Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Þverá í Borgarfirði fer í útboð

Það er altaf nokkuð stór frétt þegar einhver af stóru
laxveiðiánum á Íslandi er sett í útboð. Veiðifélag Þverár í
Borgarfirði hefur nú ákveðið að óska eftir tilboðum í veiðirétt á
vatnasvæði sínu, en þar eru Þverá og Kjarará, ásamt Litlu Þverá.
Núverandi leigutaki er Sporður ehf, en samningur þeirra rennur út í
lok veiðitíma sumarið 2012.
Veiðifélagið lítur svo á að hver sá, sem hreppir hnossið, þurfi
að vita af því með góðum fyrirvara, svo sölustarfsemi geti hafist í
tæka tíð. Því mun útboðið verða auglýst í dagblöðum nú um
næstu helgi og stefnt er að því að opna tilboðin þann 1.
nóvember.
Það er "LEX Lögmannsstofa" sem sér um afhendingu
allra gagna og framkvæmd útboðsins. Allt frá hruninu 2008
hefur verð veiðileyfa hækkað mun minna en nemur almennum
vísitöluhækkunum. En nú í sumar virðist spurn eftir
veiðileyfum vaxandi og án efa bíða mörg veiðifélög nokkuð spennt
eftir niðurstöðum þessa útboðs. Þær kunna að gefa tónin um
verðbreytingar á næstunni.
Þverá fellur í Hvítá um það bil 50 kílómetra frá sjó. Hún á
upptök sín í votlendi Tvídægru og Arnarvatnsheiðar og nýtur góðs af
frjósemi vatnanna þar. Í þverá fellur Litla Þverá og veiðist lax í
báðum ánum. Um Þverá sjálfa er gjarna talað sem tvær ár - Þverá og
Kjarará. Kjarará er efri hluti árinnar og að mestu fyrir ofan
byggð. Hvor hluti um sig er rekinn sem sjálfstætt veiðivatn með
sitt hvort veiðihúsið. Á báðum svæðum er nú eingöngu veitt á
flugu.
Heimild: Landssamband veiðifélaga.
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Nýverið tók Snorri Guðmundsson, dýraeftirlitsmaður, til starfa hjá Akraneskaupstað. Hann annast eftirlit með gæludýra- og búfjárhaldi á Akranesi eða nánar tiltekið daglegt eftirlit með hundum, köttum og búfénaði í samræmi við samþykktir um hunda- og kattahald svo og reglur um búfjárhald. Eitt af fyrstu verkefnum dýraeftirlitsmanns er að annast átak í föngun ómerktra katta og hófst átakið þann 1. október sl....
Tíminn | 21.10.2011 |
Ritstjórn
Ein mynda Einars Ingimundarsonar málara hefur nú verið hengd upp í anddyri Safnahúss þar sem einnig er gerð grein fyrir höfundi hennar í nokkrum orðum. Þetta er liður í að miðla merkum safnkosti Listasafns Borgarness með tímabundnum örsýningum. Mynd Einars er máluð ofarlega í Húsafellslandi og sýnir landslagið í nágrenni Kaldadals, tignarlega jökla og fjöll. ...
Tíminn | 20.10.2011 |
Ritstjórn
Undanfarið hefur Snæfellsbær í samstarfi við Ferðamálastofu, Vegagerðina og VSÓ Ráðgjöf unnið að verkefni tengdu hugmyndum um skilgreiningu og útfærslu ferðamannavegar. Auk þess sem leitað var til Guðbjargar Gunnarsdóttur Þjóðgarðsvarðar. Markmið verkefnisins var að prófa vinnuferil fyrir skipulagningu ferðamannavega. Þetta er tilraunaverkefni á Snæfellsnesi og áherslan var að móta aðferð sem má beita víðar á landinu við leiðarval og skipulag á ferðamannavegum....
Tíminn | 19.10.2011 |
Ritstjórn
Menningar- og listahátíðin Vökudagar verður haldin á Akranesi dagana 27. október til 6. nóvember næstkomandi og er hátíðin fjölbreytt að vanda. Þrátt fyrir að enn sé tími til að leggja hátíðinni til nýja listviðburði skartar hátíðin nú þegar mörgum spennandi viðburðum. Nefna má ljósmyndasýningu í Bókasafni Akraness, „Fuglarnir okkar“ þar sem til sýnis eru ljósmyndir sem hjónin Helga Guðmundsdóttir og Ingi Steinar Gunnlaugsson hafa tekið af fuglum á undangengnum árum...
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Ragnar Frank Kristjánsson, formaður umhverfis- og skipulagsnefndar Borgarbyggðar, afhenti í dag umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar. Athöfnin fór fram á sviðinu í Skallagrímsgarði í Borgarnesi á Sauðamessu. Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar eru veittar árlega. Að þessu sinni bárust í allt 13 tilnefningar....
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Sverrir Kristjánsson, löggiltur fasteignasali, hefur sett upp Fasteignasölu Stykkishólms og er hún til húsa að Ægisgötu 11 í Stykkishólmi.
Sverrir hefur starfað við fasteignasölu frá 1971 en þá flutti hann frá Stykkishólmi til Reykjavíkur. Fyrstu árin starfaði hann hjá Fasteignamiðstöðinni undir stjórn Sigurðar Sigfússonar. 1980 stofnaði hann Fasteignamiðlun og bætti við annari starfstöð Fasteignamiðlun Grafarvogs 2003. ...
Tíminn | 15.10.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum skrifuðu hjónin Jón Kristinn Ásmundsson og Katrín Hjartardóttir undir 12 mánaða samning um rekstur Hótels Hellissands. Stefna þau að því að setjast þar að til frambúðar en Katrín er fædd og uppalin á Hellisandi. Þau hafa síðustu þrjú ár rekið veiðihúsið Grímsá í Borgarfirði og segjast taka þá reynslu með sér á Hellisand....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Í Borgarnesi eru lausar til umsóknar 18 iðnaðar- og athafnalóðir við Sólbakka og Vallarás, sem er norðan við bæjarkjaranann. Stærðir lóðanna eru á bilinu frá 3.500 til 11.800 m2. Nánari upplýsingar um lóðirnar má fá hjá Umhverfis- og skipulagssviði Borgarbyggðar, að því er fram kemur á vef Borgarbyggðar....
Tíminn | 12.10.2011 |
Ritstjórn
Nýverið sótti pólskur minkasérfræðingur Náttúrustofu Vesturlands heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar viðTækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt. Þekkinguna sem Jakub aflaði mun hann nýta til að stuðla að bættum aðgerðum gegn minkum í Póllandi....
Tíminn | 07.09.2011 |
Ritstjórn
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu stendur nú í þriðja sinn fyrir prjónasamkeppni í tengslum við haustfagnað félagsins sem jafnan er fyrsta vetrardag. Keppt verður í tveimur flokkum, flokki fullorðinna og flokki barna 16 ára og yngri. Í ár snýst keppnin um að að prjóna fylgihluti úr íslenskri ull. Nú er bara að láta hugmyndaflugið njóta sín, taka fram prjónanna og hefjast handa....
Tíminn | 06.09.2011 |
Ritstjórn
Það er altaf nokkuð stór frétt þegar einhver af stóru laxveiðiánum á Íslandi er sett í útboð. Veiðifélag Þverár í Borgarfirði hefur nú ákveðið að óska eftir tilboðum í veiðirétt á vatnasvæði sínu, en þar eru Þverá og Kjarará, ásamt Litlu Þverá. Núverandi leigutaki er Sporður ehf, en samningur þeirra rennur út í lok veiðitíma sumarið 2012. ...
