingrímsfirði...
Tíminn | 19.05.2011 |
Ritstjórn
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur skipað Guðmund Magnús Kristjánsson, hafnarstjóra á Ísafirði, sem formann nefndar sem á að vinna í því að koma á strandsiglingum í kringum landið. Þetta kom fram á Alþingi í morgun í fyrirspurn Ásmundar Einars Davíðssonar. Ögmundur sagði að unnið yrði að því að koma flutningum meira yfir á sjó í framtíðinn, enda væri mikill kostnaður fylgjandi landflutningum fyrir ríkið í formi viðhalds vega....
Tíminn | 18.05.2011 |
Ritstjórn
Verkalýðsfélag Vestfirðinga vísar kjaradeilu við Þörungaverksmiðjuna hf. til ríkissáttasemjara. Viðræður milli aðila hafa staði með hléum frá því í október 2010 án teljanlegs árangurs, þrátt fyrir að sátt hafi náðst í lok janúar á þessu ári um að fylgja þeim línum sem kjarasamningar aðildarfélaga ASÍ lögðu og voru undirritaðir þann 5. maí sl. ...
Tíminn | 16.05.2011 |
Ritstjórn
Grettir BA 39, hið nýja flutningaskip Þörungaverksmiðjunnar hf., lagðist fánum prýddur að bryggju í heimahöfn á Reykhólum í gærkvöldi. Skipið leysir af hólmi Karlseyna gömlu sem þjónað hefur vel og mjög lengi. Fjöldi fólks var við Reykhólahöfn að fagna komu Grettis....
Tíminn | 14.05.2011 |
Ritstjórn
Árið 2010 varð hagnaður af venjubundnum rekstri Orkubús Vestfjarða sjötta árið í röð. Afkoma Orkubúsins var heldur lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstraráætlun ársins gerði ráð fyrir rekstrarhagnaði að upphæð 300,5 milljónir króna, en samkvæmt rekstrarreikningi varð hagnaður af venjubundnum rekstri fyrir skatta, semnam um 240,4 milljónir. ...
Tíminn | 13.05.2011 |
Ritstjórn
Nú eru liðin 30 ár frá stofnun Grafík og í tilefni þess er unnið að heimildarmynd um hljómsveitina. Stefnt er að því að frumsýna hana í haust og segir Rúnar Þórisson gítarleikari Grafíkur vinnuna ganga vel. „Við höfum í vetur grafið upp efni um hljómsveitina, tónlistarmyndbönd og gömul viðtöl við meðlimi sem eru til í safni Sjónvarpsins. Þá höfum við...
Tíminn | 11.05.2011 |
Ritstjórn
Undanfarin fjögur ár hefur Landhelgisgæslan, í samstarfi við Umhverfisstofnun, skimað friðlandið Hornstrandir í leit að hugsanlegum hvítabjörnum á svæðinu. Í morgun var flogið inn á friðlandið og svæðið skoðað. Það er skemmst frá því að segja að hvorki sást hvítabjörn né ný ummerki eftir hvítabirni....
Tíminn | 09.05.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðin vika var róleg hjá lögreglunni á Vestfjörðum. Umferð gekk vel en tilkynnt var um eitt umferðaróhapp. Bíll fór út af vegi í Arnarfirði og skemmdist ökutæki talsvert en ökumaður ekki. Tilkynnt var um skemmdarverk á tjaldstæðinu í Tungudal í Skutulsfirði en bifreið hafi verið ekið yfir grasið og skilið eftir sig djúp hjólför.
Slökkvilið Vesturbyggðar og Tálknafjarðar slökkti í sinueld...
Tíminn | 09.05.2011 |
Ritstjórn
Síðasti veiðidagur strandveiða í maímánuði á svæði A, sem nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, verður í dag, mánudagurinn 9. maí. Ástæðan er sú að kvótinn á þessu svæði mun að öllum líkindum klárast í dag. Maíkvótinn var 499 tonn og í gær var búið að veiða 410 tonn á þessu svæði. Næsta veiðitímabil á A-svæði er í júní....
Tíminn | 07.05.2011 |
Ritstjórn
Árið 2010 var 29 milljón króna hagnaður af rekstri Bolungarvíkurkaupstaðar. Á sama tíma drógust tekjur sveitafélagsins saman um 61 milljón króna milli ára. Hagnaðurinn er aðeins minni en áætlanir gerðu ráð fyrir en reiknað var með 34 milljóna króna hagnaði.
