
Átak í föngun ómerktra katta á Akranesi
Málverk Einars Ingimundarsonar í Safnahúsi Borarness
Ein mynda Einars Ingimundarsonar málara hefur nú verið hengd upp í anddyri Safnahúss þar sem einnig er gerð grein fyrir höfundi hennar í nokkrum orðum. Þetta er liður í að miðla merkum safnkosti Listasafns Borgarness með tímabundnum örsýningum. Mynd Einars er máluð ofarlega í Húsafellslandi og sýnir landslagið í nágrenni Kaldadals, tignarlega jökla og fjöll. ...
Ferðamannavegir á Snæfellsnesi gætu styrkt ferðaþjónustu á svæðinu
Undanfarið hefur Snæfellsbær í samstarfi við Ferðamálastofu, Vegagerðina og VSÓ Ráðgjöf unnið að verkefni tengdu hugmyndum um skilgreiningu og útfærslu ferðamannavegar. Auk þess sem leitað var til Guðbjargar Gunnarsdóttur Þjóðgarðsvarðar. Markmið verkefnisins var að prófa vinnuferil fyrir skipulagningu ferðamannavega. Þetta er tilraunaverkefni á Snæfellsnesi og áherslan var að móta aðferð sem má beita víðar á landinu við leiðarval og skipulag á ferðamannavegum....
Vökudagar á Akranesi dagana 27. október til 6. nóvember
Menningar- og listahátíðin Vökudagar verður haldin á Akranesi dagana 27. október til 6. nóvember næstkomandi og er hátíðin fjölbreytt að vanda. Þrátt fyrir að enn sé tími til að leggja hátíðinni til nýja listviðburði skartar hátíðin nú þegar mörgum spennandi viðburðum. Nefna má ljósmyndasýningu í Bókasafni Akraness, „Fuglarnir okkar“ þar sem til sýnis eru ljósmyndir sem hjónin Helga Guðmundsdóttir og Ingi Steinar Gunnlaugsson hafa tekið af fuglum á undangengnum árum...
Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar afhentar
Ragnar Frank Kristjánsson, formaður umhverfis- og skipulagsnefndar Borgarbyggðar, afhenti í dag umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar. Athöfnin fór fram á sviðinu í Skallagrímsgarði í Borgarnesi á Sauðamessu. Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar eru veittar árlega. Að þessu sinni bárust í allt 13 tilnefningar....
Ný fasteignasala í Stykkishólmi
Sverrir Kristjánsson, löggiltur fasteignasali, hefur sett upp Fasteignasölu Stykkishólms og er hún til húsa að Ægisgötu 11 í Stykkishólmi.
Sverrir hefur starfað við fasteignasölu frá 1971 en þá flutti hann frá Stykkishólmi til Reykjavíkur. Fyrstu árin starfaði hann hjá Fasteignamiðstöðinni undir stjórn Sigurðar Sigfússonar. 1980 stofnaði hann Fasteignamiðlun og bætti við annari starfstöð Fasteignamiðlun Grafarvogs 2003. ...
Nýir rekstraraðilar taka við Hótel Hellissandi
Á dögunum skrifuðu hjónin Jón Kristinn Ásmundsson og Katrín Hjartardóttir undir 12 mánaða samning um rekstur Hótels Hellissands. Stefna þau að því að setjast þar að til frambúðar en Katrín er fædd og uppalin á Hellisandi. Þau hafa síðustu þrjú ár rekið veiðihúsið Grímsá í Borgarfirði og segjast taka þá reynslu með sér á Hellisand....
18 lausar iðnaðarlóðir í Borgarnesi

Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Prjónakeppni í Dölunum

Þverá í Borgarfirði fer í útboð

Hvetja stjórnvöld til að endurskoða lög og reglur um lausagöngu búfjár

Borgarbyggð og Bifröst í samstarf

Hvanneyri
4 m/s
fimmtudagur
10 m/s
föstudagur
5 m/s
laugardagur
2 m/s
sunnudagur
5 m/s
mánudagur
6 m/s
þriðjudagur
6 m/s
Uppljóstrarinn
Varðhundur fjármálaráðherra verðlaunaður
Uppljóstrarinn hefur fylgst af áhuga með risi
Björns Vals Gíslasonar innan þingflokks Vinstri grænna að
undanförnu. Björn Valur hefur sem kunnugt er verið dyggasti
stuðningsmaður Steingríms J. Sigfússonar á öllum vígstöðvum, hvort
sem er innan flokks eða utan. Hefur sú foringjahollusta gengið svo
langt að heimildarmenn uppljóstrarans eru orðnir sannfærðir um að
blogg Björns
Vals sé skipulega notað til að koma á framfæri óþægilegum
árásum á andstæðinga fjármálaráðherra sem hann vill ekki sjálfur
gangast við, en þar fara nú hæst árásir á "íhaldið" sem Björn Valur
skilgreinir sem Forseta Íslands og Biskups Íslands og að því er
virðist alla aðra sem ekki eru flokksbundnir í
ríkisstjórnarflokkunum.
Heimildarmenn uppljóstrarans benda á að þótt Björn Valur hafi komið inn á Alþingi í kosningum 2009 sem fulltrúi nýrra tíma á Íslandi þá nái samstarf hans við Steingrím J. Sigfússon mun lengra aftur í tímann. Á vef Alþingis má t.d. sjá að Björn Valur sat á Alþingi sem varaþingmaður Alþýðubandalagsins árið 1990. Það sem ekki er tekið fram þar er að Björn Valur var þá (sem og árin 2007 og 2008) varamaður Steingríms J. Sigfússonar.
Björn Valur, eða "varðhundur fjármálaráðherra" eins og heimildarmenn skopast með að hann sé nefndur í gríni og alvöru, hefur því verið vinstri kantmaður í íslenskum stjórnmálum í rúm tuttugu ár og allan þann tíma verið í samstarfi við Steingrím J. Sigfússon. Uppljóstraranum getur ekki annað en glaðst yfir því að Birni Val hafi loksins verið launuð húsbóndahollustan með embætti þingflokksformanns. Heimildarmenn telja að Þuríður Backman (sem tók eftirminnilega við embættinu í fréttaviðtali á flugvelli úti í löndum með orðunum "HA?") hafi aldrei verið fyrsti kostur forystu VG. Þuríður hafi aðeins lent í starfinu óvart þegar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að láta hafa sig að fífli eftir að forysta VG setti hana af eftir fæðingarorlof eins og frægt er orðið.
Heimildarmenn uppljóstrarans telja að með kosningu Björns Vals í embætti þingflokksformanns hafi Steingrímur J. Sigfússon slegið tvær flugur í einu höggi, treyst til muna tak sitt á ódælum þingmönnum innan flokks og gefið árásum varðhundarins á "íhaldið" stóraukið vægi út á við. Hvort tveggja komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er um líf ríkisstjórnarinnar á komandi vetri.
Kvestor
Hefur íslenskum hagfræðingum farið aftur?
Kvestor hnaut um áhugaverða bók í Bóksölu Stúdenta. Hún heitir Starfróf viðskiptafræðinnar eftir Jón Ólafsson, ritstjóra gefin út 1909 og er nú endurútgefin. Bókin er fyrsta bók á Íslandi um viðskiptafræði og í bókinni kemur orðið viðskiptafræði fyrst fyrir á prenti. Jón bjó til orðið. En það er annað merkilegra sem kemur fram í þessari bók.Í 10 gr. við lok bókarinnar skrifar Jón:
"Peninga-kreppa og stjórnarbyltingar hafa þau áhrif, eins og öllu skipulagi voru er nú óeðlilega hagað, að gengin verða hagstæð landinu - svo framarlega, sem óinnleysanlegir peningaseðlar varna því ekki, að sú verði afleiðingin. Slíkum viðskifta-landskjálftum fylgir ávalt stórkostlegt lánstrausts-hrun; en lánstraustið hafði, meðan þess naut við, unnið alt ið sama gagn sem peningar. Þegar nú lánstrausts-hrófið hrynur þá vex eftirspurn eftir peningum. Peningarnir stíga því ákaflega í verði bæði gagnvart varningi og skuldum... Ef þessum ófagnaði veldur það, að ríkið hefir óinnleysanlega peningaseðla, eða að það hefir rýrt sláttu sína, þá er ekki nema einn vegur til úrbóta, og hann er sá, að koma peningalöggjöfinni þegar í stað í rétt horf aftur."
Kvestor spyr, hvort íslenskum hagfræðingum hefur farið aftur á síðastliðnum 100 árum?