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands 2011 var haldinn í Grundarfirði um helgina. Skógræktarfélag Eyrarsveitar var gestgjafi fundarins að þessu sinni og sóttu fundinn á annað hundrað fulltrúar skógræktarfélaga alls staðar af landinu. Í þeim ályktunum sem samþykktar voru á fundinum er áhersla lögð á mikilvægi skógræktar fyrir umhverfi og samfélag....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Á dögunum undirrituðu Páll Brynjarsson sveitarstjóri og Bryndís Hlöðversdóttir rektor Háskólans Bifröst samkomulag milli Borgarbyggðar og háskólans um afslátt á þjónustukaupum sveitarfélagsins hjá skólanum. Fyrr í sumar var einnig undirritað samkomulag milli sömu aðila um kaup Borgarbyggðar á 30 milljóna stofnfé í Háskólanum á Bifröst. Kaupin koma til framkvæmda á árunum 2012 – 2014....
Tíminn | 05.09.2011 |
Ritstjórn
Í byrjun ágúst bjargaði Björgunarsveitin Lífsbjörg, Snæfellsbæ manni úr sjálfheldu við Rauðfeldargjá. Allt gekk það vel fyrir sig. Eins og ávallt var sveitinni þakkað vel fyrir og fékk hún heillaóskir frá þeim sem í sjálfheldunni var og ferðafélögum hans. En sá sem var bjargað, Richard A. Jones, gerði þó gott betur og sendi bréf frá Bandaríkjunum ásamt ávísun uppá 100 dollara í þakklætisskyni. ...
Tíminn | 04.09.2011 |
Ritstjórn
Aðalfundar Skógræktarfélags Íslands fór fram á Grundarfirði um helgina. Þetta var 76. aðalfundar Skógræktarfélagsins og lauk honum í dag. Þegar litið er yfir starfsskýrslu Skógræktarfélags Íslands á milli aðalfunda má glöggt sjá að unnið hefur verið að fjölmörgum verkefnum. Rekstur félagsins á liðnu ári gekk að mörgu leyti vel og rekstrartekjur voru í takt við áætlanir. Peningalegar eignir hækkuðu á milli ára sem og eignir í bundnum sjóðum....
Tíminn | 26.08.2011 |
Ritstjórn
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 24. ágúst að gefa út tómstundaávísanir fyrir börn í sveitarfélaginu. Ákveðið var að gefa út tvær 15.000,- kr. ávísanir fyrir hvert barn með lögheimili í sveitarfélaginu. Önnur gildir fram til áramóta, hin frá áramótum til ágústloka 2012. Hugmyndin er að ungmenni velji það starf sem þau kjósa að taka þátt í....
Tíminn | 25.08.2011 |
Ritstjórn
Á laugardaginn fer fram opnun skógarins að Fossá í Hvalfirði, þar sem hann verður formlega tekinn inn í verkefnið Opinn skóg. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun opna skóginn formlega klukkan 14:00. Auk þess mun Vigdís Finnbogadóttir vera viðstödd vígslu Vigdísarlundar í skóginum....
Tíminn | 24.08.2011 |
Ritstjórn
Í gær undirrituðu samningamenn Alcan og átta stéttarfélaga nýjan kjarasamning vegna starfsmanna í álverinu í Straumsvík. Nýi samningurinn gildir til ársloka árið 2014. Samningurinn verður nú borinn undir atkvæði starfsmanna og á niðurstaða að liggja fyrir eigi síðar en 8. september n.k. Starfsmenn Norðuráls eru hins vegar sárir og reiðir vegna þeirra tíðinda sem bárust af samningafundi á mánudag,...
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Aðsókn í búfræði- og búvísindanám við Landbúnaðarháskóla Íslands að Hvanneyri hefur stóraukist undanfarin ár. Í vor sóttu 65 um búfræðinámið en Landbúnaðarháskólinn hefur ekki treyst sér til að taka inn fleiri en 34 nemendur á ári í búfræði. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem sækjast eftir náminu er fólk úr sveit eða með mikla tengingu við sveit....
Tíminn | 08.08.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðnar vikur hafa erlendir sjálfboðaliðar á vegum Veraldarvina hjálpað starfsmönnum Skógræktar Íslands við að bæta gönguleiðir í göngustígakerfinu á Stálpastöðum í Skorrdal. Skógrækt ríkisins segir frá þessu á vefsíðu sinni. Á meðal verkefna þeirra voru að slá lúpinu og gras frá slóðum, að bera kurl á göngustíga, að afkvista tré meðfram stígum og búa til þrep í skóginum. Sjálfboðaliðarnir koma frá mörgum löndum og þeir sem koma lengst að koma frá Kína og Kóreu. Ástæðan fyrir komu þeirra er sú að þeir vilja kynnast landi og þjóð og...
Tíminn | 05.08.2011 |
Ritstjórn
Gistinætur á hótelum á Íslandi í júní síðastliðnum voru 181.000 samanborið við 157.000 í júní 2010 að því er fram kemur í frétt frá Hagstofunni. Á Suðurlandi voru 25.340 gistinætur júní sem er 19% fjölgun samanborið við júní 2010. Það á svo eftir að koma í ljós hvaða áhrif hlaupið í Múlakvísl mun hafa. Gistinætur erlendra gesta voru um 85% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í júní og fjölgaði gistinóttum þeirra um 11% frá fyrra ári. Mikil aukning var á gistinóttum Íslendinga í júní, gistinætur voru ríflega 27 þúsund ...
Tíminn | 04.08.2011 |
Ritstjórn
Rekstrarniðurstaða Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri fyrir árið 2010 er í samræmi við þær áætlanir sem gerðar voru. Í fyrra voru fjárheimildir skólans samtals 574 milljónir króna. Sértekjur skólans voru hlutfallslega mjög miklar en heildarvelta var 1.098 milljónir króna og halli á rekstrinum 11,1 milljónir króna eða 1% af veltu. ...
Tíminn | 02.08.2011 |
Ritstjórn
Vefur Ljósmyndasafns Akraness hefur verið endurbættur. Breytingarnar eru hannaðar af Jóhanni Ísberg, í samvinnu við starfsfólk Ljósmyndasafnsins. Fleiri myndir birtasta á skjá og hægt er að velja hvað margar myndir birtast á síðu. Nú stendur yfir ljósmyndasýning á vegum Ljósmyndasafnins í Kirkjuhvoli....
Tíminn | 27.07.2011 |
Ritstjórn
Í gær, þriðjudaginn, 26. júlí 2011, var gengið frá sölu á 66% hlut í útgerðarfélaginu Farsæli hf. til Fisk Seafood, sem eftir þessi viðskipti hefur eignast allt hlutafé í félaginu. Farsæll hf. hefur rekið útgerð í Grundarfriði frá því 1936 eða í 75 ár en vegna lítilla aflaheimilda hafa rekstrarskilyrði verið erfið síðustu ár og sýnilegt að þörf var á breytingum til þess að efla starfsemi félagsins. Þetta kemur fram á vef Grundarfjarðarbæjar. Fisk Seafood ráðgerir að færa varanlegar aflaheimildir á skipið Farsæl fyrir komandi fiskveiðiár og efla þannig ...
Tíminn | 26.07.2011 |
Ritstjórn
Miklar laxagöngur hafa verið síðustu daga í Hítará á Mýrum í Borgarfirði og veiðin frábær. Holl sem lauk veiðum í fyrradag hafði 50 laxa á land og að sögn þeirra sem stóðu vaktina er mikill lax genginn. Hollið sem tók við snaraði 17 löxum á land á síðdegisvaktinni....
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Skrifað hefur verið undir samning við Tígur ehf. um endurbætur á aðstöðu smábáta í Grundarfjarðarhöfn. Kostnaður við verkið er um 27,5 milljónir króna. Frá þessu er greint á vef Grundarfjarðarbæjar.
Núverandi aðstaða smábáta er sprungin og eftir útboðsferli var tilboði Tígurs ehf. í stækkun smábátaaðstöðunnar tekið. Framkvæmdin felst í dýpkun, grjótvörn, steypa landstöpul og nýja 50 m flotbryggju. Á meðfylgjandi mynd má sjá Hafstein Garðarsson, hafnarstjóra og Jónas Jónbjörnsson skrifa undir verksamninginn undir ...