Rekstrartekjur sveitafélagsins árið 2010 voru 637 milljónir króna sem er 61 milljón króna minna en árið á undan...
Tíminn | 07.05.2011 |
Ritstjórn
Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki haft samráð við vestfirsk sveitafélög, eða stofnanir þeirra, við undirbúning á verkefnum sem eiga að efla byggð og atvinnusköpun á Vestfjörðum. Ríkisstjórnin hefur samþykkt 16 verkefni sem eiga að efla byggð og atvinnusköpun á Vestfjörðum. Heildarkostnaðir verkefnisins er um 5,4 milljarðar króna en af þeirri upphæð er búið að nýta 1,5 millljarð í snjóflóðavarnir og vegaframkvæmdir...
Tíminn | 05.05.2011 |
Ritstjórn
Fallið hefur verið frá áformum um sameiningu lögregluembætta á Vesturlandi og Vestfjörðum í eitt, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. Þess í stað verða eingöngu embættin á Vesturlandi sameinuð. Lögreglufélag Vesturlands fagnar þessari niðurstöðu....
Tíminn | 03.05.2011 |
Ritstjórn
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra áformar að takmarka veiðar með dragnót í fjörðum á Vestfjörðum. Samkvæmt tillögum ráðuneytisins verður búið til bannsvæði innan línu sem dregin er úr Blakksnesi um Kópanesvita í Fjallaskagavita og úr Barða í Sauðanesvita. Innan þess svæðis eru Jökulfjörður, Önundafjörður, Dýrafjörður, Arnarfjörður, Tálknafjörður og Patreksfjörður...
Tíminn | 02.05.2011 |
Ritstjórn
Hvítabjörninn var felldur í Rekavík (Bakhöfn) á Hornströndum klukkan 14:21, samkvæmt upplýsingum Umhverfisstofnunar. Lögreglan á Ísafirði stjórnaði aðgerðum og með í för voru fulltrúar Umhverfisstofnunar, fulltrúi yfirdýralæknis ásamt reynslumiklum skyttum. Ísbjarnarhræið var flutt með þyrlunni til Ísafjarðar og þaðan til Reykjavíkur þar sem Náttúrufræðistofnun Íslands mun taka við dýrinu og rannsaka....
Tíminn | 02.05.2011 |
Ritstjórn
Áhöfn fiskibáts tilkynnti til Landhelgisgæslunnar í morgun að það sæist til ísbjarnar í fjörunni í Hælavík á Hornströndum. Þoka hefur verið niður í miðjar hlíðar á svæðinu og sáu fiskimennirnir björninn hverfa upp í þokuna. Það gæti því reynst erfitt að átta sig á því hvar björninn er að finna. Þyrla Gæslunnar er á leið vestur innan tíðar til að athuga málið nánar....
Tíminn | 01.05.2011 |
Ritstjórn
Kerecis hefur undirritað samning um áframhaldandi fjármögnun á uppbyggingu fyrirtækisins á Ísafirði við sjávarútvegsfyrirtækið Klofning og Hraðfrystihúsið-Gunnvöru. Kerecis ehf. framleiðir lækningavörur úr fiskiroði og hefur fyrirtækið meðal annars verið að nota roð af eldisþorski frá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru...
Tíminn | 28.04.2011 |
Ritstjórn
Skipulagsstofnun telur að fyrirhuguð 3.000 tonna framleiðsla á laxi í sjókvíum Arnarlax ehf. í Arnarfirði sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Þetta eru góð tíðindi fyrir Arnarlax, sem hefur í hyggju að fullvinna laxinn á Bíldudal og gæti það skapað um 50 ný störf í byggðarlaginu....
Tíminn | 26.04.2011 |
Ritstjórn
Fiskistofa grunar fimm fyrirtæki um kvótasvindl og eru tvö þeirra eru á Vestfjörðum eða Íslandssaga Suðureyri og Þórsberg á Tálkafirði. Þessi fyrirtæki eru einnig í rannsókn hjá lögreglu vegna þess að starfsmenn þeirra voru staðnir að verki við framhjálöndun...
Tíminn | 25.04.2011 |
Ritstjórn
Nú er verið að gera tilraun í Bolungarvík og Súðavík með nýjan samgöngu- eða ferðamáta sem nefndur hefur verið samnýting ökutækja. Felur hann í sér að skilti eins og sjá má á myndinni hér hefur verið sett upp skammt utan vegar þar sem umferð fer hjá í átt til Ísafjarðar. Með því að standa við skiltið gefur sá hinn sami til kynna að hann óski bílfars....