Aðsendar greinar
Hvað kostar aðlögunarferlið að ESB?
Þann
16. júlí 2009 samþykkti naumur meirihluti alþingismanna að leggja
inn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Seinna upplýstist að
þingmenn Vinstri grænna hefðu verið knúnir til samþykktar
tillögunnar með hótunum. Því er ljóst að ekki var meirihluti fyrir
umsókninni í þingsölum - hvorki þá né nú. Ekki er heldur meirihluti
hjá landsmönnum að ganga þessa leið - hvorki þá né nú. Hví er þá
verið halda umsókninni að ESB til streitu?
Í nefndaráliti með tillögunni kemur fram að með umsóknarferlinu yrði tryggt að Alþingi yrði hluti af því heildarferli stjórnsýslu sem mál ættu að fara í gegnum áður en þau yrðu endanlega afgreidd og þannig átti að tryggja að stjórnsýslan miðlaði upplýsingum til þingsins um málefni er tengdust viðræðunum svo að þingið geti gegnt eftirlitshlutverki sínu í ferlinu. Á þessu er mikill misbrestur því þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, utandagskrárumræður og beiðnir um fundi í utanríkisnefnd fá þingmenn afar takmarkaðar upplýsingar um aðlögunarferlið. Sér þess sér helst stað í frumvörpum ríkisstjórnarinnar við innleiðingar gerða og tilskipana ESB.
Sá háttur er samt hafður á að hvergi er tiltekið í frumvörpunum sjálfum að um skilyrði ESB sé að ræða vegna umsóknarinnar. Blekkingarleik er beitt í skjóli EES samningsins. Nefni ég hér örfá frumvörp sem orðið hafa að lögum á síðasta þingi sem skilyrt var að lögleiða og hefur mikinn kostnaðarauka í för með sér. Ákvæði um Þróunarsjóð EFTA lögleitt í EES samninginn - kostar ríkissjóð í nýjum útgjöldum 5,3 milljarða. Lög um losunarheimildir - stofnkostnaður 20 milljónir og ný útgjöld 45 milljónir á ári. Lög um grunngerð landupplýsinga - 30 milljónir á ári. Fjölmiðlalög - rekstur fjölmiðlanefndar 33 milljónir á ári. Lög um stjórn vatnamála - ný útgjöld 130 milljónir á ári.
Utanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að eins sé líklegt að kostnaður upp á 4 milljarða lendi á ríkinu vegna innleiðingar nýs tollakerfis í landbúnaði. Mörg sambærileg frumvörp liggja inn í þinginu sem bíða afgreiðslu. Hliðaráhrif umsóknarferlisins hafa því gríðarleg áhrif á ríkissjóð. Það skal og á það minnst að atvinnusköpunartækifæri ríkisstjórnarinnar liggur í lögleiðingu þessara frumvarpa því oftar en ekki þarf að bæta við starfsmönnum í undirstofnunum til "eftirlits" . Kratavæðingin er því algjör og opinberi geirinn þenst út.
Þá að beinum kostnaði við umsóknina. Í umræddri greinargerð er talið að kostnaður sem falli undir utanríkisráðuneytið á árabilinu 2010 - 2012 verði um 800 milljónir og lunginn af þeim kostnaði felst í þýðingum reglna ESB yfir á íslensku. Það er hreint galið að skattgreiðendur beri kostnað af þýðingum alls lagabálks ESB áður en vitað er hvort gengið verður inn eður ei. Ekki er gefin upp kostnaður annarra ráðuneyta - en ljóst er að stjórnsýslan liggur á hliðinni vegna umsóknarinnar - sem er e.t.v. skýringin á hví slík kyrrstaða ríki hér á landi.
Fljótt á litið má áætla að beinn kostnaður við umsóknarferlið verði á bilinu 1,5 - 2 milljarðar. Þær upplýsingar er ekki hægt að fá frá stjórnarráðinu og heykist hver ráðherrann á fætur öðrum að veita þinginu og almenningi upplýsingar um þennan kostnað. Samandregið er um að ræða gríðarlegan dulinn kostnað fyrir ríkissjóð.
Í minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu á fylgiskjali IV í þingsályktunartillögunni kemur fram að kostnaður aðildarviðræðnanna sé háður óvissu sér í lagi í ljósi þess hversu hratt viðræðurnar ganga. Kostnaðarmatið er byggt á 18 mánaða ferli sem átti að ljúka um mitt ár 2011. Nú er sá tími liðinn og langt í land með að samningar takist. Rökrétt er því að tvöfalda beinan kostnað af ferlinu. Ef umsóknin verður ekki dregin til baka er ljóst að kostnaðurinn við umsóknina mun hlaupa á tugum milljarða.
Á meðan Össur Skarphéðinsson situr einn á brennandi tröppunum í Brussel með umsóknina er vegið að grunnþáttum íslensks samfélags með niðurskurði og skattpíningu.