Tíminn | 21.07.2011 |
Ritstjórn
Miklar göngur hafa verið í Norðurá í Borgarfirði frá því að stórstreymt var um liðna helgi og standa enn! Virðist því vera sem þær séu einfaldlega mun seinna á ferðinni þetta árið, en til samanburðar þá var göngum að mestu lokið um miðjan júlí í fyrra. Holl sem lauk veiðum þann 18. júlí í Norðurá fékk 290 laxa á sex dögum. Áframhald er á góðri veiði hjá hollinu sem við tók. ...
Tíminn | 20.07.2011 |
Ritstjórn
Friðarhlaupið hóf göngu sína í 24. skiptið þann 5. júlí. Hlaupið er frá Reykjavík hringinn um landið og endað við ráðhúsið í Reykjavík 22 júlí kl: 12:00. Alþjóðlegu friðarhlaupararnir 20 frá 13 löndum komu við upp á Snæfellsjökli og skemmtu sér konunglega í sólskini er þau gengu upp á hæsta tindinn með kyndilinn. Útsýnið var eins og best á kosið en vel sást alla leið til Reykjanesskaga og til Vestfjarða....
Tíminn | 20.07.2011 |
Ritstjórn
Undanfarið hafa togarar og fiskvinnslur vera að reyna fyrir sér í veiðum og vinnslu á makríl. Í liðinni viku hófst vinnsla á makríl á vegum félagsins á Akranesi en þar voru fryst um 140 tonn af makríl sem ísfisktogarinn Ottó N. Þorláksson RE kom með til hafnar.
Samkvæmt upplýsingum Torfa Þorsteinssonar, framleiðslustjóra landvinnslu HB Granda, hófust makrílveiðar ísfisktogaranna í síðustu viku en Ottó N. Þorláksson RE veiddi þá sinn skammt af makrílkvótanum. Aflanum var landað á Akranesi og fór hann til ...
Tíminn | 20.07.2011 |
Ritstjórn
Nýr og uppfærður kynningar- og upplýsingavefur fyrir Akranes er kominn í loftið á vefslóðinni www.visitakranes.is. Vefurinn er unninn af Atómstöðinni í samstarfi við Upplýsingamiðstöðina á Akranesi og fleiri aðila. Þessi nýji vefur er tengdur við vefsvæði Markaðsstofu Vesturlands og um leið gagnagrunn Ferðamálastofu og því hafa notendur vefsins aðgang að greinargóðum upplýsingum um þjónustu, afþreyingu og gistimöguleika á Akranesi, Vesturlandi og raunar landinu öllu....
Tíminn | 19.07.2011 |
Ritstjórn
Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri mun efna til Farmal-fagnaðar á Hvanneyri laugardaginn 16. júlí næstkomandi en Farmalarnir mynduðu fyrstu bylgju heimilisdráttarvéla hérlendis – á árunum 1945-1950 og teljast því tímamótavélar í sveitum landsins. Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri hefur um árabil efnt til sérstakra daga á hásumri til þess að kynna þætti úr tæknisögu landbúnaðarins, m.a. með sýningum á forn-dráttarvélum, bæði vélum safnsins en ekki síður vélar í eigu áhugamanna. Sýningarnar hafa ...
Tíminn | 11.07.2011 |
Ritstjórn
Nýverið lét mennta- og menningarráðuneytið gera úttekt á starfsemi Grunnskólans í Borgarnesi, en skólinn var í hópi nokkurra grunnskóla sem gerð var úttekt á þetta árið. Úttektin var unnin af þeim Halldóru Kristínu Ma...
Tíminn | 10.07.2011 |
Ritstjórn
Á tjaldsvæðinu við Kalmansvík á Akranesi voru síðdegis í gær 183 gististaðir, þar af 160 húsbílar en hópar frá Húsbílafélaginu og Flökkurum töldu um 40% gestanna þegar þessi mynd var tekin, segir á Skessuhorni.is. Eftir það átti eftir að fjölga til muna þegar leið á kvöldið og voru tjaldstæðin full. Guðni Haraldsson rekur tjaldstæðin í Kalmansvík sem eru í eigu Akraneskaupstaðar. Hann segir að þrátt fyrir að aðsóknin undanfarin ár hafi aukist um 25 - 30% milli ára þá sé nú algjör sprenging í gestakomu. "Þetta er lóðrétt upp á við þessar ...
Tíminn | 09.07.2011 |
Ritstjórn
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Atla Harðarson í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands til næstu fimm ára. Skessuhorn greinir frá þessu í gær. Atli hefur starfað sem aðstoðarskólameistari FVA frá árinu 2001 en áður starfaði hann sem framhaldsskólakennari frá 1986, einnig að mestu við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Atli hefur meðal annars meistaragráðu í heimspeki frá Brown háskóla í Bandaríkjunum og hóf doktorsnám í menntunarfræðum við Háskóla Íslands haustið 2009. ...
Tíminn | 07.07.2011 |
Ritstjórn
Náðst hefur samkomulag við starfsmenn Klafa á Grundartanga og verkfalli sem hefjast átti næstkomandi þriðjudag hefur verið aflýst. Frá þessu er greint á Skessuhorn.is. Samningurinn er svipaður og samningurinn sem starfsmenn Elkem Íslands á Grundartanga skrifuðu undir í vor. Að auki fær starfsfólk eingreiðslu sem er ígildi fastra mánaðarlauna og verður hún greidd út í tvennu lagi. Að sögn Vilhjálms Birgissonar formanns VLFA er samningurinn að gefa starfsmönnum með eingreiðslunni...
Tíminn | 05.07.2011 |
Ritstjórn
Það hefur heldur betur lifnað yfir veiðinni í Norðurá í Borgarfirði undanfarna daga. Í gær voru komnir rúmlega 400 laxar. Mikið vatn er í ánni eftir rigningar síðustu daga, og rauk vatnsmagnið úr 17 í 24 rúmmetra samkvæmt vatnsmæli í Stekk. Veiðin hefur því tekið mikinn kipp í kjölfarið á fyrstu alvöru laxagöngum sumarsins....
Tíminn | 04.07.2011 |
Ritstjórn
Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýs vatnsverksmiðjuhúss á Rifi. Nýja húsið mun rísa á næstu lóð við Hraðfrystihús Hellissands skammt frá hafnarbakkanum. Það er byggingarfélagið Nesbyggð sem sér um byggingu hússins sem verður 1200 fermetrar að stærð. Áætlað er að byggingu og frágangi að innan við verksmiðjuhúsið verði lokið í októbermánuði næstkomandi og fljótlega upp úr því geti niðursetning véla hafist....
Tíminn | 30.06.2011 |
Ritstjórn
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er einn af bestu þjóðgörðum Evrópu að mati BBC travel og Lonely Planet. Svo skemmtilega vildi til að fréttin birtist á 10 ára afmælisdegi þjóðgarðsins sem var 28. júní. Innan þjóðgarðsins er að finna sögusvið sagna og skáldsagna, s.s. Kristnihald undir Jökli eftir Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness. Meðal skáldsagna, sem einna helst hefur borið nafn Snæfellsjökuls um heimsbyggðina, er saga franska rithöfundarins Jules Verne, sem nefnist í íslenskri þýðingu „Leyndardómar Snæfellsjökuls”....
Tíminn | 28.06.2011 |
Ritstjórn
Í dag eru tíu ár liðin síðan Siv Friðleifsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, vígði Náttúrustofu Vesturlands með formlegum hætti. Á þessum fyrsta áratug eru að að baki um 38 ársverk eða tæplega fjögur stöðugildi að jafnaði og starfsfólk Náttúrustofu hefur unnið að fjölbreyttum náttúrutengdum verkefnum. Starfið hefur stuðlað að birtingu fræðigreina og bóka þar sem niðurstöður rannsóknar eru kynntar en einnig hefur starfsfólk náttúrustofu tekið á móti gestum eins og leikskóla- og grunnskólabörnum. "Við opnunina ...