Tíminn | 25.04.2011 |
Ritstjórn
Nýjasta mannvirkið í Reykhólahöfn var tekið í notkun á sumardaginn fyrsta. Það er nefnt Öreigaslippurinn enda líklega flest mannvirki af því tagi nú á dögum öllu veigameiri og dýrari. Þetta er stauravirki og plan, alveg innst í höfninni, sem Brynjólfur Smárason verktaki frá Borg í Reykhólasveit útbjó. Frá þessu er greint á vef Reykhólahrepps....
Tíminn | 25.04.2011 |
Ritstjórn
Rokkhátíð Alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, lauk á Ísafirði í gærkvöldi, en talið er að á þriðja þúsund manna hafi sótt hana yfir páskahelgina. Fjöldi fólks tók einnig þátt í Skíðavikunni, sem haldin var í 77. sinn. Lögreglan á Ísafirði segir að tónleikahaldið hafi gengið mjög vel....
Tíminn | 21.04.2011 |
Ritstjórn
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fékk í þessar viku að gjöf lopapeysu með þeirri ósk að hún yrði sett á uppboð og að hátíðin fengi ágóðann. Peysan er frábær minjagripur því ekki aðeins er hún merkt Mugison og með merki hátíðarnnar heldur...
Tíminn | 20.04.2011 |
Ritstjórn
Skíðavika Ísfirðinga veður sett kl. 16:30 á Silfurtorgi í dag. Þetta er 77. sinn sem Skíðavikan er haldin. Frábært skíðafæri er nú á skíðasvæðinu í Tungudal þar sem lyftur voru opnaðar klukkan 10 í morgun. Nýfallinn snjór og veður eins og best verður á kosið, logn og tveggja stiga frost....
Tíminn | 19.04.2011 |
Ritstjórn
Þeir sem ekki komast vestur á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður næstu helgi geta huggað sig við það að hátíðin verður sýnd í beinni á vef Inspired by Iceland. Áhugasamir geta sent vinum sínum boðsmiða á útsendinguna...
Tíminn | 15.04.2011 |
Ritstjórn
Þrír íslenskir bátar hafa stundað dragnótaveiðar í vetur og hefur einn þeirra og sá minnsti, Sæbjörn ÍS-121 sem gerður er út frá Bolungarvík, mokfiskað að undanförnu. Hann hefur landað samtals 50 tonnum á aðeins þremur vikum, fékk m.a. 12 tonn í einu kosti í mynni Jökulfjarðar í Ísafjarðardjúpi á dögunum. Þorskur var uppistaða aflans og var hann útkýldur af loðnu. Þess má geta að báturinn er aðeins 21 brúttótonn að stærð. ...
Tíminn | 14.04.2011 |
Ritstjórn
Útgerðin ST-2 ehf. á Drangsnesi stundar mikla kræklingaræktun og tók í gær upp átta tonn af krækling úr Steingrímsfirði. Megnið af kræklingnum fer í útflutning og er það mesta magn flutt hefur verið út af kræklingi...
Tíminn | 12.04.2011 |
Ritstjórn
Mikið magn af loðnu rak á land í Húsavík við Steingrímsfjörð á Ströndum í síðustu viku. Einnig var sjórinn svartur af loðnu upp í fjöru. Þetta kom í ljós þegar menn voru að kanna fjölgun æðarkollu á svæðinu. Loðnuhrogn voru líka í sandinum þar sem loðnunnar lágu....
Tíminn | 11.04.2011 |
Ritstjórn
Í síðustu viku voru fjögur umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar á Ísafirði. Sjö ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í vikunni. Einn ökumaður var stöðvaður á Ísafirði fyrir of hraðan akstur, þrír í nágreni við Hólmavíkur og þrír á Holtavörðuheiðinni. Sá sem hraðast ók, var mældur á 120 km/klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst....
Tíminn | 08.04.2011 |
Ritstjórn
Í gær var stigið stórt skref í sögu verslunar á Hólmavík þegar rekstur söluskála Kaupfélags Steingrímsfjarðar var sameinaður verslun þess við Höfðatún 4. Undanfarna níu mánuði hafa staðið yfir framkvæmdir við verslunina þar sem reist var 150 fermetra viðbygging sem hýsir nú veitingasal og salerni. Talsverðar breytingar voru gerðar í versluninni sjálfri til að koma eldhúsi og afgreiðslulínu fyrir....