Tíminn | 26.06.2011 |
Ritstjórn
Opnunarhátíð Alþjóðaleika Special Olympics fór fram í Aþenu í gærkvöldi með pompi og prakt, en mesta lukku í íslenska hópnum vakti þó uppátæki þeirra Guðmundar Arnar Björnssonar og Áslaugar Þorsteinsdóttur en þau eru keppendur á vegum Íslands á leikunum. Guðmundur og Áslaug trúlofuðu sig í gær á meðan þúsundir íþróttamanna streymdu inn á Kallimarmaro Panathinaiko Stadium...
Tíminn | 23.06.2011 |
Ritstjórn
Lista- og menningarnefnd Snæfellsbæjar hefur undanfarin fjögur ár útnefnt bæjarlistamann Snæfellsbæjar, tilkynnt hefur verið um valið við hátíðahöld 17. júní og var sami háttur hafður á nú. Sigríður Gísladóttir myndlistarkona frá Bjarnarfossi í Staðarsveit var útnefnd sem bæjarlistamaður Snæfellsbæjar í ár af Lista- og menningarnefnd. ...
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Jón Eggert Bragason í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Grundarfirði til fimm ára. Skólinn útskrifaði nú í vor 14 nemendur sem allir luku stúdentsprófi og 5 nemendur kláruðu námið á 3 árum. Þegar hópurinn dimmiteraði voru þeir í gervi Valla hins týnda og þeir fóru, ásamt þeim sem útskrifast á næsta ári, í útskriftarferð til Ibiza. Jón Eggert er þekkir aðeins til í skólanum því hann hefur starfað sem settur skólameistari skólans í meira en ár eða frá 1. apríl 2010. Þar á...
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar um tæplega 10% að jafnaði frá og með 1. júlí 2011. Á heimasíðu Spalar, sem rekur göngin, segir að meginástæðan fyrir hækkuninni sé að umferð hefur dregist verulega saman og þar með rýrna tekjur af veggjaldi umtalsvert. Enn fremur ber að nefna þyngri greiðslubyrði af lánum, hækkandi verðlag og síðast en ekki síst miklar fjárfestingar sem ætlað er að uppfylla kröfur ESB um öryggi vegfarenda í veggöngum, alls 225 milljónir króna á tímabilinu 1. október 2010 til ársloka 2011....
Tíminn | 20.06.2011 |
Ritstjórn
100 laxar hafa veiðst í Norðurá í Borgarfirði það sem af er sumri. Kalt og hvasst hefur verið á Norðurárbökkum síðustu daga og aðstæður með erfiðara móti. Fiskur er genginn upp fyrir Laxfoss í einhverju magni, en Glannafossinn er meiri hindrun, þó svo einhverjir tugir hafi látið til skarar skríða og farið laxastigann. Má vænta þess að stutt sé í að fyrsti laxinn veiðist upp við Krók....
Tíminn | 12.06.2011 |
Ritstjórn
Nýlega var sett upp fiðrildagildra í þjóðgarðinum Snæfellsjökli en búið er að setja upp slíkar gildrur upp út um allt land. Vísindamenn munu fylgjast með komu fiðrilda í gildrurnar, hvaða tegundir koma og hvenær en ferðir fiðrilda gefa góða vísbendingu um breytingar í náttúrunni. Landverðir þjóðgarðsins munu fylgjast með gildrunni og koma þeim fiðrildum sem nást til Náttúrustofnunar en hingað til hafa ekki mörg fiðrildi endað í gildrunum. "Gildran er líkt og frá öðrum heimi í náttúru þjóðgarðsins...
Tíminn | 11.06.2011 |
Ritstjórn
Hjónin Bernd Ogrodnik og Hildur Magnea Jónsdóttir hjá Brúðuheimum í Borgarnesi voru í gær útnefnd frumkvöðlar Vesturlands 2011. Það eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Vaxtasamningur Vesturlands sem standa fyrir þessari viðurkenningu en þetta var jafnframt í sjöunda sinn sem hún var veitt. Alls voru tólf sprotafyrirtæki og einstaklingar sem hlutu útnefningu að þessu sinni og voru þau af öllu Vesturlandi,...
Tíminn | 07.06.2011 |
Ritstjórn
Hin árlega tónlistarhátíð IsNord verður haldin helgina 10. – 12. júní en hátíðin leggur áherslu á íslenska og norræna tónlist og fer fram á nokkrum stöðum Borgarfirði. "Á hátíðinni eru dregnar fram perlur frá íslenskum tónskáldum í bland við það besta frá Norðurlöndunum og okkar sameiginlegi tónlistararfur gerður aðgengilegur" segir á vefsíðu hátíðarinnar og er það von þeirra sem standa að IsNord að með þessu verði norræn tónlist og sérstaklega íslensk tónlist aðgengilegri almenningi...
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Svartir svanir eru sjaldséðir en nýlega sást til eins á Norðanverðu Snæfellsnesi. Svanurinn hefur haldið í álftahóp við Grundarfjörð undanfarna daga. Fiðurhamur svansins er svartur en flugfjaðrir hans eru hvítar og goggurinn er skærrauður með hvítri þverrönd. Svartir svanir koma stundum landsins og þá yfirleitt í í hóp með íslensku álftinni. "Ég hafði elst við þennan svarta svan allan daginn þegar ég náði honum loks undir kvöld þar sem hann var að hvíla sig við bæinn Kverná. Ég hafði...
Tíminn | 06.06.2011 |
Ritstjórn
Á Sjómannadaginn veitti Björgunarsveitin Lífsbjörg Snæfellsbæ Ægi Ingvarsyni þjónustumerki Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Ægir lét af störfum sem umsjónamaður Björgunarskipsins Bjargar um áramótin síðastliðin. Þetta er fyrsta þjónustumerkið sem er veitt....
Tíminn | 01.06.2011 |
Ritstjórn
Ásmundur Einar Daðason alþingismaður hefur ákveðið að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. Hann sagði sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs 14. apríl sl. og hefur síðan starfað sem óháður þingmaður. Ásmundur Einar sagði þá að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu helstu ástæðu þess að hann styddi ekki ríkisstjórnina....
Tíminn | 01.06.2011 |
Ritstjórn
Ný og bætt aðstaða er nú tilbúin fyrir smábáta á Akranesi. Þessi nýja aðstaða eru fjórar tuttugu metra steyptar flotbryggjur að breidd 3,5 metrar, sem tengar eru saman og settar fyrir utan eldri flotbryggjur við Bátabryggju. Um leið og aukin aðstaða fyrir smærri báta fæst við þessar bryggjur mynda þær skjól fyrir þá aðstöðu sem fyrir var....
Tíminn | 31.05.2011 |
Ritstjórn
Mikið tjón varð á bænum Laxholti í Borgarbyggð í gær þegar það kviknaði í hlöðu og fjárhúsi og eru bæði húsin ónýt. Einnig er ljóst að að minnsta kosti 10 hrútar brunnu inni ásamt nokkrum lömbum og hænum en það tókst að forða nokkrum kindum frá eldinum. Ekki er ljóst hvað olli brunanum. "Eldurinn kom upp um klukkan 20 í kvöld og var allt tiltækt lið Slökkviliðs Borgarbyggðar kallað á staðinn. Um 30 slökkviliðsmenn börðust við eldinn. Farið var með brunaslöngur í Gufuá ...
Tíminn | 27.05.2011 |
Ritstjórn
Stjórn KSÍ ákvað nýlega að úthluta um 30 milljónum úr Mannvirkjasjóði sambandsins og er þetta í fjórða skipið sem úthlutað er úr sjóðnum. Umsóknir voru 11 talsins og voru 9 samþykktar. Hæsti styrkurinn, eða 7 milljónir króna, var veittur í stúkubyggingu við Ólafsvíkurvöll og svo fékk KA fékk 5 milljónir til að endurbæta stúku við Akureyrarvöll. Hér fyrir neðan er listi yfir verkefni sem fengu styrk frá sjóðnum sem ætlað að styðja við...
Tíminn | 27.05.2011 |
Ritstjórn
Áhyggjuefni hefur verið hve lítið hefur veiðst af bleikju í Hítará á Mýrum. Veiðitölur í vor styðja það sem mikið hefur verið í umræðunni undanfarið, meðal annars af hendi Veiðimálastofnunar, að bleikjuveiði á Vesturlandi er í mikilli lægð. Svo mikilli að víða jaðrar ástandið við algjört hrun....
Tíminn | 26.05.2011 |
Ritstjórn
Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö í Skallagrímsgarði þann 9. júní. Þetta er fimmta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Leikgerðina um Mjallhvíti og dvergana sjö gerði Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er fyrsta leikritið sem hún skrifar en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006....
Tíminn | 26.05.2011 |
Ritstjórn
Áttu kannski skírnarkjól sem hefur fylgt fjölskyldunni í mörg mörg ár? Ertu með brúðarskóna hennar ömmu þinnar sem hún keypti á eftirminnilegan hátt, uppáhaldsbollann hans afa eða barnaskó af langömmu? Áttu öskupoka úr æsku þinni eða konfektkassa sem þú fékkst í gamla daga á konudeginum? eða hefur eitthvað fylgt þér og heimili þínu alla tíð - svona hlutir eru með sögu....
Tíminn | 25.05.2011 |
Ritstjórn
Í landi Lýsudals í Staðarsveit, sem er á sunnanverðu Snæfellsnesi, er þessa dagana verið að leggja lokahönd á nýtt gistiheimili og tjaldstæði. Hefur gistiheimilið fengið nafnið Kast guesthouse og tjaldstæðið nefnt Á Eyrunum. Á gistiheimilinu verða 19 gistirými og ein íbúð, herbergin eru ýmist útbúin sér snyrtingu eða sameiginlegri. Gott aðgengi er fyrir fatlaða....
Tíminn | 24.05.2011 |
Ritstjórn
Í tilkynningu sem Norðurál á Grundartanga hefur sent frá sér vill fyrirtækið ítreka mikilvægi þess að umræða um flóurmengun byggi á staðreyndum og að starfssemi Norðuráls hafi ekkert með meinta flúormengun í Hvalfirði að gera. Fyrirtækið segir að það magn sem það losi af flúori sé langt undir hættumörkum og auk þess sé búseta bönnuð á því svæði þar sem mengun frá álverum hefur áhrif. Hér er tilkynningin í heild sinni: "Losun flúors, sem og annarra efna...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Steyptar flotbryggjur rokseljast að sögn Bergþórs Ólasonar fjármálastjóra Loftorku sem framleiðir bryggjurnar í samstarfi við Króla ehf. í Reykjavík og SF Marina í Svíðþjóð. Búið er að selja alls 12 flotabryggjur og hafa þær farið til Húsavíkur, Bólungarvíkur og Akraness en þar voru settar niður þrjár bryggjur í síðustu viku. Í júlí mánuði verða svo fimm bryggjur, alls 100 metrar á lengd, bundnar saman í Akraneshöfn og þaðan verða þær dregnar til Reykjavíkur þar sem þær verða notaðar
...
Tíminn | 23.05.2011 |
Ritstjórn
Að kvöldi föstudagsins var óskað aðstoðar lögreglu og sjúkraliðs að húsi við Presthúsabraut á Akranesi. Þar höfðu þrír menn ráðist inn í húsið og barið húsráðandann með járnstöngum. Húsráðandinn og ung kona, sem var á staðnum og hafði einnig orðið fyrir höggum, voru flutt á sjúkrahús til skoðunar. Húsráðandinn hafði fengið mörg högg, m.a. í höfuðið. Hann var lagður inn til frekari rannsóknar....
Tíminn | 22.05.2011 |
Ritstjórn
Stykkishólmsbær var fyrir helgina útnefndur EDEN-gæðaáfangastaður í Evrópu 2011 fyrir varðveislu og endurnýjun menningarminja og metnaðarfulla stefnu í sjálfbærri þróun í ferðaþjónustu. Viðurkenninguna fær bæjarfélagið vegna markvissrar uppbyggingar gömlu húsanna í bænum sem gengið hafa í endurnýjun lífdaga og öðlast nýtt hlutverk í ferðaþjónustu, þar sem sjálfbærni- og umhverfishugsun er í forgrunni....
Tíminn | 20.05.2011 |
Ritstjórn
Fyrir þá sem eru að huga að háskólanámi, hvort sem það er framhaldsnám eða grunnám, þá er upplagt að gera sér ferð í Háskólann á Bifröst á morgun, laugardaginn 21. maí. Þá verður opinn dagur í háskólanum og munu kennarar, starfsfólk og nemendur taka á móti gestum og gangandi og sýna þeim háskólasvæðið, íbúðir og aðstöðu og svo verða auðvitað námsleiðir skólans kynntar. Einnig verður kynnt stoðþjónusta á svæðinu eins og barnaskóli...
Tíminn | 20.05.2011 |
Ritstjórn
Á morgun, laugardaginn 21. maí klukkan 14:00, opnar ljósmyndasýning á Akranesi sem ætlað er að gefa mynd af sjómennsku, veiðum og vinnslu á síðustu öld. Sýningin er staðsett í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi og verða meðal annars myndir af skipum, bátum, áhöfnum og vinnslu í landi. Einnig verða á sýningunni ýmsir munir tengdir sjómennsku...
Tíminn | 19.05.2011 |
Ritstjórn
Sprenging varð í ofni Járnblendiverksmiðju Elkem á Grundartanga um kvöldmatarleytið í dag. Að sögn lögreglunnar á Akranesi var um minniháttar sprengingu að ræða við ofn 1 og sem virðis hafa orsakast af því að vatn komst í snertingu við heitan málm sem verið var að bræða.
Lögreglubílar, slökkvilið og sjúkrabílar voru se...
Tíminn | 18.05.2011 |
Ritstjórn
Ársreikningar Akranesbæjar sýna að margt í rekstri bæjarins var frábrugðið því sem fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir. Heildartekjur bæjarins voru 4.055 milljónir króna á síðasta ári sem eru 122 milljónum króna hærri upphæð en fjárhagsáætlun sagði til um. Heildarafkoma bæjarins var 125 milljónir umfram fjárhagsáætlun ...
Tíminn | 17.05.2011 |
Ritstjórn
Lögreglumenn frá Akranesi stöðvuðu í gær akstur bifreiðar í Hvalfirði vegna gruns um að ökumaður væri undir áhrifum fíkniefna. Lögreglumönnum á vettvangi þótti öruggara að kanna málið eitthvað betur og fengu starfsbróðir úr Borgarnesi til liðs við sig. Kannaði hann vegaspotta næst staðnum þar sem ökumaðurinn var stöðvaður og fann þar poka með 100 gr af marihuana. Ökumaðurinn sem handtekinn hafði verið, var færður á lögreglustöð til skýrslutöku....
Tíminn | 17.05.2011 |
Ritstjórn
Í nýrri stjórn Landssambands eldri borgara eru konur í meirihluta og er það í fyrsta skipti í sögu sambandsins. Nýr formaður sambandsins er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir frá Félagi eldri borgara í Dalabyggð Reykhólahreppi og er þetta í fyrsta skipti sem kona er formaður sambandsins að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá landssambandinu. Landssamband eldri borgara hélt landsfund sinn...
Tíminn | 16.05.2011 |
Ritstjórn
Nýtt gallerí opnaði í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. Það heitir Gallerí Gersemi og er listmuna- og handverksgallerí í eigu hjónanna Þorkells Þorkellssonar ljósmyndara og Hebu Soffíu Björnsdóttur, sem stýrði Markaðsstofu Vesturlands, og sjá þau einnig um rekstur gallerísins. Á Skessuhorni kemur fram að...
Tíminn | 15.05.2011 |
Ritstjórn
Síðastliðinn föstudag skrifaði formaður Verkalýðsfélags Akraness, Villhjálmur Birgisson, undir þrjá kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins í húsakynnum ríkissáttasemjara.