Tíminn | 05.04.2011 |
Ritstjórn
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, lagði fram beiðni í dag til sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar um að rædd verðu mál bænda í Engidal og Skutulsfirði vegna díoxín mengunar. Ríkið hefur bannað sölu afurða frá þeim bændum og hyggst ekki bæta þeim skaðann þrátt fyrir að mælingar hafi sýnt að mengun afurðanna sé undir viðmiðunarmörkum....
Tíminn | 05.04.2011 |
Ritstjórn
Í dag hélt ríkisstjórn Íslands fund á Ísafirði og var þetta jafnframt í fyrsta sinn sem það gerist. Á fundinum voru samþykkt 16 verkefni er snúa að eflingu byggðar og atvinnusköpun í landshlutanum. Verkefnin hafa verið undirbúin í samvinnu allra ráðuneyta og í samráði við heimamenn. Andvirði verkefnanna er um 5,4 milljarðar króna....
Tíminn | 05.04.2011 |
Ritstjórn
Breski leikarinn Jeremy Irons var á Ísafirði í gær og ræddi þar m.a. við Daníel Jakobsson bæjarstjóra. „Hann er bara flottur kall og viðkunnanlegur,“ sagði Daníel á Facebook síðu sinni. „Við ræddum einnig um gönguskíði, en hann sagðist hafa farið einu sinni á skíði....
Tíminn | 04.04.2011 |
Ritstjórn
Ragnheiður Ingimundardóttir bóndi og verslunarstjóri í Vínbúðinni á Hólmavík, er nýr "penni" hér á Tímanum. Hún segir aðeins frá mannlífinu á Ströndunum í fyrsta pistli sínum....
Tíminn | 04.04.2011 |
Ritstjórn
Það er örugglega fátítt og ef ekki einsdæmi að bæjarstjórahjón vinni til verðlauna á Íslandsmóti í íþróttum. Þetta gerðu bæjarstjórahjónin í Ísafjarðarbæ, Daníel Jakobsson og Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, um helgina. Þau unnu bæði til verðlauna á Skíðamóti Íslands sem fram fór í Bláfjöllum....
Tíminn | 02.04.2011 |
Ritstjórn
Það sem af er árinu hefur meðalumferð um Bolungarvíkurgöng, sem eru milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur, verið tæpum 4% meiri en var um Óshlíðarveg á sama tímabili í fyrra. Þessa þrjá mánuði hafa að jafnaði farið 657 bílar um Bolungarvíkurgöng á degi hverjum, en sambærilegar tölur fyrir Óshliðarveg í fyrra voru 624 bílar á dag....
Tíminn | 02.04.2011 |
Ritstjórn
Orkubú Vestfjarða og Vestfirskir verktakar ehf., undirrituðu í vikunni samning um stækkun og breytingar á stöðvarhúsi Mjólkárvirkjunar í Arnarfirði. Vestfirskir verktakar áttu lægsta tilboð í verkið sem hljóðaði upp á rúmar 67 milljónir króna. Stöðvarhúsið verður lengt um 6,3 metra til að koma nýrri vélasamstæðu fyrir....
Tíminn | 30.03.2011 |
Ritstjórn
Föstudaginn 1. apríl, milli klukkan 15 og 18, bjóða stofanir og fyrirtæki í Vestrahúsinu, Suðurgötu 12 á Ísafirði, gestum og gangandi að kynnast þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í húsinu....
Tíminn | 28.03.2011 |
Ritstjórn
Tveir þingmenn Samfylkingarinnar, Mörður Árnason og Róbert Marshall, vilja stofna þjóðgarð við norðanverðan Breiðafjörð, á svæðinu milli Þorskafjarðar og Vatnsfjarðar, og hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þess efnis. Í greinargerð með tillögunni er tekið á samgöngumálum á svæðinu....
Tíminn | 26.03.2011 |
Ritstjórn
Á íbúafundi í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði í gær var áskorun íbúa til alþingismanna Norðvesturkjördæmis afhent þar sem þeir eru hvattir til að styðja við framkomið frumvarp til laga sem heimilar veglagningu um Vestfjarðaveg nr. 60 um svokallaða B-leið. Um eitt þúsund undirskriftir voru afhentar. ...