Samningarnir sem um ræðir eru kjarasamningar á almennum vinnumarkaði, samningar fyrir starfsfólk fiskimjölsverksmiðjunnar og einnig tókst að ganga frá fyrirtækjasamningi fyrir starfsmenn ISS sem starfa í mötuneytinu og við ræstingar hjá Elkem Ísland á Grundartanga...
Tíminn | 13.05.2011 |
Ritstjórn
Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ fékk nýlega 700.000 krónur að gjöf frá áhöfn og útgerð Steinunnar SH og er upphæðin ætluð til styrktar starfsemi sveitarinnar. Á Skessuhorni segir að óhætt sé að segja að Lífsbjörg eigi öflugt bakland í sveitarfélaginu þar sem stuðningur útgerða, annarra fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga hefur verið ómetanlegur...
Tíminn | 13.05.2011 |
Ritstjórn
Frá 10. maí til 31. júlí verður slökkt á öllum ljósastaurum í Stykkishólmsbæ. Með því er áætlað að ná fram þeim 10% niðurskurði (500.000 kr.) í götulýsingu sem stefnt var á í fjárhagsáætlun fyrir árið 2011. Vonumst við til að bæjarbúar og gestir sýni þessari tilraun skilning. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stykkishólmsbæ...
Tíminn | 06.05.2011 |
Ritstjórn
Fyrsti lax sumarsins veiddist í Hvítá í Borgarfirði í fyrradag. Var veiðimaðurinn þó ekki að reyna að ná laxi því fiskurinn veiddist net sem ætlað var í silungaveiðar. Þetta er fyrsta staðfesti staðfesti lax sumarsins samkvæmt SVFR. Laxinn veiddist Hofsstaðamegin í Hvítánni sem gefur sterklega til kynna að hann hafi verið á leið upp í Þverá/Kjarrá...
Tíminn | 06.05.2011 |
Ritstjórn
Félagar í Slökkviliði Grundafjarðar kepptu í gær í fótbolta klæddir slökkviliðsbúning og með reykköfunarbúnað. Skipt var í lið eftir aldri og töpuðu þeir yngri 10-2 fyrir þeim eldri í hópnum. Að sögn Skessuhorns.is voru menn löðursveittir og þreyttir eftir leikinn enda tók hann mikið á...
Tíminn | 06.05.2011 |
Ritstjórn
Áhugafólk um mótorhjól ætti að finna eitthvað fyrir sig í Borgarnesi á morgun, laugardaginn 7. maí en þá fer fram í níunda skiptið árleg sýning Bifhjólafélagsins Raftanna. Sýningin verður í og við hús Menntaskóla Borgarfjarðar frá 13 til 17 og eru sýningaratriðin fjölbreytt. Hægt verður að skoða gömul og ný hjól, speedway braut verður í fjöru rétt hjá skólahúsinu og trial hjólamenn sýna listir sínar...
Tíminn | 05.05.2011 |
Ritstjórn
Fallið hefur verið frá áformum um sameiningu lögregluembætta á Vesturlandi og Vestfjörðum í eitt, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. Þess í stað verða eingöngu embættin á Vesturlandi sameinuð. Lögreglufélag Vesturlands fagnar þessari niðurstöðu....
Tíminn | 05.05.2011 |
Ritstjórn
Á mánudaginn var hvítabjörn drepinn á Hornströndum og í síðustu viku fannst dauður háhyrningur við höfnina í Rifi á Snæfellsnesi. Það er því ýmislegt sem rekur á fjörur okkar Íslendinga þessa dagana. Háhyrningurinn sem fannst á Rifi hefur sjálfsagt verið í hópi fleiri hvala sem hafa vanið komu sína inn í höfnina að undanförnu, að því er fram kemur í bæjarfréttablaðinu Jökli....
Tíminn | 03.05.2011 |
Ritstjórn
Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2010 var lagður fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku, en seinni umræða verður á sveitarstjórnarfundi þann 12. maí. Niðurstaða ársreikningsins ber með sér að rekstur Borgarbyggðar er að nýju kominn á réttan kjöl eftir áföll kreppunnar haustið 2008....
Tíminn | 02.05.2011 |
Ritstjórn
Grundarfjarðarbær stendur fyrir ljósmyndasamkeppni í sumar. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir bestu myndirnar. Samkeppnin stendur frá 2. maí til 31. ágúst og verða myndirnar að vera teknar á því tímabili og innan sveitarfélagsmarka....
Tíminn | 28.04.2011 |
Ritstjórn
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands rann út mánudaginn 25. febrúar sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá þremum konum og fjórum körlum....
Tíminn | 26.04.2011 |
Ritstjórn
Slökkt verður á götulýsingu á vegum Borgarbyggðar í öllum þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins þann 2. maí næstkomandi. Undantekning er þjóðvegurinn gegnum Borgarnes, en þar munu ljós áfram loga eins og verið hefur. Er þetta þriðja sumarið sem þetta fyrirkomulag er haft og gert til að halda niðri kostnaði sveitarfélagsins við rekstur götulýsingar...
Tíminn | 25.04.2011 |
Ritstjórn
Sjónarspil það sem hefur verið í nágrenni Grundarfjarðar undanfarið virðist vera farið að breiðast út um allan Breiðafjörð. Allt frá Öndverðarnesi og inn allan fjörð er sjórinn hvítur af fugli og stór hópur háhyrninga hefur farið með ströndinni. Fyrir skömmu sást hópur með u.þ.b. 20 háhyrningum alveg uppi í fjöru, undir bökkunum í Ólafsvík....
Tíminn | 24.04.2011 |
Ritstjórn
Félagsmenn Vinstri Grænna á Snæfellsnesi krefjast þess að Ásmundur Einar Daðason segi af sér þingmennsku og hleypi varaþingmanni. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á sameiginlegum fundi svæðisfélaga Vinstri Grænna í Grundarfirði og Stykkishómi. Ástæðurnar sem gefnar eru upp í ályktuninni eru þær að hann hafi greitt atkvæði með vantrauststillögu á ríkisstjórnina og einnig hafi ákvörðunin verið tekin án samráðs við félagsmenn Vinstri Græna á Snæfellsnesi...
Tíminn | 21.04.2011 |
Ritstjórn
Kaffihús með tónlistarþema opnaði í Fossatúni í Borgarfirði í dag. Kaffi Vínill heitir það og verður boðið upp á heimagerðan mat, hádegishlaðborð, grillmat og fleira. Á kaffihúsinu eru nú um 3.700 vínilplötur sem gestir geta skoðað og fengið að hlusta á. Plötusafnið er mest með tónlist frá sjöunda, áttunda og níunda áratugnum...
Tíminn | 21.04.2011 |
Ritstjórn
Þann 7. maí fer Víðavangshlaup Íslands 2011 fram og er það haldið á Hvanneyri í Borgarfirði. Hlaupið stendur yfir frá klukkan 11:00 til 14:00 og verður hlaupið um svæðið í kringum Hvanneyrarstað. Ráðsmark verður við aðalbyggingu Landbúnaðarháskólans og í aðalbyggingunni verður einnig búningaaðstaða...
Tíminn | 19.04.2011 |
Ritstjórn
Kolfinna Jóhannesdóttir hefur verið ráðin skólameistari við Menntaskóla Borgarfjarðar frá og með 1. ágúst nk. Kolfinna er viðskiptafræðingur, með meistarapróf í hagnýtum hagvísindum frá Háskólanum á Bifröst og með diplóma í kennslufræðum frá Háskólanum í Reykjavík...
Tíminn | 19.04.2011 |
Ritstjórn
Nýr kjarasamningur milli Verkalýðsfélags Akraness og Samtaka atvinnulífsins vegna starfsmanna Elkem á Grundartanga var undirritaður í húsi Ríkissáttasemjara um klukkan 11 í morgun. Samningurinn felur m.a. í sér að 9,5% launahækkun á þessu ári, 3,3% hækkun á næsta ári og 3% hækkun á árinu 2012. Samningurinn er til þriggja ára, en samningar við Elkem höfðu verið lausir síðan um áramót....
Tíminn | 19.04.2011 |
Ritstjórn
Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Akranesi hélt félagsfund í gær. Fundurinn samþykkti að fela stjórn að boða sem fyrst til fundar með öllum þingmönnum í kjördæminu til að fara yfir þá stöðu sem nú er komin upp. Einnig samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun: ...
Tíminn | 18.04.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Akranesi þarf ekki að fara langt til að leggja hald á fíkniefni. Á laugardagskvöldið tóku lögreglumenn eftir ungum manni sem var á leið frá heimili þekkts fíkniefnasala í bænum sem býr í nágrenni við lögreglustöðina....
Tíminn | 14.04.2011 |
Ritstjórn
Jörfagleði verður haldin hátíðleg dagana 15. - 20. apríl. Skipulag er í höndum menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar. Jörfagleði, sem er haldin annað hvert ár, er hátíð fólksins og þess vegna leggur nefndin áherslu á það að allir eru velkomnir til leiks, eins og alltaf. Formleg setning hátíðarinnar fer fram í Dalabúð kl. 19:50 annað kvöld. Dagskrá Jörfagleðinnar má finna HÉR....
Tíminn | 14.04.2011 |
Ritstjórn
Afurðahæsta kýr landsins sl. 12 mánuði yfir landið er Lýsa frá Stakkhamri 2 skv. skýrsluhaldi Bændasamtaka Íslands. Hún er með 12.424 kg mjólkur í ársnyt. Í febrúar var kýtin Rót frá Syðri-Bægisá afurðahæst með 12.889 kg en lækkar um rúm 700 kg á milli mánaða en heldur þó öðru sæti á landsvísu! Fram kemur í yfirliti BÍ að 6 kýr mjólkuðu yfir 11 þúsund kg, þar af tvær yfir 12 þúsund kg....
Tíminn | 12.04.2011 |
Ritstjórn
Umhverfis- og skipulagsnefnd Borgarbyggðar stendur nú fyrir umhverfisátaki í dreifbýli líkt og flest undanfarin ár. Íbúum í dreifbýli býðst að fá timbur og járnagáma gegn vægu gjaldi og geta pantað timbur- og/eða járnagám, heim á hlað, í tvo daga, á tímabilinu 13. - 30. maí og 19. – 29. ágúst....
Tíminn | 12.04.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Akranesi lagði hald á liðlega 200 lítra af gambra og 17 lítra af landa. Vísbendingar höfðu borist um að bruggun stæði yfir í íbúð í bænum. Lögreglumenn knúðu þar dyra og fundu brugglykt þegar opnað var. Húsráðandi var nú ekki alveg á því að hleypa lögreglumönnum inn í fyrstu en gaf sig eftir nokkrar samræður. Framangreindur vökvi var haldlagður auk tækja og tóla. ...
Tíminn | 10.04.2011 |
Ritstjórn
Hnúksnes ehf. hélt fyrsta aðalfund sinn um nokkurra ára skeið sl. fimmtudag, en fundurinn var haldinn í Stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. Þetta var fyrsti aðalfundur félagsins frá því að Friðjón Þórðarson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, féll frá en hann hafði haft umsjón félagsins á sinni könnu. Í upphafi fundar vottuðu fundarmenn Friðjóni virðingu sína með því að rísa úr sætum....
Tíminn | 08.04.2011 |
Ritstjórn
Þrjú verkalýðsfélög; Framsýn, Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðsfélag Þórshafnar óskuðu í morgun eftir fundi með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins um sérmál og launalið kjarasamnings aðila. Þessi þrjú félög ákváðu á sínum tíma að segja skilið við önnur stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands vegna mismunandi áherslna í kröfugerð sambandsins ...
Tíminn | 06.04.2011 |
Ritstjórn
"Það er þyngra en tárum taki að verða vitni að þeim hótunum sem Samtök atvinnulífsins og einstaka forystumenn innan Alþýðusambands Íslands beita þessa dagana vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í nýrri bloggfærslu sinni á vef VLFA. ...
Tíminn | 06.04.2011 |
Ritstjórn
Sannkallaðir vorboðar mættu á Dvalar-og hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík í gær. Þar voru á ferðinni hinu skemmtilegu Álftagerðisbræður. Fluttu þeir sín góðu sígildu lög og hreif flutningur þeirra alla viðstadda. Leynigestur þeirra var hin frábæra söngkona Veronika Österhammer, sem söng með þeim nokkur lög....
Tíminn | 05.04.2011 |
Ritstjórn
Laust er til umsóknar embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess aðskólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. ...
Tíminn | 04.04.2011 |
Ritstjórn
Netarall Hafrannsóknastofnunarinnar, eða stofnmæling á hrygningarslóð þorsks, hófust 1. apríl, en þetta er 16. árið sem farið er til þessara rannsókna. Sex bátar taka þátt í netarallinu og hefur verið mokveiði hjá þeim flestum....
Tíminn | 03.04.2011 |
Ritstjórn
Hvalfjarðargöngin verða lokuð fyrir umferð í alls átta nætur núna í fyrri hluta aprílmánaðar vegna viðhalds og hreingerningar. Fyrri viðhalds- og hreingerningartörnin verður 5. til 8. apríl, þ.e. aðfaranætur þriðjudags, miðvikudags, fimmtudags og föstudags í þessari viku. Þá verða göngin lokuð frá miðnætti til kl. 6 að morgni....
Tíminn | 03.04.2011 |
Ritstjórn
Bernd Ogrodnik verður með tvær sýningar, Gilitrutt og Umbreytingu, á síðasta degi B I P alþjóðlegu brúðulistahátíðarinnar í Borgarnesi í dag, sunnudaginn 3. apríl. Báðar sýningarnar verða í Brúðuheimum og hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda...
Tíminn | 31.03.2011 |
Ritstjórn
Lögreglan á Akranesi framkvæmdi í dag húsleit, að fengnum úrskurði héraðsdóms vesturlands. Grunur lék á að húsráðandi stæði að sölu fíkniefna. Við leitina fundust u.þ.b 27 grömm af amfetamíni og 2 - 3 grömm af marihuana. Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Viðurkenndi hann að eiga efnin en neitaði að tjá sig um ætlaða sölu....
Tíminn | 30.03.2011 |
Ritstjórn
Pétur Ben verður með tónleika á föstudagskvöldið 1. apríl næstkomandi, í Brúðuheimum í Borgarnesi. Tónleikarnir hefjast kl. 22. Pétur mun flytja m.a. tónlist af disk sínum Wine for My Weakness. Laugardaginn 2. apríl kl. 18 verður leiksýningin Diva frumflutt á B I P hátíðinni....
Tíminn | 30.03.2011 |
Ritstjórn
Heildaraflaverðmæti loðnuskipanna hjá HB Granda á loðnuvertíðinni var um 1,9 milljarðar króna. HB Grandi gerir út fjögur loðnuskip; Faxi RE, Ingunn AK, Lundey NS og Víking AK. Fiskimjölsverksmiðjur og fiskiðjuver HB Granda á Akranesi og Vopnafirði tóku á móti 61.000 tonnum af loðnu til vinnslu á loðnuvertíðinni...
Tíminn | 30.03.2011 |
Ritstjórn
Í gær var kynnt aðgerðaráætlun sem á að tryggja rekstur Orkuveitu Reykjavíkur til frambúðar. Sveitarfélagið Borgarbyggð á sem nemur 0,93% hlut í Orkuveitu Reykjavíkur. Í björgunaraðgerðum OR felst m.a. að Borgarbyggð þarf að leggja OR til 112 milljónir króna og þar af 75 milljónir á þessu ári....
Tíminn | 28.03.2011 |
Ritstjórn
Stjórn menningarsjóðs Borgarbyggðar úthlutaði úr sjóðnum á fundi sínum á dögunum. Við skoðun á umsóknum var lögð áhersla á grasrótarstarf í héraði. Umsóknir voru alls 32 talsins og hljóðuðu upp á 13 -15 milljónir. Úthlutað var kr. 2.000.000 til 20 verkefna að þessu sinni....