Tíminn | 25.03.2011 |
Ritstjórn
Varðskipið Týr lagðist í vikunni að bryggju á Tálkafirði og var nemendum og kennurum grunnskólans á Tálknafirði boðið í heimsókn um borð. Vakti heimsóknin almenna lukku og fróðleik, var gestum kynnt starfsemi Landhelgisgæslunnar og farin kynnisferð um vistarverur varðskipsins, sem kom fyrst til landsins fyrir 36 árum síðan, eða þann 24. mars 1975....
Tíminn | 24.03.2011 |
Ritstjórn
Vegna aukinna verkefna og fæðingarorlofs starfsmanna auglýsa Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Fjórðungssamband Vestfirðinga laus tímabundin störf tveggja verkefnastjóra. Um er að ræða allt að tvö stöðugildi þar sem unnið er að tímabundnum verkefnum, allt að 12 mánuðum. ...
Tíminn | 24.03.2011 |
Ritstjórn
Íbúar Vestfjarða hvetja alla alþingismenn NV- kjördæmis að samþykkja framkomið frumvarp til laga um uppbyggingu Vestfjarðavegar nr. 60, milli Bjarkalundar og Eyrar í Reykhólahreppi. Með því að leggja umræddan veg samkvæmt svokallaðri B-leið verði hagsmunir Vestfirðinga best tryggðir....
Tíminn | 23.03.2011 |
Ritstjórn
Áhugamannafélagið Rafstöðin, sem er félag 15 brottfluttra Bíldælinga og nokkurra heimamanna, er að gera upp gömlu rafstöðina á Bíldudal, sem er einstaklega vel varðveitt minnismerki um hvernig fyrstu rafstöðvarnar voru á bernskuárum rafvæðingar á Íslandi. Mönnum telst til að rafstöðin hafi verið þriðja í röðinni á Íslandi, á eftir rafstöðinni í Hafnarfirði og á Seyðisfirði....
Tíminn | 22.03.2011 |
Ritstjórn
Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum efndi á dögunum til samkeppni um nafn á hinu nýja flutningaskipi sínu meðal nemenda Reykhólaskóla. Nafnið Grettir varð fyrir valinu og hlutu systurnar Aðalbjörg og Elínborg Egilsdætur á Mávavatni verðlaun fyrir tillöguna. Í viðurkenningarskyni fá þær peninga á verðtryggðum bankareikningi....
Tíminn | 21.03.2011 |
Ritstjórn
Nýr vefur rokkhátíðar alþýðunnar á Ísafirði "Aldrei fór ég suður" er nú kominn í loftið. Er þar að finna fróðleik um hátíðin sem fram fer um páskana og gagnlegar upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar, Ísafjörð, heimabæ hátíðarinnar, og myndir og myndbönd frá fyrri hátíðum.
Aldrei fór ég suður verður nú haldin í áttunda sinn en ævintýrið hófst árið 2004....
Tíminn | 21.03.2011 |
Ritstjórn
Heimasíða Fjölmenningarseturs hefur verið uppfærð og er nú á átta tungumálum. Auk íslensku er búið að þýða hana yfir á ensku, pólsku, króatísku, tailensku, spænsku, rússnesku og litháísku. Á síðunni má finna upplýsingar um Ísland og íslenskt samfélag. Áhersla er lögð á að fólk sem flyst til landsins erlendis frá geti kynnt sér réttindi sín og skyldur og nálgast upplýsingar um hverdagslega hluti á auðveldan hátt....
Tíminn | 21.03.2011 |
Ritstjórn
Um síðustu mánaðamót voru 169 skráðir atvinnulausir á Vestfjörðum. Eins og áður er atvinnuleysi á landinu minnst á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum, eða innan við helmingur þess sem er á landinu í heild. Atvinnuleysi er meira á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Langmest er það þó á Suðurnesjum. ...
Tíminn | 17.03.2011 |
Ritstjórn
Rithöfundurinn Vígdís Grímsdóttir hefur dvalist nú í vetur í Árneshreppi og er við skriftir, en hún vinnur nú að nýrri skáldsögu. Þetta er annar veturinn sem hún hefur dvalist í Árneshreppi, að því er fram kemur á vefsíðunni Litlihjalli.is. Eins og kunnugt er hefur Vígdís Grímsdóttir fengið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín....