Tíminn | 24.03.2011 |
Ritstjórn
Bárður SH, sem er plast netabátur og gerður út frá Arnarstapa á Snæfellsnesi, fékk á dögunum 18 tonn af fiski í aðeins tvær trossur, eftir að netin höfðu legið í sjónum í aðeins tvo tíma. Hann var aflahæstur allra netabáta í janúar með 196 tonn og aflaverðmæti upp á 56 milljónir króna. ...
Tíminn | 23.03.2011 |
Ritstjórn
Fyrsta alþjóðlega brúðuleikhúshátíðin verður haldin í Brúðuheimum, BIP (Borgarnes International Puppet Festival) dagana 31. mars - 3. aprí. Hátíðin er haldin í húsakynnum Brúðuheima í Englendingavík, en hún mun einnig teygja anga sína víðsvegar um gamla bæinn í Borgarnesi og glæða hann lífi með fjölbreyttum dagskráratriðum. ...
Tíminn | 22.03.2011 |
Ritstjórn
Jón Ingi Sigurðsson, sundmaður úr Skallagrími, var kjörinn íþróttamaður Borgarbyggðar árið 2010 við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti laugardaginn 19. mars. Hann bætti 37 Borgarfjarðarmet á árinu í pilta- og karlaflokki og á nú 60 Borgarfjarðarmet. Hann á auk þess besta tíma ársins á Íslandi í flokki 15-17 ára í 50 m bringusundi í 25 og 50 metra laug. Hann bætti sig mikið á árinu 2010 og er tvímælalaust einn besti sundmaður Borgfirðinga....
Tíminn | 22.03.2011 |
Ritstjórn
Úthlutun Menningarráðs Vesturlands fór fram í Borgarnesi sl. föstudag. Bernd Ogrodnik og Hildur M Jónsdóttir hlutu hæstan styrk Menningarráðs Vesturlands í ár eða 1.250.000 kr fyrir uppsetningu á Gamli maðurinn og hafið. Brúðuleikhús fyrir fullorðna leikhúsgesti, en sýningin verður einnig í boði fyrir eldri bekki grunnskólans- og framhaldsskóla. Þórhallur Sigurðsson leikstjóri leikstýrir sýningunni. ...
Tíminn | 19.03.2011 |
Ritstjórn
Sr. Björn Jónsson, fyrrverandi prófastur á Akranesi, hefur gefið Akurnesingum glæsilegt einkabókasafn sitt, en formleg afhending þess fór fram við athöfn á heimili þeirra Sr. Björns og eiginkonu hans, Sjafnar Pálfríðar Jónsdóttur, í síðustu viku. Það var Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri sem veitti gjöfinni viðtöku en viðstaddir voru einnig Sveinn Kristinsson, forseti bæjarstjórnar og Guðmundur Páll Jónsson, formaður bæjarráðs auk Halldóru Jónsdóttur, bæjarbókavarðar....
Tíminn | 18.03.2011 |
Ritstjórn
Bæjarráð Akraness samþykkti nýlega að ganga til samninga við Harald Sturlaugsson og Ingibjörgu Pálmadóttur í framhaldi af erindi sem þau hjónin sendu bæjarráði þar sem þau bjóða Akraneskaupstað lóðarhluta þeirra á Breið til kaups. Ef kaupin ganga eftir, óska þau hjón eftir leyfi bæjaryfirvalda til að ráðstafa söluverðinu til að reisa sólpall fyrir aftan stúku grasvallarins að Jaðarsbökkum, sem myndi nýtast gestum og gangandi við Langasand. ...
Tíminn | 16.03.2011 |
Ritstjórn
Í kjölfar frétta um díoxínmengun frá sorpbrennslum, hyggst Umhverfisstofnun hefja mælingar á díoxín í jarðvegi í nágrenni mögulegra uppsprettna hérlendis. Þar eru álver tilgreind sem mögulegar uppsprettur. Í þessu sambandi vill Norðurál taka fram að engar fræðilegar forsendur eru fyrir því að starfsemi álversins á Grundartanga geti valdið slíkri mengun. ...
Tíminn | 15.03.2011 |
Ritstjórn
Nýlega var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri útgerðarmiðstöð við Faxabraut á Akranesi. Miðstöðinni er ætluð er að verða hreiður smærri útgerða á Akranesi - en í nálægð við hjarta bæjarins. Útgerðarmiðstöðin verður liðlega 900m2 að stærð....
Tíminn | 15.03.2011 |
Ritstjórn
14 sækjast eftir starfi garðyrkjustjóra á Akranesi. Umsóknir um stöðuna voru reyndar alls 17, en þrír umsækjendur drógu umsókn sína til baka þar sem nafnleynd kom ekki til greina. Það er fyrirtækið Capacent sem hefur umsjón með ráðningarferlinu fyrir Akraneskaupstað....
Tíminn | 15.03.2011 |
Ritstjórn
Vestlendingar eru almennt ánægðir með búsetuskilyrði, nema þegar kemur að þáttum sem tengjast vinnumarkaði og framfærslukostnaði. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu um niðurstöður íbúakönnunar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV, en megintilgangur hennar er að kanna hvort íbúar á Vesturlandi séu ánægðir með búsetuskilyrði á svæðinu. Þá var einnig reynt að varpa ljósi á hvort fátækt eða fjárhagsvandi væri vandamál meðal Vestlendinga....
Tíminn | 08.03.2011 |
Ritstjórn
Gengið hefur verið frá ráðningu verkefnisstjóra FabLab smiðjunnar á Akranesi, en starfið var auglýst fyrir áramót og bárust 8 umsóknir um það. Ákveðið var að ráða Vigdísi Sæunni Ingólfsdóttur en hún hefur lokið meistaraprófi í vöruhönnun og einnig stundað nám í tískuhönnun. Vigdís tekur til starfa í apríl en hún er að flytja búferlum frá Danmörku. Ómar Örn Kristófersson gegnir verkefnisstjórastarfinu þar til Vigdís kemur til starfa. ...
Tíminn | 07.03.2011 |
Ritstjórn
Umferð í Hvalfjarðargöngum var 2,8% minni í febrúar en í sama mánuði í fyrra. Það segir hins vegar ekki nema hálfa sögu því mánuðurinn var óvenjulega kaflaskiptur, að því er fram kemur á heimasíðu Spalar. Fyrri hluta febrúar var umferðin 15% minni en á sama tíma í fyrra en í seinni hlutanum var hún umtalsvert meiri en í sama tíma í fyrra!...
Tíminn | 03.03.2011 |
Ritstjórn
Fjölbrautaskóli Snæfellinga í samvinnu við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefur ákveðið að bjóða eins árs nám í bygginga- og málmiðngreinum næsta skólaár. Á haustönn 2011 verða kenndar almennar bóklegar greinar ásamt grunnteikningu, upplýsingatækni og verktækni grunnnáms. Verktækni grunnnáms er verklegt nám sem fer að stærstum hluta fram við FSN ásamt námskeiðum á verkstæðum FVA...
Tíminn | 28.02.2011 |
Ritstjórn
Á síðastliðnu hausti byrjaði hópur nemenda í smíðavali 10. bekkjar Grunnskólans í Stykkishólmi á fjölbreyttu verkefni sem tengist nánasta umhverfi skólans. Verkefnið er samstarf við Árna Ásgeirsson (fyrrum nemanda skólans) og Háskólasetur Snæfellsness. Einnig koma Sæferðir að verkefninu þar sem horft er meðal annars til þátta ferðaþjónustunnar....
Tíminn | 24.02.2011 |
Ritstjórn
Mikil gleði ríkti í Stykkishólmi í gær þegar EarthCheck fáninn var dreginn að hún í sól og blíðu. Nú geta sveitarfélögin á Snæfellsnesi með meira áberandi hætti auglýst þann glæsilega áfanga semumhverfisvottun EarthCheck er. ...