Tíminn | 17.03.2011 |
Ritstjórn
Ákveðið hefur verið að efna til lagasamkeppni vegna Hamingjudaga á Hólmavík 2011. Skilafrestur á lagi í keppnina er til föstudagsins 29. apríl. Keppnin sjálf verður haldin kl. 20:00 sunnudagskvöldið 8. maí. Lagið má ekki hafa heyrst opinberlega áður og ekki er verra að textinn fjalli að einhverju leyti um hamingjuna, Hólmavík eða Hamingjudaga....
Tíminn | 15.03.2011 |
Ritstjórn
Flestir opnir bátar eru skráðir með heimahöfn á Vestfjörðum, samkvæmt tölum í hagtíðindum Hagstofu Íslands, þar sem fjallað er um fiskiskipastólinn í árslok 2010. Þar er yfirlit um þróun flotans undanfarin ár, fjölda skipa, stærð þeirra, afl aðalvéla og skiptingu eftir landssvæðum....
Tíminn | 14.03.2011 |
Ritstjórn
Gullsteinn er nýlegt sprotafyrirtæki á Reykhólum sem framleiðir hunda- og kattanammi úr harðfiski, svo og þaratöflur, auk þess sem fyrirtækið kemur að pökkun á bökunarvörum fyrir Kornax og hveitiklíði fyrir Heilsu.
...
Tíminn | 13.03.2011 |
Ritstjórn
Orkuöryggi á Vestfjörðum er lakara en í öðrum landshlutum og fylgir því tilheyrandi samfélagskostnaður, að því er fram kemur í skýrslu ráðgjafahóps iðnaðarráðherra um orkumál á Vestfjörðum. Hlutverk ráðgjafahópsins var m.a. að kortleggja núverandi stöðu, meta áhrif raforkuöryggis á möguleika til atvinnuuppbyggingar og hagvaxtar og gera tillögur um aðgerðir til að bæta raforkuöryggið....
Tíminn | 09.03.2011 |
Ritstjórn
Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 tók hópur stjarnvísindamanna, stjörnuáhugamanna og raunvísindakennara sig til og útbjó sérstakan stjörnusjónauka með það í huga að gera undur alheimsins aðgengileg fyrir sem flesta. Sjónaukinn er nefndur Galíleósjónaukinn eftir ítalska vísindamanninum Galíleó Galílei sem beindi sínum heimasmíðaða sjónauka til himins fyrstur manna....
Tíminn | 06.03.2011 |
Ritstjórn
Nýr vefur Ísafjarðarbæjar hefur litið dagsins ljós. Við hönnun hans var litið til þess að hafa sem greiðast aðgengi að þeim upplýsingum sem notendur þurfa hvað mest á að halda. Þá var forsíða einfölduð og reynt að stytta leiðir í uppbyggingu vefjarins. Síðan er hönnuð af þeim Ágústi Atlasyni og Sturlu Stígssyni, vefhönnuðum hjá Snerpu ehf. á Ísafirði, og efnisuppbygging var í höndum upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar. Notast er við vefumsjónarkerfið Snerpil frá Snerpu ehf....
Tíminn | 05.03.2011 |
Ritstjórn
Laugardaginn 4. mars fann lögreglan á Vestfjörðum tæp 70 grömm af kannabisefnum. Efnið fannst við húsleit sem lögreglan framkvæmdi í húsi einu á Ísafirði. Ungur maður var handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Hann hefur viðurkennt að hafa átt efnið og ætlað það til dreifingar á svæðinu. Manninum var sleppt að yfirheyrslum loknum, enda telst málið upplýst. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamála. Fíkniefnaleitarhundurinn á Vestfjörðum, Dollar, var notaður við fíkniefnaleitina....
Tíminn | 05.03.2011 |
Ritstjórn
Grásleppuvertíðin er nú að hefjast og miðað við fjölda vestfirskra báta með grásleppuleyfi má búast við að hart verði barist um bestu veiðisvæðin. Samkvæmt lista yfir veiðileyfishafa, sem birtur er á vef Fiskistofu, eru 28 bátanna með ÍS-skráningu, þ.e. með heimahöfn í Ísafjarðarsýslu. Síðasta grásleppuvertíð gekk mjög vel, afli var góður og verð hátt og því má gera ráð fyrir að fleiri ætli sér að gera út á grásleppuna á komandi vertíð. ...
Tíminn | 28.02.2011 |
Ritstjórn
Töluverður samdráttur varð á farþega- og vöruflutningi til Gjögurflugvallar á síðasta ári. 269 farþegar fóru um völlinn á síðasta ári á móti 439 árið á undan....